podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Ritstjorn Morgunblaðsins
Shows
Hringferðin
#54 - Hótel Holt - Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands er síðasti, en alls ekki sísti, gestur Hringferðar Morgunblaðsins sem farið var í af tilefni af 110 ára afmæli blaðsins. Morgunblaðið fagnar 111 ára afmæli í dag. Andrés Magnússon og Marta María Winkel Jónasdóttir settust niður með Guðna á Hótel Holti við Bergstaðastræti í Reykjavík.
2024-11-02
1h 06
Hringferðin
#45 - Vildi veitingastað en endaði með hótel
Friðrik Pálsson hefur rekið Hótel Rangá í rúma tvo áratugi. Í viðtali við hlaðvarp hringferðar Morgunblaðsins fjallar hann meðal annars um þau atriði sem helst ber að huga að við rekstur á hóteli í umhverfi sem oft á tíðum er krefjandi.
2024-08-31
48 min
Hringferðin
#35 - Bræðrabrugg í Eyjum
Brothers Brewery hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem eitt áhugaverðasta brugghús landsins. Það er starfrækt í glæsilegu húsnæði í Vestmannaeyjum og nú hefur fyrirtækið opnað minnsta bar á Íslandi við höfnina í Eyjum. Þessu öllu fengu blaðamenn Morgunblaðsins að kynnast á ferð sinni út í Heimaey.
2024-06-22
40 min
Hringferðin
#31 - Reykjanesbær Halla Tómasdóttir
Á þriðja hundrað manns mætti á forsetafund Morgunblaðsins og mbl.is með Höllu Tómasdóttur á Park Inn by Radisson í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Þetta var síðasti forsetafundurinn en í næstu viku verða haldnar forsetakappræður á vegum Morgunblaðsins og mbl.is. Halla hefur verið á flugi í skoðanakönnunum að undanförnu og munar núna innan við sex prósentustigum á henni og Katrínu Jakobsdóttur, sem er með mesta fylgið, í skoðanakö
2024-05-24
1h 19
Hringferðin
#30 - Akureyri Katrín Jakobsdóttir
Forsetafundur Morgunblaðsins á Græna hattinum á Akureyri með Katrínu Jakobsdóttur var fjölsóttur, en á annað hundrað manns gerðu sér leið þangað. Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýrðu fundinum og spurðu Katrínu ýmissa spurninga um embætti forseta Íslands og hvernig hún hygðist haga setu sinni í embættinu.
2024-05-21
1h 14
Fyrsta sætið
#66 - Enska sætið: Líklega besta liðið í sögu úrvalsdeildarinnar
Bjarni Helgason gerði upp tímabilið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.
2024-05-21
1h 01
Hringferðin
#29 - Selfoss Baldur Þórhallsson
Hátt í 200 manns sóttu forsetafund Morgunblaðsins með Baldri Þórhallssyni á Hótel Selfossi þar sem líflegar umræður sköpuðust um ýmis mál. Í upphafi fundar voru álitsgjafar fengnir til að ræða stöðuna og spá í spilin um forsetakosningarnar. Kjartan Björnsson, rakarameistari og forseti bæjarstjórnar Árborgar, og Aldís Hafsteinsdóttir sveitarstjóri Hrunamannahrepps voru álitsgjafarnir að sinni og voru sammála um að um mjög sp
2024-05-15
1h 23
Hringferðin
#28 Patreksfjörður - Með heilan spítala í fanginu
Rebekka Hilmarsdóttir og maður hennar, Örn Hermann Jónsson, tókust á hendur það verkefni árið 2014 að gera upp gamla spítalann á Patreksfirði sem reistur var á Geirseyrinni árið 1901. Þau standa enn í þeim stórræðum og halda því reyndar fram að verkefninu muni sennilega aldrei ljúka. Morgunblaðið tók hús á þeim á kyrrlátu kvöldi við fjörðinn.
2024-05-11
26 min
Fyrsta sætið
#65 - Viktor Gísli: Stefnir á spíkat í fyrsta skiptið á ævinni
Viktor Gísli Hallgrímsson, landsliðsmarkvörður Íslands í handbolta og leikmaður Nantes í Frakklandi, gerði upp tíma sinn í Frakklandi, ræddi um meiðslin sem hafa verið að plaga hann undanfarin tvö ár, fór yfir fyrsta árið hjá landsliðinu undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar ásamt því að fara yfir Bestu deildir karla og kvenna og spá í spilin fyrir úrslitakeppnirnar í handboltanum og körfuboltanum ásamt íþróttablaðamanninum Haraldi Árna Hróðmarssyni.
2024-05-10
58 min
Hringferðin
#27 - Egilsstaðir Halla Hrund Logadóttir
Hátt í tvö hundruð manns sóttu líflegan borgarafund Morgunblaðsins með Höllu Hrund Logadóttur forsetaframbjóðanda í félagsheimilinu Valaskjálf á Egilsstöðum. Halla Hrund sagði á fundinum að kannski væri sjaldan meiri þörf en nú að velja forseta sem myndi leggja sig fram við að sameina þjóðina. Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson spurðu Höllu Hrund um framboðsáherslur hennar til embættis forseta Ísla...
2024-05-07
1h 13
Fyrsta sætið
#64 - Enska sætið: Stuðningsmennirnir komnir með upp í kok af honum
Bjarni Helgason gerði upp 36. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.
2024-05-06
43 min
Hringferðin
#26 Hallormsstaðaskógur - Alltaf að baksa í moldinni
Fyrir Bergrúnu Örnu Þorsteinsdóttur aðstoðarskógarvörð í Hallormsstaðaskógi kom fátt annað til greina en að vinnaí umhverfi þar sem tengslin við náttúruna eru mikil. Það hefur hún gert síðan sumarið 1987 og unir hag sínum vel.
2024-05-05
34 min
Hringferðin
#25 Patreksfjörður - Sveitarstjórnarkosningar á miðju kjörtímabili
Gengið er til sveitarstjórnarkosninga í nýju sveitarfélagi þann 4. maí, aðeins tveimur árum eftir síðustu kosningar. Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð renna nú saman í eina sæng. Oddvitar framboðanna tveggja sem bjóða fram ræða við Moggamenn um kosningarnar og stöðuna í sveitarfélaginu.
2024-05-02
57 min
Hringferðin
#24 Ísafjörður - Jón Gnarr
Það var húsfyllir á borgarafundi Morgunblaðsins á Ísafirði með forsetaframbjóðandanum Jóni Gnarr í gærkvöldi. Jón sagði að eftir að hann lét af störfum sem borgarstjóri Reykjavíkur árið 2016 hefði fólk komið að máli við sig um að hann byði sig fram til forseta. Þá hefði verið gerð könnun sem leit vel út fyrir hann en Jón taldi þá ekki rétt að bjóða sig fram.
2024-04-30
1h 04
Fyrsta sætið
#63 - Enska sætið: Erfitt að sjá toppliðin misstíga sig á lokametrunum
Bjarni Helgason gerði upp 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.
2024-04-29
47 min
Hringferðin
#23 Mývatn - Uppgötvaðist fyrir algjöra tilviljun
120 metra langur hellir uppgötvaðist fyrir tilviljun við Jarðböðin við Mývatn þegar ákveðið var að stækka þjónustuhús sem nú er í byggingu. Guðmundur Þór Birgisson framkvæmdastjóri Jarðbaðanna hitti blaðamenn í menningarhúsinu Hofi á Akureyri og ræddi um lífið í Jarðböðunum, hinn dularfulla helli sem uppgötvaðist fyrir tilviljun og framtíðarhorfur í ferðamennskunni.
2024-04-28
23 min
Fyrsta sætið
#62 - Enska sætið: Hefur meiri trú á Arsenal en Liverpool
Bjarni Helgason gerði upp 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jökli Þorkelssyni og Sonju Sif Þórólfsdóttir, aðstoðarfréttastjóra Morgunblaðsins.
2024-04-22
29 min
Hringferðin
#22 Egilsstaðir - Gunnar Gunnarsson, ritstjóri Austurfrétta.
Gunnar Gunnarsson hóf ferilinn á því að skrifa fyrir vefsíðu stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi en er í dag ritstjóri Austurfréttar og hefur verið í um áratug.
2024-04-20
38 min
Fyrsta sætið
#61 - Enska sætið: Gæti hentað þeim betur að elta City
Bjarni Helgason gerði upp 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jökli Þorkelssyni.
2024-04-15
48 min
Hringferðin
#21 Seyðisfjörður - Gleymir seint deginum sem skriðurnar féllu
Sól skein í heiði er blaðamenn óku yfir Fjarðarheiði skömmu eftir páska, en dagana á undan hafði heiðin verið lokuð á fimmta dag. Á bæjarskrifstofunni á Seyðisfirði tók á móti okkur Dagný Erla Ómarsdóttir sem missti húsið sitt í aurskriðu árið 2020.
2024-04-13
32 min
Fyrsta sætið
#60 - Enska sætið: Arsenal í bílstjórasætinu
Aron Elvar Finnsson gerði upp 32. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jökli Þorkelssyni og Sæbirni Steinke, fréttaritara hjá fótbolta.net.
2024-04-08
56 min
Hringferðin
#20 Egilsstaðir - Aðgerðastjórnstöð löngu tímabær
Það sýndi sig glöggt í snjóflóðunum í Neskaupsstað í mars 2023 að þörf væri á nýrri aðgerðastjórnstöð almannavarna á Austurlandi. Ný og velútbúin stjórnstöð var tekin í gagnið í janúar 2024. Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, og Agnar Benediktsson, björgunarsveitarmaður í Jökli, ræða um nýja stjórnstöð og áföll síðustu ára í þætti vikunnar.
2024-04-06
48 min
Fyrsta sætið
#59 - Enska sætið: Bikarinn er Liverpool að tapa
Bjarni Helgason gerði upp 31. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finssyni og Jökli Þorkelssyni.
2024-04-05
48 min
Fyrsta sætið
#58 - Þorvaldur Örlygs: Mörg stór verkefni framundan hjá KSÍ
Þorvaldur Örlygsson, nýkjörinn formaður KSÍ, fór yfir fyrstu vikurnar í nýja starfinu, ræddi landsleiki karlalandsliðsins gegn Ísrael og Úkraínu og komandi undankeppni EM 2025 hjá kvennalandsliðinu, ásamt því að spá í spilin fyrir fótboltasumarið hérna heima.
2024-04-04
25 min
Hringferðin
#19 Saurbær á Hvalfjarðarströnd - Hallgríms minnst
Sr. Kristján Valur Ingólfsson biskup og kona hans, Margrét Bóasdóttir, búa á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Þau hafa tekist á hendur það verkefni í félagi við fleira fólk að efla staðinn og halda um leið nafni Hallgríms Péturssonar á lofti.
2024-03-30
53 min
Fyrsta sætið
#57 - Arnar Gunnlaugs: Nokkur atriði sem bögguðu mig sem við komumst upp með
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Víkings, fór yfir frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta gegn Ísrael, spáði í spilin fyrir komandi úrslitaleik gegn Úkraínu á þriðjudaginn, ræddi frábært tímabil Víkinga á síðustu leiktíð og ræddi markmið liðsins fyrir komandi keppnistímabil ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni.
2024-03-22
56 min
Hringferðin
#18 Kirkjubæjarklaustur - Konungur þóðvegarins
Uni Hrafn Karlsson hefur byggt upp öflugt bifreiðaverkstæði á mikilvægum stað við þjóðveginn. Hann segir verkefnin óþrjótandi og að eini flöskuhálsinn sé skortur á öflugum bifvélavirkjum.
2024-03-17
17 min
Fyrsta sætið
#56 - Enska sætið: Líklegasta liðið af toppliðunum þremur
Bjarni Helgason gerði upp 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni og blaðamanninum Viðari Guðjónssyni.
2024-03-11
42 min
Hringferðin
#17 Hnappavellir - Fosshótel Glacier Lagoon
Mitt í Öræfunum, kippkorn frá Jökulsárlóni, er lúxushótel ekki langt ofan við þjóðveginn, óvenjuleg bygging en þó látlaus í þessu stórbrotna umhverfi. Hrafnhildur E. Karlsdóttir hótelstjóri var tekin tali um lífið undir Öræfajökli.
2024-03-09
35 min
Fyrsta sætið
#55 - Enska sætið: Liverpool lifir ekki endalaust á lyginni
Bjarni Helgason gerði upp 27. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finssyni og Jökli Þorkelssyni.
2024-03-05
39 min
Hringferðin
#16 Öræfi - Fjallsárlón dregur hundruð þúsunda til sín
Steinþór Arnarson er alinn upp í Öræfum. Þegar hann sá nýtt lón myndast undir Fjallsárjökli fékk hann viðskiptahugmynd og í meira en áratug hefur hann siglt með ferðalanga að jökulsporðinum og breytt sýn þeirra á íslenska náttúru.
2024-03-02
43 min
Fyrsta sætið
#54 - Enska sætið: Mögulega besti leikur Van Dijk fyrir Liverpool
Aron Elvar Finnsson gerði upp 26. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum og gerði upp sigur Liverpool gegn Chelsea í úrslitaleik deildabikarsins ásamt íþróttablaðamönnunum Gunnari Agli Daníelssyni og Sævari Breka Einarssyni.
2024-02-29
33 min
Hringferðin
#15 Hornafjörður - Mikið líf í atvinnulífi svæðisins
Sjávarútvegsfyrirtækið Skinney Þinganes er langstærsti vinnuveitandinn á Höfn, ef hið opinbera er undanskilið. Aðalsteinn Ingólfsson hefur stýrt fyrirtækinu í nærri þrjá áratugi og segir stöðuna á svæðinu góða þótt áskoranir séu margar, m.a. vegna loðnuleysis og hruni í humarstofninum.
2024-02-24
45 min
Fyrsta sætið
#53 - Enska sætið: Núnez stal töfrunum af Haaland
Bjarni Helgason gerði upp 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finssyni og Jökli Þorkelssyni.
2024-02-19
37 min
Hringferðin
#14 Hvolsvöllur - Myndasögugerð frá miðöldum
Í sjö ár, sjö mánuði og sjö daga sátu þær við og saumuðu Njálssögu í 90 metra langan hördúk. Nú bíður þetta magnaða listaverk, sem sækir innblástur í miðaldalistir, þess að verða sett upp í nýjum húsakynnum á Hvolsvelli. Þær Gunnhildur Edda Kristjánsdóttir og Kristín Ragnar Gunnarsdóttir leiða áheyrendur í allan sannleikann um Njálurefilinn svokallaða.
2024-02-17
41 min
Fyrsta sætið
#52 - Enska sætið: Keppast um að mæta á flottari bíl í vinnuna
Bjarni Helgason gerði upp 24. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni og útvarpsmanninum Bolla Má Bjarnasyni.
2024-02-14
54 min
Hringferðin
#13 Selfoss - Staðarsmiðurinn Sigfús Kristinsson
Sigfús Kristinsson hefur fylgst með þorpinu við Sogið breytast úr sveit í bæ. Hann hefur lagt drjúgt til þeirrar uppbyggingar, m.a. með því að reisa sjúkrahúsið og fjölbrautaskólann í bænum. Sigfús hefur sterkar skoðanir á hlutunum.
2024-02-13
38 min
Fyrsta sætið
#51 - Enska sætið: Samsæriskenning um brotthvarf Klopps
Bjarni Helgason gerði upp 23. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni og blaðamanninum Viðari Guðjónssyni.
2024-02-06
54 min
Hringferðin
#12 Suðurnesjabær - Magnús Stefánsson
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Suðurnesjabæ, ræðir um lífið í bænum og helstu atvinnuvegi, hvort hugað sé að frekari sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum og margt fleira. Þá rifjar hann upp þingferil sinn og óvænta endurkomu á þingið.
2024-02-03
51 min
Fyrsta sætið
#50 - Snorri Steinn: Við fórum út af sporinu
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, gerði upp Evrópumótið í Þýskalandi þar sem Ísland hafnaði í 10. sæti ásamt því að ræða framtíð íslenska liðsins.
2024-02-01
51 min
Hringferðin
#11 Reykjanesbær – Kjartan Kjartansson og Páll Ketilsson.
Æskuvinirnir Kjartan Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, og Páll Ketilsson, ritstjóri og eigandi Víkurfrétta, fjalla um lífið á Suðurnesjum, þær miklu breytingar sem hafa orðið á svæðinu, áhrifin af veru bandaríska hersins og síðar brotthvarf hans og margt annað í nýju hlaðvarpi Hringferðarinnar.
2024-01-27
1h 02
Fyrsta sætið
#49 - Helga Margrét: Fékk ekkert jólakort frá Gumma Gumm
Íþróttafréttakonan Helga Margrét Höskuldsdóttir ræddi um lífið í Þýskalandi á Evrópumótinu í handbolta, fór yfir gengi íslenska liðsins til þessa og spáði í spilin fyrir stórleikinn gegn Austurríki ásamt Brynjólfi Löve Mogensson, verkefnastjóra hjá Morgunblaðinu.
2024-01-24
59 min
Hringferðin
#10 Siglufjörður – Bergþór Morthens í Tynesarhúsi
Bergþór Morthens býr á Siglufirði og í Gautaborg í Svíþjóð. Fyrir 18 árum keypti hann ásamt konu sinni Tynesarhús í miðju þorpinu fyrir norðan og hefur breytt því í undraveröld. Kannski ekki ósvipaða þeirri sem hann skapar með ótrúlega björtum litum í málverkum sínum. Hann segir litina pólitíska.
2024-01-20
40 min
Fyrsta sætið
#48 - Einar Örn og Logi Geirs: Eiga ekki að vera tengdasynir Íslands
Landsliðsmennirnir fyrrverandi Einar Örn Jónsson og Logi Geirsson gerðu upp frammistöðu íslenska landsliðsins í handbolta í riðlakeppninni á Evrópumótinu í Þýskalandi og spáðu í spilin fyrir milliriðlakeppnina í dag ásamt Brynjólfi Löve Mogensson, verkefnastjóra hjá Morgunblaðinu.
2024-01-18
33 min
Fyrsta sætið
#47 - Aron Pálmars og Bjarki Már: Miklu meiri ástríða í Íslendingunum
Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson og landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson ræddu um fyrstu leiki Íslands á Evrópumótinu í handbolta í München í Þýskalandi, lífið á hótelinu og stórmótum almennt og framhaldið á Evrópumótinu ásamt Brynjólfi Löve Mogensson, verkefnastjóra hjá Morgunblaðinu.
2024-01-15
46 min
Fyrsta sætið
#46 - Einar Örn: Við stálum þessu stigi
Einar Örn Jónsson, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands í handbolta og íþróttafréttamaður á RÚV, gerði upp fyrsta leik Íslands gegn Serbíu í C-riðli Evrópumótsins í Þýskalandi og spáði í spilin fyrir næsta leik liðsins gegn Svartfjallalandi sem fram fer á morgun ásamt Brynjólfi Löve Mogensson, verkefnastjóra hjá Morgunblaðinu.
2024-01-13
34 min
Hringferðin
#9 Grindavík - Halla María Svansdóttir og Pétur Hafsteinn Pálsson.
Blaðamenn Morgunblaðsins settust niður með tveimur atvinnurekendum í Grindavíkurbæ og ræddu um fortíð, nútíð og framtíð Grindavíkur. Grindvíkingar hafa mátt þola margt á undanförnum mánuðum og framtíðin er óráðin.
2024-01-13
48 min
Fyrsta sætið
#45 - Logi Geirs: Með besta liðið í riðlinum en það getur allt gerst
Logi Geirsson, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands í handbolta, spáði í spilin fyrir fyrsta leik íslenska karlalandsliðsins í handbolta gegn Serbíu í C-riðli Evrópumótsins, ásamt því að fara yfir fyrstu dagana í München og landsliðsferilinn ásamt Brynjólfi Löve Mogensson, verkefnastjóra hjá Morgunblaðinu.
2024-01-12
1h 02
Fyrsta sætið
#44 - Ásgeir Örn og Gunni Magg: Vinnum til verðlauna á næstu árum
Handboltagoðsagnirnar Ásgeir Örn Hallgrímsson og Gunnar Magnússon spáðu í spilin fyrir komandi Evrópumót sem hefst í Þýskalandi í dag. Ásgeir Örn lék 247 A-landsleiki og vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikum og bronsverðlauna á EM með liðinu en hann stýrir Haukum í dag. Gunnar var aðstoðarþjálfari liðsins sem vann til silfur- og bronsverðlauna, ásamt því að hafa stýrt liðinu sjálfur á síðasta ári en hann er þjálfari Aftureldingar í dag.
2024-01-10
44 min
Hringferðin
#8 Árskógssandur - Arctic Heli Skiing, Bjórböðin og Kaldi.
Agnes Anna Sigurðardóttir stofnaði brugghúsið Kalda í kjölfar ótrúlegs hugboðs. Jökull Bergmann hefur þvælst um öll svakalegustu fjöll heims og stundað og sinnt fjallaskíðaleiðsögn. Þau eru burðarásar í ferðaþjónustu á Árskógsströnd og segja tækifærin á svæðinu óþrjótandi.
2024-01-06
1h 01
Fyrsta sætið
#43 - Sigurður íþróttalögfræðingur: Telur að Manchester City fái mjög harða refsingu
Íþróttalögfræðingurinn Sigurður Ólafur Kjartansson ræddi um samninga leikmanna hér á landi, lögfræðiumhverfið á Íslandi þegar kemur að íþróttum og ensku úrvalsdeildina þar sem þónokkur félög hafa gerst sek um brot á fjármálareglum deildarinnar. Sigurður úskrifaðist úr Háskólanum í Reykjavík áður en hann útskrifaðist með meistaragráðu í íþróttalögfræði frá háskólanun í Madríd á Spáni.
2024-01-04
48 min
Fyrsta sætið
#42 - Enska sætið: Hann var að gera mig geðveikan
Bjarni Helgason gerði upp 20. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni og blaðamanninum Sonju Sif Þórólfsdóttur.
2024-01-03
53 min
Hringferðin
#7 Borgarnes - Svava Víglundsdóttir og kaffi kyrrð
Svava Víglundsdóttir, eigandi Kaffi Kyrrðar og Blómasetursins í Borgarnesi, var búin að missa allt eftir að hótel sem hún rak á Vopnafirði varð gjaldþrota. Ástin dró hana í Borgarnes þegar hún kynntist Unnsteini Árnasyni. Síðan eru liðin 22 ár.
2023-12-30
41 min
Fyrsta sætið
#41 - Enska sætið: Arsenal miklu sáttara með stigið en Liverpool
Bjarni Helgason gerði upp 18. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finssyni og Jóhanni Ingi Hafþórssyni.
2023-12-23
42 min
Hringferðin
#6 Ólafsfjörður - Eyþór Eyjólfsson og styrjueldið
Á leið okkar um landið er næsti áfangastaður Ólafsfjörður. Við ökum gegnum Héðinsfjarðargöngin eftir stutt stopp á Siglufirði og beint niður á kajann. Þar tekur á móti okkur Eyþór Eyjólfsson sem fyrir margt löngu festi kaup á innstu jörðinni í Ólafsfirði – Bakka. Hann býður okkur inn fyrir dyrnar á húsi sem lengst af hýsti saltfiskverkun á staðnum en hefur nú skipt um hlutverk og búning, að minnsta kosti þegar kemur að innra byrðinu. Í bláum kerjum svamlar fiskafjöld og á komandi árum hyggst Eyþór framleiða, með aðstoð þessara sérstæðu dýra, einhverja...
2023-12-23
40 min
Fyrsta sætið
#40 - Enska sætið: Liverpool var heppið gegn Manchester United
Bjarni Helgason gerði upp 17. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jökli Þorkelssyni og Valtý Birni Valtýssyni, fréttamanni á K100.
2023-12-18
56 min
Hringferðin
#5 Hvanneyri - Bryndís Geirsdóttir
Bryndís Geirsdóttir hefur áhuga á því hvernig maðurinn mætir náttúrunni og hvernig hægt er að nýta gjafir jarðar betur. Það var þess vegna sem hún hóf nám í landslagsarkitektúr við Landbúnaðarskóla Íslands á Hvanneyri eftir að hafa lært bókmenntafræði í Háskóla Íslands. Bryndís er alin upp í Reykholti en foreldrar hennar fluttu þangað 1978 þegar faðir hennar varð prestur á staðnum. Fyrir 11 árum fluttu hjónin aftur í Borgarfjörðinn og segir Bryndís að það séu mikil tækifæri í landbúnaði á svæðinu. Þau séu hinsvegar ekki nýt
2023-12-16
45 min
Hringferðin
#4 Hótel Húsafell - Unnar Bergþórsson.
Stefnt er á frekari stækkun Hótels Húsafells á komandi misserum. Þetta upplýsir Unnar Bergþórsson, framkvæmdastjóri ferðaþjónustunnar á Húsafelli um í nýjasta þætti Hringferðarinnar sem efnt er til í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins. Viðtalið er aðgengilegt á mbl.is og öllum helstu hlaðvarpsveitum.
2023-12-12
55 min
Fyrsta sætið
#39 - Enska sætið: Tvö lið sem geta orðið meistari
Bjarni Helgason gerði upp 16. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni og ritstjóranum Herði Snævari Jónssyni.
2023-12-11
57 min
Hringferðin
#3 - Jólagarðurinn - Benedikt og Ragnheiður
Stefán Einar og Hólmfríður María hittu hjónin sem eiga Jólagarðinn. Þátturinn var tekinn upp undir berum himni í þrettán stiga frosti í jólafíling.
2023-12-09
28 min
Fyrsta sætið
#38 - Axel Óskar: Losnaði aldrei við stimpilinn um að ég væri stórskrítinn
Knattspyrnumaðurinn Axel Óskar Andrésson ræddi um áhugaverðan leikmannaferil sinn á Englandi, í Noregi, í Lettlandi og í Svíþjóð og gerði upp 15. umferð ensku úrvalsdeildarinnar ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
2023-12-08
1h 19
Fyrsta sætið
#37 - Enska sætið: Kraftaverk ef United nær Meistaradeildarsæti
Bjarni Helgason gerði upp 14. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt blaðamanninum Guðmundi Hilmarssyni og úrvarpsmanninum Heiðari Austmann.
2023-12-04
50 min
Hringferðin
#2 Stykkishólmur - Sturla Böðvarsson & Erla Friðriksdóttir
Morgunblaðið tekur hús á Íslendingum vítt og breitt um landið í tilefni af 110 ára afmælis blaðsins. Sturla Böðvarsson og Erla Friðriksdóttir eru viðmælendur á Hringferð Morgunblaðsins en þau eiga samanlagt rúman aldarfjórðung að baki í stóli bæjarstjóra í Stykkishólmi. Þau ræddu stöðuna í bænum og á Snæfellsnesi en þau hafa bæði langvarandi tengsl við svæðið. Sturla er úr Ólafsvík en rifjar upp hvernig það kom til að hann kom í Stykkishólm og tók við rekstri sveitarfélagsins. Erla flutti þangað fyrst átta ára gömul með fjölskyldu sinni en fór svo til Re...
2023-12-01
54 min
Fyrsta sætið
#36 - Enska sætið: Þurfa að styrkja sig ef þeir ætla að verða meistarar
Bjarni Helgason gerði upp 13. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jökli Þorkelssyni og úrvarpsmanninum Þór Bæring Ólafssyni.
2023-11-27
51 min
Hringferðin
#1 Hótel Holt - Ólafur Ragnar Grímsson.
Morgunblaðið tekur hús á Íslendingum vítt og breitt um landið í tilefni 110 ára afmælis blaðsins. Fyrsti viðmælandi okkar er Ólafur Ragnar Grímsson sem gegndi embætti forseta Íslands á árunum 1996-2016. Í viðtalinu er farið vítt og breitt yfir sviðið, bæði skyggnst yfir liðna tíð en ekki síður horft til framtíðar.
2023-11-24
1h 51
Fyrsta sætið
#35 - Heimir Guðjóns: Bauð fyrirliðann í skiptum fyrir Aron Pálmarsson
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, ræddi endurkomuna til félagsins, tímabilið hjá Hafnfirðingum, samstarfið við Jón Rúnar og Viðar Halldórssyni, fór yfir frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í fótbolta í undankeppni EM og spáði í spilin fyrir komandi umspil ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni.
2023-11-23
59 min
Fyrsta sætið
#34 - Enska sætið: Guardiola hlýtur að biðja til guðs fyrir Liverpool-leikinn
Bjarni Helgason gerði upp 12. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
2023-11-13
53 min
Fyrsta sætið
#33 - Gunnar Jarl og ÞÞÞ: VAR er hundrað prósent komið til að vera
Knattspyrnudómarinn Þórður Þorsteinn Þórðarson og fyrrverandi knattspyrnudómarinn Gunnar Jarl Jónsson ræddu um dómaraferilinn, stöðu dómgæslunnar á Íslandi, VAR-myndbandsdómgæsluna og framtíðina í dómgæslu á Íslandi.
2023-11-10
57 min
Fyrsta sætið
#32 - Enska sætið: Burt með VAR úr ensku úrvalsdeildinni
Bjarni Helgason gerði upp 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Jóhanni Inga Hafþórssyni.
2023-11-06
49 min
Fyrsta sætið
#31 - Þóra Helga: Vil sjá meiri stöðugleika í liðsvali
Þóra Helgadóttir, ein leikjahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi, gerði upp landsleiki kvennalandsliðsins gegn Danmörku og Þýskalandi, og ræddi átján manna leikmannahóp íslenska kvennalandsliðsins í handbolti fyrir HM 2023 í Danmörku, Noregi og Svíþjóð ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
2023-11-02
37 min
Fyrsta sætið
#30 - Enska sætið: Til skammar að hann sé fyrirliði Manchester United
Bjarni Helgason gerði upp 10. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Jökli Þorkelssyni og Sævari Breka Einarssyni.
2023-10-30
52 min
Fyrsta sætið
#29 - Enska sætið: Góðir leikmenn verða verri hjá Manchester United
Bjarni Helgason gerði upp 9. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jóhanni Inga Hafþórssyni og blaðamanninum og fyrrverandi knattspyrnumanninum Viðari Guðjónssyni.
2023-10-23
42 min
Fyrsta sætið
#28 - Rúnar Kristins: Vökvaði völlinn sjálfur á fjórhjóli með kerru
Rúnar Kristinsson, fyrrverandi þjálfari KR og næstleikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, gerði upp tímann í Vesturbænum og viðskilnaðinn við KR og fór yfir frammistöðu íslenska karlalandsliðsins í fóbolta gegn Lúxemborg og Liechtenstein ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
2023-10-18
1h 13
Fyrsta sætið
#27 - Enska sætið: Minnir á van Dijk þegar hann var upp á sitt besta
Aron Elvar Finnsson gerði upp 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Gunnari Agli Daníelssyni og Jökli Þorkelssyni.
2023-10-09
55 min
Fyrsta sætið
#26 - Enska sætið: Stevie Wonder hefði séð þetta
Bjarni Helgason gerði upp 7. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt Gísla Frey Valdórssyni, ritstjóra Viðskiptamoggans, og Stefáni Einari Stefánssyni, fyrrverandi ritstjóra Viðskiptamoggans.
2023-10-02
49 min
Fyrsta sætið
#25 - Ásthildur Helga: Hef áhyggjur af kvennalandsliðinu
Ásthildur Helgadóttir, fyrrverandi fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerði upp landsleiki kvennalandsliðsins gegn Wales í Portúgal, fór yfir Bestu deildir karla og kvenna, ræddi handboltann, körfuboltann, enska boltann og fréttir vikunnar ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
2023-09-29
55 min
Fyrsta sætið
#24 - Enska sætið: Mjög kynþokkafullur inn á vellinum
Bjarni Helgason gerði upp 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jóhanni Inga Hafþórssyni og blaðamanninum Sonju Sif Þórólfsdóttur.
2023-09-25
44 min
Fyrsta sætið
#23 - Svava Kristín: Óléttan eyðilagði fjölskyldufríið
Íþróttafréttakonan Svava Kristín Grétarsdóttir fór yfir frammistöðu Breiðabliks í Sambandsdeildinni, Bestu deildir karla og kvenna, handboltatímabilið sem er nýhafið, spáði í spilin fyrir leiki íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta gegn Wales og Þýskalandi, ræddi enska boltann og fór yfir helstu fréttir vikunnar ásamt íþróttablaðamanninum Jóhanni Inga Hafþórssyni.
2023-09-22
1h 10
Fyrsta sætið
#22 - Enska sætið: Það er eitthvað rotið innan Manchester United
Bjarni Helgason gerði upp 5. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt útvarpsmönnunum Heiðari Austmann og Þór Bæring Ólafssyni.
2023-09-18
1h 08
Fyrsta sætið
#21 - Hörður Snævar: Hætta væntanlega flestir ef við komumst ekki á EM
Ritstjórinn Hörður Snævar Jónsson fór yfir landsleiki íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Lúxemborg og Bosníu, Bestu deildir karla og kvenna, nýhafið tímabil í úrvalsdeildum karla og kvenna í handbolta, spáði í spilin í enska boltanum og ræddi vandræði Manchester United ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
2023-09-14
52 min
Fyrsta sætið
#20 - Enska sætið: Þá mun Klopp ganga út
Bjarni Helgason gerði upp 4. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jóhanni Inga Hafþórssyni og blaðamanninum Sonju Sif Þórólfsdóttur.
2023-09-04
51 min
Fyrsta sætið
#19 - Enska sætið: Heilsar einhverjum leikmanni sem er svo óvart húsvörður á svæðinu
Bjarni Helgason gerði upp 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finssyni og blaða- og knattspyrnumanninum fyrrverandi Viðari Guðjónssyni.
2023-08-28
49 min
Fyrsta sætið
#18 - Enska sætið: Skelfileg dómgæsla í fyrstu leikjum tímabilsins
Bjarni Helgason gerði upp 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finssyni og Gunnari Agli Daníelssyni.
2023-08-22
57 min
Fyrsta sætið
#17 - Gísli Þorgeir: Aldrei fundið fyrir jafn mikilli gleði
Gísli Þorgeir Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolti og leikmaður þýska stórliðsins Magdeburg, gerði upp tímabilið í Þýskalandi þar sem hann varð Evrópumeistari og valinn besti leikmaður úrslitahelgarinnar í Köln, ræddi framtíð íslenska landsliðsins undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar, fór yfir Bestu deildir karla og kvenna, spáði í spilin í ensku úrvalsdeildinni og ræddi um helstu fréttir vikunnar ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
2023-08-17
1h 04
Fyrsta sætið
#16 - Enska sætið: Sætasta stelpan sagði nei og næstsætasta stelpan fór í fýlu
Bjarni Helgason gerði upp 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á léttu nótunum ásamt íþróttablaðamanninum Jóhanni Inga Hafþórssyn og knattspyrnu- og blaðakonunni Mist Þormóðsdóttur Grönvald.
2023-08-15
39 min
Fyrsta sætið
#15 - Fyrsta sætið: Hélt að Liverpool myndi aldrei borga svona mikið
Bjarni Helgason fór yfir Evrópuleiki Breiðabliks og KA, Bestu deildir karla og kvenna ásamt bikarúrslitaleik Breiðabliks og Víkings, 8-liða úrslitin á heimsmeistaramóti kvenna og spáði í spilin fyrir ensku úrvalsdeildina í fótbolta sem hefst í kvöld ásamt íþróttablaðamönnunum Aroni Elvari Finnssyni og Gunnari Agli Daníelssyni.
2023-08-11
1h 10
Fyrsta sætið
#14 - Fyrsta sætið: Hátt settir aðilar allt annað en sáttir
Bjarni Helgason fór yfir Evrópuleiki íslensku liðanna, Bestu deildir karla og kvenna í fótbolta, heimsmeistaramót kvenna í fótbolta og félagaskiptin í enska boltanum ásamt íþróttablaðamönnunum Jóhanni Inga Hafþórssyni og Jökli Þorkelssyni.
2023-08-04
51 min
Fyrsta sætið
#13 - Fyrsta sætið: Gylfi er undantekningin
Aron Elvar Finnsson fór yfir Bestu deildir karla og kvenna í fótbolta, Evrópuleiki íslensku liðanna, félagaskiptin í heimsfótboltanum og ýmislegt fleira ásamt íþróttablaðamönnunum Jóhanni Inga Hafþórssyni og Jökli Þorkelssyni.
2023-07-28
57 min
Fyrsta sætið
#12 - Adda Baldurs: Ætti að vera heitt undir honum miðað við frammistöðuna í síðustu leikjum
Fyrrverandi knattspyrnukonan Ásgerður Stefanía Baldursdóttir og núverandi sparkspekingur og aðstoðarþjálfari Vals í Bestu deild kvenna gerði upp leiki íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta gegn Finnlandi og Noregi, spáði í spilin fyrir HM kvenna, fór yfir stöðuna í Bestu deildum karla og ræddi helstu fréttir vikunnar ásamt íþróttablaðamanninum Ástu Hind Ómarsdóttur.
2023-07-22
56 min
Fyrsta sætið
#11 - Patrekur Andrés: Segir mér enginn hvað ég get og get ekki gert
Spretthlauparinn og Ólympíufarinn Patrekur Andrés Axelsson útskrifaðist á dögunum með BS gráðu úr sjúkraþjálfun með fyrstu einkunn þrátt fyrir að starfsfólk Háskóla Íslands hafi nokkrum sinnum hvatt hann til þess að hætta í náminu þar sem hann er lögblindur. Patrekur Andrés ræddi meðal annars um augnsjúkdóminn sem hann greindist með þegar hann var tvítugur, námsferilinn, mótlætið og Paralympics í París næsta sumar þar sem hann ætlar sér að vera á meðal keppenda.
2023-07-12
1h 01
Fyrsta sætið
#10 - Bjarki Már: Hef alveg velt því fyrir mér að svara fólki á Twitter
Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður í handbolti og leikmaður ungverska stórliðsins Veszprém, gerði upp tímabilið í Ungverjalandi þar sem hann varð tvöfaldur meistari, ræddi framtíð íslenska landsliðsins undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar og þá spáði hann einnig í spilin fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni ásamt blaðamanninum Sævari Breka Einarssyni.
2023-07-06
1h 04
Fyrsta sætið
#9 - Björn Berg: Sádi-Arabía notar íþróttir til að bæta orðspor sitt
Fjármálasérfræðingurinn og knattspyrnuáhugamaðurinn Björn Berg Gunnarsson ræddi félagaskipti stórstjarna fótboltans til Sádi-Arabíu, peningana í fótboltanum og fór yfir stöðuna í Bestu deildum karla og kvenna ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
2023-06-30
1h 17
Fyrsta sætið
#8 - Arnar umboðsmaður: Milljónirnar hafa ekki ennþá skilað sér
Arnar Freyr Theodórsson hefur starfað sem umboðsmaður íslenskra og erlendra handboltamanna frá árinu 2009 en 13 af 16 leikmönnum í lokahóp íslenska karlalandsliðsins á HM 2023 eru skjólstæðingar Arnars. Arnar ræddi meðal annars um umboðsmannastarfið, handboltaheiminn og íslensku handboltalandsliðin.
2023-06-26
1h 17
Fyrsta sætið
#7 - Gummi Ben: Þú veist ekkert hvort ég hafi verið grenjandi
Íþróttafréttamaðurinn og fyrrverandi fótboltamaðurinn Guðmundur Benediktsson, betur þekktur sem Gummi Ben, gerði upp leiki íslenska karlalandsliðsins í fótbolta gegn Slóvakíu og Portúgal, fór yfir Bestu deildir karla og kvenna og ræddi um helstu fréttir vikunnar ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
2023-06-22
1h 07
Fyrsta sætið
#6 - Birkir Már: Feginn að Rashford spilaði ekki meira
Birkir Már Sævarsson, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands í fótbolta og leikmaður Vals, spáði í spilin fyrir komandi landsleiki Íslands gegn Slóvakíu og Portúgal, fór yfir stöðuna í Bestu deildum karla og kvenna og ræddi fréttir vikunnar ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
2023-06-16
1h 05
Fyrsta sætið
#5 - Katrín Jakobs: Ætla að fletta honum upp í símaskránni
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fór yfir fréttir vikunnar, ræddi um karlalandsliðs Íslands í handbolta og spáði í spilin fyrir næstu landsleiki íslenska karlalandsliðsins í fótbolta ásamt íþróttablaðamanninum Jóhanni Inga Hafþórssyni.
2023-06-09
37 min
Fyrsta sætið
#4 - Ívar Orri: Eiginkonan tók því alls ekki vel
Knattspyrnudómarinn Ívar Orri Kristjánsson dæmdi stórleik Breiðabliks og Víkings í Bestu deild karla á dögunum þar sem allt sauð upp úr. Ívar Orri ræddi um stórleikinn á Kópavogsvelli, dómaraferilinn, dómarastarfið og framtíðina í dómgæslu.
2023-06-07
1h 00
Fyrsta sætið
#3 - Gaupi: Hann þarf að fara í megrun
Guðjón Guðmundsson, betur þekktur sem Gaupi, hefur lagt íþróttafréttamennskuna á hilluna eftir 32 ár í bransanum en hann fór yfir fréttir vikunnar, ræddi um íslenska karlalandsliðið í handbolta og framtíð þess ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvar Finnssyni.
2023-06-02
1h 07
Fyrsta sætið
#2 - Raggi Sig: Fullkomnuðu varnarleikinn inn á hótelherbergi
Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsmaður Íslands í fótbolta, fór yfir fréttir vikunnar, ræddi um landsliðsferilinn og framtíð landsliðsins ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvar Finnssyni.
2023-05-26
1h 19
Fyrsta sætið
#1 - Guðni Bergs: Okkur Gylfa hefur oft verið líkt saman
Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ, fór yfir fréttir vikunnar og stiklaði á stóru á öllu því helsta í íþróttalífinu ásamt íþróttablaðamanninum Aroni Elvari Finnssyni.
2023-05-19
1h 14