Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Satriali's Pork Store

Shows

Firmað ritarFirmað ritarThe Complete Guide to Mergers and Acquisitions - Þegar Kjartan keypti OrmssonÍ þessum þætti fjallar Kjartan um The Complete Guide to Mergers and Acquisitions og um leið hvernig hann nýtti sér hana þegar hann keypti fyrirtækið Ormsson. 2023-10-161h 18Firmað ritarFirmað ritarExecutive Presence - Framkoma bestu stjórnendanna? Andrés JónssonGestastjórnunÍ þessum þætti kemur Andrés Jónsson stjórnendaráðgjafi í heimsókn og ræðir bókin Executive Presence eftir Sylwia Hewlett.  Í bókinni er farið yfir umfangsmikla rannsókn þar sem skoðaðir voru þær þættir í framkomu sem mestu máli skipta.  Við ræðum þessa þætti, segjum sögur og pælum í því hvernig við getum tileinkað okkur þá í þessu fróðlega spjalli. 2022-03-302h 02Firmað ritarFirmað ritarSo You’ve Been Publicly Shamed - Opinber smánun á okkar tímumSo You’ve Been Publicly Shamed kom árið 2015 eftir Jon Ronson og tekur á útilokunarmenningu. Við ræðum í þessum þætti bókina efni hennar auk fleiri anga eins og samfélagsmiðla og hvernig smávægileg komment geta orðið að snjóflóði.  2022-01-311h 39Firmað ritarFirmað ritarMálsvörn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar - Skuldsett yfirtakaEinn mesti frumkvöðull Íslandssögunar og annar stofnandi Bónusveldisins fer hér yfir feril sinn frá Bónus og  alla leið til FL-Group, Glitnis og dómsstóla. Svo er ferðast um útrásina til  Bandaríkjanna,Stóra Bretlands,  Sullenberger, Jónína Ben, Magasin Du Nord, Iceland, Arcadia og auðvitað Gunnar Smári koma líka við sögu. . Við ræðum bókina og þennan merkilega mann Jón Ásgeir og arfleið hans. Málsvörn er fyrsta íslenska bókin sem við tökum til skoðunar. Vonandi samt ekki sú síðasta. 2021-10-011h 39Firmað ritarFirmað ritarTen Deadly Marketing Sins - MarkaðssyndirnarTen Deadly Marketing Sins  eftir Philip Kotler kom út árið 2004. Í þessum þætti ræðir Kjartan um hvernig hann nýtti sér þessa bók  þegar hann keypti ásamt félögum sínum hið gamalgróna fyrirtæki Ormsson . 2021-09-141h 38Firmað ritarFirmað ritarFirmað er farið í sumarfrí - ný þáttaröð hefst í haust.Kæru hlustendurÞað fer nokkur vinna í að gera þessa þætti. Við þurfum að lesa bækurnar og skrifa niður punkta og hugleiðingar.  Eins erum við eins og svo margir í vinnu með börn og aðrar skyldur.  Það hefur verið mikið að gera hjá okkur báðum undanfarið og svo erum við á leið í sumarfrí. Því ákváðum við að lesa fleiri bækur í sumar. Við mætum því aftur í ágúst, því Firmað er still in business. Kveðja Kjartan og Kolbeinn  2021-06-3001 minFirmað ritarFirmað ritarInfluence - hvaða sex lögmál hafa áhrif á hegðun okkar?Influence - the Psychology of Persuasion kom fyrst út árið 1984 var svo endurútgefin árin 1994 og 2006. Í ár 2021 verður bókin svo  endurútgefin í enn stærri útgáfu þar sem höfundur bætir við einu lögmáli til viðbótar sem hann nefnir Unity.  Höfundurinn Robert  Caldini er doktor í sálfræði. Í þessari bók er farið í gegnum sex lögmál sálfræði og mannlegrar hegðunar og hvernig þau hafa áhrif á okkur.  Þetta er ein af þessum bókum sem allir ættu að lesa helst sem börn svo við getum sjálf nýtt okkur þessi lögmál en ekki síð...2021-05-311h 39Firmað ritarFirmað ritarMade in America - Hvernig Walmart, stærsta fyrirtæki í heimi varð tilMade in America er sjálfsævisaga Sam Walton stofnanda Walmart. Hann skrifaði bókina á dánarbeðinu 1992 en í þessari einlægu frásögn fer hann yfir það hvernig hann fór frá því að eiga ekki neitt í að byggja upp það sem er í dags stærsta fyrirtæki í heimi með $540 milljarða veltu. Ef þú hefur áhuga á sögu verslunar í heiminum, ert að leita að innblæstri, vilt læra af mistökum annarra og fræðast um einn merkasta frumkvöðul síðari tíma þá er þetta bók fyrir þig.Bókina er hægt að nálgast á Amazon. Hana er hægt að fá 2021-05-151h 38Firmað ritarFirmað ritarThe Startup of You - Taktu stjórn á eigin starfsframaThe Start up of You kom út árið 2012. Höfundar eru Reed Hoffman, einn stofnenda Paypal og Linkedin og Ben Casnocha. Í bókinni er farið yfir hvernig við verðum að hugsa starfsferil okkar á annan hátt. Áður dugði að fá góða vinnu hjá stöndugu fyrirtæki og ef maður stóð sig vel þá óx maður og fékk framgang. Slík línuleg þróun á ekki við í dag og mæla höfundar með að við nálgumst starfsferill okkar eins og um væri að ræða rekstur á sprotafyrirtæki (Startup). Ferill okkar flestra sé sjaldnast línulegur heldur...2021-04-301h 11Firmað ritarFirmað ritarThe Goal - Flöskuhálsar í rekstriBókin The Goal eftir Elyahu Goldratt kom út árið 1984. Í þessari bók kynnir höfundur heiminn fyrir kenningu sinni um flöskuhálsa (e. theory of constraints, TOC). Kenningin er notuð sem aðferð til að koma auga á flöskuhálsa í rekstri sem koma í veg fyrir að markmiðum sé náð.  Aðferðirnar sem hann leggur svo til bæta kerfisbundið flöskuhálsinn þar til hann er ekki lengur takmarkandi þáttur. Þetta er ein af þeim bókum sem Jeff Bezos, stofnandi og aðaleigandi Amazon og einn ríkasti maður í heimi, gerir kröfu um að stjórnendur sýnir lesi. H...2021-04-151h 16Firmað ritarFirmað ritarDelivering Happiness - Saga Tony Hsieh stofnanda ZapposBókin Delivering Happiness: A Path to Profits, Passion, and Purpose kom út árið 2010. Þar er ævintýralegri ævi Tony Hsieh rakin en hann stofnaði tvö fyrirtæki Linkexchange sem selt var til Microsoft og netverslunina Zappos sem seld var til Amazon.  Í bókinni kynnumst við frumkvöðli sem áttar sig fljótlega að leikurinn snýst um annað og meira en að græða peninga. Tony lést af slysförum í nóvember 2020 aðeins 47 ára gamall. Bókina má kaupa á Amazon Og hana má einnig fá á Audible 2021-03-301h 27Firmað ritarFirmað ritarWho Moved My Cheese - Breytingar: Hvað myndir þú gera ef þú værir ekki hrædd/urWho Moved My Cheese eftir Spencer Johnson kom út árið  1998 og er ein vinsælasta stjórnenda- og fyrirtækjabók allra tíma og hefur frá því hún kom út selst í tæplega 30 milljónum  eintaka. Bókin var á tímabili mest selda bókin á Amazon.com og hefur verið þýdd á ótal tungumál. Ein helsta ástæðan fyrir því að fyrirtæki breytast ekki hraðar en þau gera er að það er of mikið af fólki sem berst gegn breytingum. Frábær bók fyrir þá sem glíma við breytingar á vinnustaðnum eða heima fyrir. Læra að takast á við hræðslu og...2021-03-151h 17Firmað ritarFirmað ritarAnything You Want - fyrirtækjarekstur á að snúast um hamingjuAnything You Want: 40 Lessons for a New Kind of Entrepreneur, eftir Derek Sivers kom út árið 2015. Kolbeinn ræðir í þessum þætti efni bókarinnar og fer yfir eitthvað af þeim 40 ráðum sem Sivers punktaði niður eftir að hafa stofnað fyrirtækið CDbaby.com  árið 1998. En Sivers seldi fyrirtækið 2008 fyrir 20 milljónir $ og setti alla peningana í góðgerðarmál. Lykilpunktar úr bókinni: Viðskipti snúast ekki um peninga heldur að láta drauma sína rætast. Skapaðu fyrirtækið þitt í samræmi við þína framtíðarsýn og farðu í viðskipti með það að markmiði að hjálpa öðru...2021-02-261h 16Firmað ritarFirmað ritarBeermat Entrepreneur - frumkvöðlar og hvernig sprotar verða að fyrirtækjumBeermat Entrepreneur kom út árið 2002  og er eftir Meke Southon, frumkvöðul sem komið hefur að stofnun fjölda fyrirtækja sem hafa langt. Í bókinni er fjallað um hvað einkennir frumkvöðla,  hvað drífur þá áfram og hvaða fimm stöður þurfa að vera rétt mannaðar til að fyrirtækið nái flugi,  Síðan eru hin þrjú stig fyrirtækisins skoðuð og rædd frá því að fyrirtækið er sproti eða fræ þangað til það er orðið eikartré. 2021-02-151h 18Firmað ritarFirmað ritarThe 4 Hour Workweek - hámarksafköst með minni vinnuThe 4 hour work week kom út árið 2007 og er skrifuð af Tim Ferris. Bókina má vel kalla sjálfshjálparbók en tilgangur hennar er að hjálpa lesendum að hanna líf sitt og einfalda með það að lokamarkmiði að fara vel með það dýrmætasta sem við öll eigum sem er tími okkar.  Ferris sýnir með dæmum að hin hefðbundna leið til starfsframa og sóun á tíma er alls ekki sú eina rétta. Öll dreymir okkur að verða rík. En ríkidæmið í draumum okkar snýst oftast um að við eigum nóg af tíma í að ge...2021-01-291h 13Firmað ritarFirmað ritarRaving Fans - viðskiptavinirnir eiga að elska þigRaving Fans er skrifuð af Ken Blanchard og Sheldon Bowles sem hafa selt meira en 12 milljónir eintök af bókunum sínum á tuttugu og fimm tungumálum.Í bókinni nota höfundarnir frábær dæmi og skemmtilegan söguþráð til að útskýra hvernig skapa á framtíðarsýn, skilja hvað viðskiptavinurinn er nákvæmlega að leita eftir, mikilvægi ferla og hvernig veita á þjónustuupplifun sem breytir viðskiptavinum í aðdáendur.Bókin er auðlesin, aðeins 137 blaðsíður og kom fyrst út árið 1993.2021-01-141h 15