Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Stefania Osk Margeirsdottir

Shows

LegvarpiðLegvarpiðBrjóstagjöf með FríðuBrjóstagjöf með Fríðu by Stefanía Ósk Margeirsdóttir2025-06-121h 17LegvarpiðLegvarpiðLjósmæður líta um öxl: Anna EðvaldsdóttirLjósmæður líta um öxl: Anna Eðvaldsdóttir by Stefanía Ósk Margeirsdóttir2025-05-061h 26LegvarpiðLegvarpiðTvíburar og sitjandi fæðing með Evu SigrúnuLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Eva Sigrún Guðjónsdóttir hlaðvarpsstjarna og kvenskörungur með meiru og er hún fyrsti gestur Legvarpsins sem mætir að hljóðnemanum í annað inn. Í fyrri þætti frá 2019 ræddi Eva um "mömmupressuna" en í þetta sinn beinist umræðan að því að ganga með og fæða tvíbura og komast í gegnum fyrstu mánuðina sem tvíburamamma og þriggja barna móðir. Eva segir frá því sem var frábrugðið varðandi líðan og eftirlit á meðgöngunni og fer...2025-04-031h 21LegvarpiðLegvarpiðLjósmæður líta um öxl: Áslaug HauksdóttirLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur þáttarins er Áslaug Hauksdóttir ljósmóðir, báráttukona og kvenskörungur með meiru. Hún segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar forvitni og þörf til að taka þátt í framþróun og breytingum í þágu kvenna. Áslaug hefur sinnt ljósmæðrastörfum erlendis og í flestum landshornum hérlendis, þar með talið á Landspí...2024-04-1759 minLegvarpiðLegvarpiðLjósmæður líta um öxl: Magga Bjarna og Gunna BöLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestir dagsins eru hið órjúfanlega tvíeyki Margrét Ásdís Bjarnadóttir og Guðrún Böðvarsdóttir, betur þekktar sem Magga og Gunna. Ljósmæðraáhugi þeirra beggja kviknaði í sauðburði, enda sveitastúlkur að vestan. Þær segja frá námsárunum þar sem þær rétt náðu í skottið á heimavistinni með tilhe...2024-03-221h 19LegvarpiðLegvarpiðLjósmæður líta um öxl: Guðrún GuðbjartsLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur dagsins er Guðrún Guðbjartsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum á Suðurnesjum. Ferill Guðrúnar á Ljósmæðravakt HSS spannar 47 ár og fer hún yfir hápunkta og skemmtilegar sögur í viðtali dagsins. Ljósmæðra-áhuginn, námsárin, samblandan...2024-01-0956 minLegvarpiðLegvarpiðÞegar ljósmóðir eignast barnLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þetta sinn fá Legvörpur ekki til sín gest heldur beinist hljóðneminn að Stefaníu sem leysir frá skjóðunni. Hún segir sína reynslusögu af því að ganga með og fæða barn sem ljósmóðir. Hvernig er það að upplifa þetta sjálf á eigin skinni eftir að hafa fylgt ótal konum í gegnum ferlið? Hvað kom á óvart? Hvenær var ljósmæðraþekkingin gagnleg.. eða þvældist hún einhverntíman fyrir? Komið með í þetta magnaða ferðalag, allt frá tilfin...2023-10-311h 31LegvarpiðLegvarpiðSitjandi fæðingar með KamilluEnglish below// Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er danski fæðingarlæknirinn Kamilla Gerhard Nielsen sem fjallar af sinni fagmennsku og einstöku yfirvegun um sitjandi fæðingar og allskyns fróðleik sem tengist hinni sjaldgæfu sitjandi stöðu. Kamilla fræðir okkur um sérþekkingu sína og reynslu af “Upright breech” eða sitjandi fæðingum í uppréttri stöðu, útkomur, upplifun, fræðslu til foreldra og kennslu starfsfólks. Spjallið fer á flug um sögu, menningu, tölfræði og tilfinningar þegar sitjandi fæðingar er...2023-07-2150 minLegvarpiðLegvarpiðKristbjörg og Amish konurnar í PennsylvaníuLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Kristbjörg Magnúsdóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af ljósmæðrastörfum með Amish fólki í Lancaster sýslu í Pennsylvania fylki Bandaríkjanna. Kristbjörg dregur upp mynd af lífi Amish fólksins sem einkennist af einfaldleika, sjálfbærni og nægjusemi, allt frá klæðaburði til farartækja. Einnig talar hún um viðhorfi kvennanna til barneigna og menninguna í kringum fæðingar, þar sem hin mikla trú á kvenlíkamanum og móður náttúru ræðu2023-07-041h 13Landspítali hlaðvarpLandspítali hlaðvarpLEGVARPIÐ // Edythe Mangindin ljósmóðir"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum þætti ræða þær við Edythe Mangindin ljósmóður um upplifun erlendra kvenna sem fæða börn hér á landi. Edythe er fædd og uppalin í San Francisco í Kaliforníu en foreldrar hennar komu upphaflega frá Filippseyjum. Hún flutti til Íslands árið 2009. Hún fékk áhuga á að læra ljósmóðurfræðina í kjölfar þess þegar hún gekk sjálf í gegnum fæðingu fyrsta barns hennar. Hún byrjaði í hj...2022-10-131h 00LegvarpiðLegvarpiðIcelandic maternity care for women of foreign originÍslenska neðar// The midwives Stefanía Ósk and Sunna María are back and for the first time in English, a language they aren't that great in but thankfully Edythe M. Mangindin, did most of the talking. In this episode, Edythe, a woman of many titles but first and foremost a Filipino-American-Icelandic wife, mother, nurse and midwife, talks about the outcomes and experience of foreign women who receive maternity care in Iceland. How do we ensure respectful, safe and equal care for women of foreign origin? This and other important questions will be discussed in today's episode. //Ljósmæðurnar St...2022-09-221h 00LegvarpiðLegvarpiðHulda Þórey í Hong KongLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni "Ljósmæðralíf" sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er Hulda Þórey Garðarsdóttir sem deilir með okkur sögunni af því hvernig leiðir hennar lágu frá Kópaskeri í ljósmóðurfræði og þaðan til Hong kong. Þar bjó Hulda Þórey ásamt fjölskyldu sinni í mörg ár og segir okkur skrautlegar sögur af þvi hvernig hún sigraðist á hinum ýmsu hindrunum sem nýútskrifuð ljósmóðir í þessari merki...2022-06-131h 25Landspítali hlaðvarpLandspítali hlaðvarpLEGVARPIÐ // KRISTÍN RUT HARALDSDÓTTIR SÉRFRÆÐILJÓSMÓÐIR SEGIR FRÁ FÓSTURGREININGUM"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Gestur þessa þáttar er Kristín Rut Haraldsdóttir, sérfræðiljósmóðir á fósturgreiningardeild Landspítala. Kristín segir skemmtilegar sögur af uppbyggingu fósturgreiningarþjónustu á norðurhjara veraldar á tímum tækniframfara. Einnig ræðir hún við Legvörpur um fjölbreytta starfsemi deildarinnar, siðferðislegar vangaveltur í tengslum við fósturskimanir og framtíðardrauma. Það er erfitt að hrífast ekki með ástríðu þessarar ótrúlegu hugsjónarkonu. H...2022-01-071h 11LegvarpiðLegvarpiðKristín Rut á FósturgreiningardeildLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er Kristín Rut Haraldsóttir, sérfræðiljósmóðir á Fósturgreiningardeild Landspítalans. Kristín segir skemmtilegar sögur af uppbyggingu fósturgreiningar-þjónustu á norðurhjara veraldar á tímum tækniframfara. Einnig ræðir hún við Legvörpur um fjölbreytta starfsemi deildarinnar, siðferðislegar vangaveltur í tengslum við fósturskimanir og framtíðardrauma. Það er erfitt að hrífast ekki með ástríðu þessarar ótrúlegu hugsjónarkonu. Hverjar eru þessar konur sem sitja dagana langa á kollum í myrkvuðum sónarherbergju2022-01-061h 11LegvarpiðLegvarpiðVatnsfæðingarLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er ljósmóðirin Sigurveig Ósk Pálsdóttir, betur þekkt sem Ósk og ræðir hún við Legvörpur um vatnsfæðingar. Ósk tekur okkur með inní draumkennt andrúmsloft vatnsfæðingarinnar þar sem ljósmæðra-listin fær að leika lausum hala. Vilt þú vita hver ávinningur vatnsbaða er á ólíkum stigum fæðinga, hvernig þetta allt saman virkar og hvers vegna í ósköpunum sumar konur kjósa að fæða börnin sín ofan í baðkörum? Þá ertu á réttum stað!2021-12-241h 16Landspítali hlaðvarpLandspítali hlaðvarpLEGVARPIÐ // SIGURVEIG ÓSK PÁLSDÓTTIR SEGIR FRÁ VATNSFÆÐINGUM"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Gestur þessa þáttar er ljósmóðirin Sigurveig Ósk Pálsdóttir, betur þekkt sem Ósk. Ræðir hún við Legvörpur um vatnsfæðingar. Ósk tekur hlustendur með inn í draumkennt andrúmsloft vatnsfæðingarinnar þar sem ljósmæðralistin fær að leika lausum hala. Viltu vita hver ávinningur vatnsbaða er á ólíkum stigum fæðinga, hvernig þetta allt saman virkar og hvers vegna í ósköpunum sumar konur kjósa að fæða börnin s...2021-12-231h 16Landspítali hlaðvarpLandspítali hlaðvarpLEGVARPIÐ - LJÓSMÆÐRALÍF // Anna Rut Sverrisdóttir spjallar við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum fimmta þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala er komið að mjög áhugaverðu spjalli við hina léttu, ljúfu og kátu ljósmóður Önnu Rut Sverrisdóttur. Hún deilir reynslu sinni af ljósmæðrastörfum í Bethlehem og segir ótrúlegar sögur af aðbúnaði palestínskra ljósmæðra og fæðandi kvenna. Anna Rut dregur upp magnaða mynd af ljósmæðralífinu, allt frá...2021-10-051h 08LegvarpiðLegvarpiðLjósmæðralíf: Anna Rut í PalestínuLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni "Ljósmæðralíf" sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er hin eina sanna Anna Rut Sverrisdóttir sem deilir með okkur sögum af aðúnaði palestínskra ljósmæðra og fæðandi kvenna í Betlehem. Anna Rut dregur upp magnaða mynd af ljósmæðralífinu, allt frá ferð sinni til vinnu frá Jerúsalem í gegnum varðstöðvar ísraelshers, að frumlegum aðferðum við að laga rótsterkt arabískt kaffið sem var ómis...2021-09-291h 08LegvarpiðLegvarpiðLjósmæðralíf: Hólmfríður Garðarsdóttir á hamfara- og átakasvæðum í 27 árLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni "Ljósmæðralíf" sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er Hólmfríður Garðarsdóttir ljósmóðir eða Hófí eins og hún er kölluð. Í viðtalinu segir hún frá störfum sínum sem sendifulltrúi hjá Rauða Krossinum og reynslu sinni af því að vera ljósmóðir á hamfara- og átakasvæðum víðsvegar um heiminn auk þess að taka þátt í þróunarverkefnum. Meðal þeirra landa sem hún...2021-05-291h 45LegvarpiðLegvarpiðBreytingaskeið kvennaLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins er ljósmóðirin Steinunn Zophoníasdóttir og ræðir hún við Legvörpur um breytingaskeið kvenna sem sveipað hefur verið dulúð og skömm. Steinunn fer meðal annars yfir helstu niðurstöður úr meistararannsókn sinni á upplifun kvenna af breytingaskeiðinu ásamt líkamlegum, andlegum og félagslegum breytingum sem konur ganga í gegnum á þessu tímabili, sem og einkenni og bjargráð.2021-05-161h 19Landspítali hlaðvarpLandspítali hlaðvarpLEGVARPIÐ - LJÓSMÆÐRALÍF // Hólmfríður Garðarsdóttir spjallar við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk"Legvarpið" er sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum fjórða þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala forvitnast þær um störf ljósmæðra erlendis með samtali við Hólmfríði Garðarsdóttur ljósmóður. Hún hefur ferðast vítt og breitt um veröldina undanfarinn aldarfjórðung og starfað við fagið, meðal annars í Afganistan, Írak, Íran, Mósambík, Norður-Kóreu, Papúa Nýju-Gíneu, Súdan og Tans­an­íu. Hólmfríður ræðir í viðtali...2021-05-151h 45LegvarpiðLegvarpiðLjósmæðralíf: Björg Sigurðardóttir á GrænlandiLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæðralíf” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er Björg Sigurðardóttir ljósmóðir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum í Grænlandi. Þangað hefur hún farið fjölmargar ferðir víðsvegar um landið og bjó hún og starfaði sem ljósmóðir í heilt ár í bænum Sisimiut á vesturströnd Grænlands. Björg lýsir fyrir okkur aðbúnaði og aðstæðum á fæðingarvaktinni og h...2021-05-071h 22Landspítali hlaðvarpLandspítali hlaðvarpLEGVARPIÐ - LJÓSMÆÐRALÍF // Björg Sigurðardóttir í heimsókn hjá Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk"Legvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum þriðja þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala forvitnast þær um störf ljósmæðra erlendis með samtali við Björgu Sigurðardóttur ljósmóður, sem hefur ferðast víða og starfað. Einnig fer Björg yfir bakgrunn sinn og helstu verkefni. Þátturinn hefur yfirskriftina "Ljósmæðralíf" og er unninn í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á samféla...2021-05-031h 22Landspítali hlaðvarpLandspítali hlaðvarpLEGVARPIÐ // Steinunn K. Zophoníasdóttir ræðir breytingaskeiðið við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk"Legvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum öðrum þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala forvitnast þær um breytingaskeiðið með samtali við Steinunni Kristbjörgu Zophoníasdóttur ljósmóður, sem skrifaði meistaraprófsritgerð um þetta merkilega tímabil í lífi kvenna.Um fjórðungur kvenna á breytingaskeiði upplifir veruleg einkenni sem hafa áhrif á daglegt líf og lífsgæði, svo sem hitakóf, svefntruflanir og andlega vanlíðan. Birtingarmynd ein...2021-04-301h 19LegvarpiðLegvarpiðEinhverfar konur í barneignarferlinuLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Legvarpið snýr nú aftur í bættum hljóðgæðum úr stúdíói Landspítala Hlaðvarpsins. Voru legvarpskonur gripnar í smá yfirheyrslu í byrjun þáttar þar sem heyra má spjall um ljósmæðra-áhugann, lífið og tilveruna. Gestur dagsins er engin önnur en ljósmóðirin og Njarðvíkur/Blönduós-drottningin Rut Vestmann sem kemur sterk inn með efni þáttarins á 20.mínútu þar sem hún leiðir okkur í allan sannleikann um þarfir einhverfra kvenna í barneignarferlinu. Komiði með!2021-04-191h 06Landspítali hlaðvarpLandspítali hlaðvarpLEGVARPIÐ // Rut Vestmann ræðir um barneignir einhverfra við Sunnu Maríu Helgadóttur og Stefaníu Ósk Margeirsdóttur"Legvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum fyrsta þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala ræða Sunna María og Stefanía Ósk við Rut Vestmann um barneignir einhverfra.Hlaðvarp Landspítala er aðgengilegt á vef spítalans og helstu samfélagsmiðlum, en einnig í streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Stjórnandi hlaðvarps Landspítala er Stefán Hrafn Hagalín, en stjórnandi u...2021-04-161h 06LegvarpiðLegvarpiðLjósmæðralíf: Birna Gerður í EþíópíuLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legavarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæðralíf” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands. Gestur dagsins er reynsluboltinn og ljósmóðirin Birna Gerður Jónsdóttir sem segir frá reynslu sinni af lífi og ljósmæðrastörfum í Eþíópíu þar sem hún bjó og starfaði á 10. áratugi síðustu aldar. Birna Gerður dregur upp ljóslifandi mynd af lífi og aðstæðum eþíópískra kvenna í barneign á þessum tíma og fáum við að heyra vægast sa2021-02-241h 22LegvarpiðLegvarpiðSjálfræði kvenna og siðferðilegar flækjurLjósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Í þessum þætti Legvarpsins verður fjallað um siðferðileg álitamál sem tengjast barneignarferlinu. Rætt verður um þá flóknu stöðu sem myndast þegar tveir einstaklingar tilheyra sama líkama, ásamt öðrum eldheitum siðferðilegum flækjum. Slík umfjöllun er í eðli sínu margslungin og viðkvæm en gestur þáttarins er Dr. Berglind Hálfdánsdóttir, ljósmóðir og lektor sem hefur kannað hugtök siðfræðinnar á borð við sjálfræði kvenna, upplýst val og forræðishyggju. Í forrét...2020-10-111h 34LegvarpiðLegvarpiðSængurleganLjósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Í þessum þætti Legvarpsins spjalla þær um fyrstu dagana eftir fæðingu sem kallast sængurlega en er það viðburðarríkur tími þar sem foreldrar stíga sín fyrstu skref í nýju hlutverki og kynnast barninu sínu. Farið verður yfir líkamlega og andlega þætti varðandi heilsu móður eftir fæðingu, upphaf brjóstagjafar og hegðu nýburans. Þátturinn er stútfullur af fróðleiksmolum og góðum ráðum sem ættu að nýtast verðandi og nýjum foreldrum vel við að spjar...2020-04-071h 27LegvarpiðLegvarpiðTyppa-PælingarHver man ekki eftir Píku-Pælingum sem slógu í gegn í Legvarpinu á sínum tíma?! Í tilefni af Mottumars ætla ljósmæðranemarnir Stefanía og Sunna og skipta um gír og gægjast yfir í karlaklefann. Þar tekur enginn annar en Lárus Jón Björnsson eða Lalli, vel á móti þeim. Lalli er sjúkraþjálfari sem hefur sérhæft sig í neðanbeltisvandamálum karla. Hann heldur úti Facebook- og instagram-reikningnum Neðanbeltis-Karlaheilsa þar sem nálgast má stórskemmtilega fræðslupistla. Í þættinum segir Lalli frá vegferð sinni inní neðanbeltis-bransann og fræðir um karlaheilsu, helstu einkenni frá neðanbeltissvæ...2020-03-151h 24LegvarpiðLegvarpiðNotkun mænurótardeyfingar í fæðinguLjósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Í þessum þætti Legvarpsins verður fjallað um mænurótardeyfingu í góðum félagsskap ljósmóðurinnar Katrínar Sifjar Sigurgeirsdóttur. Hvers vegna hefur orðið veruleg aukning á notkun mænurótardeyfinga í fæðingum? Hverjar eru afleiðingarnar? Og eru konur í raun að taka UPPLÝSTA ákvörðun um þessa verkjameðferð? Komið með í eldheitar umræður um þetta umdeilda fyrirbæri sem virðist hreyfa við tilfinningum á þann hátt að það er freistandi að hlaupa undan umræðum um málið, eða í það minnsta tipla á tánum. Upphafs2020-02-231h 00LegvarpiðLegvarpiðStærri brjóst, betra líf?Ljósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Viðfangsefni Legvarpsins að þessu sinni er áhrif brjóstastækkunar með ígræðslu brjóstapúða á heilbrigði kvenna og er gestur þáttarins ljósmæðraneminn Kristín Georgsdóttir. Í þættinum deilir Kristín sinni eigin reynslu af því að vera með brjóstapúða, áhrif þeirra á brjóstagjöf sína en einnig þegar hún lét fjarlægja þá. Fjallað verður um Breast Implant Illness eða BII sem fjölmargar konur með brjóstapúða hafa tengt við vegna ýmissa sérkennilegra og óljósra einkenna. Ko...2020-02-141h 00LegvarpiðLegvarpiðVal á fæðingarstaðLjósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar. Viðfangsefni Legvarpsins að þessu sinni er val kvenna á fæðingarstað og er gestur þáttarins Dr. Ólöf Ásta Ólafsdóttir, ljósmóðir og prófessor í ljósmóðurfræði við HÍ. Farið verður lauslega yfir þróunina hér á landi síðustu áratugina en fæðingar hafa á skömmum tíma færst úr heimahúsum yfir á sjúkrahús. Þá berum við saman valmöguleika höfuðborgarsvæðisins við landsbyggðina en veruleiki margra fjölskyldna er því miður sá að ekki er fæðingarstaður eða ljósmæðravakt í...2020-02-051h 12LegvarpiðLegvarpiðPabbi Í OrlofiLjósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þessum þætti fjalla þær um fæðingarorlof feðra og þátttöku þeirra í umönnun barna sinna fyrsta árið og árin. Umræðan teygist yfir í hinar ýmsu pælingar um staðalímyndir kynjanna, jafnrétti og menningu þegar kemur að barnauppeldi. Gestur þáttarins að þessu sinni er Keflvíkingurinn snjalli, Björn Geir Másson. Hann er búsettur í Bandaríkjunum ásamt eiginkonu sinni og 16 mánaða dóttur. Hann leiðir okkur í allan sannleikann um hlutverk sitt og daglegt líf sem heimavinnandi húsfaðir fja...2020-01-161h 13LegvarpiðLegvarpiðFæðingarhjálp fortíðarLjósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Gestur þáttarins að þessu sinni er hjúkrunar-og sagnfræðingurinn Erla Dóris Halldórsdóttir. Hún hefur tvinnað þessar tvær fræðigreinar saman á skemmtilegan hátt og hefur meðal annars rannsakað sögu lækna-og ljósmæðrastéttarinnar á Íslandi. Hún skrifaði doktorsritgerð sína um fæðingarhjálp á Íslandi á árunum 1760-1880 og gaf nýlega út bók um sögu karla í ljósmæðrastörfum. Erla tekur okkur í stórmerkilegt ferðalag til fortíðar og fræðir okkur meðal annars um aðstæður, a...2019-12-231h 14LegvarpiðLegvarpiðÁhrif kynferðisofbeldis á barneignarferliðLjósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þessum þætti verður fjallað um áhrif kynferðisofbeldis á barneignarferlið. Ása Kristín Einarsdóttir kíkti í Legvarps-köku og kaffi en hún eignaðist sitt fyrsta barn fyrir tæplega tveimur árum. Ásamt því að vera mamma er Ása ein af skipuleggjendum Druslu-göngunnar, frístundasnillingur og mikil brandarakona. Hún segir okkur frá upplifun sinni af barneignarferlinu með erfiða reynslu í bakpokanum, og vegferð sinni í átt að bata. Upphafsstef: Stefanía Helga Sigurðardóttir2019-11-291h 24LegvarpiðLegvarpiðSársaukaupplifun kvenna í fæðinguLjósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þessum þætti Legvarpsins verður fjallað um sársaukaupplifun kvenna í fæðingu og veltum við fyrir okkur ýmsum þáttum eins og viðhorfi, menningu og orðræðu varðandi sársauka í fæðingu. Sigfríður Inga Karlsdóttir ljósmóðir, eða Inga eins og hún er oftast kölluð, er gestur þáttarins og fræðir okkur betur um þessi mál. Hún er mikill reynslubolti auk þess að hafa komið að fjöldamörgum rannsóknum um málefnið. í forrétt verður boðið uppá heim...2019-10-281h 29LegvarpiðLegvarpiðPíku-Pælingar 2/2Ljósmæðranemarnir Stefanía og Sunna halda dróna-útsýnisferðinni áfram og í þetta sinn um innri kvenlíffærin. Þátturinn er framhald af fyrri þætti sem nefnist Legvarpið -Píku-Pælingar 1/2. Við byrjum á eggjastokkunum og þræðum okkur niður eggjaleiðarana, þaðan í legið og um leghálsinn og niður leggöngin. Í leiðinni verða sagðar allskonar sögur og skemmtilegar staðreyndir eins og að baka megi brauð með hjálp flórunnar í leggöngunum. Fjallað verður um hið eðlilega eins og egglos, frjóvgun og tíðahringinn ásamt því sem getur farið úr-skeiðis (haha!) s.s. kvillar sem geta...2019-10-161h 31LegvarpiðLegvarpiðPíku-Pælingar 1/2Ljósmæðranemarnir Stefanía og Sunna fjalla um tabúið mikla, píkuna. Þær fara yfir orðræðuna, bleika skattinn og píku-pólitík og taka hlustendur í æsispennandi dróna-útskýnisferð um hin mögnuðu kynfæri kvenna. Þær fara yfir uppsetningu og virkni píkunnar og er umræðan stútfull af ótrúlegum staðreyndum og sögum sem margir tengja við. Þessi þáttur gagnast öllum þeim sem eru með píku, eiga einhver samskipti við hana eða eru almennt forvitnir um þetta magnaða líffæri sem hefur verið haldið úti í kuldanum of lengi. Komiði með!2019-10-021h 28LegvarpiðLegvarpiðFæðingaróttiLjósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þessum þætti fjalla þær um fæðingarótta og fá í viðtal Bjarkar-ljósmóðurina Emmu Marie Swift, sem hefur rannsakað ýmislegt í tengslum við fæðingar í tæknivæddu nútímasamfélagi og fæðingarótta. Hún ræðir doktorsverkefni sitt, ýmsar reynslusögur og áhugaverðan bakgrunn sinn. Komiði með! Upphafsstef: Stefanía Helga Sigurðardóttir2019-09-0500 minLegvarpiðLegvarpiðMömmupressanLjósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þessum þætti fjalla þær um pressuna sem mömmur verða fyrir í nútímasamfélagi. Hér má finna margar góðar pælingar um mömmuhópa, samanburð, kynjaveislur, áhrifavalda og kerru-meting svo eitthvað sé nefnt. Með í pælingum dagsins er hún Eva Sigrún Guðjónsdóttir, sem eignaðist sitt fyrsta barn í fyrra. Hún deilir sögum og vangaveltum á sinn einstaklega fyndna hátt og tekur umræðuna á óvæntar slóðir. Komiði með! -Hljóðvinnslu-ráðgjafi og upphafsstef: Stef2019-08-291h 28LegvarpiðLegvarpiðFeður í barneignarferlinuLjósmæðranemarnir Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Í þessum fyrsta þætti fjalla þær um feður í barneignarferlinu og fá til sín góðan gest, Þorleif Örn Gunnarsson, betur þekktur sem Tobbi. Hann eignaðist son í fyrra með kærustu sinni, henni Thelmu Sif Sævarsdóttur. Tobbi ræðir reynslu sína af barneignarferlinu á stórskemmtilegan hátt og ferðast umræðan um heima og geima. Komiði með! -Hljóðvinnsla og upphafsstef: Stefanía Helga Sigurðardóttir2019-08-071h 31