Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Taeknivarpid.is

Shows

TæknivarpiðTæknivarpiðApple WWDC uppgjör, Switch 2 fyrstu viðbrögð og Sýn droppar Stöð2Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir spjalla um WWDC2025, fyrstu viðbrögð Atli og Gulla af Switch og íslenskt fjarskiptaslúður. 2025-06-111h 09TæknivarpiðTæknivarpiðGervigreindarspjall með Söfu Jemai frá VíkonnektAtli Stefán tekur viðtal við Söfu Jemai frá Víkonnekt (https://www.vikonnekt.com/) um gervigreind.  2025-04-3034 minTæknivarpiðTæknivarpiðNintendo Switch 2 með Daníel Nintendo RósinkransDaníel frá Leikjavarpinu kemur í heimsókn til Atla og Gulla og við köfum djúpt í nýkynnta Nintendo Switch 2.  2025-04-2459 minTæknivarpiðTæknivarpiðZelda kvikmynd, Atli kaupir raftæki og nýr iPadAndri Valur, Atli Stefán, Gunnlaugur og Sverrir fara yfir fréttir vikunnar og hvað þeir hafa keypt nýlega af tækjum. 2025-03-281h 24TæknivarpiðTæknivarpiðAnker er drasl, PlugBug er snilldAndri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur gera upp tæknifréttir vikunnar.  #plugbug 2025-02-261h 07TæknivarpiðTæknivarpiðiPhone SE (eða 16e) og TikTok bannAndri Valur, Gulli og Sverrir gera upp tæknifréttir síðustu vikna.  2025-02-151h 08TæknivarpiðTæknivarpiðTækniverðlaun ársins 2024Andri Valur, Atli Stefán, Elmar, Gulli og Kristján Thors gera upp árið 2024 í tækniheiminum. 2025-01-052h 48TæknivarpiðTæknivarpiðHeil vika af Mac og tæknifréttir fjórðungsinsApple tók sér heila viku og þrjú skipti til afhjúpa nýjar Mac tölvur með M4 flögum: iMac 24, Mac mini og MacBook Pro vörulínuna. Svo förum við fréttir þessa ársfjórðungs til að vinna upp það sem við höfum misst af. Stjórnendur þessa þáttar eru Andri, Atli Stefán, Elmar og Gunnlaugur. 2024-11-0758 minTæknivarpiðTæknivarpiðApple veisla - iPhone 16, Airpods 4 og Watch S10Atli, Gulli og Mosi renna yfir nýjar Apple vörur sem er von á í haust. 2024-09-121h 09TæknivarpiðTæknivarpiðApple orðrómar, nýir iPhone 16 símar og HaustráðstefnaAtli Stefán, Bjarni Ben og Gulli fara yfir orðróma fyrir Glowtime viðburð Apple sem verður 9. september og ræða Haustráðstefnu Advania sem verður í næstu viku. Það verður brátt uppselt þannig hlaupa kaupa! 2024-08-291h 05TæknivarpiðTæknivarpiðGoogle Pixel 9 Pro Fold - stutt og laggott nafnVið erum komnir úr mjög löngu sumarfríi og byrjum með látum. Fullt af Pixel fréttum, Crowdstrike klúðrið og fleira með Atla, Elmari og Gulla. 2024-08-2150 minTæknivarpiðTæknivarpiðWWDC 2024 - Apple uppgvötar gervigreindWWDC 2024 - uppskera hugbúnaðarþróunar Apple er nýlega afstaðin og Andri, Atli og Gulli gera hana upp. 2024-06-181h 31TæknivarpiðTæknivarpiðHvernig er hægt að nýta sér spunagreind?Tæknivarpið fékk góða gesti til að ræða hagnýtingu gervigreindar - eða þá nánar tiltekið spunagreindar. Gunnar Reykjalín frá Origo og Binna Borgar frá Datalab. Stjórnandi er Atli Stefán. Þessi þáttur er í boði Origo 🙏 2024-06-0745 minTæknivarpiðTæknivarpiðMicrosoft sækir á MacBook Air og á gervigreindMicrosoft hélt uppskeruhátíð sína Build nýlega og er búið að dæla út tilkynningum sem Atli og Gulli fara yfir. 2024-06-011h 12TæknivarpiðTæknivarpiðNýjar iPad spjaldtölvur og 121x AIAtli, Gulli og Elmar fara yfir fréttir MÁNAÐARINS. iPad Pro M4, iPad Air M2 og Apple Pencil Pro. Google IO.  2024-05-171h 22TæknivarpiðTæknivarpiðAmazon Fresh gervigreindin var í raun 1000 verktakar á IndlandiAtli, Elmar og Gulli renna fyrir fréttir vikunnar í tækniheiminum: Amazon Just Walk Out þjónustan lögð niður  Facebook Messenger skilaboðaþjónusta dulkóðuð alla leið  Íslensk tónlist hent útaf TikTok 2024-04-111h 10TæknivarpiðTæknivarpiðMacBook Air M3 og DMA tekur gildiAndri, Atli og Gulli taka um tæknifréttir vikunnar. 2024-03-131h 04TæknivarpiðTæknivarpiðApple Vision Pro sýndarsjáin prófuð og MWCAndri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa og Gulli Sverris spjalla um fréttir vikunnar og ferð Elmars til Barcelona á MWC. 2024-03-021h 13TæknivarpiðTæknivarpiðApple Vision Pro komið til ÍslandsAtli, Bjarni og Gulli fjalla um tæknifréttir síðustu þriggja mánaða 🫣 2024-02-221h 18TæknivarpiðTæknivarpiðÞáttur ársins 2023Tæknivarpið kallar alla meðlimi út til að gera upp árið 2023 í tækni. Hvað er app árisns? Hver eru bestu tæknikaup ársins? Hver er sími ársins?  Það og svo miklu meira í þætti ársins. 2024-01-152h 29TæknivarpiðTæknivarpiðÞað þarf enginn tíu gígabita á sekúnduVið fáum góða gesti í Tæknivarpið þá Ingvar Bjarnason frá Mílu og Jón Helgason (Nonna) frá Eldey. Þeir héldu einmitt fyrirlestur fyrir fjarskipta-faghóp á vegum Ský í síðustu viku þar sem fjallað var um 10 gígabita ljósleiðara fyrir heimili. Þarf einhver 10 gígabita á sekúndu?? Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir. 2023-12-1552 minTæknivarpiðTæknivarpiðNothing hakkar Apple og gervigreindarnælaNothing er búið að hakka Apple Messages þannig að það virki á Android símanum sínum Phone (2). Humane kynnir gervigreindarnælu "AI pin" sem kostar 800 USD og kemur kannski einhvern tímann út. 2023-11-151h 10TæknivarpiðTæknivarpiðHryllilega hraðar M3 flögur og Meta áskriftApple kynnti nýja línu af flögum: M3, uppfærðar MacBook Pro og iMac 24. Stærsta fréttin er samt mögulega nýr litur 🖤 Qualcomm er með nýja flögulínu sem heitir Oryon sem á að keppa beint við Apple Silicon, og er hraðari en M3 en notar talsvert meira rafmagn (líklega 2x!). Hringdu lenti í hrappara sem náði að svíkja út rafræn skilríki hjá öðrum manni, en tilkynnti hann og náði að koma í veg fyrir mikinn skaða. Meta býður nú upp á áskriftir fyrir Facebook og Instagram - greiddu €15 á mánuði og sleppt2023-11-101h 07TæknivarpiðTæknivarpiðFramtíðin er 5,5G, Meta Quest 3 og snjallsólglerauguAtli fer yfir framtíðina í farnetum og segir frá ferð sinni til Dubai á 5.5G ráðstefnu Huawei. Meta gefur út nýja sýndarsjá og snjallsólgleraugu. Pixel 8 dómar raðast inn og eru nokkuð jákvæðir. 2023-10-2142 minTæknivarpiðTæknivarpiðPixel 8 símar, Pixel Watch 2 og Vivaldi á iOSVivaldi er loksins kominn út á  iOS fyrir iPhone. Vodafone eflir samtengingar í Evrópu sem gagnast tölvuleikjaspilun. Kringlan gefur út rafræn gjafakort fyrir Wallet-lausnir Apple og Google. iPhone 15 vandamál halda áfram - en eru þetta raunverulega vandamál? Google kynnti nýja síma og snjallúr og Elmar er búinn að panta sér uppfærslur. 2023-10-061h 01TæknivarpiðTæknivarpiðHeitir iPhone-símar og kaldir Android-símarÞað eru komin verð á iPhone 15 og iPhone 15 Pro á Íslandi en þeir virðast vera ofhitna aðeins. Pixel 8 og 8 Pro eru búnir að leka. Ljósleiðarinn fer líka í 10 gígabita.  Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Freyr og Gunnlaugur Reynir. Þessi þáttur er í boði TechSupport. 2023-09-271h 00TæknivarpiðTæknivarpiðiPhone nú í títan og umhverfisvænari AppleAtli Stefán og Gunnlaugur fá Bjarka Guðjónsson og Pétur Jónsson í settið til að ræða tímamóta kynningu Apple á iPhone 15 línunni, Watch Series 9 og Watch Ultra 2.  Þessi þáttur er í boði TechSupport sem styður íslensk fyrirtæki og stofnanir í upplýsingatækni. 2023-09-141h 37TæknivarpiðTæknivarpiðiPhone 15 orðrómar, Samsung M8 skjár og vöruskilAndri, Atli og Gulli fara yfir orðróma fyrir kynningu Apple í næstu viku. Orðið á götunni er að við fáum eftirfarandi: iPhone 15 með USB-C Apple Watch S9 Apple Watch Ultra 2 Apple Airpods Pro 2 með USB-C  Við fjöllum líka um Samsung Smart Monitor M8 og Mac Studio kaup Atla. Þessi þáttur er í boði TechSupport. 2023-09-061h 08TæknivarpiðTæknivarpiðMíla kynnir 10x, Playstation Portal og Zoom lokar á fjarvinnuAtli, Elmar og Gulli gera upp fréttir vikunnar í tækni: 10 gígabitar til heimila hjá Mílu Nýr framkvæmdastjóri hjá Ljósleiðaranum Playstation Portal er flopp? Sony PS+ hækkar í verði Zoom kallar inn starfsfólk úr fjarvinnu ATHUGIÐ Elmar er starfsmaður Mílu og Atli er ráðgjafi Mílu.  Þessi þáttur er í boði Tech Support.  2023-09-031h 11TæknivarpiðTæknivarpiðTæknivarpið snýr aftur - Microsoft Loop og Limir í leikjumAtli Stefán (kvefaður), Bjarni Ben Loopari og Elmar Torfa ræsa Tæknivarpið þetta haustið og við lofum góðri umræðu um limi í tölvuleikjum og nýjasta nýtt í samvinnuhugbúnaði. Þessi þáttur er í boði TechSupport.is 2023-08-1950 minTæknivarpiðTæknivarpiðThreads, forkæling bíla og 5K tölvuskjáirAtli, Gulli og Sverrir taka frí frá sumarfríinu og renna yfir tæknifréttir sumarsins. Þessi þáttur er í boði TechSupport. 2023-07-1959 minTæknivarpiðTæknivarpiðWWDC2023 - Apple Vision Pro, MacBook Air 15, Mac Pro og öll stýrikerfin uppfærðVið rennum yfir lykilræðu Apple á WWDC 2023 ásamt Pétri Jónssyni og Bjarka Guðjónssyni - okkar eigið Pro-teymi ❤️ Stjórnendur eru Atli og Gulli. 2023-06-081h 35TæknivarpiðTæknivarpiðWWDC upphitun og fleira.Viðfangsefni vikunnar er upphitun fyrir WWDC viðburð Apple, friðhelgi einkalífs og fleira. Við metum einnig hvort Gulli sé að reyna að kveikja í bílskúrnum heima hjá sér.   Umræðupunktar (e. Show notes) Inngangur Rafhjólahornið Tenways rafmagnshjól IPTV umræðan Sýn stefnir Jóni Einari Ad-tech og friðhelgi einkalífs Bandaríkjamenn geta keypt frítt sjónvarp með auglýsingum Starfsmenn Ring virtu friðhelgi einkalífs notenda að vettugi Meta kynnir Quest 3 Verð - $499 Neytendahornið Gulli prófaði Gripið og Greitt Tesla hornið. WWDC upphitun Nýjar Mac tölvur...2023-06-021h 10TæknivarpiðTæknivarpiðMicrosoft Build, Hot Desking og Motorola ThinkPhoneSkýrsla Fjarskiptastofu um fjarskiptamarkaðinn kom út um daginn og Nova gerði hana upp. Microsoft Build var að klárast og setti met í því hversu oft stafirnir A og I voru sagði upphátt. Tæknivarpið fær að prófa Gripið & Greitt og Gulli verslar í Næra. Fujifilm gaf út nýja myndavél og Atli ætlar að panta. Netflix herjar á samnýtingu aðganga og byrjar í BNA. HBO Max verður.. Max.  Stjórnendur þetta skiptið eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir. Þessi þáttur er í boði TechSupport. 2023-05-2400 minTæknivarpiðTæknivarpiðGoogle I/O og Bónus: Gripið og Greitt- ATT.is og Game Stöðin loka verslunum sínum.  - Bónus kynnir EKKi gripið og greitt.  - Wolt hefur starfsemi á Íslandi.  - Google I/O er rætt, sem fór fram í síðustu viku. - Twitter kynnir nýjan forstjóra Umjsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Egill Moran Friðriksson (Mosi), Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson. 2023-05-161h 13TæknivarpiðTæknivarpiðStaða bókarinnar með Margréti TryggvadótturMargrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, mætti í Tæknivarpið og ræddi stöðu bókarinnar í breyttu landslagi. Umsjónarmenn þáttarins eru Atli Stefán Yngvason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson. 2023-05-1550 minTæknivarpiðTæknivarpiðGuðfaðir gervigreindar hættir í fússi og hlutafjáraukning LjósleiðaransGunnlaugur, Atli Stefán og Mosi ræða fréttir vikunnar: Hlutafjáraukning Ljósleiðarans Blackberry leikin kvikmynd Guðfaðir gervigreindar hættir hjá Google í fússi  Þessi þáttur er í boði TechSupport sem lánar okkur upptökustað 💜     2023-05-051h 03TæknivarpiðTæknivarpiðApple Reality, WWDC og NAS pælingarAtli Stefán Yngvason og Sverrir Björgvinsson komu saman og ræddu Apple Reality höfuðtólið sem verður líklega kynnt í sumar, helstu orðróma varðandi WWDC ráðstefnu Apple sem verður 5.-9. júní. 2023-04-281h 07TæknivarpiðTæknivarpiðPáskavarp TæknivarpsinsFlugur.is hjálpuðu okkur að gera þennan þátt að veruleika.  Svikapóstar sem eru ekki frá ríkislögreglustjóra, endurhlaðanlegar rafhlöður, páskaegg og ný OnePlus spjaldtölva eru meðal umræðu dagsins. Einnig segja þáttastjórnendur frá því hvaða áskriftir þeir eru með þessa dagana með að streymisveitum.    Umsjónarmenn þáttarins eru Andri Valur, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson. 2023-04-121h 14TæknivarpiðTæknivarpiðHopp og Hopon á leigubílamarkaðÞessi þáttur er í boði indó, ekki banki. Ný löggjöf um leigubílaþjónustu tók gildi fyrsta apríl. Hopp stofnaði leigubílaþjónustu, og nýtt fyrirtæki, Hopon ætlar líka að vera með til að Uber-væða íslenskt samfélag Svo er snert á því hvaða matvörubúð á Íslandi sé best og hvers vegna. Umsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Egill Moran Friðriksson (Mosi) og Elmar Torfason. 2023-04-031h 04TæknivarpiðTæknivarpiðChatGPT talar íslensku, útrunnin rafræn skilríki og TikTok bannÞessi þáttur er í boði indó, ekki banka. Við förum yfir fréttir síðustu þriggja vikna útaf sottlu. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Sverrisson (leikari). 2023-03-231h 09TæknivarpiðTæknivarpiðPlaystation VR2 og tölvuleikjaspilun fyrir miðaldraÞessi þáttur er í boði indó, ekki banka. Við fáum til okkar góðan gest, hann Daníel Rósinkranz, og ræðum Playstation VR2 sýndarveruleikahjálminn og tölvuleikjaspilun fyrir miðaldra.  Stjórendur eru Atli Stefán og Kristján Thors.   2023-03-1857 minTæknivarpiðTæknivarpiðStarlink-netið óstöðugt og Musk rekur (ekki?) mann ársinsÞessi þáttur er í boði indó, ekki banka.  Starlink hefur verið prófað af netnördum Íslands og Sensa í rigningu, roki og logni. Sensa tók sitt próf saman í grein. Elon Musk, smaragðarnámuerfingi, rak eða rak ekki mann ársins í fyrra: Harald Þorleifsson. Svokölluð Schrödinger-uppsögn. Við rekjum upp einn áhugaverðasta Twitter-storm ársins í þættinum. MWC snjalltækja-ráðstefnan var haldin í febrúar og við fjöllum ný spennandi tæki sem voru sýnd þar. Microsoft er að opna á Game Pass fyrir XBox og Windows-tölvur. iOS 16,4 er á leiðinni og er með djúsí fídusa. Twitter setur tveggja þátta...2023-03-091h 06TæknivarpiðTæknivarpiðindó app-þróun og framtíðinVið fengum góðan gest í þátt vikunnar frá indó: Þór Adam Rúnarsson forritara hjá indó, "ekki bankanum". indó er nýr sparisjóður á Íslandi sem býður upp á veltukort með debit-korti + Apple Pay + Google Pay.  Stjórnendur eru Atli Stefán og Andri Valur. 2023-03-0155 minTæknivarpiðTæknivarpiðNýtt frá Sonos lekur (aftur) og Starlink opnar á ÍslandStarlink opnar á Íslandi, íslenskir netþrjótar ryðja sér til rúms, Sonos hátalarar leka (aftur), Meta býður upp á áskriftir til að tryggja öryggi persónulegs auðkennis og Bing gervigreindin Sydney er dóni. Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir. 2023-02-2757 minTæknivarpiðTæknivarpiðGoogle Bard, Samsung Unpacked og 4000 slög á TwitterUTmessan nýafstaðin, Origo stofnar menntunarsjóð fyrir starfsfólk, BagDrop.is tekur töskurnar fyrir þig upp á flugvöll, Samsung kynnir nýja síma og tölvur, Google Bard gervigreindin kynnt, Twitter vinnur 4000 slagna tístum og Nintendo Switch verður þriðja mest selda leikjatölvan. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir 2023-02-091h 11TæknivarpiðTæknivarpiðBálkakeðjutölvuleikir, Gametíví og Formúla 1 með Kristjáni Einari Kristján Einar Kristjánsson var gestur okkar þetta skiptið og sagði okkur frá Civitas sem er nýr íslenskur tölvuleikur í vinnslu sem er byggður á bálkakeðju. Ásamt því ræddum við  um Gametíví og tækni sem var þróuð í Formúlu 1 sem við nýtum í hversdaglegum græjum. Stjórnendur þáttarins eru Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.   2023-02-031h 08TæknivarpiðTæknivarpiðÓmönnuð sjóför, Netflix vangaveltur og greiðsluhættir í KeníaÍslenska fyrirtækið Hefring smíðar tæknilausnir fyrir ómönnuð sjóför. Microsoft bilun hafði áhrif á hundruðir milljóna notenda. Discord er væntanlegt á PlayStation. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Bjarni Ben og Sverrir Björgvinsson. 2023-01-261h 15TæknivarpiðTæknivarpiðEr Apple verri kaup fyrir borgina?Indó komið í Apple pay, Borgarfulltrú Flokks Fólksins ósáttur við kaup á rándýrum apple tölvum og alskonar nýjar Apple græjur. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Stjórnendur: Bjarni Ben, Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir   2023-01-221h 46TæknivarpiðTæknivarpiðCES2023: Þvagskynjari, bílar sem breyta um lit og Sony bíllMun gervigreind þvinga íslenska skóla til að endurskoða námshögun? Apple gæti mögulega gefið út sýndaveruleikagræju í ár, eða hvað? CES hátíðin er nýafstaðin og við gerðum upp nýtt og spennandi þaðan.  Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir. 2023-01-111h 46TæknivarpiðTæknivarpiðÞáttur ársins og Tækniverðlaun 2022Við erum komnir úr jólafríi! Tæknivarpið fjölmennti og fór yfir árið 2022 í tækni.   Stjórnendur: Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors, Vöggur Mar og Sverrir Björgvins. 2023-01-082h 38TæknivarpiðTæknivarpiðFleiri App Store verslanir á iOS og græjujólin 2022Tæknivarpið fer ofan í saumana á máli Nova sem úthlutaði óvart símanúmeri sem var í notkun til til annars viðskiptavinar. Einnig er farið yfir helstu mál síðustu vikna, Spotify wrapped, Domino's wrapped, Xiaomi 13 símann og möguleikann á fleiri App Store verslunum í iOS heimi. Síðast en ekki síst, þá ræða stjórnendur þáttarins bestu jólagjafir ársins í heimi tækninnar. Stjórnendur eru Atli Stefán Yngvason, Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson. 2022-12-171h 13TæknivarpiðTæknivarpiðRafræn skilríki og eSim, sterkara Gorilla Glass og niðurgreiðslur rafbílaRíkið ætlar að fjarlægja fjöldakvóta fyrir niðurgreiðslur rafbíla á næsta ári, en minnka aðeins niðurgreiðsluna. Samsung ætlar að kynna S23 í febrúar. Twitter lak út 5,4 milljón aðgöngum ásamt símanúmerum. Corning er að búa til nýtt högghelt gler fyrir snjallsíma sem þolir 1 metra fall á steypu. Eufy lendir í alvarlegum öryggisgalla, sem var tilkynntur og gerði ekkert. Við förum svo í gegnum spurningar af Twitter og ræðum eSim og rafræn skilríki.    Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir2022-11-301h 11TæknivarpiðTæknivarpiðInniskórnir hans Steve Jobs seldust fyrir 27 milljónirNýjustu fregnir af Twitter sem er auðvitað alelda, en við getum ekki hætt að fylgjast með. Rafeyriskauphöllinn FTX sprakk eftir áhlaup og talið er að 10 milljarðar USD hafi gufað upp.  Atli byrjaði að prófa Arc-vafrann en fór svo að gera eitthvað annað af viti. Atli prófar Bose Quiet Comfort Earbuds II sem eru víst best í virkri hljóðeinangrun samkvæmt óháðum aðila.   Þessi þáttur er í boði Origo sem er halda opinn fyrirlestur um gagnaöryggi miðvkudaginn 30.nóv. Frítt inn: https://www.origo.is/vidburdir/gagnaorygg...2022-11-191h 12TæknivarpiðTæknivarpiðSýndarveruleiki með Hilmari Gunnarssyni frá ArkioÞessi þáttur á sér varla stoð í raunveruleikanum og við ferðumst um sýndarheima með Hilmari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Arkio. Arkio vakti athygli á heimsvísu á kynningu Meta um daginn, þar sem var farið yfir framtíðarsýn Metu í sýndarveruleika og gagnbættum veruleika. Arkio er sköpunartól fyrir arkitekta og getur hannað alls konar rými og landslag. Arkio virkar bæði í sýndarveruleika og gagnbættum veruleika. Arkio og Meta eru í þróunarsamstarfi og sýndi Hilmar okkur nýja Quest Pro höfuðtólið. Hilmar er líka fyrsti maðurinn sem við höfum hitt sem fallbeygir Meta.   ...2022-11-1156 minTæknivarpiðTæknivarpiðÍsland slugsar í netöryggiNýsköpunarráðherra Íslands boðar aðgerðir í netöryggismálum landsins. Ný fjölmiðlalög eru á leiðinni til að skerpa á því efni sem nær augum barna á streymiveitum. VanMoof kynnir tvö ný rafhjól sem styðja Find My og bætta þjófavörn. Sega ætlar að búa til tvær mini-leikjatölvur: Genesis mini 2 og Astro Mini City V (sem lítur út eins og leikjakassi) með retro-tölvuleikjum. Netflix er búið að afhjúpa verð á áskrift með auglýsingum en ekki fyrir Íslendinga. Samsung Odyssey Ark fær hræðilega dóma og er mjög dýr. Musk er búinn að reka hálf...2022-11-0553 minTæknivarpiðTæknivarpiðElon Musk kaupir Twitter og vangaveltur um nýja iPadKaupin á Twitter gengu í gegn í vikunni og fyrsta verk Elon Musk var að reka nokkra stjórnendur. En hvers vegna var hann að kaupa Twitter? Gulli er handviss um að 10 kynslóð af iPad sé grunntýpan. Við ræddum til hvers fólk kaupir iPad og hvaða týpu þú átt að velja. Þátturinn er í boði KFC sem selur B.O.S.S. Bacon máltíð.  Stjórnendur eru Andri Valur, Bjarni Ben,  Gunnlaugur Reynir,  Kristján Thors og Valtýr Bjarki. 2022-10-291h 16TæknivarpiðTæknivarpiðNýjar spjaldtölvur frá Apple og þráðlaus símtölApple kynnti nýjan iPad (10), uppfærða iPad Pro (M2) og uppfært AppleTV (USB-C fjarstýring!!) með látlausri fréttatilkynningu og myndböndum. Miðeind samhæfir raddgreiningartólin sín við snjallheimilið þannig nú getur Embla slökkt ljósin. Síminn Sjónvarp býður nú upp á prófíla og vefviðmót. Gulli heldur því einnig fram að myndgæðum hafi farið fram, en það er enn óstaðfest. Vegagerðin opnaði nýjan færðarvef, en Gulli vill bara hringja í þau. Nova sendi okkur tæknimann (Aron Heiðar Steinsson) eftir vandræðalegt spjall okkar um Vo...2022-10-201h 12TæknivarpiðTæknivarpiðiPhone 14 Plus umfjallanir og nýjar vörur frá MicrosoftHéraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Síminn mætti hafa enska boltann í stórum heildarpakka. iPhone 14 Plus umfjallanir eru komnar út. Microsoft var með ágætis viðburð og margt fleira. Umsjónarmenn þáttarins er Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Andri Valur Ívarsson, Sverrir Björgvinsson og Elmar Torfason. Þessi þáttur er í boði Macland og KFC. Macland.is selur Apple tæki og KFC er með B.O.S.S. BACON máltíð . 2022-10-131h 28TæknivarpiðTæknivarpiðGoogle leggur Stadia á hilluna og gott Tempo hjá OrigoFarið er yfir tæknifréttir vikunnar; sala Origo á Tempo, nýr forstjóri Sýnar og USB-C reglur Evrópusambandsins. Elmar búinn að panta nýjan Pixel síma sem Google kynnti í vikunni og Sverrir segir frá bestu leiðinni fyrir gagnamagn í Bandaríkjunum. Þessi þáttur er í boði Macland og KFC. Macland.is selur Apple tæki og KFC er með B.O.S.S. BACON máltíð . Stjórnendur eru Andri Valur, Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson 2022-10-091h 06TæknivarpiðTæknivarpiðKindle með penna, Höddi Mac kveður og Pixel lekarGoogle er að fara halda viðburð í október og það er eiginlega allt búið að leka. Pixel símarnir fá S-uppfærslu og nýja liti. Nýr netbeinir mögulega á leiðinni. Úrið sem var kynnt í sumar verður kynnt aftur. Gulli vill fá eitthvað bitastætt (left field) en það eru allar líkur á öðru. Amazon hélt sýna Kindle/Echo/Eero kynningu og það kom flóð af tækjum. Þar má helst nefna dagljósalampann Halo Rise (tenging við sjónvarpsþáttinn?) og Kindle Scribe sem er lesbók með e-Ink skjá sem styður penna (Remarkable). DallE er nú opið öllu...2022-09-291h 23TæknivarpiðTæknivarpiðBann á Google Analytics og GTA6 myndbrotum lekiðÞað er þéttur þáttur hjá okkur þetta skiptið. Tækniskólinn var hakkaður illa og flest allt nettengd datt í gólfið. Neytendastofa kallar eftir því að banna Google Analytics á Íslandi í kjölfarið úrskurða annarra Evrópulanda. The Verge endurhannar vefsíðu sína og það eru allir í Tæknivarpinu brjálaðir. Google Pixelbook vörulínan hefur verið fryst og ekki fleiri fartölvur í bígerð þar. The Verge dómar fyrir Apple þrennuna eru komnir út og þeir eru ekkert sérstakir. Apple kynnti ekki stærstu breytinguna á iPhone 14 á nýafstöðnum viðburði sínum: allt innvolsið hefur verið tekið í gegn og nú er...2022-09-231h 21TæknivarpiðTæknivarpiðMintum rafkrónur í betaprófun, VoWiFi hjá Nova og bestu sjónvarpskaupinBörkur Jónsson, einn af stofnendum Rafmyntasjóðs Íslands og http://mintum.is, mætti í heimsókn og sagði frá nýjung á sviði rafmynta á Íslandi. Í fréttum vikunnar var farið yfir nýjungar frá Sonos, símtöl yfir þráðlaust net hjá Nova og að lokum var spurningum hlustenda svarað. Þátturinn er í boði Macland sem kemur með iPhone 14 og iPhone 14 Pro í forsölu 16. september. Þátturinn er einnig í boði KFC sem býður upp á B.O.S.S. Bacon máltið á aðeins 0,00072 Bitcoin eða 2.099 rafkrónur (ISKT). Stjórnendur eru Andri Valur, Bjarni Ben og Mar2022-09-141h 41TæknivarpiðTæknivarpiðApple Watch Ultra, iPhone 14 plus og ný Airpods ProApple hélt kynningu á miðvikudaginn, eins og svo oft áður á þessu tíma árs, og kynnti nýjasta nýtt í Apple þrennunni: iPhone, Watch og Airpods.    Þessi þáttur er í boði Macland, sem selur einmitt þessa svakalegu þrennu.   Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir. 2022-09-111h 42TæknivarpiðTæknivarpiðiPhone vinsælli en Android í BandaríkjunumiPhone er markaðsleiðandi í Bandaríkjunum. Gulli prófaði Skannað og Skundað. Twitter leyfir ritskoðun á tístum gegn gjaldi. Svo eru fastir liðir eins og venjulega.   Þessi þáttur er í boði Macland.   Stjórnendur eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Elmar Torfason, Marinó Fannar Pálsson og Sverrir Björgvinsson. 2022-09-041h 33TæknivarpiðTæknivarpiðiPhone 14 er handan við horniðApple kynnir nýjan iPhone og annað góðgæti þann 7. september næstkomandi. Í sömu viku heldur Advania sína árlegu haustráðstefnu sína. Stjórnendur reyna svo að skera úr um það hvort hljóðskilaboð séu snilld eða ekki. Að endingu þá er #SpurðuTæknivarpið svo á sínum stað. Þessi þáttur er í boði Macland. Stjórnendur eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Sverrir Björgvinsson og Elmar Torfason. 2022-08-281h 41TæknivarpiðTæknivarpiðHúðtóna heyrnatól frá Kardashian og HimnasendingarVið förum um víða völl í þættinum, allt frá húðtóna heyrnatólum og að himnum. Kim Kardashian og Beats (Apple) þróa húðtónalituð heyrnatól frá Beats Fit Pro. Aha er víst byrjað að bjóða upp á drónaheimsendingar undir nafninu "Himnasending" en bara þegar veður leyfir. John Deere traktorar geta keyrt Doom, þrátt fyrir svæsið burn-in á skjánum. Android 13 er komið út, aðeins á undan áætlun. Samsung Galaxy Watch 5 er komið með dóma og þeir eru ekkert spes. En Samsung hittir í mark með 55" tölvuleikjaskjá sem er gersamlega sturlaður.  Þessi þáttur er í b...2022-08-181h 19TæknivarpiðTæknivarpiðVonbrigði í streymisheimi og ný íslensk bankaþjónustaÍ þættinum er meðal annars rætt um glóðvolga niðurstöðu Samsung Galaxy Unpacked, seinkun á komu HBO Max, breytt plön hjá hinu íslenska Netflix, fyrstu viðbrögð við beta-prófunum Indó bankaþjónustunnar og rafbíla. Sem fyrr fer umræðan um víðan völl og stundum út fyrir efnið. Tæknivarpið er í boði Macland. Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Elmar, Gunnlaugur Reynir og Marinó Fannar 2022-08-111h 07TæknivarpiðTæknivarpiðLjósleiðarinn flýtir uppbyggingu og skjálftar í AndroidÞau sem eiga Android síma sem er vel uppfærður geta fengið jarðskjálftatilkynningar beint í símann. Stýrikerfið fær gögn úr hröðunarmælum Android síma og vinnur úr þeim tilkynningu sem giskar á stað og Richter-stuðul. Heiðar Guðjónsson hefur verið keyptur út úr Sýn en er þetta hluti af stærri fléttu? Ljósleiðarinn flýtir fyrir uppbyggingu sinni í samstarfi við Nova. Macbook Air M2 býður afhroðs á YouTube og fær slæm viðbrögð vegna ofhitnunar og aðeins hægari geymsluplássi. En eiga viðbrögð rétt á sér? Pixel...2022-08-061h 14TæknivarpiðTæknivarpið317 Gervigreind með sál og Landspítala appVið erum ekki dauðir úr öllum æðum og bættum við okkur alla vega einum þætti í viðbót þetta sumar. Enda er líka fullt að frétta: Landspítalinn að þróa app Myndlyklar enn þá fáranlega vinsælir Stór uppfærsla fyrir Vivaldi með pósti, dagatali og RSS lesara Encroapp "hakk" frönsku löggunar nælir í íslenska bófa Apple kaupir sýningarétt MLS (BNA fótboltadeild)  Google gervigreind öðlast sál, samkvæmt dulrænum presti sem starfar hjá Google Ford innkallar bíla en er byrjað að afhenda F150 Lightning Microsoft jarðar Internet Explore...2022-06-161h 16TæknivarpiðTæknivarpið316 “Ekki svört” Macbook Air og ný stýrikerfiApple hélt lykilræðu á WWDC tækniráðstefnunni á mánudaginn og kynnti fullt af uppfærslum fyrir stýrikerfin (en talaði ekkert um tvOS) og eitthvað af vélbúnaði. Nýr Apple örgjörvi M2, ný Macbook Air og “ný” Macbook Pro 13” og fullt af sniðugu fyrir iPadOS. Við rennum yfir það sem var kynnt mjög ítarlega ásamt Sigurði Flygenring.    Þessi þáttur er í boði Macland. Macland.is selur Apple tæki og aukahluti. Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir 2022-06-091h 32TæknivarpiðTæknivarpið315 WWDC orðrómar og Nova útboðÞað er óvenjumikið að frétta hér af Íslandi síðustu vikur: Nova er á leið í opið útboð, forsetinn fór út til BNA til að berjast fyrir íslensku ásamt flottu föruneyti,  Sýn vill ekki eiga innviði enn vill byggja upp sæstrængjainnviði og CERT-IS varar við gömlum útrunnum lénum sem eru notuð til að hakka fólk (plís kveikið á tveggja þátta auðkenningum!). Google bakkar með að rukka Workspace fyrir þá einstaklinga sem nota sitt eigið lén til einkanota, Google Drive fær (loksins) afritunarflýtileiðir, OneNote fær yfirhalningu á næstunni, Ikea býr til Matter h...2022-06-021h 20TæknivarpiðTæknivarpið314 iPod lagður til grafar og fullt af tækjum frá GoogleNýjasti þátturinn af “Er Elon Musk búinn að kaupa Twitter” heldur áfram að fjalla um hvort Elon Musk sé búinn að kaupa Twitter. Apple hættir framleiðslu iPod eftir 21 ár. Google kynnti fullt af nýjum tækjum og tækni á Google I/O og Elmar er orðinn staurblankur.   Þessi þáttur er í boði Macland, Kringlunni. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir. 2022-05-151h 01TæknivarpiðTæknivarpið313 Reykjavík Haus sköpunarsetur og Sony Linkbuds313 Reykjavík Haus sköpunarsetur og Sony Linkbuds   Tæknivarpið - Reykjavik Haus sköpunarsetur og Sony Linkbuds   Reykjavík Haus hefur verið samþykkt í borgarráði Reykjavíkur og mun opna sköpunarsetur í efri hæðum Hafnarhússins. Evrópusambandið er að búið að senda ákvörðun á Apple um meinta misnotkun á aðgengi þriðja aðila að NFC-hluta iPhone síma og getur sektað Apple um 10% af heildartekjum. Xbox prik er á leiðinni sem mun bjóða upp á sjónvarpsstreymiapp og leikjastreymispilun, og kemur vonandi út innan 12 mánaða. Fortnite er loksins hægt að spila, e...2022-05-071h 27TæknivarpiðTæknivarpið312 Snap býr til dróna og Pixel snjallúr fannst á víðavangiESB ætlar að gera það sem er ólöglegt í raunheimum einnig ólöglegt á netinu. Ríkið býður út tvo ljósleiðaraþræði í Nato-strengnum. Elon Musk klárar að fjármagna kaup á Twitter og mun að öllum líkindum eignast fyrirtækið innan skamms. Twitter oftaldi notendur í þrjú ár, en fattaði það sjálft og leiðrétti á uppgjörsfundi. Snap býr til drónamyndavél með tveimur linsum. Apple átti frábæran fjórðung og Mac-vörulínunni gengur mjög vel. ESB vill að Apple opni aðgang að NFC eiginleikum iPhone svo aðrar greiðslumiðlanir komist að. Apple Studio...2022-04-291h 06TæknivarpiðTæknivarpið311 Áskrifendum Netflix fækkar í fyrsta sinnNýtt íslenskt bílatryggingarfélag lítur dagsins ljós: Verna. Félagið ætlar að nýta sér snjalltæki til að lækka ábyrgðir. Sjálftitlaði Technoking Teslu og stórfjárfestirinn Elon Musk er að reyna kaupa Twitter, en á hann peninga fyrir því? Steam Deck dokkan er ekki einu sinni komin út en það er búið að uppfæra hana. Playdate leikjatölvan er komin út og það rigna inn umfjallanir. Verður þetta fimmtándi vettvangurinn sem Gulli kaupir sér GTA5? Magsafe rafhlaðan fær uppfærslu og hleður nú hraðar! Homepod hátalarar hækka í verð...2022-04-231h 27TæknivarpiðTæknivarpið310 Hleðslukvíði burt með Buzz og Twitter íhugar edit takkaAtNorth lýsir yfir vilja til að byggja upp gagnaver rétt fyrir utan Akureyri. NFT grúppa hakkar Bjarta Framtíð á Twitter og dælir út auglýsingum. Buzz býður upp að kveða burt hleðslukvíða með leigu-rafhlöðum fyrir snjallsíma á vel völdum börum. Elon Musk kaupir stóran hlut í Twitter og hvað þýðir það? Twitter íhugar að bjóða upp á Edit takka. Það kemur út nýr Monkey Island tölvuleikur í ár, en sá síðasti kom út árið 2011. Netflix bætir við nýjum flokki eftir hugmynd Pete Davidson: short ass movies. Flokkurinn er með kvikmyndir undir 90 mínútum...2022-04-071h 04TæknivarpiðTæknivarpið309 Auðkenni þjóðnýtt og lofthreinsigríma frá DysonVið erum með sneysafullan þátt af tæknifréttum og kaupákvörðunum Atla. Auðkenni hefur verið keypt af Ríkinu. Fyrirtæki býr til gervitónlistarfólk inn á Spotify til að græða peninga. Klapp lausnin frá Strætó er í tómu tjóni, eða hvað? Atli fjallar einnig um Studio Display sem hann skoðaði í verslun Macland Kringlunni.  Þessi þáttur er í boði Macland sem selja tækin sem við elskum. Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir. 2022-04-031h 42TæknivarpiðTæknivarpið308 Rafræn skilríki misnotuð og Netflix hækkar verðÞað eru fregnir af alvarlegri misnotkun rafrænna skilríkja hjá tveimur aðilum í kringum áttrætt. En þýðir það að rafræn skilríki séu hættuleg eða ónothæf? Mac Studio og Studio Display verð eru komin hjá Macland og við rennum vel yfir þau. Mun Atli kaupa sér eitt sett? Við förum einnig yfir umfjallanir á settinu hjá kollegum okkar. Netflix hækkar verð á áskriftum OG herjar á þau sem deila aðgangi án þess að kaupa sér stærri pakka. Við förum snögglega yfir það sem kom fram á MWC og eitt það áhugaverðasta þar er Thinkpad tölva með...2022-03-2057 minTæknivarpiðTæknivarpið307 Loksins Apple skjár og M1 Ultra örgjörviTæknivarpið rennir yfir það besta úr kynningu Apple sem fór fram í gær af upptöku og til þess fáum við draumaliðið í settið. Pétur Jónsson og Hörður Ágústsson mæta og segja okkur sannleikann um ný tæki frá Apple.  Apple kynnti nýja liti fyrir iPhone 13 og 13 Pro, iPhone SE símann, iPad Air spjaldtölvuna, M1 Ultra örgjörvann, Mac Studio borðtölvuna og Studio Display skjáinn. Þessi þáttur er í boði Macland sem mun selja þessi tæki strax og það getur! Stjórnendur eru Atli Stefán og2022-03-091h 23TæknivarpiðTæknivarpið306 Krónan uppgvötar vefinn og Tesla bíll bilar í polliCertís netöryggissveit Fjarskiptastofu sendir frá sér viðvörun vegna stríðsrekstri Rússa í Úkraínu og biður íslenskt fyrirtæki um að herða ólina. Krónan er að prufukeyra beta útgáfu af vefverslun, en fram að þessu hefur Krónan einungis boðið upp á app. Tesla Model Y keyrði í poll og dó rafhlaðan skömmu síðar. Þola Tesla bílar ekki erfiðar aðstæður hér á Íslandi?  Gulli keypti sér töfratæki sem hefur umbylt heimili hans: rafmagnsskæri. Rivian rafbílasprotinn hækkar verð ógætilega og ýtir þeim að forpöntunum. Stríðið í Úkraí...2022-03-0456 minTæknivarpiðTæknivarpið305 Ekkert HBO Max en stórt rafíþróttamót í aprílHBO Max var að bæta við fimmtán Evrópulöndum en Ísland er því miður ekki eitt þeirra sem eru sorgarfréttir. Það þarf greinilega að hitna enn frekar í streymistríðinu til þess.. Riot Games ætlar að halda risastórt rafíþróttamót á árinu og verður keppt í Valorant (sem er samruni Overwatch og Counter-Strike). Windows 11 er komið með nýja verkefnastiku sem hentar betur spjaldtölvum, en enginn af okkur er kominn á Windows 11. Talið er að næsta útgáfa af örgjörvum Apple verði M2 og fari í alla vega fjóra makka á þessu ári! En hvernig örgjörvi verður M2? Nýr sam...2022-02-251h 07TæknivarpiðTæknivarpið304 TVíK kennir íslensku og Indó fær leyfiTVíK hreppti víst fyrsta sætið í Gullegginu með spjallmenni sem kennir þér íslensku á nýjum stað á lærdómskúrvunni. Fjarskiptastofa setur fram áætlun um að hætta nota 2G og 3G senda í farsímanetum landsins. Indó fær starfsleyfi en hvað er Indó? Spotify heldur áfram að kaupa fyrirtæki tengd hlaðvörpum og Joe Rogan málið heldur áfram.    Þessi þáttur er í boði Macland sem er með fullt af Konudagstilboðum 👩👩👩   Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir. 2022-02-1958 minTæknivarpiðTæknivarpið303 Galaxy S22, Tab S8 og hrun hjá MetaSigurveri Gulleggsins þetta skiptið er app fyrir þolendur ofbeldis sem geta haldið utan um sögu þess. Appið heitir Lilja og er nú verið að sækjast eftir fjármagni til að koma því í gagnið. Óvinsæli vafrinn Microsoft Edge býður nú upp á íslenskan talgervil sem getur lesið upp texta af vefsíðum. Smáforritið heitir Guðrún (Gudrun) og er í boði núna. Icelandic Gaming Industry spáir því að störf hjá öðrum í CCP í bransanum nái loks meirihluta á næsta ári. Samsung hélt Galaxy Unpacked kynningu í vikunni og kynnti nýjar vörur: þrjá nýja S-línu síma og þrjár spjaldtölvur. Sp...2022-02-121h 04TæknivarpiðTæknivarpið302 Spotify í klandri vegna Joe RoganÍslenskir menntasprotar vekja athygli vestanhafs, en íslensku fyrirtækin Beedle og Mussila eru komin í hóp 200 efnilegustu sprota í menntatækni í heiminum. Spotify er í klandri vegna viðtals Joe Rogan við vísindamann sem gagnrýnir mRNA bóluefni. Alda Music var selt til Universal Music, sem þýðir að margar íslenskar tónlistarperlur eru nú í eigu erlendra aðila. Intel kynnir Alder Lake örgjörva sem hefur stundum betur en M1 Max örgjörvi Apple, en með smá fyrirvara. Svo keypti Gulli sér svo síma á Bland. Þessi þáttur er í boði Macland og Elko sem selja tækin sem við elskum. Stjórnen...2022-02-031h 22TæknivarpiðTæknivarpið301 Persónuvernd og tækni + fréttir vikunnarGleðilegan alþjóðlegan Persónuverndardag! Í tilefni dagsins fáum við til okkar hana Vigdísi Evu Líndal frá Persónuvernd til að ræða persónuvernd í tækni. Að því loknu förum við yfir tæknifréttir vikunnar. Eru markaðshrun Netflix og Peleton vísar að stærra hruni eða gekk bara aðeins of vel? Intel er að reisa 20 milljarða dollara verksmiðjur í Ohio en til hvers? Samsung Unpacked lék eiginlega í heild sinni út og við fáum að sjá alla næstu síma Samsung áður en þeir eru kynntir. Samsung hefur aldrei gengið eins vel o...2022-01-281h 23TæknivarpiðTæknivarpið300 Microsoft kaupir Blizzard og frábær CES sýningÞá er Tæknivarpið loksins komið í rútínu og við fáum fyrsta fréttaþáttinn. Orion Sentry er eitt fyrsta íslenska Mac appið í langan tíma og reynir að koma í veg fyrir þjófnað á tölvum. Fjarskiptastofa vinnur í því að gera háhraðanet á þjóðvegum að kröfu. Vivaldi vafrinn er nú í boði á Astro Slide 5G nördasímanum. Það var brotist inn í tölvukerfi Strætó og þau ákváðu að borga ekki lausnargjald fyrir gögnin. CS:GO úrvalsdeild RÍSÍ heitir núna Ljósleiðaradeildinn. CES sýningin var í byrjun árs og telja gárungar að þetta sé líklega sú besta í mjög langan tíma...2022-01-2054 minTæknivarpiðTæknivarpið299 - Þáttur ársins 2021 Nú er loksins komið að því. Þáttur ársins er mættur, aðeins seinna en vanalega útaf sottlu. Þar fer næstum allur hópurinn bakvið Tæknivarpið (og Simon.is) yfir það sem var mest spennandi í nýju tækni og tækjum á árinu sem var að líða.  Flokkarnir eru eftirfarandi:  Græja ársins Sími ársins  Kaup ársins Leikur ársins Farleikur ársins App/forrit ársins Kvikmynd ársins Sjónvarp ársins Hlaðvarp ársins Vonbrigði ársins Klúður ársins Stærsta tæknifrétt ársins Við þökkum kærlega fyrir innsend svör hlustenda og árið sem var að líða 🙏🏻    2022-01-163h 18TæknivarpiðTæknivarpiðTækniviðtal: Log4j með Guðmundi Sigmundssyni frá CERT-ISTæknivarpið fær til sín Guðmund Arnar Sigmundsson frá CERT-IS netöryggissveit Fjarskiptastofu. Við ræðum öryggisgallann í Log4j og áhrifin af honum.  Þessi þáttur er í Elko og Macland 🙏🏼 Stjórnandi er Atli Stefán Yngvason sem er að finna á Twitter. 2021-12-2139 minTæknivarpiðTæknivarpið297 Tómir rafbílar teppa götur í Noregi og ljótar Macbook Pro tölvur Jólin nálgast og því skelltum við í létta umræðu um jólagjafir árins. Lofsöngvar voru sungnir um nýju ljótu tölvuna hans Mosa og brátt kemur Pixel úrið sem mun gera Elmar að hræsnara. Að lokum ræddum við stærsta vandamálið í Noregi um þessar stundir þar sem rafmagnslausir rafbílar virðast vera að teppa allar götur eftir síðasta kuldakast Þessi þáttur er í boði Macland og Elko.    Stjórnendur í þætti 297 eru Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir, Marinó Fannar Pálsson og Mosi.2021-12-091h 08TæknivarpiðTæknivarpið296 Break frá Fractal 5 og jólagjafirFractal 5 gaf út sitt fyrsta app á Slush nýsköpunarhátíðinni í vikunni: Break. Break er samfélagsmiðill sem ætlar að skipuleggja tækisfærishittinga fyrir fólk. Við rennum yfir jólabækling Elko og rekum augum í fótanuddtækið sem virðist aldrei ætla deyja. Nýja ríkisstjórnin ætlar að opna sína eigin streymisveitu til að miðla íslensku efni geymt hjá Kvikmyndamiðstöðinni. Er það sniðugt eða á bara að upphala þessu á YouTube? SpaceX er víst á leiðinni á hausinn samkvæmt Elon Musk sjálfum, nema allt starfsfólkið vinni langar vaktir um helgar til að bjarga því. Tesl...2021-12-031h 04TæknivarpiðTæknivarpið295 Rafræn skilríki fyrir klámÁ dögunum fór hátt í fjölmiðlum umræða um klámnotkun barna og hvort hægt væri að krefjast innskráningar með rafrænum skilríkjum til að skoða klám. Um þetta er fjallað í þætti dagsins og hvort þetta sé raunhæf leið og líkleg til árangurs. Einnig ræddu þáttastjórnendur um sölu innviða fjarskiptafyrirtækja, Svartan fössara í Elko, tískustrauma unga fólksins, Pixel 6a leka og ónothæfa Tesla bíla. Að síðustu var rætt um nýjasta snjalllásinn á heimilum þáttastjórnenda.   Þessi þáttur er í boði Elko og Macland. ...2021-11-251h 16TæknivarpiðTæknivarpið294 Icelandverse, Tiro talgreinir og Spotify íhugar hljóðbækurÍslandsstofa sló í gegn með Icelandverse markaðsaðgerðinni í síðustu viku og fór um víðan völl. En hvað fannst Mosa? Tiro er talgreinir sem skilur íslensku og virðist svínvirka. Apple svignar undan þrýstingi og opnar á tól sín fyrir viðgerðir einstaklinga, sem hafa verið fram að þessu einungis verið í boði fyrir vottuð verkstæði eins og Macland. Youtube ætlar að fela “dislike” teljarann en heldur áfram að taka á móti þeim og Atli klórar sér bara í hausnum. Spotify fikrar sig í önnur viðskiptatækifæri og kaupir fyrirtæki sem styður við hljóðbókagerð. Einnig...2021-11-181h 18TæknivarpiðTæknivarpið293 Steam Deck leikjatölvunni seinkar og Pixel 6 Pro lenturMannvirkjaskrá kemst á netið og verður stafræn. Sýn fer í færsluhirðingu eða posaleigu. Húsasmiðjan bjó til app og er með einhverja útgáfu af “skannað & skundað”. Steam Deck leikjatölvunni hefur verið seinkað sem kemur ekkert sérlega á óvart. Microsoft býr til Chromebook “killer” til að komast inn í skólastofurnar í Bandaríkjunum. Næstu örgjörvar Apple halda áfram að leka. Elmar fjallar um sín fyrstu viðbrögð við Pixel 6 Pro símanum.   Þessi þáttur er í boði Elko, Macland, og Bruggstofunnar + Honkítonk BBQ. Hlustendur Tæknivarpsins eru með 10% afslátt af drykkjum hjá Bruggs...2021-11-111h 12TæknivarpiðTæknivarpið292 Hopp fær styrk, Facebook verður Meta og Airpods 3Hopp fær styrk til að fara í útrás, Sýn skilar fínum afgangi, Gagnaveita Reykjavíkur heitir nú Ljósleiðarinn, Facebook fyrirtækið fer í ásýndarbreytingu, Netflix býður nú einnig upp á tölvuleiki, Gulli prófar Surface Laptop Go fartölvuna frá Mowo.is og við fjöllum um fyrstu prófanir Atla og Sverris á Apple Airpods 3.    Þessi þáttur af Tæknivarpinu er í boði Elko og Bruggstofunnar Honkítonk BBQ á Snorrabraut.    Stjórnendur eru: Atli Stefán, Gunnlaugur Reynir og Sverrir Björgvinsson. 2021-11-051h 23TæknivarpiðTæknivarpið291 Rafbílavæðing Íslands og framtíð orkuskiptaVið förum yfir tæknifréttir vikunnar og fáum góðan gest í þáttinn til að ræða rafbílavæðingu Íslands hann Kolbein Marteinsson (Linked-In).   Fyrsta íslenska frétt vikunnar er einmitt rafbílafrétt því Tesla opnaði í vikunni ofurhleðslustöðvar á Akureyri. HR var hakkað og krefst óprúttinn aðili lausnargjalds fyrir gögn sem hann heldur í gíslingu. En ætlar HR að borga lausnargjaldið?    Þagnarbindi tækniumfjallara rofnuðu og fyrstu umsagnir Macbook Pro fartölva og Airpods 3 fylltu Youtube strauminn hans Atla. Macbook Pro afköst virðast fara fram úr væntingum og henta...2021-10-281h 24TæknivarpiðTæknivarpið290 Nýjar Macbook Pro og Pixel 6 símarApple og Google héldu bæði kynningu í vikunni og það er hátíð hjá okkur! Apple kynnti nýja liti fyrir Homepod mini, þannig hann virðist vera seljast eitthvað. Airpods 3 ný, endurhönnuð og með Spatial Audio á sama verði (179 USD). Tvær nýjar Macbook Pro tölvur: 14” og 16” með M1 Pro og M1 Max kubbasettum/örgjörvum. En hvaða raufar eru á þeim? Google hélt flotta kynningu og það eru tveir nýir Pixel símar: 6 og 6 Pro. Hvorn Pixel pantaði Elmar? Þessi þáttur er í boði Elko og Bruggstofunnar.  Stjórnendur eru: Atli Stefán, Elmar Torfaso2021-10-221h 28TæknivarpiðTæknivarpið289 Snjallheimilið, ljósaperur, ofnarofar og ryksugur289 Snjallheimilið, ljósaperur, ofnarofar og ryksugur   Eru snjallperur besta inngangan í snjallheimilið? Eða eru það snjallofnarofar? Hvað eru tur og retur ofnar? Er eitthvað varið í ryksuguvélmenni? Eiga allir í Tæknivarpinu Dyson ryksugu? Hver er réttur fjöldi Dyson ryksuga til að eiga? N-1? Alexa, Google home eða Siri? Allt þetta með stofnanda Facebook hópsins honum Marinó Fannari.  Svo er Apple kynning 18. október og Atli fær að renna yfir orðróma: Macbook Pro, Airpods 3 og Mac mini (og kannski iMac Plus).  Stjórnendur eru Atli Stefán, Bjarni Ben, Sverrir Bjö2021-10-151h 23TæknivarpiðTæknivarpið288 Facebook í tómu tjóni og rafstrætóNýtt af íslensku sjónvarpi: Ófærð fer af stað 17. okt og Stella Blomkvist heillar Gulla. Reykjavík er stútfull af erlendum rafíþróttamönnum og Cloud9 fær að kíkja inn í eldfjall. Strætó ætlar að fjölga rafstrætisvögnum og það er víst allt tilbúið fyrir það. Facebook fór á hliðinna og þurfti að spenna upp gagnaver til að komast aftur í gang. Svo hefur Facebook uppljóstrarinn loksins komið fram og fór í viðtal hjá 60 mínútum. En hverju er verið að ljóstra upp? Twitch var illa hakkað en mjög viðkvæm gögn virðast ekki haf...2021-10-101h 18TæknivarpiðTæknivarpið287 Amazon Echo fyrir börn og framtíð rafíþróttaKrónan er kominn með nýjan tæknifídus í appið sitt: Skannað og skundað. Svarmi ætlar að nýta sér Strætó til að hlaða dróna til að taka fullt af myndefni og fleira sniðugt. Sonos Beam hljóðstöngin fékk smá uppfærslu og styður núna Dolby Atmos (eiginlega). Amazon kynnti slatta af nýjum vélbúnaði og þá meðal annars Echo hátalara fyrir börn og Mikka Mús stand fyrir Echo Show. Bose QuietComfort 45 fá góða dóma og halda sínum þægindatitli. Apple Watch virðist geta spottað hjartsláttartrufla...2021-10-101h 30