podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Tanja Og Astros
Shows
durchgespielt.
v24.08: Chants of Trading Idle Idols
Chapters:00:00:00 v24.08: Chants of Trading Idle Idols00:00:14 Begruessung 00:17:07 Chants of Sennaar 00:22:51 The Case of the Golden Idol 00:35:17 Idle Brick Breaker 00:40:51 Chocobo Dice 00:42:43 Pokemon Trading Card Game 2 00:45:05 Ship of Harkinian aka Ocarina of Time 00:52:12 Astros Playroom 00:58:52 Elden Ring 01:04:06 Irgendiwe Baldurs Gate 3 01:11:57 Schrottcast und Topcast
2024-09-02
1h 15
Listin og lífið
Villibráð
Hversu vel þekkirðu fólkið sem stendur þér næst? Við fórum á Villibráð í bíó (sumir með litlar væntingar en aðrir með aðeins hærri) og horfðum svo á frönsku útgáfu myndarinnar, Le Jeu. Tvær alveg eins myndir sem tekst samt að vera GJÖRólíkar.
2023-02-15
1h 12
Listin og lífið
Útsýni👀
Í dag settumst við niður með bókina Útsýni eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur og ræddum hana í bak og fyrir. Ansi góð bók að okkar mati og vel þess virði að kíkja á - og kannski sérlega athyglisverð fyrir þau ykkar sem hafið áhuga á dulrænum öflum!
2023-01-22
1h 07
Listin og lífið
Jólamyndir
Við snúum aftur eftir marga viðburðaríka mánuði og óvænta atburði. Umræðuefnið er að sjálfsögðu jólamyndir; þessar góðu, þessar gömlu, þessar hræðilega lélegu, þessar klassísku og allt þar á milli. Gleðileg jól og heyrumst aftur á nýju ári!
2022-12-19
1h 14
Listin og lífið
Doctor Strange / Everything Everywhere All at Once
Er til önnur útgáfa af þér einhvers staðar þarna úti? Er til heimur þar sem þú kannt að skíða á höndum eða borðar með naflanum eða heimur þar sem allt er fjólublátt? Við munum sennilega aldrei komast að því en það er aftur á móti ENDALAUST hægt að velta sér upp úr því og bíómyndirnar tvær sem við tókum fyrir í þættinum eru einmitt af þeirri sortinni. Önnur er mögulega BESTA MYND ÁRSINS (já, þú last þetta rétt) en hin er talsvert verri🙈🙊
2022-06-20
1h 04
Listin og lífið
Eru SumarBækur betri en aðrar bækur?
Leikhúsárið er að líða undir lok og það þýðir bara eitt: Loksins, loksins er komið SUMAR! Við ræddum síðustu leikhúsferðir vetursins, Room 4.1 og Sjö ævintýri um skömm, og fórum í gegnum himinháan sumarbókastafla🛫⛱
2022-06-07
1h 11
Listin og lífið
Looking for Alaska eftir John Green
Fyrir þá sem ekki vita: John Green er enginn venjulegur maður. Hann er maðurinn sem færði okkur The Fault in Our Stars og Paper Towns, ógleymanlegar ungmennabækur (og kvikmyndir) sem breyttu allri okkar upplifun af því hvað ungmennabækur eru. Hér fjöllum við um hans fyrstu skáldsögu, Looking for Alaska sem kom út árið 2005 og olli þó nokkrum usla.
2022-05-16
1h 17
Listin og lífið
Óskarsmyndir 2022
Við fengum FRÁBÆRAN gest🐢 í verið í dag og fórum í gegnum þær kvikmyndir sem hlutu tilnefningu sem besta myndin á Óskarsverðlaunahátíðinni.
2022-05-02
1h 20
Listin og lífið
Eldarnir eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur
Við erum í ANDLEGU ÁFALLI eftir þessa mögnuðu bók og þurfum sálfræðiaðstoð á stundinni😱
2022-03-21
1h 06
Listin og lífið
Batman og Milla
Næturbröltarar, njósnarar, kvennabósar og þunglyndir ævintýrapésar. Batman/Robbi Patt og Milla úr samnefndri bók eftir Kristínu Ómars voru með okkur í þætti dagsins og komust að því að þau eiga hitt og þetta sameiginlegt.
2022-03-09
1h 19
Listin og lífið
Akam, ég og Annika
Þórunn Rakel Gylfadóttir hlaut nýverið Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir ungmennabók sína Akam, ég og Annika þar sem meðal annars er fjallað um framandleika, fordóma og réttlæti. Við ræddum allt þetta og fleira til í þætti dagsins. Þátturinn er í boði bókaforlagsins Angústúru.
2022-02-11
1h 16
Listin og lífið
The Lost Daughter
Rithöfundurinn Elena Ferrante hefur slegið rækilega í gegn á síðustu árum og um þessar mundir er einmitt í sýningu bíómyndin The Lost Daughter sem byggð er á samnefndri bók höfundarins. Við dembdum okkur í bæði lestur og bíó og komum frekar ósammála upp úr kafinu. Þessi þáttur er í boði Senu.
2022-01-24
1h 10
Listin og lífið
SPIDERMAN🕸
Forfallnir aðdáendur Kóngulóarmannsins köfuðu í hugsanlega heima áttfætlunnar með Tobey Maguire, Andrew Garfield og Tom Holland.
2022-01-10
1h 19
Listin og lífið
Jól á eyjahótelinu (og fleira skemmtilegt)
Í síðasta þætti fyrir jólafrí ræddum við jólabækur Angústúru; Koma jól? eftir Hallgrím Helgason og Jól á eyjahótelinu eftir Jenny Colgan. Við spjölluðum líka um jólagjafir, jólatónlist, jólamyndir og allt hitt sem tilheyrir jólunum🎄 Þáttur er í boði bókaforlagsins Angústúru.
2021-12-20
1h 09
Listin og lífið
Að borða Búdda
Við ræddum bókina Að borða Búdda - líf og dauði í tíbeskum bæ eftir Barböru Demick. Þátturinn er í boði bókaforlagsins Angústúru.
2021-11-24
1h 07
Listin og lífið
Yosoy
Við töluðum um skáldsöguna Yosoy eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur; sögu af líkamslistum, sársauka og mörkum hins siðlega sem dregur fram svo mikil óþægindi að við bókstaflega fundum það í líkamanum.
2021-11-10
1h 05
Listin og lífið
Bókabúðir
Bókabúðir geta verið í kastölum, við ströndina eða hreinlega bara á Selfossi. Þær hitta samt alltaf beint í hjartastað. Við ræddum hvernig og hvar við viljum hafa bókabúðirnar sem við höfum í og veltum því fyrir okkur að opna bókabúð þar sem eingöngu fást bækur eftir höfunda sem hafa gengið á Hvannadalshnjúk.
2021-10-12
1h 01
Listin og lífið
Skjáskot eftir Berg Ebba
Hefur þér einhvern tímann dottið í hug að taka skjáskot af samtali og setja það í allt annað samhengi? Ef svarið er nei þá tökum við hattinn ofan fyrir þér. Við mælum líka með að þú hlustir á þennan þátt þar sem Chevrolet Suburban, falsmyndir á samfélagsmiðlum og þráhyggju Íslendinga fyrir Bandaríkjunum ber á góma.
2021-09-28
1h 20
Listin og lífið
Stóru spurningarnar í lífinu
Ástrós sest í spyrilssætið og sendir Tönju á vit ævintýranna í heimi Buzzfeed spurningalista.
2021-09-13
1h 18
Listin og lífið
Ljóðaslamm með Jóni Magnúsi
Jón Magnús Arnarsson (aka ríkjandi Íslandsmeistari í ljóðaslammi, rappari, ljóðskáld og FYRSTI GESTURINN OKKAR) kom og spjallaði við okkur um ljóðaslamm.
2021-08-30
1h 20
Listin og lífið
Sjónvarpsþættir
Fyrstu þættir, uppáhalds þættir, fáránlega góða þættir, lélegir þættir sem við gátum samt ekki hætt að horfa á, þættir sem vöktu upp ugg og svo margt, margt fleira.
2021-08-23
1h 12
Listin og lífið
Andlegi þynnkuþátturinn
Sökum sunnudagsleti í konum voru hér til tals (meðal annars) Sims tölvuleikirnir, Grettir Ásmundsson og danskur húmor.
2021-08-16
1h 01
Listin og lífið
Misskilningur à la Sally Rooney
Í skáldsögunum Conversations with Friends og Normal People eftir Sally Rooney sést greinilega að oft hugsa ég eitt, segi annað og þú skilur það á þriðja mátann.
2021-08-09
1h 09
Listin og lífið
Bréfaskriftir
Elsku hlustendur, Vonandi hafið þið það gott! Hér meðfylgjandi er nýjasti þátturinn þar sem við fjöllum aðeins um bréfaskriftir. Hlustið og njótið og endilega sendið okkur svarbréf. Bestu kveðjur, Tanja og Ástrós
2021-07-26
1h 08
Listin og lífið
Eyland
Það erum ekki bara við sem lifum á fordæmalausum tímum...
2021-07-12
1h 17
Listin og lífið
Að elska VONDA KALLINN😈
Það er ekki alltaf hetjan sem skýtur rótum í hjartanu.
2021-07-05
1h 01
Listin og lífið
My Year of Rest and Relaxation
Stundum langar mann bara að sofa í heilt ár.
2021-06-28
1h 08
Listin og lífið
Lagatextar
Í þetta skiptið fjölluðum við um textasmíð Bubba Morthens, Taylor Swift og Stuðmanna svo einhver séu nefnd og veltum fyrir okkur hvað góður texti geri fyrir lag, mörkunum milli ljóða og laga, textum á tungumálum sem við skiljum ekki og margt fleira.
2021-06-07
1h 08
Listin og lífið
Newness
Við köfuðum í kvikmyndina Newness og töluðum um óhefðbundin ástarsambönd, nýjungaþrá og hversdagsóþol.
2021-05-24
1h 04
Listin og lífið
Uppáhalds bækur og ÓVÆNTIR ATBURÐIR
Við töluðum um karaktersjarma, andrúmsloft og söguþræði sem koma manni á óvart og veltum því fyrir okkur hvort Ítalía væri ef til vill lykillinn að bókum sem hitta beint í hjartastað.
2021-05-10
1h 12
Listin og lífið
Ósjálfrátt eftir Auði Jóns
Við bombuðum okkur í lestrargírinn með þessari frábæru bók þar sem kjarnakonur, þjóðskáld, alkóhólistar og auðnuleysingar stíga fram á sjónarsviðið og færa okkur sögu af tilurð ungskálds.
2021-05-03
1h 07
Listin og lífið
Ungmennabókmenntir
Hvað eiga Julie Andrews, vampírur og kúariða sameiginlegt? Jú, það tengist allt ungmennabókmenntum á einn eða annan hátt. Í þessum þætti förum við vítt og breitt um þennan afkima bókmenntanna og sendum út ákall til milljónamæringa um að fjármagna hann betur.
2021-04-26
1h 09
Listin og lífið
Nýir tímar
Það eru breytingar í vorloftinu og í dag verður kynntur til leiks nýr þáttastjórnandi✨
2021-04-23
1h 04
Listin og lífið
LoveStar eftir Andra Snæ
Einkunnarorð þáttarins eru STURLAÐ og KLIKKAÐ. Aldrei hefur efnið verið jafn mikið til umræðu, útúrdúra má telja á fingrum annarrar handar. Sennilega eru skáldskapur og raunveruleiki við það að renna saman í eitt, heimsendir er í nánd og við erum hræddar. Svo hvetjum við ykkur öll til að lesa LoveStar – annars er hætt við að þið ratið aldrei út úr því völundarhúsi sem okkur tókst að skapa í virkinu okkar.
2021-02-25
1h 05
Listin og lífið
Lífið ER lygi
Engar áhyggjur elsku hlustendur, við erum ekki neikvæðar, bara RAUNSÆJAR. En það fer auðvitað eftir því hvort rætt sé við efnafræðinga, stærðfræðinga eða íslenskufræðinga.
2021-02-02
1h 04
Listin og lífið
Upprisa heilagra kvenna
Við mætum galvaskar til leiks ásamt KÓ og fræðum ykkur af eintómri gæsku um allt það sem máli skiptir.
2021-01-14
1h 01
Listin og lífið
Hugsanlegir heimar, hliðarsjálf og hafið
Við fórum „Vítt um heima", horfðum á hafið og veltum fyrir okkur samþykktum veruleikaflótta.
2020-12-03
1h 02
Listin og lífið
Á flakki með Ings og Tönju
Við ætluðum í ferðalag til Napólí en héldum óvænt í lengri reisu; aldurinn færðist yfir okkur og löngunin til að deila ferðasögum úr æsku náði tökum á samtalinu. Málefnalegar umræður um vinskap þeirra Lenú og Lilu þurfa því að bíða betri tíma.
2020-11-22
1h 00
Listin og lífið
Tvær gamlar, hungraðar og flottar
Við kynnumst Chidzigyaak, Sa og harðri lífsbaráttu þeirra, fetum okkur eftir ógreinilegri línu réttlætis og ranglætis og hneykslumst á Háskóla Íslands.
2020-11-08
1h 01
Listin og lífið
Havana 🌴🌅
Hér ríkir myrkur og mygla; þó erum við í banastuði og fjöllum af alkunnri snilld um ljóðabókina Havana eftir Maríu Ramos.
2020-10-25
1h 01
Listin og lífið
Orðaflæði og heimsmál
Hann var þungur í dag en við látum ekki deigan síga. Skrifum tókst að slæðast inn í umræðurnar en Nýjar raddir og ástand heimsins tóku þó upp mest pláss. Verum góð en gagnrýnin (og flokkum ruslið okkar) ❤
2020-10-17
1h 02
Listin og lífið
Uppgjör, endalok, upphaf
Í dag minnumst við vart einu orði á bókmenntir heldur gerum sumarið sem leið og hleypum ykkur að okkar innstu hjartarótum. Ást og friður, heyrumst í október.
2020-09-20
1h 04
Listin og lífið
Tilfinningar ≠ beinharðar
Beinharðar staðreyndir haldast ekki í hendur við tilfinningar. Nóg um það. Ör eftir Auði Övu og gagnrýni Halldórs Xinyu Zhang á bókina voru létt þungamiðja kvöldsins. Kyss, kyss, knús, knús frá tveimur sjúskuðum skonsum.
2020-09-10
1h 02
Listin og lífið
Við og HINIR
Á boðstólum í dag eru Edward Said og óríentalisminn, gul gleraugu, yoga og meintir menningarlegir yfirburðir vesturlanda.
2020-09-02
1h 01
Listin og lífið
Lygilegar sögur úr Hvítfeld eftir Kristínu Eiríks
Í þessum þætti komumst við að því hvers vegna lygar eru ein af höfuðsyndunum, köfum ofan í lygalaug Jennu Hvítfelds og játum fyrir ykkur nokkrar lygar sem sitja í okkur enn þann dag í dag.
2020-08-20
1h 02
Listin og lífið
Gloppóttur sannleikur og bældar tilfinningar
Það getur verið að við fjöllum um frumskóg tilfinninganna og hvernig hægt er að rata út úr honum, bókmenntakenningar Oshos um trúverðugleika sögumanns eða eitthvað allt annað ;) Ps. munið að lesa Hvítfeld fyrir næsta þátt.
2020-08-11
59 min
Listin og lífið
Leyndardómar tilverunnar
Ansi frjálsleg umræða um Stellu Blómkvist og Dimmu eftir Ragnar Jónasson. Undirstrikum frjálslegar þar sem mikið var rætt um persónuleg málefni á borð við sveppatínslu, haustlægðir, virkisgerð og fleira.
2020-08-05
1h 01
Listin og lífið
Trúir þú á drauga?
Þær fálma í myrkum reimleikahúsum og reyna að komast að því hvort spæjarasaga sé það sama og glæpatryllir. Tekst þeim að vinna bug á óttanum? Munu þær nokkurn tímann leysa gátuna? Munu þær sleppa lifandi? 😱👻🔎
2020-07-29
1h 00
Listin og lífið
Krassandi unglingabækur 🍑🍆🎇
Tókum fyrir unglingabækur Siggu Daggar, KynVeru og Daða, fórum hjá okkur en unnum með fake it 'til you make it. Komum út á hinum endanum 2% minni teprur en áður. Kyss, kyss, knús, knús.
2020-07-22
1h 02
Listin og lífið
Ég sé kanínu, þú tré: viðtökufræði Wolfgangs Isers
Hvað gerist í heilanum þegar við lesum? Býr texti yfir endanlegum sannleika eða verður hann til við lesturinn? Af hverju breytist upplifun okkar af tilteknum texta og hvaða hlutverk spilar lífsreynsla í lestrarferlinu?
2020-07-15
58 min
Listin og lífið
Bubbi Morthens WHAT A MAN
Á dagskrá eru ljóðabækur Bubba, pólitískar skoðanir og eitt heiðurstíst.
2020-07-08
58 min
Listin og lífið
Útsýnisflug um bókmenntaheiminn 😉🛫
Hér reynum við stöllur að rifja upp það sem okkur hefur verið kennt um bókmenntir og náum óvæntri jarðtengingu.
2020-07-01
57 min
Listin og lífið
Sumar og SÓLKSINSHESTAR
Vanræksla og æskuástir í boði Steinunnar Sigurðardóttur. Velkomin í nýja seríu kæru bókaormar.
2020-06-24
1h 02
Listin og lífið
Hvað veldur því að sumar bækur lifa af en aðrar glatast?
Við köfuðum aftur í fornaldir og veltum fyrir okkur hvað býr í góðum og langlífum bókmenntasmelli.
2020-06-05
1h 05
Listin og lífið
Óbókmenntaþátturinn
Skvísur á þeytingi tala meira um daglegt amstur en hin mikilsverðu og háverðugu bókmenntafræði 😉😘💕
2020-05-20
58 min
Listin og lífið
Kóralkonur lesa Fríðu Ísberg
Dýfum okkur ofan í ljóðaheim Fríðu Ísberg og opnum á viðkvæmnina. Þarf viðkvæmnin alltaf að vera veikleiki? Getur hún verið styrkleiki? Kveðja, sterkar viðkvæmar skvísur.
2020-05-12
1h 01
Listin og lífið
Þýðingaþátturinn mikli
Í dag var rætt um hinar ýmsu hliðar þýðinga. Sjaldan verið jafn fræðilegar, flottar og einbeittar en þó skaut óvænt heilsufarsvandamál upp kollinum.
2020-04-30
1h 00
Listin og lífið
Mr Eiríkur Örn og Illskan (innra með okkur)
INNSEND LJÓÐ! Bókin Illska eftir Eirík Örn rædd ásamt dassi af garðrækt og oggupons af hugrenningum um eðli mannskepnunnar (erum við öll fær um að fremja morð?).
2020-04-24
1h 00
Listin og lífið
Kristín Ómars í öðru veldi
Í dag tókum við upp þráðinn með Kristínu Ómars, það var galsi í Ingibjörgu og Tanja vildi verða að kartöflum.
2020-04-10
1h 01
Listin og lífið
Fólk með karakter
Söguhetjur æskunnar, hver má skrifa hvað og þarf Davíð Oddsson knús?
2020-04-03
1h 08
Listin og lífið
Rauðar ástir (ljós, ljós bláar?)
Örari andardráttur, hjartsláttur og kiknandi hné.
2020-03-20
57 min
Listin og lífið
Margbrotnir persónuleikar
Ritgerðaskrif, hinseginleiki, kynhlutverk og fjölþættir persónuleikar. Amen.
2020-03-11
1h 01
Listin og lífið
Nýmóðins ást
Dagur Hjartarson og ástin eru þungamiðja þáttarins í dag. En óttist eigi, það er að sjálfsögðu líka nóg af afvegaleiðingum og útúrdúrum.
2020-03-04
1h 02
Listin og lífið
Er nokkurn tímann hægt að skilja annað fólk?
Umræðuefni var eðli tungumálsins með tilliti til Jacques Derrida en eðli málsins samkvæmt var hann mest lítið til umræðu ;)
2020-02-26
1h 04
Listin og lífið
Eru bókmenntir mannbætandi?
Lögðum upp með að ræða gildi bókmennta fyrir samfélagið en mikið var nú erfitt að halda sig við efnið í dag. Hér fáið þið því oggupons af öllu mögulegu ásamt engum niðurstöðum í málinu ;)
2020-02-19
1h 03
Listin og lífið
Að skrifa úr sér sálina (aka BERSKJÖLDUN)
Í dag ræðum við stöllur um ritunarferlið, mikilvægi mistaka og vorum svo góðar að deila með ykkur hlustendum ritögnum úr eigin sálum.
2020-02-12
1h 02
Listin og lífið
Kristín Ómars og við
Í þessum fyrsta þætti reynum við að fóta okkur í hlaðvarpsheiminum, tölum um Kristínu Ómars, okkur sjálfar og aðra sniðuga hluti.
2020-02-04
31 min