Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Bestasaetid

Shows

Besta sætiðBesta sætiðBesta sætið: Kristófer opnar sig um ágreining við Craig PedersenKristófer Acox fer ekki á Evrópumótið í körfubolta sem hefst í lok ágúst. Tíðindin koma mörgum á óvart en þó ekki honum sjálfum. Landsliðsþjálfarinn tjáði honum í febrúar að hann myndi aldrei velja hann aftur. Kristófer tjáði sig um málið við Besta sætið. 2025-07-2621 minBesta sætiðBesta sætiðBesta sætið: Þörf á naflaskoðun hjá KSÍLeikur Íslands við Noreg, sem og Evrópumót kvennalandsliðsins í heild, framtíðarhorfur liðsins og staða kvennaknattspyrnu almennt var til umræðu í Besta sætinu. Ásta Eir Árnadóttir og Þóra B. Helgadóttir voru gestir Vals Páls Eiríkssonar. 2025-07-1154 minBesta sætiðBesta sætiðElísabet Gunnarsdóttir: „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi”Elísabet Gunnarsdóttir, landsliðsþjálfari Belgíu í fótbolta, er nú á þeim stað sem hana dreymdi um að vera á þegar að hún var yngri og á sínu fyrsta stórmóti sem landsliðsþjálfari. Í þessu viðtali fer hún yfir áskoranirnar með Belgíu, yfirstandandi Evrópumót, íslenska landsliðið og margt fleira. 2025-07-0927 minBesta sætiðBesta sætiðBesta sætið: Svekkelsi í SvissÁsta Eir Árnadóttir og Bára Kristbjörg Rúnarsdóttur ræddu málin með Ágústi Orra Arnarsyni eftir svekkjandi tap Íslands gegn Sviss.  2025-07-0736 minBesta sætiðBesta sætiðBesta sætið - Tuð eftir ThunÍslenska kvennalandsliðið tapaði 1-0 fyrir Finnum í fyrsta leik á Evrópumótinu í Sviss. Liðið átti ekki sinn besta dag og léku 10 gegn 11 síðustu þrjátíu mínútur leiksins. Systurnar Þóra Björg og Ásthildur Helgadætur mætti í þáttinn og gerðu leikinn upp.  2025-07-0236 minBesta sætiðBesta sætiðOrri Steinn stefnir á toppinnOrri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði í fótbolta og leikmaður spænska úrvalsdeildarfélagsins Real Sociedad, í opinskáu og ítarlegu viðtali um fyrsta tímabil sitt á Spáni sem er nú lokið, samkeppnina í liðinu, framtíðar markmið, aðlögun á Spáni, landsliðsfyrirliðahlutverkið, íslenska landsliðið, verðandi föðurhlutverk sem og föður sinn Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfara Bestu deildar liðs KR. Viðtalið var tekið fimmtudaginn 5.júní.   Umsjón viðtals: Aron Guðmundsson 2025-06-1026 minBesta sætiðBesta sætiðKristófer Ingi Kristinsson: „Al­gjört krafta­verk að þetta hafi ekki farið verr“Ekki mátti miklu muna að knattspyrnuferill Kristófers Inga Kristinssonar, leikmanns Breiðabliks, yrði að engu eftir að hann fékk blóðsýkingu í ökkla í kjölfar aðgerðar. Lífsreynslan opnaði augu hans og nú er Kristófer mættur aftur inn á völlinn og það með miklu látum en hann skoraði dramatískt jöfnunarmark Breiðabliks í uppbótartíma í 3-3 jafntefli gegn KR í 5.umferð Bestu deildarinnar á dögunum. Í þessu viðtali fer Kristófer yfir erfiðleika síðustu mánaða, hvernig þeir breyttu lífssýn hans og hversu nálægt hann var því að sjá knattspyrnuferilin2025-05-0717 minBesta sætiðBesta sætiðGuðlaugur Victor ræðir Rooney, gagnrýnina og landsliðiðÞað virðist vera að birta til hjá Guðlaugi Victori Pálssyni og liðsfélögum hans í Plymouth í ensku B-deildinni. Það hefur gengið á ýmsu hjá félaginu í vetur. 2025-02-1427 minBesta sætiðBesta sætiðUppjör á HM í handbolta með Snorra SteiniSnorri Steinn Guðjónsson fer yfir farinn veg á HM í handbolta á hnitmiðaðan hátt eftir að Ísland féll úr leik á afar svekkjandi hátt með átta stig í milliriðli þar sem að þungt tap gegn Króötum reið baggamuninn. „Á einhverjum tímapunkti þarf maður að hætta vorkenna sjálfum sér og rífa sig í gang. Hætta að pulsast í drasl.“ 2025-01-3118 minBesta sætiðBesta sætiðUppgjör eftir Ísland – Argentína: BlessEinar Jónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson mættu og gerðu upp frammistöðu íslenska landsliðsins á HM. Liðið hafnaði í 9. sæti á mótinu.  2025-01-2657 minBesta sætiðBesta sætiðUppgjör eftir Ísland – Króatía: Íslenska þjóðin jarðtengd í ZagrebÞað má með sanni segja að íslenska þjóðin hafi verið jarðtengd og það harkalega í Zagreb með sex marka tapi, 32-26 gegn Króötum Dags Sigurðssonar í milliriðlum HM í handbolta. Frá því að vera bjartsýnn á sæti í útsláttarkeppni mótsins eru örlögin nú úr höndum strákanna okkar fyrir lokaumferð riðilsins. Fyrrverandi landsliðsmennirnir Bjarni Fritzson og Ásgeir Örn Hallgrímsson gera upp slæmt kvöld í Zagreb. 2025-01-2445 minBesta sætiðBesta sætiðUppgjör eftir Ísland - Egyptaland: Aron er Messi handboltansÞeir Einar Jónsson og Bjarni Fritzson mættu til Stefáns Árna Pálssonar og gerðu upp frækinn 27-24 sigur Íslands á Egyptum á HM í handbolta. Liðið hefur nú unnið fyrstu fjóra leikina á mótinu. Króatar næst á föstudagskvöldið. 2025-01-221h 14Besta sætiðBesta sætiðUpphitun fyrir milliriðilinn á HM í handbolta: Ísland með fullt hús stigaÞeir Stefán Árni Pálsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson og Bjarni Fritzson hituðu upp fyrir milliriðilinn hjá íslenska landsliðinu í handbolta í Pallborðinu á Vísi og Stöð 2 Vísi. Þar mætir liðið Egyptum, Króatíu og Argentínu. Liðið er sem stendur með fullt hús stiga.  2025-01-2241 minBesta sætiðBesta sætiðUppgjör eftir Ísland - Slóvenía: #Takkstrákar, #takkViktorÞeir Einar Jónsson og Ásgeir Örn fóru yfir magnaðan sigur Íslands á Slóveníu á HM í handbolta í kvöld. 23-18 geggjaður sigur. Næst Egyptaland. Allt á fullt hér á Íslandi.  2025-01-2054 minBesta sætiðBesta sætiðUppgjör eftir Ísland - Kúba: Nú byrjar mótiðÞeir Rúnar Kárason og Ásgeir Örn Hallgrímsson mættu í Besta sætið og ræddu leik Íslands og Kúbu á HM. Ísland vann leikinn 40-19 en næsti leikur verður mun erfiðari. Slóvenar bíða.  2025-01-1945 minBesta sætiðBesta sætiðUppgjör eftir Ísland - Grænhöfðaeyjar: Þrettán marka sigur en engin hátíð í bæAron Guðmundsson fékk þá Einar Jónsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson til að gera upp þrettán marka sigur Íslands á Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik liðsins á HM 2025. Þrettán marka sigur jú, margt gott en rými til bætinga eftir leik á móti liði sem ætti erfitt með að halda sér uppi í Olís deildinni.  2025-01-1641 minBesta sætiðBesta sætiðBesta sætið - Upphitun fyrir HMÞeir Einar Jónsson, þjálfari Fram, og Ásgeir Örn Hallgrímsson, þjálfari Hauka, mættu í Pallborðið á Vísi og hituðu upp fyrir heimsmeistaramótið í handbolta. Fyrsti leikur liðsins er gegn Grænhöfðaeyjum í kvöld.  2025-01-1642 minBesta sætiðBesta sætiðÞórir Hergeirsson gerir upp NoregstímannÞórir Hergeirsson var til viðtals eftir að hafa lokið störfum hjá norska handboltasambandinu eftir 24 ára starf. Hann er spenntur fyrir því að takast á við ný verkefni eftir fádæma gott gengi. 2025-01-0727 minBesta sætiðBesta sætiðArnór Smárason gerir upp viðburðarríkan ferilArnór Smárason lét gott heita og lagði knattspyrnuskóna á hilluna á dögunum, 36 ára gamall. Arnór var snemma talinn bera af á fótboltavellinum og var valinn besti leikmaður Shellmótsins 10 ára gamall og aðeins 15 ára var hann fluttur einn og óstuddur í atvinnumennsku til Heerenveen í Hollandi. Arnór vann sig inn í lið Heerenven um tvítugsaldurinn en slæm meiðsli settu strik í reikninginn. Hann átti eftir að fara víða og lék á ferli sínum í Svíþjóð, Noregi og Rússlandi áður en Skagamaðurinn lék loks sína fyrstu leiki fyrir uppeldisfélagið ÍA í fyrra. Hann leiddi...2024-11-121h 05Besta sætiðBesta sætiðBesta sætið - Bestu deildar uppgjörIngvi Þór Sæmundsson fékk þá Atla Viðar Björnsson og Baldur Sigurðsson til að fara yfir nýafstaðið tímabil í Bestu deild karla. 2024-11-051h 15Besta sætiðBesta sætiðTheodór Elmar Bjarnason gerir upp skrautlegan ferilTheodór Elmar Bjarnason setti punkt fyrir aftan 20 ára knattspyrnuferil sinn þegar KR vann 7-0 sigur á HK í lokaumferð Bestu deildar karla síðustu helgi. Ferill hans er skrautlegur en hann hélt utan aðeins 17 ára gamall til stórliðs Celtic í Skotlandi og hefur síðan alls leikið í sex löndum, að Íslandi undanskildu. Hann lítur nú til næsta verkefnis en hann hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari uppeldisfélagsins og verður því á hliðarlínunni í Bestu deildinni að ári. 2024-11-0237 minBesta sætiðBesta sætiðBirkir Már Sævarsson skilur sáttur við ferilinnBirkir Már Sævarsson lék sinn síðasta knattspyrnuleik á ferlinum þegar lið hans Valur vann 6-1 sigur á ÍA í lokaumferð Bestu deildar karla síðustu helgi. Þar hóf hann einnig meistaraflokksferilinn árið 2004, átti síðar eftir að vera í atvinnumennsku í Noregi og Svíþjóð í áratug, og er þá fjórði leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins með 103 landsleiki að baki. Við settumst niður með Birki Má fyrir lokaleikinn við ÍA en hann nú floginn til Svíþjóðar hvar fjölskylda hans hefur búið frá því í desember í fyrra. 2024-11-0121 minBesta sætiðBesta sætiðÓmar Ingi Guðmundsson og viðskilnaðurinn við HKGreint var frá því í yfirlýsingu HK á þriðjudagskvöldið síðastliðið að Ómar Ingi Guðmundsson myndi ekki halda áfram þjálfun karlaliðs félagsins í fótbolta sem að féll úr Bestu deildinni á nýafstöðnu tímabili. Það var að ósk Ómars að leiðir myndu skilja á þessum tímapunkti en hann hafði verið aðalþjálfari liðsins síðan árið 2022 og hafði það sama ár stýrt liðinu upp í efstu deild á nýjan leik. Ómar er HK-ingur út í gegn og hefur hann verið það frá sex ára aldri þegar að hann hóf að æfa fótbolta með félaginu sama ár og þa...2024-10-3022 minBesta sætiðBesta sætiðBörkur Edvardsson: Komið að tímamótum eftir 21 ár í embætti formannsEftir tuttugu og eins árs feril í embætti formanns knattspyrnudeildar Vals hefur Börkur Edvardsson ákveðið að láta staðar numið og mun hann ekki bjóða sig fram til formanns sé stjórnarsetu á komandi haustfundi félagsins. Í þessu viðtali í Besta sætinu förum við um víðan völl í tengslum  við tíma Barkar í formannsembættinu hjá knattspyrnudeild Vals. 2024-10-1737 minBesta sætiðBesta sætiðFyrirliðinn Ásta Eir kvaddi með Íslandsmeistaratitli: „Sátt í hjarta mínu“Eftir að hafa landað sjálfum Íslandsmeistaratitlinum með Breiðabliki um nýliðna helgi, þeim þriðja á ferlinum, greindi Ásta Eir Árnadóttir, fyrirliði liðsins, frá því á sunnudaginn síðastliðinn að skórnir væru komnir á hilluna. Ákvörðun Ástu kom vafalaust mörgum á óvart en hún á þó sinn aðdraganda. Ásta lék sinn fyrsta leik í efstu deild árið 2009. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og er Ásta þremur Íslandsmeistaratitlum og þremur bikarmeistaratitlum ríkari. Þá var hún hluti af liði Breiðabliks sem skráði sig á spjöld sögunnar með því að verða fyrsta íslenska liðið til að leika í rið...2024-10-0822 minBesta sætiðBesta sætiðFréttir vikunnar 20. septemberHenry Birgir Gunnarsson, Stefán Árni Pálsson og Valur Páll Eiríksson fara yfir það helsta í íþróttaheiminum. 2024-09-2030 minBesta sætiðBesta sætiðÞriðjungsuppgjör Bestu deildar karlaIngvi Þór Sæmundsson fór yfir fyrsta þriðjung Bestu deildar karla með þeim Henry Birgi Gunnarssyni og Atla Viðari Björnssyni. 2024-06-041h 07Besta sætiðBesta sætiðFréttir vikunnar 10. maíHenry Birgir Gunnarsson, Aron Guðmundsson og Valur Páll Eiríksson renna yfir fréttir vikunnar og var af nægu að taka. 2024-05-1032 minBesta sætiðBesta sætiðLokasóknin gerir upp NFL nýliðavalið 2024Andri Ólafsson, Eiríkur Stefán Ásgeirsson og Henry Birgir Gunnarsson fóru yfir nýliðaval NFL-deildarinnar og byrjuðu að spá í spilin fyrir næstu leiktíð í NFL-deildinni. 2024-04-2958 minBesta sætiðBesta sætiðFréttir vikunnar 19. aprílHenry Birgir Gunnarsson, Aron Guðmundsson og Valur Páll Eiríksson renna yfir fréttir vikunnar í íþróttaheiminum og spá í spilin fyrir leiki helgarinnar. 2024-04-1940 minBesta sætiðBesta sætiðFréttir vikunnar 12. aprílHenry Birgir Gunnarsson, Aron Guðmundsson og Valur Páll Eiríksson renna yfir fréttir vikunnar og var af nægu að taka. 2024-04-1238 minBesta sætiðBesta sætiðKörfuboltakvöld hitar upp fyrir úrslitakeppninaStefán Árni Pálsson, Teitur Örlygsson og Helgi Már Magnússon rýna í úrslitakeppni Subway-deildar karla sem hefst í vikunni. 2024-04-081h 17Besta sætiðBesta sætiðStúkan hitar upp fyrir Bestu deild karlaGuðmundur Benediktsson og Kjartan Atli Kjartansson hituðu upp fyrir fótboltasumarið. Gestir þáttarins eru Atli Viðar Björnsson, Albert Ingason, Baldur Sigurðsson og Sigurbjörn Hreiðarsson. 2024-04-032h 10Besta sætiðBesta sætiðLeikdagur í WroclawStefán Árni Pálsson og Kjartan Henry Finnbogason hita upp fyrir risaleik Íslands og Úkraínu. Sigurvegari leiksins fer beint á EM í sumar. 2024-03-2609 minBesta sætiðBesta sætiðGuðmundur Guðmundsson: Blóð, sviti, tár og andvökunæturGuðmundur Guðmundsson, reynslubolti úr handboltaheiminum, hefur verið að ná sögulegum árangri sem þjálfari Fredericia í efstu deild Danmerkur í handbolta. Hann fer yfir tíma sinn hjá félaginu til þessa, framtíðarhorfur og umhverfið sem hann vinnur við hjá félaginu. Ástríðu sína og andvökunætur sem fylgja því að vinna við það sem gefur honum einna mest.  2024-03-2423 minBesta sætiðBesta sætiðFréttir vikunnar 22. mars | Stórsigur gegn ÍsraelHenry Birgir Gunnarsson, Aron Guðmundsson og Valur Páll Eiríksson renna yfir leikinn Íslands og Ísraels og ræða einnig allan storminn í aðdraganda leiksins. 2024-03-2234 minBesta sætiðBesta sætiðUpphitun fyrir stóra leikinn í BúdapestStefán Árni Pálsson, Gummi Ben og Kjartan Henry Finnbogason spá í spilin fyrir leik Íslands og Ísraels í Búdapest í kvöld. 2024-03-2119 minBesta sætiðBesta sætiðLokasóknin | Sturlun á leikmannamarkaði NFL-deildarinnarHenry Birgir Gunnarsson, Eiríkur Stefán Ásgeirsson og Maggi Peran fara yfir leikmannamarkaðinn í NFL-deildinni sem hefur verið algjörlega sturlaður síðustu daga. 2024-03-201h 13Besta sætiðBesta sætiðFréttir vikunnar 15. marsHenry Birgir Gunnarsson, Aron Guðmundsson og Stefán Árni Pálsson fara yfir fréttir vikunnar.  2024-03-1535 minBesta sætiðBesta sætiðArnar Grétarsson ræðir komu Gylfa Þórs til ValsArnar Grétarsson, þjálfari Vals, ræðir komu Gylfa Þórs Sigurðssonar til liðsins. Gylfi Þór skrifaði á dögunum undir tveggja ára samning við Val. 2024-03-1510 minBesta sætiðBesta sætiðUpphitun fyrir Bestu-deild karlaIngvi Þór Sæmundsson fer yfir stöðu mála í Bestu-deild karla með Baldri Sigurðssyni og Atla Viðari Björnssyni. 2024-03-1258 minBesta sætiðBesta sætiðFréttir vikunnar 8. marsHenry Birgir Gunnarsson fer yfir fréttir vikunnar. Með honum að þessu sinni eru Stefán Árni Pálsson og Valur Páll Eiríksson. 2024-03-0838 minBesta sætiðBesta sætiðPallborðið með formannsframbjóðendum KSÍHenry Birgir Gunnarsson tók á móti Guðna Bergssyni, Vigni Má Þormóðssyni og Þorvaldi Örlygssyni sem allir eru í framboði til formanns KSÍ. 2024-02-2350 minBesta sætiðBesta sætiðUppgjör eftir Ísland-Austurríki : Mót hinna glötuðu tækifæraStefán Árni Pálsson fékk þá Bjarna Fritzson og Einar Jónsson til að gera upp tveggja marka sigur Íslands á Austurríki í lokaleik liðsins á EM í Þýskalandi. Einnig gerðu þeir upp mótið í heild sinni. 2024-01-2457 minBesta sætiðBesta sætiðUppgjör eftir Ísland-Króatía: Aron í heimsklassa og menn að mæta til leiksStefán Árni Pálsson fékk þá Einar Jónsson og Hreiðar Levý Guðmundsson til að gera upp fimm marka sigur á Króötum 35-30. Ólympíudraumurinn lifir. 2024-01-2243 minBesta sætiðBesta sætiðUppgjör eftir Ísland-Frakkland: Tap fyrir miklu betra liðiStefán Árni Pálsson fékk þá Hreiðar Levý Guðmundsson og Bjarna Fritzson til að gera upp sjö marka tap Íslands gegn Frökkum 39-32 á EM í Þýskalandi í dag. Slæmt tap og átti liðið aldrei séns. Rúnar Sigtryggsson var einnig á línunni. 2024-01-2045 minBesta sætiðBesta sætiðUppgjör eftir Ísland-Þýskaland: Súrsæt tilfinning í kjölfar taps en klárt skref fram á viðAron Guðmundsson, Einar Jónsson, Bjarni Fritzson og Rúnar Sigtryggsson gera upp leik Þýskalands og Íslands í fyrstu umferð milliriðla EM sem lauk með sigri Þjóðverja. 2024-01-181h 01Besta sætiðBesta sætið60 mínútur í helvíti og enn eina ferðina gegn UngverjumÍsland tapaði illa fyrir Ungverjum 33-25 á EM í handbolta í kvöld. Rúnar Kárason og Einar Jónsson mættu og greindu frammistöðu landsliðsins. Sárt tap hjá íslenska liðinu en framundan er samt sem áður milliriðillinn.  2024-01-171h 07Besta sætiðBesta sætiðBesta sætið: Vitlaus skipting bjargaði okkurEinar Jónsson og Bjarni Fritzson mættu í Besta sætið og gerðu upp sigur Íslands á Svartfellingum 31-30. Stálheppnir en mótið galopið.  2024-01-1451 minBesta sætiðBesta sætiðBjörgvin Páll | Ekki bara leikur: Eftir leikÞríleikur Björgvins Páls Gústavssonar landsliðsmarkvarðar um lífið sem leikmaður á stórmóti. 2024-01-1312 minBesta sætiðBesta sætiðUppgjör eftir Ísland-Serbía: Úti að aka í sókninni og heppnir með stigValur Páll Eiríksson, Einar Jónsson, Bjarni Fritzson og Rúnar Sigtryggsson gera upp fyrsta leik Íslands á EM sem lauk með jafntefli við Serbíu. 2024-01-121h 04Besta sætiðBesta sætiðBjörgvin Páll | Ekki bara leikur: LeikdagurÞríleikur Björgvins Páls Gústavssonar landsliðsmarkvarðar um lífið sem leikmaður á stórmóti. 2024-01-1213 minBesta sætiðBesta sætiðBjörgvin Páll | Ekki bara leikur: Fyrir leikÞríleikur Björgvins Páls Gústavssonar landsliðsmarkvarðar um lífið sem leikmaður á stórmóti. 2024-01-1117 minBesta sætiðBesta sætiðUpphitun fyrir EM í handboltaStefán Árni Pálsson, Henry Birgir Gunnarsson og Einar Jónsson spá í spilin fyrir komandi EM sem fer fram í Þýskalandi. 2024-01-0852 min