podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Nordnordursins
Shows
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #61 - Switch 2 útgáfa, Elden Ring Nightreign og Clair Obscur: Expedition 33
Bjarki, Steinar og Sveinn þurrka rykið af hljóðnemunum og ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Meðal annars er rætt um útgáfu nýjustu leikjatölvu Nintendo, Switch 2, og ákveðinn fídus sem virðist ekki virka hér á Íslandi í þeirri tölvu. Bjarki og Sveinn heimsóttu íslenska leikjafyrirtækið Myrkur Games á dögunum og segja frá leiknum Echoes of the End sem er nýr hasar- og ævintýraleikur sem er væntanlegur í sumar. Strákarnir rýna svo í leikina Elden Ring Nightreign, sem er frábrugðinn hinum hefðbundna Elden Ring, og Clair Obscu...
2025-06-21
1h 28
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #60 - Nintendo Switch 2
Sextugi þáttur Leikjavarpsins er helgaður Nintendo Switch 2. Á dögunum hélt Nintendo nokkuð ítarlega kynningu á Switch 2 þar sem farið var yfir öll helstu atriði. Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta og ræða tæknileg atriði, leikjaúrval, nýja möguleika, verð, tollastríð og margt fleira. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
2025-04-08
1h 41
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #59 - Assassin’s Creed Shadows og næsta Xbox leikjatölvan
Í nýjasta þætti Leikjavarpsins fjalla þeir Sveinn, Rósinkrans og Bjarki um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Við fjöllum ítarlega um Assassin's Creed Shadows sem er nýjasti leikurinn í hinni frægu AC-seríu og Sveinn hefur verið að spila undanfarna daga. Þátturinn inniheldur enga spilla! Einnig ræðum við um Lost Records: Bloom & Rage sem Rósinkrans byrjaði nýlega spila að spila og Unnur Sól gagnrýndi á vef Nörd Norðursins. Nýr Death Stranding 2 stikla leit dagsins ljós á dögunum og var hvorki meira né minna en heilar 10 mínútur að lengd! Rýnum í þá stiklu og ræ...
2025-03-18
1h 51
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #58 - Avowed og State of Play
Í þættinum segir Sveinn okkur frá hlutverkaleiknum Avowed sem kom út fyrr í þessum mánuði en hann hefur verið að spila leikinn og deilir sinni skoðun á honum. Einnig förum við yfir allt það helsta frá State of Play kynningunni sem haldin var þann 12. febrúar. Þar voru væntanlegir leikir á PlayStation kynntir, þar á meðal er nýr leikur frá Housemarque (þeim sömu og gerðu Returnal) og endurbætt útgáfa af zombí-leiknum Days Gone. Auk þess ræðum við um Mario Con sem haldið verður í Next Level Gaming í Egilshöll í mars og fleira skemmtilegt. Tónlist:
2025-02-24
1h 27
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #57 - Kingdom Come: Deliverance II og PSN aftengist
Bjarki, Sveinn og Daníel fara yfir það helsta sem stóð upp úr í leikjaheiminum síðastliðnar tvær vikur. Helstu viðfangsefni þáttarins eru fyrstu hughrif á miðaldar-hlutverkaleiknum Kingdom Come: Deliverance II, frestun á næsta Football Manager og PSN vesenið mikla sem varð til þess að fjöldi spilara gat ekki spilað netleiki á PlayStation leikjatölvunni sinni. Auk þess er fjallað um endurútgáfu The Sims og The Sims 2 í tilefni 25 ára afmæli leikjaseríunnar og Civilization VII sem er væntanlegur síðar í þessum mánuði. Takk fyrir að hlusta!
2025-02-10
1h 06
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #56 - Væntanlegir leikir 2025
Leikjvarpið fer yfir allt það helsta sem er væntanlegt á leikjaárinu 2025 - nýr GTA leikur! Mafia! Doom! Hobbita-kósíleikur! og margt margt fleira. Einnig er fjallað um nýjustu fréttir sem tengjast útgáfu næstu leikjatölvu Nintendo: Switch 2. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
2025-01-28
1h 09
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #55 - Leikir ársins 2024 og Switch 2 orðrómar
Leikjavarpið hefur göngu sína aftur eftir jólafrí. Í þessum fyrsta þætti ársins fara þeir Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn og Steinar Logi yfir þá leiki sem stóðu upp úr á árinu. Þar má nefna leiki á borð við Astro Bot, Balatro, Like a Dragon: Infinite Wealth og Silent Hill II. Leikjalistann í heild sinni má finna á heimasíðunni okkar. CES tæknisýningunni í Bandaríkjunum lauk fyrir nokkrum dögum en þar fóru af stað orðrómar um útgáfu Switch 2. Rætt er um þessa orðróma í þættinum og við hverju má búast frá Nintendo. Þetta og fleira...
2025-01-13
1h 15
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #54 – Hápunktar frá Game Awards og Indiana Jones and the Great Circle
Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 54. þætti Leikjavarpsins. Rætt er um hápunkta frá The Game Awards 2024 þar sem farið er yfir hvaða leikir unnu í stóru verðlaunaflokkunum og síðast en ekki síst hvaða nýju leikir voru kynntir á verðlaunahátíðinni, þar má meðal annars nefna nýjan The Witcher leik! Sveinn rýnir í Indiana Jones and the Great Circle sem er nýr Indiana Jones hasar- og ævintýraleikur þar sem þú spilar sem Indiana Jones í fyrstu persónu, hvernig ætli það sé a...
2024-12-16
1h 27
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #53 - The Game Awards og S.T.A.L.K.E.R. 2
Daníel, Sveinn og Bjarki ræða það heitasta úr heimi tölvuleikja í þessum þætti Leikjavarpsins. Við förum yfir þá leiki sem tilnefndir eru til verðlauna á The Game Awards 2024, þar má nefna leiki á borð við Astro Bot, Hellblade II og Final Fantasy VII: Rebirth. Sveinn segir okkur frá því hvernig PlayStation Portal virkar eftir nýja uppfærslu sem opnar fyrir þann möguleika að streyma tölvuleikjum beint í gegnum skýið í stað PlayStation 5. Við ræðum einnig um leikina Flight Simulator 2024 þar sem hægt er að ganga um Skólavörðustíginn, S.T.A.L.K.E.R. 2 frá úkraínska leikjafyrirtækinu...
2024-12-02
1h 18
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #52 - PlayStation 5 Pro og umdeild Xbox auglýsing
Bjarki Þór, Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Stutt er síðan að PlayStation 5 Pro leikjatölvan kom á markað og í þættinum er ítarleg umfjöllun á tölvunni. Við þökkum Sony og Senu fyrir aðgang að tölvunni til rýnis. Nördarnir segja sínar skoðanir á tölvunni eftir prófanir og fara yfir helstu kosti og galla. Strákarnir ræða einnig nýja auglýsingu frá Xbox þar sem lögð er áhersla á að Xbox er ekki bara Xbox, heldur getur Xbox verið nánast hvaða tæki sem er. Að lokum er minns...
2024-11-18
1h 20
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #51 - Black Ops 6 og Dragon Age: The Veilguard
Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er m.a. fjallað um Call of Duty: Black Ops 6 og Dragon Age: The Veilguard. Auk þess er fjallað um tölvuleikina Landnámu, Horizon Zero Dawn Remastered og minnst á tvær nýjar heimildarmyndir sem tengjast tölvuleikjum. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
2024-11-05
1h 02
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #50 - The Legend of Zelda: Echoes of Wisdom og Xbox Partner Preview
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Unnur Sól fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja í fimmtugasta þætti Leikjavarpsins! Í þættinum er kafað í The Legend of Zelda: Echoes of Wisdom og skipst á skoðunum - athugið að umræðan er laus við alla spilla! Einnig er farið yfir valin atriði úr Xbox Partner Preview þar sem Xbox og þeirra samstarfsaðilar kynna væntanlega leiki á Xbox leikjatölvurnar - þar má m.a. nefna Subnautica 2. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0...
2024-10-21
1h 01
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #49 - The Plucky Squire og State of Play
Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Daníel nokkur Rósinkrans ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Daníel gagnrýnir The Plucky Squire þar sem söguhetjan hoppar úr ævintýrabók og lendir í allskyns ævintýrum. Strákarnir skoða hvað var fjallað um á State of Play þar sem Sony kynnir væntanlega leiki fyrir PlayStation leikjatölvurnar - Þar má meðal annars nefna samúræ-leikinn Ghost of Yōtei. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by
2024-10-07
1h 11
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #48 - Astro Bot og PlayStation 5 Pro
Daníel Rósinskrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fjalla um PlayStation 5 Pro sem er væntanleg í verslanir næstkomandi nóvember. Við hverju má búast og hvernig er Pro útgáfan öflugri en hefðbundna PlayStation 5? Tríóið ræðir einnig um einn af betri leikjum ársins, Astro Bot, sem er fyrsti leikurinn fær fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá okkur nördunum. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
2024-09-25
53 min
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #47 - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct
Daníel Rósinskrans og Bjarki Þór fjalla um þrjár stórar leikjakynningar - Summer Game Fest, Xbox Games Showcase og Nintendo Direct. Til umfjöllunar eru leikir á borð við Starfield, Super Mario Bros. Wonder, Mortal Kombat 1 og fjöldi annara leikja sem margir hverjir eru væntanlegir á komandi mánuðum. Upptaka frá 4. júlí 2023. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
2023-07-19
1h 40
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #46 - PlayStation Showcase 2023 og The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom
Sveinn, Daníel og Bjarki fara yfir helstu leikina sem kynntir voru á PlayStation Showcase 2023 sýningunni. Undanfarna daga hafa strákarnir svo verið að spila The Legend of Zelda: Tears of the Kingdom og í síðari hluta þáttar segja þeir frá sínum fyrstu hughrifum á leiknum (umræður án söguspilla). Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
2023-06-01
1h 31
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #45 - Týndi þátturinn
Ofurdúóið Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn tækla allt það helsta úr heimi tölvuleikja! Þar á meðal Xbox Developer_Direct, Hi-Fi Rush, FM 2023 fyrir PS5, DualSense Edge, Live Service leikina og síðast en ekki síst Forspoken. Athugið. Þátturinn var tekinn upp snemma í febrúar en upptakan fór á flakk og týndist. Upptakan fannst loks. Afleiðingar fylgdu í kjölfarið. Tæknimaður okkar var rekinn, ráðinn aftur, faðmaður og honum fyrirgefið. Mynd: Midjourney Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.c...
2023-05-30
1h 28
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #44 - Best of 2022 í tölvuleikjum
Þeir eru mættir aftur til leiks eftir vetrardvala! Daníel Rósinkrans, Sveinn og Bjarki fara saman yfir það sem stóð upp úr af nýliðnu leikjaári og gefa hlustendum smjörþefinn af leikjaárinu 2023. Strákarnir velja topp 3 bestu leiki ársins 2022 af sínu mati, ræða God of War: Ragnarök og fleira og fleira. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
2023-01-19
1h 47
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #43 - Stray, PowerWash Simulator og hinsegin í tölvuleikjum
Í þættinum er ofurkrúttlegi kisuleikurinn Stray tekinn fyrir en leikurinn hefur náð að heilla marga spilara upp úr skónum og hefur auk þess verið nokkuð áberandi á netinu og samfélagsmiðlum. Fyrst þarf þó að klæða sig í gulu gúmmíhanskana þar sem háþrýstiþvottur í PowerWash Simulator verður tekinn fyrir og enginn skítur skilinn eftir! Farið er yfir reynslusögur af því að steyma leikjum beint í gegnum PlayStation-leikjatölvuna og rætt um fréttir sem tengjast PlayStation 5, PSVR2 og Quest 2 sýndarveruleikagleraugunum. Í lok þáttar er fjallað um bílaleikinn Hot Wheels Unleashed sem býður spilurum meðal annars upp á það að búa til...
2022-08-09
1h 44
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #42 - Elden Ring, Grow og Ísland í tölvuleikjum
Bjarki, Daníel og Sveinn spjalla um sjóðheitar tölvuleikjafréttir ásamt að taka fyrir Grow: Song of the Evertree og stórleikinn Elden Ring. Yfirlit þáttar: Í spilun Ísland í tölvuleikjum Útgáfudagur God of War Skull and Bones kynning og útgáfudagur Forspoken seinkað Ekkert RDR eða GTA 4 Remake Gollum stiklan Grow: Song of the Evertree leikjarýni Eldheitar Elden Ring umræður Myndir úr Elden Ring (4) og Grow: Song of the Evertree (2) Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0...
2022-07-13
2h 00
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #41 - TMNT: Shredder’s Revenge, Nintendo Direct og Kirby
Sveinn, Daníel og Bjarki fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja! Farið er yfir hvað kom fram á nýjustu Nintendo Direct Mini kynningunni, spjalla um leikina Teenage Mutant Ninja Turtles: Shredder's Revenge, Horizon: Forbidden West og Kirby and the Forgotten Land, ræða kosti og galla nýjustu PlayStation áskriftarleiðanna og fleira. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
2022-07-06
1h 38
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #40 - E3-farinn Bjössi mætir í spjall
Bjössi úr Gamestöðinni mætir í Leikjavarpið og ræðir E3 ferðina sína árið 2018. Einnig segir Sveinn frá ferðalagi sínu þegar hann heimsótti Gamescom í Köln árið 2012. Mynd: Myndblanda - Bjössi, Sveinn og Daníel og Wikimedia Commons (Dronepicr) Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 4.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
2022-06-24
1h 10
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #39 - Summer Game Fest og Xbox & Bethesda Games Showcase
Sveinn Aðalsteinn og Daníel Rósinkrans fjalla um Summer Game Fest og Xbox & Bethesda Games Showcase leikjakynningarnar sem fóru fram fyrir stuttu. Á kynningunum var sýnt úr og fjallað um væntanlega leiki sem flestir eru væntanlegir á þessu eða næsta ári. Þar á meðal eru leikirnir Redfall, The Callisto Protocol, High on Life og fjöldi annara leikja. Ef þú vilt vita hvað er framundan í leikjaheiminum er þessi þáttur algjört möst! Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2022-06-15
1h 29
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #38 - State of Play, Diablo Immortal og Sonic Frontiers
Tölvuleikjasérfræðingarnir Daníel Rósinkrans og Sveinn Aðalsteinn hjá Nörd Norðursins fjalla um það allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Aðalefni þáttarins er State of Play leikjakynningin hjá Sony en einnig er fjallað um ýmislegt fleira eins og Diablo Immortal, Star Wars Jedi: Survivor, Sonic Frontiers og hvað er framundan í sumar. Tónlist: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2022-06-07
1h 01
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #37 - Væntanlegt árið 2022, PSVR 2 og Inscryption
Daníel Rósinkrans, Bjarki, Sveinn og hinn Daníel ræða allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þrítugasta og sjöunda þætti Leikjavarpsins, sem er jafnframt fyrsti Leikjavarpsþáttur ársins 2022. Stóra umræðuefni þáttarins eru væntanlegir leikir á komandi ári en auk þess er fjallað um PSVR 2, E3 2022 og tölvuleikina Inscryption, Death's Door og Halo Infinite. Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Daníel og Sveinn leggja lokadóm á Halo Infinite Inscryption, fyrstu hughrif Sony kynnir PSVR 2 Death's Door leikjarýni E3 2022 verður á netinu Væntanlegir tölvuleikir árið 2022 Leikjaklúbburinn Tónlist: "Overworld" Kevin...
2022-01-11
1h 50
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #36 - Leikir ársins 2021
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fjalla um það helsta úr heimi tölvuleikja og gera upp tölvuleikjaárið 2021. Farið er yfir hvaða leikir unnu til verðlauna á The Game Award og fjallað um ný sýnishorn úr leikjum sem sýnd voru á hátíðinni. Strákarnir fara yfir þá fimm leiki sem stóðu upp úr á árinu að þeirra mati og svo er Tölvuleikjaklúbburinn á sínum stað. Allt þetta og fleira til í þrítugasta og sjötta þætti Leikjvarpsins! Efni þáttar: Í spilun Chorus leikjaumfjöllun Halo Infinite Allt það helsta frá The Game Awards Hellblade 2 sýni...
2021-12-13
2h 04
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #35 - Viðtal við Ara Þór hjá Epic Games
Í þrítugasta og fimmta þætti Leikjavarpsins spjalla þeir Bjarki Þór og Daníel Rósinkrans við Ara Þór sem starfar sem boðberi (evangelist) hjá Epic Games. Í þættinum fer Ari yfir feril sinn í leikjaiðnaðinum en hann hefur meðal annars komið að gerð Angry Birds tölvuleiks og Returnal sem var gefin út fyrir PlayStation 5 leikjatölvuna. Í þættinum er einnig fjallað um Unreal leikjavélina, upphaf HRingsins, PS5 prótótýpuna, íslenska tölvuleikjafyrirtækið Gogogic (sem gaf meðal annars út leikinn Vikings of Thule) tölvuleikjabransann og margt fleira. Tónlist (intro): Voxel Revolution by Kevi...
2021-12-07
1h 39
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #34 - Cyberpunk 2077, Just Dance 2022 og The Game Awards tilnefningar
Efni þáttar: Leikir í spilun - Hvað hafa strákarnir verið að spila frá því seinast? The Game Awards tilnefningar - Daníel Rósinkrans leiðir umræðuna og skoðar hvaða leikir eru tilefndir í ár. Cyberpunk 2077 - Ár er liðið frá útgáfu, hefur eitthvað breyst? Steinar Logi segir frá því hvernig leikurinn er að keyra á PS5 í dag. Hvaða leikir voru keyptir á Black Friday? - Eru veskin nokkuð orðin tóm?! Kena: Bridge of Spirits - Daníel Rósinkrans heldur áfram að gagnrýna þennan fallega leik. Just Dance 2022 - Bjarki fer í dansskóna og rýnir í nýjast Just Dance leikinn. Battlef...
2021-11-29
1h 40
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #33 - Staðan á PS5 og Xbox Series X ári eftir útgáfu
Strákarnir í Leikjavarpinu fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja, þar á meðal nýju Halo Infinite og Elden Ring leikjakynningarnar. Þrír tölvuleikir eru teknir fyrir í þættinum; adrenelínleikurinn Riders Republic, þægilega rólegi indíleikurinn Unpacking og ævintýraleikurinn Kena: Bridge of Spirits. Ár er liðið frá útgáfu PlayStation 5 og Xbox Series X leikjatölvunum og strákarnir yfir hvað hefur staðið upp úr á liðnu ári, farið yfir helstu kosti og galla leikjatölvanna. Fjallað er um notendaviðmót, kælingu, hvort tölvurnar séu hljóðlátar eða háværar, hraða, geymslupláss, gæði, le...
2021-11-15
1h 55
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #32 - Guardians of the Galaxy, State of Play og Nintendo Expansion Pack
Þrítugasti og annar þátturinn af Leikjavarpinu, hlaðvarpi Nörd Norðursins, er nú kominn á allar helstu hlaðvarpsveitur! Að þessu sinni eru það Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór sem eru mættir til leiks til að ræða allt það helst úr heimi tölvuleikja. Það er úr ýmsu að taka og má þar meðal annars nefna nýjar fréttir varðandi útgáfu Cyberpunk 2077 og The Witcher, ný stikla úr Uncharted kvikmyndinni, Nintendo Expansion Pack-ið skoðað og Sveinn rýnir í Guardians of the Galaxy. Allt þetta og margt fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins!
2021-11-01
1h 40
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #31 - Nintendo fréttir, Metroid Dread og SSD diskar í PS5
Daníel Rósinkrans, Sveinn og Bjössi hjá Gamestöðinni eru mættir til að fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja. Í þættinum er ákveðið Nintendo þema þar sem fjallað er um væntanlega Animal Crossing viðbót, Nintendo Online viðbótaráskrift sem gerir áskrifendum kleift að spila gamla N64 og Sega Genesis leiki á Switch og að lokum rýnir Rósinkrans í Metroid Dread sem margir Nintendo-spilarar hafa beðið spenntir eftir. Auk þess fjalla þremenningarnir um Gotham Knights, Suicide Squad og Back 4 Blood sem kom út í seinustu viku. Tölvuleiknum var streymt á Twitch-rás Nörd N...
2021-10-18
1h 24
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #30 - Far Cry 6, FIFA 22 og Battlefield 2042 Beta
Tölvuleikjanördarnir Bjarki Þór, Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn og Daníel Páll fara um víðan völl í þrítugasta þætti Leikjavarpsins. Steinar segir frá Alan Wake Remastered sem var gefinn út í byrjun mánaðar, Sveinn gagnrýnir Far Cry 6 en hann hefur spilað allar Far Cry leikina og þekkir seríuna því mjög vel, Bjarki skellir sér í takkaskóna og tæklar FIFA 22 og Hypermotion-tæknina sem EA notaði við gerð leiksins, Daníel heldur áfram með Leikjaklúbbinn og kynnir næsta leik sem klúbburinn ætlar að spila. Allt þetta og margt fleira í nýjasta þætti Leikjav...
2021-10-11
1h 53
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #29 - Deathloop, Nintendo Direct og NBA2K22
Tölvuleikjanördarnir Sveinn Aðalsteinn, Steinar Logi, Bjarki Þór og Daníel Páll fara yfir allt það helsta úr heimi tölvuleikja í nýjasta þætti Leikjavarpsins, hlaðvarpsþætti Nörd Norðursins. Í þættinum rýnir Sveinn í fyrstu persónu skotleikinn Deathloop sem kom í verslanir fyrr í þessum mánuði. Leikurinn hefur hlotið lof gagnrýnenda og gefa leikjasíðurnar IGN og Gamespot leiknum 10 af 10 mögulegum í einkunn. Nýjasta Nintendo Direct kynningin er krufin þar sem Nintendo kynnti nýtt efni úr væntanlegri Mario kvikmynd, sýndi úr Bayonetta 3 og margt fleira. Steinar fræðir hlustendur um körfuboltaleikinn NBA2K22 þar se...
2021-09-27
1h 54
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #28 - PlayStation Showcase 2021, Twelve Minutes og Daði Freyr
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn, Steinar Logi og Bjarki Þór fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikjanna í nýjasta þætti Leikjvarpsins. Áhersla er lögð á PlayStation Showcase 2021 í þættinum en auk þess gagnrýnir Bjarki Twelve Minutes, fjallað er um Xbox Game Pass tónleikana með Daða Frey og nýjustu fréttirnar. Efni þáttar: Í spilun Epic Games vs Apple Twelve Minutes Horizon Forbidden West útgáfur Daði Freyr með Xbox Game Pass tónleika Heimsmeistaramótið í League of Legends haldið á Íslandi PlayStation Showcase 2021 Byrjunar- og endastef: "Overworld" Kevin MacLeo...
2021-09-12
1h 39
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #27 - Gamescom, Baldo og Arena heimsókn
Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Daníel Páll ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þessum tuttagasta og sjöunda þætti Leikjavarpsins, sem er sérstaklega tileinkaður Gamescom 2021! Auk Gamescom er fjallað um heimsókn Nörd Norðursins til Arena, þjóðarleikvangs rafíþrótta á Íslandi, Ghost of Tsushima Director's Cut, Baldo, gamla góða Quake og fleira. Efni þáttar: Leikir í spilun Xbox kynningin á Gamescom Arena sneak peak Gamescom (Saints Row, Halo Infinite, CoD Vanguard o.fl.) Psychonauts 2 Baldo: The Guardian Owls Ghost of Tsushima Director's Cut Twelve Minutes Quake uppf...
2021-08-30
1h 41
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #26 - Ratchet & Clank, Steam Deck og Activision Blizzard kæran
Tölvuleikjasérfræðingarnir Steinar, Daníel, Sveinn og Bjarki ræða um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í þessum 26. þætti Leikjavarpsins. Efni þáttar: Hvað er verið að spila? Ratchet & Clank: Rift Apart gagnrýni The Witcher: Monster Slayer Valve kynnir Steam Deck Nintendo kynnir Switch OLED Sveinn kláraði Demon's Souls á PS5! The Legend Of Zelda: Skyward Sword HD umfjöllun Activision Blizzard sakað um kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferðislega áreitni Hvað er spennandi framundan árið 2021? Byrjunar- og endastef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0...
2021-08-13
1h 47
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #25 - Allt það helsta frá E3 2021
Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir allt það helsta frá E3 tölvuleikjaráðstefnunni sem haldin var á netinu fyrr í júnímánuði. Efni þáttar: Resident Evil Village Returnal Ratchet & Clank: Rift Apart Sony skrópar á E3, aftur! Ubisoft E3 kynningin Samstarf Myrkur Games og Prime Matter (Koch Media Group) Nintendo E3 kynningin Microsoft og Bethesda með sameiginlega kynningu Byrjunar- og endastef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2021-06-28
1h 46
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #24 - Afmæli, martraðir og pöddusnakk
Þríeykið, Sveinn, Daníel og Bjarki, halda upp á 10 ára afmæli Nörd Norðursins og spjalla um leikjaárið 2011 og hvernig tölvuleikir og leikjamenningin hefur þróast síðan þá. Efni þáttar: Sony fréttir (Last of Us og Days Gone 2) Little Nightmares II Outriders Nörd Norðursins 10 ára! Leikjaárið 2011 Bugnax Maquette Oddworld Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2021-04-18
1h 50
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #23 - State of Play, Nintendo Direct og PSVR 2
Bjarki lávarður, Sveinn og Daníel fara yfir það helsta úr heimi tölvuleikja. Nintendo hélt Nintendo Direct kynningu þann 17. febrúar þar sem fyrirtækið fór yfir það sem framundan er fyrir Nintendo Switch. Sveinn fjallar um nýtt System Shock sýnishorn sem var birt á dögunum. Sony héldu State of Play kynningu þar sem farið var yfir það sem væntanlegt er á PlayStation 4 og 5. Fyrirtækið hefur einnig tilkynnt að önnur útgáfa af PSVR sýndarveruleikagræjum er væntanleg fyrir PS5. Um þetta og margt fleira er fjallað um í 23. þætti Leikjavarpsins! Efni...
2021-03-02
1h 34
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #22 - Hitman 3, Super Mario 3D World og TOHU
Sveinn, Bjarki og Daníel fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja í 22. þætti Leikjavarpsins! EFNI ÞÁTTAR: Resident Evil 8 Xbox Game Pass Vs. Xbox Gold Mass Effect Legendary Edition PS+ áskriftir TOHU Hitman 3 PS5 selst vel Ratchet & Clank: Rift Apart útgáfudagur The Medium Ring Fit Adventure #RingFitFebrúar Super Mario 3D World á Switch The Last of Us HBO leikaraval Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2021-02-15
2h 01
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #21 – The Legend of Zelda 35 ára
Oddur Bauer og Gylfi Már eru gestir Daníels Rósinkrans í þessum sérstaka The Legend of Zelda þætti Leikjavarpsins. Liðin eru 35 ár frá útgáfu fyrsta Zelda tölvuleiksins en leikurinn var gefinn út í Japan árið 1986 samhliða Famicom leikjatölvunni. Í þættinum fara þeir Daníel, Oddur og Gylfi yfir sögu The Legend of Zelda leikjanna, ræða um tónlistina, framtíð seríunnar og margt fleira. Efni þáttarins: Saga The Legend of Zelda leikjanna, Majora’s Mask Vs. Ocarina of Time, Tónlist úr Zelda, 2D Zelda Vs. 3D Zelda, Uppáhalds Nintendo leikjatölvan, ...
2021-02-13
1h 48
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #20 - Væntanlegir tölvuleikir 2021
Daníel, Sveinn og Bjarki fara yfir það helsta sem leikjaárið 2021 hefur upp á að bjóða. Má þar nefna titla á borð við Ratchet and Clank: Rift Apart, nýjan Resident Evil leik, The Medium, Far Cry 6, Little Nightmares II, Halo Infinite, Returnal og fleiri leiki. Ætli mörgum leikjum verði frestað til ársins 2022 vegna Covid? Ræðum þetta og fleira í nýjasta þætti Leikjavarpsins! Mynd: Halo Infinite, Returnal og Far Cry 6. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2021-01-18
1h 23
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #19 - Leikjaárið 2020 gert upp
Bjarki, Sveinn og Daníel gera upp leikjaárið 2020. Farið er yfir það helsta frá Sony, Microsoft, Nintendo og öðrum tölvuleikjafyrirtækjum. Nýjar leikjatölvur komu á markað á árinu og fjölmargir flottir tölvuleikir. Í lok þáttar er tekinn saman topp fimm listi Nörd Norðursins fyrir tölvuleikjaárið 2020. Fylgist með - í næsta þætti ætlum við að skoða hvað árið 2021 mun bjóða upp á! Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2021-01-04
1h 27
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #18 - Sæberpönk, grísk goðafræði og Xbox Series X
Í áttjánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Daníel, Sveinn og Bjarki hjá Nörd Norðursins um það helsta úr heimi tölvuleikja. Rennum stuttlega yfir það helsta úr The Game Awards 2020 tölvuleikjaverðlaununum. Bjarki spilaði fyrsta kaflann í Tell Me Why þar sem sterk trans persóna fer með aðalhlutverk og segir aðeins frá sinni upplifun á leiknum. Sveinn er búinn að vera að prufukeyra eina af fáum Xbox Series X á landinu undanfarnar vikur og segir frá helstu kostum og göllum og ber saman við PlayStation 5. Daníel og Sveinn spiluðu Immortals: Fenyx Rising og segja þeir f...
2020-12-21
1h 35
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #17 - Víkingar, köngulær og PS5
Í 17. þætti Leikjavarpsins fjöllum við um Hades, Assassin's Creed: Valhalla, Watch Dogs: Legion, og PS5 leikina Spider-Man: Miles Morales og Sackboy: A Big Adventure. Mynd: Assassin's Creed: Valhalla og Sackboy: A Big Adventure Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2020-11-18
1h 54
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #16 - Spiritfarer, Among Us og Star Wars Squadrons
Í 16. þætti Leikjavarpsins fjöllum við um tölvuleikinn Spiritfarer, Among Us, Star Wars Squadrons, gamla og (mis)góða leiki á YouTube-rásinni okkar, kaup Microsoft á ZeniMax media, tölvuleiki, leikjafréttir og fleira. Mynd: Spiritfarer og Among Us Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2020-10-16
1h 22
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #15 - Næsta kynslóð leikjatölva, páfaát og geislasverð
Fimmtándi þáttur Leikjavarpsins er tileinkaður Xbox Series X/S og PlayStation 5 og ræða þeir Bjarki Þór, Sveinn Aðalsteinn og Daníel Rósinkrans um verð, væntingar og útgáfu en leikjatölvurnar eru væntanlegar í verslanir í nóvember á þessu ári. Sveinn segir frá hinum syndsamlega heimi sem er að finna í Crusader Kings 3 og Bjarki tekur upp geislasverð í sýndaheimi og fjallar um Vader Immortal. Þess má geta að þessi þáttur var tekinn upp í beinu streymi sem sýnt var á Facebook Live. Efni þáttarins: • Xbox Series S og X • Crusader Kings 3 • Vader Immortal • PlayStation 5 Mynd: Xbox Series S, PlayStation 5, Vader Immortal og Crusad...
2020-09-21
1h 37
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #14 - The Avengers, Mortal Shell og Super Mario pakki
Í þessum fjórtánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Daníel Rósinkrans, Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór um það helsta úr heimi tölvuleikja. Efni þáttarins: • The Avengers tölvuleikurinn • LEGO Super Mario • Call of Duty Black Ops Cold War • Uppærslur milli leikjatölvukynslóða • Mortal Shell • Super Mario 3D Mynd: LEGO Super Mario Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2020-09-09
1h 44
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #13 - Ghost of Tsushima, Paper Mario og Fall Guys
Í þessum þrettánda þætti Leikjavarpsins ræða þeir Steinar Logi, Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór og Daníel Rósinkrans um það helsta úr heimi tölvuleikja. Efni þáttarins: • Xbox Game Show • Paper Mario: The Origami King • PS4 State of Play • Fall Guys • Ghost of Tsushima Mynd: Ghost of Tsushima, Fall Guys og Paper Mario (myndblöndun í boði Bjarka) Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2020-08-10
1h 31
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #12 - The Last of Us Part II spilliþáttur
Í þessum sérstaka The Last of Us Part II spoiler-þætti fjalla þeir Sveinn, Bjarki og Daníel um hvernig leikurinn, og þá fyrst og fremst söguþráður leiksins, fór í þá eftir að hafa spilað leikinn til enda. Athugið að þátturinn inniheldur spilla (spoilers) úr The Last of Us Part II. Ef þú hefur ekki klárað leikinn og vilt ekki láta spilla sögu leiksins fyrir þér skaltu stoppa hér, klára leikinn og hlusta svo! Tónlist í byrjun: Virtutes Instrumenti by Kevin MacLeod Link: https://incompetech.filmmusic.io/song/4590-virtutes-instrumenti License: http://creativecommons.org/licenses/by/4.0/
2020-07-11
1h 03
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #11 - PlayStation 5 og The Last of Us Part II
Daníel, Sveinn og Bjarki ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Efni þáttarins: • PlayStation 5 (tölvan, leikir, verð o.fl.) • Trivia Royale • Cyberpunk 2077 • E3 dagskráin • The Last of Us Part II (spoiler free umræða) Mynd: The Last of Us II og PlayStation 5 leikjatölvan (myndblöndun í boði Bjarka) Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2020-07-06
1h 20
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #10 - Summer Game Fest, Unreal Engine V og FFVII Remake samantekt
Bjarki, Daníel og Sveinn ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja. Efni þáttarins: • Xbox Series X kynning, • Summer Game Fest sumarhátíðin, • Unreal Engine V • Tony Hawk Proskater 1&2 endurgerð, • EA framleiðir fleiri Switch leiki, • Summer Game Fest dagskráin, • Paper Mario: The Origami King, • Ghost of Tsushima, • GTA V frír á Epic Store, • Final Fantasy 7 Remake samantekt. Mynd: Tæknidemó Unreal Engine V (2020) Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2020-05-20
1h 31
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #9 - Fortnite tónleikar, tölvuþrjótar herja á Nintendo og AC: Valhalla kynntur
Í níunda þætti Leikjavarpsins ræða Sveinn og Daníel meðal annars um stöðu Stadia frá Google, nýju viðbótina fyrir Fallout 76 og lekann sem herti á The Last of Us Part 2. Að sjálfsögðu spilli-frír þáttur! Efni þáttarins: 🎶 Fortnite tónleikar, 🌀 Stadia Connect viðburður, 🤖 Tölvuþrjótar herja á Nintendo, 🌄 Ný viðbót fyrir Fallout 76, 🎮 Xbox Series X kynning þann 7. maí, ⚔️ Assassin’s Creed: Valhalla kynntur, 🏯 The Last of Us Part II og Ghost of Tsushima fá nýja útgáfudaga & 🧟♂️ Efni úr The Last of Us Part II lekið á netið. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed un...
2020-05-07
1h 10
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #8 - FFVII og RES3 Remake, PS5 fjarstýringin og Midgard 2020 aflýst
Daníel, Bjarki og Sveinn fjalla um allt það helsta úr heimi tölvuleikja! Það er einskonar remake-þema þessa dagana í Leikjavarpinu. Strákarnir spiluðu allir Final Fantasy VII Remake sem margir FF aðdáendur hafa beðið lengi eftir og segja sína skoðun á leiknum. Sveinn spilaði zombíleikinn Resident Evil 3 Remake og fjallar um hann. Einnig er fleira til umræðu eins og útlitið á nýju PS5 fjarstýringunni, Crysis Remake, Midgard 2020 og fleira. Efnisyfirlit þáttarins: * The Last of Us Part II seinkar á ný, * Final Fantasy 7 Remake, * Fyrstu myndir af PlayStation 5 fjarstýringunni, * Animal Crossing framhald * Twitch Stream...
2020-04-20
1h 28
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #7 - Doom Eternal, Animal Crossing, PS5 og indíleikir
Sveinn, Daníel og Bjarki fjalla um það helsta í heimi tölvuleikja. Sveinn baðar sig í blóðpollum Doom Eternal og segir okkur frá sinni upplifun. Daníel skellti sér í Animal Crossing og er orðinn stórskuldugur eftir stutta spilun. Bjarki segir frá indíleikjunum Mosaic og Spirit of the North sem sækir innblástur til Íslands. Efnisyfirlit þáttarins: * Ný íslensk eSports-sjónvarpsstöð kynnt til sögunnar, * PlayStation 5 kynningin, * Nintendo Direct Mini, * Doom Eternal, * Mosiac, * Spirit of the North, * Half Life: Alyx, * Animal Crossing, * Væntanlegir leikir.
2020-03-30
1h 34
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #6 - Heimsfaraldrar, Dreams og Final Fantasy VII
Bjarki, Daníel og Sveinn fjalla um áhrif COVID 19 á tölvuleikjaviðburði ársins en EVE Fanfest og GDC ráðstefnunum hefur meðal annars verið aflýst vegna veirunnar. Einnig fjalla þeir drengir um það sem vitað er um næstu kynslóð leikjatölva og taka fyrir tölvuleikina Plague Inc, A Plague Tale, Dreams og Final Fantasy VII Remake demóið. Efni þáttarins: • Áhrif COVID-19 á leikjaheiminn • EVE Fanfest og GDC 2020 aflýst • Staðan á E3 2020 • Plague Inc. nær aftur vinsældum • A Plague Tale umfjöllun • Dreams umfjöllun og rýni • Final Fantasy 7 Remake demo • Xbox Series X Specs • Cyberpunk 2077 frí uppfærsla á Ser...
2020-03-16
1h 24
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #5 - Væntanlegir leikir 2020 & bestu leikir síðasta áratugar
Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór fara yfir það sem er væntanlegt á leikjaárinu 2020: Cyperpunk 2077, The Last of Us Part II, Final Fantasy VII Remake og fleira. Einnig velja þeir drengir svo sína topp þrjá tölvuleiki seinasta ártugs, 2010-2019. Sjóðheit tilkynning í lokin: Sony tilkynnir að fyrirtæki mun EKKI taka þátt í E3 á þessu ári! Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2020-01-14
1h 37
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #4 - Leikir ársins 2019
Daníel Rósinkrans, Bjarki Þór og Sveinn Aðalsteinn fara yfir leikjaárið sem er að líða með því að rýna í niðurstöður The Game Awards verðlaunanna og lista upp sína uppáhalds leiki fyrir árið 2019. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2019-12-17
1h 21
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #3 - 1. desember 2019 - Star Wars Jedi: Fallen Order
ÞRIÐJI ÞÁTTUR: Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fjalla um Star Wars Jedi: Fallen Order, væntanlega Half-Life leik og The Game Awards.
2019-12-02
1h 09
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #2 - 19. nóvember 2019 - Death Stranding
ANNAR ÞÁTTUR: Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og Bjarki Þór fjalla um Death Stranding frá Kojima Production. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2019-11-20
58 min
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Kind fyrir Korn 2. þáttur - Viðtal við Óskar Árnason, spilafréttir og íslensk spil
Kind fyrir Korn er hlaðvarp um allt sem tengist borðspilum, fréttir, umfjallanir, viðtöl eða hvað sem mér dettur í hug. Í öðrum þætti tek ég viðtal við Óskar Árnason sem skellti sér á Essen spilaráðstefnuna, fer yfir nokkrar spilafréttir og ræði um útgáfu íslenskra spila. Hljóð og tónlist: http://incompetech.com/music/ (Deadly Roullette) og http://www.sherlockology.com/downloads (Sherlock Holmes), https://freesound.org/people/mansardian/ (News Jingle), Dances and Dames og Lobby time.
2017-12-09
42 min
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Kind fyrir Korn 1. þáttur - Essen, Pandemic Legacy S2 og Charterstone
Kind fyrir Korn er hlaðvarp um allt sem tengist borðspilum, fréttir, umfjallanir, viðtöl eða hvað sem mér dettur í hug. Í fyrsta þættinum er fjallað um Essen, Pandemic Legacy S2 og Charterstone
2017-10-23
19 min
Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins
Leikjavarpið #1 - 25. júní 2017 - E3 2017
FYRSTI ÞÁTTUR: Bjarki Þór, Daníel Rósinkrans og Steinar Logi ásamt Sveini Aðalsteini frá PSX.is ræða um það besta og versta frá E3 tölvuleikjasýningunni þetta árið, en þar kynntu leikjarisarnir það sem framundan er í leikjaheiminum. Við biðjumst velvirðingar á hljóðtruflunum. Við erum búnir að senda Ant Man í hljóðrásirnar til að kanna málið. Byrjunarstef: "Overworld" Kevin MacLeod (incompetech.com) Licensed under Creative Commons: By Attribution 3.0 License http://creativecommons.org/licenses/by/3.0/
2017-06-25
1h 12