podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Samstodin@samstodin.is (Anita Da Silva Bjarnadottir)
Shows
Rauður Raunveruleiki
„Woke“ Al-Kaída, áróður, heimsvaldastefna, þjóðarmorð.
Karl Héðinn og Anita Da Silva ræða við Tjörva Schiöth um atburðina í Sýrlandi, hvítþvott Vesturlanda á þjóðarmorði, hryðjuverkum og heimsvaldastefnu. Hvað er að gerast í Sýrlandi og hvað gætu þessir atburðir þýtt fyrir framtíð Palestínu og Íran? Mun Ísrael taka stóran hluta Sýrlands og komast upp með það? Af hverju er CNN og aðrir stórir bandarískir fjölmiðlar að hvítþvo fyrrverandi foringja ISIS og Al-Kaída?
2024-12-15
51 min
Rauður Raunveruleiki
Kosningar gerðar upp, framhald baráttunnar.
Rætt um niðurstöður kosninganna, stöðu Sósíalistaflokksins og framtíð baráttunnar fyrir réttlæti og mannúð á Íslandi og í heiminum. Anita Da Silva Bjarnadóttir, Karl Héðinn Kristjánsson, Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem Sesar A og Trausti Breiðfjörð Magnússon munu taka stöðuna.
2024-12-06
44 min
Samstöðin
Rauður raunveruleiki - Kosningar gerðar upp, framhald baráttunnar.
Rætt um niðurstöður kosninganna, stöðu Sósíalistaflokksins og framtíð baráttunnar fyrir réttlæti og mannúð á Íslandi og í heiminum. Anita Da Silva Bjarnadóttir, Karl Héðinn Kristjánsson, Eyjólfur B. Eyvindarson, betur þekktur sem Sesar A og Trausti Breiðfjörð Magnússon munu taka stöðuna.
2024-12-06
44 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Fangelsin, öryrkjar og velferð. Sósíalistar ræða málin.
Karl Héðinn og Anita Da Silva tala við tvo félaga sína í Sósíalistaflokknum, þær Guðrúnu Ósk Þórudóttur og Maríu Pétursdóttur. Við ræddum um stöðu fangelsanna, öryrkja og almennrar velferðar og um alvarlega stöðu og þróun í þessum málaflokkum. Kíkið á stefnu Sósíalistaflokksins í velferðarmálum og ríkisfjármálum á Sosialistaflokkurinn.is
2024-11-23
49 min
Samstöðin
Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 40
Föstudagurinn 4. október Vikuskammtur: Vika 40 Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Anita Da Silva Bjarnadóttir öryrki og ungur Roði, Grímur Hákonarson leikstjóri, Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Margrét Manda Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af hrörnun ríkisstjórnar, innanflokksátökum, vaxandi stríðsógn og háum vöxtum.
2024-10-04
1h 16
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Lögregluofbeldi mótmælt / Pétur Eggerz Pétursson
Pétur Eggerz Pétursson hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum í tengslum við baráttuna fyrir frjálsri Palestínu, um ofbeldi lögreglunnar gagnvart mótmælendum í Skuggasundi og víðar. Anita Da Silva og Karl Héðinn tala við Pétur um mótmælin, stjórnmálin og nauðsyn þess að sporna við lögregluofbeldi og spillingu í Rauðum raunveruleika í kvöld klukkan 19:00
2024-09-07
1h 17
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Ingólfur Gíslason & Sæþór Benjamín Randalsson
Antia Da Silva og Karl Héðinn fá til sín góða gesti í spjall um heimsmálin og efnahagsmál. Ingólfur Gíslason er kennari sem hefur verið mjög virkur í hreyfingunni fyrir frjálsri Palestínu. Sæþór Benjamín Randallsson situr í stjórn Eflingar og er ötull baráttumaður fyrir félagslegu réttlæti.
2024-08-26
1h 13
Rauður Raunveruleiki
Barnasáttmálinn, siðrof og barátta
Í þættinum í kvöld koma til okkar þau Askur Hrafn Hannesson og Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir. Kristbjörg er meðlimur baráttusamtakana No Borders og hefur verið í fremstu víglínu við að reyna að stöðva brottvísun Yazan, Palestínska barnsins með hættulegan hrörnunarsjúkdóm. Askur er sömuleiðis virkur í baráttunni fyrir mannúð og réttlæti í málefnum fólks á flótta, Palestínu og mannréttindum. Í sumar er hann í iðnaðar- og bændastörfum. Anita Da Silva og Karl Héðinn ræða við þau Ask og Kristbjörgu um það siðrof sem mætir okkur og um baráttu
2024-07-13
1h 01
Rauður Raunveruleiki
Palestína, mótmæli, ofbeldi lögreglunnar og forsetakosningar
Gestir þáttarins eru Sanna Magdalenda Mörtudóttir, Magga Stína, Ægir Máni Bjarnason og Stefán Örn Snæbjörnsson. Þátturinn er í umsjón Anitu Da Silva Bjarnadóttur og Karl Héðins Kristjánssonar
2024-06-03
40 min
Rauður Raunveruleiki
Red Reality - Gaza 2024: A Catastrophic Man Made Disaster - Dr. Mads Gilbert
Rauður raunveruleiki - 28. maí Red Reality - Gaza 2024: A man made disaster - Dr. Mads Gilbert Dr. Mads Gilbert er norskur læknir sem hefur látið sig málefni Palestínu varða í langan tíma. Við ræddum við Mads um hryllinginn á Gasa, um styrk mannkynsins og nauðsyn þess að við berjumst fyrir því sem er rétt, fallegt og gott. Það er enginn frjáls heimur án frjálsrar Palestínu. Við viljum þakka Félaginu Ísland-Palestína fyrir að bjóða honum hingað. Fyrirlestur Mads í Háskólabíói í gær var átakanlegur en veitti líka innblástur. Við vonum að viðtali...
2024-05-28
1h 17
Samstöðin
Rauður raunveruleiki - Leigjendasamtökin, húsnæðiskerfi braskara og baráttan fyrir réttlæti
Guðmundur Hrafn Arngrímsson er formaður Leigjendasamtakanna. Anita Da Silva Bjarnadóttir og Karl Héðinn Kristjánsson ætla að ræða við Guðmund um húsnæðiskerfið á Íslandi í dag, um þörfina á öflugum leigjendasamtökum, um brotin loforð stjórnmálastéttarinnar og ríkjandi hagsmuni braskara á markaðnum og stjórnkerfinu í dag. Hvernig berjumst við gegn einokun og ofríki fjármálaaflanna í húsnæðiskerfinu? Þetta og fleira í beinni útsendingu á Samstöðinni kl. 18 í kvöld! Skráið ykkur í Leigjendasamtökin á vefsíðu samtakanna leigjendasamtokin.is
2024-04-10
1h 40
Rauður Raunveruleiki
Leigjendasamtökin, húsnæðiskerfi braskara og baráttan fyrir réttlæti / Guðmundur Hrafn Arngrímsson
Guðmundur Hrafn Arngrímsson er formaður Leigjendasamtakanna. Anita Da Silva Bjarnadóttir og Karl Héðinn Kristjánsson ætla að ræða við Guðmund um húsnæðiskerfið á Íslandi í dag, um þörfina á öflugum leigjendasamtökum, um brotin loforð stjórnmálastéttarinnar og ríkjandi hagsmuni braskara á markaðnum og stjórnkerfinu í dag. Hvernig berjumst við gegn einokun og ofríki fjármálaaflanna í húsnæðiskerfinu? Þetta og fleira í beinni útsendingu á Samstöðinni kl. 18 í kvöld! Skráið ykkur í Leigjendasamtökin á vefsíðu samtakanna leigjendasamtokin.is
2024-04-10
1h 40
Samstöðin
Rauður raunveruleiki - Amazon Labor Union and international solidarity / Chris Smalls
Chris Smalls is the president of the recently formed Amazon labor union. He participated in the yearly Socialist Congress of the Icelandic Socialist party alongside the president of the largest Icelandic union, Efling ,Sólveig Anna Jónsdóttir. The congress discussed the struggle of the working class in modern times. We had a talk with Chris about his experience fighting for Amazon workers, the struggle of the working class in the United States and how that reflects the international fight for freedom and justice. Anita Da Silva Bjarnadóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Karl Héðinn Kristjánsson and Olive...
2024-03-18
43 min
Rauður Raunveruleiki
Amazon Labor Union and international solidarity / Chris Smalls
Chris Smalls is the president of the recently formed Amazon labor union. He participated in the yearly Socialist Congress of the Icelandic Socialist party alongside the president of the largest Icelandic union, Efling ,Sólveig Anna Jónsdóttir. The congress discussed the struggle of the working class in modern times. We had a talk with Chris about his experience fighting for Amazon workers, the struggle of the working class in the United States and how that reflects the international fight for freedom and justice. Anita Da Silva Bjarnadóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Karl Héðinn Kristjánsson and Olive...
2024-03-18
43 min
Rauður Raunveruleiki
14 ár í Guantanamo án saka / Mohamedou Ould Slahi & Dr. Deepa Driver
Mohamedou Ould Slahi var fangelsaður og pyntaður hryllilega í fangabúðum Bandaríkjanna við Guantanamo-flóa frá 2002 til 2016 án allra saka. Í fjórtán ár var hann sviptur frelsi sínu, smánaður og beittur grimmilegu ofbeldi af margvíslegum toga. Mohamedou var í heimsókn á Íslandi um helgina og sagði frá upplifun sinni og reynslu á fundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Fundurinn var liður í fundarseríu Ögmundar Jónassonar, „Til róttækrar skoðunar“. Fundinn má finna og horfa á á rásum Samstöðvarinnar undir titlinum „Reynslan frá Guantanamo“. Dr. Deepa Govindarajan Driver sat einnig fundinn. Hún kennir um regluvæðingu fjármagns, um ábyrgð og á...
2024-03-11
50 min
Rauður Raunveruleiki
Fjölskyldusameiningar og glæpir gegn mannkyninu
Anita Da Silva Bjarnadóttir og Karl Héðinn Kristjánsson fjalla um fjölskyldusameiningar, neyð fólks í Palestínu og glæpsamlega framferði Ísraelsríkis. Við munum aðeins snerta á nýju kjarasamningunum og um nauðsyn baráttunnar fyrir betri heimi
2024-03-10
40 min
Rauður Raunveruleiki
Nordic Baltic Sustainability Conference
The Nordic Baltic Sustainability Conference was held in Iceland this year and we have the pleasure to speak to the attendees just following the close of the conference. We will speak about the environment, the statement of the conference and what the future might hold for Nordic and Baltic cooperation as it relates to climate change and the ecology
2024-03-04
49 min
Rauður Raunveruleiki
Mótmælt fyrir Palestínu / umræða vikunnar
Karl Héðinn og Oliver Axfjörð segja frá samstöðumótmælum fyrir Palestínu sem fóru fram í dag á öllum Norðurlöndunum. Við sýnum myndbönd þaðan og fjöllum um ástandið á Gaza og í heiminum. Einnig munum við velta fyrir okkur af hverju Sjálfstæðismenn telja sig þurfa sérsveitargæslu og hvers vegna ráðamenn Bandaríkjanna tala eins og við séum að fara rakleiðis í þriðju heimsstyrjöldina.
2024-03-02
47 min
Rauður Raunveruleiki
Rússland og heimsvaldastefnan: Ungmennaráðstefna í Sochi
Kristinn Hannesson kom til okkar í Rauðan raunveruleika áður en hann flaug út til þess að sækja alþjóðlega ungmennaráðstefnu í Rússlandi. „World youth festival”. Hátíðina munu um 20.000 ungmenni sækja, víðsvegar að úr heiminum. Í þættinum fjöllum við um ástæður þess að hann, ásamt annarri frá Íslandi, ákvað að fara og um sýn okkar á stríðið í Úkraínu, uppruna fasismans, um BRICS-þjóðirnar, undirokaða heiminn, heimsvaldastefnuna og þá brýnu þörf sem er fyrir alþjóðlegu samstarfi á jafningjagrundvelli, fyrir friðsamlegri framþróun, samvinnu og raunverulegum alþjóðalögum Finnið heimildarskrá þáttarins á Youtube
2024-02-26
59 min
Rauður Raunveruleiki
Þjóðarmorð í beinni, siðrof og firring
Grimmd Ísraels gagnvart Palestínu hefur bara aukist eftir úrskurð Alþjóðadómstólsins. Neyð fólks á Gaza hefur aldrei verið meiri. Í þættinum í kvöld munum við ræða um nýjustu fréttir af árásunum, alþjóðasamfélagið og ræða stöðuna í samfélaginu.
2024-02-24
59 min
Rauður Raunveruleiki
Díalektísk efnishyggja / Þorvaldur Þorvaldsson
Þorvaldur Þorvaldsson er ötull baráttumaður fyrir sósíalisma og situr í stjórn lífskoðunarfélagsins DíaMat Við munum ræða við Þorvald um díalektíska efnishyggju, sögu hennar og áherslur, sósíalisma og um aðalfund félagsins sem er núna næsta sunnudaginn kl. 15:00 í MÍR-salnum, Hverfisgötu 105
2024-02-09
52 min
Rauður Raunveruleiki
Skuldaþrælkun og frétt vikunnar
Í kvöld mun Karl Héðinn greina frá versnandi skuldastöðu heimilanna í Bandaríkjunum og á Íslandi. Hvernig skuldir heimilanna og ríkissjóða hafa stóraukist á undanförnum árum og fjalla um þá pólitísku hagstefnu sem liggur þar á bakvið. Einnig verður sagt frá frétt vikunnar, að okkar mati. Utanríkisráðherra hefur svipt Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) fjárhagsaðstoð núna þegar hún hefur aldrei verið mikilvægari.
2024-01-29
15 min
Rauður Raunveruleiki
Árásir á Jemen, stigmagnandi stríð
Bandaríkin og Bretland hafa varpað sprengjum á Jemen minnst sex sinnum á síðustu tíu dögum. Þetta gera þeir til þess að „vernda alþjóðlegar flutningaleiðir“ frá banni Jemens á umgangi ísraelskra skipa í gegnum Rauðahafið Í Rauðum raunveruleika kvöldsins ætlum við að fjalla um þessar árásir Bandaríkjamanna og Breta á Jemen, um tilkomu Húta eða Ansar Allah eins og þau kalla sig. Um grimmilegt stríð Sádí Arabíu og Bandaríkjanna gegn byltingu Jemens 2014 sem hefur drepið 377.000 manns, þar af 70% börn. Og um hvert þetta gæti allt verið að stefna. Bein útsending hefst klukkan 18:00 á Samstöðinni.
2024-01-22
40 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Gengisfelling þjóðarinnar
Í kvöld munum við ræða við Ólaf Jónsson og Kára Jónsson um gengisfellingu krónunnar. Er verið að halda gengi krónunnar niðri viljandi og þá hvers vegna? Gengi krónunnar hefur lækkað töluvert undanfarið og það leitt til þess að kaupmáttur heimilanna hefur rýrnað. Mörg stærstu fyrirtæki landsins, þar á meðal stórútgerðirnar, nota aðra gjaldmiðla en krónuna og geta grætt gríðarlega á því að gengi krónunnar sé lágt. Þorri Íslendinga tapar hins vegar kaupmætti með lækkandi gengi krónunnar. Könnum málið með Ólafi og Kára klukkan 18:00
2024-01-19
51 min
Rauður Raunveruleiki
The legacy of colonialism - Giti Chandra
Dr. Giti Chandra er fræðimaður hjá GEST-verkefninu við Háskóla Íslands og hélt nýverið erindi í Stjórnmálaskóla Sósíalistaflokksins um nýlendustefnuna. Anita Da Silva Bjarnadóttir, Guðröður Atli Jónsson, Karl Héðinn Kristjánsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir munu ræða við Giti um nýlendustefnuna og áhrif hennar á heiminn okkar í dag Fylgist með klukkan 18:00 á Samstöðinni!
2024-01-15
1h 01
Rauður Raunveruleiki
Ákæra Suður Afríku
Í kvöld ætlum við að fjalla um ákæru Suður Afríku á hendur Ísraels, um neyðarástandið á Gasa, fjölmiðlaumfjöllun og alþjóðalög Sjáið ræður Suður Afríku manna við Alþjóðadómstóllinn og skoðum sönnunargögnin fyrir því að Ísrael hefur sýnt fram á ásetning og tilraun til þjóðarmorðs
2024-01-12
48 min
Rauður Raunveruleiki
Red reality - Mímir Kristjánsson: Rødt party and socialism
On tonights episode we have a special guest from Norway. Mímir Kristjánsson is a member of the Norwegian Storting for the Rødt (red) party, he was formerly a city councilor in Stavanger and a political journalist for Klassekampen. Join us as we explore the Red party and how it's projects relate to our struggle in Iceland. We discuss energy infrastructure and the EU market, austerity, privatization, capitalism vs. democracy and the need for socialist reforms and action on Red reality tonight at 18:30
2024-01-08
1h 18
Rauður Raunveruleiki
Austurlöndin: Palestína og hernaðarstaða Bandaríkjanna
Í kvöld munum við segja fréttir frá Palestínu og fjalla um ástandið í Mið-Austurlöndunum (Vestur-Asíu) og áhrif hernaðarúthlutna Bandaríkjanna á svæðinu sem hafa verið viðvarandi í marga áratugi. Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar og Olivers Axfjörð Sveinssonar
2023-12-18
1h 00
Rauður Raunveruleiki
Red reality - World Humanist Forum
Tonight we'll be speaking to organizers from the World Humanist Forum. Antonio Carvallo and Júlíus Valdimarsson The African humanist forum and the Asian Humanist forum are a growing peoples movement that seeks to educate, inspire and heal. How do we overcome human violence, poverty and war? Tonight we will get a unique opportunity to discuss and address these issues from a humanist perspective and hear about these organizations efforts in humanizing the world.
2023-12-11
1h 01
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Mótmæli aðstandenda og fíknisjúkra gegn aðgerðarleysi stjórnvalda
Nýstofnuð samtök aðstandenda og fíknisjúkra hafa boðað til mótmæla næsta laugardag kl. 13 við Austurvöll Mótmælin snúast gegn aðgerðaleysi stjórnvalda í málefnum fíknisjúkra en eins og staðan er er þjónustan ófullnægjandi og biðlistar langir. Dagbjört Ósk Steindórsdóttir og Guðlaug Baldursdóttir hafa komið að stofnun félagsins og verða gestir okkar í kvöld Þátturinn er í umsjón Anítu Da Silva og Karls Héðins
2023-12-04
39 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Kúgun vesturlanda og Palestína: Heimsvaldastefnan og arfleið hennar
Í Rauðum raunveruleika í kvöld munum við kanna hvernig Sameinuðu þjóðirnar hafa brugðist Palestínu og fleiri löndum sem hafa orðið fyrir og eru að verða fyrir kúgun og ofbeldi Vesturlandanna. Standa Bandaríkin í alvöru með mannréttindum? Hver er þessi „rule based order“ eins og Bandaríkjamenn segja og hvernig birtist hún okkur í alvörunni? Af hverju kemst Ísrael upp með stórfelld mannréttindabrot, stríðsglæpi og brot á alþjóðalögum og hvað er þetta svokallaða alþjóðlega samfélag? Þátturinn er í umsjón Anítu Da Silva Bjarnadóttur, Hálfdan Árna Jónssonar og Kar
2023-11-27
50 min
Rauður Raunveruleiki
Dygðasiðfræði. Konfúsíus og heimurinn í dag / Geir Sigurðsson
Geir Sigurðsson er heimspekingur og prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands. Í þættinum munum við fjalla um dygðasiðfræðikerfi Konfúsíusar, um dygðasiðfræði almennt og hvernig slík heimspeki hefur haft áhrif á heiminn. Hvað segir Konfúsíus um stjórnmálafólk, mennskuna og um menntun?
2023-11-21
1h 31
Rauður Raunveruleiki
Red reality - Neoliberalism and soviet nostalgia in Georgia
Bakar Berekashvili (1983) is Professor of Political Science and Sociology at the Georgian American University in Tbilisi. His research and teaching interests include qualitative research, critical sociology, Marxist thought in ‘Actually existing Socialism’, post-socialist politics and society, Soviet Union (life and social order), ruling class under capitalism, problems of democracy, social & political theory, political sociology, ideology, nationalism, and politics of memory. In Red reality tonight Tjörvi Sciöth and Karl Héðinn will interview Bakar on his research into neoliberalism and "Soviet nostalgia" in Georgia
2023-11-11
1h 03
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Andspyrna gegn síónisma
Karl Héðinn Kristjánsson og Trausti Breiðfjörð Magnússon fara yfir málefni Palestínu, átökin í mið - austurlöndum og andstöðu við síónisma í mið-austurlöndunum og víðar
2023-11-07
52 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Stjórnmálaskólinn: Marx um öreigana
„Stjórnmálaskóli Sósíalistaskólans fór í gang á laugardeginum í síðustu viku! Þar fræðumst við um sósíalisma. Í þættinum munum við fjalla um tilgang og nytsemi menntunar í baráttunni fyrir réttlæti og jöfnuði. Til okkar koma Sara Stef Hildardóttir og Viðar Þorsteinsson en þau hafa ásamt Karli Héðni Kristjánssyni skipulagt skólann. Einnig fáum við til okkar Önnu Björk Einarsdóttir, en hún var fyrsti gestafyrirlesarinn hjá okkur í Stjórnmálaskólanum. Hún var með erindi um öreiga hugtakið og meiningu þess frá Marx.“
2023-11-06
57 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Sósíalismi í uppvexti
Aníta Da Silva og Karl Héðinn fjalla um uppgang sósíalista í borginni og víðar í þætti kvöldsins. Hvað er sósíalismi í grunninn og af hverju er hann nauðsynlegur? Við munum skoða það út frá víðum sjónarhóli en einnig í gegnum þær tillögur sem borgarstjórnarflokkur Sósíalista hefur lagt til og áherslur flokksins og hugmyndafræðarinnar í víðum skilningi. Hver er grunnstefnan og af hverju er sósíalismi leiðin áfram fyrir fólkið í landinu? Fylgist með á Samstöðinni í beinni útsendingu klukkan 17:30
2023-10-23
1h 00
Rauður Raunveruleiki
Red reality - Free Palestine / Muhammed Alkurd
In this episode we contextualize and reflect on the ongoing crisis in Israel - Palestine. Thousands of innocent people have died in brutal attacks from the Israeli "Defence" Force that routinely forcibly expels Palestinian people from their homes in the West Bank, killing many, and forcing them into the open air prison that is Gaza
2023-10-16
31 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Ungir Umhverfissinnar
Í kvöld fáum við til okkar Finn Ricart Andrason, forseta Ungra Umhverfissinna og Snorra Hallgrímsson stjórnarmeðlim. Við munum ræða um veðurfarsbreytingar, vistkerfin, útblástur Íslands á koltvísýringi og öðrum gróðurhúsalofttegundum og um það hver ábyrgð einstaklinga er, á móti ábyrgð stórra fyrirtækja og ríkisstjórna.
2023-10-09
1h 05
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Félagslegt réttlæti á heimsvísu / Júlíus K Valdimarsson
Í Rauðum raunveruleika í kvöld ræðum við heimsmálin með Júlíusi Valdimarssyni G77+ ráðstefnan átti sér stað síðastliðinn september þar sem fulltrúar 80% jarðarbúa kölluðu eftir nýrri heimskipan í efnahagsmálum. Við ætlum að ræða húmanisma og hreyfingu húmanisma, baráttuna fyrir réttlátari heimskipan, sögu baráttunnar og framtíðina. Þáttastjórnendur kvöldsins eru Anita Da Silva Bjarnadóttir, Karl Héðinn Kristjánsson og Oliver Axfjörð Sveinsson
2023-10-03
1h 05
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Mannúðarkrísa / Morgane Priet-Mahéo
Það er mannúðarkrísa á Íslandi. Stjórnvöld hafa einbeittan brotavilja gagnvart börnum og fullorðnum á flótta og vilja láta almenning halda að flóttafólkið sé sérstakt vandamál fyrir hagkerfið og velferðarkerfið. Þetta er kolrangt og svívirðilegt bull sem örvæntingarfullt auðvald reynir að sannfæra okkur um til að færa athyglina frá sjálfu sér. Á sama tíma eru öryrkjar látnir bíta í það súra, velferðarkerfin hnigna og eru einkavædd og þeim freku, sterku og siðlausu er gefið endalaust færi á að svína á almenningi. Til þess að ræða þessi mál með...
2023-09-26
43 min
Reykjavíkurfréttir
Borgarbúi fær nóg
Borgarstjórn felldi í vikunni tillögu sósíalista um 0,05% hækkun gjalda á fyrirtæki, í þá upphæð sem hún var í fyrir covid heimsfaraldurinn. Þannig hefði borgin getað fengið rúman hálfan milljarða á ári, næstu ár. Sárleg þörf er á fjármunum í grunnþjónustu borgarinnar sem hefur verið skorin niður á síðustu misserum. Meirihlutinn vildi ekki horfast í augu við þessa stöðu og felldu tillöguna. Anita Da Silva Bjarnadóttir sem á heima í Reykjavík fylgdist með fundinum í vikunni. Við ætlum að ræða við hana um stöðuna í borginni og hvernig hún birtist íbúum.
2023-09-22
55 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Efnahagspólitík og fátækt / Sanna Magdalena Mörtudóttir
Í Rauðum raunveruleika í kvöld kemur borgarfulltrúi okkar og ungi sósíalistinn Sanna Magdalena Mörtudóttir. Við ræðum um borgarmálin, fátækt, velferð og efnahagspólitík meirihlutans í Reykjavík. Á morgun munu Sósíalistar í borginni leggja til að fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði verði leiðréttir frá síðustu lækkun sem varð í Covid-faraldrinum. Hækkunin yrði ekki nema um 0,05% en myndi skila borginni um 500 milljónum króna yfir næsta ár. Þátturinn er í umsjón Anítu Da Silva Bjarnadóttur, Karls Héðins Kristjánssonar og Olivers Axfjarðar Sveinssonar
2023-09-18
1h 05
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - ADHD, kapítalismi og samráð stórfyrirtækja
Ungir sósíalistar og vinir ræða atburði og umræðu síðustu vikna, mögulega ofbeitingu ADHD-lyfja, afleiðingar útlendingafrumvarpsins, samráð stórfyrirtækjanna og spillingu kapítalismans. Þátturinn er í umsjón Karls Héðins Kristjánssonar og Anítu Da Silva Bjarnadóttur. Trausti Breiðfjörð Magnússon og Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir verða gestir kvöldsins
2023-09-11
52 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki: Vestur - Afríka og heimsvaldastefnan
Oliver Axfjörð og Karl Héðinn snúa aftur með Rauðan raunveruleika í kvöld og segja frá atburðum síðastliðinna ára í Vestur-Afríku. Nýlega var valdarán í Níger en það var bara nýjasta valdaránið í röð atburða sem er að breyta örlögum svæðisins og kannski allrar Afríku. Í vestrænum fjölmiðlum er okkur sagt að valdaránið sé hræðileg þróun en við fáum minna að heyra um hvernig heimsvaldastefnan hefur haldið þessum þjóðum í sárri fátækt enn þann dag í dag á meðan vestræn fyrirtæki stórgræða á auðlindum og neyð fólks í Vestur-A...
2023-08-21
38 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Skattkerfið og pólitíska hagkerfi sjávarútvegsins
Í Rauðum raunveruleika í kvöld fáum við til okkar Indriða Þorláksson í spjall um skattkerfið og pólitíska hagkerfi sjávarútvegsins. Indriði er hagfræðingur og hefur starfað í mörgu í fjármálaráðuneytinu og víðar ásamt því að vera ríkisskattstjóri á árunum 1999 til 2006. Við ætlum að læra af Indriða um þróun skattbyrðarinnar, hvernig hún hefur breyst undanfarna áratugi og hvað þurfi að gera til að bæta stöðuna. Við viljum líka velta fyrir okkur arðsemi sjávarútvegsins, hvernig henni skipt. Hversu mikið er að fara til þjóðarinnar og hversu mikið til eigendanna? Þet
2023-07-28
58 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Austurstækkun Nató, Tjörvi Schiöth
Í Rauðum raunveruleika í kvöld ræðum við við Tjörva Schiöth sagnfræðing um austurstækkun Nató. Hvernig vesturveldin lofuðu Sovétríkjunum að Nató yrði ekki stækkað "eina tommu" austur og hvað gerðist síðan í kjölfarið.
2023-07-26
59 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Barbie, endurvinnsla og allt þar á milli
Ungir sósíalistar fá til sín gesti og ræða um Barbie, endurvinnslu, ásamt ýmsu sem er að gerast í veröldinni. Og hvaða kommúnista er Jón Gunnarsson að tala um? Elísabet Guðrúnar og Jónsdóttir varaborgarfulltrúi Pírata, Trausti Breiðfjörð Magnússon borgarfulltrúi Sósíalista, Sunna Dögg Ágústsdóttir ungur sósíalisti og starfsmaður Þroskahjálpar og Marsí Thoroddsen ungur sósíalisti og maóisti eru með okkur í setti
2023-07-25
43 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Lindarhvoll ehf, greinargerð Sigurðar
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins köfum við í grein setts ríkisendurskoðenda, Sigurðar Þórðarsonar, um Lindarhvoll. Greininni var nýlega lekið af Sigurði sjálfum og þingkonu Pírata Þórhildi Sunnu. Sigríður grípur til þessarar ráða því enginn annar farvegur virtist honum opinn til að koma grein sinni út, grein sem hann skilaði Alþingi árið 2018. Í þættinum förum við í efni greinarinnar, útskýrum hvað Lindarhvoll er og hvað grein Sigurðar segir. Þetta er fyrsti þátturinn af nokkrum þar sem við munum skoða málefni Lindarhvols og pólitíkina á bak við það. Umsjónarmenn þáttarins eru Karl Héðinn Kri...
2023-07-21
42 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Þróun skattbyrðarinnar, stéttaskipting og sérhagsmunir
Í Rauðum raunveruleika í kvöld ætlum við að fjalla um breytingar á skattkerfinu og hagkerfi Íslands og annarra Vesturlanda á undanförnum áratugum. Hvernig skattbyrðin hefur aukist hlutfallslega á milli- og lágtekjuhópum en hríðfallið fyrir þau allra ríkustu. Umsjónarmenn þáttarins eru þeir Karl Héðinn Kristjánsson og Oliver Axfjörð Sveinsson.
2023-07-14
43 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Baráttan fyrir strandveiðum
Í Rauðum raunveruleika í kvöld ræðum við við strandveiðisjómenn um baráttuna fyrir réttinum til að sækja sjóinn. Strandveiði var nýlega stöðvuð vegna þess að ekki var gefinn nægur kvóti inn í kerfið. Veiðin á að standa í 48 daga, frá 1. maí er til 31. ágúst, og tók það mikla baráttu að fá þetta fram, en undanfarin ár hefur veiðin verið stöðvuð löngu áður en tímabilið á að klárast. Vegna þessa hefur Strandveiðifélagið boðað til mótmæla næstkomandi laugardag. Við ætlum að spjalla við strandveiðisjómenn um baráttu þeirra fyrir að fá að...
2023-07-13
19 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Gideon Levy - Israel Palestine; The one state solution
In tonight's episode of Red reality, we have a special guest from Israel. Gideon Levy is an Israeli journalist and author who has focused on the Israeli occupation of the Palestinian territories for decades. We speak to him about waking up to the reality of the horror of apartheid, why Israel can not be considered a democracy, and the need for a one state solution. Tune in at 18:00
2023-06-30
38 min
Rauður Raunveruleiki
Baráttan fyrir réttlátari heim; Bandaríkin og Bretland
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins fjöllum við um forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum sem ráðandi öfl sameinast um að halda niðri. Við fjöllum um Robert Francis Kennedy Jr, Marianne Williamson og Dr. Cornel West og hvernig fjölmiðlaumfjöllun um þessa frambjóðendur fer fram. Við sýnum myndbönd úr fjölmiðlum og bita úr viðtölum við þessa frambjóðendur og ræðum um innihald og samhengi þess sem fer þar fram Þættinum er stýrt af Oliveri Axfjörð Sveinssyni, sem er nýr þáttarstjórnandi hjá Rauðum raunveruleika, ásamt Karli Héðni Kristjánssyni. Við fengum til okkar þá...
2023-06-24
1h 28
Rauður Raunveruleiki
Fjölmiðlaskot frá hrunsárunum og frameftir, hvað í?
Rauður raunveruleiki snýr aftur með ungum sósíalistum, í þætti kvöldsins ætlum við að skoða skot úr fjölmiðlum frá hrunsárunum og eftir þau. Hverjir voru panamaprinsarnir? Hvað gerði Davíð Oddson? Hvar er nýja stjórnarskráin okkar? Hvað þýðir það að stjórnmálamenn taki ábyrgð og hvar eru allir kommúnistarnir sem Jón Gunnarsson vælir yfir? Þetta og margt fleira í Rauðum raunveruleika kvöldsins með Karli Héðni Kristjánssyni, Oliveri Axfjörð Sveinssyni, Kristbjörgu Evu Andersen Ramos og borgarafulltrúanum okkar Trausta Breiðfjörð Magnússyni
2023-06-15
1h 11
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Ofbeldismenning og uppeldisfræði / Sindri Viborg
Sindri Viborg er kennaranemi og formaður Tourette-samtakanna á Íslandi. Hann hefur einbeitt sér að því að rannsaka einelti og hvernig ofbeldi getur birst í skólakerfinu okkar. Hvað er það sem veldur einelti og ofbeldi? Við munum velta fyrir okkur hvernig væri mögulega hægt að rækta upp menningu sem getur betur tekist á við ofbeldi og uppsprettur þess;... á Samstöðinni
2023-04-26
53 min
Rauður Raunveruleiki
Saga Nató frá 1990, partur 1 - Tjörvi Schiöth
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins höldum við áfram með Tjörva Schiöth að fjalla um sögu NATO. Í síðasta þætti var fjallað um Kalda stríðið (1945 – 1990), en í þessum þætti verður litið á tímabilið eftir lok Kalda stríðsins 1990 fram til dagsins í dag. Við reynum að einblína á þá hluta sögunnar sem hafa ekki fengið mikla athygli í meginstraumsfjölmiðlum eða almennum söguskýringum, en sú mynd sem hefur verið dregin upp fyrir okkur er mjög hvítþvegin og reynt hefur verið að sópa mörgum óþægilegum staðreyndum undir teppið. Í þessum þætti verður farið yfir breytt hlutverk NATO eftir lok Kalda stríðsi...
2023-04-23
1h 06
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Náttúruvernd / Árni Finnsson
Klukkan fimm á Samstöðinni; Arni Finnsson er formaður Náttúruverndarsamtakanna og hefur í langan tíma barist fyrir náttúrunni. Náttúruverndarsamtökin hafa beitt sér og beita sér enn fyrir hálendisþjóðgarði og margskyns annari náttúruvernd. Við ræddum við hann um umhverfismálin í víðum skilningi, um orkuskiptin, fiskeldi og fleira. Árni gaf nýlega út grein á Heimildinni sem segir frá nýjum rannsóknum sem benda til þess að kolefnisjöfnun stórfyrirtækjanna sé ekki raunveruleg. Nýleg rannsókn leiðir í ljós að 90% af þeim heimildum sem hefur verið vottað fyrir séu ek...
2023-04-19
51 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Saga Nató / Tjörvi Schiöth
Sagan er ekki alltaf öll eins og hún sýnist. Í Rauðum raunveruleika kvöldsins köfum við í raunverulega sögu Nató með Tjörva Schiöth, förum yfir aðstæður heimsins við stofnun Nató, tilgangur Nató og veltum fyrir okkur kjarnorkusprengjum, kalda stríðinu, hergagnaiðnaðinum (military-industrial complex eða hernaðarlegur Keynesianismi), samskiptum ríkja og ofbeldi og stríði. Oft er talað um að Nató sé varnarbandalag en aðildarríki Nató eru langt frá því að vera saklaus um stríðsglæpi og aðra glæpi gegn mannkyninu. Og eftir fall Sovétríkjanna má kannski segja að Nató hafi or...
2023-04-07
1h 04
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Blái herinn og umhverfið okkar / Tómas J. Knútsson
Blái herinn hefur týnt plast við strendur Íslands og á landi og hafa þau týnt á þeim 28 árum sem þau hafa starfað gífurlegt magn af plasti sem væri annars ennþá á reiki í náttúrunni og sjónum. Tómas J. Knútsson er stofnandi Bláa hersins en ferðalag hans byrjaði þar sem hann var að kafa við Íslandsstrendur og sá allt það magn plasts sem hafði safnast upp víðsvegar um landið, við bryggjur og allsstaðar annarsstaðar. Við tókum gott spjall við Tómas um Bláa herinn, störf þeirra og umhverfismál í víðara samhengi Þetta e...
2023-03-27
54 min
Rauður Raunveruleiki
One year since the invasion of Ukraine
Á föstudaginn næstkomandi er liðið eitt ár frá innrás Rússa í Úkraínu. Stríðið hefur haft hræðilegar afleiðingar fyrir heimsbyggðina alla og það er engin friður í sjónarmáli. Í kvöld ræðum við við tvo einstaklinga sem fæddust í Rússlandi og eru að skipuleggja mótmæli gegn stríðinu á föstudaginn næsta fyrir utan Rússneska Sendiráðið við Túngötu 24 klukkan 17:30. María Guindess kom til Íslands í Mars síðastliðnum eftir að stríðið braust út og hefur hún vakið athygli á því hvernig Pútín og ríkisstjórn hans hafa framleitt samþykki fyrir stríðið og r...
2023-02-24
38 min
Rauður Raunveruleiki
Red reality special edition - Protests! / Mótmæli!
In a special edition of Red Reality tonight Karl Héðinn Kristjánsson and Trausti Breiðfjörð Magnússon are speaking to two members of Efling, Ian Mcdonald and Sæþór Benjamín Randalsson about their collective struggle for fair wages and dignity. We will hear from them how the strike patrols have been going, what they're thoughts are on the development of the one-sided mediation proposal put forward by the state mediator and what they think will happen at Landsréttur. We will also discuss what is to be done, how can workers fight for their wages and dignity effe...
2023-02-10
1h 09
Rauður Raunveruleiki
Rauður raunveruleiki - Fellum útlendingafrumvarpið
Fellum útlendingafrumvarpið er grasrótarhópur sem berst fyrir því að Alþingi og ríkisstjórnin felli rasíska útlendingafrumvarpið. Þau Aníta Sóley Þórðardóttir, Askur Hrafn Hannesson og Íris Björk Ágústsdóttir settust hjá okkur og sögðu okkur frá frumvarpinu, mótmæla aðgerðum þeirra gegn því og yfirlýsingar ungliðahreyfinganna og ýmisa mannréttindasamtaka um frumvarpið. Frumvarpið hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir að brjóta á mannréttindum Skoðið síður Fellum Frumvarpið á Instagram; @Fellum_frumvarpid og á facebook; "Fellum útlendingarfrumvarpið" https://www.facebook.com/profile.php?...
2023-01-26
25 min
Rauður Raunveruleiki
Samninganefnd Eflingar / Eflings' Negotiation Committee
Í Rauðum Raunveruleika í kvöld ræðum við við þrjá meðlimi samninganefndar Eflingar, þau Sæþór Benjamín Randalsson, Melissu Wiliams og Reynaldo Curato Renegado. Þau hafa verið partur af samningaferlinu og starfi Eflingar og komu að segja okkur frá því hvernig starfið og bárátta þeirra lýsir sér. Viðtalið er á ensku. In Red Reality tonight we will be speaking to three members of Eflings' negotiation committee. Sæþór Benjamín Randalsson, Melissa Williams and Reynaldo Curato Renegado. They have been directly involved in the negotiation process and came to tell us about their experiences in the union and their mutual class...
2023-01-11
48 min
Rauður Raunveruleiki
Jóhann Páll Jóhannsson
Í Rauðum raunveruleika kvöldsins ræðum við við þingmannin Jóhann Pál um stöðu Samfylkingarinnar og um ríkisfjármál, sósíalisma, spillingu og umhverfismál svo eitthvað sé nefnt. Jóhann var áður blaðamaður hjá Stundinni og hefur setið á þingi fyrir Samfylkinguna síðan á síðasta ári.
2022-11-09
1h 09
Rauður Raunveruleiki
Karl og Kjartan taka stöðuna
Karl Héðinn og Kjartan Sveinn taka stöðuna. Hvað er að gerast í framboðskjöri sjálfstæðismanna? Nýr forseti í Brasilíu, nýr formaður Samfylkingar og eftirspurn eftir olíu (og þáttum frá okkur) heldur áfram að aukast
2022-10-31
45 min
Rauður Raunveruleiki
Stefanía María Arnadóttir - Fer samkennd minnkandi?
Fer samkennd minnkandi? Stefanía María Arnadóttir skrifaði nýverið grein á Vísi þar sem hún fór yfir rannsókn sem sýna fram á að samkennd sé að minnka á meðal fólks. Við ræddum um niðurstöður þessarar rannsóknar og um hvað gæti mögulega verið að valda þessu, hvað sé til ráða.
2022-10-25
30 min
Rauður Raunveruleiki
Lenya Rún
Lenya Rún Taha Karim varaþingmaður Pírata kemur og situr undir spurningaflóði Kjartans Sveins Guðmundssonar um Íran, Írak og Kúrdistan, bankasöluna, hvernig stemningin sé á hinu himinháa Alþingi með meiru.
2022-10-22
45 min
Rauður Raunveruleiki
Katrín Baldursdóttir: Verkalýðsfélög, atvinnulífið og sósíalismi
Við spjöllum við Katrínu Baldursdóttir um hlutverk og stöðu verkalýðsfélaga. Um atvinnulífið og sósíalisma.
2022-10-19
30 min
Rauður Raunveruleiki
Hernaðarafskipti Bandaríkjanna eftir seinni heimstyrjöld
Í Rauðum Raunveruleika kvöldsins förum við yfir þau hernaðarlegu afskipti sem Bandaríkin hafa stundað frá seinni heimstyrjöld. Þetta verður ekki tæmandi listi en við förum yfir helstu atriði.
2022-10-04
16 min
Rauður Raunveruleiki
Suður - Ameríka - Frelsisbarátta og heimsvaldastefnan
Eyjólfur Eyvindarson og Kristbjörg Eva koma í Rauðan raunveruleika kl 18 í kvöld. Við ætlum að ræða um pólitík í Suður Ameríku, heimsvaldastefnu og allt sem við því kemur. Sesar hefur verið mikið í Suður Ameríku og þekkir ágætlega til. Saga Suður Ameríku getur sagt okkur margt um heiminn sem við lifum í.
2022-09-26
44 min
Rauður Raunveruleiki
Kristbjörg Eva Andersen Ramos, nýr formaður Ungra Sósíalista
Kristbjörg Eva Andersen Ramos er nýr formaður ROÐA, félag Ungra Sósíalista. Við ræddum við hana um starfið, stefnu félagsins og um lógó keppni Ungra Sósíalista! Sendið á okkur hugmyndir á ungir@sosialistaflokkurinn.is! Við töluðum aðeins um forréttindablindu, stéttir og fleira í þeim dúr. Fylgist með
2022-09-19
22 min
Rauður Raunveruleiki
Stiklað á stóru með Aski aktívista
Kjartann Sveinn og Karl Héðinn ræða við Ask Hrafn á persónulegum nótum, hvað er Amnesty? Hverjar eru tengingar Sjálfstæðisflokksins við Nasisma og Pútín? Hverjir eiga gosdrykkina þína o.s.frv. o.s.frv !
2022-09-16
44 min
Rauður Raunveruleiki
Ólafur "Ufsi" Jónsson - Gengisfelling
auður Raunveruleiki í kvöld með Ólafi Jónssyni "Óla Ufsa". Við ætlum að tala við hann um sjávarúvegskerfið, gengisfellingu krónunar, skipulagt svindl og fleira sem viðkemur þessu rotna kerfi eins og það er í dag. Hér er hafsjór af þekkingu og reynslu!
2022-09-13
34 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður Raunveruleiki: Kjartan Sveinn - Liðsauki, umbreytingartímar
Rauður Raunveruleiki snýr aftur í kvöld með Kjartani Sveini og Karl Héðni. Við spjöllum um samtímann, byltingar og hvað gæti verið framundan í þessum heimi stöðugra breytinga!
2022-09-10
41 min
Rauður Raunveruleiki
Halldór Auðar Svansson / Pólitík og andleg heilsa
Halldór Auðar Svansson kemur í Rauðan Raunveruleika í kvöld. Halldór var borgarfulltrúi Pírata og við fáum að heyra um upplifun hans af því. Halldór hefur einnig starfað á sviði geðheilbrigðismála og er áhugamaður mikill um Zen, Alan Watts og fleira í þeim dúr. Farið verður um víðan völl og okkur hlakkar til samtalsins
2022-07-11
50 min
Rauður Raunveruleiki
Páll Líndal umhverfissálfræðingur: Borgarhönnun og vellíðan
Karl Héðinn og Trausti Breiðfjörð tala við Pál Jakob Líndal umhverfissálfræðing um skipulag borga og sálfræði umhverfisins. Það snertir á gríðarleg mörgu enda vitum við flest að umhverfið hefur gríðarleg áhrif á líðan okkar og samfélag. Hvernig gerum við fallegar borgar sem ýta undir vellíðan? Við heyrum um hvernig þetta getur gengið mjög vel upp líkt og í Djúpavogi og hvernig þetta getur farið illa líkt og með Hafnartorgið. Þetta og margt fleira í Rauðum Raunveruleika á Samstöðinni í kvöld
2022-07-11
58 min
Rauður Raunveruleiki
Sæþór Benjamín Randallson / Verkalýðsbarátta
Sæþór Benjamín er sósíalisti sem er upprunalega frá Bandaríkjunum og hefur tekið þátt í barráttunni bæði hér og þar. Við fáum að heyra frá hans sjónarhorni hvað sósíalismi er, hvers vegna hann telur mikilvægt að taka þátt í verkalýðsbaráttu og allt sem við því kemur.
2022-07-11
42 min
Rauður Raunveruleiki
Guðmundur Auðunsson / Hagfræði og Sósíalismi
Í kvöld ræðum við við Guðmund Auðunsson, stjórnmála hagfræðing og sósíalista. Við fröum yfir víðan völl, tölum um klassíska hagfræði, byrjun kapítalismans, Adam Smith og Karl Marx. Samtalið leiðist síðan að nútímanum og við ræðum um kvótagreifanna og húsnæðiskerfið í þessu sögulega og þjóðhagslega samhengi.
2022-07-11
58 min
Rauður Raunveruleiki
Rúnar Freyr og Kjartan Sveinn
Aðgerðarsinninn Rúnar Freyr Júlíusson og greinarhöfundurinn Kjartan Sveinn Guðmundsson koma til okkar í spjall í kvöld. Báðir eru þeir ungir sósíalistar og við ætlum að fá að heyra frá þeim um pólitíska þátttöku, stöðuna á Íslandi og framtíðina.
2022-07-11
57 min
Rauður Raunveruleiki
Tjörvi Schiöth - Saga kapítalisma og Sósíalisma
Tjörvi Schiöth er að klára mastersnám í hugmyndasögu og stundaði áður nám í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. Við áttum við hann gott spjall um sögu kapítalisma og sósíalisma, um efnahagskerfi og hugmyndafræði, heimsvaldastefnuna og fleira. Það er af nógu að taka! Fræðandi og skemmtilegur þáttur á Samstöðinni á mánudaginn klukkan níu.
2022-07-11
43 min
Rauður Raunveruleiki
Frumbyggjar í Panama og loftslagsváin
Carmen Jóhannsdóttir hefur unnið með hjálparstarfssamtökum sem hafa aðstoðað frumbyggja sem lifa við eyjur í Panama sem eru að sökkva í sjó vegna bráðnun jökla. Carmen hefur líka unnið í "zero waste" verkefnum og stofnaði meðal annars veitingarstað þar sem rusli er haldið í algeru lágmarki. Heyrum í Carmen og sjáum hvað er að frétta af Panama og frumbyggjunum sem lifa þar. Rauður Raunveruleiki klukkan 21 í kvöld.
2022-07-11
52 min
Rauður Raunveruleiki
Alexandra Briem og Ragna Sigurðardóttir
Alexandra Breim frá Pírötum og Ragna Sigurðardóttir frá Samfylkingunni setjast inn í stúdíó Rauðs raunveruleika. Við ræðum bankasöluna og spyrjum þær út í stefnu flokkanna fyrir komandi kosningar.
2022-07-11
39 min
Rauður Raunveruleiki
Hallfríður Þórarinsdóttir
Í kvöld ætlum við að ræða málfar og tengsl þess við stétta- og virðingarstöðu á Íslandi. Hvernig fólk er stimplað úr umræðunni fyrir að tala ekki “nógu góða” íslensku eða fallbeygir ekki hlutina 100% rétt. Þetta á við um fólk af erlendum uppruna en líka um Íslendinga sem koma úr lægri stéttum. Þar er annað orðalag notað en hjá þeim hærri settu. Gestur kvöldsins er Hallfríður Þórarinsdóttir. Hún er menningarmannfræðingur og skrifaði doktorsritgerð sem heitir: “Purity and Power: The Policy of Purism in Icelandic Nationalism and National Identity.” V...
2022-04-11
1h 00
Rauður Raunveruleiki
Dr. Ólafur R. Dýrmundsson
Karl ræðir við Ólaf Dýrmundsson um fæðuöryggi, matvælaöryggi, loftslagsmál, ESB og margt fleira.
2022-04-01
53 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður Raunveruleiki - Sanna Magdalena
Kynnumst stefnumálum Sósíalista í sveitarstjórnarkosningunum. Hvað er til ráða, hvað liggur mest á að laga og hvað er því til fyrirstöðu? Fáum innsýn inní borgarmálin og pólitíska þátttöku með Sönnu Magdalenu í Rauðum Raunveruleika
2022-03-28
41 min
Rauður Raunveruleiki
Rauður Raunveruleiki - Blaz Roca
Í kvöld verður skrúfað frá skoltinum á Erpi Eyvindarsyni. Hann mætir í Rauðan raunveruleika og segir okkur til syndanna. Erum við ungir sósíalistar nógu róttækir? Er kominn tími á heykvíslar? Mun óhjákvæmilega sverfa til stáls við auðvaldið? Höllum okkur aftur. Það er föstudagur og leyfum Blaz Roca að segja hlutina eins og þeir eru.
2022-03-26
1h 33
Rauður Raunveruleiki
Nicole Voigt - Róttækur vinstri vængur Svíþjóðar
Við fáum til okkar Nicole Voigt frá Ung Vänster í Rauðum raunveruleika kvöldsins. Hvað er í gangi á róttæka vinstri væng Svíþjóðar? Hvernig geta ungliðahreyfingar haft áhrif? Kynnumst málunum í Svíþjóð í Rauðum raunveruleika kvöldsins klukkan 17:00 á Samstöðinni. Viðtalið verður á ensku
2022-03-22
54 min
Rauður Raunveruleiki
Yanis Varoufakis - The Red Reality of Global Capitalism
Tonight we have a very special guest. Yanis Varoufakis is an ex Greek minister of finance, an economist and politician. In February 2016 he launched the Democracy in Europe Movement 2025 (DiEM25) and he also took a great part in founding the Progressive International alongside many progressive politicians, economists and activists. The Progressive International has been described as a „common blueprint for an International New Deal, a progressive New Bretton Woods“. We will talk to Yanis about the state and direction of our world, how we can influence things for the better and what we should be striving for. Tune in at 17:00 GMT...
2022-03-18
49 min
Rauður Raunveruleiki
Júlíus K Valdimarsson - Húmanismi, Samvinna og Velmegun
Í þætti kvöldsins fáum við til okkar Júlíus K Valdimarsson húmanista og friðarsinna. Júlíus hefur trú á byltingu mannsins og á auknu samstarfi á milli fólks og þjóðarhópa. Völd ættu að vera færð niður í grunn þjóðfélagsins! Við ræðum við Júlíus um húmanisma, sögu stefnunnar, þáttöku hans í henni og framtíð mannkynsins!
2022-03-03
56 min
Rauður Raunveruleiki
Ögmundur Jónasson - Stefnan
"Í ársbyrjun 1995 var haldinn kraftmikill fundur á Hótel Borg í Reykjavík. Fundarefnið var að leita svara við því hvernig glæða mætti róttæka vinstri pólitík í landinu." Svo hljóðar lýsing fyrsta opna funds vinstra fólks í Hótel Borg á laugardaginn síðasta. Tilefnið var hið sama. Nú ætlum við að tala við Ögmund um þessa fundi, söguna og hvert skal stefna. Við hvetjum alla til þess að taka þátt í þessu samtali, mæta og blása lífi í róttæka vinstri pólitík á ný! Það veitir ekki af.
2022-02-28
43 min
Rauður Raunveruleiki
Atli Þór Fanndal - Frjáls Fjölmiðlun
Í Rauðum Raunveruleika í kvöld fáum við til okkar Atla Þór Fanndal, framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Transparency International. Atli hefur áður starfað sem blaðamaður hjá Kvennablaðinu, DV, Reykjavík vikublaðin auk BBC, The Telegraph, CBC og Der Freitag svo dæmi séu tekin. Atli ætlar að tala við okkur um spillingu, störf hans hjá Transparancy International og um stöðu frjálsar fjölmiðlunar á Íslandi. Fylgist með á Samstöðinni. Þátturinn er í umsjón Karl Héðins Kristjánssonar og Trausta Breiðfjörð Magnússonar.
2022-02-21
47 min
Rauður Raunveruleiki
Þórólfur Júlían Dagsson - Auðlindin okkar, óréttlæti kvótakerfisins
Í Rauðum Raunveruleika kvöldsins ræðum við við Þórólf Júlian Dagsson um auðlindina okkar. Fiskinn í sjónum og misskiptinguna og óréttlætið sem hefur skapast í úthlutun kvóta og veiðiheimilda. Hvað hefur þetta kerfi leitt af sér síðan það var búið til á áttunda áratugnum?
2022-02-14
41 min
Rauður Raunveruleiki
Fjölmiðlar, útskúfun og auðvald
"Slaufunarmenning/Cancel culture” hefur mikið verið í umræðunni síðustu misserin. Er ekki alvarlegasta slaufunarmenningin að eiga sér stað undir auðvaldinu og afskiptum þess á frelsi fólks til að gagnrýna það? Mörg dæmi um fólk sem hafa misst lífsviðurværi sín á því að tjá sjálfsagðar skoðanir sínar. Þetta og fleiri mál verða rædd í Rauða Raunveruleika kvöldsins.
2022-02-07
50 min
Rauður Raunveruleiki
Viðar Þorsteinsson - Verkalýðsbaráttan
Karl Héðinn og Trausti Breiðfjörð fá fyrrverandi framkvæmdastjóra Eflingar til sín. Þeir ræða verkalýðsmál, stjórnmál og hvað sé í vændum á næstunni í kjarabaráttu almennings.
2022-02-01
1h 00
Rauður Raunveruleiki
Ungir Sósíalistar
Í Rauðum Raunveruleika kvöldsins fáum við nokkra unga sósíalista til okkar að ræða um félagsstarf, sósíalisma, pólitíska þátttöku og fleira. Í kvöld koma til okkar Atli Gíslason formaður Ungra Sósíalista (Roði), Agni Freyr varaformaður Roða, Kristbjörg Eva Andersen Ramos formaður samfélagsmiðlanefndar Roða og Kjartan Svein Guðmundsson, ungt hugsjónafólk allt! Skemmtilegur þáttur framundan, fylgjist með. Þátturinn er í umsjón Karl Héðins Kristjánssonar
2022-01-24
53 min
Reykjavíkurfréttir
Löng bið eftir húsnæði
Anita Da Silva Bjarnadóttir segir okkur frá reynslu sinni af húsnæðiskerfi borgarinnar þar sem hún beið í næstum tólf ár eftir félagslegri íbúð án þess að biðin skilaði árangri. Hún er nýlega komin aftur á þann biðlista og við ræðum óöryggi á leigumarkaði, hátt leiguverð og ferlið að baki þess að sækja um og viðhalda umsókn um félagslegt leiguhúsnæði. Umsækjendur félagslegs leiguhúsnæðis þurfa að fara í gegnum ákveðið matsferli þar sem fjárhags- og félagslegar aðstæður eru metnar til stiga og þrátt fyrir að þörfin sé mikil...
2022-01-21
22 min
Rauður Raunveruleiki
Neysluhyggja, samfélag og andleg sjálfshjálp
Í Rauðum Raunveruleika í kvöld verður talað um skaðsemi neyslusamfélagsins og "öld sjálfsins" í því samhengi. Ræðum mikilvægi meðvitaðar neyslu og meðvitundar almennt, skoðum öflugar núvitundar og öndunaraðferðir sem sporna gegn ýmsum andlegum og líkamlegum lífsstíls sjúkdómum nútímans.
2022-01-18
45 min
Rauður Raunveruleiki
Davíð Þór - Var Jesús sósíalisti?
Davíð Þór Jónsson sóknarprestur í Laugarneskirkju sest með þeim Trausta Breiðfjörð og Karli Héðni og ræðir gamalt álitamál: Var Jesús Kristur sósíalisti? Sósíalismi varð náttúrlega ekki til fyrr en löngu eftir að Jesús var krossfestur, en má samt finna líkindi með boðskap hans og erindi sósíalista síðustu tæpar tvær aldir? Á sósíalisminn kannski rætur í fagnaðarerindi Jesús? Með hverjum myndi Jesús standa í dag; valdinu eða hinum kúguðu? Er hægt að boða kristni en samt styðja kapítalismann? Hvers vegna...
2022-01-12
1h 03
Rauður Raunveruleiki
Sanna Magdalena
Sanna Magdalena Mörtudóttir kemur í Rauðan raunveruleika og segir okkur hvernig það er að vinna í borgarráði, hvernig það kom til og hvernig dagleg störf ganga fyrir sig. Af hverju kostar 120.000 krónur að hafa börn í áskrift að strætó? Hvernig getur slíkt gerst í borgarstjórn félagshyggjuflokka? Þetta og ýmislegt fleira í Rauðum raunveruleika í kvöld.Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuð
2021-12-20
19 min
Rauður Raunveruleiki
Raunveruleiki stjórnmála
Trausti Breiðfjörð og Karl Héðinn ræða raunveruleika stjórnmála samtímans, pólitíska tómhyggju og þá óskýru framtíðarsýn sem stjórnmálin virðast bjóða upp á.Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!
2021-12-06
39 min
Rauður Raunveruleiki
Sósíalismi?
Ísabella Lena, Trausti Breiðfjörð og Karl Héðinn velta fyrir sér sósíalisma, blóðugri sögu CIA í Suður-Ameríku og hvernig við getum í alvöru aukið frelsi einstaklinga.Samstöðin á FacebookSamstöðin á YouTubeSamstöðin á vefnumAlþýðufélagið styrkir Samstöðina. Alþýðufélagið hefur það markmið að auðga og bæta umræðu í samfélaginu. Allir geta gengið í Alþýðufélagið og styrkt þar með efni og útbreiðslu Samstöðvarinnar. Takk fyrir stuðninginn!
2021-11-15
37 min