Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Slowstudio Podcast

Shows

slowstudioslowstudio14. Þangað til næstKæru hlustendur, við ætlum að taka okkur smá pásu vegna breyttra aðstæðna og segjum ykkur betur frá því í þættinum. Í þættinum förum við þó einnig yfir nokkrar af okkar uppáhalds leiðum til að hægja á, jarðtengja okkur og vera í núinu. Ekki veitir af yfir annasama sumarmánuði! Takk kærlega fyrir samfylgdina hingað til, við vonum að ykkur líki þátturinn vel. Þangað til næst… Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús. 2023-07-1938 minslowstudioslowstudio13. Júlía Sif - VeganismiÍ þessum þætti fengum við til okkar Júlíu Sif, ein af Veganistu systrum og meðeigandi Plöntunnar (kaffihús í miðbæ Reykjavíkur). Í þættinum ræðum við meðal annars um veganisma og sýn Júlíu á því málefni, Veganistu ævintýrið, vegan í tískuheiminunum, kaffihúsareksturinn og margt fleira. Við áttum einstaklega áhugavert og skemmtilegt spjall við Júlíu og vonum að ykkur þyki það líka. Þátturinn er að sjálfsögðu í boði Plantan kaffihús og Alba heildsala.2023-07-051h 10slowstudioslowstudio12. Talía Fönn - Sjálfbært mataræðiÍ þessum þætti fengum við til okkar hana Talíu Fönn til að ræða við okkur um mataræði og sjálfbærni. Talía hefur lokið BS gráðu í næringarfræði við Háskóla Íslands og hefur óbilandi áhuga á næringu og hvernig hún viðkemur bæði heilsu og daglegu lífi okkar. Við ræðum þær næringarráðleggingar sem taldar eru sjálfbærar til framtíðar fyrir bæði manneskjuna og jörðina, matarsóun og framleiðsluhætti og matarvenjur Íslendinga. Þátturinn er vægast sagt áhugaverður og jafnvel “sjokkerandi” á köflum. Við mælum heilshugar með!2023-06-191h 08slowstudioslowstudio11. Hallgerður Freyja - Ræðum aðeins meira um samfélagsmiðlaÍ þessum þætti fengum við hana Hallgerði Freyju, verðandi tómstundafræðing og systur Halldóru, í spjall um samfélagsmiðla og áhrif þeirra á andlega líðan. Þátturinn er eins konar framhald af síðasta þætti en við ræðum meðal annars þau áhrif sem “like” geta haft á sjálfsmynd og sjálfsöryggi, FOMO (Fear of missing out) á samfélagsmiðlum og margt fleira. Við áttum stórskemmtilegt spjall við Hallgerði og vonum að þið hafið einnig gaman af. Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.2023-06-0754 minslowstudioslowstudio10. Ræðum um samfélagsmiðlaÍ þessum þætti köfum við aðeins ofan í samfélagsmiðla á léttum nótum. Við ræðum til að mynda þau víðtæku áhrif sem samfélagsmiðlar geta haft á neyslu, duldar markaðssetningar, viðhorf okkar til tísku, viðhorf okkar til heilsu og almennar venjur. Við áttum ótrúlega huggulegt spjall og vonum að þið hafið einnig gaman af. Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.2023-05-2252 minslowstudioslowstudio9. Rvk Ritual - Gerum lífið aðeins meira djúsíÍ þessum þætti fengum við til okkar þær Evu Dögg og Dagnýju Berglindi, stofnendur og eigendur Rvk Ritual. Rvk Ritual er vettvangur sem einblínir á allt sem viðkemur heildrænni vellíðan - hugleiðslu, yoga, sköpun, hreyfingu, öndun, næringu og alls kyns önnur tól og tæki sem hvetja þig til þess að tengjast þér betur. Við áttum yndislegt spjall við þessar stórkostlegu konur um Rvk Ritual og vegferðina að stofnun þess, self-mastery námskeiðið sem breytti lífinu okkar og hugmyndafræði Evu og Dagnýjar á bak við fyrirtækjarekstur.  2023-05-081h 41slowstudioslowstudio8. Spjara fataleiga - Fataskápur nútímans?Í þessum þætti fengum við til okkar þær Kristínu Eddu Óskarsdóttir og Sigríði Guðjónsdóttir, stofnendur og eigendur SPJARA fataleigu. Við ræðum um reksturinn og upphafið að SPJARA, neytendahegðun, markaðssetningu og hvað fataleiga er einfaldlega mikil snilld. Við lærðum ótrúlega margt af þessum flottu konum og það var ótrúlega skemmtilegt að fá að skyggnast inn í þeirra hugarheim þegar kemur að tísku. Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.2023-04-241h 18slowstudioslowstudio7. Apríl Harpa - Ræðum aðeins um bleyjurÍ þessum þætti fengum við til okkar lífsgúrúinn Apríl Hörpu sem er m.a. eigandi Cocobutts, taubleyjuverslun og fræðslusetur. Við ræðum um allt á milli himins og jarðar en þá allra helst áhrifin sem einnota bleyjan hefur á umhverfið, heilsuna og fjárhaginn, en talið er að einnota bleyjan sé ein stærsta mengungarógnin sem við stöndum frammi fyrir í dag. Við viljum þakka elsku Apríl æðislega fyrir komuna og hlökkum til að fylgjast með öllum hennar töfrum í framtíðinni.  Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús 2023-04-101h 11slowstudioslowstudio6. Fast fashion - Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendiEftir tvo kannski smá yfirþyrmandi síðustu þætti um áhrif fast fashion á bæði umhverfið og manneskjuna þá erum við búnar að vera mjög spenntar fyrir þessum þætti. Hér fjöllum við um það sem við sem einstaklingar getum gert til að stuðla að jákvæðri neysluhyggju - það er nefnilega svo ótrúlega mikið sem við getum gert sem krefst jafnvel ekki mikillar fyrirhafnar en hefur mikil áhrif í stóra samhenginu. Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.2023-03-271h 06slowstudioslowstudio5. Fast fashion - Ómannúðlegur iðnaðurÞáttur númer þrjú í “fast fashion seríunni” okkar en í þessum þætti förum við yfir hvernig aðstæðum starfsfólks í verksmiðjum skynditískugeirans er háttað og afhverju. Fast fashion fyrirtæki framleiða fötin sín í svokölluðum “sweatshops” og það orð eitt og sér gefur okkur ágæta hugmynd um hvernig aðstæður þar inni eru og hver áhrifin eru á starfsfólk þess. Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.2023-03-131h 03slowstudioslowstudio4. Fast fashion - Mengun frá upphafi til endaÞáttur númer tvö í “fast fashion seríunni” okkar en í þessum þætti förum við yfir hvaða áhrif skynditíska hefur á umhverfið. Tískuiðnaðurinn er einn mest mengandi iðnaður jarðarinnar og hefur í einu orði sagt stórfelld áhrif á umhverfið og vistkerfi jarðarinnar í heild; töluvert meiri og víðtækari áhrif en við flest gerum okkur grein fyrir. Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.2023-02-271h 02slowstudioslowstudio3. Helgi Ómars - Leiðin að meðvitaðara lífiÍ þessum þætti fengum við til okkar Helga Ómars - ljósmyndara, tískugúru, áhrifavald, hlaðvarpsstjórnanda og svo mikið meira. Við ræðum meðal annars vegferð Helga að meðvitaðara lífi, um tískuheiminn og tímann hans hjá risa módelskrifstofu í Köben og hans sýn á starfið sem áhrifavaldur. Það var dásamlegt að fá að spjalla við Helga og við vonum að þið njótið spjallsins jafn vel og við gerðum. Þátturinn er í boði På Stell og Plantan kaffihús.2023-02-131h 35slowstudioslowstudio2. Fast fashion - Hvað er það?Fast fashion eða hröð tíska/skynditíska eru orð sem margir hafa heyrt en vita þó kannski ekki fyllilega um hvað það snýst eða hvað það sé. Skynditíska er málefni sem hefur marga anga og því ákváðum við að skipta því niður á nokkra þætti og búa til einskonar “fast fashion seríu”. Í þessum fyrsta þætti í seríunni förum við yfir grunnatriði sem mikilvægt er að vita um skynditísku og hlökkum við mikið til að kafa dýpra í þetta málefni með ykkur. Þátturinn er í boði Alba heildsala og Plantan kaffihús.2023-01-3059 minslowstudioslowstudio1. Hverjar erum við og afhverju slowstudio hlaðvarpið?Hæ! Við heitum Halldóra og Sesselía og í þessu hlaðvarpi munum við ræða um allt sem tengist tísku og sjálfbærum lífsstíl ásamt því að fá til okkar sérfræðinga í einlægt spjall um slík málefni. Við eigum það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á hvernig hægt sé að njóta alls þess sem í boði er í nútímasamfélagi á ábyrgan og sjálfbæran hátt og leitumst markvisst að því hægja á og einfalda lífið. Verið hjartanlega velkomin með í þá vegferð 2023-01-2328 min