podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Wiium
Shows
Podcast með Sölva Tryggva
Stóri UFO þátturinn
https://solvitryggva.is/ Gunnar Dan Wiium hefur sökkt sér dýpra en flestir í að rannsaka sögur af fljúgandi furðuhlutum og mögulega tilvist lífs annars staðar en á jörðinni. Í stóra UFO þættinum kafa Sölvi og Gunnar djúpt í allt það helsta í þessum málefnum og hvað hefur verið að koma upp á yfirborðið á undanförnum misserum. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorganic.com...
2025-05-06
1h 46
Podcast með Sölva Tryggva
#351 Stóri UFO þátturinn (Áskriftarþáttur)
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Gunnar Dan Wiium hefur sökkt sér dýpra en flestir í að rannsaka sögur af fljúgandi furðuhlutum og mögulega tilvist lífs annars staðar en á jörðinni. Í stóra UFO þættinum kafa Sölvi og Gunnar djúpt í allt það helsta í þessum málefnum og hvað hefur verið að koma upp á yfirborðið á undanförnum misserum. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup...
2025-03-26
20 min
Sölvi Áskriftarþættir
#351 Stóri UFO þátturinn
Gunnar Dan Wiium hefur sökkt sér dýpra en flestir í að rannsaka sögur af fljúgandi furðuhlutum og mögulega tilvist lífs annars staðar en á jörðinni. Í stóra UFO þættinum kafa Sölvi og Gunnar djúpt í allt það helsta í þessum málefnum og hvað hefur verið að koma upp á yfirborðið á undanförnum misserum. Þátturinn er í boði; Caveman - https://www.caveman.global/ H-Berg - https://hberg.is/ Nings - https://nings.is/ Myntkaup - https://myntkaup.is/ Kaja Organic - https://www.kajaorgan
2025-03-25
1h 43
Þvottahúsið
Íslenskt UFO og nýjasti uppljóstrarinn andsetin feminískri orku
Í nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir félagarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í áframhaldandi umræðu um fljúgandi furðuhluti. Í þættinum fóru strákarnir yfir nokkrar nýjar frásagnir íslendinga sem þeim hefur borist. Flestir kusu að segja sína sögu í nafnleynd og talsvert myndefni fylgdu frásögnunum. það sem vakti mestu athyglina voru myndbönd sem tekin voru í Njarðvík og Gravarvogi í nóvember og desember á síðasta ári. Myndböndin sýna það sem virðist vera óvenju skærar stjörnur en þegar zoomað er inn sést a...
2025-01-23
58 min
Þvottahúsið
UFO’ið heldur áfram
Í nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir niður álhattarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson í framhaldi af hinum stóra UFO þætti sem kom út í síðustu viku. Í kjölfar síðasta þáttar sem 2% þjóðarinnar hlustuðu og horfðu á höfðu margir samband við þáttastjórnendur Alkasts Þvottahússins með frásagnir og teikningar sem lýsa allskonar undarlegu. Engin þessara einstaklinga sagðist vera klár til að koma fram undir nafni en strákunum væri frjálst að deila sögunum. Ein sagan þótti afar athyglisverð en kona ein hafði...
2025-01-12
1h 25
Þvottahúsið
Stóri UFO þátturinn. Mögulegt upphaf af endalokunum
Í nýjasta þætti Alkasts Þvottahússins settust þeir niður kumpánarnir Gunnar Dan Wiium og Arnór Jónsson og ræddu í þaula málin sem snúa að gríðarlegri aukningu meintra tilfella fljúgandi furðuhluta. Síðan í lok nóvember á síðasta ári hefur tilfellum fjölgað alveg gríðarlega þar sem venjulegt fólk segist verða vitni af fljúgandi furðuhlutum eða UFO. Ferlið sem virtist hefjast með dularfullum hnetti sem virtist bara svífa um á flugvellinum í Manchester varð svo að dularfullri atburðarrás í New Jersey í BNA sem ekki er útséð hvernig muni enda.
2025-01-07
1h 06
Podcast með Sölva Tryggva
#303 Gunnar Wiium snýr aftur (Áskriftarþáttur)
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður sem hefur víða komið við og hikstar ekki við að tjá skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um karlmennsku, sannleika, kærleika, stöðuna í samfélaginu og margt fleira. Þátturinn er í boði; Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Outdoor Tactical Sport - https://www.otsport.is/ H-Berg - https://hberg.is/
2024-09-04
20 min
Sölvi Áskriftarþættir
#303 Gunnar Wiium snýr aftur
Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður sem hefur víða komið við og hikstar ekki við að tjá skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um karlmennsku, sannleika, kærleika, stöðuna í samfélaginu og margt fleira.
2024-09-04
1h 36
Podcast með Sölva Tryggva
#287 Gunnar Wiium með Sölva Tryggva (áskriftarþáttur)
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður sem hefur víða komið við og hikstar ekki við að tjá skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, rétttrúnað, samsæriskenningar, hugvíkkandi efni, sátt, kærleika og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Outdoor Tactical Sport - https...
2024-06-26
20 min
Sölvi Áskriftarþættir
#287 Gunnar Wiium með Sölva Tryggva
Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður sem hefur víða komið við og hikstar ekki við að tjá skoðanir sínar umbúðalaust. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, rétttrúnað, samsæriskenningar, hugvíkkandi efni, sátt, kærleika og margt margt fleira.
2024-06-25
1h 34
Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Spjallið með Frosta Logasyni | S02E21 | Karlmennska getur aldrei verið eitruð
Gunnar Dan Wiium er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann er smiður, hlaðvarpsstjórnandi og pistlahöfundur og ræðir í þessu viðtali vítt og breitt um samfélagsmál eins og þau blasa við honum. Eins og til dæmis karlmennsku, testesterón og breytingarskeið karla en hann upplifir þá umræðu oft á tíðum á miklum villigötum sér í lagi þegar hún er á forsendum kynjafræðinga og femínista. Þriðja vaktin. Uppeldi barna og misvísandi skilaboð úr skólakerfinu sem hann segir foreldra þurfa að hafa hugrekki til að tjá sig um og jafnvel stundum tala gegn ef þannig...
2024-03-18
08 min
Allt um ættleiðingar
Gunnar Dan Wiium og konan hans ættleiddu dóttur sína frá Indlandi í gegnum Danska ættleiðingarstofu
Gunnar og konan hans bjuggu í Danmörku og fóru í gegnum ættleiðingarferlið þar í landi. Þau ættleiddu dóttur sína frá Indlandi árið þegar hún var um þriggja ára gömul.Í þættinum ræðum við um söguna þeirra, ferðalagið til Indlands og þær hindranir og áskoranir sem áttu sér stað í ferðalaginu. Við tölum um baráttu hans við fínkisjúkdóm, Breytingaskeið karla og kanóbíóða olíur til að styðja við taugakerfið og margt fleira.Gunnar er smiður í grunninn og vinnur í Handverkshúsinu. Hann er með hlaðvarpið Þvottahúsið og er meðlimur í hamfélag...
2024-03-09
2h 01
Þvottahúsið
Ástþór Magnússon okkar ástkæri fossetaframbjóðandi
Í nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með hinum ástsæla og friðelskandi forsetaframbjóðanda Ástþóri Magnússyni. Ástþór sem efnaðist fyrir um 30 árum síðan á rekstri tölvusyrirtækja fékk vitrun eða sýn þar sem hann áttaði sig á skertri samkennd viðskiptaheimsins og útfrá þeirri sýn tók ákvörðun um að helga líf sitt baráttu fyrir friði á jörðu. Hann stofnaði friðarsamtökin Frið 2000 á sínum tíma og vöktu samtökin mikið umtal og mikla athygli fyrir um tuttugu árum...
2024-03-05
1h 10
Víðsjá
Þór Wiium ljóðaslammari, Arnbjörg M. Daníelsen um Egil Sæbjörns, Vaðlaheiðargöng
Um liðna helgi fór fram árleg ljóðaslammkeppni Borgarbókasafnsins þar sem Þór Wiium bar sigur út býtum með ljóðið Merktur. Ljóðið fjallar um upplifun Þórs á því að vera trans karlmanður og viðbrögð samfélagsins. Í ljóðaslammi er það ekki síst flutningurinn sjálfur og tenging við áhorfendur sem skiptir máli og óhætt er að segja að flutningur Þórs hafi hitt alla viðstadda í hjartastað. Þór verður gestur okkar í þætti dagsins. Egill Sæbjörnsson og óendanlegir vinir alheimsins nefnist stórsýning sem stendur yfir í Listasafni Íslands um þessar mundir. En þar má bera augum ný og eldri verk eftir...
2024-02-05
56 min
Víðsjá
Þór Wiium ljóðaslammari, Arnbjörg M. Daníelsen um Egil Sæbjörns, Vaðlaheiðargöng
Um liðna helgi fór fram árleg ljóðaslammkeppni Borgarbókasafnsins þar sem Þór Wiium bar sigur út býtum með ljóðið Merktur. Ljóðið fjallar um upplifun Þórs á því að vera trans karlmanður og viðbrögð samfélagsins. Í ljóðaslammi er það ekki síst flutningurinn sjálfur og tenging við áhorfendur sem skiptir máli og óhætt er að segja að flutningur Þórs hafi hitt alla viðstadda í hjartastað. Þór verður gestur okkar í þætti dagsins. Egill Sæbjörnsson og óendanlegir vinir alheimsins nefnist stórsýning sem stendur yfir í Listasafni Íslands um þessar mundir. En þar má bera augum ný og eldri verk eftir...
2024-02-05
56 min
Podcast með Sölva Tryggva
#247 Gunnar Wiium - Frelsandi að vera berrassaður
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður semi hefur víða komið við. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, neyslu, græðgi, hugvíkkandi efni, naktar gufuferðir og margt margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/ Biobú - https://www.biobu.is/
2024-01-31
20 min
Hampkastið
Þórarinn Ævarsson talar RSO olíu og hugvíkkandi efni
Þórarinn Ævarsson fyrrum framkvæmdarstjóri IKEA og kraftkarakter kom í Hampkastið og ræddi við Gunnar Dan Wiium og kraftaverkamátt RSO olíunar og reynslu sína og vitundarvakningu með hjálp hugvíkkandi nátturuefna.
2023-12-04
1h 10
Þvottahúsið
Sara Páls er ekkert að grínast með þessa dáleiðslu!
Alkastið heldur innreið sína á hljóðvarpsmakraðinn áfram. Að þessu sinni settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Dan Wiium niður með dáleiðaranum og orkuheilaranum Söru Pálsdóttur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sara kemur í viðtal hjá Gunnari því að á tímum Þvottahússins mætti hún tvisvar í viðtal og dáleiddi þá Gunnar í fyrra skiptið og Davíð bróður hans í seinna skiptið. Að þessu sinni átti að taka örlítið annan pól í hæðina og sjá hvort væri hægt að dáleiða Arnór og tengja hann aftur við fyrra líf. Arnór komst að því að hann...
2023-11-23
1h 09
Þvottahúsið
Davíð Karl, hann gæti fokkað þér upp
Í nýjasta þætti Alkastsins settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Davíð Karl Wiium. Davíð er aðdáendum Þvottahússins kunnugur sem meðstjórnandi þeirra rúmlega hundrað þátta sem hlaðvarpið Þvottahúsið gaf út á tveggja ára tímabili. Davíð er sannur þúsund þjalasmiður, með eindæmum atorkusamur enda með marga bolta á lofti. Gunnar og Davíð fóru yfir sögu Þvottahússins og mikilvægi þess að vera í góðum samskiptum við fjölmiðla ef óþekktir einstaklingar eins og þeir vildu koma hlaðvarpi sínu á framfæri. Gunnar tilkynnti nýjung sem snýr að tengslum við miðili...
2023-11-08
1h 31
Podcast með Sölva Tryggva
#226 Gunnar Wiium með Sölva Tryggva
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Gunnar Wiium er hlaðvarpsstjórnandi og smiður semi hefur marga fjöruna sopið. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, karlmennsku, upplýsingaflæði, vakningu í heiminum og margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Heilsubarinn - https://www.heilsubarinn.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
2023-11-01
20 min
Þvottahúsið
Guðrún Bergman og eðlufólkið - Alkastið í boði Þvottahússins
Í nýjasta Alkastinu settust þeir Arnór Jónsson og Gunnar Wiium niður með Guðrúnu Bergmann og ræddu við hana um heima og geima. Guðrún hefur um árabil verið áberandi í íslensku samfélagi sem frumkvöðull, lífsstílsráðgjafi, uppreisnarseggur og almenn heilsuvera. Spjallið hófst á umræðu úr öðrum heimi, nánar tiltekið á heimsókn vera úr öðrum heimi til Íslands árið 1993, en þá höfðu verur af öðrum heimi boðað komu sína á Snæfellsnes. Fjöldi fólks lagði leið sína þangað til þess að verða vitni að opinberuninni, en því miður, létu geimverunar...
2023-10-13
1h 51
Þvottahúsið
Alkastið Jana Napoli - Með lífið í lúkunum
Alkastið er nýjasta afsprengi hlaðvarpssamsteypunar Þvottahúsið. Alkastið sem samanstendur af spyrlunum Gunnari Dan Wiium og Arnóri Jónssyni ásamt tæknitröllinu Mickael Omar Lakhlifi. Alkastið mun vera með þætti í vetur með 2-3 vikna fresti og munu málefnin sem verða tekin fyrir vera eldfim sem og léttvæg í bland. Nýjasti gestur Alkastins er Jana Napoli. Janna, 77 ára kona frá New Orlens sem frá tólf ára aldri hefur lesið í lófa. Hún segir í viðtalinu hvernig hún fyrir rælni rakst á bók þar sem lófalestur var útskýrður og um leið fann...
2023-09-17
1h 07
Podcast með Sölva Tryggva
#215 Gunnar Wiium með Sölva Tryggvai
Nálgast má þáttinn í heild sinni inn á; https://solvitryggva.is/ Gunnar Wiium er kennari og hlaðvarpsstjórnand semi hefur marga fjöruna sopið. Í þættinum ræða Sölvi og Gunnar um samfélagsmál, geimverur, samsæriskenningar og margt fleira. Þátturinn er í boði; Fitness Sport - https://www.fitnesssport.is/ Heilsubarinn - https://www.heilsubarinn.is/ Ozon - https://www.ozonehf.is/ Narfeyrarstofa - https://narfeyrarstofa.is/ Nýja vínbúðin - https://nyjavinbudin.is/
2023-09-13
20 min
Hampkastið
Robert C. Clark
Robert C. Clark: „Íslendingar þurfa eigið afbrigði af kannabis“„Í sannleika sagt þá er þetta ekki réttur staður á jarðkringlunni. Þið eruð of nálægt pólnum,“ segir bandaríski rithöfundurinn og fræðimaðurinn Robert C. Clark í nýjasta þætti HAMPKASTSINS, umræðuþætti Hampfélagsins, um ræktun kannabisplöntunnar á Íslandi. Robert hefur rannsakað kannabis frá því snemma á áttunda áratug síðustu aldar og fylgt eftir gríðarlegum breytingum á landslaginu þegar kemur að kannabis í Bandaríkjunum en einnig í Evrópu þar sem hann var búsettur lengi í Amsterdam. Robert er borin og barnfæddur í...
2023-07-21
52 min
Þvottahúsið
Þvottahúsið#101 Vísindamaðurinn Egill S. færir okkur ZIM
Eftir fjögura mánaða þunglyndi, kulnum, covid, þráhyggju og myrkur er Þvottahúsið snúið aftur. Það má með sönnu segja að bræðurnir Gunnar og Davíð Wiium hafi lagst undir feld af gefnum forsendum og snúið tvíefldir til baka en með nýjar stefnur og áherslur sem verða stöðugt kynntar aftur og aftur eftir því sem þær breytast. Nýjasti gestur bræðrana er engin annar en vísindamaðurinn Egill Sæbjörnsson sem hefur verið búsettur í Berlín í ein tuttugu ár þar sem hann hefur starfað við sín vísindastörf tvinnuð í opnu flæði...
2023-03-30
1h 05
Hampkastið
Hampkastið - Gunnar Dan Wiium
Hampkastið er hlaðvarp Hampfélagsins. Í þessu hlaðvarpi tölum við um það hvernig hægt er að vinna með móðir jörð til þess að gera okkur sjálfbærari með áherslu á hamp plöntuna og hvað hún getur gert fyrir okkur. Gestur Hampkastins er Gunnar Dan Wiium. Gunnar Dan er smiður að mennt og vinnur sem smíðakennari í waldorfskólanum Sólstafir Gunnar hefur líka haldið úti hlaðvarpinu Þvottahúsið og gaf út 100 þætti ásamt bróðir sínum.
2023-01-06
57 min
Þvottahúsið
Þvottahúsið#98 Vilmundur Möller Sigurðsson er whistleblower og dýnuhvíslari
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er Vilmundur Möller Sigurðsson, rafeindarvirkjameistari, whistleblower og dýnuhvíslari.Vilmundur uppgvötvaði fyrir að um 5 árum að heilsudýnan sem hann hafði keypt dýrum dómum árið 2006 væri í raun alvarlega heilsuspillandi. Hann var farin að glíma við alvarlega heilsukvilla á við krónískir verkir um allan líkama, sár og útbrot, hárlos, bólgur og gigt, hann var komin með kæfisvefn og ofsasvita, stöðug síþreyta og draugverkir sem færðust til um líkaman í að virtist algjöru samhen
2022-10-17
1h 25
Þvottahúsið
Þvottahúsið#97 Ágúst Kristján hefur sigrast af geðveiki og fengið stómu
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Daíviðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er hann Ágúst Kristján Steinarsson stjórnunarráðgjafi, tónlistarmaður, fyrirlesari og rithöfundur. Ágúst er með langa sögu af geðkvillum sem og baráttu við krabbamein sem leiddi til þess að ristillinn var fjarlægður og er hann með stómu í dag. Í viðtalinu fer hann yfir sögu sína af geðrofum sem hann hefur þurft að ganga í gegnum. Þessi geðrof hafa leitt hann í maníur með þeim afleiðingum að hann hefur þurft að sæta sjálfræðissviptingum og...
2022-10-10
1h 10
Þvottahúsið
Þvottahúsið#95 Egill S. er ekki 100% áræðanlegur
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í þvottahúsinu er engin annar en listamaðurinn Egill Sæbjörnsson. Egill kom til bræðrana fyrir rúmu ári síðan í þátt nr 34. Þar fóru þeir í söguna hans Egils sem leiddi hann að hinni kjöthráu raf rokks plötu Tonk of the lawn sem kom út um síðustu aldarmót. Platan Tonk of the lawn er án efa einn af mestu kult plötum Íslands. Hljómurinn kom hrár eins og ljónsöskur eftir margra ára bælingu og fjötrun. Þessi einlæga plata er án efa ein sú...
2022-09-12
1h 15
Þvottahúsið
Þvottahúsið#94 Guðmundur Fylkisson leitar af týndri æsku
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvotahúsið er engin annar en Guðmundur Fylkisson lögreglumaður til margra ára og aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eitt af merginverkefnum Guðmundar er að sinna leit að einstaklingum, einna helst ungmennum. Í gegnum árin hefur þú einnig sinnt samningaviðræðum fyrir hönd sérsveitarinnar, til dæmis þegar einstaklingar eru í sjálfsvígshugleiðingum. En í 8 ár hefur hefur hann sinnt málaflokk sem snýr að börnum og ungmennum í stroki. Verkefnið sem hófst sem eins árs tilraunaverkefni í nóvember 2014...
2022-08-17
1h 31
Þvottahúsið
Þvottahúsið#93 Mummi í Götusmiðjunni gerir upp atlöguna og mannorðsmorðið
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Týr Þórarinsson sem kannski betur er þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni. Mummi er rokkari, mótórhaus, bindindismaður og Kvikmyndagerðarmaður í grunninn og listaspíra inn við hjartað. Mummi var villingur, tossi að eigin sögn. Gékk ílla í ferköntuðu skólaumhverfi og fljótt var hann farin að misnota fíkniefni. Honum var svo reyndar sparkað úr meðferð af Vogi eftir 7 daga fyrir að vera ekki nógu góður alki eins og hann orðaði það en samt sem áður er hann búin að v...
2022-07-01
2h 25
Þvottahúsið
Þvottahúsið#92 Sara Páls, dáleiðari og orkuheilari snýr aftur og dustar burt kuskið.
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er lögmaðurinn, dáleiðarinn og orkuheilarinn Sara Pálsdóttir. Sara sem hefur stundað dáleiðslu og orkuheilun samhliða lögmennsku í nokkur á núna segir að þessi andlega vinna sé farin að taka meira og meira yfir og að hún sé um þessar mundir hægt og rólega að draga sig úr lögmennsku og ætlar að eingöngu að einbeita sér að orkuheilun og dáleiðslu. Sara kom til bræðrana Gunnars og Davíðs fyrir hálfu ári eða svo í þátt...
2022-06-30
1h 31
Þvottahúsið
Þvottahúsið#91 Villimey og Margrét sjá um neyslurýmið Ylja
Nýjustu gestir bræðranna Gunnars og Davíðs Wííum eru þær Villimey Líf Friðriksdóttir og Margrét Dís Yeoman. Villimey Líf sem er þroskaþjálfi og Margrét Dís sem er hjúkrunarfræðingur starfa að tilraunaverkefni á vegum Rauða krossins í málaflokk skaðaminnkunar í formi neyslurýmis sem ber heitið Ylja. Neyslurýmið Ylja er úrræði þar sem þau sem nota vímuefni geti komið og notað efnin í öruggu rými undir leiðsögn frá heilbrigðismenntaðra aðila. Með þessu er reynt að koma í veg fyrir hættu á ofskömmtun sem og sýkingum sem...
2022-06-25
1h 03
Þvottahúsið
Þvottahúsið#90 Kristín frá Frú Ragnheiði og Svavar Georgs fara yfir skaðaminnkun
Nýjustu gestir bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium eru Kristín Davíðsdóttir og Svavar Georgsson. Kristín er hjúkrunarfræðingur og teymisstjóri skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum og Svavar fyrrum skjólstæðingur frú Ragnheiðar og að eigin sögn fíkill og alkahólisti í bata með að verða 3 ára edrúmennsku?Þau Svavar og Kristín höfðu aldrei hist áður en þemi viðtalsins var skaðaminnkun og í því samhengi starfsemi Frú Ragnheiðar sem hefur verið starfrækt síðan 2009. Frú Ragnheiður vinnur eftir hugmyndafræði skaðaminnkunar þar sem lögð er á...
2022-06-14
1h 10
Þvottahúsið
Þvottahúsið#89 Þorsteinn Úlfar um ÍLLGRESI ANDSKOTANS
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en rithöfundurinn, afglæpasinninn og hampaktivistinn Þorsteinn Úlfar Björnsson. Þorsteinn sem hefur gefið út ógrinni af bókum tengt gróðri og ræktun allskonar og ber að nefna bækurnar Villigarðurinn og Funga sem er bók um sveppi. Þátturinn í Þvottahúsinu fjallaði hinsvegar um hampinn eða Cannabis sativa eins og hann er nefndur. Þorsteinn gaf út árið 1978 bók sem ber heitið Hampur, inni og úti ræktunarleiðbeiningar. Sú bók er orðin að vissu költ fyrirbæri í heimi ham...
2022-06-14
1h 19
Þvottahúsið
Þvottahúsið#88 Haraldur Erlendsson lítur á sannleikan brögðum ofar
Nýjasti gestur bræðarana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en geðlæknirinn og nýkosin deildarforseti Guðspekifélagsins á Íslandi Haraldur Erlendsson.Haraldur útskrifaðist úr læknadeild Háskóls Íslands og starfaði á Borgarspítalnum á endurhæfingar og taugadeild og svo á lyfjadeild. Hann tók nám í taugalækningum í London (DCN). Haraldur starfaði í nær fimm ár við heilsugæslu á landsbyggðinni og var læknir á Flateyri þegar snjófljóðin féllu 1995. Þá byrjaði hann að vinna með fólk með áfallastreitu og í framhaldi af því lærði geðlækningar í Bretlandi og kláraði sérfræðiprófin 1999...
2022-06-14
1h 07
Þvottahúsið
Þvottahúsið#87 Guðmundur Arngríms klagar sveitta kúreka
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en Guðmundur Hrafn Arngrímsson landslagsarkitekt og skipulagsfræðingur, helluhvíslari, möndluristari og formaður Samtaka leigjenda.Guðmundur sem sjálfur er á leigumarkaði hefur sett sig á bólakaf í þessi mál með aukinni eftir eftirspurn á einskonar regluverki utan um rétt leigutaka og rými leigusalans.Guðmundur nefnir í því samhengi þræl skipulagt og skilvirkt kerfi leigumála í öðrum löndum eins og Danmerku, Noregi, og Finnlandi svo eitthvað sé nefnt. Í raun í flestum nágrannalöndum, Evropulöndum er einskon...
2022-06-09
1h 30
Þvottahúsið
Þvottahúsið#86 Alda Karen er svo nóg að það hálfa væri nóg
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er engin önnur en fjöltalentinn Alda Karen Hjaltalín.Alda Karen hefur búið um árabil í New York þar sem hún starfar við persónulega ráðgjöf og við að þjónusta fyrirtæki við sölu og markaðssetningu.Alda sem hér áður fyrr var hún sölu- og markaðsstjóri hjá Saga Film og seinna hjá samfélagsmiðlafyrirtækinu Ghostlamp starfar í dag ekki aðeins sem ráðgjafi heldur er hún einnig rithöfundur og vinsæll fyrirlesari.
2022-05-24
1h 03
Þvottahúsið
Þvottahúsið#85 Hjólahvíslarinn kveður
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en reiðhjólahvíslarinn Bjartmar Leósson. Bjartmar sem nýlega hætti störfum sem leikskólastarfsmaður eftir 17 ár er einna helst þekktur í samfélagi fýkla og utangarðsmanna fyrir brenheita réttlætiskennd og endurheimt stolina hjóla sem mikið er af í miðbæ Reykjavíkur sérstaklega. “Það kom tímabil þar sem ég ákvað að bara ekki vera á bíl, hjólaði alltaf í vinnuna hálftíma leið og sennilega í besta formi lífs míns þá. En bíladellan er sterk, en ég hef þa...
2022-05-13
1h 10
Þvottahúsið
Þvottahúsið#84 Ingeborg Andersen krukkar í jurtum og plöntum því hún er grasalæknir
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin önnur en grasalæknirinn Ingeborg Andersen. Ingeborg lærði vestrænar grasalækningar við University of Westminster í London. Ingeborg kemur úr fjölskyldu af læknum, afi hennar og pabbi eru læknar og mamma hennar hjúkrunarfræðingur. Það hafi alltaf legið fyrir að hún skuli einnig verða læknir en þegar að nær dróg fann hún að henni fannst námið ekki bara þurrt heldur líka erfitt yfirferðar sökum viss áhugaleysis um námsefnið. I...
2022-05-10
1h 14
Þvottahúsið
Þvottahúsið#83 Mannkynsfrelsarinn deyr og visnar í fallegasta fangelsi sem til er
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar er Ingólfur Níelsson. Þessi þáttur bræðrana með Ingólfi er síðasti þátturinn í trílógiunni Sitting bull sem svo varð mannkynsfrelsarinn. Í fyrsta þættinum lýsti hann því hvernig hann fór í gegnum mikið ferðalag þjáninga sem svo leiddi hann inn í dauðareynslu sem hann varð fyrir í fangaklefa í Kaupmannahöfn. Dauðareynslan hafði djúp sálræn áhrif á hann og byrjaði vegferð hans þaðan inn í ljósið eins og hann kallar það.“Við erum yfirleitt bara að líta á okkur sem...
2022-05-04
1h 18
Þvottahúsið
Þvottahúsið#82 Steini í Quarashi STICKS´EM UP!
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en skeitarinn, tónlistarmógúllinn Steinar Fjelsted eða Steini í Quarashi eins og hann er gjarnan kallaður. “Þetta byrjaði samt bara mest með Public Enemy og NWA”“Ég man enþá eftir þessu í dag, þegar að Check your head með Beasty Boys kom út, það breytti bara öllu, tónlistarlega séð, tískulega séð, hugsunarhætti, bara tónlist, breytti bara öllu, heimurinn fór á hliðina. Þetta er örugglega eins og þegar fyrsta Bítlaplatan kom út”“Ég stofnaði mína fyrstu hljómsveit 9 ára, Alcoholic Brot...
2022-04-26
1h 24
Þvottahúsið
Þvottahúsið#81 Ásdís Olsen fer sjálf undir yfirborðið
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin önnur en lífskúnstnerinn Ásdís Olsen.Ásdís er marfaldur Íslandsmeistari á skíðum, sjónvarpskona, fyrrum flugfreyja, fræðimaður, kennari og fyrirlesari á sviði jákvæðrar sálfræði og núvitundar og hefur sérhæft sig í hagnýtum aðferðum til að auka vellíðan og hamingju fólks, sem sagt kona sem hefur komið víða við. Gunnar hafði orð á því í byrjun þáttarins hve ferilskrá Ásdísar væri löng og fjölbreytt, nánast heill doðrantur. “Það getur vel ve...
2022-04-20
1h 10
Þvottahúsið
Þvottahúsið#80 Friðrik Agni, mögulega fyrsti litaði hommaforsetinn!
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en dansarinn, pistlahöfundurinn og múltikunsterinn Friðrik Agni Árnason. “Ef ég ætti að segja að eitt af þessu sé svona innsti kjarninn þá er það dansinn, alveg innst, og svo út frá því kemur allskonar annað, skapandi, eins og að skrifa, svona tjáskipti”“Ég sá strák, varð hrifin af honum, hann var fyrirsæta og ég var ég var líka að vinna sem fyrirsæta þegar ég var unglingur og við kynntumst og allt í einu vorum við bara að deita og ég svo sagði...
2022-04-12
1h 21
Þvottahúsið
Þvottahúsið#79 Snorri Ásmunds er hinn mikli Hilarion
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en fjöllistamaðurinn Snorri Ásmundsson. Snorri sem hefur fengist við gjörningslist síðan hann man eftir sér lifir einnig og þrífst í málaralistinni. Hann segist í raun lifa á málaralistinni en að gjörningslistformið sé það sem stendur honum næst í einhverjum kjarna. Snorri hefur eins og sagt hefur verið í einskonar listgjörning síðan hann var lítill drengur. Gunnar spyr hann einmitt um gjörning sem hann Snorri framkvæmdi sem ungur drengur á götum Akureyrar þar sem hann bjó á þeim tíma. Gjörningin myndu...
2022-04-01
1h 01
Þvottahúsið
Þvottahúsið#78 Krummi MMA gæti lamið þig í klessu og er STUNTMAN
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar er bardagahundurinn og áhættuleikarinn Hrafn Þráinsson einnig þekktur sem Krummi.Krummi er einn eigendum RVK MMA og umsjónarmaður barna og unglingastarfs hjá RVK MMA ásamt því að vera yfirþjálfari yngri aldursflokka. Krummi byrjaði snemma að æfa Karate með Karatedeild Þórshamars um 5 ára gamall. Honum féll vel við agan og þessa formfestu sem einkennir hefðbundið Karate og því hélst hann þar í ein 11 ár eða þar til hann varð 16 ára gamall. Við tóku nokkur ár þar sem hann leitaði af sjálfum sé...
2022-03-27
1h 21
Þvottahúsið
Þvottahúsið#77 Olga Björt og stóri metoo þátturinn
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin önnur en blaðakonan, ritstýran, kennarinn og feministinn Olga Björt Þórðardóttir.Þemi viðtalsins var án efa meetoo byltingin og almennt samskipti kynjana frá vinkli geranda og þolanda. Gunnar rak augun í grein sem Olga skrifaði í lok Janúar, grein þar sem Olga fór yfir atburði sem hún varð fyrir sem barn. Í greininni lýsti hún atburðum þar sem hún var barin bakvið skúr fjögura ára gömul af jafnöldrum sínum, tveim drengjum. Ann...
2022-03-24
1h 53
Boltinn lýgur ekki
Boltinn Lýgur Ekki - Máté rífur þögnina og Þór Þorlákshöfn orðnir þrefaldir meistarar
BLE bræður voru í góðu skapi þennan fimmtudaginn. Byrjuðu á því að fara yfir fjögurra tíma leikdag Sigga í Smáranum áður en NBA deildin var tekin föstum tökum sem endaði í Who he play for?. Síðan kom Máté Dalmay, þjálfari Hauka, sem tryggði sér sæti í deild þeirra bestu á mánudaginn og fóru þeir saman í gegnum íslenska boltann og Tommi hringdi óvænt í Ísak Mána Wiium og bað hann afsökunnar á köldum en nauðsynlegum aðgerðum síðastliðin föstudag.
2022-03-17
1h 55
Þvottahúsið
Þvottahúsið#76 Þór Guðna fer með okkar á sveppaferðalag
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Þór Guðnason. Þór sem er sonur Guðna í Rope yoga, hefur verið lengi lengi í bransanum eins og maður segir. Hann hefur fengist við allskonar einkaþjálfun og ráðgjöf. Hann var sá fyrsti sem náði sér í réttindi hjá kuldameistaranum Wim Hof sjálfum. Hann var einn af stofnendum Primal Iceland og svona væri lengi hægt að telja. Maður mikillar reynslu hér á ferð. Þór hefur síðustu ár verið hugfangin af möguleikum hinna ýmsu hugvíkkandi efna en þá fyrst og f...
2022-03-17
1h 26
Þvottahúsið
Þvottahúsið#75 Boff Konkerz er ekkert að fokking grínast
TRIGGER WARNING. Lýsingar tengt BDSM, kinki, satanisma og buttpluggum í þættinum gætu farið fyrir brjóstið á viðkvæmum.Viðtalið fór fram á ensku.Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er engin annar en Boff Konkerz. Boff er húðflúrmeistari frá London sem býr yfir mörgum sérkennum og einstæðum hæfileikum. Boff er mikill Íslandsvinur enda búin að venja komu sína til Íslands síðustu ár með mjög reglulegu millibili í þeim tilgangi að húðflúra landan. Sjálfur er Boff nánast fullbody flúraður, það eina sem va...
2022-03-07
1h 13
Þvottahúsið
Þvottahúsið#74 Lilja Sif. Sálinn sem undirbýr ferðalanga
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er sálfræðingurinn Lilja Sif Þorsteinssdóttir. Lilja sem stendur á bakvið sálfræðiþjónustuna Heilshugar hefur fengist við ýmislegt innan hefðbundinar sálfræði. Heilshugar virðist vera samt sem áður bjóða upp á nýjungagjarnar aðferðir hvað varðar andlega heilsu og heilun. “Heilshugar er svona batamiðað rými með skaðaminkandi áherslum þar sem að ég er að reyna að blanda saman þessum topp down aðferðum og bottom up aðferðum” Heilshugar bíður einnig upp á námske...
2022-03-03
1h 20
Þvottahúsið
Þvottahúsið#71 Geiri X fer djúpt
TRIGGER WARNING. LÝSINGAR AF NAUÐGUNUM, PYNTINGUM OG OFBELDI Í ÞESSUM ÞÆTTI ERU GRAFÍSKAR.Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum þvottahúsið er Ásgeir Ásgeirsson eða Geiri X eins og hann er gjarna kallaður. Geiri starfaði sem ljósmyndari til fjölda ára, myndirnar hans birtust meðal annars hjá Reuters. Ásgeir er öryrki eftir að hafa verið greindur með sjaldgæfan taugasjúkdóminn CRPS sem stendur fyrir Complex retsional pain syndrom. Sjúkdómurinn lýsir sér í ofvirkum taugaboðum sem senda stanslaus verkjaskilaboð til hei...
2022-02-11
1h 19
Þvottahúsið
Þvottahúsið#73 Ragga Nagli kallar ekki allt ömmu sína
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum þvottahúsið er engin annar en sálfræðingurinn, pistlahöfundurinn einkaþjálfarinn og hlaðvarparinn Ragnhildur Þórðardóttir betur þekkt sem Ragga Nagli. Ragga Nagli er kona sem hefur alltaf haft nóg fyrir stafni, mörg járn í eldinum að hverju sinni. Hún talar um sig sem manneskju fulla að krafti en með athyglisbrest sem lýsir sér þannig að hún eigi erfitt með að einbeita sér að einum hlut í einu. Hún kann best við í aðstæðum þar sem hún multitaskar með marga glugga...
2022-02-06
1h 32
Þvottahúsið
Þvottahúsið#70 Sara Páls er dáleiðarinn
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvotahúsið er lögmaðurinn, dáleiðarinn og orkuheilarinn Sara Pálsdóttir. Sara sem hefur stundað dáleiðslu og orkuheilun samhliða lögmennsku í nokkur á núna segir að þessi andlega vinna sé farin að taka meira og meira yfir. Hún hóf þessa vegferð innan dáleiðslu og hugleiðslu í kjölfar mikillar þjáninga sem voru nálægt því að keyra hana alveg í kaf. Hún byrjaði snemma að drekka alkahólist samhliða því að vera alvarlega þjökuð af átröskun.Viðtalið ski...
2022-02-01
1h 44
Þvottahúsið
Þvottahúsið#69 ÚLFURINN
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er formaður Geðhjálpar og stefnumótunarfræðingur forsetaráðuneytisins Héðinn Unnsteinsson. Héðinn hefur verið mikið í sviðsljósinu síðustu 20 ár í tengslum við geðheilbrigðismál og þó einkun síðustu tvö fyrir tilstilli bókarinnar Vertu úlfur sem svo var sett upp á stóra sviða Þjóðleikhússins. Sýningin er einleikur með Björn Thors í leikstjórn Unnar Aspar Stefánsdóttir og hefur unnið til margra verlauna þar að meðal sjö árleg grímuverlaun.Í viðtalinu fóru þeir yfir hvernig hið hefðbundna geðheilbrigðisker...
2022-02-01
1h 09
Þvottahúsið
Þvottahúsið#68 Inga Halldórsdóttir er samsærisbloggari
Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíð Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er ofurbloggarinn og covid samsæris drottningin Inga Guðrún Halldórsdóttir.Inga sem er einnig tækniteiknari og félagsliði hefur skrifað á annað hundrað bloggfærslur um covid19, bóluefnin og kenningar um alræðishyggju og hina miklu endurræsingu.Bræðurnir Gunnar og Davíð ræddu við hana með opnu hjarta en gagnrýnum hug og þá sérstaklega Davíð sem átti afar erfitt með að draga ályktanir sem snúa að þeim samsæriskenningum sem Inga lagði fram í viðtalinu.https://ingaghall.blog.is/blo
2022-01-26
1h 30
Þvottahúsið
Þvottahúsið#67 Rauði baróninn með parkinson
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er umdeildasti knattspyrnudómari Íslands fyrr og síðar hann Garðar Örn Hinriksson einnig þekktur sem Rauði Baróninn. Garðar fór alltaf sínar eigin leiðir sem ekki alltaf ollu vinsældum hjá knattspyrnusambandinu. Mál málana var þó taugasjúkdómurinn Parkinson sem Garðar greindist með árið 2016. Hann fór að taka eftir skjálfta í vinstri hendi sem varð til að hann leitaði taugalæknis sem nánast greindi hann á staðnum. Fyrsta eina og hálfa árið hélt hann þessum upplýsingum fyrir sjál...
2022-01-20
48 min
Þvottahúsið
Þvottahúsið# 65 Magnús Ver er geðveikt sterkur kall
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wíium er engin annar en kraftakallinn Magnús Ver Magnússon. Magnús sem hefur unnið titilinn heimsins sterkasti maður fjórum sinnum fór yfir feril sinn frá því að hann hóf lyftingar sem unglingur fyrir austan þar til dagsins í dag þar sem vinsæll dómari og mótshaldari svokallaðara “strongman” móta. Tekið skal fram að viðtalið var tekið upp á þrettándan og því talsvert um flugeldahvelli sem heyrast í viðtalinu öðru hverju.
2022-01-08
1h 38
Þvottahúsið
Þvottahúsið#63 Guðmundur Felix er hands on
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíð Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar er Guðmundur Felix handhafi.Felix eins og hann er gjarnan kallaður hefur skrifað sig djúpt í hjörtu fólks bæði hér heima sem og erlendis. Felix lenti í slysi janúar 1998 er hann vann sem rafveituvirki. Slysið sem hefði dregið flesta til dauða varð til þess að líf hans breyttist úr hefðbundinni alþýðu sögu yfir í í hálfgerða hryllingsmynd á skotstundu. Nú 23 árum síðar með fullt af allskonar er hann nýkomin heim í jólaheimsókn með sinni ástkæru...
2021-12-21
1h 15
Þvottahúsið
Þvottahúsið#62 Arnar Þór Jónsson klagar ofríkistilburði
Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er enginn annar en lögmaðurinn og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, Arnar Þór Jónsson. Arnar hefur einnig sinnt starfi sem dómari ásamt því að starfa sem kennari og fræðimaður við Háskólan í Reykjavík.Arnar er lögmaður samtakanna Frelsi og ábyrgð. Samtökin Frelsi og ábyrgð vilja meina að borgaralegt viðnám sé eina vörnin gegn ofríki og harðstjórn. Og þegar vísað er í ofríki og harðstjórn þá er verið að meina framgöngu stjórnvalda í m...
2021-12-20
2h 04
Þvottahúsið
Þvottahúsið#64 Guðrún Bergmann um hina miklu endurræsingu
Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin önnur en Guðrún Bergmann, en hún hefur í rúm 30 ár verið verið ötull talsmaður þess að velja náttúrulegar leiðir til betri heilsu og bættra lífsgæða. Hún hefur haldið ótal námskeið og verið einkum afkastamikill rithöfundur á sviði heilsu, sálar og líkama. Guðrún, sem einnig gæti skilgreinst sem einskonar aktivisti, segist vera manneskja mikillarréttlætiskenndar í bland við djúpt innsæi sem hún hefur öðlast í gegnum sína andlegu vinnu í ö
2021-12-13
1h 22
Þvottahúsið
Þvottahúsið#61 Skoppa og Skrítla lifa að eilífu
Linda Ásgeirsdóttir og Hrefna Hallgrímssdóttir, einnig þekktar sem Skoppa og Skrítla eru nýjustu gestir Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Þær fóru yfir í þættinum farsælan átján ára feril Skoppu og Skrítlu.Það voru blendnar tilfinningar sem bræðurnir Gunnar og Davíð upplifðu í þessari heimsókn Skoppu og Skrítlu í Þvottahúsið. Skoppa og Skrítla hafa á einhvern hátt skrifað sig inn í hug og hjörtu ungra sem aldna í nær tvo áratugi. Skoppa og Skrítla sem þær vilja meina að séu furðuverur án pólitískrar afstöðu og nánast kynlausar ur...
2021-12-10
59 min
Þvottahúsið
Þvottahúsið#60 Sólveig Svavars Heimakennsla og hæææglææti
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er Sólveig Svavarsdóttir.Sólveig er fjögura barna móðir sem hefur síðustu ár þróað með sér og tileinkað svokallaðan hæglætislífstíl eða “slowliving”.Auk þess að lifa meðvituðum lífstíl hæglætis fer hún ótroðnar slóðir hvað varðar skólagöngu sonar síns sem er í öðrum bekk. Sólveig sem er kennara menntuð er ein fjögura á Íslandi sem sér barni sínu fyrir svokölluðum heimaskóla eða ”homeshcooling”.
2021-11-24
52 min
Þvottahúsið
Þvottahúsið#59 Arnór Sveins Kæling, öndun og núvitund
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í Þvottahúsinu er engin annar en kulda og núvitundarmeistari Primal Iceland, Arnór Sveinsson. Arnór fór yfir í þessu viðtali hvernig hann leiddist yfir í andlega iðkun eftir að hafa misst frænda sinn og vinnufélaga til margra ára í hræðilegu slysi í árshátíðarferð í Riga.Arnór sem er alin upp á Álftanesi var ellefu ár til sjós. Þess á milli hékk hann heima og reykti gras ásamt sem hann djammaði með áfengi og öðrum efnum. Arnór fór yfir í viðtalinu hvernig hann upplifði karlmennskuna um bor...
2021-11-18
1h 28
Þvottahúsið
Þvottahúsið#58 Magnús er BDSM
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en Magnús Hákonarson fyrrum formaður B.D.S.M á Íslandi, sjósyndari og almennt mikill meistari.Magnús hefur verið viðloðin BDSM senuna á Íslandi síðastliðin 25 ár. Hann fór yfir það hvernig hann færðist yfir í þessa átt sem ungur maður er hann fór að gera sér grein fyrir vissu tilfinningarrisi við það eitt að binda í kynlífi. Eitthvað svo almennt en í þessu tilfelli vísir í eitthvað sem hefur svo sýnt sig sem sterk BDSM hneigð.https://bdsm
2021-11-17
1h 22
Þvottahúsið
Þvottahúsið#57 Einar Carl er Primal
Nýjasti gestur bræðrana Gunnar og Davíðs Wiium er engin annar en Einar Carl Axelson fyrrum landsliðsmaður í Tae kwon do og einn af stofnendum Primal Iceland.Einar sem fyrir allmörgum árum lenti í alvarlegu snjóbrettaslysi í frönsku ölpunum fann sig knúinn til leita á ný mið með sjálfan sig vegna þeirra meiðsla sem hann hlaut. Sú hreyfing færði hann yfir í nuddnám sem svo varð kveikjan á því sem Primal Iceland er í dag. Ein allsherjar líkamsgreining út frá gríðarlegri reynslu og ríku innsæi hvað varðar líkamsstöðu, öndun og hreyfingar. h
2021-11-17
1h 15
Lagastoð
Sambúðar og hjúskaparmál
Lagastoð er hlaðvarp þar sem fjallað erum lögfræði og lögfræðitengd málefni á mannamáli. Hver er munurinn á réttarstöðu hjúskapar- og sambúðaraðila? Eru til lög um sambúð? Skiptir máli hver er skráður fyrir eignum og skuldum? Er hægt að gera sambúðarsamning? Hvernig skal skipta eignum og skuldum ef sambúðaraðilar slíta sambúð? Þetta eru allt spurningar sem verður svarað í öðrum podcast þætti Lagastoðar. Í þættinum situr Elva Ósk S. Wiium lögmaður og einn af eigendum lögfræðistofunnar Lagastoðar fyrir svörum. Elva Ósk og Sveinbjörg B...
2021-11-08
1h 21
Lagastoð
Erfðamál
Lagastoð er hlaðvarp þar sem fjallað erum lögfræði og lögfræðitengd málefni á mannamáli. Þarf eftirlifandi maki að fá samþykki annarra erfingja til setu í óskiptu búi? Má eftirlifandi maki sem situr í óskiptu búi selja eignir, skuldsetja sig, kaupa aðra eign o.s.frv.? Ef eftirlifandi maki er sambúðarmaki, getur hann fengið leyfi til setu í óskiptu búi? Þarf eftirlifandi sambúðarmaki að gera upp dánarbúið eftir andlát skammlífari sambúðarmaka? Þetta eru allt spurningar sem verður svarað í fyrsta podcast þættir Lagastoðar. Í þættinum situr Elva Ósk S. Wiium lögmaður og einn af e...
2021-11-08
1h 16
Þvottahúsið
Þvottahúsið#56 Ingólfur Níelss Frelsun mannkyns er ekkert djók 🤡
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar er Ingólfur Níelsson. Ingólfur kom fyrir um átta mánuðum síðan í þáttinn og þá lýsti því hvernig hann fór í gegnum mikið ferðalag þjáninga sem svo leiddi hann inn í dauðareynslu sem hann varð fyrir í fangaklefa í Kaupmannahöfn. Dauðareynslan hafði djúp sálræn áhrif á hann og byrjaði vegferð hans þaðan inn í ljósið eins og hann kallar það.
2021-11-07
1h 10
Hvað er Reddingakaffi?
Gunnar Dan Wiium
Í þessum þætti ræðir Sandra við Gunnar Dan Wiium, þúsundþjalasmið. Þessi þáttur er á íslensku In this episodes Sandra talks to Gunnar Dan Wiium, jack of all trades. This episode is in Icelandic Music: Breath you by MSEA https://open.spotify.com/artist/3RbgGMTztybFOB69cwPzr8?si=MfwSuxEzTyCFE0LqHZ2c5w
2021-11-05
23 min
Þvottahúsið
Þvottahúsið#54 Hlynur H_EliteLifestyle
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíð Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar en Hlynur M. Jónsson betur þekktur fyrir nokkrum árum sem ICEFIT en kenndur við H. Elitelifestyle í dag. Hlynur sem er er búsettur á norður Kýpur, starfar þar sem fasteignamiðlari ásamt því að vera áhrifavaldur og Instagramstjarna. https://www.instagram.com/h_elitelifestyle/
2021-10-31
54 min
Þvottahúsið
Þvottahúsið#55 Berglind Rúnars um DMT öndun og ástar og kynlífsfíkn
Öndunarþjálfinn Berglind Rúnarsdóttir var gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í Þvottahúsinu. Hún er ástar- og kynlífsfíkill í bata og kennir fólki að öðlast hugarró, tækla streituna og læra að elska sig. Þau ræða um þráhyggjuna, hneigðina til að fara hratt úr einu sambandinu í annað, óttann, kvíðann og viðkvæma egóið, hvernig hún fór á botninum í samtök ástar- og kynlífsfíkla og hóf að þroskast þar.https://www.brglndyoga.is
2021-10-21
53 min
Þvottahúsið
Þvottahúsið#53 Þórhildur Magnúsdóttir er sundur og saman
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíð Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er elskuleg Þórhildur Magnúsdóttir. Þórhildur sem heldur úti Instagrammið sundur og saman hefur komið til bræðrana áður þá útfrá naumhyggju þema. Nú kemur hún hinsvegar í Þvottahúsið í stórasta sambandsþáttinn. Hún lifir saman með eiginmanni sínum í svokölluðu opnu sambandi þar sem reglur eru ekki margar svo lengi sem allt er upp á borðum og að allir aðilar sýna og nálgast efnið í kærleik og af virðingu. Áhugaverður þáttur sem fær mann til að hugsa um h...
2021-10-12
1h 01
Þvottahúsið
Þvottahúsið#52 Guðrún Eva Mínervudóttir Skapari himins og jarðar
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin önnur en Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur og lífskúnstner. Guðrún Eva sem hefur gefið út yfir tug metsölubókverka sem og þýðingar fer yfir feril sinn í þessu jarðtengda og hlýlega viðtali.
2021-10-11
1h 24
Þvottahúsið
Þvottahúsið#51 SHAFT the tantric sex guru
Bræðurnir Gunnar og Davíð Wiium fengu til sín merkilegan gest í nýjasta hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Um er að ræða engan annan er Shaft Uddin sem starfar sem tantrískur sex gúrú. Shaft sem er af Bangladesísku bergi brotin en uppalin í Bretlandi er um þessar mundir staddur á Íslandi þar sem hann heldur námskeið og fyrirlestra fyrir ástríðufengna Íslendinga. Viðtalið er á ensku.The Wiium brothers Gunnar and Davíð received a remarkable guest in the latest show Þvottahúsið. Shaft Uddin the tantric sex guru is a man who would risk his neck for his brotha man, S...
2021-10-05
1h 37
Þvottahúsið
Þvottahúsið#49 Róbert ROYAL Gíslason
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium er Róbert Royal Gíslason tónlistarmaður sem fyrir rúmu ári síðan missti faðir sinn hinn ástkæra leikara Gísla Rúnar úr sjálfsvígi eftir margra ára þrautargöngu fjötraður í alkahólisma og andleg veikindi. pieta.is sorgarmidstod.is
2021-09-22
58 min
Þvottahúsið
Þvottahúsið#50 Helga Snjólfs um þunglyndið
Nýjasti gestur bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarpinu Þvottahúsið er verkfræðingurinn, yogakennarinn og tantrarinn Helga Snjólfsdóttir. Helga kom til bræðrana sem gestur númer eitt í jánúar á þessu ári og nú níu mánuðum síðar kom hún svo sem gestur í þætti númer fimmtíu.
2021-09-21
1h 03
Þvottahúsið
Þvottahúsið#47 Spessi á jaðrinum
Nýjasti gestur Wiium bræðrana í Hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið er engin annar er ljósmyndarinn og mótorhjólatöffarinn Sigurþór Örn Hallbjörnsson betur þekktur sem Spessi. Spessi mætti með allan sinn þunga og dýpt eins og honum einum er lagið. Hann fór í gegnum líf sitt alveg frá því að hafa verið skilin eftir af móður sinni á Ísafyrði sem pjakkur. Hann fór yfir listsköpunina sem á sér stað í hans ljósmyndun, sinna pólitíska aðstöðu sem hann hefur myndað sér útfrá uppeldi í fátækt meðal verkafólks, motorhjóla lífstíli...
2021-09-13
1h 36
Þvottahúsið
Þvottahúsið #44 Kristín Amalía fer yfir syndir forfeðrana
Í nýjasta þætti Gunnars og Davíðs í hlaðvarpinu Þvottahúsið voru gömul mál gerð upp. Í byrjun þáttarins les Gunnar upp yfirlýsingu sem snýr að syndum forfeðra þeirra Gunnars og Davíðs. Um er að ræða bein ættartengsl þeirra 8 kynslóðir tilbaka til sýslumannsfeðgana Jens og Hans Wiium. Feðgar þessir léku aðalhlutverk í lengsta sakarmáli Íslandssögunar þar sem Sunnefa Jónsdóttir og Jón bróðir hennar voru dæmd til dauða fyrir blóðskömm í kringum 1740. Í ljósi metoo byltingarinnar ákváðu bræðurnir Gunnar og Davíð að taka þetta mál upp og kryfja t...
2021-08-24
1h 32
Þvottahúsið
Þvottahúsið#41 Björgvin bakari og markvörður
Björgvin Páll Gústavsson, markvörður og bakari er nýjasti gestur bræðrana Gunnars Dan og Davíð Karls Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Björgvin mætti auðvitað í þáttinn sem afreksíþróttamaðurinn sem hann er en fór samt sem áður yfir sögu sína. Rótlaus æska og brostið uppeldi sem leiddi hann inn í allskonar úræði af hinu opinbera fyrir “svokölluð” vandræðabörn og unglinga. Hann fer í þessu magnaða viðtali yfir mikilvægi réttrar næringar, reglu hvað varðar svefnvenjur, rétta öndun og almennt rétta og gilda nálgun innan allra sviða
2021-06-30
1h 25
Þvottahúsið
Þvottahúsið#39 Embla Ordal. Hin og þessi kyn.
Embla Ordal er nýjasti gestur bræðranna Gunnars Dan og Davíðs Karls Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Embla er kynsegin, og vafðist það eitthvað fyrir bræðrunum sem fengu hán* í heimsókn til að ræða hin ýmsu kyn.
2021-06-22
1h 13
Þvottahúsið
Þvottahúsið #38 Tóta, stofnandi Hampfèlagsins. Kannabis og Krabbamein.
Þórunn Thors Jónsdóttir, frumkvöðull og viskubrunnur hvað varðar kannabis og iðnaðarhamp er nýjasti viðmælandi bræðrana Gunnar Dan Wiium og Davíðs Karl Wiium í hlaðvarpsþættinum Þvottahúsið. Þórunn er einnig stofnandi Hampfélagsins þar sem hún ásamt öðru góðu fólki vinnur að lögleiðingu fæðubótarefnisins CBD sem og almennri vitundarvakningu hvað varðar óendanlega vinnslumöguleika iðnaðarhampsins. https://www.hampfelagid.is
2021-06-16
1h 06
Leitin að peningunum
Sambúð, gifting, erfðamál og fjármál - Elva Ósk Wiium
Elva Ósk Vium lögfræðingur ræðir í þessum þætti um fjármál og hvernig við eigum helst að nálgast þau þegar kemur að maka okkar. Frá því að Elva hóf að starfa sem lögmaður hefur hún unnið mikið í sambúðar- og hjúskaparmálum sem og erfðarétt. Lögmenn eru oft kallaðir að málum þegar málin eru komin í óefni. Hún hefur þú séð því séð mistökin sem fólk gerir og fer yfir það í þessu viðtali hvernig best sé að komast í veg fyrir að fólk geri þau. Hér ræðum við: Hver er munurinn...
2021-04-27
1h 42
Flugvarpið
#18 - Flugsveit LHG flýgur í öllum veðrum – Sigurður yfirflugstjóri
Sigurður Heiðar Wiium yfirflugstjóri á björgunarþyrlum Landhelgisgæslunnar segir hér frá öflugri flugstarfsemi LHG og ýmsum erfiðum björgunarferðum við ómögulegar aðstæður, þar sem gæða þjálfun og útsjónarsemi þarf til að allt gangi upp. Flugsveit LHG fer af stað í hvaða veðri sem er þegar kallið kemur, að nóttu sem degi. Sigurður segir að gera megi betur í innviðum fyrir björgunarþyrlurnar og setja upp fleiri veðurstöðvar og sérstök þyrluaðflug. Sigurður rifjar einnig upp þegar hann nauðlenti Dauphin þyrlu á sjónum í Straumsvík árið 2007.
2021-01-27
57 min
Þvottahúsið
Þvottahúsið #2 Melting Helga Snjólfs.
Wiium bræður melta viðtal sitt við Helgu Snjólfs
2021-01-17
14 min
Fasteignaspjallið
Markaðurinn í dag - Dan Wiium - Eigandi Kjöreign
Heimasíða 450 fasteignasölu hér: 450.isErt þú í söluhugleiðingum?: Fá verðmat450 Fasteignasala á Facebook
2020-05-27
15 min