podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
Shows
Spilastund
Spilamót
Í þessum þætti fjalla ég um sögu spilamóta hérlendis, allt frá fyrstu Fáfnismótunum til Spunaspilavina. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2024-09-15
22 min
Spilastund
Hetjur, andhetjur og illmenni
Í þessum 21. þætti spilastundar er fjallað um hetjur, andhetjur og illmenni, sem og hvernig þessi hugtök hafa áhrif á persónusköpun og val á spunaspili. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2024-07-30
16 min
Spilastund
Frábærir stjórnendur
Hver er munurinn á góðum og frábærum stjórnanda? Í þessum þætti ræði ég stuttlega hvað ég tel einkenna frábæran stjórnanda í spunaspilum. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2024-03-26
22 min
Spilastund
Um Haf Fallinna Stjarna
Í þessum þætti fjalla ég stuttlega um langhleypu sem ég hef verið að stýra undanfarin ár og hvað ég hef lært af því að stýra henni. Sagan segir frá áhöfn skipsins Sædísar og ævintýrum hennar á Hafi Fallinna Stjarna í Feyrúnu í Gleymdu Ríkjunum. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2023-12-17
36 min
Spilastund
Íslenskun spunaspila
Það er mikilvægt að bjóða upp á spunaspil þannig að sem flestir geti notið þeirra hérlendis. Því er tekin til umræðu væntanleg þýðing á regluverki D&D sem verður gerð aðgengileg innan skamms.
2023-11-26
19 min
Spilastund
Spunaspil og kennsla
Í þessum þætti fjalla ég aðeins um hvernig hægt er að nota spunaspil í kennslu og hvað ég hef lært af því að kenna spunaspil í grunnskóla í nokkur ár. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2023-11-11
22 min
Spilastund
Viðtal við Hjalta Nönnuson
Hjalti Nönnuson er meðal okkar reyndustu stjórnenda og hefur löngum stýrt skemmtilegum langhleypum. Við ræddum saman um hvernig sé best að standa því að segja slíkar sögur með leikmönnum. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber
2023-10-06
43 min
Spilastund
Viðtal við Alexöndru Briem
Alexandra Briem kíkti í spjall um upplifun hennar af spunaspilum, hvernig þau hafa nýst henni í stjórnmálum sem og hvernig spunaspil hjálpuðu henni að skoða sjálfa sig sem transmanneskju. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2023-09-22
35 min
Spilastund
Viðtal við Snæbjörn í Svörtu Tungunum
Snæbjörn Ragnarsson, meðlimur Svörtu Tungnanna og þungarokkari með meiru, kíkti í heimsókn og ræddum við um spunaspil og þá sérstaklega spunaspilabækur. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2023-09-02
37 min
Spilastund
Viðtal við Gunnlaug, hönnuð spilanna Junkpunk og Faith & Fury
Í þessum þætti ræði ég við Gunnlaug Arnarson en hann hefur hannað og gefið út tvö spunaspil, annars vegar Junkpunk og hins vegar Faith & Fury. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2023-08-25
36 min
Spilastund
Viðtal við Tinnu Halls
Tinna Halls, spunaspilari og stjórnarmeðlimur í Hlutkesti, kom í spjall. Ræddum við um stjórnun spunaspila, Hlutkesti og GenCon. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2023-08-16
37 min
Spilastund
Viðtal við Helga Má
Helgi Már er flestum íslenskum spunaspilurum af góðu kunnur, enda verið viðloðinn spunaspilasenuna í meira en þrjá áratugi. Helgi kíkti í heimsókn og ræddum við um stjórnun spunaspila. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2023-08-09
38 min
Spilastund
Kall Cthulhu
Í þessum þætti er fjallað um spunaspilið Kall Cthulhu, rýnt í heimsmynd spilsins og nýjasta útgáfa kerfisins skoðuð lítillega. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2023-06-20
27 min
Spilastund
Dark Sun - Sortasól
Í þessum þætti er fjallað um D&D heiminn Dark Sun, eða Sortasól, sem hefur um árabil verið með vinsælli heimum þessa fræga spunaspils. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2023-05-16
31 min
Spilastund
Að verða betri stjórnandi - 2. hluti
Þessi þáttur er framhald síðasta þáttar, hvar fjallað var um að verða betri stjórnandi. Í þessum þætti er m.a. fjallað um hvernig er hægt að eiga við erfiða leikmenn sem og muninn á sandkössum og lestarteina frásögnum. Bakgrunnstónlist gerði Cryo Chamber.
2023-04-16
28 min
Spilastund
Að verða betri stjórnandi
Hvað þurfa nýir stjórnendur að hafa í huga? Hvernig verður maður betri stjórnandi? Í þessum þætti er fjallað um hlutverk stjórnanda og rætt um hvaða atriði skipta máli þegar kemur að stjórnun hvers kyns spunaspila. Bakgrunnstónlist var unnin af Cryo Chamber.
2023-04-07
27 min
Spilastund
Að vera byrjandi
Í þessum þætti er fjallað hvernig er að vera byrjandi í spunaspilum, byrjendakassa og hlutverk eldri leikmanna gagnvart nýjum. Bakgrunnstónlist var unnin af https://cryochamber.bandcamp.com/https://cryochamber.bandcamp.com/
2023-03-18
24 min
Spilastund
Hliðvarsla í spunaspilum
Allt frá árdögum spunaspila hafa leikjahönnuðir, útgáfur og spunaspilarar ástundað hliðvörslu og reynt að gæta þess hverjir fái að taka þátt í þessu skemmtilega áhugamáli. VIð erum hins vegar orðin meðvitaðari í dag um hvað er fólgið í slíkri hliðvörslu og útgáfur hafa einnig lagt sitt af mörkum til að fá fleiri að spilaborðinu. Bakgrunnstónlist var unnin af Cryo Chamber.
2022-06-08
29 min
Spilastund
Star Wars spunaspil
Í þessum þætti er fjallað um sögu Star Wars spunaspila og rýnt stuttlega í hin ólíku kerfi sem notuð hafa verið í gegnum tíðina til að endurspegla þann heim, allt frá því að fyrsta Star Wars spunaspilið kom fram til prufuútgáfa sem finna má á netinu í dag. Bakgrunnstónlist var unnin af Cryo Chamber.
2022-06-05
29 min
Spilastund
Ævintýragerð og frásagnartækni
Það getur verið gott fyrir stjórnendur að þekkja helstu formgerðir ævintýra sem og kunna skil á nokkrum þáttum góðrar frásagnartækni. Hvað einkennir frásagnir spunaspila og hvernig er frásagnartækni þeirra ólík hefðbundinni frásagnartækni bókmennta? Bakgrunnstónlist var unnin af Cryo Chamber.
2022-04-30
34 min
Spilastund
Askur Yggdrasils
Askur Yggdrasils er eina spunaspilið sem hefur komið út á íslensku. Spilið var gefið úr árið 1994 af bókaforlaginu Iðunni og gert af þeim Rúnari Þór og Jóni Helga Þórarinssonum. Hér er fjallað um spunaspilið, kosti þess og galla, sögu og áhrif. Bakgrunnstónlistin gerð af Cryo Chamber.
2022-04-11
33 min
Spilastund
Saga spunaspila
Árið 1974 kom út fyrsta útgáfa af Dungeons & Dragons spunaspilinu út, en það var gefið út af fyrirtækinu TSR. Í kjölfarið fylgdu fleiri spunaspil, á borð við Runequest og Call of Cthulhu, og hafa vinsældir spunaspila aukist jafnt og þétt. Hins vegar hefur aðeins eitt íslenskt spunaspil verið gefið út, en það heitir Askur Yggdrasils. Bakgrunnstónlist unnin af Cryo Chamber.
2022-03-24
35 min
Jóns
28. þáttur Hlaðvarpið á jons.is Þorsteinn Mar Gunnlaugsson
Þorsteinn sá um vefmálin hjá Ölgerðini um árið 2006, einnig hefur hanns starfað hjá Móberg að sjá um vefi einsog Bland og fleiri. Í dag er hann vefstjóri Iceland travel. Þorsteinn fer yfir að á þessum tíma sem vefstjóri þá eru sömu vandamál sem þarf að leysa núna og fyrir tíu árum. Það er að segja leitarvélabestun, fyrirtæki vilja en sem fyrr finnast á leitarvélum. Þorsteinn fer yfir það hvað leitarvélabestun er, hvernig hún virkar og hvað hefur breyst. Bæði tæknilega á vefnum og eins efnið sem sett er á vefinn sé gott. Þorsteinn fer líka inn á það hvers...
2017-05-17
30 min