Look for any podcast host, guest or anyone

Shows

Kvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#16 - Tilfinningasnuðið. Ragga Nagli.Í þessum þætti fáum við til okkar enga aðra en Röggu Nagla. Við spjöllum um vítahringinn sem rústar svefninum okkar, einmanaleikann, gervidópamínið og þau vellíðunarhormón sem gætum verið að fara á mis við. 2025-03-0955 minKvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#15 Hvað geta foreldrar gert? - Kristín Ólöf GrétarsdóttirHvaða áhrif geta foreldrar haft á skólaumhverfi barna? Hvernig getum við gert alla skóla landsins snjallsímalausa? Kristín Ólöf Grétarsdóttir er foreldri tveggja drengja á grunnskólaaldri. Hún var formaður Foreldrafélags Áslandsskóla í sjö ár, situr í foreldraráði Hafnarfjarðar, er í stjórn Heimilis og skóla, og er menntaður kennari. Hún brennur fyrir að beina athygli að skjánotkun barna, því hún vill að skólar séu símalausir og hætti vanhugsaðri skjánotkun á skólatíma. Einnig situr hún í starfshóp á vegum menntamálaráðuneytisins um mótun leiðbei...2025-03-0147 minKvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#14 Tengslarof vegna snjallsíma - Jón Pétur ZimsenJón Pétur Zimsen, þingmaður sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi skólastjóri, segir að snjallsímar hafi valdið tengslarofi hjá börnum og unglingum. Með 30 ára reynslu úr skólaumhverfinu hefur hann orðið var við miklar breytingar á börnum eftir að snjallsímar urðu algengir.2025-02-151h 25Kvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#13 Agaleysi í skólum - Sigrún Ólöf IngólfsdóttirSigrún Ólöf, skólastjóri Hörðuvalalskóla, kallaði nýlega eftir þjóðarátaki þar sem agaleysi í skólum er orðið óboðlegt. Hvar liggur rót þessa agaleysis? Hún var svo góð að koma í hljóðverið til okkar og ræða þessi málefni nánar við okkur.2025-02-081h 06Kvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#12 - Að alast upp undir allra augumDeilum við of miklu um börnin okkar? Ef þú myndir líta til baka, værir þú ánægð/ur með að þessi upplýsingar væru til um þig frá þinni barnæsku? Í þessum þætti ræðum við hugtakið „sharenting“, sem er sambland af orðunum „sharing“ og „parenting“. Hvar liggja mörkin? Hvað geta óvinveittir aðilar gert við myndir og upplýsingar barna? Og hvað segja börnin þegar þau eldast og uppgötva allt sem hefur verið deilt um þau á netinu?2025-02-0133 minKvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#11 Hvað eru önnur lönd að gera?Í þessum þætti fer Kristín yfir sínar heimilisreglur um skjánotkun. Við ræðum einnig hvað önnur lönd eru að gera í tengslum við síma- og samfélagsmiðlabönn fyrir börn, og förum í gegnum það sem við höfum rætt í fyrri þáttum.2025-01-2544 minKvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#10 Hér er ein pæling - Þórarinn HjartarsonAf hverju eyðum við – og börnin okkar – svo miklum tíma fyrir framan skjái í leit að ódýru og skjótvirku dópamíni? Hvað gerðist? Í þessum þætti fáum við frábæran gest, hann Þórarinn Hjartarson þáttarstjórnanda vinsæla hlaðvarpsins Ein pæling. Við ræðum um hvar við erum stödd og Þórarinn varpar ljósi á sína sýn á stöðuna í dag. 2025-01-1852 minKvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#9 Símar í skólum - Davíð Már SigurðssonHver eru helstu vandamál kennara þegar kemur að símanotkun barna? Gestur okkar í dag er Davíð Már Sigurðsson, sem er íþróttakennari og styrktarþjálfari með meistarapróf í íþróttaþjálfun, rannsóknum og kennarafræðum. Við ræðum um íþróttir barna og áhrif síma á skólaumhverfið. Eru spjaldtölvur og símar virkileg að hjálpa börnunum okkar í námi? Hvað þýðir að vera símalaus skóli? Lagar símabann öll okkar vandamál?2025-01-1344 minKvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#8 Heimaró: frjáls leikur og flæðiÍ þessum þætti kemur Gunnhildur Jóhannsdóttir sérkennari og þroskaþjálfi í heimsókn til okkar og varpar ljósi á álag barna, séð með augum kennara. Við tölum um mikilvægi róar og næðis heimafyrir, færni barna til að vera í frjálsum leik í heimi þar sem börnum er stýrt meir og meir og vanda kennara eins og hún orðaði það: ,,Það er erfitt fyrir stærðfræðikennara að toppa Fortnite" 2024-12-2945 minKvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#7 Raunveruleiki barna í heimi snjallsíma - Skúli Bragi kemur í heimsóknÍ þessum þætti fáum við Skúla Braga Geirdal í heimsókn til okkar. Hann er sérfræðingur á sviði upplýsinga- og miðlalæsis hjá fjölmiðlanefnd, heldur fyrirlestra og skrifar greinar til leiðbeiningar fyrir foreldra barna á tímum snjallsímavæðingar. 2024-12-2952 minKvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#6 Skjátími, heimilisreglur og rafíþróttirÍ þessum þætti ræðum við um ólíka skjánotkun og tilgang hennar. Við opinberum eigin skjátíma, hvernig Anna Laufey notar stundum appið "the balanced phone", hvað okkur öllum finnst endurnærandi að fá "like" á samfélagsmiðlum og hvað skjátími er mikill upplifanaþjófur.2024-12-2950 minKvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#5 Leikur barna og fullorðinnaHvernig brjótumst við út úr viðjum vanans og innleiðum meiri leik og útiveru í lífið okkar? Sabína Steinunn, íþrótta- og heilsufræðingur og áhugakona um hreyfifærni og þroska barna, kemur til okkar og eys úr viskubrunni sínum. 2024-12-1741 minKvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#4 Þorpið & leitin að þriðja staðnumÞað segir að það taki heilt þorp að ala upp barn, en hvar er þorpið í dag? Og hvar eru svokallaðir „þriðju staðir“ – rými þar sem fólk kemur saman utan heimilis og vinnu? Anna og Kristín velta fyrir sér hlutverki þorpsins í nútímasamfélagi, þeim áskorunum sem fjölskyldur standa frammi fyrir í dag og mikilvægi þess að skapa staði þar sem einstaklingar geta hist, tengst og byggt upp samhug innan samfélagsins.2024-12-0444 minKvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#3 Samfélagsleg áhrif skjánotkunarÍ þessum þætti fáum við til okkar frábæran gest, hana Önnu Claessen. Anna er margreyndur markþjálfi, einkaþjálfari, fyrirlesari og skemmtikraftur, með sérþekkingu á viðfangsefnum eins og streitu, kulnun og sjálfsrækt. Við ræðum áhrif skjánotkunar á andlega og líkamlega heilsu, tengsl stafræns áreitis við streitu og kulnun, og hvernig við sem einstaklingar og samfélag getum tekist á við þessar áskoranir.  Njótið!2024-11-241h 12Kvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#2 Að alast upp á MarsAnna og Kristín fara í saumana á fjórum lykilleiðum sem Jonathan Haidt leggur til til að takast á við skjánotkun barna og skoða hvernig við sem samfélag getum innleitt þær í framkvæmd. Þær ræða einnig hlutverk frjáls leiks í þroska barna, mikilvægi þess að efla ábyrgð þeirra og hvernig öryggi barna getur samræmst sjálfstæði þeirra í nútíma samfélagi.2024-11-1742 minKvíðakynslóðin hlaðvarpKvíðakynslóðin hlaðvarp#1 Skjánotkun barna og unglingaAnna og Kristín ræða stöðu foreldra og barna í tengslum við skjátíma barna og þau samfélagslegu áhrif sem honum fylgja. Þær fara yfir helstu áskoranirnar sem blasa við, hvernig við lentum í þessari stöðu og hvað hægt er að gera til að bæta ástandið.2024-11-1037 min