podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Bjargey Ingolfsdottir
Shows
Tilveran
#18 - Bjargey Ingólfsdóttir
Gestur vikunnar er Bjargey Ingólfsdóttir. Bjargey er alltaf með marga bolta á lofti, en hún er meðal annars jógakennari og hefur haldið fjölda fyrirlestra um sína vegferð að betri heilsu og líðan. Þá hefur hún haldið sjálfstyrkingarnámskeið innanlands og utan þar sem hún hefur farið með kvennahópa í endurnærandi ferðir til Tossa de Mar.
2026-02-18
1h 17
Ofurkona í orlofi
23. Skilnaður og flutningar “það eru bjartari tímar framundan”
Bjargey og Birna Sif standa báðar á stórum tímamótum. Í þætti dagsins ræða þær stóru málin í þeirra lífi, skilnað, flutninga og ný heimili. Engar áhyggjur - Birna Sif og Bjargey voru ekki að skilja og Ofurkona í orlofi mun halda áfram. Það eina sem vinkonurnar vita á þessum tímapunkti er að það eru bjartari tímar framundan. Sól og sumar - við erum tilbúnar! Þátturinn er í boði: Lín DESIGN - https://lindesign.is Tertugallerí - https://www.tertugalleri.is LINDEX - bókaðu tíma í fría stílistaráðgjöf á htt...
2024-04-26
1h 06
Ofurkona í orlofi
22. “Ég hefði aldrei sleppt þessari lífsreynslu” - Anna Sæunn Ólafsdóttir
Anna Sæunn kvikmyndagerðarkona, móðir, listakona og íþróttakona kom í frábært spjall um lífið og listina. Anna Sæunn hefur verið búsett með annan fótinn í Barcelona síðustu ár og segir okkur frá lífinu í stórborginni þar sem sólin skín. Hún segir frá því hvernig hún þurfti að finna sig á nýjan leik eftir skilnað og stór áföll í lífinu og hvernig hún notaði keppnisskapið til þess að komast lengra í íþróttum. Þessi þáttur er mikill innblástur fyrir allar konur sem langar að fara á eftir draumu...
2024-03-25
1h 19
Ofurkona í orlofi
21. “Sjálfsást hefur ekkert með eigingirni að gera” - Ólöf María Brynjarsdóttir
“Ég hélt að það væri hægt að læra að elska sjálfan sig en veit í dag að það er ekki hægt” segir Ólöf María sem hefur síðastliðin ár rannsakað hugtakið sjálfsást. Ólöf María er gift fjögurra barna móðir og fyrrum bóndi sem fór í háskólanám eftir þrítugt. Hún er með B.A. í nútímafræði og rannsóknartengda meistaragráðu í félagsvísindum og starfar í ráðgjöf hjá VIRK ásamt því að kenna við Háskólann á Akureyri. “Sjálfsást er vilji til vellíðunar og s...
2024-03-15
1h 14
Ofurkona í orlofi
20. “Ég var algjörlega aftengd sjálfri mér” - Emilia Gylfadóttir
Emilia Gylfadóttir ofurkona með meiru kom í einlægt spjall um hamstrahjólið og þessa eilífu leit að jafnvægi. Væri lífið einfaldara ef við þyrftum ekki að vinna eða er hægt að lifa í sátt með verkefnalistum sem engan endi ætla að taka? Emilia segir frá því þegar hún áttaði sig á því að sjálfsvirði hennar er ekki mælt í einkunnum eða prófgráðum. Hún segist hafa áttað sig á því að hún var algjörlega aftengd sjálfri sér og inni í hamstrahjólinu hafi hún ekki heyrt í sjálfri sér.
2024-03-05
1h 03
Ofurkona í orlofi
19. “ADHD heilinn er sturlaður!” - Bryndís Ottesen
Bryndís Ottesen eða Dísa eins og hún er alltaf kölluð kom í einlægt spjall um lífið með ADHD. Dísa er tveggja barna móðir, starfar sem ráðgjafi og heldur úti hlaðvarpinu Bresti með Birnu Sif vinkonu sinni. Dísa segir frá ADHD greiningarferlinu og léttinum við að fá að vita að hún var ekki vandamálið heldur samfélagið og skólakerfið. Hún segir ADHD heilann vera sturlaðan og þegar við lærum á styrkleika okkar og hættum að horfa neikvæðum augum á brestina eru okkur allir vegir færir. Dísa, Bja...
2024-02-16
1h 40
Með lífið í lúkunum
33. Ofurkona í orlofi, sjúkdómurinn offita, efnaskiptaaðgerðir og valdefling kvenna. Bjargey Ingólfsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Bjargeyju Ingólfsdóttur um ofurkonuhlutverkið, sjúkdóminn offitu, efnaskiptaaðgerðir, valdeflingu kvenna, cranio, heilsumissi, lífsorku og fleira. Bjargey heldur úti hlaðvarpinu Ofurkona í orlofi og hefur óbilandi áhuga á heilsu. Hún missti sjálf heilsuna fyrir mörgum árum og þurfti að finna leiðir til þess að fá hana til baka. Hún byrjaði að hugleiða og hefur það hjálpað henni að minnka verki og tengjast sjálfri sér betur. Útfrá hugleiðslunni leiddist hún svo inn á þær brautir sem hún er á í dag, að stunda jóga og halda sjálfstyrkinga...
2024-02-16
1h 14
Ofurkona í orlofi
18. “Þegar ég sá fegurðina í brestunum varð lífið svo miklu betra”
BRESTUR X OFURKONA Í ORLOFI kynnir: Sjö daga ferð fulla af brestum og gleði til Tossa de Mar á Spáni 16.-23. september 2024 í samstarfi við VISITOR ferðaskrifstofu. Taugakerfið fær langþráða hvíld, sólin mun gefa og grímur fá að falla! Þegar þrjár ofvirkar koma saman er gaman! Bjargey, Birna Sif og Dísa munu dansa með ykkur inn í sólsetrið því frelsið er yndislegt þegar við leyfum okkur að sjá fegurðina öllum brestunum og vera við sjálfar - nákvæmlega eins og við erum! Frekari upplýsingar um ferðina má f...
2024-02-08
46 min
Ofurkona í orlofi
17. “Þegar við opnum á innsæið þá gerast hlutirnir” - Birna Sif og Bjargey
Bjargey getur tekið gleði sína á ný því Birna Sif er komin heim aftur frá Spáni eftir leit að framtíðarheimilinu. Birna Sif segir frá mjög spennandi fréttum en það eru stórar breytingar í vændum! Hvað er þetta Ehlers Danlos Syndrome sem tvíburasálusysturnar eru með og hvernig er hægt að vinna með það? Bjargey segir frá uppgötvun í Yin Yoga náminu og hvernig hún ætlar að velja gleði og vellíðan á nýju ári. Vertu velkominn febrúar og góða skemmtun!
2024-02-01
59 min
Ofurkona í orlofi
16. “Ég er ekki minn aldur ég er bara mín orka” - Guðmundur Birkir Pálmason
Gummi kíró mætti til Ofurkonu í orlofi og úr varð þessi skemmtilegi þáttur um það hvers vegna sjálfsvinna getur verið svona drulluerfið! Gummi sagði í einlægu spjalli frá sinni reynslu af því að glíma við kvíða og þurfa að takast á við sjálfan sig sem getur verið erfitt verkefni en nauðsynlegt til þess að geta lifað lífinu til fulls. Bjargey og Gummi ræddu um karlmennsku og hvort það væri ennþá tabú fyrir karlmenn að ræða opinskátt um sína líðan og tilfinningar. Þau eru sammála um að það skiptir öllu máli í samböndum...
2024-01-25
52 min
Ofurkona í orlofi
15. “Nú er ég að lifa drauminn sem mig dreymdi sem krakki” - Hjálmar Örn Jóhannsson
Hjálmar Örn skemmtikraftur er alveg einstök manneskja sem hefur þann fallega hæfileika að sjá og laða fram það besta í öðru fólki. Í þessum þætti spjalla Bjargey og Hjálmar um það að synda á móti straumnum en Hjálmar segist vera sá maður sem hann er í dag af því hann tók allskonar rangar ákvarðanir. Hjálmar gerir lífið aðeins betra með því að gefa frá sér sína einstöku gleði og fallegt viðhorf til lífsins og þessi þáttur Ofurkonu í orlofi fékk heldur betur að njóta þess - góða skemmtun!
2024-01-18
1h 02
Ofurkona í orlofi
15. “One way ticket til Spánar - takk og bless!”
Bjargey og Birna taka fagnandi á móti nýju ári breytinga! Tvær ofvirkar ofurkonur ætla báðar að breyta til á nýju ári og prófa eitthvað alveg nýtt. Birna skoðar suðrænar slóðir og lætur sig dreyma um að flytja í sólina. Bjargey er búin að skrá sig í nýtt nám þar sem hún fær áfram að lifa drauminn um vera berfætt á ströndinni og fá borgað fyrir það! Vinkonurnar spjalla saman um góð ráð við skammdeginu sem dregur úr þeim alla lífsorku, fara yfir markmið og drauma ársins og hver
2024-01-08
1h 22
Ofurkona í orlofi
14. “Það er engin þriðja vakt hér - það er bara öll vaktin” - Sigríður Lena Sigurbjarnadóttir
Sigríður Lena er einstök móðir, fagurkeri, þroskaþjálfi og metnaðargjörn sjálfstæð kona. Sigga Lena eins og hún er oftast kölluð ákvað að stofna sína eigin fjölskyldu án þess að eiga maka og deilir með okkur vegferðinni en í dag á hún tvö yndisleg börn. Sigga Lena segir í einlægu spjalli frá barneignarferlinu og viðurkennir að það sé enginn dans á rósum að vera ein með tvö börn. Hún þekki þó ekkert annað en að vera ein á vaktinni og nýtur þess að vera einstök móðir sem lætur ekkert stoppa sig
2023-12-27
1h 02
Ofurkona í orlofi
13. Djúsí jólaþáttur með Helgu Möggu
Helga Magga er matgæðingur með meiru og snillingur í eldhúsinu en hefur hún einhvern tímann klúðrað jólasteikinni? Helga Magga segir farir sínar ekki sléttar af því að undirbúa hátíðarkvöldverð fyrir fjölskylduna en það gerast allskonar dularfullir atburðir í Hlíðunum rétt fyrir jólin þar sem jólakötturinn liggur sterklega undir grun um að hafa framið hinn fullkomna glæp! Ekki missa af frábærum jólaþætti á léttu nótunum með Helgu Möggu í boði Icewear Magasín, Tertugallerí og Lindex. Takk fyrir að hl
2023-12-19
1h 03
Ofurkona í orlofi
12. Vinkonuspjallið - “Líf ertu að grínast?”
Bjargey og Birna Sif taka spjallið um lífið þessa dagana. Bjargey fór í smá framkvæmdir sem breyttust í martröð og hún veltir því fyrir sér hvort það sé of seint að hætta við núna? Birna Sif stendur á tímamótum og vinkonurnar ræða hvort það sé mögulegt að halda lífi í þessu myrkri og skammdegi með streituna í botni?
2023-12-14
1h 03
Ofurkona í orlofi
11. “Hamingjan er lífið sem þú skapar þér” - Ástrós Rut Sigurðardóttir
Ástrós Rut segir í einlægu spjalli frá því hvernig hún hefur unnið með sorgina eftir að hafa misst eiginmann sinn Bjarka Má aðeins þrítugan að aldri eftir erfiða baráttu við krabbamein. Ástrós Rut tók ákvörðun um að halda áfram með lífið eftir missinn og er búsett á Selfossi með manninum sínum og fjórum börnum ásamt hundinum Ronju. Ástrós tekur einn dag í einu eftir að hafa greinst með vefjagigt og áfallastreitu og vinnur markvisst að því að verða betri útgáfa af sjálfri sér.
2023-11-29
1h 24
Ofurkona í orlofi
11. “Mig langar ekki að eignast börn” - Bára Atladóttir
Bára Atladóttir eigandi BRÁ verslunar er metnaðarfull kona sem lætur verkin tala og hefur látið drauma sína rætast. Bára segir frá ævintýrinu hvernig hún byrjaði að sauma föt og selja á samfélagsmiðlum en opnaði síðan BRÁ verslun fyrir að verða sjö árum. Bára talar um persónulega lífið og hvernig það er þegar vinnan er líka hennar helsta áhugamál en hún er engu að síður dugleg að hitta vinkonur, njóta lífsins og ferðast þó fyrirtækið eigi hug hennar alla
2023-11-20
55 min
Ofurkona í orlofi
10. “Gerðu það fyrir þig” - Katrín Petersen
Gleðisprengjan, markaðsstjórinn og ofurmamman Katrín Petersen kom í skemmtilegt spjall um lífið og tilveruna. Katrín talar um hvað það er mikill lúxus að hafa tíma til að rækta sjálfa sig en þó maður sé komin með börn og fjölskyldu þá verður maður að leyfa sér að taka tíma fyrir sig. Katrín er óhrædd við að prófa nýja hluti og elskar að ferðast. Hennar mottó er að vinnan er ekki lífið þó það sé gaman í vinnunni og við verðum að brjóta upp hversdagslífið og njóta au...
2023-11-09
1h 03
Ofurkona í orlofi
9. “Ég vaknaði til lífsins um fertugt” - Margrét Jóna Þórhallsdóttir
Margrét Jóna Þórhallsdóttir myndlistarkona í einlægu spjalli um lífið og listina. Margrét Jóna hefur einstakt auga fyrir fallegri hönnun og tók á móti okkur á glæsilegu og listrænu heimili fjölskyldunnar í Kópavogi þar sem hún sýndi okkur fallegu vinnustofuna sína. Hún segir okkur frá ADHD greiningunni sem hún fékk á fullorðinsaldri, hvernig hún hefur tekist á við örmögnun og breytingaskeiðið sem hafði meðal annars þau áhrif á hana að hún hafði ekki gaman að neinu lengur en lagaðist mikið þegar hún fékk r...
2023-11-05
1h 00
Ofurkona í orlofi
8. “Sjúkdómurinn offita er alvöru sjúkdómur” Sólveig Sigurðardóttir
Í þætti dagsins ræða Bjargey og Sólveig um sjúkdóminn offitu, mikilvægi þess að elska sig eins og maður er og lifa í sátt við langvinna sjúkdóma. Sólveig er forseti ECPO - European Coalition for People living with Obesity og hefur unnið hörðum höndum að því að fræða um sjúkdóminn offitu um allan heim. Sólveig segir sína sögu og hvers vegna hún gefst aldrei upp.
2023-10-26
1h 25
Ofurkona í orlofi
7. “Skór og töskur eru minn veikleiki” - Þórunn Högna
Þórunn Högna, glæsilegasta kona landsins - stílisti og listrænn stjórnandi í einlægu spjalli um tísku, heimili og hönnun. Þórunn segir frá ævintýrinu með sumarbústaðinn sem þau hjónin hafa verið að taka í gegn og gera að fallegu heimili fyrir fjölskylduna til að njóta samveru í sveitinni. Þórunn hefur einstakan og glæsilegan stíl og deilir með okkur leyndarmálinu hversu mörg skópör hún í fataskápnum, hvaðan hún sækir innblástur og hvaða merki eru í uppáhaldi.
2023-10-19
1h 05
Ofurkona í orlofi
6. “Ég er ekki að fara neina hefðbundna leið” - Sara Odds
Í þessum þætti spjalla Bjargey og Sara Odds markþjálfi og lögfræðingur um ljósið sem við konur megum láta skína, að halda í gleðina og leika okkur meira. Það má hafa gaman þó lífið sé búið að færa okkur erfið verkefni og áskoranir. Endum við allar í örmögnun og kulnun eða er hægt að lifa lífinu með því að forgangsraða okkar heilsu og vellíðan í fyrsta sæti?
2023-10-13
1h 08
Ofurkona í orlofi
5. “Ef ég fengi að ráða þá væri sófinn óþægilegri” - Hildur Gunnlaugsdóttir
Hildur Gunnlaugsdóttir arkitekt, umhverfisfræðingur, fagurkeri og snillingur með meiru kom í frábært spjall um fjölbreytt verkefni, heimili og hönnun. Hildur er að gera upp hótel í miðbænum, starfar sem arkitekt og er búin að búa sér til fallegt heimili með fjölskyldu sinni. Hildur segir frá því hvernig hún heldur mörgum boltum á lofti samhliða því að hlúa vel að sjálfri sér meðal annars með því að kaupa sér blóm, njóta litlu augnablikanna, ferðast og rækta vináttu og sambandið við eiginmanninn.
2023-10-06
1h 23
Ofurkona í orlofi
4. “Þú situr við stýrið - þú ræður hvar þú ætlar að láta áherslurnar þínar liggja” - Dagbjört Jónsdóttir
Í þessum þætti ræða Bjargey og Dagbjört um bókina Fundið fé og spennandi námskeið sem fer með fólk í fjárhagslegt ferðalag. Hverjar eru helstu áskoranir sem fólk stendur frammi fyrir þegar kemur að fjármálum? Er skemmtilegt að spara? Fullt af fróðleik og góðum ráðum í þætti dagsins ef þú vilt finna fé!
2023-09-21
1h 09
Ofurkona í orlofi
3. “Við konur þurfum að gera meira af því að peppa hvor aðra áfram” - Helga Magga
Helga Margrét Gunnarsdóttir samfélagsmiðlastjarna og ofurpeppari kom í stórskemmtilegt spjall um fjölbreyttan starfsferil, að elta ástríðuna og skapa sín eigin tækifæri. Við spjölluðum mikið um næringu enda er Helga Magga mikill snillingur þegar kemur að því að töfra fram girnilegan mat og hvað hreyfing getur gert lífið miklu skemmtilegra.
2023-09-14
1h 25
Ofurkona í orlofi
2. “Núna er ég með aðrar kröfur og væntingar til lífsins” - Birna Sif Kristínardóttir
Hluti 2 - framhald af fyrsta þætti. Birna Sif segir frá því þegar hún áttaði sig á stóru myndinni og að hún gæti ekki bakkað aftur inn í skelina. “Lykillinn að öllu er mildi, maður verður að geta sýnt sér sjálfsmildi og ef þú kannt ekki að hlusta á líkamann þá getur þú ekki sýnt þér mildi”
2023-09-07
1h 09
Ofurkona í orlofi
1. “Það er ótrúlega dýrmætt að kunna vel við sjálfa sig” - Birna Sif Kristínardóttir
Hluti 1 - Birna Sif í einlægu spjalli um sína vegferð að því að kynnast sjálfri sér betur. Birna Sif segir frá því hvernig hún fann að hún þyrfti að leyfa rödd sinni að heyrast og hverju það breytti fyrir hana að tjá sig. Lífið með ADHD og ævintýrin sem gerast þegar þú hættir að halda aftur af þér!
2023-09-07
58 min
Að finna taktinn: Breytingaskeiðið
#23 Bjargey og Hanna Lilja: Frelsaðu kraftinn innra með þér og
Bjargey Ingólfsdóttir og Hanna Lilja Oddgeirsdóttir voru gestir þáttarins að þessu sinni. Bjargey er menntaður félagsráðgjafi, car og dúla, auk þess að vera fyrirlesari og námskeiðshaldari. Hún hefur mikinn áhuga á kvenheilsu og öllu sem viðkemur konum, með að leiðarljósi að efla konur til að frelsa kraftinn sem býr innri með þeim. Hönnu Lilju þekkja mörg ykkar, enda hefur hún komið í þáttinn áður, en hún er stofnandi Gynamedica og læknir sem hefur sérhæft sig í breytingaskeið kvenna og kvenheilsu. Að venju þá ræddum...
2023-07-12
1h 20
Brestur
25. Grímulaus ADHD lífstíll með Bjargeyju Ingólfsdóttur
Bjargey Ingólfsdóttir er fararstjóri, fyrirlesari, félagsráðgjafi og fæðingardoula svo lengi mætti telja. Í 25. þætti Brests spjölluðu Birna og Bryndís við Bjargeyju um hyperfókus líðandi stundar, hvað varð til þess að hún hætti að gera það sem henni finnst leiðinlegt og öll þau spennandi verkefni sem hafa komið til hennar síðan. Þessi magnaði þáttur er í boði NOW og Blush - nældu þér í vörur frá NOW á 25% afslætti með kóðanum 'brestur' Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur á Instagram Spjallið umræðuhópur
2023-05-02
1h 28