podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Einar Barðarson
Shows
Einmitt
104. Margrét Lára “Stórmótin í sumar, EM og Þjóðhátíð”
Margrét Lára Viðarsdóttir er gestur minn í annað sinn, við ræðum um glænýja bók sem hún var að gefa út. Væntingar hennar til EM og næstu Þjóðhátíð Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kolski.is scavolini.is Beard Monkey Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is
2025-07-04
1h 16
Einmitt
103. Einar og Baldur: Allt sem þú vildir vita um hárígræðslur
Í nýjasta þættinum af Einmitt ræða Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason ferðalag sitt til Istanbúl í byrjun maí – þar sem þeir gengust báðir undir hárígræðsluaðgerð. Þeir fara yfir allt ferlið af hreinskilni og húmor – frá fyrstu hugsunum að lokaniðurstöðu. Sérstakur gestastjórnandi þáttarins er Ásgeir Kolbeinsson sem heldur utan um spjallið og hvetur þá til að fara alla leið í sögunni. Þetta er þátturinn fyrir alla sem hafa velt hárígræðslu fyrir sér – en aldrei þorað að spyrja. Hárið, húmorinn og hreinskilnin eru í forgrunni í þessum einstaka þæ...
2025-06-30
1h 36
Einmitt
102 Sonja og Svavar „Við getum ekki annað“
Í nýjasta þætti hlaðvarpsins EINMITT ræðir Einar Bárðarson við Sonju Magnúsdóttur og Svavar Jóhannsson, fósturforeldra Oscars Florez, 17 ára drengs frá Kólumbíu, sem íslensk yfirvöld hyggjast vísa úr landi í byrjun júní. Í þættinum fara Sonja og Svavar yfir þann tíma sem Oscar hefur verið inn í þeirra lífi. Alveg frá því að hann fór að koma inn á heimilið sem vinur barnanna þeirra, frá þeim degi sem hann fór að búa hjá þeim, brottvísunina og til dagsins í dag.
2025-05-26
1h 19
Einmitt
101. Eiríkur Ómar “Vaknaði í bráðauppskurði”
Eiríkur Ómar Sæland er gestur minn í þessum þætti. Hann vaknaði í bráðauppskurði á Landspítalanum árið 2016 og er ennþá að glíma við eftirkostin af þeim læknamistökum.
2025-05-04
1h 14
Einmitt
98 Bogi Ágústsson “Átökin um traustið”
Bogi Ágústsson hefur lesið fréttir fyrir okkur í 48 ár. Honum finnst þetta orðið alveg þokkalegt og segist vera á síðustu mánuðunum hjá Ríkissjónvarpinu. Þjóðin elskar Boga og treystir sem er lykilþáttur í fréttaflutningi. í þessum þætti ræðum við Bogi stærstu fréttir síðustu fimm áratuga og heimsmyndina eins og hún blasir við í dag. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit
2025-04-18
1h 01
Einmitt
99. Eliza Reid “Diplómati deyr”
Gestur minn í þessum þætti er Eliza Reid, fyrrverandi forsetafrú. Hún var að gefa frá sér sína fyrstu skáldsögu Diplómati deyr sem kemur út bæði hér og erlendis. Við ræðum ritstörfin, stílista, jafnrétti og lífið eftir Bessastaði í þessum stórskemmtilega þætti. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is
2025-04-18
1h 01
Einmitt
100. Bríet “Mig langar að ná til þeirra allra”
Bríet er ein skærasta stjarna samtímans og í þessum þætti ræði ég við hana um tónlistina úr öllum þeim áttum sem hún mæti Bríeti. Söngur, flutningur, lagasmíðar, tónleikahald og ferðalög út í heim bæði til að upplifa frelsið, finna fjölskylduna sína og svo nýju verkefnin hennar í Nashville Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is
2025-04-18
1h 04
Einmitt
97. Jóhanna Guðrún “Shit hvað þetta er leiðinlegt lag!”
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir er ein okkar allra besta söngkona og hefur verið frá því að hún var 10 ára. Eins skrítið og það kann að hljóma var eitt stærsta “comeback” íslenskrar tónlistar árið 2009 þegar hún landaði 2. sæti í Eurovision þá aðeins 18 ára. Við ræðum ferilinn hennar, Eurovision, FM957 og hvað Mömmur þurfa bara nauðsynlega að djamma Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiska...
2025-04-17
57 min
Einmitt
96. „Litlar líkur en afleiðingar slæmar.”
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur og fyrrv. starfsmaður SÞ og NATO í Afganistan hefur blandast mikið inn í almenna umræðu síðustu vikna í sambandi við breytta ásýnd í heimsmálnum. Ég fékk Erling til mín til að útskýra stöðuna fyrir okkur á mannamáli. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: Elko.is Kolski.is scavolini.is Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: biobu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjotburid.is pureshilajit.is
2025-04-17
1h 10
Einmitt
95. Tolli "En er hægt að fyrirgefa allt?"
Gestur minn í þessum þætti er Tolli vinur minn Morthens. Hann hefur í áratugi beit sér í málefnum fanga bæði í afplánun og eftir. Hann hefur í áratugi farið inn í fangelsin okkar með 12 spora vinnu sem í árana rás hefur þróast í hugleiðslu, jóga og öndunarvinnu. Tolli segir kærleikann og fyrirgefninguna eina sem togar mannin úr myrkrinu í birtuna. En er hægt að fyrirgefa allt? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: eLKO.is kolski.is scavolini.is bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: BioBu.is egc.is mammaveitbest.is fylgifiskar.is kjo...
2025-03-23
1h 12
Einmitt
94. Brynja Dan "Alin upp við það að fólk horfir"
Brynja Dan Gunnarsdóttir er gestur minn í þessum þætti. Hún eigandi Extraloppunnar í Smáralind, eigandi 1111.is, bæjarfulltrúi og fyrrum varaþingmaður. Hún er fædd á Sri Lanka, en ættleidd hingað til lands aðeins tveggja mánaða gömul. Hún missti bæði föður sinn og móður hér á Íslandi fyrir tvítugt og það hefur sannarlega mótað hana. Við ræðum fjölskyldur, áföll, liti, hringrásina og lífið í þessum skemmtilega þætti. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kolski.is scavolini.is Beard Monkey frá Bpro.is Sa...
2025-02-16
54 min
Einmitt
93. Gunni Hilmars “Vona að gleymi ekki að þetta er fólk”
Gunni Hilmars er gesturinn minn í þessum þætti. Hann hefur verið í sviðsljósinu í áratugi sem tískumógull í GK, Anderson & Lauth, Kormák og Skjöld og núna Thomsen. Þá stofnaði hann dúettinn Sycamore Tree ásamt Ágústu Evu Erlendsdóttur á síðasta áratug og náð aðdáunarverðum árangri og þá hefur hann líka látið til sín taka í málefnum jaðarsetra í borginni. Magnað samtal. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kolski.is Scavolini.is Beard Monkey Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: egc.is mammaveitbest.is fylgifiska...
2025-02-11
1h 30
Einmitt
92. Elín Hall “Ég er búin að læra að hlusta á líkamann"
Elín Hall er gestur Einars Bárðarsonar í þessum þætti. Hún var bara 16 ára þegar hún tók þátt í undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins. Síðan tóku við hvert stórhlutverkið af öðru, Bubbi og Vigdís og Lof mér að falla og ofan í það tvær frábærar plötur. Nú eru 10 ár frá Söngvakeppninni og nú vita allir hver Elín Hall er, eða er það ? Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kölski herrafataverslun Síðumúla 31 Scavolini innréttingar Síðumúla 28 Beard Monkey frá Bpro.is Samstarfs...
2025-02-02
1h 15
Einmitt
91. Hannes Þór “Mamma grátbað mig að fara ekki”
Hannes Þór Halldórsson er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum smá fótbolta en við ræðum þó mest hina hliðina á Hannesi sem er framleiðandi en nú er væntanleg í Sjónvarp Símans þriðja þáttaröðin af Iceguys en fyrsta myndbandið sem Hannes gerði var fyrir Nylon flokkinn árið 2024 fyrir rúmlega 20 árum.
2025-01-28
1h 31
Einmitt
90 Rakel Garðars: Það er Vigdísar æði
Rakel Garðarsdóttir er gestur minn í þessum þætti. Hún er framleiðandi og frumkvöðull í umhverfismálum. Þessa daganna litur þjóðin límd fyrir framan sjónvarpið og fylgist með þáttaröðinni um Vígdísi forseta og þar áður var það Verbúðin. Við ræðum þessar þáttaraðir og allt milli himins og jarðar.
2025-01-12
59 min
Einmitt
89. Linda P “Ég er landsbyggðartútta”
Linda Pétursdóttir er gestur minn í þessum þætti við ræðum flest hennar ævintýri allt frá því að hún var valin ungfrú heimur 1988 til dagsins í dag. Hún leiðbeinir konum í dag í lífsþjálfun um leið og hún heldur áfram að mennta sig sjálfa og skoða heiminn Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kölski herrafataverslun Síðumúla 31 Scavolini innréttingar Síðumúla 28 Beard Monkey frá Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: *Mamma veit best, Dalbrekku 30 í Kópavogi *Fylgifiskar, Nýbýlavegi 4, Kópavogi ...
2025-01-04
1h 08
Einmitt
88. Richard Scobie “80’s tímabilinu var bara hent”
Richard Scobie er gestur minn í þessum þætti. Hann sló í gegn með hljómsveitinni Rikshaw á níunda áratug 20. aldar og ég var bæði aðdáandi hans og síðar vinur. Við ræðum um tónlistina þessi næstum 40 ár og allt sem henni fylgdi og síðast en ekki síst nýjustu plötuna hans Carnival of Souls sem kom út í haust. Aðalbakhjarlar Einmitt eru: ELKO.is Kölski herrafataverslun Síðumúla 31 Scavolini innréttingar Síðumúla 28 Beard Monkey frá Bpro.is Samstarfsaðilar Einmitt eru: Mamma veit best, Dalbrekku 30 í Kópavogi Fylgifiskar, Ný
2025-01-04
1h 13
Einmitt
87. Bergrún Ólafs “Mig langaði að gera meira”
Bergrún Ólafsdóttir er gestur minn í þessum þætti hún er verkefnastjóri umhverfis- og samfélagsmála hjá Samkaupum og við ræðum baráttuna við ræðum matarsóun í þessum þætti.
2024-12-29
1h 20
Einmitt
86. Patrik Atlason, Skýrður í höfuðið á ömmu
Patrik Snær Atlason sem flestir þekkja undir listamanns nafninu Pretty Boi Tjokko er gestur minn í þessum þætti. Við Patrik ræðum allt milli himins og jarðar í þættinum og tilvalið tækifæri að kynnast þessum áhugaverða manni.
2024-12-28
1h 18
Einmitt
85. “Ég hef staðið við mína sýn”
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra er gestur minni í þessum þætti. Við ræðum stöðu Sjálfstæðisflokksins, kosningarnar fram undan, stefnu flokksins, árangur ríkisstjórnarinnar og hvað samstarfið við VG kostaði flokkinn
2024-11-02
1h 03
Einmitt
84. “Andlát bræðranna má ekki vera til einskis“
Sigmar Guðmundsson er gestur minn í þessum þætti og við ræðum um fíknisjúkdóminn og allar hans skelfilegu hliðar og hvað við erum máttvana andspænis honum. Sigmar vill að við gerum betur sem samfélag í málaflokknum og á sér skoðanabræður víða.
2024-11-02
58 min
Einmitt
83. “Stöðnun er upptakur að falli"
Magnús Geórir Þórðarson er gestur minn í þessum þætti. Hann er afreksmaður í rekstri menningarstofnanna. Margverðlaunaður fyrir fleira en eina vídd slíkra starfa og þess vegna mikill fengur að fá að hitta hann og ræða allar þær áskoranir sem fylgja því að stýra menningarstofnun og uppfylla í senn kröfur bókarans, gestsins og gagnrýnandans
2024-10-05
1h 17
Einmitt
82. "Þetta eru bara jólin mín"
Elísabet Margeirsdóttir drottning utanvegahlaupana á Íslandi og brautryðjandi í svo mörgum þáttum þeirrar íþróttarar er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum þessa íþrótt í sínum víðasta skilningi og þá sérstaklega þetta nýja afbrigði íþróttarinnar sem eru þessi svonefndu bakgarðshlaup
2024-10-05
1h 31
Einmitt
81. Lilja Alfreðs “Ég er mjög góður DJ”
Lilja Dögg Alfreðsdóttir Menningar- og viðskiptaráðherra er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum allt milli himins og jarðar, Evruna, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Millet úlpurnar og diskóbúrið í Fellahelli. Stórkemmtilegt samtal sem ég mæli með að þið hlustið á.
2024-09-23
1h 40
Einmitt
80 Arna Magnea “Spurning um hjarta en ekki parta”
Arna Magnea Danks trans kona og aðalleikkona í kvikmyndinni Ljósvíkingar er gestur minn í þessum þætti. Myndin er komin í bíó, hrífandi og falleg saga um vináttu sem ég hvet ykkur til að sjá. Við ræðum hennar líf og leiðina út úr skápnum og öllu því sem slíkt ferðalag útheimtir af einstaklingnum og þeim sem fara með viðkomandi í það.
2024-09-16
1h 47
Einmitt
79. Rjómaterturnar eru í frjálsu falli
Friðrik Ómar er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum verkefni hans sem tónleikahaldara í sínu víðasta samhengi og sameiginlegt áhugamál okkar beggja, Söngvakeppni Sjónvarpsins og Eurovision í framtíð, fortíð og nútíð.
2024-09-08
1h 14
Einmitt
78. Björn Jörundur "Má ekki vera einhver vaxmyndasýning”
Björn Jörundur Friðbjörnsson er gestur minn í þessum þætti. Þessi frábæri tónlistarmaður og leikari stendur í stórræðum. Árlegir stórtónleikar með Ný Dönsk fram undan í Hörpu og nú er væntanleg í kvikmyndahús kvikmyndin Ljósvíkingar þar sem Björn fer einfaldlega á kostum sem leikari í fallegri sögu sem sögð er af mikilli næmni og fegurð í þeirri mynd
2024-08-27
52 min
Einmitt
77. Birgir Steinn “Þetta er bara hluti af mér”
Birgir Steinn Stefánsson tónlistarmaður er gestur minn í þessum þætti. Hann er einn besti lagahöfundur ungu kynslóðarinnar. Í þættinum ræðir hann í fyrsta sinn opinberlega andleg veikindi sem hann glímdi við undanfarin ár, hann ræðir tónlistina, ný stofnaða fjölskyldu og framtíðina í tónlistinni.
2024-08-18
1h 15
Einmitt
76 Jón Gunnar Þórðarson “Bara tala og bara hlusta”
Gestur minn í þessum þætti er Jón Gunnar Þórðarson frumkvöðull og eigandi "Bara tala”. Hann er lærður í listum og viðskiptum og var á tímabili farsæll leikstjóri en nú stýrir hann Bara tala sem unnið hefur til verðlauna fyrir gagnsemi sína í atvinnulífinu. Við tölum og “Bara tala” og margt fleira áhugavert.
2024-08-11
1h 04
Einmitt
75 Þórunn Reynis “Íslendingar gera kröfur”
Gestur minn í þessum þætti er forstjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals Útsýnar. Þórunn er með reyndustu stjórnendum í íslenskri ferðaþjónustu og hefur starfað bæði hérna heima og erlendis í áratugi. Þegar hún rýnir til gagns og ræðir um ferðaþjónustu þá er gott að hlusta og læra.
2024-08-04
1h 06
Einmitt
74 Emilíana Torrini “Var hún njósnari?"
Tónlistarkonan Emilíana Torrini er gestur minn í þessum þætti. Sem aðdáandi hennar til fjölda ára þótti mér afskaplega gaman að eiga þetta samtal. Emilíana er nýbúin að gefa út stórkostlega plötu sem er byggð á reyfarakenndri ævi Miss Flower vinkonu hennar sem nýlega féll frá. Við ræðum líka lífið í London, lífið hérna heima, lögin og ferilinn sem spannar tæp 30 farsæl ár.
2024-07-28
1h 21
Einmitt
73. Guðrún Hafsteins “Við þurfum að gera betur”
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, er gestur minn í þessum þætti. Við ræðum um feril hennar fram að framboði, þau þrjú ár sem hún hefur setið á þingi og árið hennar í Dómsmálaráðuneytinu. Við ræðum líka gengi Sjálfstæðisflokksins, hvernig hún sér flokkinn vinna upp fylgið og hvort hún sækist eftir áframhaldandi veru í oddvitasæti flokksins á Suðurlandi.
2024-07-19
1h 30
Einmitt
72 Helga Þóris “Erindið á Bessastaði”
Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi er gestur minn í þessum þætti. Hún er forstjóri Persónuverndar í leyfi og steig fram daginn fyrir páska og tilkynnti framboðið sitt. Í þessum þætti förum yfir erindi hennar til framboðs og stöðuna núna þegar seinni hálfleikur í framboðsvinnunni er að hefjast.
2024-05-13
56 min
Einmitt
71. Una Torfa “Þetta er sagan mín til dagsins í dag”
Una Torfadóttir tónlistarkona er gestur minn í þessum þætti. Ég er vandræðalega mikill aðdáandi hennar og platan hennar nýja er alveg yndisleg á að hlusta. Ég fékk Unu í heimsókn og við ræddum tónlistina, sköpunina og lífið sem hefur hún búið til í kringum listina.
2024-05-04
1h 01
Einmitt
70. Bergur Vilhjálmsson “Baráttan við hausinn"
Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og kafari gekk á dögunum 100 km frá Akranesi til Reykjavíkur með rúmlega tvö hundruð kílóa byrði á eftir sér. Bergur gekk alla þessa leið til styrktar Píeta samtökunum og til að vekja athygli á starfsemi þeirra. Gangan reyndi gríðarlega á Berg en hann kláraði verkefnið. Í þættinum fer hann yfir aðdragandann og hvað gekk á í hausnum á honum á meðan á göngunni stóð og hvaða þýðingu verkefnið hefur fyrir hann.
2024-05-02
1h 01
Einmitt
69 Hver er Halla Hrund?
Halla Hrund Logadóttir er hástökkvarinn viku eftir viku í kapphlaupi frambjóðenda til forseta Íslands. Fyrir nokkrum vikum vissi afar fáir hver Halla er en nú keppist þjóðin við að kynna sér hana og ekki seinna vænna því það styttist í kosningar. Hver er þessi kona og hvaðan kemur hún og hvað ætlar hún sér að gera ef hún nær kjöri til embættis Forseta Íslands?
2024-04-25
1h 12
Einmitt
68. Tommi Knúts “29 ár í rusli”
Tómas J. Knútsson, maðurinn á bak við Bláa herinn, hefur starfað við hreinsun umhverfisins síðustu 29 ár. Hann hefur lengi verið mér og öðrum innblástur í umhverfissmálum. Hann fékk fálkaorðu forseta Íslands fyrir þau störf en er ennþá á fullu. Núna þegar styttist í Stóra plokkdaginn fannst mér tilvalið að fá hann til mín til að ræða þetta magnaða áhugamál okkar félaganna, rusl.
2024-04-09
1h 38
Einmitt
67 Siggi Arnars “Tik Tok ætlar að taka yfir tónlistarheiminn”
Sigurður Ásgeir Árnason framkvæmdastjóri OverTune sem setti allt á hliðina í byrjun árs eftir að hafa endurlífgað Hemma Gunn við í Áramótaskaupinu. Hann fullyrðir að Tik Tok ætli sér að taka yfir tónlistarheiminn en Tik Tok stendur núna í deilum við Universal, stærsta útgáfufyrirtæki í heiminum. Við Siggi ræðum tæknina og framtíðina í þessum magnaða þætti.
2024-04-09
1h 28
Einmitt
66.Hera Björk "Hjartað stækkar og heimurinn minnkar"
Hera Björk er á leiðinni til Malmö að syngja framlag okkar í Eurovison þetta árið. Valið fór ekki fram hjá neinum. Árið 2019 heimsótti hún SOS barnaþorp bæði í Ísrael og Palestínu en hún er velgjörðasendiherra Barnaþorpanna. Við tölum um hlutverk hennar sem hennar sem velgjörðar sendiherra, hrópin sem gerð hafa verið að henni síðustu vikur og mömmu hennar sem var sveitaballa drottning suðurlands
2024-03-26
1h 20
Einmitt
65.Júlí Heiðar “Eineltið eflir mann"
Júlí Heiðar Halldórsson tónlistarmaður og lagahöfundur var að gefa út nýja plötu. Eitt af lögunum á henni, Farfuglar, vakti athygli mína núna í vetur þegar það kom út. Þar er Júlí Heiðar að syngja um tilfinningarnar og flækjurnar sem fylgja sameiginlegu forræði og umgengnisrétt samið og sungið þannig að það lætur fá sem hlusta ósnerta. Við ræðum plötuna, ferlið að verða að manni og það sem skiptir Júlí Heiðar mestu máli.
2024-03-26
1h 08
Einmitt
64. Siggi Jóhannes “Lífið er leit að lækningu”
Gestur minn í þessum þætti er Sigurður Hólmar Jóhannesson eða pabbi hennar Sunnu Valdísar. Sunna greindist með afar sjaldgæfan taugasjúkdóm aðeins 14 mánaða gömul og þá gáfu læknar henni ekki mikið meira en sex ár til viðbótar. Siggi, Ragnheiður Hjaltadóttir kona hans, læknar Sunnu og velunnarar fjölskyldunnar hafa sýnt mikla þrautseigju og eljusemi í því að leita að lækningu og bættum lífsgæðum fyrir Sunnu sem nú er orðin 18 ára gömul. Þetta er áhugaverður þáttur og upplý
2024-03-11
1h 30
Einmitt
63. Herbert Guðmundsson “Can’t walk away”
Herbert Guðmundsson er gesturinn minn í þessum þætti. Ég hef alla tíð verið aðdáandi Hebba, allt frá því ég heyrði Can’t Walk Away í fyrsta sinn árið 1985. Stórkostlegt lag í alla staði sem hefur fylgt honum sem sól í gegnum allt sem að á hann hefur dunið. Seinna eftir að ég kynntist honum sjálfum þá held ég áfram að vera aðdáandi hans fyrir þrautseigjuna. Hann stendur upp og heldur áfram, sama hvað gengur á með jákvæðni, einlægni og ástríðu að vopni.
2024-03-04
1h 07
Einmitt
62 Magga Jónasar: Kommentakerfið fór á hliðina
Gestur minn í þessum þætti er Magga Jónasar förðunarfræðingur og heilsumarkþjálfi. Við ræðum um heilsuna, orkuna og hvernig við höldum réttum kúrs í ólgusjó samfélagsmiðla, auglýsinga, rétttrúnaðar, öfga og hvernig við nálgumst fáum í sinni einföldustu mynd. Hvernig skríður kona upp úr margföldu burn-outi og stendur á haus á hverjum morgni af því að það er gott fyrir hvatberana. Já minna má það nú vera en þetta er frábært spjall.
2024-02-22
1h 13
Einmitt
61 Logi Pedro: Eru Íslendingar rasistar?
Logi Pedro er gestur minn í nýjasta þættinum af Einmitt. Hann er frábær tónlistarmaður og sýndi það með hljómsveitinni sinni Retro Stefson, svo undir eigin nafni og á bak við tjöldin sem upptökustjóri margra flottustu listamanna sinnar kynslóðar. Við Logi tölum um tónlistina í öllu því samhengi sem okkur dettur í hug en við ræðum líka hvernig er að vera svartur strákur, erum við Íslendingar rasistar og hvernig eigum við að fóta okkur í umræðunni um kynþætti og hvaðan við komum öll. Frábært og upplýsandi samtal.
2024-02-22
1h 02
Einmitt
60 Friðrik Dór "Aldrei of flottur til að hafa ekki gaman af þessu"
Friðrik Dór Jónsson einn afkastamesti tónlistarmaður landsins er gestur minn í þessum þætti. Hann var að gefa út plötuna Mæður sem er sjálfstætt framhald af Dætur sem kom út fyrir tveimur árum. Við ræðum hvernig hann semur tónlistina og hvaðan hann sælir innblástur í textana. Heiðarlegt og skemmtilegt samtal við Friðrik Dór um tónlistina.
2024-02-14
1h 12
Einmitt
59. Snædís Xyza Mae Jónsdóttir “Sá hvítan mann í fyrsta sinn þegar ég var 4 ára”
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir matreiðslumaður er gestur Einars í þessum þætti. Hún er fædd á Filippseyjum en mamma hennar flutti til Íslands skömmu eftir að hún fæddist. Þegar Snædís var fjögurra ára kom móðir hennar og sótti hana og þær hófu nýtt líf á Íslandi. Það gekk aldrei sem skildi og Snædís var inn og út af fósturheimilum sem unglingur. Það var ekki fyrr en fulltrúi barnaverndar á Dalvík gekk henni í móður stað að Snædís fór að ná að fóta sig í lífinu. Í dag...
2024-02-06
59 min
Einmitt
58 Bryndís Gunnlaugs "Fimm gríðarleg áföll á nokkrum vikum"
Gestur minn í þessum þætti er Bryndís Gunnlaugsdóttir lögfræðingur og Grindvíkingur. Hún er fyrrum forseti bæjarstjórnar í Grindavík og starfaði lengi sem lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í dag starfar hún sem lögfræðingur hjá KPMG með áherslu á opinbera stjórnsýslu. Hún tók til máls á íbúafundi með ráðamönnum á þriðjudag eftir gos og vakti þar mikla athygli.
2024-01-20
58 min
Einmitt
57. Gaupi “Hann var einstakur handboltamaður"
Guðjón “Gaupi” Guðmundsson er einn reyndasti íþróttafréttamaðurinn þjóðarinnar. Áður var hann einnig þekktur sem liðsstjóri og aðstoðarmaður Bogdans Kowalczyk hjá Víkingi og landsliði Íslands í handknattleik. Núna er sonur Gaupa, Snorri Steinn þjálfari karlalandsliðs okkar í handbolta og kominn til Þýskalands á EM í handbolta. Þar situr Snorri með væntingar þjóðarinnar í fanginu og spennan er í hámarki. Í þessum þætti greinir Gaupi stöðuna eina og birtist honum í upphafi móts.
2024-01-15
1h 10
Einmitt
56. Sveppi “Kúka með opna hurð svo ég missi ekki af neinu”
Sverrir Þór Sverrisson hefur á síðustu árum breyst úr hreinræktuðum sprelligosa sem þjóðin elskaði að horfa á blanda ógeðsdrykki og hlaupa allsber niður niður Laugaveginn í einn ástsælasta leikarann okkar. Hann er jafnvígur á útvarp, sjónvarp, kvikmyndir og leiksviðið og í þessum þætti ræðum við Sveppi um þetta ferðalag og nýjustu verkefnin hans Veisluna, Kennarastofuna, Áramótaskaupi og And Björk of Course sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í febrúar.
2024-01-11
1h 08
Einmitt
55. Manúela Ósk "Mikilvægt að fólk þekki einkennin"
Manúela Ósk Harðardóttir athafnakona er gestur minn í þessum þætti. Í desember 2023 hné hún niður í heimsókn frá frænku sinni og var keyrð með hraði á Bráðamóttökuna með heilablóðfall. Manúela hefur ekki talað mikið um þetta áfall en í þessum þætti lýsir hún hvernig endurhæfingin hefur gengið bæði andlega og líkamlega og hvað það er mikilvægt að þekka einkenni fyrirboða heilablóðsfalls.
2024-01-11
1h 34
Einmitt
53 Villi Árna “Samfélag í fullkomri óvissu”
Vilhjálmur Árnason er gestur minn í þessum þætti. Hann er þingmaður en fyrst og síðast er hann Grindvíkingur og er í sömu sporum og þeir allir um þessar mundir en Grindvíkingar lifa við mikla óvissu vegna jarðhræringana á Reykjanesskaga. Ég ræði við Villa um hvernig þetta kemur við hann sem íbúa, pabba, eiginmann og þingmann. Þá ræðum við einnig orku- og öryggismál út frá þessari stöðu en Villi er lögreglumaður og öryggismál í hafa verið Villa hugleikin alveg frá fyrsta degi á Alþingi.
2023-12-27
1h 19
Einmitt
54. Hrefna Bachmann “Grét bara fyrstu ferðina"
Hrefna er ævintýrakona í víðasta samhengi. Hún og maðurinn hennar Ólafur Vilhjálmsson hafa búið og starfað í fleiri löndum en flestir landsmenn hafa heimsótt og ekki bara það heldur eru heimsálfurnar sem þau hafa unnið í að minnsta kosti fimm; Evrópa, Norður-Ameríka, Suður-Ameríka, Asía og Afríka. Þau sóttu nám til Bandaríkjanna bæði í Florída og seinna í Arizona. Magnaðasta verkefni þeirra er þó án efa uppbygging innviða í litlum 5000 manna bæ í Uganda. Þar hafa þau tekið þátt í að byggja upp heilsugæslu, skóla og fæðingaheimili ásamt fjölskyldu og vinum. Href...
2023-12-27
1h 40
Einmitt
52. Króli „Dalirnir breytast ekki þó maður þekki þá betur“
Kristinn Óli Haraldsson, Króli, er gestur minn í þætti 52. Fjölhæfur ungur listamaður sem hefur notið mikillar velgengni og lýðhylli allt frá árinu 2017 þegar hann og Jói P stukku fram á sjónarsviðið með laginu “BOBA” en hann hefur ekki fundið vellíðan í velgengninni. Hann glímir við kvíða og þunglyndi sem hann hefur náð að lifa með en ekki kannski alveg náð að hemja. Hann talar af miklu hispursleysi um baráttu sína sem er ennþá fyrirferðarmikið verkefni í hans lífi. Í þættinum tölum við um erfið viðfangsefni og rétt að benda á síma Píeta samtakanna 552 2218 og Hjálpars...
2023-11-28
1h 17
Einmitt
51. Bjarni Karlsson: "Hvers vegna erum við grimm?"
Bjarni Karlsson er gestur minn í þessum þætti en hann er nýbúinn að senda frá sér bókina " Bati frá tilgangsleysi". Þar eins og í samtalinu okkar leitast hann við að svara spurningunni: Hvers vegna erum við grimm og heimsk? Samtalið okkar fer um víðan völl siðfræðinnar og guðfræðinnar og þar fléttast saman veraldleg og trúarleg hugsun um það sem skiptir máli í dag, að taka ábyrgð gagnvart umhverfi og mennsku.
2023-11-19
1h 19
Einmitt
50. Magni: "Tommy Lee að reyna við Ragnhildi Steinunni"
Magni „okkar“ Ásgeirsson er gestur minn í þessum þætti. Við höfum verið vinir til áratuga núna og mig langaði að ræða við hann um Rockstar Supernova tímabilið og samvistirnar við Tommy Lee og félaga í Los Angeles. Síðan ræðum við auðvitað bransann frá öllum hliðum og álagið sem því fylgir að vera í 10 starfandi hljómsveitum og rauða flaggið sem hann fékk í ágúst þegar hann var keyrður með bláu ljósin á sjúkrahúsið á Akureyri og hvernig bóndasonurinn frá Borgarfirði eystri reynir að „minnka“ álagið.
2023-11-12
1h 17
Einmitt
49. Sigríður Hrund „Heppin að fá fæðingarþunglyndi þrisvar“
Sigríður Hrund Pétursdóttir, eigandi Vinnupalla ehf. og fyrrverandi formaður Félags kvenna í atvinnulífinu er gestur minn í þessum þætti. Hún talar ljós, eins og hún kallar það, dreifir mildi og náð sem hún hefur tamið sér eftir margra ára sjálfsvinnu því lífið er ekki alltaf dans á rósum. Hún fékk fæðingarþunglyndi í þrígang og segir það heppni. Hvernig má það vera og hvernig vinnur maður sig inn í ljós eftir þa
2023-11-12
1h 13
Einmitt
48. Baldur Rafn "Metró maðurinn er orðinn miðaldra"
Baldur Rafn Gylfason hárgeiðslumeistari og eigandi Bpro heildsölunnar. Baldur var einn þeirra sem lagði grunn af innreið "Metró mannsins" til Íslands upp úr aldamótum. Metró maðurinn leyfði sér meira en bara ljósabekki og strípur til að hressa upp á útlitið. Metró maðurinn notaði líka snyrtivörur, krem og hárvörur sem ekki var algengt á þeim tíma. Nú er Metró maðurinn orðinn miðaldra og nú er hann að takast á við hækkandi kollvik, lélegan hvirfil, bauga og hrukkur. Baldur Rafn er gestur í nýjasta þættinum af Einmitt hlaðvarpi Eina...
2023-10-29
1h 32
Einmitt
47 Gabríel Ólafs “frægasti tónlistarmaður á Íslandi sem enginn veit hver er”
Gestur minn í þessum þætti er Gabríel Ólafsson, tuttugu og fjögurra ára gamall tónlistarmaður og tónskáld. Hann hefur á örstuttum tíma náð fádæma árangri í útgáfu og ekki bara það því hann rekur hljóðver á Íslandi þar sem Apple TV+, BBC og Netflix sækja þjónustu hans. Ofan á það er hann á samningi við Decca Records, sem er í eigu útgáfurisans Universal Music Group og verkin hans eru spiluð í milljóna vís um allan heim. Gabríel er þannig mjög líklega frægasti tónlistarmaður á Íslandi sem enginn veit hver er.
2023-10-22
1h 06
Einmitt
46. Drífa Björk - "Okkur þykir leitt að tilkynna þér"
Athafnakonan Drífa Björk Linnet Kristjánsdóttir er gestur minn í þessum þætti. Hún missti manninn sinn Harald Loga Hrafnkelsson í hræðilegu slysi á Tenerife þann 6. febrúar árið 2022. Heimilið þeirra og flestar veraldlegar eignir skemmdust af völdum brunans og litlu mátti muna að tvö börn hennar yrðu eldinum að bráð. Drífa fer yfir þennan afdrifatíka sunnudagsmorgun í þessu samtali okkar. Hún segi mér frá því hvernig er að vinna sig og sína út úr þessu hræðilega áfalli og hvert hún stefnir núna í lífinu. Þá ræðum við einnig kenningar "Gróu á le...
2023-10-07
1h 40
Einmitt
45. Ingimar Tryggva “Haltu áfram að skína”
Ingimar Birnir Tryggvason er gestur minn í þessum þætti. Ingimar eftirsóttur upptökustjóri og framleiðandi hér heima og erlendis. Hann er upptökustjórinn á bak við Patrik Atlason eða Prettyboitjokko eins og hann er kallaður, sem hefur sett allt á hliðina í sumar með lögunum sínum. Við ræðum hvernig það er leggja allt undir fyrir tónlistina og ná beint á toppinn.
2023-09-22
1h 10
Einmitt
44. Þórunn Sig "Kominn tími á stofnun Þjóðaróperu".
Þórunn Sigurðardóttir, einn reyndasti menningarstjórnandi landsins, er gestur minn í þessum þætti. Þórunn er formaður undirbúningsnefndar um stofnun Þjóðaróperu en nokkur styr hefur staðið um þau áform síðustu vikur. Áformin hafa verið sögð til höfuðs Íslensku óperunni en Þórunn vill bera klæði á þau vopn og fer yfir umræðuna um Þjóðaróperu sem nær aftur til ársins 1957 og fram til dagsins í dag. Hún segir löngu vera kominn tími á það að sönglistin búi við sömu kjör og aðrar listgreinar í landinu.
2023-09-17
59 min
Einmitt
43. Ágúst Bjarni þingmaður - "Greiningin var áfall"
Ágúst Bjarni Garðarsson þingmaður er gestur minn í þessum þætti. Hann og konan hans eiga dreng sem greindist með CP hreyfihömlun við eins árs aldur og er því háður ýmis konar stuðningi í daglegu lífi. Ágúst Bjarni segir í samtalinu að hann hafi farið langt niður í kjölfarið og ekki höndlað það vel en nýtir nú sína innsýn í málaflokkinn til að bæta umhverfi þeirra sem takast á við sambærilegar áskoranir.
2023-09-04
1h 06
Einmitt
42. Nylon flokkurinn "Einu sinni enn"
Gestir mínir í þessum sérstaka þætti af Einmitt eru Alma, Klara, Steinunn og Emilía úr Nylon flokknum. Það eru tæp tuttugu ár eru síðan að flokkurinn var stofnaður og hann steig fyrst á svið. Eftir að hafa slegið í gegn á Íslandi starfaði sveitin í Bretlandi en eftir að ein söngkonan hætti fluttust hinar þrjár til Los Angeles þar sem þær komu fram allt til ársins 2015. Í fyrsta sinn síðan árið 2007 steig hinn upprunalegi Nylon flokkurinn á svið á Tónaflóði Rásar 2 á Menningarnótt. Þar fluttu þær lagið Einu sinni enn, sem nú er hægt er að nálgast á Spotify. Við ræðum þetta ævintýr
2023-08-23
47 min
Einmitt
41. Halli Melló “Ekkert eins fyndið og íslenskt Wanna Be”
Vinur minn Hallgrímur Ólafsson eða Halli Melló var valin leikari ársins árið 2023 fyrir hlutverk sitt í Íslandsklukkunni sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hann hefur átt ótrúlega skemmtilegan og viðburðaríkan feril. Hann ákvað að fara í leiklist frekar en á sjó og við ræðum hvernig það er að vera “utangarðs” innan um listaelítuna, um klappið hjá Magnúsi Magnúsi Magnússyni og hvernig fátt í heiminum er eins fyndið og íslenskt “Wanna-be” sem þekkir alla en enginn þekkir hann.
2023-08-13
1h 02
Einmitt
40. Guðni Gunnarsson "Þú ert í aðalhlutverki í þínu lífi"
Guðni Gunnarsson hefur í um fjóra áratugi verið frumkvöðull á sviði líkams- og heilsuræktar. Hann er stofnandi og upphafsmaður Rope Yoga og GlóMotion hugmyndafræðinnar og “Máttur” bækurnar hans hafa notið mikilla vinsælda. Í haust byrjar hann með yfirgripsmikið námskeið í Lífsfærni sem hann kallar líka Heilrækt. Ég þekki Guðna og hef setið námskeið hjá honum og lesið bækurnar hans. Hvoru tveggja hefur reynst mér vel og með þessu spjalli langar mig hreinlega til að kynna þetta verkefni fyrir ykkur.
2023-08-06
1h 07
Einmitt
39. Klara Elías “Einhvers staðar einhvern tímann aftur”
Gestur minn í þessum þætti er Klara Ósk Elíasdóttir söngkona og góð vinkona mín til margra ára. Við ræðum um árin eftir að Charlies hættu og hvernig samstarf þeirra og vinskapur hefur þróast langt út fyrir ramma þess verkefnis. Þá ræðum við líka um nýjan kafla í lífi hennar sem tónlistarmanneskju og hvernig lagahöfundar titillinn bættist við söngkonu titilinn.
2023-08-05
1h 06
Einmitt
38. Sigurjón Ernir "Veistu um einhverja dýrategund sem borðar fjölbreytt?"
Gestur minn í þessum þætti er utanvega hlauparinn Sigurjón Ernir Sturluson. Við höfum þekkst heillengi og nálgun hans á heilsu og aðferðir hans við að koma sér í gegnum löng keppnishlaup hafa heillað mig í gegnum tíðina. Við ræðum um bakgruninn hans, aðferðafræðina bæði við þjálfun og mataræði sem oft hefur vakið mikla athygli.
2023-07-30
1h 11
Einmitt
37. Inga Kristjáns "Það þarf að semja frið við kroppinn"
Inga Kristjánsdóttir næringaþerapisti er gestur minn í þessum þætti. Hún hefur sérhæft sig í að leiðbeina fólki varðandi blóðsykurstjórnun og sykurlöngun, með það að markmiði að bæta líðan, heilsu og koma í veg fyrir þróun ýmissa bólgusjúkdóma, sem eru faraldur þessarar aldar. Þetta samtal er var nú fyrst og fremst fræðandi fyrir mig en ég vona að þið njótið og nýtið ykkur þekkingu hennar á viðfangsefninu.
2023-07-28
1h 05
Einmitt
36. María Ögn "Vitið hvað ég er gömul?"
Gestur minn að þessu sinni er vinkona mín og atvinnu hjólareiðakonan María Ögn Guðmundsdóttir. Á síðasta áratug var hún ítrekað valin hjólreiðakona ársins og varð Íslandsmeistari ár eftir ár. Í dag er hún 43 ára og þvælist um allan heim með keppnisliðinu sínu Café Dé Cyclist. Hún er nýkomin heim frá Afríku þar sem hún náði þriðja sætinu í fjögurra daga gravel hjólakeppni sem fer um þjóðgarð þar sem fáir erlendir gestir fá að vafra um og þá á hjóli.
2023-07-12
1h 05
Slappaðu af
Einar Bárðarson lagahöfundur
Rúnar Þór ræðir við Einar Bárðarson um hans feril.
2023-06-26
54 min
Einmitt
35. Davíð Rúnar "Deyja í brautinni frekar en að hætta"
Davíð Rúnar Bjarnason boxari og utanvega hlaupari hljóp 168 km í Salomon Hengil Ultra í fyrra. Hann hafði árið áður reynt við vegalengdina en ekki tekist að klára. Hann vann að því í heilt ár að bæta fyrir það og fór í raun ekki að sofa frá því keppninni 2021 án þess að minn sig á markmiðið sitt fyrir árið 2022. Hann hefur engan áhuga á utanvegahlaupum, hann vill bara sjá hvað hann getur lagt á sig.
2023-05-27
1h 23
Einmitt
34. Sigga Beinteins „Þið megið eiga söngkonuna“
Sigga Beinteins er gestur minn í nýjasta þættinum af Einmitt. Við ræðum um tónlistina sem hefur verið aðalstarf Siggu síðustu fjóra áratugi. Sigga hefur verið í fremstu víglínu tónlistarinnar allan þennan tíma og verið elskuð og dáð. Við ræðum HLH storminn, Kikkið, Stjórnina, Siggu sjálfa og starfið að vera söngkona í fremstu röð í fjóra áratugi.
2023-05-13
1h 09
Einmitt
33. Pálmi Ragnar "Loreen er örugglega að fara að jarða þetta"
Pálmi Ragnar Ásgeirsson lagahöfundur og upptökustjóri af laginu Power ásamt Dilja Pétursdóttur er gestur Einars Bárðar í nýjasta þætti af Einmitt, hlaðvarpi Einars. Pálmi er einn sá reyndasti í faginu og síðustu tíu ár hefur hann átt hönd í mörgum vinsælustu lögum landsins. Hann og Dilja hafa unnið saman síðustu fjögur ár en Pálmi er þekktur fyrir farsælt samstarf við fjölda listamanna og nægir þar að nefna samstarf hans og Bríetar.
2023-05-10
1h 07
Einmitt
32. Birgitta Haukdal "Eurovision er sumardagurinn fyrsti”
Birgitta Haukdal er gestur minn í fyrsta þættinum af fjórum þessa vikuna sem ég tileinka Eurovision með einum eða öðrum hætti. Við ræðum keppnina árið 2003 þegar Birgitta fór út fyrir hönd Íslands með lagið Open Your Heart og náði einum besta árangri okkar í þessari keppni frá upphafi. Við ræðum líka keppnirnar sem hún tók þátt í og vann ekki. Við ræðum Idol Stjörnuleit, gildi Birgittu í bransanum, lífið og tilveruna. Birgitta er ein okkar reyndasta söngkona, ein okkar allra skærasta poppstjarna og deilir reynslu sinni af fallegu örlæti í þessum þætti.
2023-05-07
1h 11
Einmitt
31. Pálmi Guðmundsson “Já sæll, já fínt og "Bæng” .. þá var þetta komið”
Pálmi er einn virtasti stjórnandi á sviði fjölmiðla á Íslandi. Hann veitir sjaldan viðtal en í þessum þætti ræða þeir Einar þróun fjölmiðla síðustu ár og rýna í framtíð þeirra.
2023-05-03
1h 14
Einmitt
30 Eva Ólafsdóttir. "Umfjöllun um sjálfsvíg"
Eva er félagsfræðingur MA og starfar hjá Píeta samtökunum. Hún skrifaði nýlega grein í fagtímarit félagsráðgjafa sem hún kallar “Umfjöllun um sjálfsvíg”. Eva fer yfir greinina og innihald hennar með Einari.
2023-05-01
50 min
Einmitt
29. Bjarni Snæbjörnsson “Má segja hommi?”
Bjarni Snæbjörnsson, leikari hjá Þjóðleikhúsinu, er að ljúka sýningum á verkinu sínu Góðan daginn faggi sem sýnd er í Þjóðleikhúskjallaranum. Hann og Einar ræða ferðalag Bjarna frá því að hann kom út úr skápnum fram að sýningunni, viðbrögð við henni og bakslaginu sem hinsegin samfélagið hefur miklar áhyggjur af. Má maður segja hommi, hver má það, hvenær? og margt fleira sem gott er að vita sama hvort maður er miðaldra eða ekki.
2023-04-18
1h 10
Einmitt
28. Ragnhildur Steinunn "Þurfti að þroskast hratt eftir móðurmissi"
Hin afkastamikla og vinsæla sjónvarpskona og framleiðandi Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir er nýjasti gestur Einars Bárðarsonar í hlaðvarpinu Einmitt. Ragnhildur hefur kynnt eða verið viðloðin Söngvakeppnina meira og minna síðan árið 2007 og er jafnan með mörg járn í eldinum, enda þolir hún ekki leti.
2023-04-10
1h 09
Einmitt
27. Felix Bergsson „Hérna er maður sem dó og hérna eru vinir hans“
Eurovision-fararnir Felix og Einar Bárðarson ræða menningar- og poppskrímslið Eurovision frá öllum mögulegum hliðum í páskadagsþætti hlaðvarpsins Einmitt. Hvernig keppnin hefur breyst og þróast yfir í alls kyns pólariseringar, pólitík og ímyndarsköpun þjóðanna. Aukin krafa þjóðanna um breytingu á stjórnarháttum til þess að mega vera með.
2023-04-09
1h 07
Einmitt
26. Emmsjé Gauti "Bulla ekki neitt í þessari konu”
Gauti Þeyr Másson, sem við þekkjum öll sem Emmsjé Gauta, er einn afkastamesti tónlistarmaður þjóðarinnar. Hann á að baki níu plötur frá árinu 2011 og fjöldann allan af lögum sem hafa sett svip sinn á tónlistarflóru landsins síðan. Einar og Gauti ræða áheyrnaprufuna þegar Gauti reyndi fyrir sér í Idol Stjörnuleit, bransann, klisjurnar, ástina og næsta Þjóðhátíðarlag.
2023-04-08
1h 09
Einmitt
25. Jóna Hrönn - “Virðum trúarskoðun annarra”
Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur í Garðabæ, ræðir við Einar í þessum þætti um fjölmenningarsamfélög í nútíð og fortíð og gildi þess að bera virðingu fyrir öllum sama hvaða trúar þau eru. Einar og Jóna tala um fórnir, umburðarlyndi, kærleikann og Jesú sem Jóna segir að hafi verið allra manna fjölmenningarlegastur.
2023-04-07
1h 14
Einmitt
24. Sigríður Soffía Níelsdóttir “Mamma lýgur”
Sigríður Soffía Níelsdóttir, danshöfundur fékk á dögunum Íslensku bjartsýnisverðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Hún er afrekskona í listum en árið 2020 í miðju MBA námi og Covid faraldri greindist hún með brjóstakrabbamein og lífið eins og hún þekkti það hrundi. Hún kemur nú útúr aðgerð, geislum og lyfjameðferð vopnuð opinskárri ljóðabók sem var að koma út. Næstu daga verður síðan frumsýnt sviðslistaverk í Þjóðleikhúsinu byggt á sömu ljóðabók "Til hamingju með að vera mannleg"
2023-04-06
1h 21
Einmitt
23. Magnús Hlynur fimm milllimetra frá dauðanum
Fréttamaðurinn Magnús Hlynur Hreiðarsson flytur okkur fréttir á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni. Þannig kemur hann inn á heimilin til okkar mörgum sinnum í viku og kætir okkur með fréttir sem fáir hafa lag á að finna nema hann. Við tölum sorgir, sigra og það að vera 5 milli metra frá dauðanum.
2023-03-25
58 min
Einmitt
20. Aldrei aftur Cop ráðstefnu
Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar. Auður er með doktorspróf í lífefnafræði frá Stokkhólmsháskóla/Karolinska Institut og hefur stundað rannsóknir á því sviði. Hún starfaði áður sem deildarforseti Auðlinda- og umhverfisdeildar Landbúnaðarháskóla Íslands, deildarstjóri hjá Orf Líftækni og hjá Íslenskri erfðagreiningu. Í þættinum ræða þau Einar sjókvíjaeldi, vindmyllugarða, pólitískt landflótta umhverfissina. Samtal sem er fræðandi og upplýsandi um stöðuna frá hennar sjónarhorni
2023-02-19
1h 17
Einmitt
19 Jón Gunnar Geirdal
Yfirplöggari aldamóta kynslóðarinnar Jón Gunnar Geirdal er gestur 19 þáttar Einmitt hlaðvarps Einars Bárðar. Þeir félagar Jón Gunnar og Einar tala um plögg bransann af þekkingu og einlægni um leið og þeir þræða slóðir nýrra ævintýra Jóns Gunnars í handritsgerð og framleiðslu fyrir sjónvarp þar sem Jón hefur verið að geta sér gott orð.
2023-02-11
1h 11
Einmitt
14 Guðrún Herborg Hergeirsdóttir
Guðrún Herborg Hergeirsdóttir er handboltakona af líkama og sál. Hún er systir Þóris Hergeirssonar landsliðsþjálfara í Noregi og móðir Janusar Daða Smárasonar lykilsmanns í íslenska karlalandsliðinu sem nú keppir á HM í Svíþjóð. Hún er sjálf fyrrum leikmaður meistaraflokks og er og hefur verið einn af máttarstólpum handboltans á Selfossi og þaðan er stór hluti íslenska landsliðsins bæði í kvenna- og karlaflokki sóttur. Einar ræðir við Guðrúnu um hennar sýn á árangur í liðsíþróttum, fórnirnar, alla lakkríspokana sem þarf að selja til að búa til einn
2023-01-15
1h 02
Einmitt
11 Kristrún Frostadóttir
Kristrún Frostadóttir kom inn í íslensk stjórnmál með hvelli fyrir um það bil einu og hálfu ári. Í haust var hún kosin formaður Samfylkingarinnar og á örfáum vikum var hún einn vinsælasti stjórnamálamaður landsins og Samfylkingin á sama hraða orðin annar stærsti stjórnmálaflokkur landsins, sé horft til nýrra viðhorfsmælinga. Einar og Kristrún ræða vorið í Samfylkingunni og hvernig vinstri sinnaður hagfræðingur ætlar að reisa við íslenskt innviðakerfi á þremur kjörtímabilum fái hún umboð til þess.
2022-12-26
1h 02
Einmitt
10 Aðalsteinn Leifsson
Aðalsteinn Leifsson Ríkissáttasemjari er gestur Einar Bárðarsonar í nýjasta hlaðvarpsþætti þess síðarnefnda, Einmitt. Þar fara þeir yfir dagleg störf hjá embættinu og bakgrunn Aðalsteins sem hefur kennt samningatækni um árabil. Síðustu ár hefur Aðalsteinn beitt sér fyrir eflingu sáttamiðlunar í íslensku samfélagi með aðstoð og aðkomu írsku sáttamiðlunarstofnunarinnar sem hefur staðið fyrir námskeiðum hér á landi.
2022-12-26
56 min
Einmitt
09 Stefán Jón Hafstein
Stefán Jón Hafstein er starfsmaður Þróunarsamvinnustofnunar Íslands og hefur verið frá 2007. Hann á að baki feril sem stjórnmálamaður, fjölmiðlamaður og rithöfundur. Hann kom meðal annars að stofnun Dægurmálaútvarps Rásar 2, var borgarfulltrúi R listans og kom að stofnun Samfylkingarinnar. Hann sat sem fulltrúi flokksins í borgarstjórn þangað til að hann vatt sínu kvæði í kross árið 2007. Hann sendi nýlega frá sér bókina Heimurinn eins og hann er þar sem hann reifar stöðu vistkerfanna í heiminum með skírskotun í samtímann og söguna. Einar og Stefán ræða innihaldið o...
2022-12-17
58 min
Unga Fólkið
Þáttur 50. Einar Bárðarson
Már Gunnarsson spjallar við Einar Bárðarson og saman fara þeir yfir stórann feril Einars.
2022-09-20
59 min
Síðdegisútvarpið
Arnaldur Arnold Bárðarson
Skandall á Biskupsstofu: Mál séra Gunnars Sigurjónssonar sóknarprests í Digranessókn í Kópavogi, sem hefur verið til meðferðar hjá treymi þjóðkirkjunnar frá áramótum og hefur teymið skilað af sér niðurstöðu. Arnaldur Arnold Bárðarson prestur á Selfossi og formaður Prestafélagsins ræðir þetta mál og fleiri sem hafa komið hjá kirkjunni alls 12 mál sem bíða afgreiðslu
2022-09-09
54 min
Jákastið
#15 Einar Bárðarson
Gestur minn þessa vikuna er Einar Bárðarson. Einar er gjörsamlega frábær og var mjög gaman, áhugavert og fræðandi að spjalla við Einar. Þú ert frábær! Ást og friður.
2022-06-27
1h 05
EKKERT RUSL
EKKERT RUSL - Einar Bárðarson fræðir okkur um allskonar tengt kolefnisjöfnun, plokkun og flokkun
Einar Bárðarson er landsmönnum kunnur fyrir æði margt og þá ekki síst fyrir að vera öflugur plokkar og auðvitað mikill poppari. Hann stýrir Votlendissjóði og hefur mikinn áhuga á því hvernig við getum bætt okkur sem land í kolefnisjöfnun. Hann segir að fyrirtæki séu í raun fljót út af markaðnum ef þau ætla sér ekki að huga að þessum málum hjá sér og taka þátt í að snúa þróuninni við. “Um 60% af heildar CO2 losun Íslendinga kemur frá framræstu landi, sem eru skurðir sem voru grafnir á sínum tíma,” segir Einar og útskýrir þ...
2022-03-09
1h 03
Einmitt
#5 Hrefna Sif Jónsdóttir - Ein áhrifamesta konan í tónlistarbransanum
Hrefna Sif Jónsdóttir er líklega ein valdamesta konan í íslensku tónlistarlífi. Hún lætur þó lítið fyrir sér fara og fer vel með það það vald. Hún er framkvæmdastjóri Tix miðasölu og ekki að ósekju því þrátt fyrir að vera ung á hún að baki mikla reynsla af miðasölubransanum.Hún vann í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, allt frá opnun þess árið 2011 en þar starfaði hún síðast sem miðasölustjóri. Í mars 2017 þegar hún réð sig sem framkvæmdastjóra Tix.is sem er langstærsta miðasölugátt lands...
2021-04-06
48 min
Einmitt
#4 Magnús Árnason - Tónlist í auglýsingum
Magnús Árnason er einn áhrifamesti og farsælasti markaðsmaður landsins. Í dag er Magnús framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar hjá Nova og eins og hann segir sjálfur frá hafa skapandi greinar og þá ekki síst tónlist alltaf verið rauður þráður í allri hans vinnu. Einar og Maggi ræða tónlist í auglýsingum allt frá hughrifum til notkunar réttar í skemmtilegu kaffi spjalli
2021-03-15
59 min
Einmitt
#3 Steinunn Camilla (Seinni hluti)
Steinunn Camilla Þóra Sigurðardóttir sótti um sumarvinnu hjá Einari Bárðar vorið 2004 þegar hún mætti í áheyrnaprufu fyrir Nylon flokkinn og síðan rak hvert ævintýrið annað. Leiðir þeirra skildu viðskiptalega undir lok árs 2007 og stúlkurnar fóru sínar eigin leiðir. Í tveggja þátta samtali ræða Steinunn og Einar um upplifun hvors sum sig af Nylon ævintýrinu og árin sem tóku við í Bandaríkjunum. Steinunn fer einnig yfir komuna heim til Íslands og þegar hún hirti titilinn "Umboðsmaður Íslands" af Einari sem umboðsmaður Bríetar, Auðs og margra skærustu stjarna
2021-02-25
1h 02
Einmitt
#2 Steinunn Camilla (Fyrri hluti)
Steinunn Camilla Þóra Sigurðardóttir sótti um sumarvinnu hjá Einari Bárðar vorið 2004 þegar hún mætti í áheyrnaprufu fyrir Nylon flokkinn og síðan rak hvert ævintýrið annað. Leiðir þeirra skildu viðskiptalega undir lok árs 2007 og stúlkurnar fóru sínar eigin leiðir. Í tveggja þátta samtali ræða Steinunn og Einar um upplifun hvors sum sig af Nylon ævintýrinu og árin sem tóku við í Bandaríkjunum. Steinunn fer einnig yfir komuna heim til Íslands og þegar hún hirti titilinn "Umboðsmaður Íslands" af Einari sem umboðsmaður Bríetar, Auðs og margra skærustu stjarna
2021-02-25
1h 01
Einmitt
#1 Herra Hnetusmjör
Herra Hnetusmjör er ekki óumdeildur. Hann ögrar en skemmtir og fer algjörlega sínar eigin leiðir þó margir í kringum hann séu sannfærðir um að þær séu ófærar. Hann hefur sýnt fram á það að það þýðir ekkert að afskrifa hann. Hann er fæddur í stjörnu hlutverkið, með skýr markmið og hefur engan tíma til að bulla. Í þessu samtali rekur Einar úr það upp úr “smjörvanum” eins og Einar kallar hann, hvað það verðmætasta sé við vörumerkið Herra Hnetusmjör
2021-02-25
1h 04
Grænvarpið
Votlendissjóður – Einar Bárðarson
Einar Bárðarson, framkvæmdastjóri Votlendissjóðs, fræðir okkur um starfsemi sjóðsins.
2020-12-14
34 min
Spekingar Spjalla
#3 Einar Bárðarson
Einar Bárðarson athafnaskáld fagnar 20 ára höfundarafmæli í ár. Við áttum létt og skemmtilegt spjall við Einar og fórum yfir Dansband EB, Skítamóral, tónlistina, umboðsmennskuna og margt margt fleira.
2018-10-12
1h 24