podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Fjorðungur
Shows
Fjórðungur - Hlaðvarp
LokaFjórðungur leiktíðarinnar
Stjarnan er Íslandsmeistari karla og Haukar kvennamegin. Meistararnir voru hylltir, goðsögn kvödd og rýnt í einvígið um titilinn. Þá var litið til framtíðar einnig.
2025-05-24
34 min
Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Hluthafaspjallið | S02E16 | Einstaklingum sem eiga hlutabréf í kauphöllinni fjölgaði um 50%
Einstaklingum sem eiga bréf í skráðum hlutafélögum í Kauphöll Íslands fjölgaði um 50% við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Þetta kemur fram í samtali við Magnús Harðarsson forstjóra Kauphallarinnar við umsjónarmenn Hluthafaspjallsins. Við útboðið fjölgaði þeim einstaklingum sem eiga bréf í kauphöllinni um 15.000. Við Íslendingar eigum þó langt í land með því að ná Svíum þar sem um fjórðungur landsmanna eiga hlutabréf. Hér var þetta hlutfall um 8% en fer upp í að verða 12% að sögn Magnúsar. Ljóst er því að sala Íslandsbanka hefur mikil áhrif á þróun mála í Kauphöll Íslands.F...
2025-05-23
02 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Framlenging Fjórðungs tímabilið 2024-2025 - 8 liða úrslit
Loksins komust strákarnir að hljóðnemunum og gerðu upp átta liða úrslitin, spáðu í spilin og rétt renndu yfir aðrar deildir. Við fáum nýjan Íslandsmeistara og möguleiki á Garðabæjar rimmu í úrslitum er möguleiki. Spennandi tímar.
2025-04-16
40 min
Samfélagið
Félagsleg einangrun, Kennedy-skjölin og köld böð
Félagsleg einangrun er lýðheilsuvandi til jafns við reykingar, ofneyslu áfengis og fleiri stórfelldar ógnir við almenna heilsu, að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Og félagsleg einangrun er frekar algeng, talið er að eitt af hverjum tíu ungmennum upplifi félagslega einangrun og um fjórðungur eldra fólks. En hverjar eru orsakirnar? Hvað er til ráða? Við ræðum við Líneyju Úlfarsdóttur, sálfræðing og sérfræðing í félagslegri einangrun um þetta lýðheilsuvandamál og hvernig hægt sé að rjúfa félagslega einangrun. Og í seinni hluta þáttarins ætlum við að ræða leyniskjöl, morð og samsæ...
2025-04-02
59 min
Mannlegi þátturinn
Á slóðum vesturfara, gítarveisla Björns og póstkort frá Magnúsi
Frá 1870-1914 yfirgáfu um 16 þúsund Íslendingar heimaland sitt og hófu nýtt líf í Norður-Ameríku, þetta var um fjórðungur þjóðarinnar. Snorri West er menningarskiptaverkefni milli Íslands og afkomenda Íslendinga í Norður-Ameríku. Eitt þeirra er fjögurra vikna reisa ungra Íslendinga vestur um haf þar sem heimsóttar eru slóðir vesturfaranna og samfélög afkomenda þeirra. Sigfús Haukur Sigfússon sagði okkur í dag frá sinni reynslu, en hann tók þátt í slíkri ferð árið 2022 og með honum kom Atli Geir Halldórsson verkefnastjóri Snorra West. Gítarveisla Björns Thoroddsen verður haldin í 21.sinn 21. fe...
2025-02-12
50 min
Mannlegi þátturinn
Á slóðum vesturfara, gítarveisla Björns og póstkort frá Magnúsi
Frá 1870-1914 yfirgáfu um 16 þúsund Íslendingar heimaland sitt og hófu nýtt líf í Norður-Ameríku, þetta var um fjórðungur þjóðarinnar. Snorri West er menningarskiptaverkefni milli Íslands og afkomenda Íslendinga í Norður-Ameríku. Eitt þeirra er fjögurra vikna reisa ungra Íslendinga vestur um haf þar sem heimsóttar eru slóðir vesturfaranna og samfélög afkomenda þeirra. Sigfús Haukur Sigfússon sagði okkur í dag frá sinni reynslu, en hann tók þátt í slíkri ferð árið 2022 og með honum kom Atli Geir Halldórsson verkefnastjóri Snorra West. Gítarveisla Björns Thoroddsen verður haldin í 21.sinn 21. fe...
2025-02-12
50 min
Mannlegi þátturinn
Á slóðum vesturfara, gítarveisla Björns og póstkort frá Magnúsi
Frá 1870-1914 yfirgáfu um 16 þúsund Íslendingar heimaland sitt og hófu nýtt líf í Norður-Ameríku, þetta var um fjórðungur þjóðarinnar. Snorri West er menningarskiptaverkefni milli Íslands og afkomenda Íslendinga í Norður-Ameríku. Eitt þeirra er fjögurra vikna reisa ungra Íslendinga vestur um haf þar sem heimsóttar eru slóðir vesturfaranna og samfélög afkomenda þeirra. Sigfús Haukur Sigfússon sagði okkur í dag frá sinni reynslu, en hann tók þátt í slíkri ferð árið 2022 og með honum kom Atli Geir Halldórsson verkefnastjóri Snorra West. Gítarveisla Björns Thoroddsen verður haldin í 21.sinn 21. fe...
2025-02-12
50 min
Samfélagið
Ímyndarkrísa endurskoðenda, matvendni og framtíðarfestival
Eru endurskoðendur leiðinlegir? Almenningur virðist að minnsta kosti vera þeirrar skoðunar, ef marka má nýja rannsókn Valdimars Sigurðssonar, prófessors við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík. Og þessi ímyndarkrísa endurskoðenda gæti haft alvarleg áhrif, þar sem nýliðun í faginu er lítil og of fáir endurskoðendur eru útskrifaðir til að anna eftirspurn. Við ræðum við Valdimar Sigurðsson og Unnar Friðrik Pálsson, endurskoðanda og framkvæmdastjóra félags löggiltra endurskoðenda, um ímynd endurskoðenda, hvað sé til ráða, og hvort innistæða sé fyrir því...
2025-01-14
59 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Fyrsti Fjórðungur tímabilsins 2024-2025
Heiðar og Árni settust niður ræddu landsliðið og svo tóku vörutalningu á liðunum í Bónus deild karla. Hvað vitum við? Ekki neitt?
2024-11-22
48 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Upphitunarþáttur Fjórðungs fyrir tímabilið 2024-2025
Loksins komumst við að hljóðnemum til að ræða körfubolta komandi vetrar og spáð í spilin. Hvar endar nýliðarnir og hverjir ættu að vera hærra í spánni eða neðar skv. Árna og Heiðari.
2024-10-03
46 min
Mannlegi þátturinn
Jafningjastuðningur á geðsviðinu og monsúnvindar og sumarkuldi í veðurspjallinu
Alþjóðleg ráðstefna um geðhvörf stendur nú yfir í Hörpu og við fjölluðum í dag um nýja nálgun á geðsviði sem er aukið samstarf á milli geðheilbrigðisstarfsfólks og jafningja með eigin reynslu af geðsjúkdómum. Nína Eck, félagsráðgjafi hjá Geðhvarfateymi Landspítala og fyrrum notandi geðheilbrigðisþónustu, kom í þáttinn, en hún hefur tekið þátt í að innleiða jafningjastuðning í Geðþjónustu Landspítalans. Með henni kom Guðmunda Arnardóttir, kennari í Bataskóla í Kaupmannahöfn og einn höfunda bókarinnar Geðhvörf fyrir byrjendur. Þær sögðu okkur meira frá jaf...
2024-10-01
55 min
Þetta helst
Vaxtavalsinn: Hvað ætlar um fjórðungur íslenskra heimila að gera?
Á þessum árshelmingi og fyrri hluta 2025 munu tæplega 350 milljarðar af húsnæðislánum losna undan vaxtabindingu. Þetta er um fjórðungur af öllum þeim sem eru með húsnæðislán á Íslandi. Um er að ræða fólk sem festi hjá sér vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum með breytilegum vöxtum þegar stýrivextir voru miklu lægri en þeir eru núna. Fjallað er um stöðu þessa stóra hóps í þættinum í dag. Hvað ætlar hann að gera þegar vextirnir hjá honum losna? Við ræðum málið við Steinunni Bragadóttur, hagfræðing hjá ASÍ, Gunnar Bjarna Viðarsson hjá A...
2024-09-19
16 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Þriðja framlenging tímabilsins 2023-2024
Árni og Heiðar settust niður og hylltu Íslandsmeistara Vals, ræddu úrslitaeinvígið og ræddu það sem vitað er nú þegar varðandi íslenskan körfubolta.Við þökkum kærlega fyrir veturinn.
2024-06-13
32 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Önnur framlenging tímabilsins 2023-2024
Við settumst niður og gerðum hreint fyrir okkar dyrum en við skulduðum þátt en allt í góðu. Við renndum örlítið yfir liðin sem hurfu af sviðinu eftir 8 liða úrslitin. Lof eða last þar. Tókum undanúrslitaeinvígin fyrir og þar var smá ef og hefði leikur en að endingu spáðum við í spilin fyrir úrslitaeinvígið. Einnig buðum KR og ÍR velkomin aftur og ræddum úrslitaeinvígið kvennamegin í smástund.
2024-05-17
48 min
Mannlegi þátturinn
Fjölmenningarþing, vinkill og Sveinn Sampsted lesandinn
Fjölmenningarþing var haldið á vegum Reykjavíkurborgar nú um helgina en þingið er mikilvægur vettvangur virkrar umræðu sem snertir á málefnum innflytjenda og fólks af erlendum uppruna. Reykjavíkurborg er fjölmenningarborg og eru um fjórðungur íbúa hennar af erlendum uppruna. Á þinginu var til dæmis varpað fram spurningunum: Fjölmenningarfærni - sitjum við öll við sama borð? Ert þú fjölmenningarfær? Getur góð þýðing á bókmenntum falið í sér inngildingu? Hvernig þróum við samfélagstúlkun í breyttu samfélagi? Íslenska töluð með hreim - hefur það áhrif á samskipti í daglegu lífi? Guðný Bára Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá mannréttinda...
2024-05-06
50 min
Mannlegi þátturinn
Fjölmenningarþing, vinkill og Sveinn Sampsted lesandinn
Fjölmenningarþing var haldið á vegum Reykjavíkurborgar nú um helgina en þingið er mikilvægur vettvangur virkrar umræðu sem snertir á málefnum innflytjenda og fólks af erlendum uppruna. Reykjavíkurborg er fjölmenningarborg og eru um fjórðungur íbúa hennar af erlendum uppruna. Á þinginu var til dæmis varpað fram spurningunum: Fjölmenningarfærni - sitjum við öll við sama borð? Ert þú fjölmenningarfær? Getur góð þýðing á bókmenntum falið í sér inngildingu? Hvernig þróum við samfélagstúlkun í breyttu samfélagi? Íslenska töluð með hreim - hefur það áhrif á samskipti í daglegu lífi? Guðný Bára Jónsdóttir, verkefnastjóri hjá mannréttinda...
2024-05-06
51 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Fjórði Fjórðungur tímabilsins 2023-2024
Strákarnir settust niður, kvöddu fjögur lið og einn þjálfara, gerðu upp tímabil liðanna sem komust í úrslitakeppni og rýndu í framtíð einvígjanna. Spennan er mikil á sumum vígstöðvum og hefur minnkað annarsstaðar.
2024-04-13
1h 09
Fjórðungur - Hlaðvarp
Þriðji Fjórðungur tímabilsins 2023-2024.
Árni og Heiðar settust niður og fóru yfir stöðuna nú þegar fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni, rýndu í stöðuna og spáðu fyrir um það hvernig liðin raðist upp í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Valur - Höttur 1-8Grindavík - Álftanes 2-7Keflavík - UMFT 3-6Þór - Njarðvík 4-5Einnig var rætt um landslið karla og árangur þeirra, Subway deild kvenna, fyrstu deildirnar og önnur deild karla. Góðar stundir
2024-02-29
1h 24
Fjórðungur - Hlaðvarp
Fyrsti og Annar Fjórðungur tímabilið 2023-2024
Við tókum heildrænt uppgjör á því hvernig Subway deild karla 2023-2024 hefur gengið. Mikil spenna, þéttur pakki, vesen á leikmannahópum og engin leið til að sjá hvernir það eru sem verða deildarmeistarar og síður Íslandsmeistarar.
2023-12-20
1h 21
Síðdegisútvarpið
19.desember
Eldgos hófst milli Sýlingarfells og Hagafells upp úr klukkan tíu í gærkvöld. Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir að eldgosið sé á besta stað í vondri sprunguröð. Hann telur að sprungan sé hætt að lengjast. Hraunflæði hefur dregist verulega saman og er nú um fjórðungur af því sem það var í upphafi. Sævar Helgi Bragason bendir á að íbúar á suðvesturhorninu gætu átt von á þreföldu sjónarspili ef léttir til nú síðdegis; glitskýjum, eldgosi og norðurljósum. Hann hvetur fólk til að horfa til himins og jarðar. Á línunni hjá okkur á eftir verður Víðir Reynisson...
2023-12-19
1h 54
Fjórðungur - Hlaðvarp
Upphitun fyrir tímabilið 2023-2024. Stigahlaup og skot af lyklinum
Heiðar og Árni settust niður og rýndu í landslagið fyrir komandi tímabil í Subway deild karla. Spáð var fyrir um röð liðanna í deildarkeppni og svo aðeins nefnt hverjir gætu verið Íslandsmeistarar þegar allt er afstaðið. Mun það koma á óvart hverja strákarnir telja vera sigurstranglegasta? Væntanlega ekki.
2023-10-02
1h 20
Fjórðungur - Hlaðvarp
Þriðja framlenging tímabilsins 2022-2023
Tímabilinu er lokið. Við hylltum Íslandsmeistara Tindastóls og ræddum helstu leikendur. Þvílíkt einvígi og þvílíkur sigur Sauðkrækinga. Einnig ræddum við menningu og fórum yfir sviðið fyrir næsta tímabil.
2023-05-24
52 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Önnur framlenging tímabilsins 2022-2023
Nú er ekkert annað eftir en að útkljá það hverjir lyfta Íslandsmeistaratitlinum og það er endurtekið efni frá því í fyrra. Valur og Tindastóll munu berjast um titilinn. Við reyndum að rýna í þetta, kvöddum Loga, fórum yfir undanúrslita einvígin og tæptum á því sem við vitum fyrir næsta tímabil.
2023-05-04
58 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Fyrsta framlenging tímabilsins 2022-2023
Sumarið er komið, 8 líða úrslitum er lokið og alvaran og dramatíkina verður bara meiri héðan af. Við fórum yfir einvígin sem er lokið, kvöddu liðin sem duttu út og rýndum í undanúrslitum.
2023-04-20
48 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Fjórði Fjórðungur tímabilsins 2022-2023.
Útlendingar, úrslitakeppni og ekki útséð með hvernig deildin endar að fullu en Árni og Heiðar renndur yfir breitt svið ásamt hefðbundnu Fjórðungsuppgjöri. 1. deildin og kvennadeildin fengu einnig smá umfjöllun.
2023-03-28
1h 41
Fjórðungur - Hlaðvarp
Þriðji Fjórðungur tímabilsins 2022-2023.
Heiðar og Árni settust niður og fóru vítt yfir sviðið. Landsliðið tekið fyrir, Subway deild karla gerð upp af gömlum vana og 1. deildin tekin fyrir.Gætu Stjarnan og Grindavík misst af úrslitakeppninni? Fá Héraðsbúar að finna úrslitakeppnistilfinninguna? Hverjir verða deildarmeistarar og sleppa við Þór Þ. í fyrstu umferð? Það virðast verða aðalverðlaunin.
2023-03-03
1h 26
Fjórðungur - Hlaðvarp
Annar Fjórðungur tímabilið 2022-2023
Heiðar og Árni settust niður til að gera upp annan Fjórðung tímabilsins. Rætt var um dómarastéttina og svo rennt yfir liðin tólf í Subway-deild karla í körfuknattleik. Sum lið eru í vondum málum, sum lið eru bara skrýtin, önnur lið sigla lygnan sjó og svo eru lið sem eru mjög góð og þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur.
2023-01-05
1h 43
Fjórðungur - Hlaðvarp
Fyrsti Fjórðungur timbilsins 2022-2023
Heiðar og Árni settust niður í aðdraganda landsleikjhlés til að gera upp fyrsta Fjórðung tímabilsins. Væri réttara að kalla deildina Borgarlínudeildina? Lið gætu allavega færst ansi hratt á milli efri byggðar og neðri byggðar með sigri eða tapi. Kemur á óvart hvar nokkur lið eru staðsett í dag og svo kemur minna á óvart hvar önnur lið eru staðsett.
2022-11-07
1h 25
Fjórðungur - Hlaðvarp
Upphitunarröðin fyrir tímabilið 2022-2023
Upphitunin er í seinna lagi þetta tímabilið en henni er nú lokið. Við lofsungum Pavel Ermolinskij áður en við fórum yfir spána hjá Fjórðungi. Fer Höttur beint niður aftur og hverja taka þeir þá með sér? Eru Keflvíkingar bestir? Það eru stórar spurningar sem við fáum svör við í vetur.
2022-10-07
1h 28
Fjórðungur - Hlaðvarp
Loka Fjórðungur tímabilsins 2021-2022
Heiðar og Árni settust við fjarfundarbúnaðinn og ræddu um loka rimmuna um Íslandsmeistaratitilinn, Íslandsmeistara Vals, leikmennina sem skópu titilinn, Stólana og þeirra vegferð, stuðið á pöllunum áður en þeir renndu yfir sviðið fyrir næsta tímabil og landslið Íslands. Pavel Ermolinskij á drjúgan part. Þrjú korter af körfuboltaspjalli.
2022-05-20
44 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Önnur framlenging tímabilsins 2021-2022
Það er komið að því! Tvö lið eftir með eitt markmið. Valur og Tindastól munu bítast um Íslandsmeistaratitilinn þetta tímabilið og eru þau vel að því komin. Við óskuðum Njarðvíkingum til hamingju með sinn titil fórum yfir undarnúrslitin og spáðum í spilin fyrir úrslitaeinvígið.
2022-05-06
41 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Fyrsta framlenging tímabilsins 2021-2022
Farið yfir sviðið eins og það lítur út eftir átta liða úrslit Subway deildar karla og spáð í spilin fyrir undanúrslitin. Fáum við 2 oddaleiki í byrjun maí? Það væri heldur betur fengur fyrir körfuboltaaðdáandann. Einnig var drepið á úrslitaviðureign kvenna og neðri deildum.
2022-04-20
53 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Fjórði Fjórðungur tímabilsins 2021-2022.
Farið var yfir neðstu fjögur liðin, snert á undanúrslitum kvenna og farið yfir einvígin í 8-liða úrslitum karla. Þá var tímabilið gert upp, sett saman úrvalslið og menn valdir bestir og efnilegastir.
2022-04-05
1h 12
Fjórðungur - Hlaðvarp
Þriðji Fjórðungur tímabilsins 2021-2022.
Farið yfir sviðið eftir skrýtinn Fjórðung af tímabilinu. Hvernig sjá strákarnir fyrir sér að efstu átta raðist? Hverjir missa af úrslitakeppninni? Landslið. Smá 1. deild og Subway deild kvenna.
2022-02-22
1h 30
Fjórðungur - Hlaðvarp
Annar Fjórðungur tímabilið 2021-2022
Settumst niður og gerðum upp annan Fjórðung. Falldraugurinn lifir á landsbyggðinni. Höfðum áhyggjur og ekki af nokkrum liðum. Taflan lýgur sjaldan en Þór frá Þorlákshöfn er tilbúnasta liðið en Keflavík eru bestir.
2022-01-05
1h 15
Fjórðungur - Hlaðvarp
Annar Fjórðungur tímabilið 2021-2022
Annað Fjórðungsuppgjörið. Falldraugurinn lifir á landsbyggðinni. Áhyggjur og ekki ef nokkrum liðum. Taflan lýgur ekki en Þór frá Þorlákshöfn eru tilbúnastir en Keflavík bestir.
2022-01-05
1h 24
Fjórðungur - Hlaðvarp
Fyrsta Fjórðungs uppgjörið tímabilið 2021-2022
Uppgjör á fyrsta Fjórðungi er komið og tímabært sýnist okkur. Hverjir eru á leiðinni upp og hverjir niður? Hvar standa liðin gagnvart spá okkar og hvað er langt á milli íþróttahúsa?
2021-11-18
1h 33
Fjórðungur - Hlaðvarp
Upphitunarröðin hjá Fjórðungi fyrir tímabilið 2021-2022
Við erum mættir aftur og er það ekki seinna að vænna. Körfuboltatímabilið hefst núna á miðvikudaginn og við þurftum að setjast niður og kraftraða liðunum í Úrvalsdeild karla.Flestir átta sig á því hverjir eru neðstir og hverjir gætu mögulega verið efstir en hvar raðast hinir?
2021-10-05
1h 25
Fjórðungur - Hlaðvarp
Loka Fjórðungur tímabilsins 2020-2021
Löngu, skemmtilegu og eftirminnilegu tímabili er lokið. Þór Þorlákshöfn er Íslandsmeistari og þurfti að gera upp lokaeinvígið við Keflavík. Einnig var farið yfir viðurkenningar, mölbúahátt KKÍ, leikmannamál, mál Kristófers Acox, leikjadagskrá næsta tímabils og fleira.
2021-07-10
1h 01
Fjórðungur - Hlaðvarp
2. framlenging Fjórðungs tímabilið 2020-2021
Strákarnir ræddu leikmanna og þjálfara mál áður en undanúrslitin voru gerð upp. Geta KR og Stjarnan verið ánægð með tímabilið hjá sér? Svo var farið yfir hvað gæti gerst í úrslitaeinvíginu á milli Þórs frá Þorlákshöfn og Keflavíkur. Eiga Keflvíkingar titilinn vísann?
2021-06-15
1h 01
Fjórðungur - Hlaðvarp
1. framlenging Fjórðungs 2021
Strákarnir settust fyrir framan tölvurnar og áttu gott samtal um þjálfaramálin í Dominos deild karla, fóru yfir átta liða úrslitin og spáðu í spilin fyrir undanúrslitin.
2021-05-31
1h 12
Fjórðungur - Hlaðvarp
Fjórði Fjórðungur tímabilsins 2020-2021.
Okkur tókst að klára deildarkeppnina. Okkur mun takast að klára úrslitakeppnina. Heiðar og Árni fóru yfir liðin, mátu þau og spáðu síðan fyrir um átta liða úrslitin.
2021-05-12
1h 32
Landspítali hlaðvarp
LEGVARPIÐ // Steinunn K. Zophoníasdóttir ræðir breytingaskeiðið við Sunnu Maríu og Stefaníu Ósk
"Legvarpið" er ný sjálfstæð þáttasyrpa ljósmæðra innan Hlaðvarps Landspítala. Stjórnendur syrpunnar eru hjúkrunarfræðingarnir og ljósmæðurnar Sunna María Helgadóttir og Stefanía Ósk Margeirsdóttir. Í þessum öðrum þætti Legvarpsins hjá Hlaðvarpi Landspítala forvitnast þær um breytingaskeiðið með samtali við Steinunni Kristbjörgu Zophoníasdóttur ljósmóður, sem skrifaði meistaraprófsritgerð um þetta merkilega tímabil í lífi kvenna.Um fjórðungur kvenna á breytingaskeiði upplifir veruleg einkenni sem hafa áhrif á daglegt líf og lífsgæði, svo sem hitakóf, svefntruflanir og andlega vanlíðan. Birtingarmynd ein...
2021-04-30
1h 19
Fjórðungur - Hlaðvarp
Þriðji Fjórðungur 2020-2021. Þetta verður klárað
Tíðindi dagsins 13. apríl 2021 gerðu það að verkum að strákarnir settust við hljóðnema og fóru yfir stöðuna. Fyrst hvernig Dominos-deild karla verður kláruð og síðar var staðan tekin á hverju liði fyrir sig þegar einn Fjórðungur lifir af deildarkeppninni.
2021-04-14
1h 07
Fjórðungur - Hlaðvarp
Annar Fjórðungur tímabilið 2020-2021
Árni og Heiðar settust við tölvurnar og fóru yfir breiðar strokur í íslenskum körfubolta. Útlendingamál, liðin þegar 10 umferðir eru búnar og örlítið um 1. deild kk, Dominos kvk og 1. deild kvk.
2021-02-16
1h 01
Fjórðungur - Hlaðvarp
Fyrsta Fjórðungs uppgjörið tímabilið 2020-2021
Í fyrsta sinn eftir Covid pásuna settumst við niður og fórum yfir liðin í Úrvalsdeild karla byggt á staðreyndum en ekki hvað gæti orðið. Vonbrigði, verðbólga, veggurinn og virkilega skemmtilegt að þetta sé komið af stað aftur.
2021-01-31
1h 34
Fjórðungur - Hlaðvarp
Upphitun fyrir körfuknattleikstímabilið. Taka 2.
Heiðar og Árni tylltu sér með rúmlega tvo metra á milli sín og ræddu þau gleðitíðindi að körfuboltinn fari af aftur af stað. Ástandið, form mótsins, liðin og önnur atriði tekin fyrir á rúmum klukkutíma.
2021-01-13
1h 03
Fjórðungur - Hlaðvarp
Fjórðungur ræðir við Arnar Guðjónsson
Þjálfari ríkjandi deildar- og bikarmeistara Stjörnunnar Arnar Guðjónsson hitti okkur í stafrænu upptökuveri og ræddi við okkur um ástandið í íslenskum körfubolta.
2020-12-03
46 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Körfuboltamál Fjórðungs hlaðvarps
Fjórðungur hlaðvarp fékk til sín góðan gest en Kristján Gauti Karlsson leit við og ræddi BA ritgerð sína í íslensku „Stökkskot og stoðsendingar: Orðmyndun í íslensku körfuboltamáli." Reynt var að finna orð á nokkra hluti sem hefur ekki verið náð að þýða svo vel sé gert ásamt því að rætt var örlítið um körfuboltann á Vesturlandi og hvenær körfuboltinn fer aftur af stað hér á landi.BA ritgerð Kristjáns er hægt að nálgast hér: https://skemman.is/handle/1946/35554
2020-11-11
1h 04
Fjórðungur - Hlaðvarp
Layupröð Fjórðungs fyrir 2020-21
Yfirferð á liðin í Dominos deild karla og opinber spá Fjórðungs er opinberuð. Einnig rennt yfir 1. deild karla og Dominos deild og 1. deild kvenna. Nóg um að vera semsagt og stutt í mót.
2020-09-30
1h 23
Fjórðungur - Hlaðvarp
Skotæfing Fjórðungs fyrir leik
Það er klukkutími í leik og menn eru mættir út á gólf að liðka sig til. Farið er yfir hvernig liðin líta út mánuði fyrir mót og gerð drög að spá Fjórðungs. Eru Þórsliðin of lágt í spánni? Er tími Tindastóls kominn loksins? Ætla Valsmenn að gera þetta af alvöru núna?
2020-09-07
1h 35
Fjórðungur - Hlaðvarp
Endurlit Fjórðungs - Keflavík - Skallagrímur 6.4.2006
Strákarnir þurftu að kveðja tímabilið sem kláraðist aldrei. Þeir gera það með því að fara yfir sviðið í þjálfaramálum á Íslandi og þær sviptingar sem hafa orðið undanfarna daga. Þá var farið til baka um 14 ár og litið aftur á oddaleik Keflavíkur og Skallagríms í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfuknattleik árið 2006. Bræður börðust og annar þáttastjórnandinn sat á bekk Skallagríms á meðan hinn sat líklega sveittur við að klára ritgerð í sagnfræði við Háskóla Íslands. Er þetta stærsta stund í sögu karlakörfunnar í Borgarnesi?Leikinn er hægt að nálgast hér: h
2020-05-13
1h 10
Fjórðungur - Hlaðvarp
Endurlit Fjórðungs - ÍRB - London Leopards 15.9.1999
Aftur horfðum við á gamlan körfuboltaleik og í þetta sinn varð fyrir valinu leikur ÍRB og London Leopards í Korac bikarnum tímabilið 1999-2000. Líklega hefur aldrei svo rosalegt lið verið sett saman í íslenskum körfubolta. Hægt er að nálgast leikinn hérna á YouTube síðu Friðriks Inga Rúnarssonar: https://www.youtube.com/watch?v=n7ZlEz-xkGY Fyrst þó fórum við yfir sviðið í mannabreytingum á liðunum í Dominos deildunum en það er nóg um að vera á þessum fordæmalausu tímum.
2020-04-21
52 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Sögumoli um ÍRB
Í tilefni af því að strákarnir hafa horft á ÍRB á móti London Leopards í Korac bikarnum frá árinu 1999 endurflytjum við sögumola um ÍRB frá 2. janúar 2019.
2020-04-20
15 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Endurlit Fjórðungs - KR-ÍA 29.3.1998
Við ákváðum að líta til baka á leik KR og ÍA í undanúrslitum árið 1998. Afrek ÍA í 8-liða úrslitum verður líklega ekki endurtekið. Damon Johnson var rosalega góður og kannski sá besti. 2X20 mínútur. Ermolinskij staran. Skegg! Kærar þakkir til þeirra sem eru að hlaða upp gömlum leikjum á YouTube.Leikinn má nálgast hér: https://youtu.be/LY0SGNlOzxo
2020-04-06
59 min
Fjórðungur - Hlaðvarp
Covid19 Fjórðungur tímabilið 2019-2020
Tímabilið fékk heldur snubbóttann endi og eru menn fúlir en við sættum okkur við þetta því rétt ákvörðun var tekin með almannahagsmuni í huga. Við ræðum ákvörðunina áður en við ræðum körfubolta. Stjarnan eru deildarmeistarar en KR verða Íslandsmeistarar sjöunda árið í röð. Kveðjum Fjölni og bjóðum Hött velkomna í Dominosdeildina. Við ræðum einnig hvernig úrslitakeppnin hefði hugsanlega verið.
2020-03-25
1h 12
Fjórðungur - Hlaðvarp
Þriðji Fjórðungur 2019-2020
Við erum mættir aftur. Nú verður þriðji Fjórðungur Dominos deildar karla gerður upp. Er Valur á leiðinni niður? Ætlar Grindavík að missa af úrslitakeppninni í fyrsta sinn síðan 1992? Er Stjarnan orðin deildarmeistari og hvað þýðir það fyrir úrslitakeppnina?
2020-02-05
1h 32
Fjórðungur - Hlaðvarp
Annar Fjórðungur tímabilið 2019-2020
Staðan tekin á liðunum í úrvalsdeild karla. Hver toppar feigðar kraftröðunina t.d. og hverjir eru með hækkandi hlutabréf? Viljum við ekki fara að fá nýtt nafn á Íslandsmeistarabikarinn?Örlítið drepið á Úrvalsdeild kvenna og litið á neðri deildirnar.
2019-12-27
59 min