podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Gimaldið
Shows
Gímaldið
Nágrannar: „Við erum svona lukkudýr“
Nágrannar eru nýir hlaðvarpsþættir Gímaldsins sem Erla Hlynsdóttir stýrir. Gestur hennar að þessu sinni er Anna Ólafsdóttir Björnsson sem hefur átt fjölmarga nágranna í gegn um tíðina, jafnvel þó hún hafi nú búið á sama stað í 45 ár. Anna talar um sig sem ákveðið lukkudýr í nágrannamálum og aldrei átt leiðinlega nágranna, ekki einu sinni nágranninn sem hún var fyrirfram vöruð við en reyndist síðan hinn besti karl. Hún segir frá áhugaverðum sögum af samskiptum við nágranna fyrr og síðar.
2026-02-18
34 min
Gímaldið
Sirkabát #11: Verðbólgan og pennastrikið
Árið hófst á vonbrigðum þegar árleg verðbólga skaust úr 4,5% í 5,2% á einum mánuði. En hvað liggur að baki? Þáttastjórnendur Sirkabát kafa ofan í vísitölu neysluverðs, skoða flokkana sem ýttu henni upp og reikna út hvað hefði gerst ef lagabreytingar á vörugjöldum ökutækja hefðu ekki tekið gildi um áramótin. Niðurstaðan: Gagnrýnin á gjaldahækkunina á við, en svartsýnisspáin kannski ekki. Lestu lengri greiningu Sirkabát á verðbólgutölum á Gímaldinu. Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli og hjálpar okkur að halda út...
2026-02-12
25 min
Gímaldið
Sirkabát #10: Innflytjendur og lífeyrisgreiðslur
Nýlegar fréttir hafa bent á mikla fjölgun erlendra lífeyrisþega. En hvaða samhengi vantar? Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur hjá Hagstofunni bendir á að þótt fjöldinn hafi aukist hefur hlutfallið haldist lágt: aðeins 3,6% útlendinga á vinnumarkaði þiggja örorku- eða endurhæfingarlífeyri, samanborið við 18% Íslendinga. Gott dæmi um mikilvægi þess að greina tölur áður en þeim er slegið upp.Sirkabát er hlaðvarp sem rýnir í tölurnar í fréttum og fréttirnar í tölum. Þáttastjórnendur Sirkabát eru Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson tölfræðingur og Georg Gylfason sagnfræðingur.
2026-02-11
09 min
Gímaldið
Barnaníðsefni ekki lengur bara í lokuðum hópum á netinu
Hallur Hallsson, rannsóknarlögreglumaður hjá kynferðisbrotadeild, ræðir störf deildarinnar og alþjóðlegt samstarf til að finna og greina barnaníðsefni á netinu þar sem markmiðið er að koma þolendum til bjargar. Erla Hlynsdóttir ræðir við hann.Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Þú getur keypt áskrift og verið þannig með í að lýsa upp samfélagið. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli.
2026-02-09
28 min
Gímaldið
Hvað er eiginlega þetta ICE?
Fjöldamótmæli gegn aðgerðum ICE hafa farið fram víða um Bandaríkin að undanförnu. Ríkisstjórn Trump hefur lagt mikla áherslu á fjölgun ICE-liða og þjálfunartími þeirra styttur til að koma sem flestum á göturnar sem fyrst. Þá hefur Trump snaraukið fjárframlög til ICE. Hvað þarf til að komast inn í ICE? Hversu miklum fjármunum er veitt í þetta fyrirbæri og hvað gerist næst í Bandaríkjunum?Erla Hlynsdóttir blaðamaður fjallar um ICE – Innflytjenda- og tollaeftirlitið alræmdaGímaldið er áskriftarmiðillHver einasta áskrift skiptir okku
2026-01-28
14 min
Gímaldið
Lilja Alfreðs: Framsókn þarf að komast á eldhúsborð þjóðarinnar að nýju
Lilja Dögg Alfreðsdóttir hefur tilkynnt um framboð til formanns Framsóknarflokksins, en hún er varaformaður flokksins. „Framsóknarflokkurinn á að mínu að mati að sækja fram og koma með lausnir," segir Lilja Alfreðsdóttir í viðtali við Gímaldið. Lilja nefnir til dæmis lausnir sem Framsókn geti talað fyrir á vettvangi efnahagsmála. „Ég viðurkenni að efnahagsstefna Kristrúnar kemur mér á óvart,“ segir Lilja sem telur viðbrögð ríkisstjórnarinnar, til að ná niður verðból...
2026-01-27
25 min
Gímaldið
Dagur B. Eggertsson: Norðurlöndin búa sig undir stríð
„Norðurlöndin eru að búa sig undir stríð, ekki bara með hernaðaruppbyggingu heldur einnig með öðrum viðbúnaði til dæmis á sjúkrahúsum og með birgðasöfnun,“ segir Dagur B. Eggertsson þingmaður í viðtali við Gímaldið. „Maður vill ekki mála upp of dökka mynd en þetta er svolítið eins og í almannavörnunum að við verðum að vera samt heiðarleg með það sem getur teiknast upp og axla ábyrgð á að búa okkur undir þa...
2026-01-24
44 min
Gímaldið
Sirkabát #9: Hugtökin hægri og vinstri sveiflast eftir deilumálum stjórnmála hverju sinni
Hvað þýðir það að vera hægri- eða vinstrisinnuð í stjórnmálum? Viktor Orri Valgarðsson, doktor í stjórnmálafræði, útskýrir uppruna hugtakanna og hvernig merking þeirra breytist eftir tímabilum, löndum og deilumálum í stjórnmálum hverju sinni.Sirkabát er hlaðvarp sem Gímaldið gefur út. Í þáttunum er rýnt á bak við fréttir, gjarnan í tölfræði eða annað sem er til þess fallið að dýpka umræðuna.Gímaldið er fjölmiðill í áskrift – þú getur stutt við okkur með því að kaupa áskrift og fengið þannig aðgang að öllu efni Gímaldsins. Hver áskrift ski
2026-01-21
26 min
Gímaldið
Ingibjörg Isaksen kallar eftir samvinnu þvert á flokka í málefnum barna
Í viðtali við Gímaldið fer Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins yfir stöðu flokksins, framtíðarsýn sína fyrir flokkinn og pólitíkina í þinginu. Ingibjörg hefur lýst yfir framboði til formanns flokksins. Sigurður Ingi Jóhannsson hættir sem formaður á flokksþingi Framsóknarflokksins í febrúar. Ingibjörg segir í viðtalinu að tækifæri felist í tómarúminu á vinstri væng stjórnmálanna. „Ef við horfum á þetta pólitíska litróf sjáum við að flokkar sem eru hægra meg...
2026-01-20
24 min
Gímaldið
Nágrannar: Óskeikult ráð að vera bara næs
Nágrannar er nýtt hlaðvarp úr smiðju Gímaldsins sem Erla Hlynsdóttir stýrir. Við ætlum að fjalla um nágranna frá ýmsum hliðum. Við eigum öll nágranna. Þeir búa í búsinu við hliðina á okkur, í íbúðinni fyrir neðan okkur eða uppi á næstu hæð. Sumum nágrönnum kynnumst við en öðrum ekki. Við kynnumst broti af lífi nágranna okkar og þeir broti af okkar. Guðríður Haraldsdóttir er viðmælandi fyrsta þáttar. Hún segir það óskeikult ráð að vera bara næs við nágranna og bjóða góðan daginn á gang...
2026-01-17
32 min
Gímaldið
Einhverf Barbie og ósýnilegu stelpurnar
Einhverf Barbie er ekki bara dúkka heldur tákn um sýnileika og viðurkenningu í heimi þar sem stelpur með einhverfu hafa lengi verið ósýnilegar.Erla Hlynsdóttir fjallar um einhverfa Barbie-dúkku sem er nýkomin á markað. Pistillinn birtist á áskriftamiðlinum Gímaldinu.Þú getur verið með í að styðja við Gímaldið með því að kaupa áskrift eða leggja til frjálst framlag.
2026-01-14
07 min
Gímaldið
Þjóðfélagið þarf að geta bognað án þess að brotna – Víðir Reynisson í viðtali um nýja stefnu í öryggis- og varnarmálum
Þingmaðurinn Víðir Reynisson hefur víðtæka reynslu á sviði almannavarna og þjóðaröryggis. Aðalheiður Ámundadóttir blaðamaður ræðir við hann um viðbúnað á Íslandi ef til stríðsátaka kæmi og um nýja stefnu utanríkisráðherra í öryggis- og varnarmálum.Víðir starfaði við almannavarnir í rúma tvo áratugi áður en hann tók sæti á þingi, síðast sem sviðsstjóri almannavarna hjá embætti ríkislögreglustjóra. Þá hefur hann setið...
2026-01-10
34 min
Gímaldið
Sirkabát #8: Greindu Betur
Ár hvert safnast 14-19 ára ungmenni saman og rýna í tölur og gögn í keppninni Greindu betur. Keppnin hefur vaxið mikið frá því hún hófst árið 2021. Keppninni er skipt upp í tvo aldursflokka eftir námsstigi og keppnisefnið er sniðið að getu hvers flokks. Tilgangurinn er að efla upplýsingalæsi grunn- og framhaldsskólanema. Kristín Ingvarsdóttir og Arndís Vilhjálmsdóttir hjá Hagstofunni ræða um keppnina í nýjasta þættinum af Sirkabát.
2026-01-08
21 min
Gímaldið
Tala ársins 2025
Hver er tala ársins 2025?Sirkabát rýnir í tölur ársins með gestum þáttarins. Tölur ársins segja margar og ólíkar sögur. Sirkabát fékk nokkra einstaklinga til að rýna í árið, velja sína uppáhalds tölu og deila með hlustendum. Arndís Vilhjálmsdóttir, teymisstjóri notendaþjónustu hjá HagstofunniEmil Dagsson, doktorsnemi í hagfræði við Háskóla Íslands og starfsmaður deildar rannóknar og spár hjá Seðlabanka ÍslandsKolbeinn Stefánsson, félagsfræðingur og dósent við félagsráðgjafadeild Háskóla ÍslandsIngvar Örn Ákason, verkef...
2025-12-30
41 min
Gímaldið
Sirkabát - Þáttur 6
Hvað er margar mismunandi tegundir af jólabjórum til sölu í ríkinu? Í þessum jólaþætti Sirkabát taka þáttastjórnendur sér fyrir hendur að greina þróun á sölu og breytingum á úrvali á jólabjór seldur er í verslunum ÁTVR.
2025-12-23
15 min
Gímaldið
Heillaður af bókum – Einar Kári Jóhannsson ritstjóri
Í Bókapressunni fáum við innsýn inn í heim ritstjóra bóka í desember, en Einar Kári Jóhannsson hjá Benedikt bókaútgáfu er í viðtali við Erlu Hlynsdóttur. Fáar bækur hafa hreyft eins mikið við honum og bókin „Beðið eftir barbörunum“ – Waiting for the Barbarians eftir J. M. Coetzee. Starfsfólk bókaútgáfa þarf að ganga í flest störf í desember. Bókaútgefendur eru eins og á hlaupabretti í desember við að halda öllu gangandi og tryggja að bækur berist í búðir, segir Einar meðal annars í viðtalinu. Þú getur tryggt þér áskirft að Gímaldi
2025-12-18
27 min
Gímaldið
Sirkabát - Þáttur 5
Er jólamaturinn dýrari í ár en í fyrra? Þáttastjórnendur Sirkabát útbjuggu sína eigin jólamatarkörfu og reiknuðu út vísitölu jólaveisluverðs.
2025-12-16
16 min
Gímaldið
Jólabókaflóðið er afsprengi haftasamfélags
Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, segir jólavertíðina mikilvæga fyrir rithöfunda en bendir á í viðtali við Gímaldið að innviðirnir sem styðja við bókmenntir séu brothættir. Bókabúðir séu til að mynda fáar, sérstaklega á landsbyggðinni, og skólabókasöfn fái ekki nægt fé til að börn hafi jafnt aðgengi að nýjum bókum. Félagið hefur látið til sín taka í höfundarréttarmálum að undanförnu, en gervigreindarrisar vilja helst gleypa íslenskar bækur í sig án greiðslu. Þá hefur Samkeppniseftirlitið hafi...
2025-12-15
29 min
Gímaldið
Pakkað í vörn í Evrópuumræðunni – um bræðibeitur og áhrif þeirra
Úr pistli á Gímaldinu í dag: „Nú leggjum við Íslendingar upp í aðra Evrópuumræðu. Það var vissulega fyrirsjáanlegt að fyrstu skrefin í henni yrðu, líkt og í Bretlandi, stígin með gífuryrðum og hræðsluáróðri. Þetta hefur auðvitað bæði þann tilgang og þau áhrif að við sem viljum ræða Evrópumál, töpum þræðinum og glórunni, hoppum á reiðivagninn og förum að tala um eitthvað allt annað en ætluðum. Í stað þess að ræða kosti og...
2025-12-15
13 min
Gímaldið
Að skrifa barnabækur er hugsjónastarf
Auður Jónsdóttir tekur barna- og ungmennabækur til umfjöllunar í Bókapressunni að þessu sinni. Að skrifa barnabækur er að vissu leyti hugsjónastarf því höfundur barnabókar fær talsvert minna fyrir hvert selt prentað eintak, einfaldlega vegna þess að barnabækur eru oft töluvert ódýrari en skáldsögur fyrir fullorðna. Þannig þarf fólk sem einbeittir sér að þessu mikilvæga – og í raun vanþakkláta – starfi að skrifa fyrir börn og unglinga sérstaklega á því að halda að samfélagið komi til móts við það og starf þess. Í Bókapressuna mætt...
2025-12-13
56 min
Gímaldið
Fólk með heilabilun þarf stuðning en ekki útskúfun. Veðmálafyrirtæki færa sig upp á skaftið í íþróttunum.
Gímaldið hefur fjallað um heilabilunarsjúkdóma undanfarna daga. Fólk sem greinist ungt með heilabilun upplifir útskúfun af vinnumarkaði þegar það þyrfti í raun að fá skilning og rými til að átta sig á hlutunum.Við fjöllum í dag um verðmálafyrirtæki sem ganga sífellt lengra í því að komast að í íþróttaheiminum. Eistneskt körfuboltafélag, frá bænum Keila í Eistlandi, sem atti kappi við Tindastól í vikunni heitir í raun fullu nafni Keila Coolbet. Nafni félagsins var breytt fyrir tveimur árum í takt við óskir stærsta stuðningsaðila félagsins.Gímaldið er áskriftarmiðill, en hægt er að gerast ás
2025-12-11
22 min
Gímaldið
Krakkar eru ekki hræddir við neitt!
Skáldaparið Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson eru bæði þekkt fyrir magnaðar skáldsögur, óhrædd við að beita rödd sinni. En þegar þau voru að lesa fyrir krakkana sína uppgötvuðu þau að krakkar eru ekki hræddir við neitt! Því byrjuðu þau að skrifa hrollvekjandi sögur fyrir krakka, svokallaðar hrekkjavökusögur sem komu út sem hljóðbækur hjá Storytel, fjórar bækur í fyrra og tvær í haust; en nú er ein hryllingssagan þeirra að koma út á prenti, gefin út af Sögum-útgáfu, sú fyrsta í barnabókaseríu.Auður...
2025-12-06
49 min
Gímaldið
Sirkabát - Þáttur 4
Í nýlegri tilkynningu frá barna- og menntamálaráðherra kemur fram að „áætlað sé að eitt af hverjum tíu börnum á Íslandi búi við fátækt.“ Er þessi tala rétt? Þáttastjórnendurnir Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson ræða við Kolbein H. Stefánsson prófessor við HÍ um rannsóknir og mælingar á fátækt.
2025-12-04
29 min
Lestin
Umræður um Ríkisútvarpið, gamanþættirnir Vesen: rýni
Brynja Hjálmsdóttir horfði á nýja íslenska gamanþætti frá sónvarpi Símans sem heita Vesen og eru í leikstjórn Gauks Úlfarssonar. Jóhann Alfreð Kristinsson leikur vanhæfan helgarpabba sem safnar skuldum og klúðrar flestu sem klúðrað verður. Í þætti dagsins ætlum við að velta fyrir okkur Ríkisútvarpinu, við ræðum við blaðamenn, sem starfa innan rúv og utan þess. Eyrún Magnúsdóttir skrifaði nýverið grein í nýstofnaðan fjölmiðil, Gímaldið, þar sem hún leggur til hvernig nýta mætti innviði rúv betur. En við byrjum á sögulegu samhengi, prófesso...
2025-12-03
54 min
Lestin
Umræður um Ríkisútvarpið, gamanþættirnir Vesen: rýni
Brynja Hjálmsdóttir horfði á nýja íslenska gamanþætti frá sónvarpi Símans sem heita Vesen og eru í leikstjórn Gauks Úlfarssonar. Jóhann Alfreð Kristinsson leikur vanhæfan helgarpabba sem safnar skuldum og klúðrar flestu sem klúðrað verður. Í þætti dagsins ætlum við að velta fyrir okkur Ríkisútvarpinu, við ræðum við blaðamenn, sem starfa innan rúv og utan þess. Eyrún Magnúsdóttir skrifaði nýverið grein í nýstofnaðan fjölmiðil, Gímaldið, þar sem hún leggur til hvernig nýta mætti innviði rúv betur. En við byrjum á sögulegu samhengi, prófesso...
2025-12-03
54 min
Lestin
Umræður um Ríkisútvarpið, gamanþættirnir Vesen: rýni
Brynja Hjálmsdóttir horfði á nýja íslenska gamanþætti frá sónvarpi Símans sem heita Vesen og eru í leikstjórn Gauks Úlfarssonar. Jóhann Alfreð Kristinsson leikur vanhæfan helgarpabba sem safnar skuldum og klúðrar flestu sem klúðrað verður. Í þætti dagsins ætlum við að velta fyrir okkur Ríkisútvarpinu, við ræðum við blaðamenn, sem starfa innan rúv og utan þess. Eyrún Magnúsdóttir skrifaði nýverið grein í nýstofnaðan fjölmiðil, Gímaldið, þar sem hún leggur til hvernig nýta mætti innviði rúv betur. En við byrjum á sögulegu samhengi, prófesso...
2025-12-03
54 min
Gímaldið
Sirkabát - Þáttur 3
Landsmönnum hefur fjölgað hratt á undanförnum árum og mannfjöldaspá Hagstofu Íslands spáir því að landsmenn gætu slagað í hálfa milljón á eftir um það bil tvo áratugi. Hversu nákvæm er þessi spá? Á hvaða gögnum byggir hún? Og hvernig ber túlka hana? Þessum spurningum og fleirum munu þáttastjórnendur leitast við að svara í þriðja þætti Sirkabát.
2025-11-27
24 min
Gímaldið
Ný fjármögnunarleið fyrir íbúðir, ráðherra íhugar nýja rannsóknarnefnd og vangaveltur um Ísland sem nýlendu
Lán eða ekki lán? – Ný leið til fjármögnunar er til skoðunar hjá Neytendastofu og Seðlabanka Íslands. Ráðherra dómsmála íhugar að setja á fót rannsóknarnefnd kvennamorða. Þetta kemur fram í aðgerðaáætlun gegn kynbundnu ofbeldi sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda.Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um efni Gímaldsins.
2025-11-26
17 min
Gímaldið
Andri Snær Magnason: Bók þarf mikilvægt erindi til að hafa skriðþunga
„Ég hef alltaf þurft mikið erindi til að skrifa,” segir Andri Snær Magnason rithöfundur í viðtali við Auði Jónsdóttur í Bókapressunni. Hann ræðir nýja bók sína, Jötunstein, arkitektúr og tengsl byggingarsögunnar við tíðarandann.
2025-11-25
54 min
Gímaldið
Sigrar og áskoranir í málefnum fatlaðs fólks
Stór hópur fatlaðs fólks fær ekki, fötlunar sinnar vegna, rafræn skilríki og getur þar af leiðandi ekki fylgt sínum málum eftir, til að mynda þegar kemur að heilsufari, fjármálum eða menntun. Þetta er staðan í dag þrátt fyrir að fjórir ráðherrar hafi vorið 2023 undirritað viljayfirlýsingu um þróun á lausnum að rafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, segir í viðtali við Gímaldið að það sé miður að þessi mál séu ekki enn komin í lag. „Það er ofb...
2025-11-22
21 min
Gímaldið
Þolinmóðasti flokkur landsins bíður færis
Framsóknarflokkurinn hlaut verstu kosningu í sögu flokksins í síðustu alþingiskosningum og er frekar vansæll í sinni stjórnarandstöðu. Formannskosningar eru framundan og flokkurinn vinnur að því að finna sína fótfestu á pólitíska litrófinu að nýju. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um Framsóknarflokkinn, en Gímaldið birtir ítarlegar greiningu á stöðu flokksins og rýnir í möguleika hans til framtíðar með Ólafi Þ. Harðarsyni.Hér geta áskrifendur lesið greiningu Gímaldsins á Framsóknarflokknum.
2025-11-19
29 min
Gímaldið
Sirkabát - Þáttur 2
Í öðrum þætti Sirkabát ræða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson við þau Ara Klæng Jónsson, doktor í félags- og lýðfræði og Jóhönnu Gunnarsdóttur, forstöðumann fræðasviðs á fæðinga- og kvenlækningasviði. Þýðir hækkandi meðalaldur kvenna þegar þær eignast fyrsta barn endilega að frjósemi minnki? Hvað þýðir það að frjósemi sé minni meðal erlenda kvenna en íslenskra? Þessum spurningum og fleirum er velt upp með sérfræðingunum
2025-11-17
28 min
Gímaldið
Sirkabát - Þáttur 1
Í Sirkabát skoða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson tölur úr fréttum og þjóðfélagsumræðunni og spyrja sig: Er umræðan rétt? Er hún röng? Eða svona sirkabát?Í fyrsta þættinum skoða þeir tölur Hagstofu Íslands um frjósemi kvenna á Íslandi. Hvað þýðir það þegar Hagstofan segir að frjósemi var 1,56 árið 2024? Hvernig hefur þetta breyst með árunum? Hefur breytt samsetning þjóðarinnar undanfarinn áratug áhrif á þessa mælingu?
2025-11-11
17 min
Gímaldið
Beðið eftir Guðlaugi og Sanna heimilislaus
Oddvitarnir og flokkarnir í borginniUndirbúningur fyrir val á lista fyrir kosningar til sveitarstjórna er nú í fullum gangi hjá flokkunum. Það hefur gustað um marga oddvita í Reykjavíkurborg á kjörtímabilinu og þótt flestir þeirra vilji gefa kost á sér aftur er allur gangur á því hvort flokksfélagar þeirra vilji veita þeim brautargengi.Samkvæmt samantekt Gímaldsins má ætla að farnar verði fjölbreyttar leiðir við val á lista; leiðtogakjör, prófkjör, uppsti...
2025-11-09
26 min
Gímaldið
Bókapressan - Þáttur 2
Annar þáttur Bókapressunnar er kominn í loftið. Auður Jónsdóttir og Kristján Hafþórsson fá til sín Tómas Hermannsson útgefanda hjá Sögum. Hann hefur staðið að útgáfu ótal bóka um fótbolta og körfubolta, svo eitthvað sé nefnt, og segir skipta máli að börn fái bækur sem þeim þyki gaman að lesa og veki hjá þeim áhuga.
2025-11-06
46 min
Gímaldið
Gímaldið - 5. nóvember 2025
Zohran Mamdani er nýr borgarstjóri í New York. Hverju breytir kjör hans fyrir Demókrata og bandarísk stjórnmál? Aðalheiður Ámundadóttir og Eyrún Magnúsdóttir ræða þessa nýjustu stjörnu bandarískra stjórnmála, viðspyrnuna gagnvart Trumpismanum og skoða hvaða áhrif þessar sviptingar vestra hafa á íslenska pólitík.
2025-11-05
32 min
Gímaldið
Bókapressan - þáttur 1
Gímaldið kynnir fyrsta bókaþáttinn. Hann heitir Bókapressan og umsjónarmenn eru þau Auður Jónsdóttir og Kristján Hafþórsson. Gestur þáttarins er enginn annar en Árni Helgason sem nýverið gaf út bókina Aftenging.
2025-11-03
42 min
Bylgjan
Sprengisandur 02.11.2025 - Viðtöl þáttarins
Kristján Kristjánsson stýrir kröftugri umræðu um þjóðmálin. Í þessum þætt: Fjömiðlun Stefán Jón Hafstein, stjórnarformaður Ríkisútvarpsins Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Stefán og Sigurður ræða stöðu Ríkisútvarpsins og fjölmiðlunar á Íslandi, fyrirferð á auglýsingamarkaði, fjölmiðlastyrki ríkisins, samkeppni við erlenda miðla etc. Húsnæðismarkaður Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður Ragnar Þór Ingólfsson alþingismaður Guðlaugur og Ragnar ræða áform ríkisstjórnar...
2025-11-02
1h 32
70 Mínútur
#141 - Kynlífsdúkkur, 8 fantasíur og hlutir sem konur vilja í rúminu!
Grænda gímaldið í Álfabakkanum er kannski ekki svo nálægt mav venjulegar nýjar blokkir. Maður gripinn með fjölskyldu mynsur af kynlífsdúkkum, 8 hlutir sem konur vilja meira af í rúminu og að lokum auðvitað 8 fantasínur sem konur gætu hugsað sér til að ná "hámarki". Þetta og fleira í þætti vikunnar. Góða skemmtun!
2025-02-05
1h 17
Borgin
Borgin - 28. janúar 2025
Verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins krýndur eða kjörinn? Hvers vegna lét borgarstjóri sem græna gímaldið kæmi honum að óvörum? Hvað má lesa í mætingu á framboðsfundi? Er menningarstríð í borginni? Hvaða sagnfræði býður Friðjón uppá þessa vikuna?
2025-01-28
56 min
Samfélagið
Loftslagsbreytingar og fráveita, samfélagslistir og tákn framtíðar, græna gímaldið
Flóð ógna nýrri skólphreinsistöð í Árborg og á Austfjörðum er fólk farið að velta fyrir sér framtíð opinna vatnsbóla vegna kólí-gerla í jarðvegi. Vaxandi öfgar í veðurfari; þurrkar, flóð og miklar rigningar hafa neikvæð áhrif á fráveitukerfi sem víða um land eru komin til ára sinna. Samorka blés í dag til fundar um þessa ógn. Samfélagið ræddi við þrjá af fyrirlesurum fundarins þá Hlöðver Stefán Þorgeirsson, ráðgjafa, Ágúst Þór Bragason, forstöðumann hjá þjónustumiðstöð Árborgar og Aðalstein Þórhallsson, framkvæmdastjóra HEF-veitna á fljótsdalshéraði. Svo fáum við til okkar Ásdísi Birnu Gylfadóttur og Maríönnu Dúfu Sævar...
2025-01-21
59 min
Samfélagið
Loftslagsbreytingar og fráveita, samfélagslistir og tákn framtíðar, græna gímaldið
Flóð ógna nýrri skólphreinsistöð í Árborg og á Austfjörðum er fólk farið að velta fyrir sér framtíð opinna vatnsbóla vegna kólí-gerla í jarðvegi. Vaxandi öfgar í veðurfari; þurrkar, flóð og miklar rigningar hafa neikvæð áhrif á fráveitukerfi sem víða um land eru komin til ára sinna. Samorka blés í dag til fundar um þessa ógn. Samfélagið ræddi við þrjá af fyrirlesurum fundarins þá Hlöðver Stefán Þorgeirsson, ráðgjafa, Ágúst Þór Bragason, forstöðumann hjá þjónustumiðstöð Árborgar og Aðalstein Þórhallsson, framkvæmdastjóra HEF-veitna á fljótsdalshéraði. Svo fáum við til okkar Ásdísi Birnu Gylfadóttur og Maríönnu Dúfu Sævar...
2025-01-21
55 min
Samfélagið
Loftslagsbreytingar og fráveita, samfélagslistir og tákn framtíðar, græna gímaldið
Flóð ógna nýrri skólphreinsistöð í Árborg og á Austfjörðum er fólk farið að velta fyrir sér framtíð opinna vatnsbóla vegna kólí-gerla í jarðvegi. Vaxandi öfgar í veðurfari; þurrkar, flóð og miklar rigningar hafa neikvæð áhrif á fráveitukerfi sem víða um land eru komin til ára sinna. Samorka blés í dag til fundar um þessa ógn. Samfélagið ræddi við þrjá af fyrirlesurum fundarins þá Hlöðver Stefán Þorgeirsson, ráðgjafa, Ágúst Þór Bragason, forstöðumann hjá þjónustumiðstöð Árborgar og Aðalstein Þórhallsson, framkvæmdastjóra HEF-veitna á fljótsdalshéraði. Svo fáum við til okkar Ásdísi Birnu Gylfadóttur og Maríönnu Dúfu Sævar...
2025-01-21
59 min