Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Hefnendurnir

Shows

HefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir CLXXXIX - Tóm KnúsHetjurnar okkar hittast yfir frelsisöli til að ræða um póstkví, blakkfeisoff, smitfaðmlög og Dale Carnegie handabönd og þessa óþolandi áráttu sumra til að vera stöðugt að gefa manni óumbeðin power move kreistuknús!2020-06-3000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 188 - 28 dögum síðarStrákarnir tuða um sitthvora innipúkaiðjuna úr sitthvorri sóttkvínni. Báðir öruggir og óbreyttir sökum þess að félagsfælin einvera er ekki beint ótroðin slóð hjá þessum sjóuðu njarðaprinsum sem kalla sig Hefnendurna. Stay safe, Jarðarbúar!2020-04-1000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 187 - Þegar allt lék í lyndí hoppÍ þessari ævafornu en samt bara 28 daga gamalli upptöku, ræða Hefnendurnir okkar um hva þessi vírus er sooo not all that. Svo tala þeir líka um hvað þeir hlakka til júróvision og hvað Outbreak er ómerkileg mynd. It was a different time.2020-04-1000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 186 - Paradís lostFeigðin hangir yfir Bíó Paradís og hræfuglar eru byrjaðir að hringsóla í kringum það eins og einhvers konar leigusalar. Hulkleikur og Ævorman taka svona fréttum ekki þegjandi, enda velunnarar og klappstýrur menningarjötunnar sem Bíó Paradís er. Nema Ævorman hljómar töluvert verr en Hulkleikur, vegna þess að hann er veikur og svo var einhver gaur að bora í næstu íbúð og allskonar.2020-01-3000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 185 - Haltá KettiÆvorman langaði eiginlega bara að gera eitt í Berlín. Hann án djóks talaði eiginlega ekki um annað; Fara í bíó með Hulkleiki til að horfa á Cats. Og síðan að tala um það. Tala rosalega mikið um það vegna þess að það er furðulega mikið til að tala um. Þessi mynd? Þessi mynd!2020-01-0800 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 184 - Star Wars, maðurSkywalker sagan skráði sinn hinsta kafla samkvæmt Disney um jólin og Hefnendurnir okkar kíktu í bíó eins og öllum sönnum lærisveinum máttarins er ljúft og skylt. En hvað þýða ljúfsár endalokin um framhaldið? The force is dead and no one cares. If there is a mustafar I’ll see you there.2020-01-0800 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 183 - Party like it's neunzehnhuntertneunundneunzigHulli flutti til Berlínar, en Ævorman er ekki af baki dottinn heldur lagði land undir fót og mætti heim til hullsubrauðsins til að gefa jarðarbúum góða byrjun fyrir Cyberpunk árið sem gengið er í garð. Afraksturinn er 3! (þrír) sjóðheitir þættir til að hámheyra, Netflix style! Hulkleikur og Ævorman eru búnir að vera seinir allt ár. Svo seinir að þeir koma með uppáhaldsmyndirnar sínar á síðasta ári tuttugu árum of seint í þessum marglofaða 1999 besta kvikmyndaár allra tíma™ þætti.2020-01-0800 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 182 - Annie Lennox prófiðHul­k­leikur og ÆvorMan eiga fund í Gríms­son Tower og velta vöngum yfir ímynd­uðum bolta­leikjum í ódæmi­gerðu lög­reglu­ríki, velja topp 2 kvik­myndir sem batna við mute takk­ann og veðja uppá flott­ann kall. Hefn­end­urnir eru í boði Nex­us. Nex­us. Það er svo best sko.2019-09-0400 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 181 - Manhattan ójafnvægiðHulli hinn hvíti og Ævar hinn grái hafa ekki fært á sér bossana síðan í síðasta þætti því þeir hafa bara og mikið að segja. Þar á meðal sitthvað um eigið sköpunarferli, emo ofurhetjur með daddy issues og leiðarlok Luke Perry. Við biðjumst velvirðingar á skruðningunum sem heyrast í þessari upptöku. Það er líklega bara draugur.2019-08-2700 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 180 - Bavíaninn sem át móður sínaEftir allt of langan dvala skríða tveir stírublindir Hefnendabangsar úr hýði sínu og ræða húmorsleysi Svía og sáðlát Aquamans og að sjálfsögðu rýna þeir eldfast í endalok mikilvægasta nördafyrirbæris síðari ára: Big Bang Theory.2019-08-2100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 179 - Emil í TjattholtiHefn­end­urnir fá Emil Hjörvar Pet­er­sen, ver­ald­arsmið og örlaga­vefj­ara, í heim­sókn og hefna hann spjör­unum úr. Lengsti Hefn­enda­þáttur ever höldum við bara. Gleði­legt nýtt ár, Jarð­ar­bú­ar!Hefn­end­urnir eru í boði Nex­us. Nexus er í boði guð­anna. Kjarn­inn í sam­­­­starfi við Storytel býður þér að hlusta frítt á þús­undir hljóð­­­­bóka í sím­­­­anum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.­­­­storyt­el.is/kjarn­inn og byrja að njóta. Storyt­el.is, þús­undir hljóð­­­­bóka í sím­­­­anum þín­­­­um.2018-12-3100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 178 - NeandercoolHefn­end­urnir fara tvisvar í bíó! Fyrst á gar­la­kalla­mynd og svo á hjól­húsa­mynd! Það var nú aldeilis gam­an. Í bíl­ferðum sínum ræða þeir meðal ann­ars um magíska munn­kossa, ferðir Ted Dansons og örvar kúbids. Hefn­end­urnir eru í boði Himna­rík­is… ég meina Nex­us. Same thing.2018-12-1300 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 177 - Stan Lee er dáinn og þetta er þátturinn um þaðHulli og Ævar minn­ast nýfrá­fall­ins skap­ara skap­ar­anna og ná samt eitt­hvað að tuða um aðra hluti sem skipta minna máli. En það er nátt­úru­lega bara eins og þeir eru.2018-11-2800 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 176 - Látum þá deyja einaHulli hinn hvíti kíkir í heim­sókn til Ævars hins gráa og þeir fara yfir sam­þykki Egils Ólafs, písl­ar­göngu Ofur­hug­ans og hlut­lausa kjúklinga­vængi.Hefn­end­urnir eru í boði Nex­us. Nexus er aðal.2018-11-0700 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 175 - Díónýsus Kræst og Sigh GuyHetj­urnar okkar hitt­ast á ný í hefn­enda­höf­uð­stöðv­unum eftir helj­ar­ferða­lag um heims­ins lendur og henda í hug­leið­ingar um hrekkja­vöku, Hicks og Hetjur til leigu, ásamt almennu húll­um­hæi. Hefn­end­urn­irnir eru í boði Nex­us, auð­vit­að.2018-10-3100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 174 - Mandalórinn TormeltiHulli og Ævar eru í sitt­hvorri heims­álf­unni og ná engu sam­bandi við hvorn ann­ann. En ótt­ist eigi, Jarð­ar­búar fríð­ir, því Hefn­end­urnir luma nebblilega á ýmsu óáð­ur­birtu góð­gæti. Þar á meðal bubblandi bíó­ferð á "rán­dýr"a mynd og babbl um Boba með Andreu Björk. Hefn­end­urnir eru í boði Nex­us. Nexus > Allt.2018-10-2400 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 173 - Doktor BaconHug­leikur heim­sækir Andreu Björk og kött­inn hennar í Berlín og þau ræða Saurugan Dexter, Sprungna eit­ur­lyfja­smokka og Bún­ing Blöku­kon­unn­ar. Hefn­end­urnir eru í boði Nexus og Nexus er næs to the max.2018-10-1700 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 172 - Prancing Pony Part DeuxÞið eruð ennþá stödd á bar. Hul­k­leik­ur­inn og Ævor­mann­inn eru komnir í Irish Cof­fee og hætta ekki að láta gamm­inn geysa um sín hjart­ans mál. Og panta fleiri drykki.2018-10-0900 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 171 - The Prancing PonyÞið eruð stödd á bar. Ævar “Dean Mart­in” Gríms­son og Hug­leikur “Scor­sese” Dags­son sitja í einu horn­inu, sötra svart öl og ræða um til­finn­inga­gáfur í dýflissum, klám­mynda­gláp á stefnu­mótum og kosti þess að vera með fram­heilaskaða.2018-10-0200 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 170 – MiðgarðsormarnirÆvorman og Hul­k­leikur voru með live podcast á Midgard 2018 þar sem þeir ræddu um dag leð­ur­blök­unn­ar, und­ar­legar ofur­hetjur og auð­vitað hvort að Súperman sé með rass­gat.2018-09-2500 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 169 - Thanos í SumarhúsumHulli og Ævar bregða sér saman í bíó til að ná Mission Impossi­ble 6 áður en hún hættir í bíó. Á leið­inni þangað og til baka ræða þeir um tengsl Central Perk og Etern­íu, skort á dúfna­dauða í Woo myndum og radd­missi James Bond.2018-09-1800 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 168 - Slæmur Slaufu SlæmerHull­inn og Ævar­inn hita upp fyrir midgard með masi um fréttir frá síð­asta sum­ri, staf­rænan spæder­mann, burt­reiðar og enda­lok ævin­týra­tím­ans.2018-09-1100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 167 - Glápur og SkrápurHetj­urnar okkar halda áfram end­ur­kom­unni með spá­nýjum þætti þar sem farið verður yfir allt glápið sem gerð­ist og það sem að gerð­ist en aðal­lega glápið sem gerð­ist.2018-09-0600 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 166 - AntmansstígurSumarfríð er búið! Hefnendur snúa aftur til jarðar! Ævar hinn myndarlegi og Hulli minnast sumarsins sem var að líða. Sem var basically bara Antman og Rigning. Við biðjumst velvirðingar á leininlegu hljóði sem er Hulla-megin þegar þeir eru að tala netleiðis við hvorn annan. Auðvitað Hulla-megin. Týpískt Hulli.2018-08-3000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 165 - Mátturinn og slímiðHetj­urnar okkar syngja sig inn í sum­ar­frí með söngvum sínum um ímynd­aða vini, Har­vey hor­r­or­myndir og frægð­ar­bond, ásamt því að koma að töff skóm og mun­inum á guði og mætt­inum og stóra plan­inu. Hefn­end­urnir eru í boði Nexus2018-06-0600 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 164 - Infinity Pool: A Star Wars StoryÆvar hinn sann­gjarni og Hulli hinn súri fara aftur í bíó og taka upp ger­sam­lega skammar­laust og drullu­spillt spjall um sprengj­urnar sem skullu á strendur skyn­færa þeirra síð­ustu vik­urn­ar. Nánar til­tekið Aven­gers: Infinty War, Dead­pool 2 og Solo: A Star Wars Story. ARÚÚÚGAH SPOLER ALERT.Hefn­end­urnir eru í boði nex­us. Nex­us: Það er aðeins einn guð.2018-05-3000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 163 – Laminn í talfærinHulli og Ævar nú hitt­ast á ný. Komnir loks saman eftir smá­ræðis frí. Þeir ræða um hitt og ræða um þetta, Rambó hinn fimmta og Billa og Tedda. og auð­vitað eitt­hvað sem rímar við ný.2018-05-1500 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 162 - Drax í dagÍ óvenju stuttum en að venju skemmti­legum þætti fara Hul­k­leikur og Ævorman í bíó með Thand­rosi og Nebóla, reyna að muna hver þessi Dra­kúla er aft­ur, spyrja reykj­andi nörda útí tví­vídd, og meta með­limi Star Wars heims­ins út frá hæð og með­limi mar­vel­heims­ins út frá kyn­þokka.2018-05-0200 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 161 – MiðgarðsormapytturinnGest ber að garði í Hefnendaturninum þar sem Svenni í Nexus kemur til að kynna hvað er á döfinni á næstunni í musterinu. Að auki er komið inná lagaflækjur óða Max, kynlífskölti vinkonu ofurmennisins, illan dauða öskukallsins og komandi ráðstefnu njarðahjarðarinnar, Midgard!2018-04-2400 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 160 – Gaurinn sem drap MozartHetj­urnar okkar knáu sam­ein­ast á ný í Hefn­enda­turn­inum til að tjá sig um ofsótta elli­goð­ið, Nor­bit­inn Pana­ma­prins, Billy eitt­hvað og ógild­ingu gór­illu­apa­mets­ins hans og sprengju­hótun steik­ar­inn­ar. Og svo er fán­inn dreg­inn í hálfa stöng fyrir tvo nýfallna meist­ara2018-04-1700 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 159 - Vampíruzombíur Vs ZombíuvampírurÆvorman í borg ótt­ans og Hul­k­leikur í frið­ar­dalnum ræða sím­leiðis um bit krútt­hnífs­ins, rödd leð­ur­blök­unn­ar, harm­leik svart­höfða, tán­ingsár úlfs­ins og spi­el­berg­mynd­ina sem spi­el­berg spi­el­berg­aði í feitt spi­el­berg. Hefn­end­urnir eru í boði nex­us. Nex­us: Það er aðeins einn guð.2018-04-1100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 158 - Kanil SpiceÍ Hefn­enda­turn­inum hitt­ast hetj­urnar Hul­k­leikur og Ævorman til kjafta í kaffi­pásu um heima og geima. Þar á meðal frænda­lista­sam­fé­lag­ið, fjór­gó, krydd­legnar ofur­hetj­ur, húlíg­ana og dóms­dokt­ora, áður en allt endar svo á suðu­punkti í sundr­andi söng­leikja­spjalli.2018-03-2700 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 157 – ÖfundarrétturHetjurnar okkar taka fyrir Ríkharðlífi Harmon, endalok Ævintýratímans, endurgerðan brjálaðan búálf og útvíkkaða Draumaheima ásamt umræðum um viljandi og óviljandi dónaskap og meistarmánaðagláprestarnar hans Hulkleiks2018-03-2100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 156 - He-Man ÍslandsÆvorman og Hul­k­­leikur ræða um risa í heim­ilda­­myndum og tölvu­­leikj­um, þrumuguði í froska- og kven­­líki og eft­ir­­sjá­r­verða and­­ar­­gogga í Mar­vel og Star Wars. Hey bara enn einn drulluslaki dag­ur­inn í Hefn­enda­t­urn­in­­um. Hefn­end­­urnir eru í boði Nex­us. Nex­us: Res­istance is futile.2018-03-1300 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 155 – Marbendlaður við ÓskarinnÆvar og Hulli ræða náms­feril Eriks Kill­mon­gers, tíma­ferða­lög Kobba Kviðristu, Besta hlut­verk Rockwells, gleymda minn­ingu West og ást­ar­ljóð Del Toros.2018-03-0600 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 154 – ÞagnarræðanHulli snýr aftur frá Berlín og hann og Ævar ræða um úrslit Edd­unn­ar, allt þetta dót sem er búið að vera að ger­ast síðan þeir hitt­ust síð­ast, leið­rétta sjálfa sig og hlusta síðan á þakk­ar­ræð­una sem heyrð­ist ekki. Svo halda þeir í myrkviði Pardus­dýrs­ins.2018-03-0100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 153 - Þetta Eddast!Hetj­urnar okkar hitt­ast á ný eftir langa fjar­veru frá hvorum öðrum, fall­ast í faðma og ræða um víð­feðmt umfjöll­un­ar­efni eins og kodda­lausar flug­far­ir, meint fánýti fag­verð­launa, illa hirta þús­ald­ar­fálka, brynju­klædda brjóst­vöðva og auð­vitað Lobay.2018-02-1300 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 152 - Ásgeir KolberbatchÆvar er með Stokk­hólms­heil­kenni þannig að Hulli fær Lóu Hjálmtýs aftur sem gesta­Hefn­enda og þau ræða dverg­vaxna Íslands­vini sem borða fólk, nineties leikkonur sem trufla tíma­línur og upp­stökka ung­linga sem engj­ast í und­ir­með­vit­undum upp­kom­inna ein­stak­linga.2018-02-0600 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 151 - Critic Bashing TimeÆvar er í Sví­þjóð að repres­enta land og þjóð þannig að Hulli ræður Lóu sem gesta­Hefn­enda og þau ræða Bobcat Goldthwait, fjar­læga brauðri­star­feður og bróður Búffans í Stand By Me.2018-02-0100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 150 – AndabæjaraðdáendurHlunk­ur­inn og Járn­mennið halda upp á óvæntan hund­raðasta­og­fimmtug­asta þátt sinn með ofhlæði af athygl­is­bresti, mál­villum og óákveðni. Sand­rés Önd kíkir í heim­sókn og þau ræða allt á milli Abbey og Abba.2018-01-2300 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 149 - General MerylÆvorman og Hulkleikur vígja nýja aðstöðu í Hefnendaturninum með tuði um finnskar/írskar/íslenskar kveðjur, áfengiverslanir og barnaheimili í Enterprise, Berry-kisuna vs Leto-jókerinn og að lokum telja þeir upp besta sjónvarp 2017 Hefnendurnir eru í boði nexus. Nexus: Resistance is futile.2018-01-1500 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 148 - Fúkyrði PrófessorsinsÆvar og Hulli tala um springfieldskan húðlit, upphafsstef stjörnuferða, dyramottu tímalávarða, kapteinasokka og telja svo upp uppáhalds kvikmyndir sínar 2017.2018-01-0100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 147 - StarWarsHolidaySpecialHefnendur eru á fullu við að borða alltof mikið af reyktu svínakjöti, opna gjafir og drekka jólaöl til að taka upp venjulegan þátt. Þess vegna ætla þeir að birta í staðinn áður óútgefna upptöku frá því í fyrra. The Star Wars Holiday Special er líklega ein versta mynd allra tíma. Mögulega sú versta. Hún er allavega langversta Star Warsið. Þess vegna ákváðu Hefnendur að horfa á lengstu þekktu útgáfu af myndinni og tala yfir hana. Gera svona Commentary. Með Lóu Hlín (Lóbó) Hjálmtýsdóttur.2017-12-2500 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 146 - Bangsalundar V Kristalsrefir: Dawn of NerdrageHefnendárinu lýkur senn og því er viðeigandi að hetjurnar okkar líti um öxl á allt það stærsta sem hefur gengið á, í einum feitum áramótaannál! Þar verður imprað á öllu frá tortímingu og trekki, krípum og myrkraheimum og hæfilegum skammti af undrakonum og gömlum körlum að lesa vitlaus umslög. Að auki fer fram ítarleg umfjöllun um nýjasta kafla stjörnustríðsbálksins og örlög hinsta væringjans. Always.2017-12-1800 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 145 - Chrismas SpecialHulli og Ævar tala um afar spennandi hluti eins og afar mikla ást Hulla á Ævari, afar spennandi prump, það sem Grant Morrison þykir afar gaman að horfa á, afar slæma skinkusamloku, afar óhugnanlega sólmyrkva og afar góðhjartaðar alvöru ofurhetjur.2017-12-1100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 144 - Í myrkum bjánafjöllumHetjurnar okkar koma seint til leiks þessa vikuna en bjóða upp á tregafulla umræðu um endalok hins myrka alheims, reffilegan refsanda, stjörnustæla Tarantino og líka hvort það sé í lagi að vera leiðinlegur ef maður er að gera list.2017-12-0400 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 143 - M-orðiðÆvar og Hulli ræða samskiptaleiðir íslenskra dægurgoða, poppkúltúrreferensa framtíðarinnar, muninn á stroke og pool, misskilda mömmufordóma, dónakalla og ljóta brandara.2017-11-2700 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 142 - Gotham of the ringsHetjurnar okkar prúðu henda í umræðuveislu um tilvistarkreppu tölvutengja, tilvistarkreppu Hringadróttinssögu, tilvistarkreppu Batmans, tilvistarkreppu treilara og tísera, tilvistarkreppu vídeóleigunnar og tilvistarkreppu flokkanna á kvikmyndum og sjónvarpi. Sartre hvað? *Klíng*2017-11-2000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 141 -Farðu Louie! Við erum að reyna að tala um Viggó Viðutan!Í nýjasta þætti Hefnenda ræða Hulkleikur og Ævorman um mögulegan stjörnuþríleik, dévítans Disneyvæðinguna, óskalistann sinn í myndasögusjónvarpi og ofurkonu að sparka í karlpung. Síðan þarf að ræða aðeins alvarlegri mál á alvarlegri nótum í nýja dagskrárliðnum Æi fokk, seriously? Þú líka?! Afhverju? Dísis fokking kræst hvað er að?!2017-11-1300 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 140 - Rotin Raddbönd (Live)Ævarúlfurinn og Hullvítið setjast á TwinPeaks-esque sviðið í hryllingsholunni Húrra og hljóðrita Live bloodcast fyrir framan áhorfendur sem eru fleiri en puttahnífar Freddys en færri en endurkomur Jasons. Þeir ræða byssuleysi grímuklæddra morðingja, sjálfstæð vélmenni og réttdræpar nasistazombíur. Ævar reynir að tala um örlög Corey Feldman en Hulla finnst það of hryllilegt fyrir þetta hryllings-special Hefnenda!2017-11-0600 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 139 - Ég vild'ég væri orðin lítil fluga!Ævar mætir eldsnemma í Hullbunkerinn og þeir ræða lélegustu endurgerð ársins, sumé kosningarnar og stórasta land í heimi, sumsé Asgard (Ekki Ásgarð því það er munur á Asgard og Ásgarði). Svo reyna þeir að fatta hvort 2049 sé klámvætt eða feminískt ár og svo koma auglýsingar. Og hvílíkar auglýsingar! Og meira. Ágætur þáttur sko.2017-10-3000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 138 - PabbaflissHulli er með of bilaðan heila til að podcasta en Ævar kveikir samt á upptökutækinu og þeir tala um bókasafnsbiturð skrípasöguskálds, skyggn augu með heyrn, rasisma og hvernig kvikasilfur getur bjargað heiminum.2017-10-2300 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 137 - How to get a head in BransanumHulli litli og Ævar mikli tjatta um snapp, geymslupláss í geimnum, óstartreklegt startrek og skáldað byssuofbeldi í byssuofbeldisveruleika.2017-10-1600 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 136 - Ekki kúlHulkleikur er með flensu og Ævorman kemur í heimsókn til að hressa hann við með rabbi um tilgangsleysi slagorðagríns, öfugþýðingar og andstöðurangstæðu, en líka aðeins um alla þessa káfandi kúkalabba í Hollívúdd.2017-10-0900 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 135 - Yfirhefnsla : Andrea Björk AndrésdóttirHulkleikur yfirhefnir Andreu Björk; Hönnuð, leikstjóra, animator og almennan flippara um glyðrulega fugla í Lumbruskógi, foreldrakynlíf og fimmta frumefnið.2017-10-0200 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 134 - Fanforum forarfen!Hefnendurnir babbla um danska hönnun í geimnum, stuðboltastelpu með mjaðmir, legsteinaletur og bestu kóngaræmurnar áður en þeir fara í spoileriffic greiningu á mömmumyndinni þarna sem er að gera allt vitlaust.2017-09-2500 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 133 - Jó(Pesci)kerinnHulkleikur og ÆvorMan rökræða um allt sem skiptir máli. Þar á meðal Emmy verðlaunin, Scorsese Jókerinn, fráfallinn költ karakter, hrædda karlmenn í kvikmyndahúsum og margt fleira. Allt mjög marktækt og vestfirskt.2017-09-1800 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 132 - Allt sem þú vildir vita um Sous Vide, en þorðir ekki að spyrja umHulkleikur og ÆvorMan skeggræða öryrkja-arkítektúr, 11/9, Del Toro prumpið, list í list, ítölsk kvennamorð, of ungan gamm og venjulegheit Howards, skálandi í vatni með útsýni yfir hallargarð ÆvorMans.2017-09-1100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 131 Ó, LouHulkleikur og ÆvorMan taka þátt í umræðunni um umræðuna en snúa sér að miklvægari málefnum eins og tölvuleikja anime áNetflix, vaktmenn DC heimsins og hvað Hulli glápti á í góða veðrinu.2017-09-0400 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 130 - The Day The Clown TriedHulkleikur og ÆvorMan tala um ófullnægjandi staðgengla mútanta, minnast fráfallina grínista, hryllingskokka og borgartraðkara og vangavelta hvað sé bestverst og hvað sé verstbest.2017-07-1000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 129 - Drazzle!Hulkleikur og ÆvorMan koma ferskir úr fríinu til að ræða fasískar hliðarvíddir, meinta hræsni vampírubanaskaparans og fara svo yfir allt feita sjittið sem San Diego comic con lofaði þeim í treileraformi.2017-07-0300 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 128 - Smjörkubbsvafflan V Logagrettan: Dawn of SumarfríHulkleikur og Ævorman fara saman í bíó og hljóðrita reynsluna. Þeir ræða nineties kóngulær, trumpaða kapteina, strákastelpur með fjólubláa lokka, ameríska guði og barnabílstjóra. Svo fara þeir í sumarfrí! Heyrumst aftur í haustmyrkrinu!2017-06-2600 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 127 - 20 bestu ekki-ofurhetju-myndasögumyndir everHulkleikur og Ævorman telja upp bestustu og sniðugustu og flottustustu myndasögubíómyndirnar sem eru ekki byggðar á ofurhetjumyndasögum.2017-06-1900 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 126 - Nananananananana AdamHulkleikur og Ævorman setjast í Einarsgarð og ræða pardusaplaköt, nasistanýríki og brotthvarf besta blökumanns bítnikkatímans.2017-06-1200 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 125 - Hashtag feminismHulkleikur og Ævorman ræða um períódur í geimnum, elliæra riddara, sokkaskikkjur og stærsta gamechanger þessa árs, Ungfrú Undur. Hjarta hjarta ex ex.2017-05-2200 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 124 - Rauðhærð og útlægHulkleikur og Ævorman ræða um hvað er að gerast, hvað þeir eru að glápa á, hvað þeir eru að spila á og minnast moore og boothe.2017-05-1500 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 123 - Doktorsþríleikurinn þrjú : Doktor Allt bú!Sandra Barilli situr með Hullinu og Ævörinni í þriðju lotu epískrar Doctor Who umræðu. Nú er seglum snúið að sitjandi og fráfarandi Doktor: Peter Capaldi. Tímalávarðurinn með hvassa skapið. Klárum þetta! Shut up!2017-05-0800 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 122 - Doktorsþríleikurinn II : Doktor nú þú!Sandra, Ævar og Hulli ræða ellefta doktorinn í öðrum hluta doktor who þríleiksins í þessum hundraðtuttugastaogöðrum þætti hefnenda. Frumfluttur á sextánda degi fimmta mánaðar sautjánda árs tuttugustu og fyrstu aldarinnar. Nei bíddu er þetta ekki átjánda árið? hvernig virka aftur aldamót? Allavega Matt Smith og hans tímaflækjur eru spónaðar í atóm! Geronimo!2017-05-0100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 121 - Doktorsþríleikurinn I : Doktor Hú?Ævarinn, Hullinn og Sandran setjast niður og hljóðrita fyrsta kafla í epískri Doctor Who trilógíu. Í þessum þætti ræða þau hinn skammlífa Eccleston og hinn langlífa Tennant. Fantastic! Allons-y!2017-04-2400 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 120 - Sandrés Önd í yfirhefnsluHulkleikur yfirhefnir Söndru Barilli, lífskúnstner, umboðsmann og Pad Thai aðdáenda. Þau ræða um hvað The Sweetest Thing er vanmetin snilld, hvað litla hafmeyjan kann að gera flotta hársveiflu og hvað garðyrkju-ofurkraftar geta verið gagnlegir.2017-04-1700 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 119 - Brúna EldinginHulkleikur og Ævorman semja heila bíómynd! Eða réttara sagt semja sögu fyrir heila bíómynd! Eða réttara sagt byrjun að sögu fyrir heila bíómynd. Brúna Eldingin er action ævintýri fyrir alla fjölskylduna ef að öll fjölskyldan er eldri en sextán ára. VRÚMM! VRÚMMM!!2017-04-1000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 118 - Gwyneth gufanHulkleikur heimsækir Dídí í Lalalandi á meðan Ævorman húkir flensuhokinn heima á klakanum. Með aðstoð framtíðartækni tókst þeim þó að taka upp þátt þar sem rætt er um Nælon og sundlaugarpartí, ömurlega umboðsmenn, poppmenningu draumaborgarinnar og svo er síðasti kapítulinn af Lalasápunni skrifaður af Dröfn á englaryki.2017-04-0300 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 117 - Dottið uppHugleikur og Jóhann Ævar setjast á sviðið á myrkum bar og tjá sig um myrka hluti eins og tuðandi trúða, dútlandi drauga, skápasköp og skrímslasprella og flytja lengstu auglýsingu í sögu Hefnendanna sem by the way eru í boði Nexus. Sem er besta búð í heimi.2017-03-2700 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 116 - Konráðs Saga BarbaraHulkleikur og Ævorman spjalla um synglýsingar, myrkraprinsa, mömmur á mars, skítaþorp, svarta sjálfselskendur, gluggaveðursbíómyndir, finnskan typpamassa, íslenskar leðurblökur, áru ofurmenna, uppáhalds ósýnilingar og hefndarklám gegn vondum forsetum.2017-03-2000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 115 - FrussuprumpiðSökum græjuleysis grípa Hullóan og Ævorið til neyðarúrræðis í upptökutækni og æða síðan með litaleiðréttingarspjaldið sitt í Réttlætisdeildarkitluna, ræða það sem er ofur og van í Désaheimum, áður en þeir rabba bara lúnir um Orkuleysi og hamra á heitum Járhnefa.2017-03-1300 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 114 - Hlátrinum fórnaðHugarangrið og Ævupestin ausa úr passívaggressívum skálum sína á hvimleiðan Járnhnefa, vafasamt Spiderman spinoff og endurjórtrað Matrix. En fljúga þeir að vit hýpóþetískra spurninga um hvort sé mikilvægara; yfirnáttúruleg hugarorka eða túlkun tilfinninga.2017-03-0600 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 113 - BuffyLove SoldiersHuffy og Ævgel ræða feit mútantabörn, vondar löggur á íslandi og auðvitað afmælisbarnið sjálft, drottningu drísladrápsins, skrímslaslátrarann frá Sunnydale; Buffy the fokking Vampire Slayer.2017-02-2700 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 112 - Game Over, Man!Piltarnir okkar prúðu reka síðasta líkkistunaglalann í Lalalöndunina áður en þeir jarma aðeins um Jarfa, reyna að skilgreina hvaða ofurhetjur eru eiginlega ofurhetjur og pexa síðan um Paxton sem kvaddi okkur alltof snemma nú fyrir skömmu.2017-02-2000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 111 - Gamli kallinn með umslagiðÆvor Man skríður niður í Hulkbunkerinn og þeir Hulkleikur horfa á óskarinn ásamt góðum gestum. Nánar tiltekið þeim God of Thránder (Þrándur Þórarinsson) og Kill Billgju (Bylgja Babýlons). Tilfinningar eru tjáðar, taugar kitlaðar og snakkskálar tæmdar.2017-02-1300 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 104 - Hjálpaðu okkur 2017, þú ert okkar eina vonHulkleikur og Ævorman reyna að díla við sviplegt fráfall íkonsins Carrie Fisher með veruleikaflótta og hugleiðingum um tímans þunga gang. Þátturinn er seinna á ferð en vanalega. Það var eins og hann tafðist til þess eins að Hefnendurnir gætu kvatt Carrie sem hefur gefið okkur...2016-12-1900 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 100 - Hefnendirinn - The Death Of HefnendurnirÍ tilefni af sínum hundraðasta þætti ætla Hefnendur að gera það sem þeir gera best… tala… bara það… tala… um allskonar… ekkert gimmick, engir dagskrárliðir, bara tveir hefnendur að tala um hluti. Tali tali tali. Í hundraðasta veldi. Knús og kram! Hulkleikur og Ævorman. Þormóður Dagsson sá um flutning á intróinu að þessu sinni.2016-03-0700 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 98 - Trek Wars (Live! á Húrra)Hefnendurnir stigu upp á svið á Húrra um daginn ásamt Fílalagsbræðrum og fluttu þátt fyrir framan “live studio audience”. Sú taumlausa gleði var tekin upp og nú geta jarðarbúar hlustað á Hulkleik og Ævorman velta fyrir sér verðleikum Jobsanna, hvað Hulli og pabbi hans horfa á saman á kvöldin; og hvort vinnur í slag, Star Trek eða Star Wars? Njótið heil!2016-02-2200 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 96 - Rödd RuddsHefnendurnir ræða um hvort sé merkilegra umræðuefni, Óskarsverðlaun eða klósettpappír. Svo tala þeir um auglýsingar í súpuskál og fjarlægt fyrirbæri sem kallast ást.2016-02-0800 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 90 - Það var svo sem auðvitað!Gætið ykkar! Nú byrja Hefnendurnir! Í dag fjalla þeir um hvað það er erfitt að vera frægur, bera saman nasista og daleka, óska sér fleiri jólagjafa frá uppáhaldsbúðinni sinni Nexus – áður en þeir halda á vit ævintýranna með epísku spjalli við sveppagreifann Stefán Pálsson um Sval og Val.2015-11-1600 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 88 - Ekki borða rauðan snjóHefnendurnir mæta fílelfdir til leiks með flottustu byrjun ever á podcasti. Sem þeir tóku reyndar ekki upp því græjan varð batteríslaus. Oh well. Þetta er samt góður þáttur. Jessica Jones, Hildur Knúts, ofvirkar draumastelpur og töfranegrar.2015-11-0200 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 67 - Þá er ég alinn upp í Gaggó OzHefnendurnir ljúka lengstu upptöku lífs síns með því að náða Simon Pegg, opinbera verstu kvikmynd íslandssögunnar og minnast þess hvernig það var að vera ekki kúl. Minnast nútímans sumsé.2015-06-0800 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 66 - HamstrageddonHetjurnar okkar þreyta lengstu upptöku ferils síns með vangaveltum um samband dýra og manna, allar myndir sem eru betri en English Patient og hvort að aðrir en Hefnendurnir eigi rétt á skoðunum sínum um hvað sé flott og hvað sé nott.2015-06-0100 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 64 - Topp 20 bestu myndasögur sem eru ekki ofurhetjumyndasögurÍ dag þylja Hefnendurnir upp topp 20 bestu myndasögur sem eru ekki ofurhetjumyndasögur í engri sérstakri röð og nei, Sandman er ekki ofurhetja.2015-05-1800 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 60 - Engifer ReglanHefnendurnir eyða sínum sextugasta þætti í að ræða heitmeyjar Hulks, húðflúr háðfuglsins og heimsku hommahatarans OG ÞEIR VORU AÐ FATTA NÚNA AÐ ÞAÐ ER MAY THE FOURTH OG ÞEIR TALA NÆSTUM EKKERT UM STAR WARS! Goddemmit.2015-04-2000 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 59 - Always UltronHefnendurnir tveir fara á Hefnendurna tvö og gubba af gleði yfir ástarmálum ekkjunar, betrun bogmannsins og veseni vonda vélmennisins. Olla kíkir í heimsókn og segir skoðanir sínar á stólaleiknum mikla. Excelsior!2015-04-1300 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 51 - What The Who Do We KnowÍ fimmtugastaogfyrsta þætti halda Hefnendurnir uppá fimmtíuogeins árs afmæli Doctor Who með líflegri umræðu um þennan besta sjónvarpsþátt allra tíma. En umræða þessi reynist Hefnendunum ofviða og stefnir vináttu þeirra í hættu...2015-02-1600 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 50 - Shades Of Vei!Hefnendurnir fagna fimmtugsafmælinu með extra löngum þætti þar sem Hulkleikur og Ævorman ræða um pavlóvur Schrödingers, geimveruglannaskap og miðaldra laugardagsgrínista áður en söngkonan og kynjapælarinn Anna Tara Andrésdóttir mætir í heimsókn til að hirta þá og fræða um leyndardóma skuggana fimmtíu.2015-02-0900 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 49 - Diplómatísk friðhelgiHefnendurnir hefna um gramm af Kanye, Marvelös lóafréttir og ris og fall Júpiters áður en þeir kynna til sögunnar nýjan dagskrárlið, spjalla um spjallþáttastjórnanda og kommenta á kommentakerfi. Hulkleikur lætur þó síðan ekki Berlínarútlegð sína stöðva sig og sendir angurvært sendibréf mitt úr hjarta meginlands Evrópu.2015-02-0200 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 48 - Ástin og bleyðumarkaðurinnHefnendurnir gerast amorískir í tilefni verðandi Valentínusar og velta fyrir sér ástum ofurhetja, ástum vélmenna og ástum morgunverðarklúbbsins áður en þeir sæka sig upp og beina grænum og köldum hjörtum sínum inn á við og skoða abstrakt og veraldlegar upplifanir sínar í ástarmálum.2015-01-2600 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 46 - Tvöþúsund Og FuriousHefnendurnir tala um skólun Hulkleiks í HÍ, karlasmekk nineties ljóska og ofurhetjuofhlæði Hollywoods áður en þeir telja upp helstu tilhlakkanir hvað varðar kvikmyndir á komnu ári.2015-01-1200 minHefnendurnirHefnendurnirhefnendurnir 39 - Tom Cruise fær ekki að ríða um jólinHefnendurnir fá post-apocalyptic-norse-god-kung-fu-steampunk -trilógíuhöfundinn Emil hjörvar Petersen í heimsókn, ræða um nýjustu treilerana og búa til eitt stykki jólamyndadagatal handa jarðarbúum.2014-11-2400 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 26 - Bless Boy WonderÍ sínum tuttugusta og sjötta þætti hallmæla Hefnendurnir meintum leðurblökuskapara og minningargreina tvær dívur hvíta tjaldsins áður en þeir rifja upp góðu stundirnar með hefnendaheimilisvininum Robin Williams.2014-08-2500 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 25 - GlerdýraborginHefnendurnir smella í sig steinastaupum, ræða flóttamenn úr æskuparadís og rifja upp minnistæðar bíófarir áður en þeir taka á móti dröfningunni DD Rozas sem leiðir þá í allan sannleikann um það sem gerist bakvið tjöldin í draumaborginni L.A.2014-08-1800 minHefnendurnirHefnendurnirHefnendurnir 22 - Úr LeðurblökuskápnumHeilagar Halakörtur Jarðarbúar! Haldiði ekki að Hefnendurnir hafi hent í heljarstóran hátíðarþátt um Leðurblökumanninn sjálfan. Dýnamíska dúóið okkar heldur upp á 75 ára afmæli hempuklædda krossfarans með löngu og íburðarmiklu spjalli um Batman. Tíu Bill Finger upp til guðs!2014-07-2800 minHefnendurnirHefnendurnirhefnendurnir 3 - The Dawn of the Planet of The EndurgerðHefnendurnir syrgja Harold Ramis og læra að Hollywood er eitt stórt Groundhog Day.2014-03-1700 min