Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Heklan

Shows

Góðar sögurGóðar sögurElvar Már FriðrikssonHann var lágvaxinn og seinn til í þroska sem lá þungt á honum á unglingsárum. Það fyllti hann eldmóð til þess að leggja ennþá harðar að sér og sanna sig. Þetta hefur verið rauður þráður í ferli Njarðvíkingsins Elvars Friðrikssonar, landsliðsmanns og atvinnumanns í körfubolta. Hann tekst á við áskoranir með jákvæðni og auðmýkt að leiðarljósi.Elvar hefur átt áhugaverðan feril í atvinnumennsku þar sem hann hefur m.a. verið kjörinn besti leikmaður sænsku og litháísku deildanna. Hann leikur nú Í Grikklandi við góðan orðstír og stefnir á frekari 2025-02-191h 17Góðar sögurGóðar sögurJón KalmanJón Kalman hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín og hefur fyrir löngu fest sig í sessi sem einn helsti skáldagnahöfundur landsins og hafa bækur hans komið út á fjölmörgum tungumálum. Hann flutti til Keflavíkur 12 ára gamall sem hann taldi verstu örlög í heimi og mótmælti harðlega með bréfi sem fékk litlar undirtektir. Þá einsetti hann sér að aðlagast alls ekki samfélaginu sem tókst framan af en að endingu lét hann undan. Keflavík hefur verið sögusviðið í skáldsögum hans en ekki voru allir K...2025-02-031h 35Góðar sögurGóðar sögurIngibergur Þór JónassonUmhverfið í kringum heimaslóðirnar í Grindavík hefur alltaf verið griðarstaður fyrir Ingiberg Þór Jónasson ljósmyndara. Náttúran veitir honum hugarró og jafnvægi í lífsins ólgusjó. Hann fór fyrst á sjóinn um fermingaraldur og lærði þar heilmargt. Hann háði baráttu við Bakkus og missti móður sína ungur að árum.Í dag er hann ljósmyndari í heimsklassa og hálfgerður talsmaður Grindavíkur þar sem hann er við stjórnartaumana hjá körfuboltaliðum félagsins. 2025-01-181h 08Góðar sögurGóðar sögurGarðar Örn ArnarsonÖrlögin höguðu því þannig að hann skráði sig í kvikmyndaskóla þegar hann var við það að stimpla sig út úr námi. Þrennum Edduverðlaunum síðar er Garðar Örn Arnarson einn afkastamesti kvikmyndagerðamaður Íslands og brautryðjandi þegar kemur að gerð íþróttaefnis á Íslandi. Hann er einn harðasti Keflvíkingur landsins og finnst hvergi betra að vera en í bítlabænum. Sem strákur flutti hann til Hafnafjarðar en hélt þú áfram að æfa körfubolta í Keflavík og mætti á alla leiki sem vatnsberi. Hann er guðfaðir körfuboltakvölds og hefur gert heimildamyndir um Gri...2024-12-231h 11Góðar sögurGóðar sögurUna SteinsdóttirHún hefur ástríðu fyrir lífinu og þykir vænt um fólk.Una Steinsdóttir er einn af helstu stjórnendum Íslandsbanka og að baki fjölda landsleikja í handbolta. Henni finnst best að vera í sókn í lífinu, það þarf í það minnsta að vera gaman.Ef gefur á bátinn horfir hún til himins og veit að allt verður í himnalagi.Góðar sögur eru styrktar af Sóknaráætlun Suðurnesja.2024-12-211h 10Góðar sögurGóðar sögurUna SteinsdóttirHún hefur ástríðu fyrir lífinu og þykir vænt um fólk.Una Steinsdóttir var yngsti útibússtjóri Íslandsbanka og er einn af helstu stjórnendum hans í dag. Hún á fjölda landsleikja að baki í handbolta og finnst best að vera í sókn í lífinu, það þarf í það minnsta að vera gaman.Ef gefur á bátinn horfir hún til himins og veit að allt verður í himnalagi.2024-12-171h 10Góðar sögurGóðar sögurHólmfríður ÁrnadóttirHún flutti til Suðurnesja fyrir fimm árum síðan og tók þar við stöðu skólastjóra Ssand, hún brennur fyrir velferðarmálum og er alveg einstaklega jákvæð. Við ræddum við Hólmfríði um lífið á Suðurnesjum, sakamálasögur, vegahlaup og að sjálfsögðu um pólitíkina.2021-09-1550 minGóðar sögurGóðar sögurBirgir ÞórarinssonHann þótti villingur og ekki líklegur til að verða guðfræðingur og virðulegur þingmaður. Það má segja að hann sé 19 aldar maður í hjarta. Hann er strandamaður, óðalsbóndi á Knarranesi á Vatnsleysuströnd þar sem eitt sinn varð til ríkisstjórn. Þar hefur hann byggt sé kirkju. Við ræddum við Birgi Þórarinsson um Keflavík, trúna og að sjálfsögðu pólitíkina.2021-09-151h 50Góðar sögurGóðar sögurVilhjálmur ÁrnasonHann var flutningsmaður áfengisfrumvarpsins en sjálfur hefur hann aldrei byrjað að drekka. Hann er sveitastrákur sem endaði á Alþingi með viðkomu í lögreglunni. Í búsáhaldabyltingunni varð hann bókstaflega fyrir fyrir sprengju mótmælenda og sá kima þjóðfélagsins sem hann óraði ekki fyrir að sjá nokkur tíma. Vilhjálmur Árnason segir okkur m.a. hvernig lögreglustarfið nýtist honum nánast daglega í stafi sínu á Alþingi.2021-09-101h 44Góðar sögurGóðar sögurOddný HarðardóttirHún verður alltaf samofin Garðinum enda býr hún þar enn á æskuheimili sínu. Þar var lífið oft erfitt í æsku Oddnýjar. Foreldrar hennar skildu þegar hún var táningur og heimilislífið var litað af drykkju föður hennar. Hún missti móður sína sem ung kona og þyrfti að hafa talsvert fyrir því að mennta sig.Það er óhætt að segja að Oddný Harðardóttir sé brautryðjandi. Fyrst kvenna varð hún bæjarstjóri í Garðinum, hún er eina konan sem hefur verið skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hú...2021-09-081h 40Góðar sögurGóðar sögurGuðbrandur EinarssonGuðbrandur Einarsson verslaði fermingarfötin timbraður. Snemma náðu áfengi og kannabisefni sterkum tökum á lífi þessa unga manns sem dreymdi um að verða bóndi. Hann setti tappann í og sneri sér að tónlist, verkalýðsmálum og stjórnmálum. Hann er tvöfaldur tvíburapabbi með sterkar skoðanir og ríka réttlætiskennd.Guðbrandur er hér í einlægu viðtali þar sem hann talar um sigurinn gegn Bakkusi, barnalánið og baráttuna sem stundum fylgir stjórnmálum.2021-09-061h 32Góðar sögurGóðar sögurJóhann Friðrik FriðrikssonHann þótti uppátækjasamur sem barn og var kallaður Suðurnesjaskelfirinn. Áhugi hans liggur víða og því hefur hann prófað margt og má þar nefna störf við fjölmiðla, uppistand og nám í lýðheilsufræðum en hann starfar í dag sem framkvæmdastjóri Keilis. Hann hefur einlægan áhuga á fólki og því lá beinast við að fara í pólitík, en þar vakti hann m.a. Athygli fyrir vöfflubakstur. Við settumst niður með Jóhanni Friðriki og ræddum við hann um lífið og tilveruna, covid og eldgos - og að sjálfsögð2021-09-031h 25Góðar sögurGóðar sögurErla ReynisdóttirErla Sóley Reynisdóttir er ekki há í loftinu en það háði henni aldrei á körfuboltavellinum enda keppnisskapið mikið hjá þessum "stáldverg" eins og sumir kölluðu hana þegar þeir áttuðu sig á því að undir björtu fasinu bjó einbeittur sigurvilji. Erla var um árabil ein af sterkustu körfuboltakonum ársins og við ræddum við hana um körfuboltann en líka óvænt barnalánið þegar það eina sem hélt þeim hjónum gangandi var vonin.2021-06-2143 minGóðar sögurGóðar sögurEðvarð Þór EðvarðssonÞegar flest okkar eru að vakna þá er Eðvarð Þór að klára útihlaup, nýbúinn með sundæfingu eða jafnvel að klára 18. holu í Leirunni. Slíkur er metnaðurinn og drifkrafturinn. Hann hækkaði ránna í sundíþróttinni á Íslandi við aðstæður sem ekki teldust sæmandi í dag. Átta ára byrjar hann að svamla í 12 metra sundlaug í Njarðvík en áratug síðar var hann meðal bestu sundmanna heims og á leið á Ólympíuleika. Hann hætti svo að synda 22 ára og þyngdist um 30 kíló á nokkrum mánuðum. Auk þess komst hann að því að hann var lélegur sundþjálfari. Það átti h...2021-05-222h 02Góðar sögurGóðar sögurPáll KetilssonHann stofnaði sitt fyrsta fyrirtæki aðeins 20 ára gamall og það er enn sprelllifandi - og það á sömu kennitölu. Það má segja að Víkurfréttir séu sannkallað fjölskyldufyrirtæki. Flestir þekkja fjölmiðlamanninn en færri þekkja heimilisfaðirinn, golfarann, frumkvöðulinn og skyrtusölumanninn smekkvísa. Páll segir okkur frá þróun fjölmiðla á 40 ára starfsferli og einstöku sjónarhorni sem hann hefur haft á samfélagið suður með sjó, við heyrum hans sögu.2021-04-122h 07Góðar sögurGóðar sögurHelga Sigrún HarðardóttirHún hefur komið víða við enda óhrædd við áskoranir hvort það er í námi eða starfi og hún var einu sinni pönkari.Lífið hefur verið allskonar, sorgin knúði dyra þegar eiginmaður hennar lést eftir stutta baráttu við krabbamein og henni var aðeins gefið eitt barn en hún á einstakt samband við dóttur sína sem nú er sjálf orðin mamma.Helga Sigrún Harðardóttir segir okkur frá því hvernig var að verða móðir 16 ára gömul, ævintýrinu í Fjörheimum, útvarpi Bros, einstaklega...2021-03-231h 30Góðar sögurGóðar sögurHarpa JóhannsdóttirHún fór í tónleikaferðalag um heimsálfur með tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur sem var ævintýri fyrir 19 ára básúnuleikara. Harpa segir okkur frá tónlistinni, hjónabandinu og hvernig það er að uppgötva að barnið þitt er ekki eins og önnur börn.2021-03-221h 16Góðar sögurGóðar sögurÞráinn KolbeinssonÞráinn Kolbeinsson er lærður sálfræðingur en ákvað að venda sínu kvæði í kross og eltast við drauminn - að gerast ljósmyndari. Hann fluttist til Grindavíkur og kynntist þar fegurð Reykjanesskagans sem er einstakur á heimsvísu. Hann segir okkur frá glímunni í Mjölni, jarðhræringum á Reykjanesi, föðurhlutverkinu og fegurðinni á Reykjanesi.2021-03-1649 minGóðar sögurGóðar sögurKristín Júlla KristjánsdóttirHún er Gervahönnuður sem safnar Edduverðlaunum. Hún var uppreisnargjarn unglingur sem var send í sveitaskóla vestur á Reykjanes. Þar kynntist hún öllum villingunum úr Reykjavík og gerðist pönkari á Hlemmi. Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd og lætur allt flakka. Hún segir frá því hvernig sundlaugin í Garðinum bjargaði lífi hennar. Hvernig hún kvaddi flíspeysuna og fann köllun sína í förðun þar sem hún skapar ótrúlegar persónur í mörgum af áhrifamestu kvikmyndum Íslandssögunnar. Kvíði og kulnun, sköpun og gleði og allt þar 2021-02-162h 22Góðar sögurGóðar sögurFriðrik ÁrnasonÞrátt fyrir að vera rétt skriðinn yfir fertugt þá hefur Friðrik Árnason verið starfandi í ferðaþjónustu í 30 ár.  Um fermingu fór hann hjólandi upp í Leifsstöð þar sem hann fiskaði ferðalanga í svefnpokagistingu í Njarðvíkurskóla. Hann var orðinn umboðsmaður bílaleigunnar Geysis og rekstraraðili að tjaldsvæði áður en hann fékk bílpróf.  Tvítugur eyddi hann sumarfríinu einn á bílaleigubíl þar sem hann heimsótti ferðaskrifstofur í Evrópu og landaði samningum. Njarðvíkingurinn sem nú rekur hótel austur á Breiðdalsvík elska að skapa enda er hann uppfullur af frumle...2021-01-291h 08Góðar sögurGóðar sögurGuðbjörg Glóð LogadóttirGuðbjörg Glóð Logadóttir á stóran þátt í að breyta viðhorfi okkar Íslendinga gagnvart fiski. Á hennar æskuheimili komst lítið annað að þar sem sem frumkvöðullinn faðir hennar seldi fisk til Ameríku við matarborðið. Hún gekk með hugmyndina um Fylgifiska í maganum í áratug áður en hún lét til skarar skríða. Þessi andlegi, gallharði fisksali segir hér frá æskunni í Keflavík og viðskiptunum auk þess sem hún deilir sögu föður síns sem fékk heilavírus tæplega fimmtugur og varð aldrei samur eftir það.2020-12-291h 39Góðar sögurGóðar sögurGunnar ÖrlygssonSjómennska og veiði er Gunnari Örlygssyni í blóð borin. Hann fór um fermingu á sjóinn en í dag flytur hann út ferskan fisk víða um veröld og veltir milljörðum. Njarðvíkingurinn stoppaði stutt við á Alþingi en þar hóf hann störf með dóm á bakinu og skipti svo um flokk. Gunnar gerir upp þann tíma auk þess að segja frá uppeldinu á frægasta körfuboltaheimili landsins, fiskikaupmennsku, laxveiði og rimmunum við Kára Stefánsson.2020-12-271h 53Góðar sögurGóðar sögurVeigar MargeirssonHægláta tónskáldið sem haldið hefur sig í Hollywood í næstum tvo áratugi. Hann hefur samið tónlist fyrir stiklur mynda eins og Lord of the rings, Joker og Batman begins. Keflvíkingurinn Veigar Margeirsson er einlægur og hógvær þrátt fyrir magnaðan árangur í sínu fagi. Hér segir hann frá einstökum ferli og áföllum sem mótað hafa hans sýn á lífið.2020-12-241h 36Góðar sögurGóðar sögurBergur Þór IngólfssonBergur Ingólfsson er hinn grindvíski Billy Elliott. Fyrsti atvinnuleikarinn úr bæjarfélaginu og hefur átt farsælan feril sem leikari og leikstjóri í yfir aldarfjórðung. Bergur ásamt fjölskyldu sinni átti stóran þátt í að fella ríkisstjórn og hrinda af stað byltingu undir formerkjum höfum hátt. Bergur er skapandi og skemmtilegur og án efa einn merkasti listamaður Suðurnesja.2020-08-311h 11Góðar sögurGóðar sögurMargrét SturlaugsdóttirLíf Margrétar Sturlaugsdóttur hefur meira og minna snúist um körfubolta. Þar var hún afar sigursæl sem hluti af fyrstu gullkynslóð íþróttarinnar í Keflavík og sem farsæll þjálfari á öllum stigum síðar meir. En rétt eins og í körfunni þá er leikurinn oft erfiður og hreinlega ósanngjarn. Hér segir hún á einlægan hátt frá baráttu sinni við krabbamein og hvernig það er að vera aðstandandi alkóhólista.2020-04-161h 08Góðar sögurGóðar sögurSigga DöggSigga Dögg er mörgum kunn fyrir kynfræðslu sína og ritstörf en okkur lék áhugi á því að kynnast betur frekar keflvíkinginum frekar en kynfræðinginum en Sigga Dögg flutti aftur til heimabæjarins fyrir nokkrum árum sem hafði að segja má heilandi áhrif eftir erfið unglinsár þar sem hún sótti sér styrk í síbreytilegt hafið, enda nóg af því á Suðurnesjum. Hún ætlaði að verða sálfræðingur en hætti svo snarlega við það, slysaðist svo í fjármálafræðslu hjá banka áður en hún fann fjölina sína, þar kemur sér vel...2020-04-071h 19Góðar sögurGóðar sögurSævar Helgi Jóhannsson og listamaðurinn ShelSævar Helgi hefur djúpar tónlistarrætur úr Keflavík en foreldrar hans eru báðir tónlistarmenntaðir, amma hans starfaði sem píanókennari og undirleikari um áratugaskeið, föðurbróðir er tónskáld, föðursystir tónlistarkennari í London og svona mætti áfram telja. Það kom því engum á óvart að hann færi út í tónlist, þótt upphaflega hafi hann alls ekki ætlað að fara í þá átt. Sævar Helgi Jóhannsson vinnur undir listamannsheitinu Shell og er nú þegar farinn að geta sér gott orð í tónlistarheiminum, en þó hógværðin uppmáluð.Góðar Sögur er stutt af Sóknaráætlun Su...2020-04-071h 10Góðar sögurGóðar sögurÓlafur ÓlafssonHann var ofvirkur sem barn, ægilega stríðinn eins og flestir í hans fjölskyldu og einn af okkar bestu körfuboltamönnum, þar fer saman mikill kraftur og leikgleði og það er aldrei langt í húmorinn enda útilokar hann ekki frama á sviði þegar körfuboltanum lýkur. Ólafur Ólafsson, eða Óli Óla eins og flestir kalla hann segir okkur sögur af uppvextinum í Grindavík, körfubolta í þýskalandi, frakklandi og íslandi og stærsta hlutverki sínu til þessa, föðurhlutverkinu.Góðar sögur er stutt af Sóknaráætlun Suðurnesja og í umsjón Dagný Maggýjar og Eyþórs Sæmundssonar...2020-04-071h 10Góðar sögurGóðar sögurKristinn GuðmundssonKristinn Guðmundsson mun væntanlega seint losna við miðnafnið Soð. Undanfarin ár hefur hann birst á tölvu- og sjónvarpsskjáum landsmanna sem kærulaus áhugakokkur sem heillar áhorfendur með frumlegum uppátækjum og matargleði. Keflvíkingurinn skemmtilegi er þó fyrst og fremst listamaður sem hefur fengist við dans, gjörninga, leikstjórn og ljósmyndun, svo fátt eitt sé nefnt.2020-04-041h 09Góðar sögurGóðar sögurBrynjar LeifssonHann hafði hugsað sér að verða bakari eða flugmaður en varð í staðinn gítarleikari í heimsþekktri hljómsveit. Þú gætir hafa séð hann munda gítarinn í sjónvarpinu, í Saturday Night Live, hjá spjalldrottningunni Ellen, eða bregða fyrir í Game of Thrones. Brynjar Leifsson er hins vegar bara venjulegur strákur frá Keflavík sem vann upp í flugstöð þegar heimsfrægðin bankaði á dyr. Að ferðast um heiminn er ekki bara gleði og glaumur. Í einlægu viðtali gefur Brynjar gefur okkur innsýn í þann heim og svo blákaldan veruleikan þegar heim er komið.2020-04-041h 07Góðar sögurGóðar sögurSossaListakonuna Sossu þarf vart að kynna fyrir landsmönnum. Verk hennar má finna á öðru hverju heimili á Suðurnesjum og þótt víðar væri leitað. Hún ræðir hér lífið og listina, segir frá upplifun sinni sem kona í karllægum listaheimi, sambandinu við guð og skattinn og hvernig hún hefur selt fjölskylduna sína oftar en einu sinni. Sossa hefur búið víða og á skemmtilegar sögur frá hverjum stað. Hún segir frá því hvernig hún ræktar líkama og sál en hún stundar m.a. sjósund og hefur sagt skilið við áfengi.2020-04-031h 06Góðar sögurGóðar sögurHelgi Jónas GuðfinnssonGrindvíkingurinn Helgi Jónas var hálfgert undrabarn í körfubolta. Hann þótti á tímabili einn efnilegasti unglingur Evrópu og gerðar voru til hans miklar væntingar. Um tvítugt var hann kominn í atvinnumennsku þar sem hann sem hann bjóst við að upplifa drauma sína. Hið þveröfuga gerðist og andlegt fall blasti við Helga. Hann burðaðist með kvíða og depurð án þess að ræða það um árabil á meðan hann vann titla og hlaut verðlaun í íþrótt sinni með heimaliðinu Grindavík. Síðan hefur hann talað opinskátt um sína erfiðleika sem ættu að reynast un...2020-04-031h 15Góðar sögurGóðar sögurElva Dögg SigurðardóttirHún hafði allt. Átti góða fjölskyldu, gekk vel í skóla og var afrekskona í íþróttum. Síðan gerðist eitthvað og áður en hún vissi af var hún komin inn á barna- og unglingageðdeild og langaði ekki að lifa lengur. Skömmin var mikil, sérstaklega þar sem henni fannst hún ekki hafa ástæðu til þess að vera þunglynd, en það þarf víst ekki ástæðu. Í dag líður henni betur og hún hefur opnað umræðuna um þennan sjúkdóm, sem einmitt fer ekki í manngreiningarálit.  Góðar sögur er stutt af Sóknaráætlun Suðurnes...2020-03-2444 min