podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Hlaðvarp Þjoðskjalasafns Islands
Shows
Til skjalanna
Minja- og sögufélag Grindavíkur. Að varðveita sögu og menningu.
Í þessum þætti ræðir Helgi Biering við Hall Jónas Gunnarsson, eina af driffjöðrum Minja- og sögufélags Grindavíkur. Farið er yfir upphaf félagsins, hið mikilvæga starf við söfnun, skráningu og miðlun heimilda og minja.
2025-06-03
42 min
Til skjalanna
Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna
Helgi Biering ræðir við Þórunni Marel Þorsteinsdóttur sagnfræðing um rannsókn hennar á lausamennsku. Þórunn skrifaði BA ritgerð sem heitir Lestir lausamennsku og lifnaður við sjávarsíðuna: Afbrot og siðferði á Akureyri 1810 – 1840. Eftir að einokunarverslun lauk og kaupstaðir tóku að myndast á Íslandi í upphafi 19. aldar, hófst þéttbýlismyndun þar sem atvinnuleit dró fólk að verslunarstöðunum. Þó svo að lausamennska væri ólögleg þá var fólk í þeirri stöðu samþykkt af samfélaginu sem sýnir ákveðna togstreitu milli laga og hagsmuna samfélagsins.
2025-04-28
43 min
Til skjalanna
Aðgerðaráætlun vegna hugsanlegs brottflutnings íbúa Vestmannaeyja frá 1964
Í febrúar árið 1964 var unnin aðgerðaráætlun vegna hugsanlegs brottflutnings íbúa Vestmannaeyja vegna mögulegrar hættu af völdum náttúruhamfara. Jón Böðvarsson iðnaðarverkfræðingur vann skýrsluna fyrir dr. Ágúst Valfells þáverandi forstöðumann almannavarna ríkisins. Skýrslan nýttist svo þegar gaus í Vestmannaeyjum þann 23. janúar 1973. Helgi Biering ræðir við þá Jón og dr. Ágúst varðandi skýrsluna, tilurð hennar og mikilvægi þegar á reyndi.Meðal þess sem fram kemur í þættinum er náttúruvá, jarðskjálftamælar, Heimaey, flugvöllur á Skógarsandi og betri flugsamgöngur.Þátturi
2025-03-27
33 min
Til skjalanna
Ættfræði og tækni
Íslendingar hafa löngum haft mikinn áhuga á ættfræði, en hvernig geta tölvunarfræði og tæknilausnir auðveldað ættfræðirannsóknir? Í þessum þætti fara Helgi Biering og Agnar Guðmundsson, tölvunarfræðingur og áhugamaður um ættfræði út um víðan völl, um tengsl ættfræði og tækni, gagnagrunna, skjalavörslu og forvitnilegar uppgötvanir í ættfræðinni.
2025-02-27
51 min
Til skjalanna
Cornell háskóli. Saga, söfn og aðgengi.
Ólafur Arnar Sveinsson sviðsstjóri fræðslu og rannsókna hjá Þjóðskjalasafni Íslands ræðir við Elaine L. Westbrooks yfirbókavörð Cornell háskólabókasafnsins. Á meðal þess sem rætt er um er traust til safna, Willard Fiske safnið sem hefur að geyma bækur og handrit á íslensku, aðgengi að gögnum og áhugaverða sögu Cornell háskóla. Þátturinn er á ensku.
2025-01-16
39 min
Til skjalanna
Jólasiðir þá og nú
Helgi Biering ræðir við dr. Margréti Gunnarsdóttur skjalavörð um hefðir, siði og venjur Íslendinga í kringum jól og áramót. Margrét, sem er höfundur ævisögu Ingibjargar Einarsdóttur, eiginkonu Jóns Sigurðssonar, fræðir hlustendur um það til dæmis hvernig jólahaldi var háttað á heimili þeirra hjóna við Austurvegg í Kaupmannahöfn. Áhrif erlendis frá, einkum frá Danmörku, hafa augljóslega náð til landsins í gegnum tíðina og hjálpað við að móta siði og venjur. Meðal þess sem fram kemur í þættinum er fjöldi jólasveina, jólakveðjur, innkaup fyrir jó...
2024-12-16
31 min
Til skjalanna
Fóðrun og hagaganga aðkomufjár í kvikfjártalinu 1703
Helgi Biering ræðir við Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur, skjalavörð á Þjóðskjalasafni Íslands um BA ritgerð hennar frá árinu 2020 sem ber heitið Fóðrun og hagaganga aðkomufjár í kvikfjártalinu 1703. Kvikfjártalið er einstök heimild um búskarparhætti og samfélagsgerð á Íslandi í byrjun 18. aldar. Meðal þess sem fram kemur í þættinum er greiðsla vegna kúgjaldaleigu, sauðir með höfuðsótt, skattaafsláttur og heytollur.
2024-11-27
22 min
Til skjalanna
Blái skjöldurinn
Helgi Biering ræðir við Heiðar Lind Hansson fagstjóra gagnaskila og eftirlits hjá Þjóðskjalasafni Íslands um Bláa skjöldinn. Blái skjöldurinn er alþjóðlegt tákn um vernd menningarverðmæta í vopnuðum átökum og er að ýmsu að hyggja í þeim málum í dag. Einnig koma við sögu viðbragðsáætlanir, rafræn gögn, rýmingarstefna og Norður-Kórea.
2024-10-23
33 min
Til skjalanna
Heimsókn til Gdansk í Póllandi
Helgi Biering ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur lektor í skjalfræði um námsferð starfsmanna Þjóðskjalasafns Íslands til Gdansk í Póllandi. Tilgangur ferðarinnar var heimsókn í eitt af útibúum Þjóðskjalasafns Pólands, fræðast og kynnast þeim sem starfa við skjalavörslu. Einnig var rætt um áskoranir í skjalavörslu og bornar saman bækur. Meðal þess sem kemur við sögu í þættinum er þroskastig skjala, nýsköpun, miðlun gagna og minni þjóðar.
2024-09-30
44 min
Til skjalanna
Netógnir dagsins í dag
Heiðar Lind Hansson ræðir við Bjarka Þór Sigvarðsson fagstjóra ástandsvitundar hjá CERT-IS um netöryggi í leik og starfi í dag. Gagnagíslataka, tvöföld fjárkúgun, árásarkeðjur og gagnaöryggi er meðal þess sem rætt er um í þættinum.
2024-08-12
38 min
Til skjalanna
Þjóðlendurannsóknir
Helgi Biering ræðir við Ólaf Arnar Sveinsson fagstjóra fræðslu og rannsókna og Ragnhildi Önnu Kjartansdóttur skjalavörð um Þjóðlendurannsóknir sem farið hafa fram á Þjóðskjalasafni Íslands í um tuttugu ár.
2024-06-24
26 min
Til skjalanna
„Þessi frægu glæpamál“
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir ræðir við Jón Torfason og Má Jónsson um nýútkomna bók þeirra Þessi frægu glæpamál. Í þættinum ræða þau um ein þekktustu morðmál Íslandssögunnar en það eru morðin á Sjöundá og Illugastöðum.
2024-05-15
43 min
Til skjalanna
Út á brún og önnur mið
Helgi Biering ræðir við Hauk Aðalsteinsson rithöfund og skipasmið um bókina Út á brún og önnur mið. Útgerðarsaga Vatnsleysustrandarhrepps til 1930. Meðal þess sem kemur við sögu í þættinum er verbúðalíf, skipasmíðar, spítalafiskur og hvalveiðar í net.
2024-04-17
38 min
Til skjalanna
Trump, varðveisla og aðgengi að opinberum skjölum.
Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur lektor í skjalfræði við Háskóla Íslands um rannsóknir bandarísku alríkislögreglunnar og kærur á hendur Donald Trump vegna opinberra skjala sem fundust á heimili hans. Í því samhengi ræða þau um hvaða reglur gilda um opinber gögn á Íslandi.
2024-03-22
31 min
Til skjalanna
Skjalafréttir 10 ára
Helgi Biering ræðir við Árna Jóhannsson skjalavörð um fréttabréf Þjóðskjalasafns Íslands Skjalafréttir. Fyrsta tölublað Skjalafrétta kom út 14. janúar árið 2014 og því fagnar það 10 ára afmæli um þessar mundir.
2024-02-19
21 min
Til skjalanna
Dómabókagrunnur Þjóðskjalasafns
Skjalaverðirnir Jón Torfi Arason, Helga Hlín Bjarnadóttir og Yngvi Leifsson ræða saman um sögulega efnisskrá dómabóka sýslumanna, svokallaðan dómabókagrunn, sem unnið hefur verið að á Þjóðskjalasafni síðastliðin 16 ár og er nú senn að ljúka.
2024-01-17
44 min
Til skjalanna
Grindavíkurskjölin
Helgi Biering ræðir við Heiðar Lind Hansson fagstjóra gagnaskila og eftirlits og Árna Jóhannsson skjalavörð um aðkomu og framkvæmd Þjóðskjalasafns Íslands á flutningi skjala Grindavíkurbæjar þegar náttúruvá steðjaði að.
2023-12-18
35 min
Til skjalanna
Kynlegt stríð - ástandið í nýju ljósi
Benedikt Eyþórsson ræðir við Báru Baldursdóttur sagnfræðing um bók hennar Kynlegt stríð - ástandið í nýju ljósi sem nýlega kom út. Óhætt er að segja að gögn sem varðveitt eru á Þjóðskjalasafni Íslands hafi varpað nýju ljósi á samneyti íslenskra kvenna og hermanna á hernámsárunum.
2023-11-29
40 min
Til skjalanna
Íslenskir sakamenn í Kaupmannahöfn
Íslenskir sakamenn í Kaupmannahöfn. Helgi Biering ræðir við Sigríði Hjördísi Jörundsdóttur sagnfræðing um rannsóknir hennar á íslenskum sakamönnum sem sendir voru til refsivistar í Kaupmannahöfn á árunum 1736-1830
2023-10-19
34 min
Til skjalanna
Hverjir völdu fulltrúa fólksins?
Ragnhildur Anna Kjartansdóttir ræðir við Hrafnkel Lárusson skjalavörð og nýdoktor í sagnfræði um rannsókn hans á kosningum og kjörhegðun Íslendinga á landshöfðingjatímanum (1874-1903), en verkefnið hlaut nýverið nýdoktorsstyrk frá Rannís
2023-06-01
29 min
Til skjalanna
Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25
Benedikt Eyþórsson ræðir við Kristínu Svövu Tómasdóttur sagnfræðing og ljóðskáld um nýútkomna bók hennar um farsóttarhúsið í Reykjavík
2022-12-13
39 min
Til skjalanna
Þrautseigja og mikilvægi íslenskrar tungu
Unnar Rafn Ingvarsson og Jón Torfi Arason ræða við Kristjönu Vigdísi Ingvadóttur um nýstárlega sagnfræðirannsókn hennar um tungumálanotkun á Íslandi, dönsk áhrif á 18. og 19. öld og um mikilvægi íslensku frá siðaskiptum
2021-11-14
47 min
Til skjalanna
Lénið Ísland
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Kristjönu Kristinsdóttur sagnfræðing um tímamótarannsókn hennar: Lénið Ísland: Valdsmenn á Bessastöðum og skjalasafn þeirra á 16. og 17. öld.
2021-10-13
31 min
Til skjalanna
Jarðskjálftar á Þjóðskjalasafni
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Pál Einarsson jarðeðlisfræðing og prófessor emeritus um sögu jarðskjálftamælinga á Íslandi og stafræna afritun sögulegra mæligagna um jarðskjálfta, sem varðveitt eru á Þjóðskjalasafni, og hafa að geyma ómetanlegan vitnisburð um hreyfingu jarðarinnar
2021-07-15
40 min
Til skjalanna
Einkabréf alþýðukonu frá 19. öld
Jón Torfi Arason ræðir við Helgu Hlín Bjarnadóttur sagnfræðing og skjalavörð um safn sendibréfa lausakonunnar Arnfríðar Þorkelsdóttur (1830-1885) sem nýlega komu fram í dagsljósið á Þjóðskjalasafni. Tilefnið er grein Helgu Hlínar í Sögu, þar sem hún kynnir þessar ómetanlegu hversdagsheimildir
2021-06-30
28 min
Til skjalanna
Um skjalfræði og mikilvægi upprunans
Jón Torfi Arason ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur sagnfræðing og lektor í skjalfræði um fræðigreinina skjalfræði, upprunareglu í skjalavörslu og námsleið í hagnýtri skjalfræði við Háskóla Íslands
2021-06-11
30 min
Til skjalanna
Lýðræði í mótun
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Hrafnkel Lárusson sagnfræðing um doktorsritgerð hans: Lýðræði í mótun: félagastarf, fjölmiðlun og þátttaka almennings 1874-1915
2021-06-02
38 min
Til skjalanna
Skjöl á skriðusvæði
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Karen Sigurkarlsdóttur forvörð og Andra Má Jónsson skjalavörð, en þau aðstoðuðu bæði við björgun á skjölum úr skriðunum sem féllu á Seyðisfirði í desember árið 2020
2021-03-24
34 min
Til skjalanna
Smitvarnir og bólusetningar
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Erlu Dóris Halldórsdóttur sagnfræðing um bólusetningar á 18. og 19. öld og þá kröfu sem var gerð til skipa að þau væru smitfrí
2021-02-26
29 min
Til skjalanna
Ættarsaga óperusöngvara
Unnar Rafn Ingvarsson og Benedikt Eyþórsson ræða við Bjarna Thor Kristinsson óperusöngvara um rannsóknir hans á sögu fjölskyldunnar.
2021-02-08
34 min
Til skjalanna
Dánarbú 30.000 Íslendinga
Rætt er við Má Jónsson prófessor um gagnagrunn og leitarvél sem nú er orðin aðgengileg á vef Þjóðskjalasafns og tekur til dánarbúauppskrifta, skiptabóka og uppboða á 18. og 19. öld. Dánarbússkrárnar innihalda nákvæmar skrár yfir eigur fólks og taka m.a. til fatnaðar, verkfæra og búfjár og eru ómetanlegar upplýsingar um lífskjör fólks
2021-01-12
35 min
Til skjalanna
Guðjón Samúelsson, húsameistari ríkisins
Benedikt Eyþórsson fagstjóri og Freyr Snorrason sagnfræðingur ræða við Pétur Ármannsson arkitekt og sviðstjóra hjá Minjavernd um nýútkomna bók hans um ævistarf Guðjóns.
2020-12-21
42 min
Til skjalanna
Í hers höndum
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við sagnfræðinemana Atla Björn Jóhannesson og Daníel Godsk Rögnvaldsson um skönnun og skráningu skjala sem varða stríðsárin 1940-1945. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.
2020-12-02
28 min
Til skjalanna
Stormhúfa og harmóníka. Um hagsögusafn Þjóðskjalasafns Íslands
Í upphafi árs 2020 lauk endurskráningu á gríðarstóru safni verslunarskjala sem verið höfðu óaðgengileg um áratuga skeið á Þjóðskjalasafni. Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við sagnfræðingana Gunnar Örn Hannesson og Jón Torfa Arason sem báðir komu að verkefninu. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.
2020-11-25
30 min
Til skjalanna
Raddir frá liðnum tíma
Njörður Sigurðsson ræðir við Bjarka Sveinbjörnsson fagstjóra Hljóð- og myndsafns Landsbókasafns Íslands – Háskólabóksafns um björgun hljóðs af pappaplötum frá árinu 1944. Á upptökunum má heyra raddir margra af fyrstu forystumönnum Alþýðuflokksins. Hér er því um einstakar heimildir að ræða sem heyrast nú í fyrsta skipti í áratugi. Plöturnar eru varðveittar í skjalasafni Alþýðuflokksins í Þjóðskjalasafni Íslands. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.
2020-11-04
32 min
Til skjalanna
Landsnefndin 1770-1771
Störf og hlutverk Landsnefndarinnar fyrri sem starfaði á árunum 1770-1771. Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur, Jóhönnu Þ. Guðmundsdóttur og Helgu Hlín Bjarnadóttur, en þær komu allar að útgáfu 5. bindis skjala Landsnefndarinnar. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.
2020-10-26
27 min
Til skjalanna
Þjóðskjalavörður hefur orðið
Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur þjóðskjalavörð um hlutverk Þjóðskjalasafns Íslands og verkefni þess í bráð og lengd. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.
2020-10-21
27 min