Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Jon Torfi Arason

Shows

SamfélagiðSamfélagiðFólk á förnum vegi um stjórnarslitin, Stjörnu-Sævar og halastjarnan, ástarbrjef frá HoldsveikispítalanumÞað eru umbrotatímar í pólitíkinni. Við heyrum hvað fólki á förnum vegi finnst um stjórnarslitin og framtíðina - gefum fólki sem í morgun var á rölti um Kringluna, Borgartún, Katrínartún og Snorrabraut orðið. Og úr pólitíkinni yfir í önnur stórmál, kannski á öðrum skala. Freðinn risi úr öðru sólkerfi hefur undanfarið tekið þátt í að lýsa upp næturhimininn - við fáum Sævar Helga Bragason, jarðfræðing og vísindamiðlara með meiru, til þess að segja okkur frá Halastjörnunni Tsuchinshan-Atlas C/2023 A3. Við förum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands - þar seg...2024-10-1459 minTil skjalannaTil skjalannaDómabókagrunnur ÞjóðskjalasafnsSkjalaverðirnir Jón Torfi Arason, Helga Hlín Bjarnadóttir og Yngvi Leifsson ræða saman um sögulega efnisskrá dómabóka sýslumanna, svokallaðan dómabókagrunn, sem unnið hefur verið að á Þjóðskjalasafni síðastliðin 16 ár og er nú senn að ljúka.2024-01-1744 minTil skjalannaTil skjalannaÞrautseigja og mikilvægi íslenskrar tunguUnnar Rafn Ingvarsson og Jón Torfi Arason ræða við Kristjönu Vigdísi Ingvadóttur um nýstárlega sagnfræðirannsókn hennar um tungumálanotkun á Íslandi, dönsk áhrif á 18. og 19. öld og um mikilvægi íslensku frá siðaskiptum2021-11-1447 minTil skjalannaTil skjalannaEinkabréf alþýðukonu frá 19. öldJón Torfi Arason ræðir við Helgu Hlín Bjarnadóttur sagnfræðing og skjalavörð um safn sendibréfa lausakonunnar Arnfríðar Þorkelsdóttur (1830-1885) sem nýlega komu fram í dagsljósið á Þjóðskjalasafni. Tilefnið er grein Helgu Hlínar í Sögu, þar sem hún kynnir þessar ómetanlegu hversdagsheimildir2021-06-3028 minTil skjalannaTil skjalannaUm skjalfræði og mikilvægi upprunansJón Torfi Arason ræðir við Helgu Jónu Eiríksdóttur sagnfræðing og lektor í skjalfræði um fræðigreinina skjalfræði, upprunareglu í skjalavörslu og námsleið í hagnýtri skjalfræði við Háskóla Íslands2021-06-1130 minTil skjalannaTil skjalannaÍ hers höndumUnnar Rafn Ingvarsson ræðir við sagnfræðinemana Atla Björn Jóhannesson og Daníel Godsk Rögnvaldsson um skönnun og skráningu skjala sem varða stríðsárin 1940-1945. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.2020-12-0228 minTil skjalannaTil skjalannaStormhúfa og harmóníka. Um hagsögusafn Þjóðskjalasafns ÍslandsÍ upphafi árs 2020 lauk endurskráningu á gríðarstóru safni verslunarskjala sem verið höfðu óaðgengileg um áratuga skeið á Þjóðskjalasafni. Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við sagnfræðingana Gunnar Örn Hannesson og Jón Torfa Arason sem báðir komu að verkefninu. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.2020-11-2530 minTil skjalannaTil skjalannaRaddir frá liðnum tímaNjörður Sigurðsson ræðir við Bjarka Sveinbjörnsson fagstjóra Hljóð- og myndsafns Landsbókasafns Íslands – Háskólabóksafns um björgun hljóðs af pappaplötum frá árinu 1944. Á upptökunum má heyra raddir margra af fyrstu forystumönnum Alþýðuflokksins. Hér er því um einstakar heimildir að ræða sem heyrast nú í fyrsta skipti í áratugi. Plöturnar eru varðveittar í skjalasafni Alþýðuflokksins í Þjóðskjalasafni Íslands. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.2020-11-0432 minTil skjalannaTil skjalannaLandsnefndin 1770-1771Störf og hlutverk Landsnefndarinnar fyrri sem starfaði á árunum 1770-1771. Unnar Rafn Ingvarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur, Jóhönnu Þ. Guðmundsdóttur og Helgu Hlín Bjarnadóttur, en þær komu allar að útgáfu 5. bindis skjala Landsnefndarinnar. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.2020-10-2627 minTil skjalannaTil skjalannaÞjóðskjalavörður hefur orðiðUnnar Rafn Ingvarsson ræðir við Hrefnu Róbertsdóttur þjóðskjalavörð um hlutverk Þjóðskjalasafns Íslands og verkefni þess í bráð og lengd. Jón Torfi Arason sá um upptöku og klippingu. Upphafs og lokalag: April Kisses. Höfundur: Eddie Lang 1927.2020-10-2127 min