Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

KILROY Ferðir

Shows

KILROY kastið: Á áætlunKILROY kastið: Á áætlunNámspása (Gap Year) – Ertu að missa af?Í lokaþætti þessarar sumarseríu af KILROY kastinu: Á áætlun, ræða Rebekka og Sóla það sem margir hugsa en kannski þora ekki alltaf að framkvæma: að taka sér pásu frá námi til að ferðast. Hvort sem þú kallar það námspásu, gap year eða bara „ég þarf smá tíma fyrir sjálfan mig“, þá getur þessi tími verið ein sú besta ákvörðun sem þú tekur. Við förum yfir ástæðurnar fyrir því að fólk ákveður að stíga út úr skólastofunni og inn í heiminn, hvað þarf að hafa í huga og af hverju þetta er ekki b...2025-07-2540 minKILROY kastið: Á áætlunKILROY kastið: Á áætlunJúlí Heiðar og DísaÍ þessum þætti fá Rebekka og Sóla til sín í KILROY stúdíóið þau Dísu og Júlí Heiðar, sem margir landsmenn ættu nú að þekkja vel. Þau fóru fyrr á þessu ári í ævintýraferð til Tælands með litlu stelpuna sína, og eins og sannir ferðalangar lentu þau í ýmsum óvæntum uppákomum á leiðinni. Við ræðum hvernig það er í raun og veru að ferðast með ungt barn, hvað gekk vel, hvað gekk alls ekki og hvað þau tóku með sér heim, bæði þegar kemur að reynslu og minningum.Langar þig að fara í þína drauma æv2025-07-1844 minKILROY kastið: Á áætlunKILROY kastið: Á áætlunBrottför – Allt sem þú þarft að vita áður en þú leggur af staðHvað þarftu virkilega að vita áður en þú ferð í stóra ævintýraferð? Í þessum þætti fara Rebekka og Sóla yfir það helsta sem allir ferðalangar ættu að hafa í huga áður flugið flýgur og draumurinn breytist í veruleika. Við ræðum algengustu mistökin og gefum góð ráð. Þetta er þátturinn sem þú vilt hlusta á áður en þú pakkaðir síðasta sokknum og heldur út í heiminn. Langar þig að fara í þína drauma ævintýraferð? Kíktu á kilroy.is og skoðaðu hvað er í boði. 2025-07-1140 minKILROY kastið: Á áætlunKILROY kastið: Á áætlunKara Hólm og sjálfboðastörf: Ævintýri með tilgangiÍ þessum þætti fá Rebekka og Sóla til sín Köru Hólm sem margir þekkja af samfélagsmiðlum. Kara hefur sjálf farið í sjálfboðastörf erlendis og deilir með okkur sinni reynslu, bæði því fallega, því óvænta og því sem hún hefði viljað vita áður en hún lagði af stað. Við ræðum hvað sjálfboðastörf fela raunverulega í sér, hvernig þau geta breytt manni og hvort þetta sé fyrir alla. Þátturinn er stútfullur af sögum, praktískum ráðum og innblæstri fyrir þá sem langar í ævintýri með tilgangi. L...2025-07-0451 minKILROY kastið: Á áætlunKILROY kastið: Á áætlunÞegar allt fer úrskeiðisÞað er ekki alltaf allt bara sól og kokteilar á ferðalögum... stundum fer allt hressilega úrskeiðis! Í þessum þætti rifja Rebekka og Sóla upp skemmtilegar (og neyðarlegar) sögur úr sínum eigin ævintýrum þar sem hlutirnir fóru alls ekki eftir áætlun.Við tölum um stress, mistök, týndar töskur, skrítnar aðstæður og minningar sem voru kannski ekki fyndnar í mómentinu, en eru það svo sannarlega í dag.Ef þú vilt hlæja, tengja eða bara heyra að þú ert ekki ein/n/tt sem lendir í klúðri á ferðalögum, þá er þessi þá2025-06-2747 minKILROY kastið: Á áætlunKILROY kastið: Á áætlunLjóskureisanÍ þessum þætti taka Rebekka og Sóla á móti sínum fyrstu gestum sumarsins. Þær Bella og Birna mæta brakandi ferskar úr sinni fyrstu (en örugglega ekki síðustu) heimsreisu sem margir kannast eflaust við sem „Ljóskureisan“. Þær ferðaðust saman í gegnum ólíka heimshluta og deildu ferðalaginu með fylgjendum á samfélagsmiðlum.Við ræðum við þær um ferðalagið. Hvað kom mest á óvart? Hverjir voru hápunktarnir? Og hvernig er að ferðast saman svona lengi? Við fáum að heyra sögur sem eru bæði fyndnar, lærdómsríkar og (stundum) svolítið klikkaðar.Vert...2025-06-2050 minKILROY kastið: Á áætlunKILROY kastið: Á áætlunEin en ekki einmana: SólóferðalögÍ þessum þætti ræðum við það af hverju sólóferðalög eru svona sérstök og hvers vegna þú ert aldrei ein/n í raun og veru.Rebekka og Sóla deila hugmyndum, persónulegum reynslum og skemmtilegum sögum úr sínum sóló ferðum.Vertu með og fáðu innblástur fyrir þína eigin ferð! Fáðu svo fría ferðaráðgjöf á kilroy.is.2025-06-1343 minKILROY kastið: Á áætlunKILROY kastið: Á áætlunFerðin sem breytti ölluÍ þessum fyrsta þætti af KILROY kastinu: Á áætlun, kynnumst við þáttastjórnendunum Rebekku og Bergrúnu Sólu. Þær hafa séð og upplifað ýmislegt á sínum mörgu ferðalögum síðastliðin ár og ætla að deila því helsta með hlustendum. Við ætlum að byrja að kynnast þeim örlítið, áður en þær deila sögum frá sínum eigin ferðalögum sem breyttu öllu.Vertu með frá byrjun – og fáðu innblástur fyrir þína eigin ferð!2025-06-0638 min