podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Kristborg Boel Steindorsdottir
Shows
Tilveran
#20 - Sara Barðdal
Sara er Holistic health and transformational coach, skapari og frumkvöðull. Hún er stofnaði HIITFIT og Sjálfið og hefur haldið fjölda námskeiða á sviði heilsu og sjálfsvinnu. Sara hefur bakgrunn í einkaþjálfun, Somatic sexology, Yin yoga, heilsumarkþjálfun og viðskiptafræði og vinnur með djúpa umbreytingu í gegnum líkama, huga og taugakerfi, meðal annars með 9D breathwork.
2026-03-04
1h 13
Tilveran
#19 - Valdimar Þór Svavarsson
Gestur þáttarins er Valdimar Þór Svavarsson. Valdimar er með MS gráðu í stjórnun og stefnumótun, BA gráðu í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og ACC vottun sem markþjálfi og teymisþjálfi. Valdimar er einnig sérmenntaður í áfalla- og uppeldisfræðum Piu Mellody, en þau snúa að því hvernig áföll og óheilbrigð samskiptamynstur í æsku hafa mótandi áhrif á einstaklinga til frambúðar og leiða til meðvirkrar hegðunar.
2026-02-25
1h 15
Með lífið í lúkunum
108. Lífið og tilveran. (Tilvistarkreppa, breytingarskeið, streita, foreldramissir, ADHD og draumar.) Kristborg Bóel Steindórsdóttir
Í þættinum ræðir Erla við Kristborgu Bóel Steindórsdóttur, fyrrum blaðamann, dagskrárgerðarkonu, rithöfund og nú nýjast ömmu og hlaðvarps stjórnanda.Þær stöllur ræða um lífið og tilveruna og öllu sem því fylgir, um það að vera einstætt foreldri, að missa foreldra, tilvistarkreppu, breytingarskeið, streitu, ADHD og drauma.Ástríða Kristborgar liggur í því að segja sögur og fá aðra til þess að segja sögur og stóri draumurinn er að ferðast um heiminn, standa á sviði og tala, vera nokkurs konar jafningjafræðari.Hún tók fyrsta...
2026-02-20
1h 06
Tilveran
#18 - Bjargey Ingólfsdóttir
Gestur vikunnar er Bjargey Ingólfsdóttir. Bjargey er alltaf með marga bolta á lofti, en hún er meðal annars jógakennari og hefur haldið fjölda fyrirlestra um sína vegferð að betri heilsu og líðan. Þá hefur hún haldið sjálfstyrkingarnámskeið innanlands og utan þar sem hún hefur farið með kvennahópa í endurnærandi ferðir til Tossa de Mar.
2026-02-18
1h 17
Tilveran
#17 - Ragnheiður M Kristjónsdóttir
Gestur vikunnar er Ragnheiður M Kristjónsdóttir. Ragnheiður er markaðs- og kynningarstjóri verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, en áður starfaði hún meðal annars sem ritstjóri Séð og heyrt sem var og hét. Segja má að töluverður mótvindur hafi verið á lífsgöngu Ragnheiðar og á hún því miður sögu sem fæst okkar hafa þurft að upplifa, en systir hennar, Áslaug Perla, var myrt árið 2000.
2026-02-11
1h 06
Tilveran
#16 - María Krista Hreiðarsdóttir
Gestur vikunnar er María Krista Hreiðarsdóttir. María Krista er þekkt fyrir gómsætar hollar mataruppskriftir og fjallar mikið um heilsusamlegt líferni á einum vinsælasta Instagramreikningi landsins. María Krista rekur fyrirtækið Krista Design ásamt manni sínum Berki Jónssyni, en þau hjónin virðast hafa aðeins meiri orku og fleiri klukkustundir í sólarhringnum en við hin.
2026-02-04
58 min
Tilveran
#16 - María Krista Hreiðarsdóttir
Gestur vikunnar er María Krista Hreiðarsdóttir. María Krista er þekkt fyrir gómsætar hollar mataruppskriftir og fjallar mikið um heilsusamlegt líferni á einum vinsælasta Instagramreikningi landsins. María Krista rekur fyrirtækið Krista Design ásamt manni sínum Berki Jónssyni, en þau hjónin virðast hafa aðeins meiri orku og fleiri klukkustundir í sólarhringnum en við hin.
2026-02-04
58 min
Tilveran
#15 - Íris Líf Stefánsdóttir
Gestur vikunnar er Íris Líf Stefánsdóttir, en hún á og rekur bókhaldsþjónustuna Accounta sem og nýsköpunarfyrirtækið Virkum. Íris Líf er einnig fjármálaáhrifavaldur og hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum síðustu misseri.
2026-01-28
1h 15
Tilveran
#14 - Olga Björt Þórðardóttir
Gestur vikunnar er Olga Björt Þórðardóttir. Húnhefur talað opinberlega um sína áfallasögu og segir það hluta af sínu bataferli. Olga Björt er tveggja dætra móðir, öflugur aktivisti, með BA próf í íslensku, master í blaða- og fréttamennsku og diplómu á meistarastigi í jákvæðri sálfræði. Í dag starfar hún við blaðamennsku, í markaðsmálum og ljósmyndun.
2026-01-21
1h 02
Tilveran
#13 - Vigdís Diljá Óskarsdóttir
Gestur vikunnar er Vigdís Diljá Óskarsdóttir, stjórnandi samskipta- og samfélagsmála hjá Alcoa Fjarðaáli. Vigdís Diljá er búsett á Egilsstöðum, eiginkona og tveggja dætra móðir. Hún er kraftmikill kvenskörungur sem kennir Zumba í hjáverkum og þrífst á því að hafa sem flesta bolta á lofti.
2026-01-14
1h 01
Tilveran
#12 - Berglind Guðmundsdóttir
Síðasti gestur ársins 2025 er Berglind Guðmundsdóttir, oft kennd við samfélagsmiðil sinn Lífsgleðina. Hún er hjúkrunarfræðingur, markþjálfi, gusumeistari, stjórnmálakona og almenn gleðisprengja. Berglind er kona sem lætur verkin tala því eins og hún segir sjálf, þá fáum við sjaldnast tækifæri á silfurfati, heldur þurfum að hafa fyrir því að láta drauma okkar rætast.
2025-12-17
1h 08
Tilveran
#11 - Hildur Eir Bolladóttir
Gestur vikunnar er séra Hildur Eir Bolladóttir, prestur í Akureyrarkirkju. Í þættinum ræðum við Hildur Eir hlið jólahátíðarinnar sem lítið er rædd - hversu flókið, fallegt en sorglegt það getur verið að vera manneskja á jólum. Jólahátíðin getur reynst erfiður tími fyrir svo margra hluta sakir þar sem systurnar gleði og sorg haldast í hendur.
2025-12-10
1h 04
Tilveran
#10 - Halldóra Skúladóttir
Gestur vikunnar er Halldóra Skúladóttir. Halldóra er sjúkraliði, markþjálfi og sérfræðingur í fræðslustjórnun, en hefur síðustu ár helgað sig ráðgjöf og fræðslu sem snýr að breytingaskeiði kvenna. Halldóru kenna margir við samfélagsmiðla sína Kvennaráð, en hún heldur bæði úti vinsælli Instagramsíðu og heimasíðu sem er stútfull af fróðleik, en þar má einnig bóka ráðgjöf, fyrirlestra og námskeið.
2025-12-03
1h 26
Tilveran
#09 - Soffía Dögg Garðarsdóttir
Gestur vikunnar er Soffía Dögg Garðarsdóttir. Soffía Dögg er blómaskreytir og fagurkeri en er líklega þekktust fyrir að halda úti hinni geysivinsælu síðu Skreytum hús, en meðlimir síðunnar á Facebook eru rúmlega 85.000 talsins og rúmlega 21.000 á Instagram. Í þættinum tölum við Soffía hinsvegar ekki um litapallettur eða nýjustu tískustrauma í innanhússhönnun, heldur köfum á dýpið og snertum á málefnum á borð við alkóhólisma og ófrjósemi.
2025-11-26
1h 39
Tilveran
#08 - Erla Björnsdóttir
Gestur vikunnar er Erla Björnsdóttir, stofnandi og framkvæmdarstjóri Betri svefns. Erla er sálfræðingur með doktorspróf í líf- og læknavísindum þar sem hún rannsakaði svefnleysi, andlega líðan og lífsgæði hjá sjúklingum með kæfisvefn. Erla er einnig konan á bak við íslenska smáforritið SheSleep, app fyrir allar konur sem er annt um sinn svefn og vilja hlúa vel að heilsunni. Erla vakið athygli á árstíðum tíðarhringsins, en líkamleg virkni og líðan eru því breytileg eftir tíðahringnum. Efnaskipti breytast, heilastarfsemin er mismunandi og styrkur streit...
2025-11-19
59 min
Tilveran
#07 - Unnur Elísabet Gunnarsdóttir
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir er gestur vikunnar. Unnur Elísabet er leikstjóri, leikkona, sviðshöfundur, handritshöfundur, tónskáld og danshöfundur. Auk þess er hún jógakennari og kennir fólki líka hvernig það getur hækkað sína tíðni með einföldum ráðum. Hún fer yfir það og svo miklu meira í þættinum, auk þess sem talið leiðist inn á óvæntar og spennandi brautir - nema hvað!
2025-11-12
51 min
Tilveran
#06 - Stína Ágústsdóttir
Gestur þáttarins er tónlistarkonan Stína Ágústsdóttir. Fyrir utan að vera stórkostleg söngkona og frábær lagahöfundur eru textar Stínu ein allsherjar valdefling fyrir konur, en í þeim syngur hún meðal annars um um það flókna samband sem hún hefur átt við líkama sinn og hversu snúið það getur reynst að vera foreldri. Einnig þá ákvörðun sína að láta ekki skoðanir samfélagsins og annars fólks stjórna því hvernig hún lifir sínu lífi; „Ég hef lengi vel reynt að haga mér rétt en svo á seinni árum er ég...
2025-11-05
1h 23
Tilveran
#05 - Hanna Lilja Oddgeirsdóttir
Gestur þáttarins er Hanna Lilja Oddgeirsdóttir læknir og framkvæmdastjóri Gyna Medica, sem er lækninga- og heilsumiðstöð fyrir konur. Starfsemi Gyna Medica hefur það að markmiði að styðja, fræða og fylgja konum eftir á umbreytingartíma breytingaskeiðsins. Í þættinum ræðum við Hanna Lilja saman um þetta lífsskeið kvenna sem hefur verið svo mikið tabú gegnum aldirnar.
2025-10-29
1h 08
Tilveran
#04 - Kristín Þórs
Kristín Þórsdóttir og er stofnandi og eigandi Eldmóðs ehf. Í þættinum segir Kristín sína sögu sem varð til þess að hún fór í þá átt sem hún er í dag. Hún segir okkur einnig hvernig við getum endurheimt tengslin við okkur sjálfar sem við flestar erum líklega löngu búnar að glopra niður. Kristín er vottaður markþjálfi og kynlífs-markþjálfi. Þá er hún höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferðaraðili og með menntun í NA-shamanisma frá skóla Robbie Warren. Hún er kennari í Móum studio en starfar einnig fyrir Kra
2025-10-22
1h 12
Tilveran
#03 - Anna Sigurðardóttir
Anna Sigurðardóttir er annar viðmælandi Tilverunnar. Anna er sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna og eigandi Samkenndar heilsuseturs. Anna hefur sjálf lent í áföllum sem leiddu til alvarlegs heilsubrests, en hún hefur deilt sinni reynslu og þekkingu á Instagram-síðu sinni. Það gerir hún einnig í okkar samtali af mikilli einlægni, mýkt en þó þeirri glettni sem hana einkennir. Þetta er þáttur sem þú vilt eiga í þinni verkfærakistu.
2025-10-15
1h 12
Tilveran
#01 - Kynningarþáttur
Í þessum stutta og krúttlega kynningarþætti fer ég yfir það hvernig hugmyndin að Tilverunni kviknaði og af hverju ég tel hana eiga erindi.
2025-10-15
08 min
Tilveran
#02 - Guðrún María Hafþórs
Fyrsti gestur Tilverunnar er Guðrún María Hafþórs. Ég hefði ekki getað byrjað þessa vegferð betur, en Guðrún María hefur einstakt lag á því að horfa á lífið og þær áskoranir sem það færir á jákvæðan hátt, sem hafa svo sannarlega ekki látið hana óáreitta. Guðrún María er markþjálfi og brennur fyrir því að gleðja aðra og láta gott af sér leiða. Við ræðum um það slönguspil sem lífið er, andlát föður hennar, heilsuorlofið sem hún er í um þessar mundir og fleir...
2025-10-15
55 min