podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Laufid
Shows
Gervigreindarklúbburinn
11. Gervigreind og sjálfbærni - Bjarki Pétursson hjá Laufinu og Zenter
Þátturinn er í boði:ChatGPTnamskeid.isBílaleiga AkureyrarHBHF.is – Hugbúnaðarhús Framtíðarinnar🎧 Bjarki Pétursson – Að draga úr sóun, nýta gervigreind og byggja upp betri reksturÍ þessum þætti er gestur minn Bjarki Pétursson, stofnandi Zenter og forstjóri Laufsins.Bjarki hefur starfað í sölu og markaðsmálum í nær tvo áratugi og segir frá því hvernig hann fór úr hefðbundnum markaðsveruleika yfir í að nota gervigreind daglega í vinnu og stefnumótun.Við ræðum hvernig Laufið forðast orðið “sjálfbærni” og einblínir í staðinn á það sem...
2025-11-25
31 min
Laufið - Hlaðvarp
Emilía Borgþórsdóttir Verkefnastjóri sjálfbærni
Í þessum þætti spjöllum við við Emilíu Borgþórsdóttir, Verkefnastjóra umhverfis- og samfélagsmála hjá Húsasmiðjunni, um vegferð fyrirtækisins í sjálfbærni, fræðslu og framtíðarsýn. Emilía deilir reynslu af að byggja upp sjálfbærnisteymi, þróa stefnu og vinna markvisst að breytingum í rekstri og virðiskeðju. Við ræðum nýrra laga sem taka gildi 1. sept. 2025, áskoranir hjá fyrirtækjum, mikilvægi þátttöku starfsfólks og fleira og fleira. Áhugaverður þáttur fyrir alla sem vinna í byggingargeiranum.
2025-06-27
27 min
Laufið - Hlaðvarp
Iðan fræðslusetur - Heimsmarkmiðin eru grunnurinn
Ásgeir Valur Einarsson, leiðtogi sjálfbærni hjá Iðunni fræðslusetri, segir okkur frá vegferð vinnustaðarins í átt að sjálfbærni og af hverju ákveðið var að breyta áherslum innan Iðunnar. Í kjölfar þess að greint var hvaða heimsmarkmið ætti að leggja áherslu á innan Iðunnar voru úrgangsmál tekin í gegn, kolefnisspor fræðslusetursins skoðað og bæði hefur verið boðið upp á námskeið um sjálfbærni og græn námskeið, sem geta fjallað um aðra færni en uppsetning þeirra er á sem bestan hátt fyrir umhverfið. Í þokkabót hélt Iðan Bransadaga í fyrsta skiptið í nóvember síðas...
2022-12-22
30 min
Laufið - Hlaðvarp 🍃
Ísland og loftslagsbreytingar: Hvað gæti gerst?
Vissir þú að vegna sérstöðu sinnar er Ísland sérstaklega áhugavert fyrir vísindamenn sem rannsaka áhrif loftslagsbreytinga? Hér er að hægt að skoða margs konar áhrif á litlu svæði; svo sem hopun jökla, aurskriður vegna lausari jarðvegs og breytingar á sjávarmáli. Í þokkabót sést ekki aðeins hækkun sjávarmáls við Íslandsstrendur, heldur einnig lækkun sjávarmáls vegna landriss. Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags, og Elín Björk Jónasdóttir, hópstjóri veðurþjónustu hjá Veðurstofunni, ræddu við Laufið um hver á...
2022-09-22
32 min
Laufið - Hlaðvarp
BYKO - Umhverfisvitund frá upphafi
Byggingavöruverslun Kópavogs, betur þekkt sem BYKO, fagnar 60 ára starfsafmæli árið 2022. Við fengum Berglindi Ósk Ólafsdóttur, sérfræðing í sjálfbærni, til að segja okkur frá sögu BYKO sem á rætur að rekja í garð-, matvæla- og skógrækt en segja má að BYKO hafi verið í miklum tengslum við náttúruna allt frá stofnun. Við spjöllum um þau tvö skógræktarsvæði sem BYKO á og hefur átt og og hvernig skógur verslunarinnar að Drumboddsstöðum í Bláskógabyggð bindir um 1.200 tonn af CO2 á ári. Við ræðum einnig þær breytingar sem hafa orðið á kröfum markaðarins varðandi umhve...
2022-07-28
34 min
Laufið - Hlaðvarp
Vörður - Horft til framtíðar
Gestir þáttarins eru þau Hildur Grétarsdóttir, gæðastjóri og Ágúst Mogensen, sérfræðingur í forvörnum en bæði sitja þau í sjálfbærniteymi Varðar. Þau segja okkur frá þeirri sjálfbærnivegferð sem Vörður hefur verið í síðasta rúma áratuginn. Við spjöllum um hvernig vegferðin hófst með grasrótarstarfi innan Varðar og hvernig hún þróaðist fljótt í að vera stór hluti af stefnumótun fyrirtækisins. Fyrirtækið áttaði sig fljótt á mikilvægi þess að einblína ekki einungis á umhverfið heldur sjálfbærni í víðara samhengi, með áherslu á samfélagslega...
2022-07-21
24 min
Laufið - Hlaðvarp
Matís og Landvernd - Plast, plast allsstaðar
Vissir þú að hvert okkar innbyrðir 5 grömm - ígildi eins greiðslukorts - af örplasti á VIKU? Allt sem þú vissir ekki um plast með Sophie Jensen, sérfræðingi hjá Matís, og Margréti Hugadóttur, verkefnastjóra hjá Landvernd! Hér segja þær frá hversdagslegum hlutum sem þú vissir ekki að innihéldu plast, hvernig plastið hjálpaði okkur að kortleggja heimshöfin, hvernig á að segja nei við einnota plasti og hvaða fimm hluti er nauðsynlegt að hafa með sér í fríið til að taka þátt í plastlausum júlímánuði. Allt um plastlausan júli á https://www.plasticfreejuly.org Bó...
2022-07-12
47 min
Laufið - Hlaðvarp
Atmonia - Ammoníak fyrir atvinnulífið
Atmonia er lítið íslenskt rannsóknarfyrirtæki með stórtæk áform sem gæti umbylt heilum atvinnugreinum; landbúnaði, flutningum, iðnaði og skilað margþættum ávinningi fyrir lífríki, loftslag og heimsbyggðina á næstu árum. Við fengum Guðbjörgu Rist framkvæmdastjóra og Helgu Dögg Flosadóttur rannsóknarstjóra til segja frá því hvernig er að vinna við djúptækni á Íslandi og við lærum hvernig nálgun Atmoniu á ammoníakframleiðslu gæti stuðlað að friði í heiminum. Atmonia hefur fengið styrki frá Rannsóknarsjóði og Tækniþróunarsjóði, Markáætlunarsjóði, orkurannsóknarsj...
2022-07-07
35 min
Laufið - Hlaðvarp
Samkaup - Samvinna og samfélag
Starfsfólkið er kjarni fyrirtækis og gegnir lykilhlutverki þegar kemur að umhverfismálum og sjálfbærni. Gunnur Líf Gunnarsdóttir hjá Samkaupum segir okkur frá áherslum Samkaupa þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð og hvað allir stjórnendur, ráðgjafar og sjálfbærniteymi þurfa að hafa hugfast vilji þeir láta til sín taka á þessu sviði. Við förum vítt og breitt yfir starfsemi félagsins og fáum fjölbreyttar hugmyndir að umbótum og nýjungum, svosem nýsköpunarkeppni Samkaupa og námsáherslur, áhrif á nærsamfélagið, um matarsóun og lífrænt grænmeti og margt fleira!
2022-06-23
32 min
Laufið - Hlaðvarp
Mannvit - Hvers vegna sjálfbærni?
Hvers vegna skiptir sjálbærni máli fyrir fyrirtæki og af hverju ættu fyrirtæki að láta sig umhverfis- og samfélagsmál mikið varða. Laufið fékk Maríu Stefánsdóttur og Söndru Rán Ásgrímsdóttur, sérfræðinga hjá Mannviti til að fjalla um sjálfbærni í fyrirtækjarekstri og hvers vegna það er orðið mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Við tökum fyrir grænar fjárfestingar, umhverfisvænar byggingar, Heimsmarkmið SÞ og fyrstu skrefin í umhverfisrekstri.
2022-06-22
23 min
Laufið - Hlaðvarp 🍃
Hvers vegna sjálfbærni?
Hvers vegna skiptir sjálbærni máli fyrir fyrirtæki og af hverju ættu fyrirtæki að láta sig umhverfis- og samfélagsmál mikið varða? Laufið fékk Maríu Stefánsdóttur og Söndru Rán Ásgrímsdóttur, sérfræðinga hjá Mannviti til að fjalla um sjálfbærni í fyrirtækjarekstri og hvers vegna það er orðið mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Við tökum fyrir grænar fjárfestingar, umhverfisvænar byggingar, Heimsmarkmið SÞ og fyrstu skrefin í umhverfisrekstri og mörg fleiri atriði sem allir stjórnendur ættu að kunna skil á.
2022-06-08
23 min
Laufið - Hlaðvarp 🍃
Laufið kynningarþáttur
Velkomin í Laufið - hlaðvarp um sjálfbærni fyrir stjórnendur á mannamáli - eða bara fyrir öll þau sem vilja kynna sér þessi mikilvægu mál! Laufið er ný græn upplýsingamiðlun fyrir atvinnulífið og hagnýt verkfærakista fyrir stjórnendur. Græn umbylting er að eiga sér stað allt í kringum okkur og breyttir tímar kalla á nýjar kröfur um sjálfbærari rekstur. Ljóst er að íslenskt atvinnulíf stendur frammi fyrir ærnu verkefni svo það er um að gera að hefjast handa! Á næstu vikum og mánuðum fjöllum við um...
2022-06-01
01 min
Ekkert að frétta
53 - Árstíðar-blús
Vetur, sumar, vor og haust, við fögnum öllum veðrum, laufið fellur, orðið laust þungt á mínum herðum.
2021-09-09
1h 38
Bókmenntaborgin Reykjavík
Skáldabekkir - Vilborg Davíðsdóttir (gamla steinbryggjan)
Við steinyggjuna gömlu má hlusta á upplestur Vilborgar Dagbjartsdóttur á ljóðunum „Kyndilmessa III“, „Vetur“, „Ráðið“ og „Í japönskum þönkum“. Vilborg hefur lengi verið í hópi þekktustu skálda þjóðarinnar. Fyrsta ljóðabók hennar var Laufið á trjánum sem kom út árið 1960 og var hún þá ein af fáum konum sem skrifuðu atómljóð. Ljóð Vilborgar hafa birst í erlendum safnritum og tímaritum á fjölda tungumála. Umsjón með upptökum hafði Jórunn Sigurðardóttir á Rás 1 Ríkisútvarpsins
2021-03-21
02 min