Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Lubbi Peace

Shows

SkúffuskáldSkúffuskáldSjófugl, Guli kafbáturinn, Reykjavík og EdenÞàtturinn er tileinkaður nýjum bókum og voru það Gyða Sigfinnsdóttir og Anna Margrét Ólafsdóttir sem ræddu fjórar skáldsögur. Guðjón Helgi Ólafsson var alveg sérstakur gestur þáttarins en hann er mikill bókaunnandi og þá einna helst bóka eftir Jón Kalman.Til umfjöllunar voru glæpasögurnar Sjófugl eftir Egil Ólafsson, Guli kafbáturinn eftir Jón Kalman Stefánsson, Eden eftir Auði Övu Ólafsdóttur og Reykjavík eftir Ragnar Jónasson og Katrínu Jakobsdóttur.  Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og Fac...2023-03-311h 57SkúffuskáldSkúffuskáldSigríður HagalínSigríður Hagalín er viðmælandi þáttarins en hún gaf út sína fyrstu bók árið 2016. Það var bókin Eyland sem vakti mikla athygli en síðan þá hafa komið út þrjár skáldsögur eftir Sigríði. Það eru bækurnar Hið heilaga orð, Eldarnir og nú fyrir jólin bókin Hamingja þessa heims. Í þættinum ræða Gyða og Sigríður m.a. um Ólöfu ríku, drauma og svo margt margt fleira. Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldum og bókaunnendunum í kringum ykkur!Skúffuskál...2023-01-2235 minSkúffuskáldSkúffuskáldGuðrún BrjánsdóttirGuðrún Brjánsdóttir er viðmælandi þáttarins að þessu sinni. Hún hefur gefið út ljóðabókina Skollaeyru og nóvelluna Sjálfstýringu. Í þessum þætti spjallar hún við Gyðu, m.a. um  það að vera skúffuskáld og hvernig það er að reyna fyrir sér sem höfundur. Sagan sigraði í samkeppni Forlagsins Nýjar raddir 2020.Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúffuskáldum og bókaunnendunum í kringum ykkur!Skúffuskáld á Instagram og FacebookHvað er Lubbi Peace?Sendið póst á netfangið s...2023-01-0939 minSkúffuskáldSkúffuskáldElísabet ThoroddsenElísabet Thoroddsen er viðmælandi minn í þessum þætti. Í samstarfi við Bókabeituna gaf hún út sína fyrstu skáldsögu fyrir stuttu. Það er bókin Allt er svart í myrkrinu og var hún tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barna- og ungmenna. Elísabet lærði kvikmyndagerð og hefur lengi skrifað fyrir skúffuna. Hún fór í rithóp og eftir það fóru hjólin að snúast hratt. Þetta og svo margt fleira ræddum við í þættinum.Skúffuskáld á Instagram og FacebookHvað er Lubbi Peace? Sendið póst á netf...2022-12-1535 minSkúffuskáldSkúffuskáldSaknaðarilmur, Drepsvart hraun og KyrrþeyÞàtturinn er tileinkaður nýútkomnum bókum, en við Gyða Sigfinnsdóttir ræddum nokkrar skáldsögur í jólabókaflóðinu.Til umfjöllunar voru glæpasögurnar Kyrrþey eftir Arnald Indriðason, Drepsvart hraun eftir Lilju Sigurðardóttur. Auk þeirra ræddum við Saknaðarilm eftir Elísabetu Jökulsdóttur.Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookVangaveltur og ábendingar eru velkomnar á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com2022-12-1040 minSkúffuskáldSkúffuskáldKikka og BókasamlagiðKristlaug María Sigurðardóttir er betur þekkt sem Kikka. Kikka er leikskólakennari, rithöfundur og eigandi Bókasamlagsins. Hún er nokkuð viss um að hún sé með ADHD en hún hefur afkastað ótrúlega miklu og hikar ekki við að ráðast í verkefni sem heilla hana; eins og t.d. Bókasamlagið.Kikka fékk eintóm nei þegar hún vildi gefa út Ávaxtakörfuna; hjá bókaútgáfu og leikhúsum en hún lætur ekki menn í áhrifastöðum segja sér hvað virkar og hvað ekki. Hún treystir á sig sjálfa og gerir það sem hú...2022-08-0254 minSkúffuskáldSkúffuskáldBarna- og ungmennabækur; Akam, ég og Annika, Bannað að eyðileggja, Meira pönk, meiri hamingja, Nú er nóg komið, Álfheimar, Nornaseiður, Rauð viðvörun, Mr. EinsamÞessi þáttur er tileinkaður barna - og ungmennabókum og í þættinum reifa 4 börn jafnmargar bækur.  Það eru þau Skarphéðinn Óli, Bergrún Björk, Kamilla Inga og Ronja. Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri spjallar einnig um nokkrar bækur við Önnu Margréti.Bækurnar sem voru til umfjöllunar eru Mr. Einsam eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur, Rauð viðvörun - Jólin eru á leiðinni eftir Sigrúnu Eldjárn, Nornaseiður eftir Gunnar Theodór Eggertsson, Bannað að eyðileggja eftir Gunnar Helgason, Akam, ég og Annika eftir Þórunni Rakel Gylfadót...2022-01-231h 13SkúffuskáldSkúffuskáldLjóðabókaspjall; Ég brotna 100% niður, Menn sem elska menn, Tanntaka, Álfheimar og Koma jól?Þátturinn er tileinkaður ljóðabókum sem komu út fyrir jólin og hún Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við spjölluðum um bækurnar.Að þessu sinni spjölluðum við um nokkrar ljóðabækur en það voru bækurnar Ég brotna 100% niður eftir Eydísi Blöndal, Menn sem elska menn eftir Hauk Ingvarsson, Tanntaka eftir Þórdísi Helgadóttur, Álfheimar eftir Brynjar Jóhannesson og bókina Koma jól? eftir Hallgrím Helgason og myndskreyting var í höndum Ránar Flyering. Hér finnur þú Skúffu...2021-12-211h 03SkúffuskáldSkúffuskáldValgerður ÓlafsdóttirValgerður Ólafsdóttir veltir því fyrir sér að sækja um aðild að Rithöfundasambandi Íslands en hún hefur gefið út kennslubók í sálfræði og bókin Konan hans Sverris kom út fyrir skemmstu.Konan hans Sverris er saga konu sem fer úr ofbeldisfullu hjónabandi. Sagan er skrifuð sem bréf til eiginmannsins og hvernig eftirsjá samtvinnast þrautseigju og styrk þegar fram líða stundir.Valgerður segir frá sögunni, ferlinu við að skrifa hana og spjallar um lífið og tilveruna. Munið að gerast áskrifendur að þáttunum og deilið með skúf...2021-12-091h 07SkúffuskáldSkúffuskáldOlía, Merking, Myrkrið á milli stjarnanna, Drottningin, Reykjavík og SkrímsliGyða og Anna Margrét spjalla um nokkrar nýútkomnar bækur í þættinum. Þær spjalla um þrjár bækur fyrir börn og þrjár nýútkomnar skáldsögur. Bækurnar sem eiga heiðurssess í þættinum eru:Reykjavík barnanna eftir Margréti Tryggvadóttur og Lindu ÓlafsdótturSkrímslaleikur eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Guettler og Rakel HelmsdalDrottningin sem kunni allt nema... eftir Gunnar Helgason og Rán FlyeringOlía eftir SvikaskáldMerking eftir Fríðu ÍsbergMyrkrið á milli stjarnanna eftir Hildi Knútsdóttur.Hér finnur þú Skúffuskál...2021-11-221h 08SkúffuskáldSkúffuskáldKatrín Sif og Klemenz BjarkiÁ ferð minni um landið í sumar var upptökutækið með í för sem kom að góðum notum þegar ég stoppaði á Dalvík. Þar fór ég í heimsókn í Menningarhúsið Berg þar sem hægt er að fara á kaffihús, næla sér í bók í bókasafninu og njóta listar í listasalnum. Í Bergi hitti ég rithöfundana og skúffuskáldin Katrínu Sif og Klemenz Bjarka sem spjölluðu við mig um skrifin og margt fleira. Villtasti draumur þeirra er að lifa af skrifunum einum saman og það var gaman að heyra af afrekum þeirra, verkum í vinnslu og hvernig er að...2021-09-1351 minSkúffuskáldSkúffuskáldHlín AgnarsdóttirHlín Agnarsdóttir vílaði það ekki fyrir sér að keyra Reykjanesbrautina til að koma til mín í viðtal. Hún bjó einu sinni í Keflavík þegar hún vann sem ritstjóri en list, sköpun og tjáning eru sannarlega hennar ær og kýr. Hlín hefur skrifað mikið, gefið út, leikstýrt og lifað og hrærst í öllu sem því tengist.  Salka Valka hafði gífurleg áhrif á hana og hún kýs að lesa efni sem reynir á hana frekar en afþreyingu. Hlín hefur aðallega kennt leikritaskrif í ritlistarnámi Háskóla Íslands o...2021-08-221h 23SkúffuskáldSkúffuskáldTryggvi Pétur BrynjarssonTryggvi Pétur Brynjarsson skrifar alltaf þegar laus stund gefst og hefur gefið út tvær bækur á Amazon. Hann kom til mín í Stúdíó Lubba Peace og sagði mér frá litríkri ævi sinni, hvernig var að gefa út bók sjálfur og hvernig það er að vera alveg einn við allt ferlið að gefa út bók. Hann ræddi um íslenskuna sem er honum hugleikin, lífið í Bandaríkjunum og hvernig var að koma aftur heim. Tryggvi vinnur að nýrri bók og heldur ótrauður áfram við að skrifa, lesa og læra.Skúffuskáld...2021-08-151h 13SkúffuskáldSkúffuskáldKristín ÓmarsdóttirKristín Ómarsdóttir kom til mín í Stúdíó Lubba Peace og ræddi um sköpun, að skrifa, lifa og lesa. Hún sagði frá ópraktískum njósnum, innblæstri, dularfullu starfi og svo mörgu fleiru. Fyrsta bókin kom út eftir Kristínu þegar hún var aðeins 19 ára gömul og hún hefur verið óstöðvandi síðan. Spjallið fer um víðan völl; um ritdóma, gagnrýni, lestur, sjónvarpsáhorf,  rútínu og praktík. Undir lokin tekur Kristín að sér hlutverk spyrils og gefur góð ráð.Skúffuskál...2021-08-081h 17SkúffuskáldSkúffuskáldBjörn HalldórssonBjörn Halldórsson er viðmælandi minn í þessum fyrsta þætti í þáttaröð númer tvö!Eftir Björn hafa komið út tvær bækur og hann lifir og hrærist í skrifum og bókum. Bókin STOL kom út í febrúar 2021 og hann sagði frá ferlinu við að skrifa bókina og að hann ætlaði alls ekki að skrifa þessa bók. Björn segir m.a. frá námi sem hann sótti í bókmenntum og ritlist og hvernig það var að koma heim og skrifa á íslensku. Opinskátt samtal um skrif, bækur, lestur og margt fleira.2021-08-011h 13SkúffuskáldSkúffuskáldHestar & ljóð í sumarlesturÍ þessum tuttugasta þætti, og jafnframt síðasta í þessari fyrstu þáttaröð, ræða Gyða og Anna Margrét um ljóðabækur og bókina Hesta eftir Rán Flyering og Hjörleif Hjartarson. Bækurnar eru allar upplagðar í sumarlesturinn og myndu sóma sér vel í ferðalagi eða á teppi í lautarferð.Ljóðabækurnar sem þær ræða um eru bækurnar Spegilsjónir eftir Guðrúnu Hannesdóttur, Les birki eftir Kari Ósk Grétudóttur, Havana eftir Maríu Ramos og loks ljóðasafn Kristínar Ómarsdóttur. Skúffuskáld á Instagram og FacebookLubbi...2021-06-2453 minSkúffuskáldSkúffuskáldEldarnir, Fjarvera þín er myrkur, Bölvun múmíunnar, Yfir bænum heima og (M)EinÞátturinn er tileinkaður bókum sem komu út fyrir jólin og hún Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín í spjall.Að þessu sinni spjölluðum við um Eldana eftir Sigríði Hagalín, Fjarvera þín er myrkur eftir Jón Kalman, Bölvun múmíunnar eftir Ármann Jakobsson, Yfir bænum heima eftir Kristínu Steinsdóttur og (M)Ein eftir Ásdísi Höllu Bragadóttur.Hér finnur þú Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og va2021-04-2843 minSkúffuskáldSkúffuskáldLilja SigurðardóttirLilja Sigurðardóttir er glaður glæpasagnaritari sem sekkur sér ofan í viðfangsefnin sem hún skrifar um. Fyrsta bókin eftir hana kom út árið 2009 og síðan þá hefur hún verið óstöðvandi enda er hún kannski næsti Dan Brown.  Lilja kom til mín í Lubba Peace og sagði mér frá vinnudeginum og hvað felst í því að skrifa góða glæpasögu.Hún ætlar að koma í Lubba Peace og vera með glæpasagnanámskeið í mars. Hér fyrir neðan eru hlekkir á frekari upplýsingar og skráningareyðublað:Nánari upplýsingar um...2021-02-161h 23SkúffuskáldSkúffuskáldSigurjón KjartanssonSigurjón Kjartansson hefur verið partur af íslenskri menningu í mörg ár með sínu framlagi í gríni og þungarokki. Hann og Jón Gnarr mynda Tvíhöfða, þeir færðu okkur Fóstbræður ásamt fleirum, Sigurjón er í hljómsveitinni HAM og svo skrifar hann sjónvarpshandrit. Hann tók á móti mér í RKV studios og sagði mér frá handritsgerð og ferlinu við það að skrifa fyrir sjónvarp.Skúffuskáld á Instagram og FacebookLubbi PeaceSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og vangaveltur.2021-02-031h 08SkúffuskáldSkúffuskáld107 Reykjavík, Strendingar og VáboðarBókaspjall Önnu Margrétar og Gyðu heldur áfram.Að þessu sinni ræddum við saman um þrjár mjög ólíkar bækur, en það voru bækurnar; 107 Reykjavík eftir Auði Jónsdóttur og Birnu Önnu Björnsdóttur, Strendingar eftir Yrsu Þöll Gylfadóttur og Váboðar eftir Ófeig Sigurðsson. Ýtið á nafn bókanna til að fá frekari upplýsingar.Handritasamkeppni Forlagsins - Íslensku barnabókaverðlaunin:https://www.forlagid.is/um-utgafuna/islensku-barnabokaverdlaunin/Skúffuskáld á Instagram og FacebookSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeac2020-12-2039 minSkúffuskáldSkúffuskáldBarnabækurÍ þessum þætti er spjallað um nokkrar barnabækur sem koma út fyrir jólin.Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við ræddum um fjórar barnabækur; Hetja eftir Björk Jakobsdóttur, Barnaræninginn eftir Gunnar Helgason, Iðunn og afi pönk eftir Gerði Kristnýju og Töfralandið eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur.Í lok þáttarins má heyra spjall við Bergrúnu Björk og Skarphéðinn Óla um bækurnar sem þau lásu. Ýtið á nafn bókanna til að fá frekari upplýsingar.Han...2020-12-101h 03SkúffuskáldSkúffuskáldAuður Ava ÓlafsdóttirAuður Ava Ólafsdóttir sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu árið 1998 - bókina Upphækkuð jörð og nú fyrir nokkrum dögum kom út bókin Dýralíf en það er jafnframt sjöunda skáldsagan sem kemur út eftir hana. Auður Ava er einnig textahöfundur hljómsveitarinnar Milkywhale, hún hefur skrifað nokkur leikrit, smásögur, ljóð og dansverk. Auður Ava er gestur Skúffuskálda og hafði frá mörgu kynngimögnuðu að segja!Handritasamkeppni Forlagsins - Nýjar raddir:https://www.forlagid.is/n...2020-11-161h 40SkúffuskáldSkúffuskáldLjóðabókaspjallÍ þessum þætti er aftur talað um bækur sem koma út fyrir jólin, að þessu sinni ljóðabækur.Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við ræddum um fimm nýjar ljóðabækur; Fjölskyldulíf á jörðinni eftir Dag Hjartarson, Þagnarbindindi eftir Höllu Þórlaugu Óskarsdóttur, Við skjótum títuprjónum eftir Hallgrím Helgason,  Hetjusögur eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur og Guðrúnarkviða eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur. Ýtið á nafn bókanna til að fá frekari upplýsingar.Handr...2020-11-131h 00SkúffuskáldSkúffuskáldAprílsólarkuldi, Dauði skógar og Gata mæðrannaÞessi þáttur er frábrugðinn þeim sem á undan hafa komið en hér er spjallað um bækur. Gyða Sigfinnsdóttir bókmenntafræðingur og verkefnastjóri kom til mín og við ræddum um þrjár nýjar bækur; Gata mæðranna eftir Kristínu Marju Baldursdóttur, Aprílsólarkuldi eftir Elísabetu Jökulsdóttur og bókina Dauði skógar eftir Jónas Reyni Gunnarsson. Ýtið á nafn bókanna til að fá frekari upplýsingar.Handritasamkeppni Forlagsins - Nýjar raddir:https://www.forlagid.is/nyjar-raddir-handritarsamkeppni-f...2020-11-0355 minSkúffuskáldSkúffuskáldGerður KristnýGerður Kristný hefur skrifað ljóð, barnasögur, viðtalsbók, ferðasögur og skáldsögur. Hún hefur fengið viðurkenningar og verðlaun fyrir verk sín, t.a.m. Blaðamannaverðlaun Íslands og Bókmenntaverðlaun Íslands. Gerður Kristný hefur ferðast víða vegna starfs síns en kýs að vinna heima í forstofuherberginu. Hún byrjaði ung að skrifa og titlaði sig snemma sem skáld. Og Limbódrottningu. Í þættinum setti hún alþjóðlegan dag Skúffuskálda, 21. október.  Setjið það endilega í dagatölin ykkar!Handritasamkeppni Forl...2020-10-231h 25SkúffuskáldSkúffuskáldBergrún Íris SævarsdóttirBergrún Íris Sævarsdóttir er búin að upplifa uppskerutíma að undanförnu fyrir verk sín og vinnu. Hún er m.a. handhafi Fjöruverðlaunanna og Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Fyrst og fremst er hún barnabókahöfundur og myndhöfundur sem auðgar líf barna um allt land. Hún elskar að heyra sögur af börnum sem gleyma sér í bók og geta jafnvel ekki farið að sofa fyrr en bókin er búin. Bergrún Íris fær endalausar hugmyndir, meira að segja hugmyndir um blóðugt efni sem er ekki ætlað börnum...2020-10-081h 20SkúffuskáldSkúffuskáldAuður HaraldsHvunndagshetjan er fyrsta bók Auðar Haralds en hún kom út árið 1979. Auður skrifaði fleiri bækur eftir það, greinar og þýddi bækur. Hún talaði um það hvers vegna hún byrjaði að skrifa, hvernig hún fékk útgáfusamning og hún talaði um Elías, sem hún fékk á endanum nóg af. Auður talaði auðvitað líka um lestur og bækur.Bókaútgáfan Sæmundur og Bókakaffið á Selfossi og Ármúla styrkja gerð þáttarins. InstagramSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbip2020-09-2649 minSkúffuskáldSkúffuskáldJón Kalman StefánssonJón Kalman Stefánsson kom til mín í Stúdíó Lubba Peace og ræddi um upphafið að ferlinum, þegar hann byrjaði að skrifa og hvernig þessi knýjandi þörf til að skapa hefur tekið völdin. Hann ræðir einnig um lestur, hvernig bækurnar verða til og hvað hefur áhrif á hann. ,,Að skrifa fyrir mig er eins og hjartað sem slær og blóðið sem rennur og ég skrifa. Þetta er allt eitt og hið sama." - Jón Kalman StefánssonInstagramSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com2020-09-131h 17SkúffuskáldSkúffuskáldSteinunn SigurðardóttirFyrsta bók Steinunnar Sigurðardóttur kom út árið 1969, ljóðabókin Sífellur. Hún fagnaði því 50 ára rithöfundaafmæli árið 2019 en hún er einn ástsælasti rithöfundur Íslendinga. Hún bauð mér í kaffi á heimili hennar og Þorsteins Hauksonar, eiginmanns hennar. Við ræddum um upphafið að ferlinum, óvægna gagnrýni, hvernig hún vinnur eftir eigin stuði og svo margt fleira.Munið að gerast áskrifendur og 5 stjörnur eru auðvitað vel þegnar :-)InstagramSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendingar og pælingar.2020-07-291h 05SkúffuskáldSkúffuskáldBjörk Jakobsdóttir, Gunnar Helgason og Óli GunnarÞessi þáttur er tekinn upp í Hafnafirði hjá yndislegri og afar skapandi fjölskyldu. Hjónin Björk Jakobsdóttir og Gunnar Helgason tóku á móti mér ásamt Óla Gunnari syni þeirra. Við ræddum aðeins um fjölskyldulífið, hvernig hægt er að hafa ofan í sig og á sem listamenn, hverju þarf að breyta á íslenskum bókamarkaði og þau koma með mörg ráð til höfunda sem eru gulls ígildi. Munið að gerast áskrifendur og 5 stjörnur eru auðvitað vel þegnar :-)InstagramSendið póst á netfangið skuffuskald@lubbipeace.com með ábendinga2020-06-071h 21SkúffuskáldSkúffuskáldYrsa Þöll GylfadóttirYrsa Þöll Gylfadóttir rithöfundur hefur skrifað tvær bækur - Tregðulögmálið og Móðurlífið blönduð tækni. Hún er að skrifa skáldsögu sem kemur út á þessu ári, auk tveggja léttlestra bóka sem koma út hjá Bókabeitunni. Við spjölluðum um skrifin, að lesa, að samtvinna fjölskyldulíf og rithöfundastörf og margt fleira skemmtilegt. 2020-05-0456 minSkúffuskáldSkúffuskáldGuðrún Eva MínervudóttirGuðrún Eva og Anna Margrét fara ofan í kjölinn á því að skrifa bók og skálda sögur.  Með ilmandi kakói frá Guatemala og í kósý herbergi Guðrúnar gerast litlir töfrar og samtalið verður innilegt og gott. Meðal þess sem ber á góma er innsæi, berskjöldun, hröð orka og hæg orka, ferli þess að skrifa bók og margt fleira. 2020-03-201h 11SkúffuskáldSkúffuskáldSigga DöggSigga Dögg talar um bækurnar sínar fjórar, Kjaftað um kynlíf, Á rúmstokknum, KynVera og nýjustu bókina Daði. Hún les stutt brot úr bókunum og fjallar svo um skrifin, framtíðina, notaða smokka í krukku og margt fleira. Hún segir einnig frá því hvernig hún nær alveg að sökkva sér ofan í það að skrifa og lopafötin sem hún klæðist á meðan! 2020-01-1456 minSkúffuskáldSkúffuskáldDagný MaggýjarDagný Maggýjar ræddi við Önnu Margréti í þessum þætti.Hún hefur gefið út tvær bækur upp á sitt einsdæmi og í þættinum ræðir hún um ferlið við að gefa út sjálf. Einnig ræða þær um bækurnar tvær; Brunann í Skildi og Á heimsenda, en báðar bækurnar fjalla um raunverulega atburði. Þá les Dagný upp valin textabrot úr bókunum tveim. 2019-12-0947 minSkúffuskáldSkúffuskáldVigdís Gríms og skapandi skrifÍ fyrsta þætti verður rætt við Vigdísi Grímsdóttur rithöfund og nemendur sem sátu námskeið hjá henni í Skapandi skrifum. Einnig má heyra nemendur lesa upp valið efni af námskeiðinu. Vigdís Grímsdóttir er einn af ástsælustu rithöfundum Íslands og hana þarf vart að kynna. Hún hefur m.a. skrifað skáldsögur, ljóð og barnabók. Hún hefur fengið margar viðurkenningar fyrir verk sín og skáldsagan Grandavegur 7 tryggði henni íslensku bókmenntaverðlaunin árið 1994. 2019-11-2949 minSMB Community PodcastSMB Community PodcastAutotask Live Report: ElasticTask Manages Amazon Web Services Billing in Autotask, QuickBooksNeed to Manage Amazon Web Services? ElasticTask Gets The Job Done One of the cool things I noticed about the Autotask Community Live event is that many partners are developing products and services that plug into Autotask. In all cases, these partners solved a problem internally and then turned that program into a product that can be used by others. One of the coolest I saw was ElasticTask.   ElasticTask helps you make sense of your Amazon Web Services billing, converts it automatically into Autotask, QuickBooks, and other p...2013-06-2004 minSMB Community PodcastSMB Community PodcastAutotask Live Report: ElasticTask Manages Amazon Web Services Billing in Autotask, QuickBooksNeed to Manage Amazon Web Services? ElasticTask Gets The Job Done One of the cool things I noticed about the Autotask Community Live event is that many partners are developing products and services that plug into Autotask. In all cases, these partners solved a problem internally and then turned that program into a product that can be used by others. One of the coolest I saw was ElasticTask.   ElasticTask helps you make sense of your Amazon Web Services billing, converts it automatically into Autotask, QuickBooks, and other p...2013-06-2004 min