Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Lyfjastofnun

Shows

Hlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar32. Lyfjaendurskoðun - Einar Stefán BjörnssonUmfjöllun hlaðvarpsins að þessu sinni tengist málþingi sem fram fór í byrjun októbermánaðar þar sem fjallað var um skynsamlega endurskoðun lyfjameðferða, með sérstaka áherslu á fjöllyfjanotkun. Einn frummælenda á málþinginu var Einar Stefán Björnsson, prófessor við HÍ og lyflæknir á Landspítala. Hann fræðir hér um hvernig slík endurskoðun fer fram, talar um að þessum þætti lækninga mætti sinna í meira mæli, og hver ávinningurinn getur orðið. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir2023-11-1621 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar31. Um heiti lyfja - Brynjar ÖrvarssonHvernig eru heiti lyfja valin, eru einhver viðmið sem þarf að fara eftir ? Þessum og fleiri spurningum er beint til Brynjars Örvarssonar, lyfjafræðings og sérfræðings hjá Lyfjastofnun. Hann hefur um árabil setið í nefnd hjá Lyfjastofnun Evrópu þar sem fjallað er um tillögur að lyfjaheitum. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir2023-09-2023 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar30. Að ferðast með lyf - Viðar GuðjohnsenÁkveðnar reglur gilda þegar ferðast er með lyf milli landa. Þær eru að einhverju marki mismunandi eftir löndum og heimssvæðum. Gott er að glöggva sig á þessum reglum áður en haldið er af stað, ferðalangar gætu þurft að gera grein fyrir lyfjunum sem þeir hafa meðferðis ef til tollskoðunar kemur. -Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og eftirlitsmaður hjá Lyfjastofnun fer yfir helstu reglur sem gilda á þessu sviði. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir2023-07-0617 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar29. Lyf við sumartengdu ofnæmi - Erla Hlín HenrysdóttirÍ þessum þætti í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar er fjallað um lyf við sumartengdu ofnæmi, ofnæmi vegna frjókorna og skordýrabita. Erla Hlín Henrysdóttir, lyfjafræðingur í samskiptadeild Lyfjastofnunar, segir frá því að ýmis lyf sem geta slegið á óþægindi vegna þessa séu í boði, þar á meðal lausasölulyf. Hún hvetur fólk til að afla sér upplýsinga um lyf áður en notkun þeirra hefst. Benda má á lyfjafræðinga og lyfjatækna apótekanna, og fylgiseðla sem finna má á lyf.is. Grein um sumartengt ofnæmi má lesa á vefnum lyfjastofnun.is. Umsjón hlaðvarps: Hanna G. Sigurðardóttir2023-06-1214 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar28. Að þiggja ódýrari valkost í stað ávísaðs lyfs - Ólöf ÞórhallsdóttirOft er hægt að draga úr lyfjakostnaði með því að velja ódýrara sambærilegt lyf. Lyfjastofnun raðar lyfjum í svokallaða skiptiskrá og þar eru flokkuð saman sambærileg lyf í sama viðmiðunarverðflokki, sem þó geta verið á mismunandi verði. Þetta er það sem um ræðir þegar sjúklingum er boðið samheitalyf í apóteki, þ.e. sama lyf frá öðrum framleiðanda. Þá er um ódýrari valkost að ræða en lyfið sem læknirinn ávísaði. Í hlaðvarpsþættinum fræðir Ólöf Þórhallsdóttir, lyfjafræðingur og sviðsstjóri Umsókna- og samskiptasviðs Lyfjastofnunar, um frumlyf og samheitalyf, hvernig ód...2023-02-0814 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar27. Lyf fyrir lítil börn í Afríku - Sveinbjörn GizurarsonSveinbjörn Gizurarson prófessor í lyfjafræði segir frá verkefni sem hann hefur unnið að síðustu sex ár, við að þróa nýtt lyfjaform malaríulyfs, og koma á fót lyfjaverksmiðju í Malaví. -Þessi saga fylgdi óvænt með sem bónus þegar rætt var við Sveinbjörn um líftæknilyfshliðstæður í síðasta hlaðvarpsþætti. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir2022-12-2115 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar26. Líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður - Páll Þór Ingvarsson og Sveinbjörn GizurarsonÍ þessum þætti er fjallað um líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður. Töluverður munur er á líftæknilyfjum (e. biologics) og eldri hefðbundnum lyfjum. Þau síðarnefndu eru efnasmíðuð sem kallað er, líftæknilyfin framleidd með aðstoð lífvera. Líftæknilyfshliðstæður (biosimilars) eru síðan nokkurs konar samheitalyf líftæknilyfja. -Rætt er við Pál Þór Ingvarsson lektor og Sveinbjörn Gizurarson prófessor við lyfjafræðideild Háskóla Íslands. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir2022-11-0940 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar25. Aðgerðir Lyfjastofnunar til að sporna gegn lyfjaskorti - Rúna Hauksdóttir HvannbergRúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar segir frá þeim aðgerðum sem ráðist hefur verið í til að sporna gegn lyfjaskorti, og undirstrikar að eitt af hlutverkum stofnunarinnar samkvæmt lyfjalögum er að sinna eftirliti með framboði lyfja. Meðal þess sem eflt hefur verið er lyfjaskortsteymið, en það miðlar upplýsingum um fyrirsjáanlegan skort á vef stofnunarinnar og leitar lausna til að draga úr áhrifum skorts. Ýmis konar einföldun vegna skráningarferla hefur komið til, og til skoðunar er hvernig rafrænar lausnir geta orðið til að draga úr líkum á lyfjaskorti. Umsjón: Hanna G. Sigurð2022-10-1414 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar24. Lyf, ferðalög og sól - Jana Rós ReynisdóttirÍ þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar verður rætt um lyf í sumartengdu samhengi. Lyf meðferðis á ferðalögum til annarra landa annars vegar, lyf og sólarljós hins vegar. Hvað má t.d. taka lyf með sér til langs tíma á ferðalögum til útlanda, og síðan er vakin athygli á því að sum lyf geta valdið húðútbrotum ef sá sem þau notar er óvarinn fyrir sólarljósi. -Jana Rós Reynisdóttir er deildarstjóri samskiptadeildar Lyfjastofnunar fer yfir það helsta í þessum málum í þættinum. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir2022-06-1613 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar23. Ópíóíðar - Magnús Karl Magnússon og Sigríður ZoëgaÍ byrjun árs var í fjölmiðlum fjallað um misnotkun ópíóíð-lyfja hérlendis, um svipað leyti og margir landsmenn horfðu á sjónvarpsþáttaserínuna Dopesick. Sú þáttaröðrekur sögu ópíóíðafaraldursins í Bandaríkjunum sem rekja má til vafasamrar markaðssetningar framleiðandans Purdue Pharma á lyfinu Oxycontin. Í þessum hlaðvarpsþætti er fjallað um ópíóíða. Hvers konar lyf eru þetta, hvernig verka þau á líkamann, hvað gerir að verkum að þau slá svo mjög á sársauka og eru jafn ávanabindandi og raun ber vitni. Rætt er við Magnús Karl Magnússon prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, og Sigríði Zoëga, sérfræðing í hjúkrun á 2022-03-1541 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar22. Hvernig er metið hvort lyf og bóluefni séu hæf til notkunar ? – Hrefna GuðmundsdóttirTil að lyf og bóluefni komist á markað þurfa lyfjafyrirtæki að senda gögn úr rannsóknum sem lyfjayfirvöld yfirfara. Í Evrópu fer sú vinna fram á vettvangi Lyfjastofnunar Evrópu, meginvinnan í ýmsum sérfræðinganefndum. Í þessum hlaðvarpsþætti er sagt frá vinnu og verklagi í þeim helstu, með verkefnin sem snúa að COVID-19 faraldrinum sérstaklega í huga; hvernig unnið er að því að meta hvort lyf og bóluefni séu hæf til notkunar. Sérfræðingar Lyfjastofnunar taka þátt í starfi þessara nefnda. Einn þeirra, Hrefna Guðmundsdóttir yfirlæknir Lyfjastofnunar, segir hér frá starfi þriggja nefnda, m.a. sérfræðinganefndinni sem rá...2022-01-1927 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar21. Saga bólusetninga á Íslandi - Haraldur BriemFjallað er um sögu bólusetninga á Íslandi, bólusetningar barna fyrst og fremst. Byrjað er á að rifja upp upphafið að þeirri byltingu í lýðheilsumálum sem kúabólusetningin var, framtak frumkvöðulsins Edwards Jenner. Síðan rakið hvenær byrjað var að bólusetja gegn helstu smitsjúkdómum á Íslandi, í frásögn Haraldar Briem fyrrverandi sóttvarnalæknis. Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir2021-12-1728 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar20. COVID-19: Örvunarbólusetningar - Björn Rúnar LúðvíkssonRætt er við Björn Rúnar Lúðvíksson yfirlækni á ónæmisfræðideild Landspítalans og prófessor í ónæmisfræði við Háskóla Íslands. Björn Rúnar skýrir hvers vegna örvunarskammtur til viðbótar við fullbólusetningu er mikilvægur, hvaða rannsóknir liggja fyrir um áhrif örvunarskammts, og hverjar niðurstöður þeirra eru. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2021-11-2419 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar19. COVID-19: Bólusetning barna og unglinga 12-15 ára - Valtýr Stefánsson ThorsRætt við Valtý Stefánsson Thors barnasmitsjúkdómalækni um hvað rannsóknir segja um bólusetningu þessa aldurshóps, um aukaverkanir bæði algengar og sjaldgæfari, hugsanlegar áhyggjur foreldra, og mat á því hvort kostir bólusetningar vegi þyngra en mögulegir ókostir. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2021-08-2721 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar18. Meira um bóluefni gegn COVID-19 - Ingileif JónsdóttirNú er tæplega hálft ár síðan fyrsta bóluefnið gegn COVID-19 fékk íslenskt markaðsleyfi, sem og frá bólusetningarátakinu sem hófst nokkrum dögum síðar. Við ætlum því að nýju að ræða um bóluefnin í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar, þau bóluefni sem hafa verið notuð hérlendis. Um með hvaða hætti þeim er ætlað að ræsa ónæmiskerfið til varna, um virkni þeirra, og hugsanlegar aukaverkanir sem þeim geta fylgt. -Rætt er við Ingileif Jónsdóttur, prófessor í ónæmisfræði við læknadeild Háskóla Íslands, og deildarstjóra hjá Íslenskri erfðagreiningu 2021-06-1838 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar17. Bóluefni gegn COVID-19 - Rúna Hauksdóttir Hvannberg og Kolbeinn GuðmundssonFjallað um þróun bóluefna gegn COVID-19. Hvernig öllum ferlum hefur verið flýtt, þar á meðal matsferlum Lyfjastofnunar Evrópu (EMA), og rætt um áhyggjur fólks af hinni hröðu framvindu. Þá er sagt frá hvernig þeim bóluefnum sem hafa komið við sögu hjá EMA fram til þessa er ætlað að verka í líkamanum til að kalla fram ónæmi gegn sjúkdómnum. Rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg forstjóra Lyfjastofnunar, og Kolbein Guðmundsson yfirlækni stofnunarinnar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2020-12-1523 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar16. Lyf á meðgöngu og við brjóstagjöf - Guðrún StefánsdóttirÞegar kona verður barnshafandi er að mörgu að hyggja í því sem snýr að heilsufari. Eitt af því er lyfjanotkun, hvað er óhætt og hvað þarf að varast í þeim efnum. Því eins og segir á vef heilsugæslunnar berast flest lyf sem mælast í blóði móður, í gegnum fylgjuna til fóstursins. -Rætt er við Guðrúnu Stefánsdóttur lyfjafræðing, teymisstjóra í matsdeild Lyfjastofnunar, og einn helsta sérfræðing stofnunarinnar í því sem snýr að aukaverkunum lyfja. - Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2020-10-0613 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar15. Covid-tengd umræða - Klínískar lyfjarannsóknir. Kolbeinn Guðmundsson og Hjalti KristinssonNú á tímum Covid-19 faraldursins heyrist oftar en áður talað um klínískar rannsóknir á lyfjum og bóluefnum, rannsóknir sem ýmist eru að hefjast eða þegar hafnar. En hvað eru klínískar lyfjarannsóknir, hvernig fara þær fram, hverjir taka þátt í þeim, hvernig er eftirliti með þeim háttað ? –Í þessum hlaðvarpsþætti Lyfjastofnunar útskýra tveir af sérfræðingum stofnunarinnar, þeir Kolbeinn Guðmundsson yfirlæknir og Hjalti Kristinsson deildarstjóri lyfjaöryggisdeildar, í hverju þessar rannsóknir felast, og hversu mikilvægur þáttur þær eru í því sem snýr að öryggi lyfja áður en þau eru sett á markað. – Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2020-06-1632 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar14. Verkefni Lyfjastofnunar á tímum COVID-19 - Rúna Hauksdóttir Hvannberg og Kolbein Guðmundss.Á tímum COVID-19 hefur starfsemi Lyfjastofnunar að stærstum hluta snúist um verkefni sem tengjast heimsfaraldrinum. Hér er rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg forstjóra um hvernig unnið hefur verið að því að tryggja lyfjabirgðir í landinu og koma í veg fyrir skort vegna hamsturs. Þá er rætt við Kolbein Guðmundsson lækni og sérfræðing hjá Lyfjastofnun um samvinnu lyfjastofnana í Evrópu við að flýta fyrir rannsóknum og þróun lyfja og bóluefnis við sjúkdómnum. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2020-04-1729 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar13. Lyfjaskortur - ástæður og úrræði - Hjalti KristinssonSíðustu misseri hefur í auknum mæli verið fjallað um lyfjaskort í fjölmiðlum enda hefur vandi vegna lyfjaskorts farið vaxandi. -Lengi var viðtekinn skilningur hér heima sá, að lyfjaskorts yrði sérstaklega vart á Íslandi og einangrun væri um að kenna en svo er ekki; lyfjaskortur er alþjóðlegt vandamál. Hér er rætt við Hjalta Kristinsson deildarstjóra lyfjaöryggisdeildar Lyfjastofnunar. Talað erum ástæður lyfjaskorts, hvort skortur tengist ákveðnum lyfjaflokkum, til hvaða úrræða Lyfjastofnun hefur gripið, og samvinnu lyfjastofnana í Evrópu til að takast á við vanda vegna lyfjaskorts. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2020-01-2023 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar12. Aukaverkanatilkynningar - Guðrún StefánsdóttirAukaverkanatilkynningar veita miklivægar upplýsingar um verkun og öryggi lyfja. Rætt við Guðrúnu Stefánsdóttur lyfjafræðing, einn helsta sérfræðing Lyfjastofnunar í því sem snýr að aukaverkunum lyfja. M.a. fjallað um hvernig tilkynningar um aukaverkanir eru unnar og meðhöndlaðar, hverju slíkar tilkynningar skila, og spurt hvort ekki séu til nein lyf sem eru án aukaverkana. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2019-11-2816 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar11. Sýklalyfjaónæmi - Kolbeinn GuðmundssonDagana 18. -24. nóvember 2019 stendur yfir alþjóðleg vitundarvika um sýklalyfjaónæmi og skynsamlega notkun sýklalyfja. -Rætt við Kolbein Guðmundsson, yfirlækni Lyfjastofnunar um hvernig sýklalyf verka, og hvernig ónæmi gegn sýklalyfjum getur orðið til. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2019-11-2113 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar10. Insúlín - alþjóðlegur dagur sykursýki - Hrefna GuðmundsdóttirÞann 14. nóvember er árlega haldinn alþjóðlegur dagur sykursýki til að vekja athygli á sjúkdómnum. Sykursýki stafar af ójafnvægi í insúlínbúskap líkamans, eða jafnvel algjörum skorti á insúlíni. Úr því þarf að bæta með lyfjagjöf. -Rætt við Hrefnu Guðmundsdóttur lyflækni og sérfræðing hjá Lyfjastofnun. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2019-11-1413 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar9. - Hlutverk Lyfjastofnunar - Rúna Hauksdóttir HvannbergÞegar þetta hlaðvarp fer í loftið eru nákvæmlega 19 ár frá því að Lyfjastofnun hóf starfsemi. Af því tilefni er fjallað um hlutverk og starfsemi stofnunarinnar. Rætt við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar, sem segir frá ýmsum áskorunum í starfinu svo sem lyfjaskorti, eftirliti með lækningalækjum og Brexit. Einnig eru nefndar til sögunnar systur tvær frá Sjanghæ ! Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2019-11-0115 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar8. Netverslun með lyf – Sindri KristjánssonVerslun og viðskipti á netinu færast í vöxt, og lyf eru seld þar eins og hver annar varningur. Og þó - því lyf eru ekki eins og hver annar varningur að því leyti að um framleiðslu þeirra, dreifingu og geymslu gilda strangari reglur en um flestar aðrar vörur. Allt er það með öryggi notandans í huga, því afleiðingar af notkun lyfs sem ekki hefur fengið vottun lyfjayfirvalda um ítrustu kröfur, geta verið alvarlegar. Ríki heims hafa því víðast hvar sett skýrar reglur um sölu lyfja gegnum netið. Á EES svæðinu hefur þannig verið innleitt sameiginlegt kennimerki fyr...2019-10-0320 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar7. Samheitalyf – þau lúta sömu gæðakröfum og frumlyf - Rúnar GuðlaugssonHefur þér verið boðið samheitalyf í apóteki og þú verið á báðum áttum ? Hér er skýrt hvað samheitalyf eru og að hvaða leyti þau eru frábrugðin frumlyfinu sem þau eru byggð á. –Rætt við Rúnar Guðlaugsson lyfjafræðing, sérfræðing á upplýsingadeild Lyfjastofnunar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2019-08-3015 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar6. Fylgiseðlar lyfja - uppáhaldslesningin þín ? - Jana Rós ReynisdóttirÖllum lyfjum sem eru á markaði fylgja upplýsingar fyrir notendur. Í pakkningum lyfja eru þannig prentaðir fylgiseðlar á blaði, en fylgiseðla má líka nálgast rafrænt á serlyfjaskra.is -En hvaða upplýsingar geymir fylgiseðillinn ? Jana Rós Reynisdóttir deildarstjóri hjá Lyfjastofnun fer yfir það og segir litla dæmisögu sem sýnir hve mikilvægt er að lesa fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2019-07-2611 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar5. Lyf við biti lúsmýs, geitungastungum og frjókornaofnæmi - Kolbeinn GuðmundssonFjallað er um sumartengt ofnæmi og lyf við því. Lúsmý og viðbrögð við biti þess eru sérstaklega í sviðljósinu að gefnu tilefni, en einnig koma við sögu geitungar og frjókorn. -Rætt við Kolbein Guðmundsson, yfirlækni Lyfjastofnunar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2019-07-0509 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar4. Varasöm lyf í blóði ökumanna - Adam Erik BauerRætt við Adam Erik Bauer réttarefnafræðing og verkefnastjóra á Rannsóknastofu HÍ í lyfja- og eiturefnafræði. Hann hefur tekið saman niðurstöður rannsókna síðustu sex ára á blóðsýnum ökumanna sem reynst hafa verið undir áhrifum lyfja í akstri. Fjölgun slíkra tilvika er ógnvænleg. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2019-06-1128 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar3. Lyfjaskortur er alþjóðlegt vandamál - Cathrine KlerckUmræða um lyfjaskort hefur verið talsvert áberandi í íslenskum fjölmiðlum síðustu misseri. Spurt hefur verið um ástæður og úrræði, og stundum látið að því liggja að um séríslenskan vanda sé að ræða. -Hér er rætt við Cathrine Klerck, teymisstjóra lyfjaskortsteymis hjá norsku lyfjastofnuninni, NOMA. Í máli hennar kemur fram að um alþjóðlegan vanda er að ræða. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2019-05-2813 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar2. Lyfjaskil og förgun lyfja - Brynhildur BriemFjallað um mikilvægi þess að skila afgangslyfjum til förgunar, og hverjir sjá um að taka á móti þeim og eyða. Einnig vangaveltur um hvort skilalyf geti eða hafi hugsanlega ratað á svarta markaðinn. Rætt við Brynhildi Briem deildarstjóra á eftirlitssviði Lyfjastofnunar. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2019-04-1113 minHlaðvarp LyfjastofnunarHlaðvarp Lyfjastofnunar1. Bóluefni - Hrefna GuðmundsdóttirHlaðvarp Lyfjastofnunar kynnt í samtali við Jönu Rós Reynisdóttur deildarstjóra upplýsingadeildar, og rætt við Hrefnu Guðmundsdóttur lyflækni og sérfræðing á Lyfjastofnun um bóluefni. Umsj. Hanna G. Sigurðardóttir2019-03-2715 min