podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Pixelmedia
Shows
Tea with Rich. Getting Real.
Episode 14; Erik Dodier on Life 90-days Into Retirement Part 1.
On this episode Erik Dodier updates us on life 90-days into his retirement from PixelMEDIA/RafterOne, and we explore Erik's transition from a structured work life to a more flexible yet structured personal schedule, where he continues to focus on health, wellness, personal growth and what's next. The trio discusses hobbies, family time, and travel adventures, while also reflecting on the challenges and opportunities that come with retirement. Erik emphasizes the importance of staying engaged and finding new ways to contribute to the community, including potential teaching opportunities and personal projects.
2025-02-06
42 min
Tea with Rich. Getting Real.
Episode 11; Getting Real with Erik Dodier. Stepping Away After 30 Years..
In this episode of Tea with Rich, we welcome Erik Dodier, my business partner of 3 decades, who is two days from his retirement after 30 years at the helm of PixelMEDIA (aka RafterOne). This episode is a doozy, as I surprise Rich with our guest, and we get into a number of way way back stories about Erik and I as collaborators, business partners, and learning to trust and work with each other. We start, ish, with a discussion on Erik's upcoming transition from an ultra-structured work-life to the unknowns o...
2024-11-13
1h 10
Tea with Rich. Getting Real.
Episode 5; Getting real with Kathryn Murphy. Products & Partnerships
On this episode we talk with long-time friend Kathryn Murphy, whom we met and collaborated with while she ran Product (imo) for Demandware (aka SFCC). We begin with the usual banter, discussing each of our "first time meeting" stories at the Partner Advisory Board gathering in LA during Shop.org 8 ish years ago, and Kathryn gives us a bit on her journey in the tech industry (she started coding at 18 folks). The serious, ish, dialog starts as we move into a discussion on the challenges and importance of building strong partnerships between software vendors and...
2024-06-06
54 min
Mile 40 Podcast
Ep 69 - Conviction to Compassion: The Power of Second Chances Featuring Thomas Obrey
Episode Promotional Partner: Rhone Use Code: Mile40 in-store or online at www.rhone.com for 20% off your purchase. Offer valid for New Customers Only. Once a wide-eyed dreamer with a rebellious streak, Thomas Obrey grew from his roots in a world where potential often went astray. Surrounded by clever but wayward youths, he saw firsthand how a blend of intelligence, ambition, and charisma could mislead promising individuals if not properly channeled. Yet, with his sharp mind and a heart full of ambition, Thomas also knew that a small shift in focus could transform lives—that stepping out of one's comfort zone could mea...
2024-02-29
1h 27
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Stafrænt ofbeldi og starfrænar áskoranir ungmenna - Kolbrún Hrund
Viðmælandi þáttarins er Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir. Hún er verkefnastýra jafnréttisskóla Reykjavíkur, en hann sér um allt sem snýr að jafnréttis- og kynheilbrigðismálum í skólum í skólum og frístundarstarfi Reykjavíkurborgar. Kolbrún stýrir einnig þverfaglegu ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar sem styður við starfsstaði þegar upp koma ofbeldismál og þá sérstaklega sem tengjast óæskilegri kynhegðun og kynferðisofbeldi í skóla- og frístundastarfi.Kolbrún nefnir í þættinum mímörg dæmi um þann harða raunveruleika sem blasa við ungmennum í dag.
2023-04-08
26 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Slakaðu á fullkomnunarólinni með GETMO (Good Enough To Move On)
Í þessum þætti fer Bent yfir ákveðna aðferðarfræði við framkvæmd verkefna eða daglegra athafna sem má kallast GETMO, en það er skammstöfun á Good Enough To Move On. Þeir sem þekkja fullkomnunaráráttu að einhverju leyti vita hversu hamlandi það fyrirbæri er. GETMO hefur verið fín lausn fyrir marga og endilega kíktu á það!
2023-03-27
11 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Yfir 200 þekktar veirur orsaka kvef hjá okkur mannfólkinu
Kvef er einn algengasti kvillinn sem herjar á okkur mannfólkið. Það eru þekktar yfir 200 tegundir veira sem orsaka kvef hjá okkur mannfólkinu. Algengt er að börn fái kvef 6-10x á ári og að meðaltali fá fullorðnir kvef um 4x á ári. Kvef læknast yfirleitt af sjálfu sér og þurfum við að gefa ónæmiskerfinu tækifæri á að kljást við veiruna.
2023-02-23
12 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Er leikur og gleði mikilvæg fyrir heilsuna? - Hrefna Óskarsdóttir iðjuþjálfi
Hrefna Óskarsdóttir iðjuþjálfi á Reykjalundi er gestur okkar í þessum þætti. Í þættinum bendir Hrefna á mikilvægi þess að hafa gaman og að leika sér, rannsóknir sýna fram á það vísindalega að það hafi góð áhrif á líðan og heilsu. Hrefna bendir einnig á að of lítill tími aflögu geti haft slæm áhrif á lífsgæði okkar en vegna þess að það er mikilvægt fyrir okkur að hafa eitthvað fyrir stafni þá geti það haft jafn slæm áhrif að hafa of mikinn tíma - sérstaklega þegar okkur skortir tilgang. Að hafa tilgang, leika sér og hafa gaman er meginefni þáttarins.
2023-02-21
50 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Helstu vítamín - yfirlit
Í þessum þætti skoðum förum við yfir helstu flokka vítamína, þeas C og B vítamín annarsvegar og hinsvegar A, D, E og K vítamín. Við förum stuttlega yfir í hvaða fæðu þessi vítamín eru og hvernig skortseinkenni lýsa sér.
2023-02-16
18 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Innsæið og kraftur náttúrunnar - Heiðrún María
Heiðrún María er gestur okkar í dag. Í þættinum ræða þau Bent og Heiðrún María m.a. töfra þess að njóta náttúrunnar, vatnsins, kuldans og ná stjórn á eigin hugsunum og líkama. Einnig ræða þau seiglu, viðbrögð okkar, taugakerfið og margt annað spennandi og skemmtilegt.Styrktaraðili er RB rúm, rbrum.is
2023-02-13
1h 07
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Leitin að innsæinu - Einar Valur Scehving
Einar Valur Sceving tónlistarmaður er gestur okkar að þessu sinni. Bent Marinósson og Einar eiga hér stutt spjall milli kennslustunda hjá Einari og ræða þar m.a. upprunann, stiklað á stóru um tónlistarferilinn og ræða mikilvægi betra lífs - án áfengis, að hlusta meira á innsæið og trúa því og treysta.Styrktaraðilli þáttarins er RB rúm, rbrum.is
2023-02-09
33 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Bætum áramótaheitin - nokkrar leiðir til bætingar
Í þessum þætti skoðum við ýmis vandamál sem eru við áramótaheit, eða önnur markmið, hvernig við getum mögulega skoðað markmiðin okkar í öðru ljósi og þ.a.l. náð betri árangri.
2023-02-06
19 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Einelti - frá sjónarhorni gerenda og þolanda - Arnór Bjarki Blomsterberg
Í þessum þætti ræða Arnór Bjarki Blomsterberg, Nói, og Bent um reynslu sína af einelti. Annarsvegar segir Nói frá sinni hlið af einelti sem gerandi, þroskaferli, iðrun og leiðina að fyrirgefningu. Hinsvegar segir Bent frá sinni hlið af einelti sem þolandi og upplifun barns í slíkum aðstæðum. Og saman skiptast þeir á skoðunum og ræða þessi mál vítt og breitt.Styrktaraðilli þáttarins er RB rúm, rbrum.is
2023-02-03
1h 23
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Taugakerfið þitt er ekki í Gettu betur!
Taugakerfið er magnað fyrirbæri og mætti almenn þekking á því sannarlega meiri því með því að skilja hvað taugakerfið er að segja okkur getur okkur liðið betur og fundið leiðir til betri heilsu, andlegrar og líkamlegrar. Í dag ætlum við að skoða taugakerfið og þá tvo meginhluta þess, sympatíska taugakerfið og parasympatíska taugakerfið og hvernig þau vinna saman. Við förum m.a. hvernig sympatíska taugakerfið og "flótta- og árásarviðbragð" (oft þekkt sem "fight og flight" viðbragð) virka saman og hvað við getum mögulega gert til að hafa smá áhrif á viðbrögð okkar gegn streitu og álagi.
2023-01-30
17 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Hvað er brjósklos ? - Hrefna Sylvía kírópraktor
Gestur okkar að þessu sinni er Hrefna Sylvía Sigurgeirsdóttir kírópraktor. Hrefna Sylvía sérhæfir sig í ákveðinni tækni innan kírópraktík sem nefnis Cox tækni, en það er mýkri meðferð og er ólík þeim hnykkingum sem fólk kannast mögulega við.Í þessum þætti ræða Hrefna Sylvía og Bent um Brjósklos, hvað er brjósklos og hvað er hægt að gera við því ? Styrktaraðilli þáttarins er RB Rúm - rbrum.is
2023-01-26
21 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
80/20 reglan - náðu 80% af árangri með 20% vinnu
Í dag lítum við á 80/20 regluna, eða Pareto lögmálið. Vilfredo de Pareto var ítalskur félags- og hagfræðingur sem tók eftir því að 80% af tekjum þjóðarinnar væri í höndum 20% þeirra, 20% af ávaxtatrjánum í garðinum sínum skilaði 80% uppskerunni ofl. Þetta lögmál getum við nýtt okkur í nánast öllu sem við erum að gera, hvort sem það er í leik eða starfi.Markmiðið er að finna þau 20% verkefna sem skila sem mestum árangri, 80%. Þó reglan sé kölluð 80/20, þá eru þær tölur ekki eitthvað sem meitlað er í stein heldur frekar eitthvað til að miða við.Þátturinn
2023-01-23
12 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Förum á skíði - hvernig byrjum við ? - Leifur Dam Leifsson
Leifur Dam Leifsson er gestur þáttarins að þessu sinni. Umræðuefni þáttarins er skíðaiðkun og skíðabúnaður. Bent Marinósson ræðir hér við Leif um allt milli himins og jarðar sem snýr að skíðum og skíðaiðkun. Leifur er útivistarmaður mikill og ævintýramaður i húð og hár. Hann er einn af eigendum GG sport útivistarverslunar og er þekkir vel til skíðaiðkunar og skíðabúnaðar.Styrkaraðili þáttarins er RB rúm, rbrum.is
2023-01-19
34 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Pomodoro tímaskipulagning
Í þessum þætti fjallar Bent Marinósson um Pomodoro tímaskipulagningatæknina. Pomodoro dregur nafn sitt af timer í formi tómats sem höfundur kerfisins, Francesco Cirillo, notaði til að hjálpa sér í námi. Hann sat við lærdóm í 25 mínútna lotum og notaði þennan timer til að fylgjast með því og tók svo tímasettar pásur inn á milli.Styrktaraðilli þáttarins er RB rúm, rbrum.is
2023-01-16
20 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Bráðamóttakan - „Nú gefst ég upp“ - Eggert Eyjólfsson bráðalæknir
Eggert Eyjólfsson bráðalæknir er gestur okkar að þessu sinni. Eggert sagði upp á bráðamóttöku Landspítalans í haust og lauk sinni síðustu vakt fyrir áramót. Hann hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið þar sem hann hefur lýst óboðlegum starfsaðstæðum og stjórnvöld skeyta engu um margítrekaðar beiðnir um auknar fjárveitingar. Hann telur öryggi sjúklinga og heilsu starfsfólks ógnað.Eiginkona Eggerts er hjúkrunarfræðingur og starfaði einnig á bráðamóttökunni. Hún sagði upp störfum síðastliðið vor, af sömu ástæðum og Eggert.
2023-01-12
1h 14
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Einkaþjálfari - geturu skutlað á mig æfingaprógrammi ?
Nú í upphafi árs er fólk að hrúgast inn á líkamsræktarstöðvar landsins og oft veit fólk ekki hvar það á að byrja, hvernig tækin virka, hvaða lóð á að nota og þá hvernig. Sumir fara þá leið að herma eftir öðrum og það getur bókstaflega verið slæmt. Það er að mörgu að hyggja við uppbyggingu æfingaáætlana og mikilvægt að taka þau atriði með í dæmið.Ég vil mæla sterklega gegn því að nota æfingaprógram sem hefur verið útbúið fyrir annan. Það eru atriði eins og meðslasaga, stoðkerfisvandamál ofl. sem skipta hér miklu máli við gerð...
2023-01-09
20 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Geðheilbrigðismál, betri líðan ofl. - Héðinn Unnsteinsson
Héðinn Unnsteinsson hlaut nýverið Fálkaorðuna fyrir störf í þágu geðheilbrigðismála. Héðinn er stefnumótunarsérfræðingur og rithöfundur; fyrir störf í þágu geðheilbrigðismála. Við Héðinn förum hér um víðan völl, vonandi hefur þú gagn og gaman af.Styrktaraðili þáttarins er RB rúm, rbrum.is
2023-01-05
1h 16
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
SMART markmið - einföld leið til að setja sér raunhæf og skýr markmið
Áramótin marka tímamót hjá mörgum, fólk setur sér markmið hægri vinstri. Því miður virðast margir brotlenda í sínu markmiðaflugi, mögulega er fólk að setja sér of háleit eða óraunhæf markmið. Hér förum við yfir eitt model markmiðasetningar, en það kallast SMART. Í þessum þætti skoðum við hvernig við getum notað SMART aðferðina til að setja okkur raunhæf markmið, sem um leið eykur líkurnar á að við náum þeim.SMART stendur fyrir:SkýrtMælanlegtAðgerðarbundiðRaunhæftTíma
2023-01-02
25 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Áramótaheit - skrifaru áramótaheitin með penna eða blýanti ?
Það er gamlársdagur 2022, árið senn á enda og tilvalið að líta aðeins um öxl en um leið að horfa fram á veginn og skoða hvaða stefnu maður vill taka. Það er misjafnt hvort fólk strengi áramótaheit eða ekki og þá einnig líka hverskonar heit eru strengd. Margir detta í þá gildru að setja sér of háleit eða óraunhæf markmið og gætu eflaust grætt á því að stilla því aðeins í hóf.Í þessum þætti er farið yfir nokkur atriði varðandi áramótaheit og mikilvægi þess að setja sér hófleg markmið, en umfram allt að njóta ferða
2022-12-31
11 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Passaðu heyrnina
Heyrnin er eitt af okkar mikilvægasta. Það er svo auðvelt fyrir okkur að verða fyrir varanlegum heyrnarskaða ef við pössum okkur ekki. Hér förum við yfir nokkur praktísk atriði hvað varðar heyrnina.
2022-05-10
22 min
Entrepreneurs United
EP 77: Pivot Your Business Now, and Focus! - w/ Erik Dodier
Erik Dodier (PixelMEDIA, CEO) co-founded his company PixelMEDIA over 28 years ago. The business has evolved from a two-person multimedia company that started in Erik's apartment, to a 400+ person firm after recent investment and combining with two other entrepreneurial, Salesforce-focused businesses, Docmation and GearsCRM. Today, the business focuses on helping organizations launch, manage and grow their eCommerce business on Salesforce.com. In this episode, we learn about the multiple Pivots that PixelMEDIA was forced to take to not only keep up with ever-changing technology over the past 30 years but also to simplify and focus his business on the a...
2022-02-21
1h 03
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Ofbeldi - birtingamyndir og úrræði - Hrönn Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur
Ofbeldi teygir sig víða og hefur margvíslega birtingamyndir, ofbeldi í nánu sambandi er oft mjög lúmskt og getur læðist aftan að fólki jafnvel þannig að það átti sig ekki á því. Við tölum um algengar tegundir ofbeldis, svo sem líkamlegt, andlegt, kynferðislegt- , fjárhagslegt og stafrænt ofbeldi. Gestur okkur að þessu sinni er Hrönn Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur en hún var verkefnastjóri neyðarmóttöku Landspítalans fyrir þolendur kynferðis- og heimilisofbeldis frá árinu 2016 til síðustu áramóta. Ofbeldi er grafalvarlegur hlutur og er aldrei í lagi. Í þættinum ræðum v...
2022-02-13
1h 11
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Kírópraktík og heilsa hryggjarins - Hrefna Sylvía kírópraktor
Gestur okkar að þessu sinni er Hrefna Sylvía Sigurgeirsdóttir kírópraktor. Hrefna Sylvía sérhæfir sig í ákveðinni tækni innan kírópraktík sem nefnis Cox tækni, en það er mýkri meðferð og er ólík þeim hnykkingum sem fólk kannast mögulega við.Í spjalli okkar tölum við um ýmislegt sem ber að huga að varðandi stoðkerfið og heilsu almennt, til dæmis mikilvægi þess að standa upp reglulega og hreyfa sig. Eins og Hrefna segir í spjalli okkar þá er 3x meira álag á mjóbakið þegar við sitjum en þegar við stöndum.
2022-01-15
28 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilbrigðiskerfi í háska - Jón Magnús, Theodór Skúli, Ragnar Freyr, Eggert Eyjólfsson
Íslenska heilbrigðiskerfið er í háska. Það er víða pottur brotinn í kerfinu og munum við tæpa á nokkrum hlutum þess hér í þessum þætti. Fækkun sjúkrarúma er eitt af þeim málum. Sjúkrarúmum á Landspítalanum, og reyndar landinu öllu, hefur markvisst fækkað á síðustu 20 árum. Fækkun sjúkrarúma er umtalsverð, úr um 1600 sjúkrarúmum á landinu öllu í aðeins um 1000 sjúkrarúm á landinu öllu. Þessi fækkun er gengur þvert á við fjölgun í landinu og gífurlega aukningu erlendra ferðamanna. Í þessum þætti eru mættir fjórir læknar, þeir Eggert Eyjólfsson sérfræðingur í bráðalækningum, Jón...
2021-11-23
1h 13
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Skólinn - með einlægni að vopni - Heimir Eyvindarson
Viðmælandi þáttarins er Heimir Eyvindarson deildarstjóri og dönskukennari í grunnskólanum í Hveragerði. Heimir hefur komið víða við, að auki við kennaramenntunina er hann einnig garðyrkjufræðingur og tónlistarmaður, hann hefur gert garðinn frægann með hljómsveitinni Á móti sól og verið aðal lagasmiður þeirra hljómsveitar. Í þættinum lýsir Heimir m.a. upplifun sinni á breytingum á skólastarfi grunnskólans sem hann nam við sem barn og starfar nú hjá sem deildarstjóri unglingasviðs og dönskukennari. Einnig ræðum við virka hlustun, jákvætt hugarfar ofl. sem okkur datt í hug.
2021-11-01
1h 15
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Hvað eru jurtalyf ? - Dr. Sandra Mjöll
Viðmælandi þáttarins er Sandra Mjöll Jónsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Florealis sem er lyfjafyrirtæki með jurtalyf. Sandra er með doktorsgráðu í líf- og læknavísindum og umræðuefni þáttarins eru jurtalyf, við spyrjum m.a. hvað eru jurtalyf? Og hvernig rötum við um þennan lyfjafrumskóg sem er á markaðnum, þ.e.a.s. jurtalyf, náttúrulyf og fæðubótaefni.Styrktaraðili þáttarins er gitarskolinn.is.
2021-06-25
26 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Matjurtaræktun - Jón Þórir Guðmundsson
Viðmælandi þáttarins er Jón Þórir Guðmundsson garðyrkjufræðingur, hann býr yfir mikill reynslu af ræktun matjurta og er einnig einn helsti sérfræðingur landsins um eplatré sem hann hefur ræktað með mjög góðu árangri. Í þættinum tölum við um matjurtir svo sem kál og grænmeti, gulrætur og lauka. Við ræðum einnig Jarðvegskröfur, áburðargjöf, meindýr í ræktun og ræktun ávaxtatrjáa og garðyrkju almennt.Styrktaraðili þáttarins er Blómaval. Blómaval er stórmarkaður með allt fyrir blóma- og garðáhugafólk. Hjá Blómaval eiga á...
2021-05-21
58 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Léttist um 45kg á 9 mánuðum með föstum - Margrét Sæmundsdóttir
Að þessu sinni er viðmælandinn Margrét Sæmundsdóttir. Hún er 3ja barna móðir, förðunarfræðingur og býr og starfar á Írlandi. Margrét hefur náð góðum árangri með föstum, hún tengir margan ávinning í sínu lífi við fösturnar sjálfar og heilbrigðara mataræði þeim samfara. Meðal annars nefnir hún bættan svefn, minni ofnæmisviðbrögð, minni astma og aukna orku. Auk þess sem hún hefur lést um 45 kíló á 9 mánuðum og segir að hún hafi í raun eignast nýtt líf í kjölfar þess að hún byrjaði að fasta
2021-05-11
1h 03
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Útivera með fjölskyldunni - Sabína Steinunn
Að þessu sinni er viðmælandinn Sabína Steinunn Halldórsdóttir sem er með mastersgráðu í íþrótta- og heilsufræðum. Hún hefur sérhæft sig í hreyfifærni barna með áherslu á útivist í námi og starfi. Hún hefur haldið fjölda námskeiða og skrifað kennslubækur um efnið sem er henni afar hugleikið. Í þessu spjalli förum við yfir margvíslegar hugleiðingar um gæða útiverustundir með fjölskyldunni.
2021-05-04
59 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Markþjálfun - Guðbjörn Gunnarsson markþjálfi
Að þessu sinni er viðmælandinn Guðbjörn Gunnarsson markþjálfi. Hann útskýrir fyrir okkur hvað markþjálfun er, til hvers er hún og við ræðum margvíslega fleti á þessu skemmtilega fyrirbæri sem lífið er.
2021-04-26
57 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Átt þú að gera erfðarskrá ? - Halla Björg Evans lögmaður
Að þessu sinni er viðmælandinn Halla Björg Evans lögmaður og fjallar þátturinn um erfðarmál, erfðarskrár, kaupmála og margt annað sem snýr að skiptingu búa, svo sem hvernig fyrirkomulag sambúðar var - hvort fólk hafi verið gift eða í sambúð… það breytir öllu í þessu samhengi. Eins og flestir vita þá hafa þessi mál splundrað heilum fjölskyldum og því gott að vera vel að sér í þessum málum. Hver er réttur hvers og hvaða málum þarf að huga að. Á fólk að gera erfðarskrá og/eða kaupmál og þá hvenær ?
2021-04-20
1h 22
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu - Jón Magnús Kristjánsson læknir
Gestur þáttarins að þessu sinni er Jón Magnús Kristjánsson læknir. Hann starfar nú sem framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsuvernd. Áður vann hann í um 25 ára í bráðaþjónustu og undanfarin fimm ár var hann yfirlæknir bráðadeildar Landspítalans. Í þessu spjalli ræðum við um mikilvægi fyrirbyggjandi aðgerða í heilbrigðisþjónustu, um er að ræða aðgerðir sem geta sparað þjóðfélaginu stórfé, dregið úr alvarlegum veikindum og þar með aukið lífsgæði til muna.Jón Magnús nefnir einnig ýmis vandkvæði við núverandi heilbrigðiskerfi og ýmsar
2021-04-13
47 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Matarfíkn - aðeins 20 mínútna viljastyrkur á dag ? - Esther Helga matarfíkniráðgjafi
Esther Helga Guðmundsdóttir matarfíkniráðgjafi er mætt til okkar í spjall. Við ræðum við hvað orsakar matarfíkn og hvað við getum gert í henni. Getum við treyst alfarið á viljastyrk okkar eða þurfum við aðrar lausnir ?Esther Helga er sérfræðingur í matarfíkniráðgjöf og eftirsótt bæði hér heima og erlendis sem fyrirlesari og kennari fyrir bæði fagfólk og almenning.Esther Helga stofnaði MFM miðstöðina árið 2006 og hefur unnið mikið að fræðslu um málefnið ásamt því að bjóða uppá einstaklingsmiðaða meðferð við matarfíkn og átröskunum.
2021-04-05
1h 18
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Landsliðskona í spretthlaupum - hugarfar og mótlæti - Fjóla Signý Hannesdóttir
Fjóla Signý Hannesdóttir frjálsíþróttakona er mætt til okkar í spjall. Við förum hér um víðan völl og ræðum meðal annars um íþróttir, hugarfar sigurvegarans, vefjagigt, mikilvægi svefns, áföll og áfallavinnu, æskuna og mikilvægi þess að finna það að maður skipti máli. Í viðtalinu lýsir Fjóla meðal annars hvernig frjálsar íþróttir í raun veru breyttu lífi hennar til hins betra á nánast einu augnabliki.
2021-03-29
1h 49
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Yoga Nidra og líf með ásetningi - Kristín Bára
Kristín Bára Bryndísardóttir hjúkrunarfræðingur og yogakennari er mætt til okkar í spjall. Við tölum um Yoga nidra, lífið almennt, streitu og mikilvægi þess að vera í núinu. Ásamt ýmsu öðru skemmtilegu sem kemur upp!
2021-03-22
1h 13
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Viltu verða 38x betri en þú ert í dag ?
Ef þú bætir þig 1% á dag í 365 daga þá hefur bætingin verið um 38x! Það eru öll þessi litlu atriði sem skipta máli, 1% hér og 1% þar...
2021-03-14
10 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Skjálausir miðvikudagar - Ólöf Þórhallsdóttir
Í þessum þætti er umræðuefnið skjánotkun og ýmsar leiðir til að draga úr óþarfa notkun þeirra tækja. Við ræðum líka hugmyndina um eiga skjálausan dag í hverri viku og einnig þá hugmynd að eiga skjálausan mánuð einusinni eða oftar á ári. Viðmælandi þáttarins er Ólöf Þórhallsdóttir lyfjafræðingur, hún deilir hér reynslu sinni af þessu öllu saman sem hófst þegar hún bjó við störf í Svíþjóð.
2021-02-24
39 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Hvað lærði ég af 2020
Árið 2020 færði okkur miklar áskoranir en um leið margvísleg óvænt tækifæri. Hér setjumst við niður nokkur úr hópnum á bakvið vefinn Heilsumal.is og ræðum þann lærdóm og lexíur sem við lærðum af árinu 2020.Viðmælendur í þessum þætti eru Sigrún Mjöll Halldórsdóttir, Berglind Rúnarsdóttir, Agnes Þóra Árnadóttir og Guðmundur Hafþórsson. Þáttarstjórnandi er Bent Marinósson.Í þættinum skiptumst við á skoðunum um lærdóm af árinu 2020 og hvað við tökum með okkur í 2021, við skoðum breyttar lífsvenjur, tómstundir, s
2021-01-10
50 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Skriðsund og kostir þess - Guðmundur Hafþórsson
Skriðsund er umræðuefni þessa þáttar. Guðmundur Hafþórsson yfirsundþjálfari sundfélagsins Ægis er mættur hér til að ræða við okkur um skriðsund frá mörgum vinklum.
2021-01-06
33 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Þorum að leita hjálpar - Guðmundur Hafþórsson
Í Podcastið er mættur til okkar Guðmundur Hafþórsson og ræðir við okkur um mikilvægi þess að rækta hið andlega ekki síður en hið líkamlega. Guðmundur ræðir hér m.a. áföll og sigra og ekki síst mikilvægi þess að hafa góða í kringum sig sem hjálpa manni upp þegar á reynir. Sjálfur háði hann baráttu við þunglyndi og var nærri barmi sjálfsvígs þegar góðir vinir og ættingjar komu honum til bjargar.
2020-11-21
56 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál 16 - Upplifun af eitruðu sambandi - Berglind Rúnarsdóttir
Gestur okkar í dag er Berglind Rúnarsdóttir og ræðir hún hér reynslu af eitruðu sambandi, (e. toxic sambandi). VIð förum um víðan völl í þessu samtali okkar og ræðum margar leiðir til úrlausnar sem og mikilvægi þess að vinna í sjálfum sér, setja mörk, vera meðvitaður um meðvirkni ofl.
2020-10-09
00 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Upplifun af eitruðu sambandi - Berglind Rúnarsdóttir
Gestur okkar í dag er Berglind Rúnarsdóttir og ræðir hún hér reynslu af eitruðu sambandi, (e. toxic sambandi). VIð förum um víðan völl í þessu samtali okkar og ræðum margar leiðir til úrlausnar sem og mikilvægi þess að vinna í sjálfum sér, setja mörk, vera meðvitaður um meðvirkni ofl.
2020-10-09
44 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál 14 - COVID-19 - áhrif á daglegt líf og viðbrögð samfélagsins almennt.
Mál málanna í dag er klárlega kórónuveiran ógurlega sem veldur sjúkdómnum COVID-19. Til að fjalla um COVID-19 í víðu samhengi eru komin saman hér þau Andrea Sigurðardóttir viðskiptafræðingur, Helgi Jóhannesson lögfræðingur en þau hafa bæði glímt við COVID-19 undanfarið. Auk þeirra er hér Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir í lyflækningum en hann er einmitt í COVID teyminu svokallaða og miðlar hér af reynslu sinni og þekkingu. Rætt er um COVID-19, áhrif á daglegt líf og viðbrögð samfélagsins almennt.
2020-04-05
43 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
COVID-19 - áhrif á daglegt líf og viðbrögð samfélagsins almennt.
Mál málanna í dag er klárlega kórónuveiran ógurlega sem veldur sjúkdómnum COVID-19. Til að fjalla um COVID-19 í víðu samhengi eru komin saman hér þau Andrea Sigurðardóttir viðskiptafræðingur, Helgi Jóhannesson lögfræðingur en þau hafa bæði glímt við COVID-19 undanfarið. Auk þeirra er hér Jón Magnús Jóhannesson sérnámslæknir í lyflækningum en hann er einmitt í COVID teyminu svokallaða og miðlar hér af reynslu sinni og þekkingu. Rætt er um COVID-19, áhrif á daglegt líf og viðbrögð samfélagsins almennt.
2020-04-05
43 min
IMS Podcast
Episode #2 - Seanie Ryan - MD @ Elive
Episode #2 - Seanie Ryan "Elive™ is a private, wholly Irish owned, independent Web Services company, set up in 1997, located in Limerick, Ireland Elive™ specialises in developing eCommerce and eBusiness Solutions for over 20 years. We cover all Web services from Domain Registration and Hosting, to Email Spam/Virus Scanning, Online Backups, Server Management and much more. In 2018 Elive purchased Design outfit PixelMedia, enabling us to provide Web and Print Design to our clients."
2020-03-13
31 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál 13 - Náðu slökun með réttri öndun & fríköfun - Birgir Skúlason
Viðmælandi okkar að þessu sinni er Birgir Skúlason, kafari og fríkafari. Með því að huga að önduninni getum við haft áhrif á mjög margt í okkar líkamsstarfssemi. Í þessum þætti ræðum við Birgir öndun í víðu samhengi og mikilvægi hennar þegar kemur að fríköfun og halda niðrí sér andanum undir vatni. Með ákveðnum öndurnaræfingum og hugarstjórn er hægt að ná góðum tökum á líkamsstarfseminni sem gerir vant fólk að ná að vera undir vatni í margar mínútur án þess að anda. Í þættinum fer Birgir meðal annars yfir æfingar sem hjálpa okkur í amstri dagsi...
2020-03-07
56 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Náðu slökun með réttri öndun & fríköfun - Birgir Skúlason

Björgvin Franz Gíslason leikari
Gestur okkar í dag er Björgvin Franz Gíslason, leikari. Hann hefur nýverið lokið tveimur stórkostlegum sýningum í Borgarleikhúsinu. Önnur sýningin nefnist Ellý en hún fjallar um líf Ellý Vilhjálms, þar sem Björgvin bregður sér í gervi Villa Vill og Ragga Bjarna. Þegar ég sá sýninguna hélt ég hreinlega að Björgvin væri bara að mæma Ragga því hann náði honum algjörlega! Hin leiksýningin er söngleikurinn Matthildur þar sem Björgvin leikur sadískan skólastjóra og fór þar einnig á kostum. Sýningin er mjög líkamlega krefjandi og fer Björ...
2020-02-03
1h 29
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál 13 - Björgvin Franz Gíslason leikari

Máttur hjartans - 7 skref til varanlegrar velsældar - Guðni Gunnarsson
Gestur okkar að þessu sinni er Guðni Gunnarsson en hann er stofnandi og upphafsmaður Rope Yoga og GlóMotion hugmyndafræðinnar. Guðni er einn af frumkvöðlum Íslands á sviði líkams- og heilsuræktar.Í þættinum förum við yfir sjö skref til varanlegrar velsældar og einnig nýútkomna bók Guðna, Mátt hjartans.
2019-12-13
52 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál 12 - Máttur hjartans - 7 skref til varanlegrar velsældar - Guðni Gunnarsson
2019-12-13
52 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál 11 - Góð samskipti - Theodór Francis Birgisson
Í þessum þætti ræðum við um hvað einkennir góð samskipti og hvernig getum við tileinkað okkur betri samskipti almennt og í samböndum við annað fólk, ekki síst í parsamböndum.Viðmælandi okkar að þessu sinni er Thedor Francis Birgisson klínískur félagsráðgjafi. Einn eigendum Lausnarinnar, fjölskyldu og áfallamiðstöðvar.Theodór er hafsjór fróðleiks. Hans sérsvið eru samskipti, hjóna- og sambandsmál, fjölskylduerfiðleikar, samskipti eftir skilnað, sorgarvinna, samskipti á vinnustað, kvíði og samskiptaörðugleikar.Virðing og hlustunÍ þættinum fer Theodór einnig yfir mikilvæg atriði í góðum...
2019-06-04
28 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Gott parsamband - Theodór Francis Birgisson
Í þessum þætti förum við yfir parsamband í víðu samhengi. Hvað er lykill að góðu parsambandi og heilbrigðum og góðum samskiptum við makann.
2019-04-26
30 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Góð samskipti - Theodór Francis Birgisson
Í þessum þætti ræðum við um hvað einkennir góð samskipti og hvernig getum við tileinkað okkur betri samskipti almennt og í samböndum við annað fólk, ekki síst í parsamböndum.Viðmælandi okkar að þessu sinni er Thedor Francis Birgisson klínískur félagsráðgjafi. Einn eigendum Lausnarinnar, fjölskyldu og áfallamiðstöðvar.Theodór er hafsjór fróðleiks. Hans sérsvið eru samskipti, hjóna- og sambandsmál, fjölskylduerfiðleikar, samskipti eftir skilnað, sorgarvinna, samskipti á vinnustað, kvíði og samskiptaörðugleikar.Virðing og hlustunÍ þættinum fer Theodór einnig yfir mikilvæg atriði í góðum...
2019-03-30
28 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Hvað viltu geta gert og af hverju? Guðbjörn Gunnarsson
Guðbjörn Gunnarsson einka- og markþjálfi fjallar hér um mörg mikilvæg atriði sem við þurfum öll að fá að heyra og tileinka okkur. Guðbjörn nefnir mikilvægi þess að framkvæma einskonar „ástandsskoðun“ þegar fólk kemur í þjálfun. Hún er nauðsynleg segir hann til margra hluta, ekki síst til að skoða hvað hefur virkað vel fyrir viðkomandi og hvað ekki. Einnig er hún mikilvæg til að hafa viðmið og það auðveldar yfirsýn og fylgjast með árangri.Guðbjörn hvetur fólk til að keppast frekar við mittismá...
2019-01-22
47 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál 10 - Hvað viltu geta gert og af hverju? Guðbjörn Gunnarsson
Guðbjörn Gunnarsson einka- og markþjálfi fjallar hér um mörg mikilvæg atriði sem við þurfum öll að fá að heyra og tileinka okkur. Guðbjörn nefnir mikilvægi þess að framkvæma einskonar „ástandsskoðun“ þegar fólk kemur í þjálfun. Hún er nauðsynleg segir hann til margra hluta, ekki síst til að skoða hvað hefur virkað vel fyrir viðkomandi og hvað ekki. Einnig er hún mikilvæg til að hafa viðmið og það auðveldar yfirsýn og fylgjast með árangri.Guðbjörn hvetur fólk til að keppast frekar við mittismá...
2019-01-22
47 min
Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
11 - Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ
Gestur þáttarins í dag er Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands. Ólafur er með masterpróf frá Englandi í skipulagi byggða og bæja og BA-próf í sögu- og jarðfræði frá Háskóla Íslands. Ólafur er fyrrverandi alþingismaður en hann sat á þingi frá árinu 1995-2003. Og Ólafur var einnig Þjóðgarðsvörður Þingvalla frá árinu 2010-2017.Ólafur hefur ferðast víða og stundað fjallamennsku vítt og breitt um heiminn og klifið mörg háfjöll m.a. Mont Blanc, Kilimanjaro og Aconcagua hæsta fjall Suður Ameríku.Ólafur er brautryðjandi í íslen...
2018-11-19
52 min
Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
10 - Næring á fjöllum
Umræðuefni þáttarins er næring á fjöllum. Viðmælendur eru Anna Sigríður Ólafsdóttir, Auður Elva Kjartansdóttir og John Snorri Sigurjónsson. Öll hafa þau mikla reynslu af næringu og tengingu næringar og árangurs á fjöllum. Í þættinum er farið máltíðir, skipulagningu og samsetningu máltíða, orkuþörk, vökvastjórnun ofl.
2018-10-15
1h 07
Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
09 - Jóhann Kári Ívarsson - Gekk reglulega 22km til að komast í sturtu
Gestur þáttarins er Jóhann Kári Ívarsson skálavörður í einum afskekktasta skála ferðafélagsins, Hrafntinnuskeri sem er í um 1.100m hæð. Jóhann hefur starfað sem skálavörður síðan 2012 þar af lengstum í Hrafntinnuskeri. Í viðtalinu förum við yfir lífið á hálendi Íslands með þeim ævintýrum og áskorunum sem því fylgir og þróun mála í Hrafntinnuskeri, til dæmis segir Jóhann frá því hvernig hann gekk reglulega um 22 kílómetra leið til að komast í sturtu. Jóhann er einnig einn af umsjónarmönnum Ferðafélags Unga fólksins og ferðast vítt og breitt um landið með unga fólki
2018-08-21
32 min
Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
08 - Halldór Hafdal Halldórsson - Vitavörður FÍ og lífið á fjöllum
Dóri er einn af þúsundþjalasmiðum Ferðafélags Íslands. Hann segir hér m.a. söguna um hvernig hann var hætt kominn þegar hann féll útbyrðis á sjó um hávetur og hvernig reiðhjólakaup á netinu opnuðu leið fyrir hann í vitavörslu í Hornbjargsvita.
2018-07-30
30 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál - Af hverju stunda stund ? Guðmundur Hafþórsson
Sund er meinhollt segir Guðmundur Hafþórsson íþróttafræðingur og sundþjálfari. Hann ræðir hér um heilsufarslegan ávinning af sundiðkun fyrir alla aldurshópa óháð þjálfunarástandi og fyrri afrekum.
2018-07-16
52 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Af hverju stunda stund ? Guðmundur Hafþórsson
Sund er meinhollt segir Guðmundur Hafþórsson íþróttafræðingur og sundþjálfari. Hann ræðir hér um heilsufarslegan ávinning af sundiðkun fyrir alla aldurshópa óháð þjálfunarástandi og fyrri afrekum.
2018-07-16
52 min
Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
07 - Sigrún Valbergsdóttir - Ferðanefnd og úrval ferða hjá F.Í.
Það finna allir eitthvað fyrir sig í ferðaáætlun FÍ. Úrval ferða er gífurlega mikið, allt frá léttum ferðum yfir í mjög krefjandi ferðir auk talsverðra nýjunga. Má þar meðal nefna fjallaskíðaferðir sem hafa verið kærkomin og vinsæl viðbót við úrval ferða FÍ
2018-07-12
34 min
Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
06 - Sigríður Lóa - Njótum ferðalagsins
Gestur þáttarins að þessu sinni er fararstjórinn og sálfræðingurinn Sigríður Lóa. Hún hvetur okkur að njóta ferðlagsins og gleyma ekki að gefa okkur tíma til að njóta augnabliksins. Sigríður Lóa minnir okkur einnig á mikilvægi hreyfingar í baráttunni gegn algengra lýðheilsusjúkdóma á borð við þunglyndi og kvíða.
2018-06-28
47 min
Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
05 - Páll Guðmundsson - Ferðafélag Íslands
Gestur þáttarins í dag er Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Ferðafélagið er áhugamannafélag með 8.000 félaga, með öfluga ferðáætlun árlega og rekur skála víðsvegar um hálendi Íslands.
2018-06-14
43 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál - Betri sjón og betri augnheilsa - Jóhannes Kári
Gestur okkar í dag er Jóhannes Kári Kristinsson augnlæknir. Hann fræðir okkur um leiðir til betri sjónar og augnheilsu.
2018-05-26
38 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Betri sjón og betri augnheilsa - Jóhannes Kári
Gestur okkar í dag er Jóhannes Kári Kristinsson augnlæknir. Hann fræðir okkur um leiðir til betri sjónar og augnheilsu.
2018-05-26
38 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Matjurtaræktun - Guðríður Helgadóttir
Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur er gestur okkar að þessu sinni. Hún gefur hér góð ráð varðandi matjurtaræktun og fer yfir þær tegundir sem við getum ræktað og hvernig er best að bera sig að.
2018-05-15
41 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál - Matjurtaræktun
Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur er gestur okkar að þessu sinni. Hún gefur hér góð ráð varðandi matjurtaræktun og fer yfir þær tegundir sem við getum ræktað og hvernig er best að bera sig að.
2018-05-15
41 min
Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
04 - Helgi Jóhannesson og Tómas Guðbjartsson - Fjallaskíði
Helgi Jóhannesson og Tómas Guðbjartsson eru miklir áhugamenn um fjallaskíðamennsku og settust niður með okkur og fræddu um þessa frábæru útivist sem fjallaskíðamennskan er.
2018-05-11
34 min
Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
03 - Hjalti Björnsson - Fjallavit, öryggi á fjöllum og umhverfið
Gestur okkar í dag er Hjalti Björnsson. Hann fer hér yfir þau mikilvægu grunnatriði sem fólk þarf að hafa í huga við útivist, hvað varðar eigið öryggi og annara og einnig hvernig er best að bera sig að við að koma sér af stað í göngu- og fjallamennsku.
2018-04-29
43 min
Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
02- Dalla og Matti - Ferðafélag barnanna
Hér er rætt við Döllu og Matta, umsjónarmenn Ferðafélags barnanna. Það sem gerir ferðir með ferðafélagi barnanna sérstakar eru að þær eru farnar á forsendum barnanna og sniðnar að þörfum þeirra.
2018-04-15
42 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál - Endómetríósis
Gestir þáttarins eru í dag eru þær Silja Ástþórsdóttir og Hafdís Einarsdóttir frá samtökum um endometríósu. Í spjalli okkar förum við yfir endómetríósis sjúkdóminn sem er talið að ein af hverjum tíu konum þjáist af. Við ræðum um sjúkdóminn vítt og breitt og einnig persónulega reynslu þeirra Silju og Hafdísar af honum.
2018-04-06
51 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Endómetríósis - Silja Aðalsteinsdóttir & Hafdís Einarsdóttir
Gestir þáttarins eru í dag eru þær Silja Ástþórsdóttir og Hafdís Einarsdóttir frá samtökum um endometríósu. Í spjalli okkar förum við yfir endómetríósis sjúkdóminn sem er talið að ein af hverjum tíu konum þjáist af. Við ræðum um sjúkdóminn vítt og breitt og einnig persónulega reynslu þeirra Silju og Hafdísar af honum.
2018-04-06
51 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Þór Breiðfjörð söngvari
Gestur þáttarins er stórsöngvarinn Þór Breiðfjörð. Í þessum þætti förum við yfir þau fjölmörg atriði sem söngvarar þurfa að hafa í huga til að ná árangri í sínu fagi. Við ræðum meðal annars hugarfar söngvarans, framkomu, sjálfstraust og heilsu almennt.
2018-03-26
45 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál - Þór Breiðfjörð söngvari
Gestur þáttarins er stórsöngvarinn Þór Breiðfjörð. Í þessum þætti förum við yfir þau fjölmörg atriði sem söngvarar þurfa að hafa í huga til að ná árangri í sínu fagi. Við ræðum meðal annars hugarfar söngvarans, framkomu, sjálfstraust og heilsu almennt.
2018-03-26
45 min
Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
01 - John Snorri Sigurjónsson - Ferðin á K2
John Snorri Sigurjónsson deilir hér með okkur reynslu sinni á K2 ásamt því gefa okkur innsýn inn í hugarheim heimsklassa háfjallamanns.
2018-03-22
1h 10
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Æskumál - Árni Guðmundsson
Í þessum þætti ræðir Bent Marinósson við Árna Guðmundsson sérfræðing í æskulýðsmálum. Æskan rætt í sinni víðustu mynd, við snertum marga fleti æskunnar sbr. sjálfsmynd ungmenna, samfélagsmiðla, tölvufíkn, myndum samfélaga ofl.
2018-03-17
51 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál 04 - Æskumál - Árni Guðmundsson
Í þessum þætti ræðir Bent Marinósson við Árna Guðmundsson sérfræðing í æskulýðsmálum. Æskan rætt í sinni víðustu mynd, við snertum marga fleti æskunnar sbr. sjálfsmynd ungmenna, samfélagsmiðla, tölvufíkn, myndum samfélaga ofl.
2018-03-17
51 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Ferðafélag Íslands - Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri
Hér er rætt við Pál Guðmundsson framkvæmdastjóra Ferðafélags Íslands.
2015-06-09
47 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál 03 - Ferðafélag Íslands
Hér er rætt við Pál Guðmundsson framkvæmdastjóra Ferðafélags Íslands.
2015-06-09
47 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumal 02 - Mindfulness - Æfing
Ásdís Olsen er helsti sérfræðingur landsins í Mindfulness, sem er hagnýt aðferði til auka núvitund, vellíðan og persónulega hæfni í lífi og starfi.
2015-06-02
12 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Mindfulness - Æfing - Ásdís Olsen
Ásdís Olsen er einn helsti sérfræðingur landsins í Mindfulness, sem er hagnýt aðferði til auka núvitund, vellíðan og persónulega hæfni í lífi og starfi.
2015-06-02
12 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumál 02 - Mindfulness
Ásdís Olsen er helsti sérfræðingur landsins í Mindfulness, sem er hagnýt aðferði til auka núvitund, vellíðan og persónulega hæfni í lífi og starfi.
2015-06-02
19 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Mindfulness - Ásdís Olsen
Ásdís Olsen er einn helsti sérfræðingur landsins í Mindfulness, sem er hagnýt aðferði til auka núvitund, vellíðan og persónulega hæfni í lífi og starfi.
2015-06-02
19 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Heilsumal 01 - Kaloriur
Hrafnhildur Stephensen næringarfræðingur og Bent Marinósson ræða hér um kaloríur.
2015-05-26
10 min
Heilsumál - hlaðvarp um heilsu og vellíðan.
Hvað eru kaloríur ?
Hrafnhildur Stephensen næringarfræðingur og Bent Marinósson ræða hér um kaloríur.
2015-05-26
10 min
Seacoast Business Connections
SBC – Surfs Up with Entrepreneur Tyler McGill from Summer Sessions
Co-host Erik from PixelMedia bring is Tyler McGill to talk about turning passion and lifestyle into business. Tyler talks about working through the hard beginning of open a business and the rewards of sicking with it. Erik and TJ dig into how Tyler and his brother went from opening a humble surf shop to being
2014-04-29
00 min