podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Sigur�ur Orri
Shows
Karfan
Sjötti maðurinn X Frikkibeast: Langþráður sigur Álftnesinga, Valsarar komnir á skrið, ólseigir Njarðvíkingar og gestagangur
Það var gestagangur hjá Sjötta manninum í dag en þeir fengu í heimsókn hinn eina sanna Friðrik Heiðar betur þekktan sem Frikka Beast. Farið er vel yfir Bónus deild karla í bland við fasta liði. Einnig er bikarkeppnin rædd stuttlega og margt, margt, margt fleira.Stjórnendur: Mikael Máni Hrafnsson, Eyþór Orri Árnason og Ögmundur Árni Sveinsson.Sjötti maðurinn er í boði Bónus, Tactica, Lengjunnar, Kristalls og Lykils
2024-10-27
1h 00
Árið er
Árið er 2013 - annar hluti
Hljómsveitin Kaleo slær í gegn, Sin Fang túlkar bergmál sumarsins, Lay Low talar um veðrið en Grísalappalísa spyr hver er ég? Vök vinnur Músíktilraunir, hljómsveitin 1860 rafmagnast, Samaris syngur um tunglið góða en Sigur Rós hangir á bláþræði á ísjaka og semur tónlist fyrir The Simpsons. Ólafur Arnalds vinnur Bafta-verðlaun og heldur yfir 100 tónleika á erlendri grundu, súpergrúppan Drangar gefur út plötu og Áhöfnin á Húna fer hringinn í kringum landið en Ólöf Arnalds býr til tónlist í sumarbústað í Hvalfirði. Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og...
2024-07-03
1h 44
Árið er
Árið er 2012 - þriðji hluti
Moses Hightower tekur stutt skref og fer upp á háa C, Memfísmafían sötrar síðasta móhítóinn um blánótt á Kúbu og Formaður Dagsbrúnar ummyndast í Tilbury. Sigur Rós breytist úr kvartett í tríó, Múgsefjun fær ekki nóg, Magni er á heimaslóðum, Egill Ólafsson kynnir Finnsk íslenska vetrarbandalagið og Dimma fremur myrkraverk. Of Monsters & Men slær í gegn í útlöndum, Magnús og Jónas gæta hugsana sinna og Ghostigital svífur inn í draumalandið með David Byrne. Ásgeir Trausti og Blaz Roca heilla dömurnar með derhúfu og hvítum skóm, Borko er frjálsborinn maður, og...
2024-06-01
1h 48
Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn - Besta, Lengjan og Arne Slot skýrsla
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 4. maí. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór. Farið yfir komandi umferð í Bestu deildinni og skoðað hvernig Lengjudeildin fer af stað. Sölvi Haraldsson ÍR-ingur er á línunni eftir óvæntan sigur Breiðhyltinga í Keflavík. Kristján Atli Ragnarsson, sérfræðingur um Liverpool, kemur og fer yfir hverju megi búast frá Arne Slot sem tekur að öllum líkindum við stjórnartaumunum á Anfield í sumar. Einnig er rætt um titilbaráttuna sem er í fullum gangi. Orri á X-inu er í beinni frá Kaplakrika og opinberar val á úrvalsliði FH.
2024-05-04
00 min
Árið er
Árið er 2011 - fyrsti hluti
Of Monsters & Men gerir það gott með sinni fyrstu plötu, Samaris ber sigur úr býtum Músíktilraunum og Jón Jónsson syngur sig inn í hug og hjarta íslensku þjóðarsálarinnar. Snorri Helgason heillast af vetrarsólinni, Hjálmar rafvæðast, Ragnheiður Gröndal nær áttum og Toggi flettir í dagbókinni þinni. Páll Óskar kveður Háskólabíó og heilsar Hörpu með Sinfóníuhljómsveit Íslands en dúettinn Eldar er dropi í hafi í fjarlægri nálægð Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar...
2024-05-01
1h 46
Árið er
Árið er 2008 - þriðji hluti
Sigur Rós spilar endalaust, Dísa fellur í freistni, Jeff Who óskar okkur öllum til hamingju og Buff þakkar kærlega fyrir. Lay Low gefur út aðra plötu sína, Bubbi syngur um brúnu augun þín, Memfismafían tekur upp barnaplötu og Sprengjuhöllin sendir sínar bestu kveðjur. Blaz Roca rappar um stórasta land í heimi, Þokkabót syngur um tóma kassa en Ghostigital leitar að peningunum sínum á meðan Litla hafmeyjan lætur gamminn gjósa. Meðal viðmælenda í 37. þættinum, í þriðja hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2008, eru Jón Þór Birgisson, Georg Holm...
2024-03-01
1h 50
Lestin
Von sem varð að ágætis byrjun, Kvæðakórinn, misheppnaðar bíóferðir
Linus Orri Gunnarsson Cederborg er kórstjóri og einn stofnenda Kvæðakórsins. Kórinn samanstendur af ungu fólki sem hefur metnað fyrir því að setja íslenskan kvæðasöng í samhengi við samtímann. Pálmi Freyr Hauksson setti sér eitt markmið á ferðalagi sínu um Norður-Afríku: að fara í bíó og sjá nýjustu kvikmynd gríska leikstjórans Yorgos Lanthimos, myndina Poor Things með Emmu Stone í aðalhlutverki. Þetta hefur ekki gengið sem skyldi. Blaðamaðurinn og nú rithöfundurinn Svanur Már Snorrason hefur nýlokið við skrif bókarinnar …það besta sem guð hefur skapað… Von sem varð að Ágætis b...
2024-02-26
57 min
Árið er
Árið er 2002 - fyrri hluti
Helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist eru til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu. Sigur Rós syngur á vonlensku og Mugison fæðist sem söngvari á karaókíbar í Malasíu. Írafársrússíbaninn þýtur áfram, Sálin treður upp með Melabandinu og Urður gengur í Gus Gus. Vandræðaunglingurinn Þórunn Antónía lýkur þriggja ára tónlistarnámi hjá föður sínum, Magnúsi Þór Sigmundssyni. Útrás Leaves fær fljúgandi start, Fídel gefur út plötu og geispar golunni en Land og synir fá Happy Endings. Orri Harðar fellir tár, Brain Police finnur Jenna og Buff fi...
2023-11-01
1h 50
Fotbolti.net
Enski boltinn - Sálfræðihernaður, titilbaráttan og bless Stellini
Útvarpsmaðurinn Orri Freyr Rúnarsson er gestur í Enski boltinn í dag en það er nóg að ræða að venju. Manchester United og Manchester City mætast í úrslitum enska bikarsins en undanúrslitin voru spiluð í gær. United hafði betur gegn Brighton í gær þar sem David de Gea og Wout Weghorst spiluðu stórt hlutverk í vítaspyrnukeppninni. Þá var einnig leikið í ensku úrvalsdeildinni um helgina þar sem mikla athygli vakti að Newcastle vann 6-1 sigur á Tottenham. Búið er að reka Christian Stellini sem stýrði Spurs í þeim leik. Arsenal gerði þá óvænt jafntefli við Southampton en liðið er enn með þetta í sínum hö...
2023-04-24
00 min
Handkastið
HM Handkastið x BLE x Smassbræður
Strákarnir í Boltinn lýgur ekki og Smassbræðrum, Gunnar Birgisson, Sigurður Orri Kristjánsson og Tómas Steindórsson kíktu í fuglabúrið til Sérfræðingsins og fóru yfir sigur Strákanna okkar gegn Suður-Kóreu. Gunnar Birgisson fór yfir stöðuna í öðrum riðlum. Í þættinum var farið yfir þá leikmenn sem hafa verið bestir í íslenska liðinu hingað til á mótinu og þá leikmenn sem hafa valdið mestu vonbrigðum.
2023-01-16
1h 12
Endalínan
144. Þáttur - Eitt skot til eða frá (Úrslit - Leikdagur 1) Feat. Valur Orri Valsson
Kæru hlustendur! Endalínan heilsar ykkur af Víkingsvelli, en WhiteFoxstofann fékk frí þessa vikuna þar sem meistarinn fór í verðskuldað frí eftir að hafa landað íslandsmeistaratitli kvenna ásamt stelpunum sínum úr Njarðvík. Til hamingju Rúnar, stelpur og allir Njarðvíkingar! Endalínan fékk að láni annann leikstjórnanda til að taka við hlutverki Rúnars og Valur Orri Valsson kom og fór yfir fyrsta leik í lokaúrslitum. Hvað skóp sigur Vals? Hvað þurfa Stólarnir að gera til að ná næsta? Hvernig tengja Stóla...
2022-05-07
1h 11
Vrije geluiden op NPO Klassiek
David Lang
Nieuwe CD's (van het 12 Ensemble bijvoorbeeld) en concerttips (David Lang en meer door Cappella Amsterdam bijvoorbeeld). 23:05 CD Death and the Maiden (Sancho Panza 31 januari 2020) Georg Holm, Jon Thor Birgisson, Kjartan Sveinsson & Orri Pall Dyrason: Fljótavík 12 Ensemble 4’12” 23.10 CD Death and the Maiden (Sancho Panza 31 januari 2020) John Tavener: The Lamb 12 Ensemble 3’53” 23.15 eigen opname NTR David Lang: Again Cappella Amsterdam olv Daniel Reuss Opnamedatum: 28 September 2018 5'48" 23.24 CD Reports from the Low Country (Channel Classics CCS 39619) Hans Kox: Four Studies vo...
2020-02-08
53 min
Fotbolti.net
Pepsi Max umfjöllun - Leikur sem FH hefði ekki unnið í fyrra
Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977. Elvar Geir og Tómas Þór skoðuðu fyrstu þrjá umferðir þriðju umferðar Pepsi Max-deildarinnar. Glæsimark Hilmars Árna Halldórssonar tryggði Stjörnunni sigur gegn HK, Blikar voru betri en Víkingar og FH vann 3-2 sigur gegn KA í...
2019-05-11
25 min
Fotbolti.net
Útvarpsþátturinn 19. janúar - Orri gestur
Upptaka af útvarpsþættinum Fótbolti.net 19. janúar. Elvar Geir Magnússon var einn í hljóðverinu að þessu sinni en hann hringdi í Tómas Þór Þórðarson sem er í Þýskalandi að fylgjast með strákunum okkar í handboltalandsliðinu. Enski boltinn var til umfjöllunar og...
2019-01-19
25 min
Fotbolti.net
HM uppgjör 2018 - Sportrásin
Sportrásin er á Rás 2 á sunnudagskvöldum en umsjónarmaður er Orri Freyr Rúnarsson. Í nýjasta þættinum var HM í Rússlandi gert upp en með Orra voru Elvar Geir Magnússon, ritstjóri Fótbolta.net, og Benedikt Bóas Hinriksson, blaðamaður á Fréttablaðinu. Rætt var um sigur Frakklands gegn Króatíu í úrslitaleiknum í Moskvu og sérstök verðlaunaafhending var sett upp fyrir mótið í heild sinni.
2018-07-16
25 min