Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Silja Ulfars

Shows

Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsErla Björnsdóttir - Betri SvefnEin besta recovery aðferð íþróttafólks er svefn, Dr. Erla Björnsdóttir kom í Klefann og fræddi okkur meira um það. Erla er stofnandi og framkvæmdagstór Betri Svefns, hún er sálfræðingur, doktor í líf- og læknavísindum og með sérþekkingu á hugrænni atferlismeðferð við svefnleysi. Erla ræddi svefnvenjur, áhrif svefns á heilsuna, hvað er gott svefn umhverfi og sagði okkur hvers vegna svefn er mikilvægur fyrir íþróttafólk. Hvað áttu að gera ef þú ert andvaka eða átt erfitt með að vakna á morgnanna. Þá ræðir hún mataræði, orkudrykki...2025-06-1043 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsHreiðar Haraldsson - HugarþjálfariHreiðar hjá Haus Hugarþjálfun aðstoðar íþróttafólk, foreldra og þjálfara að byggja upp hugarfarslega þætti eins og sjálfstraust, einbeitingu og liðsheild. Hugarþjálfun er eitthvað sem íþróttafólk ætti að skoða. Hreiðar ræðir þægindahringinn og hvernig við stækkum hann, hvernig við eigum að fókusa á það sem við stjórnum, hvernig hugrekki skiptir máli, þá fer hann yfir kvíða, stress og segir frá sinni nálgun í  markmiðasetningu með íþróttafólki.Hvetjum þig til að hlusta. Frekari upplýsingar finnur þú á Haus.is.Samstarfsaðilar Klefans...2025-06-031h 28Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsBaldur Þór Ragnarsson – Körfuboltaþjálfari og ÍslandsmeistariNýkrýndur þjálfari Íslandsmeistari karla í Körfubolta mætti í Klefann og fór víða, Baldur fór yfir þjálfaraferilinn, þjálfun, styrktarþjálfun körfuboltafólks, hugarfarið og hans þjálfara speki. Hvernig hann skapar liðsheildina, teymið í kringum liðið, traust milli þjálfara og leikmanna, hlutverk þeirra, foreldravandamál og margt fleira. Þá fór hann með okkur yfir úrslitarimmuna og hvernig hann skoðaði leikina og lagði áherslur á. Hann sagði okkur hvernig hann nýtti umfjöllunina til að búa til sviðsmynd fyrir leikmenn þar sem þeir voru "underdogs" í þessu Playoffs.2025-05-271h 38Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsBirgir Sverrisson - Framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits ÍslandsBirgir Sverrisson framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands er sestur hjá mér og við ætlum að ræða lyfjamál. Á heimasíðu Lyfjaeftirlitsins stendur að hlutverk þeirra sé fyrst og fremst að vernda hreint íþróttafólk og standa vörð um að íþróttir séu iðkaðar á jafnréttisgrundvelli. LyfjaprófBannlistarADHD lyfFæðubótaefniog margt fleiraÞá er einnig farið inn á hagræðingu úrslita og veðmál sem það tengist heilindum í íþróttum eins og lyfjamálin. Þetta er klárlega þáttur sem íþróttafólk og/eða foreldrar ættu að hlusta á og hafa á hreinu.Samstarfsaðilar Klefans...2025-05-201h 10Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsDavíð Snorri Jónasson - aðstoðarþjálfari A landsliðs karla - KSÍDavíð Snorri Jónasson aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla kom í Klefann og ræddi starfsemi KSÍ og hugmyndafræði þeirra varðandi uppbyggingu leikmanna frá unga aldri upp í atvinnumennsku.Davíð hefur starfað sem þjálfari hjá Leikni, allt frá yngri flokkum upp í meistaraflokk. Þá hefur Davíð þjálfað yngri landslið Íslands og er nú aðstoðarþjálfari A-landsliðsins, en hann er með KSÍ Pro gráðuna sem gerir honum kleift að þjálfa á efsta stigi.Davíð ræðir þróunina sem hefur verið hjá KSÍ síðustu ár, hvernig Lars Lagerback og Heimir Hallgríms lögðu grunninn að hugmyndafræð...2025-05-131h 31Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsÓlafur Loftsson - Afreksstjóri GSÍÓlafur Björn Loftsson er afreksstjóri Golfsambands Íslands og einn reyndasti kylfingur landsins. Ólafur á að baki glæsilegan feril sem landsliðskylfingur, þá var hann Íslandsmeistari í golfi og fyrsti Íslendingurinn til að keppa á PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum. Hann hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri PGA á Íslandi.Í spjallinu fer hann yfir:Vegferð sína sem afrekskylfings, reynslu hans á bandaríska háskólakerfinu og hvernig hann aðstoðar ungt afreksfólk við að komast í skóla með golfstyrk.Hlutverk PGA á Íslandi og þróun golfíþróttarinnar hér heima.Starf hans sem afreksstjóri GSÍ, markmið sambandsins og verkefni á sviði af...2025-05-061h 31Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsJimmy Ekstedt - fyrrum landsliðsstjóri sænska fimleikasambandsinsJimmy Ekstedt er Svíi með sterkar tengingar við Ísland, hann þjálfar hér á landi og er giftur íslenskri konu og saman eiga þau tvær stúlkur. Þegar þátturinn var tekinn var hann landsliðsstjóri sænska fimleikasambandsins en hefur nú sagt upp störfum þar og tekið að sér verkefni á Íslandi.Þótt Jimmy komi úr fimleikunum þá hefur hann þjálfað íþróttafólk úr öllum íþróttum, þátturinn er því fyrir fólk sem hefur áhuga á íþróttum unglinga og afreksfólks! Jimmy ræðir þjálfarahlutverkið, hvað gerir góðan þjálfara og mikilvægi þess að skapa jákvætt umhverfi fyrir íþróttaf...2025-04-291h 19Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsGestur Pálmason - StjórnendaþjálfariGestur Pálma hefur komið víða við, hann er meðal annars fyrrum sérsveitarmaður og segir okkur frá því ferli. Í dag starfar hann sem stjórnenda þjálfari hjá Complete og sagði okkur frá áhugaverði nálgun stjórnenda.Gestur hefur unnið með mikið af íþróttafólki og þá hefur hann aðstoðað hlaupara í bakgarðinum og ræðir sumar áskoranir þeirra.Gestur ræðir leiðtoga og hvernig þú færð liðið til að vinna vel saman og svo er hann að vinna með Formúlu 1 liði og segir okkur aðeins frá því.  Streita, starte...2025-04-151h 29Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsPerla Ruth Albertsdóttir - Landsliðskona í handboltaPerla Ruth Albertsdóttir er landsliðskona í handbolta, hún mætti á sína fyrstu handboltaæfingu 17 ára og segir okkur frá því þegar hún byrjaði, hvernig hún æfði með yngri flokkum til að fá verkefni við hæfi og eyddi mörgum kvöldum að henda bolta í vegg til að læra grunnatriðin. Perla segir frá vegferð sinni í landsliðið eftir að hafa byrjað frekar seint í handbolta, en hún á 157 leiki með íslenska landsliðinu og hefur skorað í þeim 138 mörk. Í gær tilkynnti hún að hún væri ólétt af sínu öðru barni og keppir því ekki með íslenska...2025-04-0850 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsPétur Rúnar Heimisson - Markaðsmál íþróttafélagaPétur Rúnar Heimisson er markaðs- og þjónustustjóri hjá fasteignafélaginu Heimum.Pétur hvetur íþróttafélög til að leggja meira áherslu á markaðsmál því það muni skila sér á endanum til félagsins. Núna er úrslitakeppnin hafin í handbolta og körfubolta og knattspyrnu tímabilið að hefjast, hvað eru íþróttafélögin að gera á samfélagsmiðlum.  "Vörumerki íþróttafélaga eru með þeim verðmætustu á Íslandi. Á sama tíma er markaðsstarfi þeirra stýrt af sjálfboðaliðum."Farið víðan völl í þættinum- Vörumerki- Hugverkastofa og...2025-04-041h 15Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsSigrún Haraldsdóttir - Happy Hips og bandvefslosunSigrún Haraldsdóttir er eigandi Happy Hips, sem er æfingakerfi þar sem hún blandar saman bandvefsnudd, hreyfiflæði, teygjur og slökun til að fá sem mest út úr líkamanum. Hún mætti með Beinu með sér og við skoðuðum líkamann og hvernig við getum látið hann vinna með okkur. Sigrún fór yfir margt í þættinum eins og: Hvernig við rúllum okkur og hvað gerist í líkamanumHvernig bolta viljum við frekar og af hverjuHvenær á ungt fólk að byrja að rúlla sigHvað er bandvefur (spiderman gallinn) og h...2025-03-041h 32Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsViran Morros - retired Spanish handball playerViran Morros þykir einn besti varnarmaðurinn í handbolta síðustu 20 ára. Viran er spænskur 41 árs retired handboltamaður sem lék meðal annars með Barcelona Ciudad Real, Paris saint-germain, Fuchse Berlin og fleirum. Viran á bronz frá Ólympíuleikunum, þrjár medalíur frá Heimsmeistaramótinu og fjórar frá Evrópumeistaramótinu, þá hefur hann þrisvar sinnum unnið Meistaradeild Evrópu með Barcelona. Viran hefur meðal annars spilað með Ólafi Stefáns, Guðjóni Val, Aroni Pálmars og Sigfúsi Sigurðssyni og hann talar um þá reglulega í þættinum. Talant Dujshebaev þjálfari kom til tals og í lokin þá má heyra hljóðskilaboð frá...2025-02-251h 55Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsKristinn Jónasson - Skattamál íþróttafélaga og körfuboltiKristinn Jónasson er lögmaður og eigandi hjá KPMG Law. Kristinn er einnig formaður körfuboltans í Haukum, en sjálfur lék hann með Haukum lengi. Þá er hann einnig einn af stofnendum körfuboltaliðs Hauka Special Olympics liðsins. Undanfarið hefur verið rætt um skattalegt regluverk í tengslu m við íþróttafélög, sem er mikið áhyggjuefni innan íþróttahreyfingarinnar. Kristinn skrifaði grein "Íþrótta­hreyfingin glímir við skatt­yfir­völd" og hélt fyrirlestur um viðfangsefnið. Þetta snertir íþróttalífið í landinu svo hann kom og ræddi skattamálin í Klefanum. Launþegar vs. verktakar...2025-02-181h 26Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsUnnar Helgason - OsteopatiUnnar Helgason er Osteopati og þjálfari, hann segir okkur frá samvinnu hans og Gunnars Nelsons sem á nú bardaga í mars. Þá vinnur hann með Eygló Fanndal sem keppir í Ólympískum lyftingum og hefur komið einmitt í Klefann. Þá hefur hann einnig unnið með fólki frá Hollywood þegar þau eru í tökum hér á landi og segir okkur aðeins frá því. Unnar fer yfir ýmislegt tengt líkamanum, axlaræfingar, mjaðmir, kálfar og fleira. Þá segir hann okkur hvað Osteopadia er og hvað hann gerir með sínum kúnnum. Þá ræðir hann einnig hvernig þú þjálfar elite íþróttafólk, static teygjur, hreyfiteygjur...2025-02-111h 36Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsKarólína Lea Vilhjálmsdóttir - Landsliðskona í knattspyrnuKarólína Lea Vilhjálmsdóttir 23 ára er leikmaður leikmaður Bayer Leverkusen í þýsku úrvalsdeildinni, en er á láni frá Bayern Munich. Karólína er ein af lykil leikmönnum íslenska kvennalandsliðsins, hún hefur leikið um 50 leiki með landsliðinu og ræðir EM sem fer fram í Sviss í sumar og stemmninguna í landsliðinu.  Karólína fer yfir ferilinn og leiðina að atvinnumannaferlinum í Þýskalandi, hvernig gekk að aðlagast og hvernig æfingavikurnar eru uppsettar. Hún ræðir mótlæti og að það geti verið krefjandi þegar spilað er kerfi sem hentar ekki þínum leikstíl. Karólína sva...2025-02-041h 04Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsDr. Birna Varðardóttir - REDs - Orkuskortur í íþróttumDr. Birna Varðardóttir hefur síðustu 10 ár verið að mennta sig í því sem tengist næringu og þjálfun, þá hefur hún mikið verið að skoða hlutfallslegan orkuskort í íþróttum, eða það sem við köllum REDs (Relative Energy Deficiency in sport). Á sínum tíma glímdi Birna við átröskun og þar af leiðandi langaði hana að skilja betur hvað gerðist í líkamanum og hvers vegna. Birna gerði doktorsverkefnið sitt um REDs og fer aðeins yfir niðurstöðurnar ásamt því að ræða um átröskun, endurheimt, næringu og fleira. Sa...2025-01-211h 01Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsRemix: Aron Pálmars & Logi GeirsBæði Logi Geirs og Aron Pálma hafa kíkt í Klefann og rætt sinn feril, margt svipað með þeim og greinilegt að Logi hafði allskonar áhrif á Aron. Það er fyndið að bera saman sumar sögurnar þeirra, hér eru einhverjar sögurnar klipptar saman.Hlustaðu hér á Loga Geirsson.Hlustaðu hér á Aron Pálmarsson.Nú eru þeir í sviðsljósinu á HM á sitthvorum vettvangnum og þá er gaman að rifja upp eitt og annað. Ég hef nú ekki áður tekið svona saman, en væri gaman að heyra hvort þið hafið gaman af - sendu mér endilega skilaboð...2025-01-1921 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsAron Pálmarsson - LandsliðsfyrirliðiAron Pálmarsson einn besti handboltamaður Íslands og jafnvel einn sá besti í heimi. Aron hefur leikið með mörgum af bestu liðum heims eins og Kiel, Veszprém, Barcelona, Álaborg og FH. Aron hefur unnið marga af helstu titlum í Evrópu, verið íþróttamaður ársins, rookie of the year í Þýskalandi, valinn í All Star Team á Ólympíuleikunum, MVP í Championship league og fleira. Aron fer yfir ferilinn, segir okkur sögur frá hverjum stað, eins og þegar öfuga jólatréð mætti til Kiel og að það borgi sig ekki að stanga Alfreð Gíslason. Einnig segir hann frá vandræðunum hjá Veszpr...2025-01-141h 42Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsElísabet Gunnarsdóttir - KnattspyrnuþjálfariElísabet hefur verið aðalþjálfari knattspyrnuliðs í 30 ár, í 15 ár stýrði hún liði Kristianstads í sænsku úrvalsdeildinni með frábærum árangri. Hún hefur tvisvar sinnum verið útnefndur þjálfari ársins hjá sænsku úrvalsdeildinni og hefur meðal annars hlotið Fálkaorðuna fyrir sín störf í þágu kvenna knattspyrnu. 2023 hætti hún hjá Kristianstad til að róa á önnur mið og við bíðum spennt að sjá hvað hún tekur sér fyrir hendur. Elísabet segir frá sínum fyrstu skrefum sem þjálfari, ræðir liðin og áskoranirnar sem hún hefur upplifað, og hvað h...2025-01-071h 36Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsEygló Fanndal Sturludóttir - Ólympískar lyftingarEygló Fanndal Sturludóttir er 23 ára læknanemi og ein sú besta í Ólympískum Lyftingum í -71 kg flokki. Í ár hefur Eygló sannað sig sem eitt af framtíðarstjörnum í Ólympískum lyftingum, hún varð Norðurlandameistari, Íslandsmeistari, Evrópumeistari U23 og í 4rða sæti á Heimsmeistaramótinu núna í desember. Þá var hún hársbreidd frá því að komast inn á Ólympíuleikana og ræðir um áætlanir hennar fram að 2028 Ólympíuleikunum. Í Ólympískum lyftingum er keppt í Snörun og Jafnhendingu (clean & jerk), en keppt er í samanlögðum árangri í þessum greinum. Í þættinum ræðir hún hvernig æfingavikan er sett upp, tæknin sem þarf að huga að og fl...2024-12-301h 01Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsGuðbjörg Gunnarsdóttir - Markmannsþjálfari sænska knattspyrnusambandsinsGuðbjörg Gunnarsdóttir er fyrrum markvörður sem lék með öllum yngri landsliðum Íslands ásamt A landsliði Íslands, yfir 100 landsleiki. Þá var hún atvinnukona frá 2009-2022 þar sem hún spilaði með 6 erlendum liðum í Svíþjóð, Noregi og Þýskalandi.Í dag starfar hún sem markmannsþjálfari hjá yngri landsliðum sænska knattspyrnusambandsins, ásamt því að halda í fyrirlestra fyrir sænska sambandið sem snúast um markmannsþjálfun, þróun markvarða og hvernig best er að leggja upp æfingar fyrir markmenn. Þá sér hún einning um gæðastjórnun í menntun markvarðarþjálfara hjá Knatts...2024-12-231h 21Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsSnorri Steinn Guðjónsson - Landsliðsþjálfari og fyrrum leikmaðurSnorri Steinn Guðjónsson er landsliðsþjálfari íslenska karla landsliðsins í handbolta sem undirbýr sig nú fyrir Heimsmeistaramótið sem fer fram í janúar. Snorri Steinn spilaði 257 leiki fyrir íslenska landsliðið, þá var hann einnig atvinnumaður í Danmörku, Þýskalandi og Frakklandi. Snorri ræðir landsliðsþjálfara starfið, aðdraganda Heimsmeistaramótsins og hvernig rútínan þeirra er úti. Snorri ræðir ferilinn, silfurverðlaunin og deilir reynslu sinni af mótlæti, meðal annars að klikka á mikilvægu víti á Ólympíuleikunum.Þá fengum við spurningar frá ungu íþróttafólki sem Snorri vandaði sig að svara...2024-12-171h 33Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsXJ - Arnar Páll GunnlaugssonArnar Páll Gunnlaugsson frá Sósíalistaflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína:4:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 13:05 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi18:15 - Brottfall og stytting menntaskóla24:10 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn25:50 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@meistariarnar@siljaulfars@sosialistaflokkurinn2024-11-1429 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsXB - Ásmundur Einar DaðasonÁsmundur Einar Daðason frá Framsókn kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: (Ásmundur snertir þessi atriði út um allt í þættinum en tímalínan er gróf).15:55 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 33:45 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi40:15 - Brottfall og stytting menntaskóla48:42 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn58:35 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@asmundureinar@siljaulfars2024-11-141h 03Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsXS - Hannes S. JónssonHannes S. Jónsson frá Samfylkingunni kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína:12:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 31:45 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi37:37 - Brottfall og stytting menntaskóla45:30 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn50:50 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@hannes_sigurbjorn@siljaulfars@xs_samfylkingin2024-11-131h 00Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsXP - Theodór Ingi ÓlafssonTheodór Ingi Ólafsson frá Pírötum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína:8:25 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 17:10 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi21:25 - Brottfall og stytting menntaskóla26:20 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn28:05 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@teddilebig@siljaulfars@piratar2024-11-1333 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsXV - Bjarki HjörleifssonBjarki Hjörleifsson frá Vinstri Grænum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína:  5:10 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 14:20 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi23:40 - Brottfall og stytting menntaskóla31:14 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn35:52 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@bjarkihj@siljaulfars@vinstrigraen2024-11-1241 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsXC - Hanna Katrín FriðrikssonHanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Hér má sjá stefnu Viðreisnar um Íþróttir og tómstundir. Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína: 7:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 23:45 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi29:25 - Brottfall og stytting menntaskóla37:50 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn40:35 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@hannakatrinfridriks@siljaulfars2024-11-1245 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsXD - Áslaug Arna SigurbjörnsdóttirÁslaug Arna Sigurbjörnsdóttir frá Sjálfstæðisflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína:  5:50 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 17:40 - þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi25:45 - Brottfall og stytting menntaskóla32:00 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn34:20 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@aslaugarna@siljaulfars@sjalfstaedis2024-11-1141 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsXM - Anton Sveinn McKeeAnton Sveinn McKee frá Miðflokknum kom í Klefann til að ræða íþróttatengd málefni og framtíð íþrótta á Íslandi.Þátturinn er í boði: Auður, Hafið fiskverslun, Lemon og Nutrilenk. Tímalína:8:00 - Fjármagn til íþróttahreyfingarinnar 20:30 - Þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi25:00 - Brottfall og stytting menntaskóla27:50 - Þjóðarhöllin og Þjóðarleikvangurinn29:30 - Veðmálastarfsemi á ÍslandiÞú finnur okkur á Instagram:@klefinn.is@antonmckee@siljaulfars@midflokkurinn2024-11-1135 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsMargrét Lára - Hvernig seturðu þér markmið?Margrét Lára starfar sem sálfræðingur og leggur áherslu á markmiðasetningu sem hún vinnur oft með íþróttafólki sínu. Í þættinum fer Margrét Lára yfir aðferðir sem hún notar í markmiðasetningu með fólkinu sem hún vinnur með. Markmiðasetning snýst ekki bara um að ná árangri, heldur eykur það einnig sjálfstraustið, er ákveðin streituþjálfun og getur aðsoðað með frammistöðukvíða. Það er mikilvægt að skrifa niður markmiðið og endurskoða þau reglulega. Markmiðasetning hefur víðtæk áhrif á íþróttafólk, á jákvæðan hátt, þá er gott...2024-10-3139 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsMargrét Lára Viðarsdóttir - Knattspyrnulegend og sálfræðingurMargrét Lára Viðarsdóttir kíkti í Klefann og fór yfir ferilinn, en hún er ein af farsælustu knattspyrnukonum Íslands, hún starfar í dag sem sálfræðingur við Heil Heilsumiðstöð sem hún rekur ásamt fjölskyldu sinni. Margrét Lára fer yfir ferilinn sinn sem hófst hjá ÍBV, hún fer aðeins yfir liðin sín, lærdóminn og meiðslin sem höfðu mikil áhrif á hana. Margrét lék með öllum landsliðum Íslands á sama tíma, en í dag myndi hún gera þetta öðruvísi. Þá segir hún frá upplifuni...2024-10-291h 43Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsErlingur Richardsson - handboltaþjálfariÍ þessum þætti ræðum við við Erling Richardsson íþróttafræðing og handboltaþjálfara Austuríska liðsins Mödling og akademíunnar í Vestmannaeyjum. Erlingur ræðir þjálfaraferilinn, reynslu sína að þjálfa í nýju umhverfi, að setja saman teymið sitt, velja fyrirliðann og að byggja upp skipulagða þjálfun fyrir ungt íþróttafólk. Erlingur talar um mikilvægi þess að æfa fleiri íþróttir og seinka sérhæfingu íþróttafólks, þá ræðir hann einnig hugmyndir um hvernig sé hægt að efla íþróttakennslu, mikilvægi fjölbreytni í íþróttum og hreyfingu fyrir börn og hvernig er hægt að búa til betra umh...2024-10-221h 21Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsArnar Sölvi - ÍþróttanæringarfræðingurArnar Sölvi ræðir næringur íþróttafólks, en hann lærði íþróttanæringarfræði í Liverpool og var nálægt því að landa starfi hjá Tottenham Hotspur sem íþróttafræðingur. Arnar vinnur með íþróttafólki með því markmiði að bæta æfingar og keppnisárangur, ná betri endurheimt, bæta líkamssamsetningu, minnka meiðslahættu og fleira. Margt kom fram í þættinum meðal annars: Hvað á íþróttafólk að fókusa á í næringu? Skipulag, hvað á að borða fyrir og eftir æfingar MorgunæfingarFæðubótaefni, prótein, kreatín og fleiri fæðubótaefniLíkamssamsetning, þyngjast...2024-10-151h 26Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsLára Hafliðadóttir - Þjálfun kvenna og tíðahringurinnLára Hafliðadóttir hefur verið að sérhæfa sig í þjálfun kvenna og er fitness þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Víking. þá er hún einnig að hefja doktorsnám til að skoða fitness hjá konum í fótbolta enn frekar. Lára ræðir hvernig á að þjálfa konur og hún útskýrir tíðahring kvenna og hvernig áhrif hann hefur á æfingar og líkamann og hvað gerist í hverjum fasa í tíðahringnum og að konur ættu að tracka tíðahringinn sinn, þá fer hún einnig yfir hormónabreytingar, getnaðarvarnir og fleira. Það er mikilvægt að opna umræðuna um blæðingar því þ...2024-10-0859 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsBrynjar Benediktsson - Soccer & Education USABrynjar Benediktsson kom í Klefann og sagði okkur hvernig ungt íþróttafólk getur farið út til Bandaríkjanna á háskólastyrk. Brynjar er eigandi Soccer and Education USA ásamt konu sinni Jónu Kristínu Hauksdóttur. Árlega aðstoða þau um 80 íþróttafólk að fá skólastyrk til Bandaríkjanna í fótbolta, körfubolta, frjálsum, sundi og golfi. Brynjar segir okkur frá ferlinu til að komast út, hann gefur góð ráð fyrir undirbúninginn og hleypir okkur betur inn í þennan Bandaríska heim. Það er gott að huga að þessu snemma og við hvetjum ykkur til að hlusta á þennan þátt og...2024-10-011h 06Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsKristín Þórhallsdóttir - KraftlyftingakonaKristín Þórhallsdóttir er sterkasti dýralæknir í heiminum, hún byrjaði í Kraftlyftingum 35 ára og er verðlaunahafi á Heims- og Evrópumeistaramótum, þá hefur hún meðal annars orðið Evrópumeistari og á Evrópumet. Kristín ræðir ferilinn, hvernig hún kynntist íþróttinni og komst hratt í fremstu röð, þá fer hún aðeins yfir Kraftlyftingarnar, en þar er keppt í samanlögðum árangri í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Ef þú ert að spá í tölum Kristínar þá á hún 230 kg í hnébeygju, 125 kg í bekkpressu, 240 kg í réttstöðulyftu.Kristín er dýralæknir og tveggja barna móðir, en annar strákurinn h...2024-09-241h 15Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsEM í götuhjólreiðumEvrópumótið í götuhjólreiðum fer fram í Belgíu dagana 11.-15. september. Keppt er í tímatöku þar sem þau hjóla 31.2 km, og götuhjólreiðum þar sem Elite konur og U23 hjóla 162 km og Elite karla hjóla 222.8 km. Mikael Schou afreksstjóri Hjólreiðasambands Íslands sagði okkur frá mótinu og umstanginu í kringum það, þá heyrðum við í Elite keppendunum ásamt Davíði sem keppir í U23. Í þættinum ræða þau meðal annars undirbúninginn, næringuna, olnbogana, hvað þarf að huga að og hvernig svona keppni fer fram.Þátturinn er í boði Útilífs...2024-09-101h 10Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsAnton Sveinn Mckee - sundmaður og ÓlympíufariAnton Sveinn McKee sundmaður og fjórfaldur Ólympíufari settist hjá Silju og fóru yfir það hvað er að vera afreksíþróttamaður. Anton gerði upp Ólympíuleikana hvað var öðruvísi og truflaði keppendur einnig ræddi hann hvað er frammundan þegar skýlan nálgast hilluna. Þá sagði hann okkur ítarlega frá hvernig hann setur markmið og hvernig hann brýtur þau niður og hvað hann gerir til að ná þeim, hvernig vinnur hann í andlega þættinum og notar dagbók og sjónmyndaþjálfun. Næringin, æfingarnar og lyftingarnar. Þetta er áhugaver...2024-09-031h 11Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsIngeborg Eide - kastari og Paralympics fariIngeborg Eide Garðarsdóttirer kúluvarpari úr Ármanni og keppir í flokki F37  í kúluvarpi, en hún er ein af fimm sem keppa fyrir Íslands hönd á Paralympics sem fer fram í París dagana 28. ágúst - 8. september. Ingeborg á Íslandsmetið í kúluvarpi sem er 9.83 m og þá á hún einnig íslandsmetið í kringlukasti. Hún keppir á Paralympics þann 31. ágúst í kúluvarpi. Ingeborg þekkir stórmótin vel en hún á bronz frá Evrópumeistaramótinu 2021 og endaði í 4. sæti á HM í maí. Ingeborg ræðir sinn íþróttaferil, æfingarnar og vegferðina að Paralympics ásamt markmiðunum þar. Einnig útskýrir hún flokkana og prófin sem þ...2024-08-2756 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsFrjálsíþrótta Ólympíu þátturÓlympíuleikarnir eru á fullu og það styttist í frjálsíþróttaveisluna. Silja settist niður og tók saman 4 frjálsíþróttafréttir sem henni finnst áhugaverðar sem snúa að frjálsum á Ólympíuleikunum. 4:30 mín - Purple Speed King9:30 mín - Repechage / endurtekningar umferð14:00 mín - leiðin að Ól … eða ekki19:30 mín - Ólympíu verðlauna afhending 12 árum seinna... skellur!Klefinn er í boði Nutrilenk, Útilíf, Hafið fiskverslun og Lemon. Endilega fylgdu Klefanum á instagram.2024-07-3131 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsVésteinn Hafsteinsson - Afreksstjóri ÍSÍVésteinn Hafsteinsson er einn sigursælasti þjálfari okkar Íslendinga og nú er hann fluttur heim og starfar sem Afreksstjóri ÍSÍ. Sem þjálfari þá hefur Vésteinn þjálfað 56 einstaklinga frá 10 löndum sem hafa samanlagt náð í 20 verðlaun á alþjóðlegum stórmótum - þar af 5 verðlaun á ÓL. Hann er nú á leið á sína 11 Ólympíuleika en í nýju hlutverki, hann hefur farið áður sem íþróttamaður, þjálfari og nú sem afreksstjóri og yfir farastjóri. Vésteinn ræðir í þættinum árangur, hugarfar, framtíðina, hvað einkennir góðan íþróttamann og þjálfara og fleira, hvetjum yk...2024-07-021h 26Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsHlaupaspjall Klefans í ÚtilífÞann 25. júní vorum við með hlaupaspjall í Útilíf þar sem Afreksfólk Útilífs settist niður með Silju. Þorsteinn Roy og Andrea Kolbeinsdóttir hlauparar svöruðu ýmsum spurningum um hlaup, undirbúning og fleira, þá var einnig Hildur Kristín sjúkraþjálfari með og svaraði spurningum um hlaupara meiðsli og gaf ráðleggingar..Í þættinum ræða þau upphitun, recovery aðferðir, hreyfiflæði, hlaupaskó, meiðsli og annað sem er gott að hafa í huga. Þetta er klárlega þáttur fyrir hlaupara og þau sem eru að stíga sín fyrstu skref. Gangi þér vel á hla...2024-06-2637 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsJón Halldórsson - eigandi KVAN og formaður Vals í handboltaJón Halldórsson fór yfir víðan völl þegar hann ræddi leiðtoga, liðsheild, menningu innan liða, Evrópumeistara ævintýri Valsar og fleira. Jón er einn af eigendum KVAN sem er mennta- og þjálfunarfyrirtæki. Einnig er hann formaður handknattleiksdeildar Vals sem átti stórt tímabil bæði hjá konunum og körlunum. Jón ræddi hvernig menningin var sköpuð innan liðsins, hvernig þeir fjármögnuðu Evrópukeppnina og framhaldið hjá bæði kvenna- og karlaliðinu. Þá ræddi hann einnig menninguna innan félagsin...2024-06-1846 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsHafdís Sigurðardóttir - hjólreiðakona ÍslandsHafdís er margfaldur Íslands- og bikarmeistari, en hún keppir bæði í götuhjólreiðum, tímatöku og gravel. Hafdís keppir fyrir Íslands hönd og hefur farið á Evrópumeistaramót sem og Heimsmeistaramót.Hafdís fer með okkur yfir ferilinn, hvað þarf til að ná árangri í hjólreiðum hvernig er að æfa hjólreiðar á Íslandi, einnig þegar það snjóar ennþá í júní. Þá ræðir hún mótin hér heima, samkeppnina og stórmótin úti. Um daginn fóru fimm íslenskar stelpur saman á Tour de feminin og hún segir okkur hvernig það gekk og hvernig það er að...2024-06-111h 08Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsHelena Sverrisdóttir - fyrrum atvinnukona í körfuboltaHelena er ein farsælasta körfuboltakona Íslands. Helena á nánast öll met sem hægt er að setja í körfuboltanum, en hún lék sinn fyrsta meistaraflokksleik 12 ára og fyrsta landsleik 14 ára. Helena ræðir ferilinn, hún fór í Texas Christian University og náði frábærum árangri þar, en í haust verður hún tekin inn í frægðarhöll TCU. Helena spilaði sem atvinnukona í Slóvakíu, Ungverjalandi og Póllandi, en hún fann mun á að koma úr háskóla “bubblunni” yfir í atvinnumennskuna þar sem þú þarft að standa meira á eigin fótum. Hugarþjálfun, meiðsli íþróttafól...2024-06-0457 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsEM í UtanvegahlaupumEvrópumótið í utanvegahlaupum fer fram í Annecy, Frakklandi dagana 30. maí - 2. júní. Hlaupið er um 60km og um 3900 m hækkun, en hlaupaleiðin er í fjöllunum við Annecy vatn. Við heyrðu í Friðleifi Friðleifssyni liðstjóra og formanns langhlauparanefndar um Evrópumótið og undirbúninginn. Þá heyrðum við einnig í fimm af átta hlaupurum um undirbúninginn fram að hlaupi, taktík, búnað og fleira. Þátturinn er í boði Útilífs, Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood. Hvetjum ykkur til að hlusta og til að styðja við þau, en þú finnur þau hér:Andrea Kolb...2024-05-2859 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsArnar Freyr Theodórsson - UmboðsmaðurArnar Freyr Theodórsson er umboðsmaður handboltamanna. Sjálfur lék Arnar handbolta lengi en fór út í umboðsmennsku þegar hann missti af tækifæri sem hann vildi ekki að aðrir myndu missa af. Arnar Freyr segir okkur frá heimi umboðsmanna og hvað það felur í sér, en sjálfur segist hann vera í þjónustustarfi sem snýst mikið um samskipti. Þá ræðir Arnar einnig hvaða eiginleika hann vill sjá hjá leikmönnum þegar hann skoðar að byrja að vinna með þeim og af hverju íslenskir handboltamenn eru góð söluvara. Farið er...2024-05-211h 01Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsElísabet Margeirsdóttir - OfurhlaupariElísabet Margeirsdóttir ofurhlaupari var fyrsta konan í heiminum til að klára 400km Ultra-Gobi maraþonið undir 100 klukkustundum. Elísabet fer yfir feril sinn, hvernig hún byrjaði að hlaupa yfir í að vera í eigenda hóps Náttúruhlaupa og hvað starfið er fjölbreytt þar. Elísabet hefur 14 sinnum farið í Laugavegshlaupið, hún segir aðeins frá reynslu sinni úr hlaupinu. Bakgarðurinn hófst 4. maí og lauk þann 6. maí, það var stórskostleg keppni, Elísabet ræðir keppnina, hvernig Bakgarðurinn byrjaði á Íslandi og hvað er frammundan. Það er að mörgu að huga þegar hlaup er haldið  í nokkr...2024-05-141h 08Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsGréta Salóme - Söngkona, lagahöfundur og fiðluleikariGréta Salóme er þekkt fyrir hæfileika sína í tónlist, en til að ná árangri á stóra sviðinu þá þarftu að þora að dreyma, eltast við markmiðin þín og vera skipulögð. Gréta segir okkur frá hvernig hún setur sér markmið, hún segir okkur frá fjórum aðferðum sem hún notar til að ná árangri. Þá ræðir hún einnig hvernig er að vera tónlistarkona, hvernig hún byrjaði að vinna hjá Disney og áskorunum þar. Þá hefst Eurovision í kvöld 7. maí og Gréta Salóme hefur sterkar skoðanir á þátttöku Íslands í Euro...2024-05-071h 02Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsÓlympíuhópur staðan 3. maíÓlympíuleikarnir í París hefjast 26. júlí, en aðeins einn íþróttamaður hefur náð lágmörkum, en það er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee.Í Ólympíuhóp ÍSÍ eru 13 íþróttamenn, en það eru þau sem eru að stefna á Ólympíuleikana.Í þessum öðrum þætti þá ræddi Silja við Hákon Þór Svavarsson - haglabyssuskotfimi, Erna Sóley - kúluvarp, Valgarð Reinhards - áhaldafimleikar, Ingibjörg Erla - Taekwondo, Hilmar Örn -  sleggjukast. Hvetjum ykkur til að styðja við íþróttafólkið okkar.Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood. Þú finnur okkur á instagram @klefinn.is...2024-05-0337 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsBirgir Leifur Hafþórsson - fyrrum atvinnu kylfingurBirgir Leifur Hafþórsson hefur sjö sinnum verið Íslandsmeistari í golfi, þá hélt hann þátttökurétti á Evrópsku mótaröðinni og sigraði áskorendamótaröð Evrópu. Birgir Leifur fer yfir hvernig hann byrjaði og hvað hann hefur lært af sínum ferli. Þá ræðir hann hugarþjálfun og hvernig hann sá fyrir sér hringina, hvaða triggera hann notaði til að komast aftur í gírinn, hvernig hann æfði og hvernig var að keppa á stóru mótunum. Þá gefur hann einnig ýmis ráð, sem enginn golfáhugamaður/kona vill láta fram hjá sér fara. Þátturinn er í...2024-04-301h 07Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsÓlympíuhópur staðan 26. aprílÓlympíuleikarnir í París hefjast 26. júlí, en aðeins einn íþróttamaður hefur náð lágmörkum, en það er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee. Í Ólympíuhóp ÍSÍ eru 13 íþróttamenn, en það eru þau sem eru að stefna á Ólympíuleikana. Í þessum þætti þá ræddi Silja við Baldvin hlaupara, Thelmu fimleikakonu, Guðlaugu Eddu þríþrautakonu og Guðna Val kringlukastara um hvernig gengur að komast á Ólympíuleikana, hvað er framundan og fleira. Hvetjum ykkur til að styðja við íþróttafólkið okkar. Þátturinn er í boði Heilsuhillunnar, Hafið fiskverslun og GoodGood. Þú finnur okkur á instagram2024-04-2636 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsLogi Geirsson - Silfurverðlaunahafi á ÓlympíuleikunumLogi Geirsson er handknattleiksmaður uppalinn í FH, lék með Lemgo í 6 ár, var í silfurliðinu á á Ólympíuleikunum 2008 í Peking og bronz liðinu á EM 2010. Logi ræðir  hvernig hann setti sér markmið og náði þeim, þá ræðir hann hvað hugarfarið skiptir miklu máli hjá íþróttafólki og visualization, hann segir frá því þegar hann tók útihlaupin upp í rúmi. Hvernig á að tækla meiðsli, hvað sjálfstraust er mikilvægt og að þú getur allt sem þú vilt, þú þarft að vita hvert markmiðið er og hefjast handa. Það eru margar leiðir að árangri og hann hvetur íþróttafólk að fókusa á markmiðin og...2024-04-2352 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsKári Steinn Karlsson - hlaupari og ÓlympíufariKári Steinn Karlsson keppti í Maraþoni á Ólympíuleikunum 2012 í London, en það var hans þriðja maraþon frá upphafi. Hann á 17 virk Íslandsmet ennþá í dag, en hefur aldrei orðið Íslandsmeistari í maraþoni.  Kári Steinn er aðeins byrjaður að hlaupa aftur og setti meðal annars brautarmet í hlaupi 2023. Kári fór í háskólann Berkeley í California, en þar var hlaupamenningin öðruvísi. Þá ræðir hann maraþonið á Ólympíuleikunum og undirbúninginn fyrir Ól. Kári Steinn er aðeins 37 ára  í dag, en hlaupa menningin hefur breyst mikið frá því hann var á toppnum og þjálfun er aðeins öðruvísi í dag, ásamt því að hlaup...2024-04-1651 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsTinna Jökulsdóttir - Sjúkraþjálfari - Fókus ÞjálfunTinna Jökulsdóttir er sjúkraþjálfari í Sporthúsinu og eigandi Fókus þjálfunar. Tinna kemur úr handboltanum og er meðal annars sjúkraþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta. Hvað er fókus þjálfun? Þetta eru æfingar sem snúa að meiðslafyrirbyggjandi þáttum ásamt því að auka við færni hvers og eins leikmanns. Lögð er áhersla á liðkun, hreyfiteygjur, líkamsbeytingu, snerpu og samhæfingar þjálfun. Einnig er farið í jafnvægis- og styrktaræfingar þar sem unnið er með stöðugleikakerfið.Við hvetjum ykkur til að hlusta og læra, kannski fáið þið hugmyndir. Í þættinu...2024-04-0945 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsHelgi Valur Pálsson - ÍþróttasálfræðingurHelgi Valur Pálsson er íþróttasálfræðingur og deilir með okkur leiðum til að fá sem mest út úr íþróttunum (og lífinu). Helgi Valur æfði knattspyrnu á sínum yngri árum en glímdi við meiðsli sem hafði áhrif á hans feril. Helgi Valur ákvað að snúa sér að íþróttasálfræði þar sem hann vildi aðstoðað annað íþróttafólk í sínum meiðslum. Helgi Valur fer um víðan völl og talar meðal annars um sjálfstraust, meiðsli, kvíða, hugarþjálfun, að setja sér markmið, skynmyndarþjálfun, spennustjórnu...2024-04-011h 26Klefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsDwight Phillips - 2/2 - World- and Olympic Champion - the CoachDwight Phillips er fyrrum Ólympíu- og Heimsmeistari í langstökki. Dwight sigraði Ólympíuleikana 2024 í Athens, þá hefur hann fimm sinnum orðið Heimsmeistari í langstökki. Þetta er seinni þátturinn af tveimur, en í fyrri þættinum ræddu þau feril hans, öll stórmótin, sigrana og allt sem fylgir því. Dwight ræðir hvað einkennir góðan þjálfara, hvernig hann þjálfar afreksfólkið og unga íþróttafólkið, þau ræða hraðaþjálfun,  framfarir í frjálsum íþróttum og fleira.Við hvetjum ykkur til að hlusta, við erum viss að þið lærið eitthvað af þessum meistara. Þátturinn er í boð...2024-03-2833 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsDwight Phillips - World and Olympic Champion - the Athlete 1/2Dwight Phillips er fyrrum Ólympíu- og Heimsmeistari í langstökki. Dwight sigraði Ólympíuleikana 2024 í Athens, þá hefur hann fimm sinnum orðið Heimsmeistari í langstökki. Við fórum yfir ferilinn hans, ræddum stórmótin, hvað gekk vel og hvað gekk illa, hann segir frá mistökunum sem hann gerði og fer yfir það hvernig það er að keppa á stærstu sviðunum. Þá ræðir hann einnig hvernig hann hafði trú á sjálfum sér og að að þurfi að vera traust milli íþróttamanns og þjálfara. Silja og Dwight æfðu saman í Bandaríkjunum undir leiðsögn Paul Doyle. Þessi þáttu...2024-03-2649 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsSólveig Þórarinsdóttir - SjúkraþjálfariSólveig Þórarinsdóttir er sjúkraþjálfari hjá Sjúkraþjálfun Íslands. Sólveig æfði knattspyrnu á sínum yngri árum en meiðsli settu strik í hennar feril og nú brennur hún fyrir því að fyrirbyggja meiðsli ungs íþróttafólks. Sólveig talar um rannsóknir á konum og körlum í knattspyrnum (p.s. prósentan er sjokkerandi), en konur eru ekki litlir karlar. Hún talar um FITTOPLAY.ORG þar sem hægt er að finna fyrirbyggjandi æfingar fyrir allar íþróttagreinar, við hvetjum ykkur til að kíkja á þessa heimasíðu. Þá eru blæðingar íþróttakvenna rædd, k...2024-03-1946 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsArnar Gauti “Lil Curly” - Áhrifavaldur og eigandi Happy HydrateArnar "Lil Curly" er þekktur á samfélagsmiðlinum TikTok þar sem hann hefur yfir milljón fylgjenda. Í dag starfar hann sem “vítamín sölumaður” eins og hann orðar það, ásamt því að sinna fleiri verkefnum. Arnar ræðir um áhrifavalda heiminn og segir að núna sé besti tíminn til að vera áhrifavaldur á TikTok. Hann ræðir “tips and tricks” á samfélagsmiðlunum og hvað eykur líkurnar á samstarfi með fyrirtækjum. Þá segir Arnar okkur einnig frá Happy Hydrate. Við vonum að þið njótið þáttarins og við hvetjum ykkur til að prófa ykkur áfram á miðlunum og ekki gle...2024-03-1244 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsElísa Viðarsdóttir - Næringarfræðingur og knattspyrnukonaElísa Viðarsdóttir hefur leikið knattspyrnu frá unga aldri og á yfir 50 landsleiki meðal annars á stórmótum. Elísa starfar sem næringarfræðingur hjá Heil Heilsumiðstöð. Elísa ræðir um næringu íþróttafólks, hvernig er hægt að skipuleggja sig og skapa sér betri rútínur þegar kemur að næringu í kringum æfingar og keppnir. Elísa fer yfir það hvað íþróttafólk getur gert betur þegar kemur að næringu. Elísa gefur okkur hugmyndir að máltíðum og nesti, hvað er hægt að grípa í ásamt því að hvetja ungt íþróttafólk að læra...2024-03-0554 minKlefinn með Silju ÚlfarsKlefinn með Silju ÚlfarsRagga Ragnars - Ólympíufari og leikkonaRagnheiður Ragnars hefur farið tvisvar sinnum á Ólympíuleikana, árin 2004 og 2008. Eftir að hafa upplifað Ólympíudrauminn og eignast barn þá sneri hún sér að næsta draum, að gerast leikkona. Uppáhalds þættirnir hennar voru the Vikings og hún setti stefnuna þangað, nokkrum árum síðar var hún Gunnhild í the Vikings frá 2018-2020. Ragga segir okkur frá verkefnunum sem hún er að vinna í, hvað hún tekur frá íþróttunum yfir í leiklistina. Hún segir okkur hvernig bardagaatriðin fara fram, hvað gerist bak við tjöldin í nektar- og kynlífssenum ásamt fleiru sem gerist á settinu. Þá talar Ragga um hluti ei...2024-02-2854 minUltraForm HlaðvarpUltraForm Hlaðvarp057 - Silja Úlfarsdóttir - Hlaupadrottning Íslands Silja Úlfarsdóttir hefur lengi verið kölluð hlaupadrottning Íslands, Silja var sigursæl á hlaupabrautinni og situr enþá í dag á einu Íslandsmeti. Sigurjón og Silja fara yfir hlaupaferilinn, slæma ofþjálfun sem endaði ferilinn, mikið og erfitt fráfall fyrrum eiginmans, slæmt fótbrot sem átti að útiloka öll hlaup í komandi framtíð, vinnu og klefann sem er verkefni tengt okkar öflugasta íþróttafólki. ---------------------------------------------------------------------   - Silja Úlfars á instagram: https://www.instagram.com/siljaulfars/   - Klefinn á Instagram: https://www.instagram.com/klefinn.is/ - Klefinn Heimassíða: https://l.instagram.com/?u=https%3A%2F%2Fklefinn.is...2024-02-091h 44HeilsuvarpidHeilsuvarpid#52- Silja Úlfars - Hlaupastíll, hlaupatækni og ofþjálfunSilja úlfars er frjálsíþróttakona er þekktust sem spretthlaupari í 100-200 og 400 m vegalengdum. Silja hefur lagt keppnisskóna á hilluna og sinnir nú námskeiðahaldi í hlaupatækni og hlaupastíl Ég ráðlegg öllum að draga fram glósubækurnar og blýantinn því í þessum þætti eys hún úr viskubrunninum og dælir úr reynslubankanum góðum ráðum til að hámarka hlaupaþjálfunina. En hún talar líka um þegar hún æfði sig í ofþjálfun og upplifði rhabdomyolosis eða rákvöðvalýsu þar sem vöðvarnir brotna niður mjög hratt eftir erfiðar æfingar. Fróðlegur þáttur me...2021-03-151h 16