podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Sirkabat
Shows
Gímaldið
Sirkabát #11: Verðbólgan og pennastrikið
Árið hófst á vonbrigðum þegar árleg verðbólga skaust úr 4,5% í 5,2% á einum mánuði. En hvað liggur að baki? Þáttastjórnendur Sirkabát kafa ofan í vísitölu neysluverðs, skoða flokkana sem ýttu henni upp og reikna út hvað hefði gerst ef lagabreytingar á vörugjöldum ökutækja hefðu ekki tekið gildi um áramótin. Niðurstaðan: Gagnrýnin á gjaldahækkunina á við, en svartsýnisspáin kannski ekki. Lestu lengri greiningu Sirkabát á verðbólgutölum á Gímaldinu. Gímaldið er nýr fjölmiðill í áskrift. Hver einasta áskrift skiptir okkur máli og hjálpar okkur að halda út...
2026-02-12
25 min
Gímaldið
Sirkabát #10: Innflytjendur og lífeyrisgreiðslur
Nýlegar fréttir hafa bent á mikla fjölgun erlendra lífeyrisþega. En hvaða samhengi vantar? Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur hjá Hagstofunni bendir á að þótt fjöldinn hafi aukist hefur hlutfallið haldist lágt: aðeins 3,6% útlendinga á vinnumarkaði þiggja örorku- eða endurhæfingarlífeyri, samanborið við 18% Íslendinga. Gott dæmi um mikilvægi þess að greina tölur áður en þeim er slegið upp.Sirkabát er hlaðvarp sem rýnir í tölurnar í fréttum og fréttirnar í tölum. Þáttastjórnendur Sirkabát eru Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson tölfræðingur og Georg Gylfason sagnfræðingur.
2026-02-11
09 min
Gímaldið
Sirkabát #9: Hugtökin hægri og vinstri sveiflast eftir deilumálum stjórnmála hverju sinni
Hvað þýðir það að vera hægri- eða vinstrisinnuð í stjórnmálum? Viktor Orri Valgarðsson, doktor í stjórnmálafræði, útskýrir uppruna hugtakanna og hvernig merking þeirra breytist eftir tímabilum, löndum og deilumálum í stjórnmálum hverju sinni.Sirkabát er hlaðvarp sem Gímaldið gefur út. Í þáttunum er rýnt á bak við fréttir, gjarnan í tölfræði eða annað sem er til þess fallið að dýpka umræðuna.Gímaldið er fjölmiðill í áskrift – þú getur stutt við okkur með því að kaupa áskrift og fengið þannig aðgang að öllu efni Gímaldsins. Hver áskrift ski
2026-01-21
26 min
Gímaldið
Sirkabát #8: Greindu Betur
Ár hvert safnast 14-19 ára ungmenni saman og rýna í tölur og gögn í keppninni Greindu betur. Keppnin hefur vaxið mikið frá því hún hófst árið 2021. Keppninni er skipt upp í tvo aldursflokka eftir námsstigi og keppnisefnið er sniðið að getu hvers flokks. Tilgangurinn er að efla upplýsingalæsi grunn- og framhaldsskólanema. Kristín Ingvarsdóttir og Arndís Vilhjálmsdóttir hjá Hagstofunni ræða um keppnina í nýjasta þættinum af Sirkabát.
2026-01-08
21 min
Gímaldið
Tala ársins 2025
Hver er tala ársins 2025?Sirkabát rýnir í tölur ársins með gestum þáttarins. Tölur ársins segja margar og ólíkar sögur. Sirkabát fékk nokkra einstaklinga til að rýna í árið, velja sína uppáhalds tölu og deila með hlustendum. Arndís Vilhjálmsdóttir, teymisstjóri notendaþjónustu hjá HagstofunniEmil Dagsson, doktorsnemi í hagfræði við Háskóla Íslands og starfsmaður deildar rannóknar og spár hjá Seðlabanka ÍslandsKolbeinn Stefánsson, félagsfræðingur og dósent við félagsráðgjafadeild Háskóla ÍslandsIngvar Örn Ákason, verkef...
2025-12-30
41 min
Gímaldið
Sirkabát - Þáttur 6
Hvað er margar mismunandi tegundir af jólabjórum til sölu í ríkinu? Í þessum jólaþætti Sirkabát taka þáttastjórnendur sér fyrir hendur að greina þróun á sölu og breytingum á úrvali á jólabjór seldur er í verslunum ÁTVR.
2025-12-23
15 min
Gímaldið
Sirkabát - Þáttur 5
Er jólamaturinn dýrari í ár en í fyrra? Þáttastjórnendur Sirkabát útbjuggu sína eigin jólamatarkörfu og reiknuðu út vísitölu jólaveisluverðs.
2025-12-16
16 min
Gímaldið
Sirkabát - Þáttur 4
Í nýlegri tilkynningu frá barna- og menntamálaráðherra kemur fram að „áætlað sé að eitt af hverjum tíu börnum á Íslandi búi við fátækt.“ Er þessi tala rétt? Þáttastjórnendurnir Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson ræða við Kolbein H. Stefánsson prófessor við HÍ um rannsóknir og mælingar á fátækt.
2025-12-04
29 min
Gímaldið
Sirkabát - Þáttur 3
Landsmönnum hefur fjölgað hratt á undanförnum árum og mannfjöldaspá Hagstofu Íslands spáir því að landsmenn gætu slagað í hálfa milljón á eftir um það bil tvo áratugi. Hversu nákvæm er þessi spá? Á hvaða gögnum byggir hún? Og hvernig ber túlka hana? Þessum spurningum og fleirum munu þáttastjórnendur leitast við að svara í þriðja þætti Sirkabát.
2025-11-27
24 min
Gímaldið
Sirkabát - Þáttur 2
Í öðrum þætti Sirkabát ræða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson við þau Ara Klæng Jónsson, doktor í félags- og lýðfræði og Jóhönnu Gunnarsdóttur, forstöðumann fræðasviðs á fæðinga- og kvenlækningasviði. Þýðir hækkandi meðalaldur kvenna þegar þær eignast fyrsta barn endilega að frjósemi minnki? Hvað þýðir það að frjósemi sé minni meðal erlenda kvenna en íslenskra? Þessum spurningum og fleirum er velt upp með sérfræðingunum
2025-11-17
28 min
Gímaldið
Sirkabát - Þáttur 1
Í Sirkabát skoða Georg Gylfason og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson tölur úr fréttum og þjóðfélagsumræðunni og spyrja sig: Er umræðan rétt? Er hún röng? Eða svona sirkabát?Í fyrsta þættinum skoða þeir tölur Hagstofu Íslands um frjósemi kvenna á Íslandi. Hvað þýðir það þegar Hagstofan segir að frjósemi var 1,56 árið 2024? Hvernig hefur þetta breyst með árunum? Hefur breytt samsetning þjóðarinnar undanfarinn áratug áhrif á þessa mælingu?
2025-11-11
17 min