podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Sjova
Shows
Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Hluthafaspjallið | S02E11 | Sjóvá er arðgreiðslufélag
Hermann Björnsson, forstjóri Sjóvár, segir að félagið sé rekið sem arðgreiðslufélag til hluthafa ásamt afsláttum og endurgreiðslum til viðskiptavina. Einbeitingin sé á vátryggingastarfsemina sem skilað hafi góðum árangri og hafi félagið aukið hlut sinn á tryggingamarkaðnum og er það fyrst og fremst innri vöxtur. Samkeppnin við VÍS, TM og Vörð sé mikil en tvö þessara félaga eru í eigu bankanna, þ.e. TM og Vörður. Hann fer yfir 10 ára sögu Sjóvá í Kauphöllinni.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brot
2025-04-04
02 min
Sjóvá spjallið
Skjáhætta í umferð
Skert athygli við akstur vegna farsímanotkunar er einn stærsti áhættuþáttur umferðarslysa á heimsvísu. Óheimilt er skv. lögum að nota farsíma og önnur snjalltæki án handfrjáls búnaðar en samt á fólk erfitt með að láta tækin eiga sig í umferðinni. Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, spjallar við Árna Friðleifsson, aðalvarðstjóra í umferðardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
2024-05-14
51 min
Fjármálakastið
Þáttur 69 - Viðtal við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá
Í þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá. Rætt er um efnahagsmál bæði hér heima og erlendis og margt fleira. Einnig er farið yfir spurningar hjá hlustendum. ------------------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/annad/#fyrirvari-fjarmalakastid
2024-02-16
48 min
Sjóvá spjallið
Fjölsmiðjan: Tækifæri til framtíðar
Fjölsmiðjan sinnir mikilvægu hlutverki þegar þörf er á félagslegum úrræðum fyrir ungmenni. Þar getur ungt fólk á aldrinum 16-24 ára fengið verkþjálfun og fræðslu ásamt því að vinna að framleiðslu ýmiss konar. Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, spjallar við Sturlaug Sturlaugsson, forstöðumann Fjölsmiðjunnar.
2023-11-16
48 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Gaddavír
GÓÐAN DAGINN FIMMTUDAGINN! Algjörlega, fullkomlega og eingöngu þökk sé Ristorante, Sjóvá og Swiss miss þá erum við komnar aftur með opna þætti, tvo í mánuði fram að áramótum. Við erum þakklátar fyrir tækifærið og vonandi þið líka! Í þætti dagsins hlýtur ung áströlsk kona hræðileg örlög eftir að hafa sakleysislega ætlað að labba heim til sín. Langur og strangur þáttur, innilega hrottalegur og ég vildi óska að við værum betri við hvort annað. Fórnarlamb: Anita Cobby Í boði Ristorante, Sjóvá og Swiss Miss
2023-07-13
1h 03
Sjóvá spjallið
Eldvarnir í dagsins önn
Eldvarnir geta skilið milli lífs og dauða. Eldsvoðar gera sjaldnast boð á undan sér en með traustum eldvörnum má koma í veg fyrir alvarleg tjón. Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, spjallar við Bjarna Ingimarsson, starfandi formann Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
2023-05-03
49 min
Sjóvá spjallið
Öryggi í hestamennsku
Hestamennska er vinsæl íþrótt og tómstundaiðja á Íslandi auk þess að vera marglaga atvinnugrein. En að mörgu er að huga þegar kemur að öryggi knapa og forvörnum í hestamennsku. Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, spjallar við Tinnu Dögg Kjartansdóttur, hestakonu og eiganda netverslunarinnar Brokk.is sem selur hágæða öryggisvesti með innbyggðum loftpúðum.
2023-02-16
25 min
Fjármálakastið
Þáttur 39 - Viðtal við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá
Í þessum þætti er rætt við Þórð Pálsson, forstöðumann fjárfestinga hjá Sjóvá, fyrrverandi yfirmann greiningardeildar Kaupþings og einn af virkustu meðlimum fjármálatwitter. Rætt er um stýrivaxtahækkanir Seðlabankans, verðbólguna, húsnæðismarkaðinn, kjaramálin, efnahagshorfur erlendis, fyrirhugaða sameiningu Kviku og Íslandsbanka, lög á fjármálamarkaði, skortsölu, skuggabankastarfsemi og sitthvað fleira. ---------- Fyrirvari: https://www.stefnir.is/um-stefni/fjolmidlar/#markadsmal Fyrirvari: Stefnir er styrktaraðili þáttarins og er því um samstarf að ræða. Stefnir er rekstrarfélag verðbréfasjóða...
2023-02-10
42 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Rúta
Í dag er ekki mánudagur en þáttur vikunnar er þrátt fyrir það áskriftarþáttur, bara eldri áskriftarþáttur. Málið á sér stað í Chowchilla í Bandaríkjunum þegar menn ræna fullri rútu af skólakrökkum. Einn allra uppáhalds þáttur Unnar frá upphafi Morðcastsins! Í boði Ristorante, Orville, Sjóvá, Prentsmiðs og Ekils ökuskóla.
2022-10-06
55 min
Sjóvá spjallið
Spjallið: Bylting í öryggismálum á sjó
Sjóbjörgun er stór þáttur í starfsemi Slysavarnafélagsins Landsbjargar og nýtt björgunarskip er nú komið til Vestmannaeyja. Skipið mun stórefla öryggi sjófarenda auk þess að auka öryggi afskekktari byggða. Til stendur að endurnýja öll 13 björgunarskip Landsbjargar. Örn Smárason, verkefnastjóri sjóbjörgunar hjá Landsbjörg, spjallar við Hrefnu Sigurjónsdóttur, verkefnastjóra forvarna, um eitt stærsta fjárfestingaverkefni Slysavarnafélagsins Landsbjargar til þessa.
2022-10-03
30 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Svínastía
Góðan daginn kæru vinir! Þáttur dagsins á sér stað í Bandaríkjunum þar sem Unnur segir okkur frá aldraðri konu sem er heldur illa við fólk. Því miður ákvað hún að taka málin í eigin hendur og leggja í hendur (?) svínanna. Sorglegt og hræðilegt! Í boði Sjóvá, Ekils ökuskóla, Ristorante, Orville og Netverslana S4S Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-09-29
42 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Skiptilykill
Góðan daginn þennan fallega fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur til Karlskrona í Svíþjóð þar sem hún segir frá lygasjúkum dreng sem tekur vægast sagt hræðilegar ákvarðanir. Sko bara alveg mjög slæmar. Í boði Ristorante, Orville, Netverslana S4S og Sjóvá. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-09-22
31 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Svalir
Góðan og blessaðan fimmtudaginn. Í þætti dagsins ferðumst við til Södertalje í Svíþjóð og Unnur segir okkur frá vægast sagt áhugaverðri atburðarás sem gerðist fyrir nokkrum árum síðan. Hræðilegt vissulega, eins og venjulega. Í boði Netverslana S4S, Sjóvá, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-09-15
51 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Rósaklippur
Góðan daginn kæru hlustendur, það er enn eitt hörmulega málið í dag. Bylgja fer með okkur til Noregs þar sem hún segir frá gömlum fúlum manni, kettinum hans og hræðilegum örlögum þeirra. Í boði Geosilica, Ristorante, Orville, Sjóvá, Netverslana S4S og Ekils ökuskóla. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-09-08
43 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Rifbein
Góðan daginn, fimmtudaginn! Fyrsti fimmtudagur haustsins og það byrjar auðvitað með meiri hörmung en það kannski ætti að gera. Bylgja segir okkur frá máli sem gerist í Bandaríkjunum (sjokk), þar sem maður er píndur og pyntaður til dauða. Vægast sagt hræðilegt! Í boði Ekils ökuskóla, Orville, Ristorante, Sjóvá, Geosilica og Netverslana S4S. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-09-01
36 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Mormóni
Í boði Netverslana S4S, Ekils ökuskóla, Sjóvá, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-08-25
51 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Erfðafræði
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins segir Unni frá máli sem á sér stað árið 1976 í Bandaríkjunum en leysist ekki fyrr en árið 2021. Gjörsamlega hræðilegt mál en á sama tíma ekkert smá merkilegt! Erfðafræði er nefnilega æði ekki satt? Í boði Ekils ökuskóla, Ristorante, Orville, Sjóvá, Geosilica og Netverslana S4S. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-08-18
40 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Samlokupoki
Góðan daginn þennan ágæta fimmtudag. Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur til Ástralíu þar sem hún segir frá hvarfi ungra kvenna, sem hlutu því miður hræðileg örlög. Svakalega merkilegt mál en gjörsamlega skelfilegt á sama tíma. Í boði Sjóvá, Netverslana S4S, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-08-11
48 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Apple
Góðan daginn, fimmtudaginn! Þáttur dagur er með sama sniði og venjulega, Unnur segir frá máli sem gerist í Bandaríkjunum þar sem ungur maður er afbrýðissamari, gráðugri og ósanngjarnari en góðu hófi gegnir. Alveg ógeðslega sorglegt. Í boði Sjóvá, Orville, Ristorante, Geosilica og Netverslana S4S. Óklipptur þáttur er inná www.pardus.is/mordcastid
2022-08-04
43 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Bjúga
Góðan og blessaðan daginn, þennan ágæta fimmtudaginn. Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur til Bandaríkjanna þar sem að hjón eru myrt á heimili sínu og ýmislegt kemur upp á yfirborðið. Mjög áhugavert. Í boði Sjóvá, Ellingsen, Ristorante, Orville og Grönt. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-07-28
42 min
Draumaliðið
Svona var sumarið UPPGJÖR 2003-2013 - ft. AGG10 og Brunnurinn
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Orri er kominn í tvöfalt barneignarleyfi og Joe er að flytja til Kaliforníu svo til að kveðju með einhverju var ákveðið að hlaða í uppgjör á síðustu 10 þáttum þar sem áherslan var á því sem gerðist after dark í miðbæ Reykjavíkur eða heimapartýjum í Hafnafirði og góðir gestir voru fengnir til að kryfja gullaldarárin. Svona var sumarið verður ekki lengra að sinni, við þökkum fyrir hlustunina og sjáusmt vonandi eftir ca ár. Til allra sem hafa hlustað, það er bara takk! Til þeirra sem eru ennþá að hlus...
2022-07-27
1h 54
Morðcastið
Orð dagsins er: Sprengja
Góðan daginn, fimmtudaginn. Krakkar, það er stærðarinnar þáttur í dag! Bylgja fer með okkur yfir til Bandaríkjanna og segir frá máli Unabomber, og vitiði, þetta er bara alveg stórmerkilegt! Í boði Ristorante, Orville, Geosilica, Sjóvá, Grönt og Netverslana S4S. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-07-21
1h 09
Morðcastið
Orð dagsins er: Flipparar
Júllijúhú, góðan og gleðilegan fimmtudag. Í þætti dagsins fer Unnur með ykkur í leiðangur til Ástralíu, landsins sem gaf okkur Nágranna, Nicole Kidman, Margot Robbie og því miður þetta hörmulega mál sem hún segir frá. Ungur maður er hrottalega myrtur að því er virðist algjörlega af handahófi og þetta er bara alltaf jafn ömurlegt. Í boði Ristorante, Orville, Sjóvá, Grönt, Geosilica og Netverslana S4S. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is
2022-07-14
46 min
Draumaliðið
Lárus Orri Sigurðsson
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINOS Lárus Orri spilaði í 10 ár í Championship, League 1 og Premir League með Stoke og WBA. Þess utan er hann harðasti Þorpari landsins og fór upp í gegnum yngri flokkanna í sennilega hæfileikaríkasta hópi leikmanna sem þjóðin hefur séð, spilaði 42 A-landsleiki og var næstum því keyptur af Newcastle.
2022-07-11
1h 38
Morðcastið
Orð dagsins er: Frárennsli
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í dag fer Bylgja með okkur alla leiðina til Indlands þar sem hún segir frá vægast sagt hræðilegu máli þar sem ótal margir einstaklingar hverfa af nánast sama blettinum án þess að nokkuð sé gert. Sko hörmulegt. Í boði netverslana S4S, Grönt, Sjóvá, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-07-07
47 min
Draumaliðið
Hannes Þór Halldórsson
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR Hannes Halldórsson fór á toppinn sem besti markmaður Shellmótsins 94, á botninn þegar hann eyðilagði á sér öxlina 99, aftur á toppinn þegar hann vann MORFÍS þökk sé Dóra DNA sem talaði of lengi og svo aftur á botninn þegar hann kostaði Leiknisljónin hverfishátíð og skrúðgöngu árið 2004. Frá botninum spyrnti hann sér og stoppaði ekki uppflotinu fyrr en ca 16. júní 2018 eins og allir vita. Hannes valdi Draumaliðið sitt eingöngu skipað leikmönnum úr íslenskum félagsliðafótbolta af því það er fyrir löngu búið...
2022-07-01
1h 59
Morðcastið
Orð dagsins er: Freknur
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna þar sem hún segir frá svakalega sorglegu máli þar sem fíkn og reiði tóku því miður yfirhöndina með hræðilegum endalokum. Sko mjög mikil reiði. Í boði Ristorante, Orville, Sjóvá og Grönt. Óklipptan vikuþátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-06-30
46 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Innmatur
Hæ! Í þætti dagsins segir Unnur ykkur rosalega vel frá gömlum raunveruleikasjónvarpsþætti sem mjög óvænt blandast inní morð. Í fleirtölu. Þetta er illskiljanlegt frá upphafi til enda, það eina sem við vitum er að þetta er mjög sorglegt eins og venjulega. Í boði Sjóvá, Grönt, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-06-23
44 min
Draumaliðið
Svona var sumarið 2013
LENGJAN - SJÓVÁ - THULE - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Eftir að hafa íhugað það í tvö ár ákváðum við að hleypa lofti út um lúgur(NB - á kolsvörtum rúðum) og gefa South Centralesque rappara sénsinn á að veita okkur fullnægingu í eyrun. Nýtt 5 ára plan er í smíðum á Hlíðarenda og það er lúður klár fyrir þá sem láta röng orð af sinni tungu. Orri fór yfir það þegar hann hægði sér í hnéháa hvönn og upp í Árbæ æfði ungur Selfyssingur tvisvar á dag til að uppfylla drauma sína sem áttu að rætast á næstu þremur...
2022-06-23
4h 21
Morðcastið
Orð dagsins er: HDMI snúra
Góðan daginn, fimmtudaginn! Vitiði hvað er hræðilegt combo? Unglingar og satanísk cult. Í dag fer Unnur með okkur til Bandaríkjanna og segir frá ungri konu sem hafði gengið í gegnum allskonar og átti aðeins öðruvísi bucket lista en við flest. Í boði Sjóvá, Grönt, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-06-16
50 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Hárkolla
Góðan daginn, fimmtudaginn! Í þætti dagsins fer Bylgja með okkur til okkar eigin fyrirheitna lands (Svíþjóðar) og segir okkur frá ömurlegu máli þar sem að ung kona er myrt. Alltaf jafn ömurlegt og óþolandi. Í boði Ristorante, Orville, Grönt og Sjóvá. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-06-09
39 min
Draumaliðið
Hannes Þorsteinn Sigurðsson
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - DOMINOS Hannes Sig á einhvern ótrúlegasta atvinnumannaferil nokkurs Íslendings sem spannar níu lönd, þám Rússland (að sjálfsögðu sá hluti sem liggur að Tsjetsjeníu) og Kazakhstan þar sem haugur af þekktum leikmönnum, þjálfurum og stjórnarmönnum spila rullu. Í dag er hann svo gerandi magnaða hluti í þýska boltanum sem þjálfari og dósent í knattspyrnufræðum. Gárungarnir jafnvel farnir að tala um hann sem Nýi Prófessorinn en fyrst og fremst er hann stórskemmtilegur sögumaður og geggjaður gaur.
2022-06-04
2h 22
Morðcastið
Orð dagsins er: Frystiklefi
Vá. 154 þættir, það eru rosalega margir þættir! Í þætti dagsins fer Unnur yfir mál sem hefur tryllt mörg í gegnum tíðina. Ung kona hverfur á hóteli og mörgum spurningum er ósvarað. Er það samt? Í boði Grönt, Sjóvá, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-06-02
47 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Dagblað
Góðan daginn, fimmtudaginn! Það er ógeðslegt mál í dag eins og flesta aðra fimmtudaga, því miður. Í þetta skiptið er það Bylgja sem að segir okkur frá máli sem gerist í Bandaríkjunum þar sem lögreglumaður (ofbeldismaður) fer mjög illa með konuna sína, líkamlega og andlega. Í boði Ristorante, Orville, Grönt, Sjóvá og Smitten. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-05-26
50 min
Sjóvá spjallið
Viðskiptavinurinn í forgang
Stjórn fyrirtækis þarf að móta skýra stefnu til að ná skilgreindum markmiðum og hana þarf að endurmeta reglulega. Samtakamáttur er lykilatriði og finna þarf jafnvægi í rekstri og ánægju viðskiptavina. Svali Hrannar Björgvinsson, framkvæmdastjóri markaðsmála- og viðskiptaþróunar hjá Sjóvá, spjallar við Hrefnu Sigurjónsdóttur, verkefnastjóra forvarna, um stjórnun og stefnumótun.
2022-05-24
36 min
Draumaliðið
Svona var sumarið 2012
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S- SESSION CRAFT BAR Karíókímenningu Íslendinga voru gerð góð skil og enn og aftur gefur Kristmundur Axel út an absolute banger. KRingar fóru í rebrand og 5 ára plan Valsara virtist komið aftur á byrjunarreit. Deildin fékk nýjan villain og það er spurning hvor hendur hefðu ekki átt að koma í handa stað varðandi landsliðsþjálfara íslenska landsliðsins í fótbolta? Breskt raunveruleikasjónvarp átti sér stað á Akranesi, Stjarnan sóttu danskan dreng í Himalaya fjöllin og Lee litli Bucheid hefur ekki sagt sitt síðasta. Svona var sumarið 2012. Viðmælendur: Alexander S
2022-05-23
4h 36
Morðcastið
Orð dagsins er: Smart
Góðan daginn fimmtudaginn! Í þætti dagsins erum við staðsett í Bandaríkjunum en Unnur segir frá konu sem nýtir sér aldursmun og valdastöðu, og tekur vægast sagt hræðilegar ákvarðanir. Í boði Sjóvá, Grönt, Smitten, Ristorante og Orville. Óklipptan og auglýsingalítinn þátt má finna inná www.pardus.is
2022-05-19
48 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Rambo
Þáttur dagsins kemur beinustu leið frá Tórínó, hvorki meira né minna! Bylgja segir okkur frá tveimur málum, bæði hræðileg, bæði áhugaverð. Í boði Sjóvá, Smitten, Grönt, Ristorante og Orville. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-05-12
42 min
Morðcastið
Orð dagsins er: Kvittun
Góðan daginn þennan stórgóða 18 fimmtudag ársins. Í þætti dagsins segir Unnur frá máli sem gerist í Bandaríkjunum þegar öfundsýki tekur yfirhendina og saklaus kona tapar lífi sínu. Hræðilegt í öllu falli. Í boði Sjóvá, Grönt, Ristorante, Orville og Smitten. Óklipptan þátt má finna inná www.pardus.is/mordcastid
2022-05-05
51 min
Draumaliðið
Svona var sumarið 2011
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINOS - SESSION CRAFT BAR Það birtir alltaf til. Við erum að vinna okkur upp úr öskufallinu og hruninu og upprisan hefst með nýjum morgunþætti FM957. Valsmenn henda 5 ára planinu í ruslið eins og hverri annarri kúkableyju og við fáum eina af okkar fyrstu þjáfaratvennum í íslenska boltann. Óskar Hrafn mætti aftur og hlutir gengu nærri honum en hver verður efnilegasti leikmaður mótsins? Ætli það verði ekki einhver KRingurinn? Er þetta eitthvað sem er hægt að halda utan um í Excel skjali eða er kannski bara best að vita þetta sjá...
2022-04-29
4h 21
Snæbjörn talar við fólk
#0100 Magnús Blöndahl
S01E100 – Magnús Blöndahl er sálfræðingurinn minn. Hann hefur fylgt þættinum í anda í meira en ár og það var í gegnum hlustanda þáttarins sem ég fékk ábendingu um að senda honum línu og panta tíma. Það breytti mjög miklu. Hann las mig eins og opna bók, greindi kvíðann og hegðunina hjá mér niður í smáatriði og kom mér á brautina við að leysa úr málunum. Ég er allur annar en þó er ferlið ekki á enda og ég geng glaður til hans mánaðarlega. Magnús er afar fær í því sem hann gerir. Hann er vís...
2022-04-14
3h 56
Draumaliðið
Svona var sumarið 2010
LENGJAN - THULE - DOMINOS - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR Við erum enn að jafna okkur á því að hér varð hrun en í staðinn poppar upp a little fella called Eyjafjallajökul sem skilur Hásteinsvöll eftir í 2000cm öskufalli en Eyjamenn hugsa sér gott til glóðarinnar. Það var rifist alltof lengi um hvort hefði verið skemmtilegra á Karamba eða Oliver og við sviptum hulunni af því að hinn íslenski David Beckham er í raun og veru hinn íslenski Rory Delap. Fórum yfir hnefasamlokuna sem var matreidd fyrir Jóa og fengum play-by-play greiningu á seasoninu frá Prófessornum sem við s...
2022-04-08
4h 30
Snæbjörn talar við fólk
#0099 Laddi
S01E99 – Laddi. Það þarf auðvitað ekkert að hafa fleiri orð um það. Laddi er tónlistarmaður, leikari, grínisti og algert náttúrubarn. Hann hefur haft ofan af fyrir þjóðinni lengur en flestir gera sér grein fyrir og hefur sett niður fótinn ótrúlega víða. Ferillinn hófst við trommusettið, færðist inn í leikmunadeild RÚV og síðan á svið og fyrir framan myndavélarnar. Eftir margfaldan árangur á flestum sviðum listarinnar hefur hann nú sett stefnuna á myndlist og á margt eftir ógert þar. Laddi er algert náttúruafl, gríðarlega atorkusamur og á bakvið all...
2022-04-07
1h 59
Snæbjörn talar við fólk
#0098 Jens Ólafsson
S01E98 – Jens Ólafsson er betur þekktur sem Jenni í Brain Police. Hann er að öðrum ólöstuðum einn allra öflugasti rokksöngvari Íslandssögunnar. Hann er ógurlegur. Bæði hefur hann þennan rosalega barka, en ofan á það er hann einn mest heillandi sviðsmaður sem ég hef kynnst. Jenni er algert góðmenni og ljúfmenni, feiminn að eðlisfari og óhemju góður í því sem hann er góður í. Eins og við öll hefur hann sína djöfla að draga og það dimmir oft hjá honum. Hann hefur tekið sinn slurk af djammi og neyslu en kemur alltaf út standandi í báða fæt...
2022-03-31
2h 34
Snæbjörn talar við fólk
#0097 Katrín Jakobsdóttir
S01E97 – Katrín Jakobsdóttir er forsætisráðherra Íslands. Hún er ótrúlega látlaus og skrumlaus miðað við þungavigt embættisins og fas margra sem gætt hafa þess áður. Katrín er glæpasagnanörd og fjölskyldumanneskja. Hún var send margsinnis út í sjoppu sem barn til þess að sníkja gallað nammi, þá af eldri bræðrum sínum sem glöddust yfir því hversu vel það gekk — og tóku gróðann. Eftir afburðagengi í Menntaskólanum við Sund hætti hún við að gerast leðurjakkabóhem í Frakklandi og gerði að lokum lokaritgerð um Arnald Indriðas...
2022-03-24
1h 50
The Snorri Björns Podcast Show
Þórður Pálsson - Forstöðumaður fjárfestinga
"Covid niðursveiflan var miklu harðari en ég bjóst við og ég held að niðursveiflan núna sé miklu alvarlegri en nokkurn tímann Covid." Þórður Pálsson er forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá og fyrrverandi yfirmaður greiningardeildar Kaupþings. Í þættinum er farið yfir breitt svið efnahagsástandsins í dag: Áhrif Covid á hlutabréfaverð Lækkun stýrivaxta og áhrif á markaði Verðbólguspá Þórðar Almenningur vs. fagfjárfestar á hlutabréfamarkaði Gírun í kerfinu Órói og kostir þess að halda á lausu fé Peningaprentun og Seðlabankinn Fasteignamarkaðurinn - getur íbúðarverð hækkað en
2022-03-23
1h 53
Snæbjörn talar við fólk
#0096 Rakel Björk Björnsdóttir
S01E96 – Rakel Björk er leikkona og söngkona. Hún ætlaði sér aldrei að verða neitt annað, sá ekki fyrir sér að Verzló myndi fara vel með hana en hins vegar varð MR henni mjög eðlilegt ferli, og þá spilaði Herranótt stærstu rulluna. Hún ólst upp við ljósleysi og málar veggina heima hjá sér í öllum mögulegum litum. Áður en leiklistarskóla lauk var hún komin í atvinnumennsku þegar Borgarleikhúsið fékk hana til liðs við sig. Þar er hún enn og Níu líf Bubba taka mikinn tíma þessa daga...
2022-03-17
3h 57
Sjóvá spjallið
Spjallið: Aksturshegðun Íslendinga
Umferðin er samvinnuverkefni sem krefst þess að allir leggi sitt af mörkum til að hún gangi að óskum. Umferðaröryggi er málefni sem krefst stöðugrar athygli og endurmats enda er um að ræða mikið hagsmunamál fyrir samfélagið. Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar Samgöngustofu, ræðir aksturshegðun Íslendinga við Hrefnu Sigurjónsdóttur, verkefnastjóra forvarna.
2022-03-10
37 min
Draumaliðið
Svona var sumarið 2008
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSIONCRAFTBAR - DOMINO’S Við höldum áfram að eyða umfram og óveðursskýið er byrjað að myndast en samt hendum við í biluðustu Eurovision undankeppni allra tíma. Silfur náðist í Peking um miðja nótt eftir djamm á Hverfisbarnum og Heimir Guðjóns fór í nostalgíukast til að styrkja liðið sitt. Kristján Guðmunds bjó til nýjan Bjargvætt í Keflavík en myndi það duga? Logi Ólafs gaf Rúnari Kristins rétta formúlu fyrir Íslandsmeistaratitli en þekkti Rúnar allar breyturnar? Changing of the guards, we’ve been here before, pallaleiku...
2022-02-28
4h 00
Snæbjörn talar við fólk
#0092 Agnes Grímsdóttir [2022]
S01E92 – Þetta viðtal er ekki viðtal. Þetta er bara ég að tala við konuna mína um allt og ekkert. Gott spjall. – Síminn Pay býður upp á STVF. Þessa vikuna býður Skyr Factory allar skálar og boozt á aðeins 1.000 kr. í Pay appinu! Tilboðið gildir frá þriðjudegi til þriðjudags og aðeins þegar þú pantar og greiðir í gegnum Síminn Pay appið. – Sjóvá býður upp á STVF. Ég fékk póst í vikunni. Viðskiptavinir Sjóvá borga ekki lögboðnar bílatryggingar í maí. Ókei, næææs.
2022-02-17
1h 14
Draugar fortíðar
#92 Konan með lampann
Flest höfum við líklega heyrt minnst á Florence Nightingale. Hún er almennt talin mikill frumkvöðull í hjúkrun og átti einna stærstan þátt í að breyta viðhorfi almennings á Vesturlöndum og víðar til greinarinnar. Hún lagði grunninn að nútíma hjúkrunarfræði sem víðast hvar er nú kennd á háskólastigi. Það eru Borg Brugghús/Bríó, Flyover Iceland og Sjóvá sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤 Draugarnir eru einnig á Patreon Vefverslun Drauganna Tónlistin úr þáttunum Umræðuhópur Drauganna á Facebook
2022-02-16
1h 28
Draumaliðið
Svona var sumarið 2007
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION - DOMINO’S. Íslenska þjóðin hefur aldrei haft það jafn gott. Íslenskar Lúxussnekkjur voru lagðar við Thames, afmæli haldin á Jamaica og leikmenn keyptu sjálfa sig fyrir metfé í Landsbankadeildinni. FH voru með rosalegt lið og gott bakland eftir sigursæl ár, en í Miðbæ og Hlíðum var einhver ástríða að kvikna sem erfitt getur reynst að stöðva. Hundurinn Lúkas fór upp á fjall og Ellý Ármanns skrifaði kynlífsfantasíu um 16 ára starfsmann Garðlistar. Svona var sumarið 2017. 2017? nei nei, 2007. Viðmælendur: Sigurbjörn Hreiðarsson, kennari í Kópavogi.
2022-02-04
3h 48
Draugar fortíðar
#89 Guð er dauður!
Af fjölmörgum heimsspekingum sem hafa reynt að leiðbeina okkur í gegnum táradalinn og tilvistarkreppuna, er Friedrich Nietzsche líklega einn sá þekktasti og áhrifamesti. Flest okkar þekkjum fræga frasa hans eins og til dæmis nafn þáttarins. En hvað átti Nietzsche við er hann sagði Guð dauðan? Hvað meinar hann er hann segir að við eigum að reyna að verða ofurmenni? Var Nietzsche nasisti og gyðingahatari? Hví er Nietzsche ennþá svona vinsæll? Í þessum þætti reynum við að kynnast þessum sérstaka náunga með hið magnaða yfirskegg ögn nánar. Það eru Borg Brugghús/Bríó, Bónu...
2022-01-26
2h 25
Snæbjörn talar við fólk
#0088 Vigdís Jóhannsdóttir
S01E88 – Vigdís Jóhannsdóttir er trukkur. Hún er vinkona mín og við unnum saman á auglýsingastofunni Pipar\TBWA í mörg ár. Hún er markaðsstjóri hjá Stafrænu Íslandi í dag og sinnir ytri og innri markaðsmálum. Hún er alin upp í Keflavík, miklu yngri en bræður hennar tveir, tók þátt í fegurðarsamkeppnum, lærði á hljóðfæri og lék með leikfélaginu. Hún ætlaði að verða leikkona, veðurfræðingur og allskonar fleira áður en hún lenti í kjafti fjölmiðlabransans þar sem hún ílengdist í mörg ár. Hún á b...
2022-01-20
3h 20
Snæbjörn talar við fólk
#0085 Sigríður Beinteinsdóttir
S01E85 – Sigga Beinteins er þjóðargersemi og í mínum veruleika hefur hún alltaf verið til. Hún hóf ferilinn í bandi með dr. Gunna, en hafði áður búið í pínulitlu asbesthúsi. Hún er ekki eins og allar stelpurnar sem hoppa upp í bíla með hverjum sem er og það eitt og sér skaut henni upp á vinsældahimininn með tilþrifum árið 1984. Hún hefur farið þrisvar í Eurovision, rekið söngskóla í tveimur löndum, fengið blóðtappa sökum álags og alið upp tvíbura. Hún er hljóðfæraleikari í dvala, rokkhundur inn við beinið, að sjálfs...
2021-12-30
3h 11
Sjóvá spjallið
Spjallið: Hvernig á að tryggja fyrirtæki?
Öll fyrirtæki þurfa að tryggja sig fyrir ófyrirséðum atburðum og hafa ríkar skyldur gagnvart starfsfólki. Stofnun fyrirtækis fylgir nokkur áhætta og alltaf ábyrgð. Auk samningsbundinna skyldutrygginga standa til boða ýmsar frjálsar tryggingar sem atvinnurekandi ákveður sjálfur að taka. Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, spjallar við Dagnýju Ýr Kristjánsdóttur, viðskiptastjóra hjá fyrirtækjaráðgjöf Sjóvár, um hvernig best er að tryggja fyrirtæki.
2021-12-08
22 min
Draugar fortíðar
#82 Hefnd af himnum ofan
Líklega hafa fæst okkar upplifað sanna hefndarlöngun. Hér er átt við hefnd sem sprottin er af djúpstæðu hatri. Löngun til að valda fólki alvarlegum skaða eða dauða. Belgíski baróninn Jean de Selys Longchamps brann af hatri. Hatrið í honum dofnaði ekki, þvert á móti. Að lokum lét hann til skarar skríða. Baróninn hafði yfir að ráða einni fullkomnustu vígvél samtímans. Hefndaraðgerð hans myndi hafa áhrif og vekja athygli. Það eru Borg Brugghús, Bríó og Sjóvá sem bjóða upp á Drauga fortíðar. 🖤...
2021-12-08
1h 28
Draumaliðið
Hörður Magnússon
LENGJAN - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - THULE Hörður Magnússon vann þrjá gullskóa í röð árin 1989, 1990 og 1991. Það hafði enginn gert í að verða 30 ár og enginn hefur leikið eftir síðan.
2021-12-02
1h 33
Bílar, fólk og ferðir
#12 - Einar Guðmundsson
Einar Guðmundsson er gestur hlaðvarpsins að þessu sinni. Einar hefur nánast allan sinn starfsaldur unnið að forvörnum, þó mest er snýr að umferðarmálum ýmiskonar. Starfaði lengi hjá Sjóvá og hefur síðustu árin verið hjá EIMSKIP, auk þess sem forvarnarmálin eru líka hans áhugamál,td verið í stjórn Brautarinnar sem á og rekur Veltibílinn. Einar fer stuttlega yfir sögu sína og við hefðum farið létt með það að tala í marga klukkutíma um áhuga hans og dugnað í þessum málum. Takk fyrir Einar að gefa þér tíma í spjall.
2021-11-25
1h 19
Sjóvá spjallið
Stikla úr Spjalli: Af hverju er dýrt að tryggja bíla á Íslandi?
Stikla úr Sjóvá spjalli við Guðmund Sigurðsson, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, þar sem rætt er um kostnað ökutækjatrygginga.
2021-11-24
02 min
Draugar fortíðar
#80 Draugar
Stuðningsfólk okkar á Patreon fær reglulega að velja um nokkur efni sem þau vilja heyra okkur taka fyrir. Að þessu sinni stóð valið á milli þriggja fyrirbæra úr íslenskum þjóðsögum en það voru draugar, tröll og huldufólk. Skemmst er frá því að segja að draugarnir sigruðu með yfirburðum. Það er kannski vel við hæfi. Bæði passar það vel við nafnið á hlaðvarpinu en einnig spilar það mögulega inn í að draugar eru Íslendingum afar hugleiknir. Kannanir sýna að yfir 70% Íslendinga telja mjög líklegt eða öruggt að vofur og afturgöngur séu raunveruleg fyrirbrigði. Í þe...
2021-11-24
3h 16
Rafbílahlaðvarpið
#12 Tryggingamál rafbíla
Hjalti Þór Guðmundsson, forsöðumaður ökutækjatjóna hjá Sjóvá mætti í heimsókn. Við ræddum m.a. tryggingarmál rafbíla og framtíðarhorfur í þeim m.t.t. sjálfkeyrandi ökutækja.0:00 - Þróunin á markaðnum og breytingar á skilmálum kaskótrygginga12:00 - Undirvagnstryggingar á rafhlöðum35:00 - Hleðslustöðvar og heimilistryggingar41:50 - Meiri umræður um tryggingar sjálfkeyrandi bíla49:40 - Endurnýting rafhlaðna
2021-11-22
55 min
Snæbjörn talar við fólk
#0079 Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir
S01E79 – Sigurlína Valgerður er oftast kölluð Lína. Hún er súpernörd sem hefur haft áþreifanleg áhrif á tölvuleikjaspilun heimsins, og þá einna helst með aðkomu sinn að FIFA-fótboltaleikjunum frá EA þar sem hún setti fjölbreytileikann í forgang. Hún stjórnaði einnig gerð Star Wars Battlefront og að þessu vann hún, ásamt fleiru, á nokkurra ára flakki sínu með fjölskylduna um Svíþjóð, Kanada og Bandaríkin. Nú er hún komin heim og vinnur sitt lítið af hverju og hefur miklu að miðla, enda mikið gerst síðan hún hóf ferilinn hjá CCP...
2021-11-18
3h 40
Draumaliðið
Svona var sumarið 2005
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO’S Það myndast gjá milli áskriftarþjónustu sem íslenska ríkið neyðir fólk til þess að kaupa af sér og þjóðar við val á því hvernig skal velja Eurovision lag. Lúðurinn lætur í sér heyra í Vesturbænum og Börkur er tekinn af appelsínum á Hlíðarenda með flugbeittum hníf. Risinn er vaknaður, búinn að tannbursta sig og klár í daginn og poppstjörnur slá sig til riddara. "Jónschi!? Haaaaaaa?!" Viðmælendur Þorbjörn Atli Sveinsson - Herra September Gunnar Hilmar Kristinsson - bomban.
2021-11-12
3h 12
Sjóvá spjallið
Spjallið: Af hverju er dýrt að tryggja bíla á Íslandi?
Verð ökutækjatrygginga er reglulega til umræðu enda um stóran útgjaldalið heimilanna að ræða. Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, ræðir við Guðmund Sigurðsson, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, um ökutækjatryggingar og verðlag þeirra á Íslandi.
2021-11-09
50 min
Draumaliðið
Svona var sumarið 2004
LENGJAN - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ - DOMINO'S Kennaraverkfallið kom eins og himnasending í líf bólugrafinna unglinga með tilheyrandi áhorfi á Paradise Hotel á sama tíma og leikmönnum var bannað að fagna með því að fara úr að ofan. Gefum Nylon þá virðingu sem þær eiga skilið. Veigar Páll er í eigu kýpverska fjárfestingafélagsins Urania Trade Ltd og sjómaður frá Grindavík syngur sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar. Risinn vaknaði, og hélt svo sína leið.... Jáááááááá, hann hafði fengið huuuuuuugmyyyynd!
2021-10-29
3h 09
Draugar fortíðar
#75 Satan fer til Svíþjóðar
Hin svokallaða "brennuöld" var tímabil á 17. öld sem einkenndist af mikilli vænisýki kristinna manna sem skyndilega sáu Satan og nornir hans í hverju horni. Klerkar og biskupar létu fangelsa, pynta og myrða fólk sem bjó yfir einhverri læknisfræðilegri þekkingu s.s. ljósmæður, grasalækna og raunar allt fólk sem þótti grunsamlegt og líklegt til að hafa selt hinum myrka herra sál sína. Jafnvel börn voru ekki undanskilin. Er þessu æði lauk í byrjun 18. aldar höfðu tugir þúsunda verið tekin af lífi. Í þessum þætti skoðum við aðeins þennan trylling og tö...
2021-10-20
1h 51
Draumaliðið
Svona var sumarið 2003
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR Það er tilgerð að halda því fram að Botnleðja hefði átt að fara fyrir hönd Íslands í Eurovision árið 2003. Kveður við nýjan tón í íþróttaumfjöllun með tilkomu stórs karakters inn á íþróttadeild DV og KR gerir tilraunir til þess að stofna ofurlið. Bragi Valdimar semur fótboltalag og goðsagnir snúa aftur í íslenska landsliðið. Þróttarar raða inn mörkum í boði hins eina sanna Domino's Tríós, en bald and beautiful Carnell bíður færis fyrir aftan þá eins og sláttumaðurinn slyngi.
2021-10-15
2h 54
Snæbjörn talar við fólk
#0074 Hörður Ágústsson
S01E74 – Hörður Ágústsson er stofnandi Maclands, tveggja dætra faðir og mikill græjukarl. Hann er sannur viðgerðarmaður, gerir við græjur og vill einnig gera við vandamálin í lífinu. Nú reynir hann þó að venja sig af því að gera alltaf við og leyfa sér frekar að vera bara ekki góður öðru hvoru. Hörður hefur unnið mikið í sjálfum sér og talar hér umbúðalaust um ýmsa bresti í sínu eigin fari í gegnum árin og hvernig hann reynir í dag að forðast að verða þrothringnum að bráð. Til dæmis safnar hann...
2021-10-14
3h 57
Draumaliðið
Svona var sumarið UPPGJÖR: 1992-2002
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - DOMINO'S - SESSION CRAFT BAR Litum yfir farinn veg í ljósi þess að changing of the guards er svo sannarlega að ganga í garð. Völdum draumalið þessa tíma, hömruðum á því sem að þurfti að hamra á og hringdum eitt mikilvægasta símtal þáttanna til þessa. Hver skrifaði barnabókaseríurnar "Fjör í"? Hver er útibússtjóri Sjóvá á Akranesi? Viðmælendur: Óskar Ófeigur Jónsson, sá maður sem hefur fært íslenskri íþróttaumfjöllun mest í nútímaknattspynru.
2021-10-08
1h 57
Draumaliðið
Svona var sumarið 2002
LENGJAN - THULE - SJÓVÁ - SESSION CRAFT BAR - DOMINO'S Árið er 2002. Við fáum ekki að vera með í Eurovision en Skífan kaupir upp allar rapphljómsveitir landsins og gefur þeim plötusamning. Fólk kaupir sér hringitóna eins og það eigi lífið að leysa og starfsmenn Skjás Eins vöknuðu á bömmer á fyrsta sunnudegi hvers mánaðar. Gylfi Orrason skapar sér nafn í Árbænum og í Kastljósinu, Willum veðjaði á réttan hest þegar mest var undir (þó honum finnist ís ekki góður) og Mr. September heldur í hefðir. Minni á leiðréttingahornið Viðmælendur: Jó...
2021-10-01
2h 32
Snæbjörn talar við fólk
#0072 Eva María Jónsdóttir
S01E72 – Það eru kannski heil 11 ár síðan Eva María Jónsdóttir kvaddi skjái landsmanna en hún er þó hvergi nærri af baki dottin. Líf hennar hefur einkennst af heilmikilli vinnu, barnaláni og nýjum áskorunum, en þessa dagana hefur hún vent sínu kvæði í kross, tekið sér frí frá vinnu sinni í Árnagarði, lært jógakennslu og reynir að gera hluti af áhugahvöt, ekki í blindni hins hraða nútíma. Evu Maríu finnst æðislegt að eiga lífsförunaut og trúir því að öll séum við að gera okkar allra besta sem v...
2021-09-30
3h 02
Draumaliðið
Svona var sumarið 2001
LENGJAN - DOMINO'S - THULE - SESSION CRAFT BAR - SJÓVÁ Árið 2001 vorum við relegated úr Eurovision og sendir í eins árs bann eftir að hafa sent Noel Gallagher eftirhermu og suðrænan Sauðárkróksstrák til leiks. Skagamenn voru gjaldþrota og hringt var í kunnuglegan menn sem átti að baka þá út úr vandræðunum. KRingar reyndu að fá Daniel Amokachi til að fylla í skarð Andra Sigþórsson en fyrir því var lítil innistæða. XXX Rottweiler héldu partý í Árbænum og buðu engum sem Þormóði Egils líkaði ekki en á endanum stóð eitt lið uppi sem sigurvegari. Þeir voru ólíkir inn...
2021-09-23
2h 42
Snæbjörn talar við fólk
#0071 Ásmundur Einar Daðason
S01E71 – Ásmundur Einar Daðason er fyrsti félags- og barnamálaráðherra Íslands, enda sá sem átti hugmyndina að stöðunni. Mikið af vinnu hans er drifið áfram af eigin reynslu af flókinni æsku, en sem barn gekk Ásmundur í sjö grunnskóla á átta árum, í tveimur löndum. Ásmundur hefur unnið ötult starf í þágu barnaheillar á Íslandi en leiðin lá þó ekki alltaf á þing; hann er menntaður búfræðingur og stefndi lengi á að reka sitt eigið bú. Hann á átta hunda, nýtur kosningabaráttunnar og leitar sér að áhugamáli til að deila með konunni þegar ungarnir fljúga úr hreiðrinu. Um þessar mu...
2021-09-23
2h 13
Sjóvá spjallið
Spjallið: Þjónusta um land allt
Sjóvá leggur áherslu á að veita góða þjónustu um land allt og hefur á að skipa 22 útibúum og þjónustuskrifstofum víðs vegar um landið. En hvers vegna er mikilvægt fyrir fyrirtæki eins og Sjóvá að þjónusta fólk í heimabyggð? Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, spjallar við Arnar Jón Óskarsson, útibússtjóra á Egilsstöðum um tryggingar, landið og miðin.
2021-09-21
30 min
Draumaliðið
Svona var sumarið 2000
LENGJAN - DOMINO'S - THULE - SESSION - SJÓVÁ Sumarið 2000 hætti ungt fólk að spila fótbolta upp á Akranesi og fór að rúnta. Eyjamenn voru nokkrum sekúndum frá því að klófesta tíunda besta markmann heims. KR færði sig yfir í normal fit XXL Reebok treyjur og Páll Guðlaugsson sótti nýja Brasilíumenn. Áhorfendur fengu lítið fyrir peninginn þegar kom að gæðum knattspyrnunnar og umdeildur leikur í lokaumferðinni. Minnum sem endranær á leiðréttinga- og söguhornið. Dæliði þessu á okkur Viðmælendur: Jens Martin Knudsen, eini Færeyingurinn til að...
2021-09-17
2h 45
Snæbjörn talar við fólk
#0070 Guðmundur Ingi Guðbrandsson
S01E70 – Guðmundur Ingi Guðbrandsson er umhverfisráðherra Íslands, með mikla ástríðu fyrir landvernd og umhverfinu. Líf hans hefði þó hæglega getað farið á annan veg, en Guðmundur gældi bæði við þá hugmynd um að verða leikari og að helga sig guði. Hann er fjárglöggur mjög og lofthræddur, hlustar nær ekkert á tónlist og lýsir sér sjálfum sem lokaðri týpu, þótt hlustendur fái í þessu viðtali að kynnast ráðherranum mun nánar en oftast er völ á í starfi hans í ríkisstjórninni. Guðmundur lætur sig mannr...
2021-09-16
2h 36
Sjóvá spjallið
Spjallið: Umferðaröryggi og ökutækjatryggingar
Mikilvægt er að fækka slysum í umferðinni og að vera vel tryggð ef eitthvað kemur upp á. Hvernig undirbúum við nýja ökumenn fyrir umferðina? Hverjar eru helstu áskoranirnar þegar kemur að umferðaröryggi? Hver er munurinn á lögboðinni ökutækjatryggingu og kaskótryggingu? Þetta og margt fleira hér í spjalli Hrefnu Sigurjónsdóttur, verkefnastjóra forvarna, við Jón Hannes Kristjánsson, sérfræðing í ökutækjatjónum og ökukennara.
2021-09-14
30 min
Snæbjörn talar við fólk
#0069 Helga Vala Helgadóttir
S01E69 – Helga Vala Helgadóttir hefur setið á Alþingi Íslendinga frá árinu 2017, verið umboðsmaður hljómsveitarinnar Mammút og leikið í farandleiksýningum á Bretlandseyjum. Þar er ekki næstum því allt upp talið enda er Helga Vala mjög iðin manneskja. Sjálf lýsir hún sér barnungri sem glöðum brjálæðingi og virðist orkan hvergi nærri þrotin síðan þá. Þótt hún sé ekki með stúdentspróf hefur Helga Vala lokið þremur háskólagráðum, einni í leiklist og tveimur í lögfræði þar sem hún uppgötvaði óvæntan áhuga á skattarétti, og í dag er hún stað...
2021-09-09
2h 39
Snæbjörn talar við fólk
#0068 Bjarni Benediktsson
S01E68 – Bjarni Benediktsson er sjálfstæðismaður. Alveg grjótharður sjálfstæðismaður. Hann er fjármálaráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins og andar stjórnmálum allan daginn. Bjarni er lögfræðingur að mennt og starfaði sem slíkur framan af. Á ferli sínum hefur hann komið við í forsætisráðherrastólnum og komið sér kyrfilega fyrir milli tannanna á fólki. Hann er umdeildur, elskaður og hataður. Bjarni kemur afskaplega skemmtilega fyrir sig orði en var þó afar ragur við ræðuhöld á yngri árum. Hann er stoltur af því að hafa komið Íslandi í gegnum...
2021-09-02
2h 26
Sjóvá spjallið
Spjallið: Kvennahlaupið
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ er árviss viðburður hjá mörgum konum og fjölskyldum þeirra. Hlaupið hefur verið haldið í yfir þrjá áratugi en áherslan í dag er ekki hvað síst á samstöðu kvenna og að hver og ein njóti þess að hreyfa sig á sínum forsendum. Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs Íþrótta og ólympíusambands Íslands, spjallar um Kvennahlaupið við Hrefnu Sigurjónsdóttur, verkefnastjóra forvarna.
2021-09-01
17 min
Draugar fortíðar
#63 Óðs manns æði á úthafinu
Lengi hefur hafið heillað fólk. Ekki aðeins er það matarkista og mikilvæg flutningaleið. Það hefur einnig sérstakt aðdráttarafl sem erfitt er að lýsa í orðum. Þessi rennblauta eyðimörk hefur verið mörgu skáldinu yrkisefni og fólk sem dvalist hefur mánuðum saman á úthafinu hefur lýst alls konar hugbreytingum sem það hefur orðið fyrir. Svo er einnig um manninn sem við segjum frá í þessum þætti. Hann hét Donald Crowhurst og í lok sjöunda áratugar stefndi hann á að sigla í kringum hnöttinn í kappi við þrautreynda siglingamenn. Sjálfur hafði Crowhurst nær enga reynslu af siglingum...
2021-07-28
1h 41
Sjóvá spjallið
Spjallið: Talað um tryggingar
Hvað hugsar þú um þegar minnst er á tryggingar? Tryggingar endurspegla lífið sjálft og er ætlað að grípa fólk á ögurstundu. Oft er reynt er að kjarna þessa hugsun með einföldum skilaboðum og þá er mikilvægt er að tala skýrt og af ábyrgð. Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, spjallar við Daníel Ólafsson, sérfræðing í markaðsdeild Sjóvá, um hvernig ræða má tryggingar á mannamáli auk þess að fá innsýn í fjölbreyttan heim markaðsfræðanna.
2021-07-26
22 min
Snæbjörn talar við fólk
#0061 Unnur Ösp Stefánsdóttir
S01E61 – Unnur Ösp Stefánsdóttir er leikkona fram í fingurgóma en fullyrðir þó að hún hafi verið alveg ömurleg sem slík lengi framan af ferlinum. Hún fékk nýlega aragrúa af Grímuverðlaunum fyrir sýninguna Vertu úlfur sem leikin er af manninum hennar, Birni Thors. STVF vekur athygli á að sýningar á því verki hefjast aftur í ágúst. Þar fyrir utan þekkjum við hana fyrir allt hið góða sem Vesturport hefur sett upp, kvennafangelsisþáttaröðin Fangar var ekkert nema listaverk, en þar kom hún að svo að segja öllu. Hún er trukkur, fjögurra barna...
2021-07-15
3h 42
Sjóvá spjallið
Spjallið: Öryggi rafbíla
Fjölbreyttir fararmátar standa nú fólki til boða. Horft er til vistvænni og hagkvæmari fararmáta og rafbílar hafa rutt sér til rúms hér á landi. Þeir henta íslenskum aðstæðum vel og eru þjóðhagslega hagkvæmir. Því ætti ekki að koma á óvart að sífellt fleiri kjósi að fá sér rafbíl. En það er að ýmsu að huga til að tryggja öryggi og rétta umgengni. Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, spjallar um rafbíla við Hjalta Þór Guðmundsson, forstöðumann ökutækjatjóna.
2021-07-08
26 min
Sjóvá spjallið
Spjallið: Félag í þágu þjóðar
Mikið hefur mætt á sjálfboðaliðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar undanfarið við eftirlit á gosstöðvum. Við treystum á björgunarsveitirnar og slysavarnadeildirnar þegar á reynir og Sjóvá er stoltur aðalstyrktaraðili Landsbjargar. En hvernig varð þetta öryggisnet til og hvernig er því viðhaldið? Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, ræðir við Jónas Guðmundsson, verkefnastjóra slysavarna hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
2021-07-01
20 min
Sjóvá spjallið
Spjallið: Hvað áttu?
Við erum alla ævi að sanka að okkur ýmsum hlutum. Innbúið breytist og þróast og áður en við vitum af eigum við býsna mikið af verðmætum. Því er vert að velta fyrir sér hvað við í raun eigum og hvers virði það er. Jónína Jónsdóttir, sölu- og þjónusturáðgjafi hjá Sjóvá, spjallar um innbústryggingar við Hrefnu Sigurjónsdóttur, verkefnastjóra forvarna.
2021-06-16
09 min
Sjóvá spjallið
Spjallið: Líf- og sjúkdómatryggingar
Lífið er ferðalag og stundum tekur það óvænta stefnu. Veikindi og slys gera sjaldnast boð á undan sér og þá er mikilvægt að vera búin að tryggja sig fyrir mögulegum áföllum. Ágústa Kristín Andersen, sérfræðingur í persónutryggingum, spjallar við Hrefnu Sigurjónsdóttur, verkefnastjóra forvarna, um líf- og sjúkdómatryggingar.
2021-06-09
17 min
Á mannauðsmáli
28. Ágústa Björg Bjarnadóttir - Sjóvá
Við Ágústa hittumst í Akademias stúdíóinu en hún starfar sem forstöðumaður mannauðsmála hjá Sjóvá. Það sem mér hefur þótt einna áhugaverðast við þeirra áherslur eru jafnréttismálin. Þau fá svo sannarlega svigrúm í þessu spjalli en auk þess ræddum við stefnumótunarvinnu sem þau fara í á 2-3 ára fresti þar sem allir starfsmenn taka þátt og leggja sitt af mörkum. Einnig ræddum við um starfsumhverfið og sálfélagslega áhættumatið sem þau leggja mikla áherslu á. Þátturinn er í boði Akademias, Moodup, Mótun og Alfreð.
2021-06-03
56 min
Sjóvá spjallið
Spjallið: Umhverfið í okkar höndum
Umhverfismál eru mörgum ofarlega í huga þessi misserin og fyrirtæki gegna þar stóru hlutverki. Mikilvægt er að þau setji sér umhverfisstefnu og ekki síður að þau fylgi henni eftir. Pálín Dögg Helgadóttir, verkefnastjóri á skrifstofu forstjóra Sjóvár, spjallaði við Hrefnu Sigurjónsdóttur, verkefnastjóra forvarna um hvernig Sjóvá hefur unnið að sinni umhverfisstefnu og af hverju mikilvægt er að fyrirtæki stígi þetta skref.
2021-05-31
28 min
Sjóvá spjallið
Spjallið: Slysavarnir barna
Flest slys á börnum verða í heimahúsum og því er mikilvægt að huga að forvörnum á heimilinu. Í þessum þætti spjallar Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, við Herdísi Storgaard, hjúkrunarfræðing og forstöðukonu Miðstöðvar slysavarna barna.
2021-05-19
22 min
Sjóvá spjallið
Spjallið: Gæludýr í góðum gír
Gæludýr eiga sérstakan stað í hjarta okkar og eru oft og tíðum skemmtilegir persónuleikar sem setja mark sitt á heimilislífið. Stundum lenda dýrin í óhöppum eða veikjast. Erfitt er að standa frammi fyrir þeirri ákvörðun að kostnaður geti haft áhrif eða jafnvel staðið í vegi fyrir að dýr fái viðeigandi aðstoð og meðhöndlun. Þá skiptir máli að vera vel tryggður. Í þessum þætti spjallar Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, við Lindu Maríu Vilhjálmsdóttur, sölu- og þjónusturáðgjafa, um gæludýratryggingar.
2021-04-28
09 min
Snæbjörn talar við fólk
#0048 Valdimar Guðmundsson
S01E48 – Valdimar Guðmundsson er söngvari, básúnuleikari og tónskáld úr Keflavík. Sjálfur segir hann að lítið hafi farið fyrir sér í skóla en í dag eru líklega fáir Íslendingar sem ekki þekkja hann í sjón, sem Maraþonmann Íslandsbanka eða þá fyrir silkimjúka röddina sem berst landsmönnum reglulega á öldum ljósvakans. Valdimar er algjörlega sjálflærður söngvari, að undanskildum þeim hæfileikum sem hægt er að yfirfæra af básúninni yfir á söng. Í dag á Valdimar von á barni með kærustunni sinni og getur ekki beðið eftir að...
2021-04-15
2h 29
Sjóvá spjallið
Spjallið: Rafhlaupahjól í umferð
Rafhlaupahjól hafa á skömmum tíma náð miklum vinsældum hér á landi líkt og annars staðar í heiminum. Í þessum þætti spjallar Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, við Kamilu Dabrowska, sölu- og þjónusturáðgjafa, um rafhlaupahjól og hvað þarf að hafa í huga þegar við þeysumst á þeim um stíga og stræti. Hvernig eru reglurnar og er hægt að tryggja sig fyrir óhöppum?
2021-04-12
15 min
Sjóvá spjallið
Spjallið: Bílprófsapp Sjóvá
Sjóvá og Netökuskólinn hafa búið til tvö öpp sem nýtast vel við undirbúning bílprófsins. Bílprófsappið samanstendur af verkefnum sem sett eru upp alveg eins og bílprófið sjálft og niðurstöðurnar líka. Í appinu Umferðarmerkin er hægt að kynna sér öll umferðarmerkin á einum stað og einfalt er að æfa sig í símanum hvar sem er hvenær sem er. Valgerður Eyja Eyþórsdóttir, framhaldsskólanemi, spjallar hér við Hrefnu Sigurjónsdóttur, verkefnastjóra forvarna, um hvernig öppin nýttust henni við ökunámið.
2021-04-12
13 min
Sjóvá spjallið
Spjallið: Farsóttin og fríið
Eflaust eru margir farnir að huga að sumarfríinu og mögulegum ferðalögum, eftir því sem reglur munu leyfa. Í þessum þætti spjallar Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, við Eyþór Sverrisson, sölu- og þjónusturáðgjafa, um hvað þarf að hafa í huga fyrir ferðalög á tímum farsóttar og hvernig við erum tryggð á ferðalögum.
2021-03-23
09 min
Sjóvá spjallið
Spjallið: Á skíðum skemmti ég mér
Skíðaíþróttin nýtur sífellt meiri vinsælda en það er að ýmsu að huga til að upplifunin verði ánægjuleg og allir komi heilir heim. Í þessum þætti spjallar Hrefna Sigurjónsdóttir, verkefnastjóri forvarna, við Alex Daða Reynisson, sölu- og þjónusturáðgjafa hjá Sjóvá og skíðakappa um hvernig þarf að undirbúa sig áður en haldið er af stað og hvernig við tryggjum okkur í frístundum.
2021-03-23
10 min
Jóns
111. Jóhann Þórsson
Hann var markaðsstjóri Dohop frá 2014-2017, markaðsstjóri Wedo (Heimkaup, Hópkaup og Bland.is) 2017-2018 og hefur starfað sem vefstjóri og sérfræðingur í stafrænum miðlum í markaðsdeild Sjóvá frá ársbyrjun 2019. Jóhann er með BS gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og MSc gráðu í lífupplýsingafræði frá Royal Holloway, University of London.
2020-11-11
49 min
Heilsuvarpid
#11 - OfurGísli: Vaxtarrækt og fitness
Gísli Örn Reynisson Schramm er vafalaust massaðasti lögfræðingur landsins. Enda kallar hann sjálfan sig OfurGísla og heldur úti heimasíðu undir því nafni. Það eru greinilega einhver bætiefni í humrinum þarna fyrir austan því hann er enn eitt hreystimennið frá Hornafirði til að koma í þáttinn. Gísli er alltaf kátur, glaður og hlæjandi. Að hitta hann í ræktinni nærir bæði líkama og sál því fáir taka eins vel á því. Hann er eins og traktor, löðrandi sveittur í hettupeysu að beygla fætur eða rífa í réttstöðu og gefur manni alltaf sveitt knús. O...
2019-04-01
1h 16
Jóns
39. Fannar Ásgrímsson Sjóvá
Fannar Ásgrímsson er vef og nýmiðlastjóri hjá Sjóva Hann hefur komið að vef og markaðsmálum undanfarin ár. Ég fékk Fannar í spjall meðal annars til þess að ræða ferlið á nýjum vef sem kom í loftið hjá Sjóvá fyrir um ári síðan. Vefurinn fékk einnig verðlaun á íslensku vefverðlaununum 2017 sem besti fyrirtækjavefurinn í stærri fyrirtækjum. Vefinn unnu þau í samvinnu með Kosmos & Kaos og Vettvang (Elmar hjá Vettvang var gestur minn í þætti númer 9). Það sem við förum yfir er meðal annars hvernig þú færð allt starfsfólkið með þér í svona verkefni og hversu miki
2017-11-02
45 min