Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Vilhjalmur �or Og Elin Edda

Shows

Mannlegi þátturinnMannlegi þátturinnTölum um endó, ljóð í þágu friðar og Skáldasuð í ReykjanesbæEndósamtökin hafa farið af stað með vitundarvakningarátak undir yfirskriftinni - Þetta er allt í hausnum á þér - þar sem vakin er athygli á þeim hindrunum sem konur og fólk með endó, eða endómetríósu, lendir í heilbrigðiskerfinu og krefjast úrbóta. Næstkomandi þriðjudag verður heimildarmynd samtakanna, Tölum um ENDÓ - ekki bara slæmir túrverkir, sýnd á RÚV. Ásdís Elín Jónsdóttir, einn af viðmælendum í myndinni, kom í þáttinn og deildi sinni reynslusögu. 8. mars næstkomandi er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Af því tilefni munu konur í félagsskapnum Leikhúslistakonur 50...2025-03-0653 minMannlegi þátturinnMannlegi þátturinnTölum um endó, ljóð í þágu friðar og Skáldasuð í ReykjanesbæEndósamtökin hafa farið af stað með vitundarvakningarátak undir yfirskriftinni - Þetta er allt í hausnum á þér - þar sem vakin er athygli á þeim hindrunum sem konur og fólk með endó, eða endómetríósu, lendir í heilbrigðiskerfinu og krefjast úrbóta. Næstkomandi þriðjudag verður heimildarmynd samtakanna, Tölum um ENDÓ - ekki bara slæmir túrverkir, sýnd á RÚV. Ásdís Elín Jónsdóttir, einn af viðmælendum í myndinni, kom í þáttinn og deildi sinni reynslusögu. 8. mars næstkomandi er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Af því tilefni munu konur í félagsskapnum Leikhúslistakonur 50...2025-03-0653 minRauða borðiðRauða borðiðRauða borðið 29. jan - Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkarMiðvikudagur 29. janúar Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkar Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og og Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku bregðast við sparnaðartillögum Viðskiptaráðs og ræða hvatningu ríkisstjórnarinnar um hagræðingu. Benjamín Julian verkastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambandsins fer yfir verð á matvörumarkaði og spáir í hvort samruni Prís og Nettó muni auka samkeppni. Elvar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna og stuðningsmaður íbúalýðræðis í Seyðisfirði og Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður ræða hvort spilling komi við sögu hjá...2025-01-294h 15SamstöðinSamstöðinRauða borðið 29. jan - Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkarMiðvikudagur 29. janúar Hagræðing, spilling, rasismi, reynsluboltar, samkeppni og klassíkin rokkar Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og og Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku bregðast við sparnaðartillögum Viðskiptaráðs og ræða hvatningu ríkisstjórnarinnar um hagræðingu. Benjamín Julian verkastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambandsins fer yfir verð á matvörumarkaði og spáir í hvort samruni Prís og Nettó muni auka samkeppni. Elvar Örn Friðriksson, framkvæmdastjóri Verndarsjóðs Villtra Laxastofna og stuðningsmaður íbúalýðræðis í Seyðisfirði og Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður ræða hvort spilling komi við sögu hjá...2025-01-294h 15Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#49 Sérnámslæknarnir Hilda Hrönn og Arndís Rós um heilsueflandi vinnustaðiHvað er heilsueflandi vinnustaður og hvernig kann það að hafa áhrif á vinnustaðinn þinn? Við fengum tvo öfluga lækna í settið sem sögðu okkur frá eigin reynslu af því að heilsuefla vinnustaðina sína. Þetta er okkur í Hlaupalíf hjartans mál enda trúum við einlæglega á hreyfingu (eins og hlaup) sem frábært tæki til að efla vellíðan og heilsu í eigin lífi, og ekki síður í vinnunni. 2024-10-201h 13Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#48 Arnar Péturs um hlaupalífið og BerlínarmaraþoniðArnar Péturs og Berlínarmaraþonið takk. 3 mín bæting, negatíft splitt og fullkomið hlaup hjá Arnari og fáum því auðvitað ítarlega hlaupasögu í þættinum. Eins og Arnari er vant miðlar hann sömuleiðis úr hlaupa-viskubrunni sínum enda fróðleiksfús með öllu þegar kemur að hlaupum. Þú mátt því ekki missa af þessum þætti. Þátturinn er í boði vaxtalækkunarákvörðun Seðlabanka Íslands. 2024-10-032h 07Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#47 Bitches I'm backSkelltum í einn glóðvolgan þátt í tilefni af okkar uppáhalds degi sem Reykjavíkurmaraþonið er! Gerðum upp hlaupasumarið okkar og fórum yfir epískt CRASH hjá Vilhjálmi eftir Fimmvörðuhálsinn, fjölskyldulífið, geggjaða, eldheita endurkomu Elínar Eddu í hlaupasenunni að ógleymdu STÓRA APRÍKÓSUMÁLINU eftir expoið fyrir Rvk maraþonið!2024-08-261h 09Fram og til bakaFram og til bakaFimm magnaðar matarupplifanir Árna HjörvarsÍ Fram og til baka þennan morguninn var boðið upp á matarumfjöllun frá og með fyrsta kaffibolla en gestur þáttarins í Fimmunni bauð upp á eftirminnilegar matarupplifanir frá sinni leifsleið. Það var tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Árni Hjörvar, sem hefur ferðast um heiminn þvert og endilangt með hljómsveit sinni The Vaccines, sem bauð okkur upp á fimmu dagsins. Frá grásleppu á Grýtubakka í Eyjafirði, til framandi mexíkókrydda, lífsbjargandi baunarétts við rætur Himalayafjalla í tímamótasúpu dagsins á Stofunni í Reykjavík. Í seinni hluta þáttar heyrðum við í Ólafi Björnssyni fosprakka Hammond hátíðar á Djúpavogi sem var í fullum gangi. Loks var nú...2024-04-271h 54Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#46 Enn á hlaupum!Jæja, nýr vorþáttur af Hlaupalíf Hlaðvarp. Í tilefni hækkandi sólar, forsetakosninga og fæðingarorlofs ákváðum við að rífa fram mækana og spjalla aðeins um hlaupalífið í dag og margt margt fleira. Gleðilegt (hlaupa)sumar! :)2024-04-2750 minMannlegi þátturinnMannlegi þátturinnÁföll og endurhæfing, Atli Dagur og póstkort frá MagnúsiVið fræddumst í dag um ráðstefnuna Áföll og endurhæfing sem Félag sjúkraþjálfara stendur fyrir á morgun. Ráðstefnan er þverfagleg og er hugsuð fyrir heilbrigðisstarfsfólk og annað áhugafólk um endurhæfingu fólks með áfallasögu. Þar verða til dæmis flutt erindi um áhrif áfalla á miðtaugakerfið, heilsufarslegum afleiðingum og bata í kjölfar alvarlegra áfalla, samkenndarþreytu, langtímaafleiðingum áfalla og streitu og fleira. Hrefna Indriðadóttir sjúkraþjálfari kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá ráðstefnunni og með henni kom Margrét Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari en hún heldur erindi um lík...2024-03-1350 minMannlegi þátturinnMannlegi þátturinnÁföll og endurhæfing, Atli Dagur og póstkort frá MagnúsiVið fræddumst í dag um ráðstefnuna Áföll og endurhæfing sem Félag sjúkraþjálfara stendur fyrir á morgun. Ráðstefnan er þverfagleg og er hugsuð fyrir heilbrigðisstarfsfólk og annað áhugafólk um endurhæfingu fólks með áfallasögu. Þar verða til dæmis flutt erindi um áhrif áfalla á miðtaugakerfið, heilsufarslegum afleiðingum og bata í kjölfar alvarlegra áfalla, samkenndarþreytu, langtímaafleiðingum áfalla og streitu og fleira. Hrefna Indriðadóttir sjúkraþjálfari kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá ráðstefnunni og með henni kom Margrét Gunnarsdóttir sjúkraþjálfari en hún heldur erindi um lík...2024-03-1352 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#45 Helen ÓlafsdóttirHelen Ólafsdóttir hefur náð mjög góðum árangri á sviði langhlaupa og í þríþraut og er ein af þessum fyrirmyndum sem hefur náð mjög langt þrátt fyrir að hafa byrjað “seint” ef svo má að orði komast. Það geislar af henni þessi þolíþróttaljómi sem þekkist svo vel á íþróttafólki. Hún hefur fært sig yfir í þríþraut sökum meiðsla og á stuttum tíma náð mjög miklum árangri. Helen segir okkur frá sínu hlaupa- og íþróttalífi, framtíðarmarkmiðum, bataferli eftir höfuðhögg o.fl. o.fl. 2023-04-071h 07Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#44 Búi Steinn KárasonJæja loksins erum við í Hlaupalíf búin að dusta rykið af hlaðvarpsgræjunum og þá var enginn betri til að mæta í settið en hlaupakóngurinn Búi Steinn Kárason.  Búi er vel kunnugur í hlaupasamfélaginu enda tekið þátt í hinum ýmsum stórhlaupum. Við höfum séð hann keppa í hlaupum sem spanna allt frá 3000m upp í 161 km og oftar en ekki sigrað þessi hlaup og verið á frábærum tímum. En hver er Búi, hvernig varð hann svona feyki góður hlaupari og hvað er á döfinni hjá honum? Við komumst að því í þessu viðtali ásamt fjölmörgu öðru enda áttum við virkile...2023-02-211h 21Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#43 Lífið er allskonar, en það er alltaf hlaupalífHlaupalíf og hlaupalífið er aftur mætt með flúnkunýjan þátt!2022-11-1138 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#42 Hlaupafrumkvöðullinn Helga Árnadóttir um hlaupalífið á Höfn!Í nýjasta þætti af Hlaupalíf brugðum við aðeins út af vananum og heimsóttum höfuðborgina á suðausturlandi: Höfn í Hornafirði. Við hittum þar fyrir Helgu Árnadóttur, hlaupafrumkvöðul og hlaupaþjálfara, sem sagði okkur frá Hlaupalífinu á Höfn og skyggðumst aðeins betur inn í heim hlaupara á landsyggðinni og margt margt fleira!2022-05-2754 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#41 Hlaupalífið í dagLangþráður NÝR þáttur hjá okkur í Hlaupalíf. Vorið er komið, engar appelsínugular viðvaranir, hlaupasumarið að hefjast og allir hlauparar (og aðrir) peppaðir eftir því. Í þessum þætti förum aðeins yfir hlaupalífið okkar í dag, áskoranir í persónulega lífinu undanfarin misseri og spáum aðeins í hlaupasumrinu, hvað eru skemmtilegustu hlaupabrautirnar o.m.fl. TAKK fyrir að hlusta! :)2022-05-0839 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#40 Afsakið hléAfsakið hlé og þáttur númer 40 - TAKK. Eins og svo margir aðrir jarðarbúar þá þurftum við að slá lífinu á frest þegar við smituðumst af Covid-19. Stutt spjall okkar á milli í Hlaupalíf um lífið í einangrun, að horfa á björtu hliðarnar og að sjálfsögðu hlaupalífið eftir einangrun. 2021-12-0532 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#39 Arnar Pétursson: Uppbygging æfingatímabilsinsNú er keppnistímabilinu að ljúka hjá mörgun hlaupurum og nýtt tímabil að hefjast. Hvernig er best að byggja hlaupatímabilið upp með réttum hætti fyrir næstu hlaup sem við erum að stefna að? Og AF HVERJU er þetta svona mikilvægt?   Allt þetta og auðvitað miklu meira til  (svo gaman að tala um hlaup, er það ekki?) í þessu úber góða spjalli við hlaupafrömuðinn Arnar Pétursson. ENJOY!  Þátturinn er í boði, Serrano, verslunarinnar Sportvörur og www.sjalfsbetrun.is2021-10-241h 16Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#38 Sigmar Guðmundsson: hvernig hlaupin geta hjálpað í batanum við fíknisjúkdómÍ 38# þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við fjölmiðlamanninn, frambjóðandann en fyrst og fremst HLAUPARANN Sigmar Guðmundsson til okkar í settið. Við í Hlaupalíf höfum alltaf haft áhuga á að heyra hvernig fólk vinnur úr alcoholisma eða öðrum fíknisjúkdómi með hlaupum og hvernig þau geta stuðlað að breyttum lífsstíl með einum eða öðrum hætti. Slíkt hefur svo sannarlega hefur gerst hjá Sigmari sem er orðinn dolfallinn utanvegahlaupari. Kannski getur þessi saga hjálpað öðrum í sambærilegum aðstæðum eða verið einhverskonar hvatning fyrir fólk í sambærilegum aðstæðum. Það fer nefnilega e...2021-09-151h 17Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#37 Andrea Kolbeins um sub-5 í Laugaveginum og hlaupalífið!Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp (#37) fengum við enga aðra en Laugavegs-sigurvegarann Andreu Kolbeindóttur í settið og fórum yfir mál málanna: hvernig hleypur maður Laugaveginn á 4:55 og brýtur þar með múr múranna; 5 klst-múrinn! Þrátt fyrir ungan aldur á Andrea nú þegar magnaðan hlaupaferil í ýmsum vegalengdum allt frá brautarhlaupum að últra hlaupum, sem gerir hana að þeirri einstöku hlaupakonu sem hún er. Við fórum yfir allt þetta og meira til, m.a hvernig framtíðin lítur út hjá Andreu, hver draumamarkmiðin eru, hvernig gekk að æfa fyrir Laugaveginn og margt fleira. Það...2021-08-041h 25Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#36 Allt sem þú þarft að vita um Baldvin Þór MagnússonHver er Baldvin Þór Magnússon? Jú, ekki nema þrefaldur Íslandsmethafi og einn allra besti hlaupari okkar Íslendinga. Við í Hlaupalíf tókum strangheiðarlegt viðtal við þennan unga og efnilega hlaupara sem hefur vakið talsverða athygli í hlaupaheiminum. Baldvin er hægt og rólega byrjaður að slá nokkur Íslandsmet í hlaupum og er jafnframt að gera stórgóða hluti með háskólaliðinu sínu í Bandaríkjunum, sem er sami skóli og Hlynur Andrésson var í. Skemmtilegt. Ef þú vilt kynnast einum besta hlaupara okkar Íslendinga þá máttu ekki missa af þessu viðtali, takk.  Þátturinn er í boði Sportval og Serrano.2021-07-021h 07Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#35 Ragnheiður um 100 mílurnarÍ nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við Ragnheiði Sveinbjörnsdóttur í settið en hún sigraði 100 mílna hlaupið í Hengil-Ultra í byrjun júní sl. Hvernig er að keppa í 161 km hlaupi, hvernig æfir maður sig fyrir svona langt hlaup og hvernig var að takast á við afar krefjandi aðstæður sem komu upp í hlaupinu? Allt þetta og meira til förum við yfir með Ragnheiði sem segir okkur frá þessari ofur þrekraun.2021-06-131h 11Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#34 Hlaupum af okkur sorginaÍ nýjasta þætti af Hlaupalíf fórum við eilítið inn á við. Það er ýmislegt búið að gerast í lífi okkar og ákveðið sorgarferli frá seinasta þætti sem við förum yfir og ræðum hvernig hlaup og önnur hreyfing hefur hjálpað okkur við eftirköst sorgarinnar. Ræðum ekki bara hlaup, heldur einnig aðra þætti tengda hreyfingu. Förum einnig yfir ákveðna tilraun sem við höfum verið að prófa sem tengist atlögu Vilhjálms að fyrsta maraþonhlaupinu í lok sumars!2021-05-161h 07Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp# 33 Guðbjörg Jóna: leiðin að Ólympíudraumnum, frjálsíþróttir á Íslandi og afreksíþróttalífiðÍ þætti dagsins fengum við hina kornungu hlaupastjörnu Guðbjörgu Jónu, sem er einn efnilegasti frjálsíþróttamaður okkar Íslendinga í dag. Það vita það kannski ekki allir, en Guðbjörg er ekki bara margfaldur íslandsmethafi og boðberi frjálsíþróttarinnar hér á landi, heldur líka heimsmethafi. Komum nánar að því í viðtalinu! Hún hefur einnig verið áberandi í fjölmiðlum að undanförnu og stendur fyrir málstað frjálsíþróttafólks hér á landi. Hér kemur Guðbjörg Jóna og saga hennar, GJÖRIÐISVOVEL.2021-03-191h 34Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#32 Prófessor Erlingur Jóhannsson um ofþjálfunNýjasti þáttur Hlaupalíf Hlaðvarp #32 er tileinkaður ofþjálfun. Af hverju ofþjálfun? Jú við höfum heyrt af því að hlauparar hafa í gegnum tíðina lent í einkennum vegna æfinga sem gætu bent til ofþjálfunar. Til að ræða þetta atriði betur og fá nánari útskýringar á viðfangsefninu fengum við til okkar í settið Erling Jóhannsson prófessor í íþrótta- og heilsufræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Við ræddum þessi málefni í þaula ásamt feril Erlings en Erlingur var afreksmaður í íþróttum og á hann á til dæmis ennþá Íslandsmetið í 800 metra hlaupi sem var se2021-02-211h 10Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#31 Guðrún Sóley Gestsdóttir: Stemningshlaupari í vegan spjalli!Í þætti dagsins sem  tileinkaður er VEGANÚAR  fengum við sjálfskipaða veganklappstýru Íslands, enga aðra en Guðrúnu Sóleyju Gestsdóttur, fjölmiðladrottningu. Við fórum yfir víðan völl, hlaupaferil og hlaupalífsviðhorf Guðrúnar, vegan og plant based umræður og tengslin þar við hlaup. Fyrst og fremst djúpt og einlægt, en í senn bráðskemmtillegt viðtal við hressa og skemmtilega manneskju. Spennandi viðtal fyrir forvitið fólk um mataræði og lífið almennt!2021-01-311h 57Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#30 Stefán Bragi Bjarnason: ,,Vonum það BESTA en undirbúum okkur fyrir það VERSTA''!Í 30. þætti af Hlaupalíf fjöllum við um hlaup að vetri til og öryggi. Sífellt fleiri og fleiri vilja hlaupa allan ársins hring, sem er að sjálfsögðu hið besta mál ef vari er hafður á.  Slysin gera ekki boð á undan sér og hægt er að bjarga mannslífum með fyrirbyggjandi aðgerðum. Það koma reglulega  fréttir af björgunaraðgerðum og margir hafa farist í hlíðum Esjunnar þrátt fyrir mikla reynslu á fjöllum.  Okkur langar því að fara ítarlega yfir öryggisatriði í utanvegahlaupum að vetri til og fengum til okkar frábæran gest, Stefán Braga Bjarnason stó...2020-12-221h 11Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#29 Martha Ernstsdóttir DROTTNINGARVIÐTAL!Gestur þáttarins er stór. Mjög stór, en samt pínulítil. Þetta er engin önnur en fremsta afrekskona Íslendinga í hlaupum, Martha Ernstsdóttir ofurhlaupari. Við förum meðal annars yfir viðburðaríkan feril Mörthu, Ólympíuleikana 2000 í Sidney, fjölmörgu Íslandsmetin hennar en fyrst og fremst fáum við að kynnast persónunni sem hún hefur að geyma og fallegu lífsviðhorfi hennar. Þetta er alveg sannkallað drottningarviðtal við litríka persónu sem ENGINN má missa af. 2020-11-152h 16Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp*28 Torfi Leifs....maðurinn á bakvið HLAUP.ISÞað kannast eflaust flestir við heimasíðuna www.hlaup.is. Þar getur fólk flett upp hlaupadagskrá, myndum, pistlum og almennum fróðleik o.fl. o.fl. Nýverið var ný síða sett á laggirnar - virkilega flott framtak - og okkur langaði aðeins að forvitnast um Torfa Leifsson, sem er svona “pabbi” hlaup.is. Hvað er það sem drífur Torfa áfram og fær hann til að halda áfram að vinna alla þessa vinnu fyrir okkur - og hver er Torfi? Þetta eru spurningar sem eflaust hafa brunnið á flestum Íslendingum til lengri tíma og í dag, kæru hlustendur, fáiði svarið við 2020-10-261h 00Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#27 Íris Anna um hlaup og BARNEIGNIRÍ upphafi þáttar förum við yfir helstu atriði í hlaupavikunni sem leið o.fl. :D en aðalumræðu efni þáttarins er svo barneignir og hlaup. Við förum yfir nokkur grunnatriði í tenglsum við barneignir og hlaup og hvert maður getur leitað með almenn ráð bæði hvað varðar hreyfingu á meðgöngunni sjálfri og eftir barnsburð. Ræðum við Írisi Önnu Skúladóttur sem hefur gengið með fjögur börn á seinustu átta árum og púslar nú fjölskyldulífi, atvinnulífi og íþróttaferli. Hún hefur verið með fremstu hlaupakonum Íslands um árabil og deilir sinni reynslu af því að hreyfa...2020-10-091h 09Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#26 Umfjöllun um langvarandi meiðsliHlaupalíf hefur loksins skriðið úr sumardvalanum! Í þessum þætti fjallar Vilhjálmur Þór um sína eigin baráttu við langvinn meiðsli sem komu vegna hlaupa. Í þættinum rekjum við meiðslasöguna og hvernig hann fer (vonandi) með rétt hugarfar og langtímasýn í gegnum hæðir og lægðir sem fylgja langtímameiðslum. Fyrr á þessu ári tók hann ákvörðun sem reynist flestum hlaupurum erfið; að leggja alveg niður hlaup á meðan hann var að einbeita sér að því að ná að líða betur í eigin líkama og áhugavert að heyra hvernig honum líður með það. Í spjallin...2020-09-1454 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#25 Guðni Páll Pálsson um LAUGAVEGINNÍ nýbökuðum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við landsliðs- og ofurhlauparann Guðna Pál Pálsson í settið sem ræddi við okkur um mál málanna þessa dagana: LAUGAVEGINN. Hvernig er best að undirbúa sig, hvaða búnaður hentar og hentar ekki. Næring, endurheimt, algeng mistök og andlegi þátturinn eru svo allt málefni sem við fórum yfir með Guðna sem hlaupið hefur Laugaveginn 4x og fyrir Íslands hönd á HM í fjallahlaupum nokkrum sinnum og því vel til fallinn að ræða þessi mál við  okkur!2020-07-101h 20Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#24 Guðlaug Edda: Einn fremsti þríþrautarkeppandi okkar ÍslendingaÍ nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við þríþrautardrottninguna Guðlaugu Eddu til okkar í bráðskemmtilegt  viðtal. Guðlaug er einn fremsti þríþrautariðkandi okkar Íslendinga og var (og er) afar nálægt því að komast á Ólympíuleikana 2021 í Tokyo. Guðlaug leggur gríðarlegan metnað og vinnu í íþróttina og uppsker eftir því. Það var virkilega gaman að taka viðtal við Guðlaugu, sjálfstraustið geislar af henni og áhugi hennar á íþróttum almennt er svo sannarlega smitandi sem allir geta tekið til sín. ENJOY! :D2020-06-211h 28Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#23 Fjöll á höfuðborgarsvæðinu!Í GLÆnýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fórum við heldur betur á stúfana og rannsökuðum hvaða fjöll og tinda eru heppileg fyrir okkur hlaupara að hlaupa á höfuðborgarsvæðinu. Það er fátt betra en að láta hugann reika í fjallahlaupi og/eða fjallagöngu og njóta sín í náttúrunni og vildum við kanna hvaða leiðir væru þar í boði. Þá er það umtalað að slíkar fjallaæfingar eru þrælöflugar , sérstaklega fyrir STYRKINN. Endilega njótið og fáið góðar hugmyndir fyrir nýju fjallahlaupi í nágrenni Reykjavíkur!2020-06-0656 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#22 Uppáhalds hjá Hlaupalíf!Í þætti dagsins tókum við hjá Hlaupalíf gott spjall hvort við annað til að dreifa huganum á þessum tímum. Hvernig höfum við notað  allan þann tíma sem hefur losnað í hjá okkur að undanförnu og hvaða áskoranir við höfum þurft að takast á við? Við fórum einnig yfir ýmislegt í okkar uppáhaldi til að auka á almenna GLEÐI OG GLEÐIHORMÓNA og til að koms með TILLÖGU að einhverju skemmtilegu til að lesa, gera, elda eða hlusta á! 2020-04-2055 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#21 Dr. Erla Björnsdóttir um SVEFN og íþróttir!#21. Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp tókum við spjall við svefnsérfræðinginn Dr. Erlu Björnsdóttur sem ræddi við okkur um svefn í tengslum við íþróttir. Ansi margir punktar sem við hlauparar og fólk bara almennt geta tekið til sín. Oft eru þetta hlutir sem við eigum að vita og erum fljót að gleyma, en um LEIÐ og maður fær að heyra það frá Erlu þá vill maður svo sannarlega taka þessa punkta til sín. Við fórum m.a yfir svefn kvöldið fyrir keppnishlaupið, svefnskuldina á kostnað æfinga og almennt yfir mikilvægi svefns...2020-04-061h 03Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp# 20 Stóra hlaupinu aflýst/frestað - HVAÐ SVO?Í nýjasta þætti fórum við í Hlaupalíf aðeins yfir stöðuna hjá okkur hlaupurum í þessu blessaða ástandi sem er í gangi. Búið að fresta eða aflýsa flestum hlaupakeppnum næstu vikurnar, margir í sóttkví eða eingangrun og enn fleiri að velta fyrir sér hvað hægt er að gera keppnislega og æfingalega séð næstu misserin til að halda sér í toppformi og hamra inn góðu bætingahlaupi síðar á árinu!2020-03-2047 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#19 Birna Varðar um átraskanir, næringu og önnur tengd málefniÍ nýjasta þætti af Hlaupalíf fengið við í hús frumkvöðulinn, næringaspekúlantinn og hlauparann Birnu Varðar. Birna er með BS gráðu í næringafræði og MS í þjálffræðivísindum (hversu töff gráða?)   og sagði okkur frá mikilvægi næringar fyrir heilsu og árangur í íþróttum og sérstaklega í hlaupum, en Birna hefur sjálf lent í alvarlegum fylgikvillum fyrir nokkrum árum tengt þessu sem við förum vel yfir í þættinum og uppbygginguna eftir það, m.a þegar Birna afrekaði að vera Íslandsmeistari í kraftlyftingum! Góð og þörf umræða sem vert er að vekja athygli á sérstaklega þar sem í vikunni er2020-02-261h 19Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#18 Hlynur Andrésson: Afrekshlaupari og margfaldur ÍslandsmethafiÍ nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp tókum við viðtal við hinn margfalda Íslandsmethafa og afrekshlaupara Hlyn Andrésson.  Hlynur spjallaði við okkur um hlaupaferilinn, afreksmannalífið, öll þessu frábæru Íslandsmet sem Hlynur hefur verið að setja undanfarin misseri en hann setti meðal annars Íslandsmet í 10 km götuhlaupi í mars 2019 er hann hljóp á 29:49 mín og bætti þar með 36 ára gamalt hlaupameistarans Jóns Diðrikssonar - magnað! Virkilega áhugavert að heyra sögu þeirra sem eru í fremsta flokki og setja markið hátt og getum við hin eflaust lært mikið af :D2020-01-2159 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp# 17 Áramótaannáll Hlaupalíf Hlaðvarp 2019!Í áramótaannál hjá okkur í Hlaupalíf Hlaðvarp förum við yfir hlaupaárið 2019, hvað stóð upp úr innanlands  og erlendis. Förum yfir ýmsa flokka eins og Laugaveg ársins, dugnað og skandal ársins sem og óvæntasta innlenda og erlenda atvik ársins OG MARGT MARGT FLEIRA.  Þökkum ykkur kæru hlustendur svo KÆRLEGA  fyrir árið sem er að líða og hlökkum til nýs hlaupaárs! 2019-12-3139 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp# 16 Hlaupabókarýni hjá Hlaupalíf Hlaðvarp með Arnari PéturssyniÍ glænýjum þætti bregðum við aðeins út af vananum og dettum í bókagírinn og rennum yfir nokkrar spennandi hlaupabækur sem eru á boðstólnum. Af því tilefni fengum við rithöfundinn Arnar Pétursson til að segja okkur frá Hlaupabókinni sem hann er að gefa út og förum einnig yfir uppáhalds hlaupabækurnar hans Arnars. Þar sem það eru nú einnig að koma áramót spurðum við Arnar út í hlaupaárið 2019 og hvaða markmið hann verður með á nýju ári. SPENNANDI. Þið megið ALLS EKKI missa af þessum þætti ef þið þurfið að fá góðar hlaupabóka hugmyndir og s...2019-12-191h 01Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp# 15 Sævar Skaptason: Á sjötugsaldri og hlaupandi um allar trissur.....!Sævar Skaptason 61 árs gamall framkvæmdastjóri ferðaþjónustu Bænda og útivistargarpur er viðmælandi þáttarins! Í þættinum segir hann okkur ýmsar skemmtilegar sögur  en hann hefur greinilega upplifað ýmislegt á hlaupaferðum sínum í gegnum árin. Einnig segir hann leyndardóminn við því að halda sér í topp formi á sjötugsaldri. Fróðlegt viðtal sem bætir enn einu púsluspilinu við hlaupasögu okkar hér á Íslandi, en við í Hlaupalíf Hlaðvarp höfum svo gaman af að kynnast henni og langar að leyfa ykkur að njóta með okkur!2019-12-011h 12Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp# 14 Maraþon - svo mikið meira en bara að hlaupa# 14 Í splunkunýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp verður þáttastjórnandinn Elín Edda að viðmælanda  í stórmerkilegu viðtali eftir heimkomuna frá Frankfurt maraþoninu þar sem Elín hljóp sitt annað maraþon á 2:44;48 klst og bætti þar með tímann sinn um rúmar 4 mín. Í sínum maraþon undirbúningi hefur Elín Edda verið með fjölmargar undirbúningspælingar sem hún miðlar frá sér í viðtalinu sem við vonum að aðrir geta nýtt sér í sínum undirbúningi og má þar nefna vangaveltur er snerta næringu, svefn, matarræði st...2019-11-0556 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp# 13 Rannveig Oddsdóttir: Um OCC í Ölpunum og önnur AFREKÍ #13 þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp birtum við STÓRskemmtilegt viðtal við reynsluboltann Rannveigu Oddsdóttur sem hefur afrekað fjölmargt á sínum hlaupaferli, bæði á götunni og í utanvegahlaupum og er hún til að mynda nýkomin heim frá frönsku Ölpunum með 3 sætið í farteskinu frá OCC hlaupinu sem er eitt þekktasta utanvegahlaupið í dag. Við í Hlaupalíf höfum einmitt prófað að hlaupa á þessu svæði og það verða ALLIR að prófa að hlaupa þarna, alvöru landslag.  Í viðtalinu förum við rækilega yfir hlaupaferilinn, meiðslasöguna aðrar skemmtilega hlaupapælingar með Rannveigu.  Bráðskemmtilegt og...2019-10-181h 11Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#12 Mun hið ómögulega gerast? Sub2 maraþon framundan - Vignir Már LýðssonEins og margir vita þá ætlar maraþon- og ofurhlauparinn Eliud Kipchoge að reyna hið ómögulega; hlaupa heilt maraþon á undir 2 klst  í Austurríki í okt. (ca 21 km/klst á brettinu!). Hreint út sagt sturlað, ekki satt? Til þess að fara yfir þessa tilraun og heyra aðeins sögu Kipchoge sem hægt er að læra mikið af,  fengum við til okkar í settið Vigni Má Lýðsson sem er allra manna fróðastur um hlaup hér á landi - GoKipchoge!2019-10-031h 02Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp# 11 Kári Steinn um maraþonhlaupÓlympíufarinn og Íslandsmethafinn í heilu og hálfu maraþon Kári Steinn Karlsson kíkti til okkar í settið þar sem við fórum yfir hlaup hlaupanna: MARAÞON!  Í síðari hluta viðtalsins fórum við svo yfir hlaupaferilinn hjá Kára sem er auðvitað afar áhugaverður og er virkilega gaman að heyra þennan ofurhlaupara segja frá sínum hlaupa afrekum sem eru magnaðir. 2019-09-221h 21Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp# 10 Pétur í Boss; í BESTA formi lífs síns - Pétur ÍvarssonVið erum búin að vera ótrúlega spennt að birta næsta þátt en hinn margreyndi maraþonhlaupari og verslunarstjóri Pétur Ívarsson settist niður með okkur í vikunni. Við fórum meðal annars yfir hlaupaferilinn, reynsluna hans frá Reykjavíkurmaraþoninu en þar náði Pétur flottri bætingu. Förum einnig yfir frægu jakkafatamaraþonin, ennþá frægari hlaupahúðflúrin og hvað hlauparar þurfa að gera til að ná undir 3 klst í maraþoni. Það verður enginn ósvikinn af þessu viðtali, hvort sem þú ert hlaupari eða ekki, enda Pétur ótrúlega jákvæður, hress og hreinskilinn viðmæland2019-08-311h 13Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#9 Hlaup og andleg áföll - Gréta Rut BjarnadóttirÍ 9. þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við í settið Grétu Rut Bjarnadóttir ung-langhlaupara og tannlæknanema sem sagði okkur frá reynslu sinni  sem hún og maki hennar lentu í síðastliðið haust og hvernig hún tók á því með hlaupunum. Virkilega áhugaverður og hreinskilinn viðmælandi sem hefur sögu að segja sem snertir okkur öll, enda lendum við öll í skakkaföllum í lífinu sem við tökum á með mismunandi hætti.  2019-08-1745 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#8 Í fantaformi á besta aldri - Trausti Jarl ValdimarssonTrausti Jarl Járnkarl Valdimarsson læknir, langhlaupari og þríþrautarkeppandi, nýkominn heim frá Spáni þar sem hann keppti í Járnkarlinum, sem er ekki frásögu færandi nema að hann er rétt rúmlega sextugur og eflaust í besta formi lífs síns. Trausti sem byrjaði að æfa langhlaup um þrítugt er í dag margreyndur langhlaupari, hefur m.a hlaupið undir 3 klst í maraþoni, sigrað Tíbetmaraþonið 2008, keppt reglulega í járnkarlinum og hlaupið yfir 100 sinnum í Powerade keppnum. Þvílík fyrirmynd sem hann er og langaði okkur hjá Hlaupalíf Hlaðvarp að heyra hans sögu, ekki nema bara til þ...2019-07-281h 00Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#7 VEL nærðir hlauparar - Elísabet MargeirsdóttirÍ 7. þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við næringafræðinginn og  ofurlanghlauparann Elísabetu Margeirsdóttur í sófann þar sem við fórum yfir mál málanna: NÆRINGU. Umræðuefnið sem allir hafa áhuga á og allir vilja skilja (grimmt rím) en eiga kannski erfitt með að ná utan um. Við vonum að hlustendur verði a.m.k einhverju nær um næringu eftir þennan þátt! 2019-07-121h 12Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#6 Hleypur með landsliði og bjargar mannslífum - Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir#6 SplunkuNÝR þáttur kominn í loftið, en viðmælandi þáttarins var fyrirmyndin, ofurhlauparinn og hjartalæknarinn Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir sem er nýkomin frá HM í utanvegahlaupum í Portúgal. Við ræddum um landsliðsferilinn, lækna- og fjölskyldulífið, næstu markmið hjá Þórdísi og margt margt fleira.2019-06-291h 03Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#5 Í hverju á ég að keppa í sumar?Veistu ekki í hvaða hlaupi þú átt að KEPPA í? Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp ,,Í hverju á ég að keppa í sumar’’ förum við yfir hlaupasumarið í götu-, utanvegahlaupum o.fl. Við förum yfir hvaða hlaup hafa verið vinsælust, hvaða hlaup eru líkleg til bætinga og margt margt margt fleira. Einnig birtum við nokkur viðtöl sem við tókum við nokkra hlaupara eftir Hvítasunnuhlaup Hauka. ENJOY!2019-06-1458 minHlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#4 Er ég meiddur eða er ég aumingi? Arnar PéturssonÍ fjórða þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við langhlauparann, þjálfarann og rithöfundinn Arnar Pétursson í settið og fórum yfir það umræðuefni sem allir hlauparar (og  aðrir íþróttamenn) hræðast hvað mest: Meiðsli og hvernig við komum í veg fyrir þau og hvaða viðvörunarbjöllur þurfum við að vera meðvituð um til að koma í veg fyrir meiðsli. Virkilega áhugavert umræðuefni sem allir íþróttamenn geta tengt við og ekki verra að spjalla við viðmælanda sem eru stútfullur af fróðleik um hlaupatengd málefni og hefur brennandi áhuga á öllu því sem við kemur2019-05-291h 36Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#3 Hugarheimur atvinnuhlaupara frá USA - Sage CanadayÍ splunkunýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp hittum við Sage Canaday bandarískan atvinnuhlaupari sem er hvað þekktastur fyrir að halda úti vinsælli hlaupasíðu á youtube sem margir Íslendingar þekkja til, (sjá link að neðan). Sage er þó einnig gríðarlega öflugur hlaupari sem hefur sigrað fjölmörg alþjóðleg utanvegahlaup og hefur keppt í maraþoni á bandaríska úrtökumóti fyrir Ólympíuleikana.  Ef þú vilt vera atvinnuhlaupari nú eða hefur kannski bara frekar áhuga á að heyra hvernig líf atvinnuhlaupara er,  þá getum við svo sannarlega mælt  með þessum þætti!  * Youtube síða Sage: https://www.youtube.com/user/Vo2maxPro...2019-05-161h 05Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#2 Bætingar á fimmtugsaldri - Þórólfur IngiÍ fyrsta þættinum  af Hlaupalíf Hlaðvarp  hittum við hlaupasnillinginn Þórólf Inga Þórsson sem hefur verið að brillera á öllum hlaupavígstöðvunum hérna heima undanfarin misseri.  Ótrúlega áhugaverður viðmælandi, meðal annars farið yfir markmiðasetningar, andlegar pælingar, bætingar á aldursflokkametum og heilbrigðan lífsstíl. Njótið! 2019-05-021h 18Hlaupalíf HlaðvarpHlaupalíf Hlaðvarp#1 Kynningarþáttur: Af litlum neista verður mikill eldurNú er komið að því sem allir hafa verið að bíða eftir. Glænýr Hlaðvarpsþáttur, "Hlaupalíf Hlaðvarp", hefur litið dagsins ljós! Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór. Við erum bæði langhlauparar og höfum mikla ástríðu fyrir hlaupum. Þessi fyrsti þáttur er almenn kynning á okkur og við hverju þið megið búast af þáttunum okkar. Við munum gefa út þætti tvisvar mánaðarlega og tölum um allt milli himins og jarðar í tengslum við hlaup.  Njóttu ferðalagsins með okkur! 2019-05-0210 min