podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Eyruntelma
Shows
Endókastið
37. Þáttur - Heiðdís María
Ef þú myndir fletta upp orðinu nagli í orðabók kæmi mynd af Heiðdísi Maríu, hún hefur þurft að labba á marga veggi til að fá lausn mála sinna og kafa djúpt eftir þolimæði til að komast í gegnum þau verkefni sem lífið hefur gefið henni. Heiðdís er einstök perla sem segir okkur frá hennar lífsins sögu, sem auðvitað inniheldur endó líka.
2025-07-30
45 min
Endókastið
36. Þáttur - Ung með endó
Karen og Unnur fóru yfir það hvernig það er að vera ungur með endó og fyrstu árin þegar þær fóru að finna fyrir einkennum.
2025-07-23
35 min
Endókastið
35. Þáttur - Ragnar Ró CBD
Við fengum til okkar hann Ragnar, annan eiganda Ró CBD. Við ræddum við hann um endó og fyrirtækið meðal annars. Fróðlegur og áhugaverður þáttur.
2025-07-18
36 min
Endókastið
34. Þáttur - Frægar konur með Endó
Við tókum saman nokkrar frægar konur með Endó og einnig þær sem hafa glímt við ófrjósemi, fósturlát og talað um það opinsgátt. Þáttur sem við ræðum hlutina á léttu nótunum.
2025-07-10
28 min
Endókastið
33. Þáttur - Unnur Regína
Unnur Regína er ný kynningarstýra Endósamtakanna, Unnur er ekki bara klár og fyndin, heldur reynslubolti með þunga endósögu. Unnur tekst á við lífið með húmor og von sem gæti peppað mjög marga. TW á þáttinn þar sem við ræðum ófrjósemi og sjálfsskaða.
2025-07-02
57 min
Endókastið
32. Þáttur - Endó, hver er okkar ofurkraftur?
Við fengum Unni okkar til þess að hlaupa í skarðið fyrir Eyrúnu í þessum þætti og ræða þær Karen um hvaða ofurkraft endókonur geta búið yfir, hvort sem þær séu búnar að átta sig á því eða ekki. Orkumikill þáttur með húmor og sjálfsstyrkingu.
2025-06-25
28 min
Endókastið
31. Þáttur - Þórunn Ívars
Þórunn Ívars mætti til okkar í skemmtilegt og einlægt spjall. Þórunn lagði spilin á borðið og segir frá sinni endó sögu, ásamt því að ræða ófrjósemi og meðgöngu. Þrátt fyrir ótrúlega flókna sögu þá er húmorinn ekki langt undan hjá henni sem gerir þetta að ennþá skemmtilegra spjalli. Við setjum TW á þennan þátt.
2025-06-18
1h 10
Endókastið
30. Þáttur - Hlutir sem gera dag með endó betri
Þátturinn sem við leyfðum Chat gbt að hjálpa okkur að búa til spurningar, léttur þáttur sem mögulega gerir daginn þinn betri eða kemur með spurningar sem fá þig til að hugsa hvernig þú getur gert daginn betri.
2025-06-13
24 min
Endókastið
29. Þáttur - Eydís Sara Óskarsdóttir
Eydís Sara er mætt aftur, nú deilir hún endósögunni sinni og því að vera ófrísk með endó. Heiðarlegt, einlægt og oft erfitt spjall sem þarf samt sem áður að heyrast. Þátturinn getur verið triggerandi vegna óléttu og átröskunar.
2025-06-04
49 min
Endókastið
28. Þáttur - Sumarið og peppið
Þegar sólin fer að skína léttist lundin og orkan eykst, við með endó gleymum okkur oft í gleðinni og lendum svo á vegg nokkrum sinnum yfir sumarið. Við vinkonurnar töluðum opið um allar tilfinningarnar sem tengjast sumrinu og rútínuleysinu.
2025-05-28
28 min
Endókastið
27. Þáttur - Kristjana
Kristjana fyrrum ritari endósamtakanna kom í spjall um sína endó vegferð, Kristjana hefur fengið allskyns verkefni í lífinu og tekst á við þau með lausnum og bros á vör. Viðtalið fjallar meðal annars um barneignaferli og gæti stuðað einhvern en á sama tíma heiðarleika um ferlið.
2025-05-21
41 min
Endókastið
26. Þáttur - Að detta útaf vinnumarkaði
Þátturinn sem hefur verið óskað eftir frá okkur, við förum yfir leiðir okkar af vinnumarkaði og á hann aftur. Ræðum hvað hjálpaði okkur og hvað ekki. Vonandi er þetta þátturinn sem svara spurningum um endó og skerta vinnugetu.
2025-05-14
33 min
Endókastið
25. Þáttur - Sigrún Arna
Í þessum þætti fengum við til okkar hana Sigrúnu Örnu, en hún hefur átt ótrúlega flókna og erfiða Endó sögu. En hún fékk til dæmis endó greininguna sína svo seint að endóið skemmdi hluta líffæra hennar varanlega. Þáttur sem enginn má missa af!
2025-05-07
1h 21
Endókastið
24. Þáttur - Endó og kynlíf
2025-04-16
28 min
Endókastið
23. Þáttur - Alma Sigurðardóttir
Gestur þáttarins er Alma Sigurðardóttir. Alma er algjör demantur sem á mjög langa og erfiða Endósögu að baki og segir okkur frá henni hér á djúpum og einlægum nótum. Alma er einnig nýkjörin ritari Endósamtakanna og eru samtökin ekkert smá heppin að hafa fengið hana í lið með sér. Alma á reynslu af þurfa að fara í aðgerð erlendis vegna Endó og langa og erfiða baráttu við Sjúkratryggingar.
2025-04-09
59 min
Endókastið
22. Þáttur - Við erum komnar til baka
Eftir stormasama byrjun á árinu þá erum við mættar aftur! Við erum að fyllast af orku aftur og það er margt spennandi framundan.
2025-04-02
24 min
Endókastið
21. Þáttur - Axel og Tjörvi
Axel og Tjörvi hafa reynst samtökunum vel með sinni vinnu. Axel hannaði lógó samtakanna meðal annars og Tjörvi var myndatökumaður í myndinni okkar. Þeir eiga það sameiginlegt að vera líka aðstandendur kvenna með Endó. Skemmtilegt spjall með einlægum tón.
2025-02-19
48 min
Endókastið
20. Þáttur - Sigga okkar, varaformaður Endósamtakanna
Sigga okkar varaformaður Endósamtakanna kom í spjall um samtökin og hennar sögu sem er átakanleg. Sigga talar hreint út um aðstoð sem hún fékk erlendis og gæti þátturinn því gagnast þeim sem vilja leita utan Íslands.
2025-02-12
51 min
Endókastið
19. Þáttur - Alexandra, Orka kírópraktík
Alexandra er eigandi Orku kírópraktík. Hún hefur reynst mörgum endó konum vel. Við fengum hana í spjall um kíró, endó og það að elta draumana sína.
2025-02-05
53 min
Endókastið
18. Þáttur - Lífið eftir legnám
Við höfum fengið spurningar frá konum sem eru á leið í legnám eða eftir legnám hvort allskyns sé eðlilegt eða við hverju megi búast. Hér fórum við yfir ferlið okkar beggja.
2025-01-29
37 min
Endókastið
17. Þáttur - Steinunn Birta
Steinunn Birta Ólafsdóttir kom til okkar í spjall en hún er hjúkrunarfræðinemi og í varastjórn Endósamtakanna. Steinunn á sögu sem mögulega margar tengja við en hún er líka bjartsýn og leyfir ekki endó að stoppa hana þegar hún á góða tíma.
2025-01-22
42 min
Endókastið
16. Þáttur - Velkomið nýtt ár!
Karen kveikti á markþjálfanum í sér og leiddi þennan þátt frábærlega! Mælum með fyrir markmiðasetningu fyrir árið.
2025-01-15
34 min
Endókastið
15. Þáttur - Mæður okkar komu í spjall. Arnrún María og Guðrún Birna.
Heitt kakó og smákökur, laufabrauð og jólaöl ? Þetta er akkúrat þátturinn fyrir það, við fengum mömmur okkar í dýrmætt spjall þar sem við ræddum allt frá uppvexti þeirra yfir í ófrjósemina okkar vinkvennana. Einlæg, erfið en dýrmæt hlustun. Vonandi eigi þið gleðilega og verkjalausa hátíð.
2024-12-25
49 min
Endókastið
14. Þáttur - Er ég aumingi? Jólaboðin
Stuttur þáttur sem gæti verið akkúrat það sem þú þarft að heyra fyrir komandi hittinga um hátíðarnar ❤ mundu eftir þér.
2024-12-18
11 min
Endókastið
13. Þáttur - Kata kvenheilsu sjúkraþjálfari
Loksins kom hún elsku besta Kata til okkar kvennheilsusjúkraþjálfinn sem við vitnum svo oft í. Í þættinum er rætt um grindabotns heilsu kvenna og karla, hvernig endó hefur áhrif á grindabotninn og allt það helsta sem ber að hafa í huga. sannkallaður grindabotn 101 klukkutími.
2024-12-11
49 min
Endókastið
12. Þáttur - Eydís og Gísli
Í þessum þætti fengum við til okkar þau Eydísi og Gísla. Gísli hefur sl. ár verið þingmaður hjá Pírötum og Eydís aðstoðað hann og þingflokkinn. Við fengum að heyra Endó sögu Eydísar auk þess talar Gísli m.a um hvað sé mikilvægt að hafa í huga sem yfirmaður einstaklings með endó, vera vel upplýstur og þekkja sjúkdóminn vel. Góð samskipti er algjört lykilatriði.
2024-12-04
51 min
Endókastið
11. Þáttur - Jólakvöð
Í þessum þætti förum við yfir það hvað það fylgir jólunum oft mikil kvöð og auka streita sem getur triggerað enn meiri veikindi hjá langveikum einstaklingum. Verum vakandi og reynum að koma í veg fyrir það! Það má segja nei við jólaboðum.
2024-11-27
26 min
Endókastið
10. Þáttur - TW! Kynferðisofbeldi
ATH þessi þáttur getur verið triggerandi. Við ræðum um kynferðisofbeldi og hvernig Endómetríósa er oft sögð vera vegna þess… alveg galið dæmi.
2024-11-20
26 min
Endókastið
9. Þáttur - Guðfinna Birta, fyrrum framkvæmdarstýra Endósamtakanna
Í þessum þætti förum við um víðan völl. Við fengum að skyggnast inní endósöguna hennar Guðfinnu, sigrana hennar í starfi hjá Endósamtökunum ásamt því að heyra hennar draumasýn fyrir endósjúklinga. Þátturinn getur verið triggerandi.
2024-11-13
30 min
Endókastið
8. Þáttur - Andlegi þátturinn - TW
Í þessum þætti förum við inná sprengjusvæði og ræðum mörg viðkvæm, erfið og ósanngjörn málefni. Allt frá baráttunni við ósýnileikann, gaslýsingunni sem við verðum fyrir og ófrjósemi.
2024-11-06
41 min
Endókastið
7. Þáttur - Jón Ívar Einarsson
Við áttum frábært spjall við Jón Ívar sérfræðing í kvensjúkdómalækningum, allt frá pabbabröndurum yfir í framtíðina með Endó.
2024-10-30
51 min
Endókastið
6. Þáttur - Spauglegu hliðar Endó
Allt það sem gæti verið vandræðalegt en við erum allar að eiga við eitthvað svipað svo afhverju ekki að hlæja bara saman? Það getur nefnilega líka verið dálítið skondið að vera með Endó þó það sé oft mjög sársaukafullt og ömurlegt. Munum bara að hafa gaman líka og njóta góðu augnablikanna.
2024-10-23
22 min
Endókastið
5. Þáttur - Þetta eru ekki bara sárir túrverkir
Þátturinn þar sem við ræðum um allt nema sáru túrverkina. Einkennin sem oft er erfitt að ræða allt frá kúk yfir í kynlíf.
2024-10-16
52 min
Endókastið
4. Þáttur - Anna Margrét, framkvæmdarstjóri Endósamtakanna
Anna Margrét Hrólfsdóttir framkvæmdastjóri Endósamtakanna kíkti til okkar i spjall um samtökin, persónulega lífið og mannréttindi almennt. Fræðandi, skemmtilegt en líka peppandi spjall við Önnu. Við afsökum smá auka hljóð sem leynast í þættinum.
2024-10-09
51 min
Endókastið
3. Þáttur - Hugarfar
Þátturinn þar sem við minnum okkur á að það má líða allskonar, komum með okkar reynslu og peppum lífið, sama á hvaða stað við erum stödd hverju sinni.
2024-10-02
27 min
Endókastið
2. Þáttur - Lilja Guðmundsdóttir
Formaður Endósamtakanna, Lilja Guðmundsdóttir kom til okkar í einlægt spjall um sína ótrúlegu greiningarsögu og löngu og ströngu ófrósemisbaráttu. Lilja er hugrökk kona með allskyns bjargráð uppí erminni og magnað hugarfar.
2024-09-25
1h 15
Endókastið
1.Þáttur - Óhefðbundin kynning
Þátturinn þegar við loksins fórum í fyrstu tökur. Við ákváðum að fara óhefðbundna leið til þess að leyfa ykkur að kynnast okkur betur.
2024-09-17
35 min