podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Malmalanna
Shows
Mál Málanna
Mál málanna - föstudagur 30. janúar 2026
Strákarnir okkar eru komnir í undanúrslit á EM. Mál málanna rýnir í frábæran árangur landsliðsins eftir sigurinn gegn Slóveníu. Við heyrum í Sigga Sveins um ótrúlegan karakter liðsins, Þorvald Flemming um stemninguna í Danmörku og þá staðreynd að Íslendingar stýra þremur af fjórum bestu liðum Evrópu. Að lokum segir Gaupi frá því hvernig það er að vera faðir landsliðsþjálfarans á stund sem þessari. Getum við farið alla leið?
2026-01-30
11 min
Mál Málanna
Mál málanna - fimmtudagur 29. janúar 2026
Strákarnir okkar eru komnir í undanúrslit á EM. Mál málanna rýnir í frábæran árangur landsliðsins eftir sigurinn gegn Slóveníu. Við heyrum í Sigga Sveins um ótrúlegan karakter liðsins, Þorvald Flemming um stemninguna í Danmörku og þá staðreynd að Íslendingar stýra þremur af fjórum bestu liðum Evrópu. Að lokum segir Gaupi frá því hvernig það er að vera faðir landsliðsþjálfarans á stund sem þessari. Getum við farið alla leið?
2026-01-29
12 min
Mál Málanna
Mál málanna - miðvikudagur 28. janúar 2026
Drengirnir á jaðrinum og kerfi meðaltalsins. Mál málanna rýnir í raunveruleika stráka í íslensku skólakerfi. Sigurður Árni Reynisson, kennari og fyrrverandi lögreglumaður, ræðir hvers vegna kerfið okkar er hannað fyrir „meðaltalið“ en bregst jaðartilvikunum. Við skoðum hvers vegna enginn vill kenna „erfiðu“ strákahópunum, af hverju stimplar og greiningar duga ekki án lausna og hvers vegna festan er það eina sem virkar þegar allt annað bregst.
2026-01-28
09 min
Mál Málanna
Mál málanna - 27. janúar 2026
Er “Íslandsbíllinn” biluð drusla? Mál málanna í dag snýst um Tesla Model Y og sláandi niðurstöður. Af hverju falla 45% þessara bíla á fyrsta prófi í Danmörku? Björn Kristjánsson hjá FÍB fer yfir hvernig á þessu stendur.
2026-01-27
09 min
Mál Málanna
Mál málanna - mánudagur 26. janúar 2026
Sjálfsvirðing eða sæng yfir höfuð? Ísland stendur á krossgötum þar sem „forritun“ okkar nánasta bandamanns hefur snúist gegn okkur. Þorsteinn Pálsson og Steingrímur J. Sigfússon rýna í nýja heimsmynd þar sem Bandaríkin beita bandamenn sína efnahagslegum hernaði og ásælast fullveldi Grænlands. Við ræðum hvort Ísland eigi að leita skjóls í Evrópu, hvers vegna NATO-ríki æfa nú varnir gegn Bandaríkjunum og af hverju sjálfsvirðingin má aldrei víkja fyrir meðvirkni með ofbeldisseggjum.
2026-01-26
09 min
Mál Málanna
Mál málanna - föstudagur 23. janúar 2026
Vikan var vægast sagt skrautleg. Trump ruglaði saman Íslandi og Grænlandi, hótaði tollum og hernámi en segist svo hafa landað „eilífðarsamkomulagi“ við NATO um auðlindir og loftvarnir. Á meðan berst HSÍ í bökkum þrátt fyrir gengi strákanna á EM og Viðskiptaráð bendir á að við borgum meira fyrir minni þjónustu hjá ríkinu.
2026-01-23
15 min
Mál Málanna
Mál málanna - fimmtudagur 22. janúar 2026
„Vandamálið eru Bandaríkin: Traustið hrynur.“ Lars Christensen hagfræðingur skrifar harðan pistil um hvernig Bandaríkin hafa svikið alþjóðakerfið. Samúel Karl Ólason greinir ræðu Trump á alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos.
2026-01-22
08 min
Mál Málanna
Mál málanna - miðvikudagur 21. janúar 2026
Blóð, sviti og tvö stig. Ísland lagði Ungverjaland í dramatískum leik á EM í handbolta karla en missti Elvar Örn Jónsson úr leik vegna meiðsla. Henry Birgir Gunnarsson lýsir faglegum vinnubrögðum strákanna gegn andstæðingum og ófaglegum dómurum. Við hitum upp fyrir milliriðilinn í Malmö.
2026-01-21
08 min
Mál Málanna
Mál málanna - þriðjudagur 20. janúar 2026
Barnalegt hrekkjusvín með kjarnorkukóða? Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir rýnir höfuðið á Bandaríkjaforseta eftir Nóbels-fýluna sem hann fór í og hótunina um yfirtöku á Grænlandi. Getum við notað aðferðir úr uppeldisfræði til að setja forsetanum mörk?
2026-01-20
08 min
Mál Málanna
Mál málanna - mánudagur 19. janúar 2026
Á skákborði stórveldanna.“ Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði, rýnir í Mál málanna þar sem Donald Trump hótar að hætta að skuldbinda sig friði og hersveitir NATO eiga þá væntanlega að mætast á Norðurslóðum. Erum við að bakka inn í kalda stríðið þar sem smáþjóðir eins og Ísland eru bara skiptimynt?
2026-01-19
07 min
Mál Málanna
Mál málanna - föstudagur 16. janúar 2026
„Við erum svolítið á taugum,“ segir Inga Dóra Guðmundsdóttir í Nuuk, þar sem íbúar safna nú neyðarbirgðum vegna hótana Donalds Trump um yfirtöku á Grænlandi. Í föstudagsuppgjöri Máls málanna gerum við upp dramatíska viku þar sem Grænland og Trump bar á góma, afsögn á Alþingi vegna vændismáls og varað var við læknisfræði ChatGPT. Undir lok vikunnar snérist allt um handbolta enda framundan fyrsti leikur strákanna okkar á EM. Viðmælendur: Inga Dóra Guðmundsdóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Ólafur Þór Ævarsson...
2026-01-16
12 min
Mál Málanna
Mál málanna - fimmtudagur 15. janúar 2026
Á meðan íbúar Grænlands safna neyðarbirgðum kallar þingmaður þeirra á danska þinginu eftir að landið fái sjálfstæðari rödd á alþjóðavettvangi. Í þætti dagsins ræðum við við Ingu Dóru Guðmundsdóttur, sem búsett er á Grænlandi. Hún lýsir óttanum hjá íbúum á meðan danskar, franskar og þýskar könnunarhersveitir lenda til að verja fullveldi eyjunnar gegn bandamanni okkar í vestri.
2026-01-15
10 min
Mál Málanna
Mál málanna - miðvikudagur 14. janúar 2026
„Ál, bensen og hormónatruflandi efni.“ Una Emilsdóttir, sérnámslæknir í umhverfislækningum, varar við því að daglega notkun hreinlætisvara sé ekki eins saklaus og hún virðist. Í þætti dagsins ræðum við um muninn á svitalyktareyði (deodorant) og svitahamlandi efnum (antiperspirant). Hvers vegna berst úði í lungun og af hverju er varasamt að nota svitavörn eftir rakstur? Erum við að fórna heilsunni fyrir lyktina af „suðrænum stormi“?
2026-01-14
10 min
Mál Málanna
Mál málanna - þriðjudagur 13. janúar 2026
„Gervigreindin skáldaði vísindagrein eftir mig,“ segir Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir í þætti dagsins. Við könnum flókið ástar-haturs samband okkar við gervigreind í heilbrigðiskerfinu. Getur ChatGPT verið lífbjörg sem finnur svör sem læknar misstu af, eða erum við að týna okkur í óáreiðanlegum upplýsingaspuna? Við ræðum um kosti tækninnar, mikilvægi gagnrýnnar hugsunar og hvers vegna við höfum enn þörf fyrir reynslu lækna þegar kemur að heilsu okkar.
2026-01-13
07 min
Mál Málanna
Mál málanna - mánudagur 12. janúar 2026
„Þetta er algjör kúvending,“ segir Inga Sæland, nýr barna- og menntamálaráðherra. Hún ætlar ekki lengur að vera hrópandinn í eyðimörkinni heldur raungera breytingar í kerfi sem hún segir að hafi brugðist börnum og kennurum. Í þætti dagsins ræðum við um hvers vegna 47% drengja eru ólæsir, af hverju Inga vill afnema skóla án aðgreiningar í núverandi mynd og hvort „finnska leiðin“ sé það sem íslenska skólakerfið þarfnast.
2026-01-12
08 min
Mál Málanna
Mál málanna - föstudagur 9. janúar 2026
Þrír bjórar. Foreldrar kaupa áfengi fyrir unglinga í þeirri trú að það sé skárra heima fyrir til að fylgjast með neyslunni. Kidda Svarfdal, ritstjóri Hún.is og stjórnandi hlaðvarpsins Fullorðins hefur verið edrú í 16 ár og spyr einfaldlega, af hverju ættum við að kenna börnum okkar að nota eitur? Í þættinum er rætt um unglingadrykkju, áfengismenningu á Íslandi, nýlegar rannsóknir og hvað gerist þegar kerfið bregst.
2026-01-09
11 min
Mál Málanna
Mál málanna - fimmtudagur 8. janúar 2026
Ríkisstjórnin og borgarstjóri kynntu í fyrra áform um 4.000 nýjar íbúðir í Úlfarsárdal - á svæði sem skipulagt var fyrir 562 íbúðir. Í öllu póstnúmeri 113 (Úlfarsárdal og Grafarholti) eru nú 3.723 íbúðir. Hverfið verður ansi þétt og þröngt með fáum bílastæðum að mati Björns Gunnars Steinþórssonar, íbúa í hverfinu sem sett hefur af stað undirskriftalista til að mótmæla þessum áformum.
2026-01-08
08 min
Mál Málanna
Mál málanna - miðvikudagur 7. janúar 2026
Heiða Njóla Guðbrandsdóttir, forstöðumaður hjá Icelandair, útskýrir hvers vegna félagið greiðir milljarða í kolefnisgjöld til Evrópusambandsins sem skekkir verulega samkeppnisstöðuna á flugleiðinni yfir Atlandshafið. Í þætti dagsins spyrjum við hvort þetta sé sanngjarnt. Og hvert fer peningurinn?
2026-01-07
09 min
Mál Málanna
Mál málanna - þriðudagur 6. janúar 2026
Rithöfundurinn Helen Hafgnýr Cova býr á Íslandi en á fjölskyldu í Venesúela. Þegar Bandaríkin réðust inn í heimaland hennar og handtóku Maduro forseta þá hafði hún strax samband við fjölskyldu sína og vini. Í þættinum í dag spyrjum við: hvenær fórum við að tala um mannréttindi í Venesúela? Munið þið þegar 1.592 hælisleitendur þaðan komu til Íslands - og við gáfum 98% þeirra synjun?
2026-01-06
07 min
Mál Málanna
Mál málanna - mánudagur 5. janúar 2026
Bandaríkin fóru inn í Venesúela og handtóku forsetann í þyrluárás um miðja nótt. Íslensk stjórnvöld þora ekki að fordæma aðgerðina. Í þættinum í dag spyrjum við: ef við þegjum um þetta – hvað segjum við þá ef Bandaríkin hertaka Grænland?
2026-01-05
08 min
Mál Málanna
Mál málanna - miðvikudagur 10. desember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: -Danski sæðisgjafinn með skemmda genið sem var dreift til margra landa í 17 ár, þar á meðal Íslands. Tíu hafa greinst með krabbamein. - Íslendingar á leið til Bandaríkjanna í frí gætu bráðum þurft að veita Bandaríkjamönnum aðgang að samfélagsmiðlafærslum sínum fimm ár aftur í tímann ef nýjar tillögur verða að lögum -Gunnar Már Zoega, augnlæknir, um að slæm umhirða augnlinsa geti leitt til alvarlegs augnsjúkdóms. -Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður sem hefur sérh...
2025-12-10
27 min
Mál Málanna
Mál málanna - þriðjudagur 9. desember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: -Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins og Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis um blótsyrði og afsökunarbeiðni þeirrar síðast nefndu. -Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra um Fjarðarheiðargöng -Sigríður Magnea Óskarsdóttir náttúrúrvársérfræðingur um rennsli í Skaftá. -Nadine Guðrún Yaghi og Þórhildur Þorkelsdóttir stjórnendur hlaðvarpsins Eftirmál um hræðilegt manshvarf í Grindavík og afleiðingar þess fyrir ættingja.
2025-12-09
18 min
Mál Málanna
Mál málanna - mánudagur 8. desember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: -Þingforseti sagði: “Djöfulsins helvítis andskotans pakk” í þingsal en hefur það einhverjar afleiðingar? -Inga Sæland um hvort hún verði dregin fyrir dóm ásamt öðrum ráðamönnum í skólameistaramálinu -Páll Óskar um að setja EBU mörk og taka ekki þátt í Eurovision -Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, um hvort Ríkisútvarpið sé að taka of mikilvæga ákvörðun í utanríkispólitík -Trump um friðartillögur sem Selenskí hefur ekki lesið -Katrín Jakobsdóttir, fyr...
2025-12-08
31 min
Mál Málanna
Mál málanna - föstudagur 5. desember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: -Að vera, eða ekki vera, í Eurovision, þarna er efinn. -Elías Blöndal Guðjónsson um umferðarljós íbúa við Laugardal -Hlustandi á línunni frá Seyðisfirði um áföll sem dynja þar yfir -Úlfar Lúðvíksson um landamærin og mögulegt framboð í borginni -Pútín heldur áfram að hóta Úkraínu -Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur um mál Ársæls Guðmundssonar, skólameistara Borgarholtsskóla.
2025-12-05
20 min
Mál Málanna
Mál málanna - fimmtudagur 4. desember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Niðurstaða væntanleg í dag um þátttöku Ísrael í Eurovision og þá hvort Ísland verði með í vor. Ársæll Guðmundsson um brottrekstur sinn frá Borgarholtsskóla og “stóra skómálið” Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og Kristján Már Unnarsson, fréttamaður, um samgönguáætlun Vignir S. Halldórsson, verktaki og faglegur framkvæmdastjóri Öxar ehf. og Monika S. Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala um hlutdeildarlán sem Seðlabankinn telur geta valdið ker
2025-12-04
30 min
Mál Málanna
Mál málanna - miðvikudagur 3. desember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra og Kristrún Frostadóttir um nýja samgönguáætlun. Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Múlaþings um kjördæmapot og svik ríkisvaldsins í samgöngumálum. Arnór Sigurjónsson sérfræðingur í varnar- og öryggisfræðum um viðræður sem sigldu í strand um frið í Úkraínu.
2025-12-03
24 min
Mál Málanna
Mál málanna - þriðjudagur 2. desember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Gætir þú hugsað þér að borða Hrafn (krumma)? Kári Sævarsson markaðssérfræðingur og Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands um nýja lógó kirkjunnar Heiðar Guðjónsson um hvað við skuldum mikið, hverjum og hvað við borgum mikið í vexti Bogomil Font um gervigreindartónlist Jóhannes Björn Eðvarðsson um minningargrein sem hann ritaði um föðurbróður sinn sem lést aðeins 18 ára eftir baráttu við fjölþættan fíknivanda.
2025-12-02
28 min
Mál Málanna
Mál málanna - mánudagur 1. desember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Dorrit rænd í London Kristrún Frostadóttir um húsnæðismálin Hjónin Herdís Rós Kjartansdóttir og Jón Marinó Birgisson bíða enn eftir endurgreiðslu upp á milljón eftir fall Play Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna grunaður um stríðsglæp Páll Magnússon um versnandi stöðu einkarekinna fjölmiðla
2025-12-01
17 min
Mál Málanna
Mál málanna - föstudagurinn 28. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Hvað er málið með Trump og fréttakonur? Mark Rutte framkvæmdastjóri NATO um ógn frá Rússlandi og hlutverk Íslands Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins um hagræðingu í rekstri borgarinnar Einar Þór Jónsson framkvæmdastjóri HIV samtakanna um alþjóðlega alnæmisdaginn
2025-11-28
17 min
Mál Málanna
Mál málanna - fimmtudagurinn 27. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Tap hjá Stelpunum okkar á HM í handbolta en Serbarnir bíða Guðfinna Kristín Björnsdóttir gagnrýnir fæðingarorlof Verðbólga á niðurleið Rósa Guðbjartsdóttir um fjölmiðlanefnd Jón Kaldal um fyrirætlanir um sjókvíeldi í Mjóafirði
2025-11-27
17 min
Mál Málanna
Mál málanna - miðvikudagur 26. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Edda Björg Þórðardóttir, sálfræðingur, um skammdegið Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæsluni á Höfuðborgarsvæðinu um flensuna Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra um lagareldi í Mjóafirði fyrir austan Friðartillaga Trump í Úkraínu Frosti Sigurjónsson um loftlagsmál og bókina Hitamáæ Guðbjörg S. Bergsdóttir, deildastjóri gagnavísinda- og upplýsingadeildar hjá embætti ríkislögreglustjóra, og Rannveig Þórisdóttir, sviðsstjóri hjá embætti ríkislögreglustjóra um 16 daga átak g
2025-11-26
16 min
Mál Málanna
Mál málanna - þriðjudagur 25. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Konan í Tælandi sem vaknaði óvænt til lífsins Þuríður Sverrisdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir skora á stjórnvöld að draga úr biðlistum Ingibjörg Isaksen um neyðarástand hjá Sjúkrahúsi Akureyrar Þórarinn Hjartarson og baráttan við Fjölmiðlanefnd Þórdís Reykfjörð Gylfadóttir um bornin sem Rússar rændu
2025-11-25
22 min
Mál Málanna
Mál málanna - mánudagur 24. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri um vexti og efnahagshorfur Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, fyrrverandi umhverfisráðherra um umhverfis- og loftlagsmál Gunnar Dan um geimskipið yfir Kársnesi
2025-11-24
17 min
Mál Málanna
Mál málanna - föstudagur 21. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra með stystu ræðu sögunnar á loftslagsráðstefnu Hvað fór fram á óformlegum fundi Benedikts Árnasonar, ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu með Sigríði Björk Guðjónsdóttur heima hjá honum í aðdraganda þess að hún lét af starfi ríkislögreglustjóra? Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins vill leggja á verndartolla á landbúnaðarafurðir ESB Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra um fjölda dvalarleyfa Björn...
2025-11-21
19 min
Mál Málanna
Mál málanna - fimmtudagur 20. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Trump og Epstein skjölin Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins um fund þingmanna og ráðherra EFTA með fulltrúa frá skrifstofu framkvæmdastjóra ESB á sviði alþjóðaviðskipta Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka um vaxtalækkun Seðlabankans Daði Már Kristófersson um vextina og efnahagshorfur
2025-11-20
31 min
Mál Málanna
Mál málanna - miðvikudagur 19. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins óttast að verndartollar ESB skapi fordæmi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir vill áfram standa vörð um EES samninginn sem er okkur mikilvægur Sigmundur Davíð um “Hnignunarbandalag” Evrópusambandsins Seðlabankinn lækkaði vexti og viðbrögð eru misjöfn Stefán Einar Stefánsson um ógnandi myndskeið á samfélagsmiðlum Álfhildur Leifsdóttir kennari og Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir leik- og grunnskólakennari um ekkert ytra mat
2025-11-19
17 min
Mál Málanna
Mál málanna - þriðjudagur 18. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Kvefið er komið. Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir fer yfir hina árlegu inflúensu sem er mætt á svæðið Magnús Árni Skjöld Magnússon formaður Evrópuhreyfingarinnar og Hjörtur Guðmundsson sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur ræða verndartolla ESB sem bitna á Íslandi og Noregi Eva Hauksdóttir um hina píkubörðu menn
2025-11-18
21 min
Mál Málanna
Mál málanna - mánudagur 17. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Hvað klikkaði hjá landsliði Íslands í fótbolta? Sverrir Ingi Ingason leikmaður vörnina og Arnar Gunnlaugsson þjálfari fara yfir málið Nú höldum við með Írlandi. Heimir Hallgrímsson er þjóðhetja á Írlandi Þorsteinn Víglundsson fyrrverandi ráðherra og þingmaður Viðreisnar og Diljá Mist Einarsdóttir um verndartolla ESB sem brjóta gegn EES samningnum Kristján Ingi Gunnarsson titlar sig “venjulegan mann” en hvernig gengur honum að ná endum saman?
2025-11-17
21 min
Mál Málanna
Mál málanna - föstudagur 14. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Hlutleysi eða skoðanamyndandi fjölmiðlar Ingvar S. Birgisson, stjórnarmaður hjá Ríkisútvarpinu ohf Hermann Arnar Austmann sem situr í stjórn Astma og ofnæmisfélags Íslands um gæludýrafrumvarpið Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra um gæludýrafrumvarpið, réttindi fatlaðra og jólabónus
2025-11-14
22 min
Mál Málanna
Mál málanna - fimmtudagur 13. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Ronaldo segir Heimi vera snjallan Hverjir fengu 54 milljarða frá ríkinu vegna loftslagsmála? Sigurjón Þórðarsson eltir peninginn Moskítóflugan fannst á Suðurlandi Trump og fjármálin, Epstein, Venesuela og Wag the Dog
2025-11-13
16 min
Mál Málanna
Mál málanna - miðvikudagur 12. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Er ómögulegt að seinka klukkunni út af áætlunarflugi? Helgi Steinar Gunnlaugsson sérfræðingur í málefnum Kína um dag einhleypra Páll Magnússon um fréttafölsun BBC Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur um tilfærslu ríkislögreglustjóra
2025-11-12
19 min
Mál Málanna
Mál málanna - þriðjudagur 11. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Mál mæðranna þriggja sem eiga syni á meðferðarheimilinu Healing Wings í Suður-Afríku Dontald Trump vill milljarð frá BBC Guðbjörg Hildur Kolbeins dósent í fjölmiðlafræði við félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri um trúverðugleika BBC Snorri Másson og Sigurjón Þórðarson um Gísla Martein og hlutleysi fjölmiðla Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar um Neyðarkallinn
2025-11-11
18 min
Mál Málanna
Mál málanna - mánudagur 10. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Afsögn Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur úr embætti ríkislögreglustjóra Íslandsbanki ríður á vaðið og býður verðtryggð lán Tvö ár frá rýmingu Grindavíkur Trúverðugleiki BBC í uppnámim
2025-11-10
16 min
Mál Málanna
Mál málanna - föstudagur 7. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Jón Gerald Sullenberg um fjáraustur ríkisins til þróunarmála Adam Erik Bauer réttarefnafræðingur um fölsuð lyf í umferð Hanna Birna Kristjánsdóttur um heimsþing kvenleiðtoga Gylfi Magnússon hagfræðiprófessur um stöðu hagkerfisins Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir, tónlistarkona og aktívisti og Ögmundur Jónasson, fyrrverandi innanríkisráðherra um eineltisdaginn
2025-11-07
20 min
Mál Málanna
Mál málanna - fimmtudagur 6. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Saksóknari hjá ríkissaksóknara kærð fyrir húsbrot, eignaspjöll, þjófnað og brot á barnaverndarlögum Vihjálmur Árnason formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar um málefni Ríkisendurskoðanda Blankheitin hjá KSÍ Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn um vasaþjófa Samúel Karl Ólason um nýjan borgarstjóra í New York
2025-11-06
21 min
Mál Málanna
Mál málanna - miðvikudagur 5. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Borgarstjórakosningar í New York Ólafur Örn Bragason sálfræðingur lögreglunnar um eltihrelli tveggja lögreglukvenna Þóroddur Bjarnason prófessor í félagsfræði um samgöngur til og frá Keflavíkurflugelli Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar um húsnæðislán á Ísland
2025-11-05
18 min
Mál Málanna
Mál málanna - þriðjudagur 4. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Daði Már Kristófersson um peningastefnunefnd Seðlabankans Agnes Ósk Marzelíusardóttir um gallann hjá Reiknistofu bankanna þar sem nokkrir einstaklingar náðu að millifæra háar fjárhæðir af eigin reikningum þrátt fyrir enga innistæður á þeim María Rut Baldursdóttir prestur um ófrjósemi Íslendinga sem fer hækkandi
2025-11-04
15 min
Mál Málanna
Mál málanna - mánudagur 3. nóvember 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður Samfylkingarinnar um málefni Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra Ása Berglind Hjálmarsdóttir um samfélagsmiðla barna og unglinga
2025-11-03
27 min
Mál Málanna
Mál málanna - föstudaginn 31. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Páll Magnússon um valdeflandi skýrslu embættismanna um þá sjálfa Fjármál ríkislögreglustjóra til athugunar Gular viðvaranir Hjalti Guðmundsson hjá Borgarlandi um snjómoksturinn, hálku og umferðartafir
2025-10-31
20 min
Mál Málanna
Mál málanna - fimmtudagur 30. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Snjóharðindi og vetrarfærðin Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra um mál ríkislögreglustjóra Ragnar Þór Ingólfsson, Guðrún Hafsteinsdóttir og Páll Pálsson um húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
2025-10-30
21 min
Mál Málanna
Mál málanna - miðvikudagur 29. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Fjárútlát ríkislögreglustjóra Lögregla hundfúl með ökumenn á sumardekkjum Steingrímur Birgisson hjá Bílaleigu Akureyrar vill lengja nagladekkjatímabilið Trump í Japan Vopnahlé út um þúfur á Gasa
2025-10-29
20 min
Mál Málanna
Mál málanna 28. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Færð og veður Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur Embætti Ríkisendurskoðanda Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir um glerbrotin í ryksugupokanum
2025-10-28
19 min
Mál Málanna
Mál málanna - mánudaginn 27. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Snjóþyngslin framundan Haraldur Ólafsson veðurfræðingur Páll Pálsson fasteignasali og Már Mixa um húsnæðismarkaðinn Þorvaldur Gissurarson hjá ÞG Verk Bjarni Karlsson prestur og siðfræðingur um kynfræðslu í kirkjum
2025-10-27
17 min
Mál Málanna
Mál málanna - föstudaginn 24. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Kvennaverkfall Sonja Ýr Þorbergsdóttir Kvennatónleikar á Hvolsvelli Sigurður Hannesson um stöðu Norðuráls Anna Lizzy um skilnað
2025-10-24
18 min
Mál Málanna
Mál málanna - fimmtudagurinn 23. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Lögreglan rannsakar vændiskaup Lóðaverði ennþá haldið of háu Helga og kynfræðslan Kaupendamarkaður á fasteignum Aðgengi unga fólksins að fréttum
2025-10-23
22 min
Mál Málanna
Mál málanna - miðvikudagurinn 22. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Fjársterkir á fasteignamarkaði Jón Guðni Ómarsson bankastjóri Íslandsbanka Grétar Halldór Gunnarsson prestur um kynfræðslu í fermingarfræðslu Sigurður Sigurðsson um óheft aðgengi að börnum í gegnum tölvuleiki
2025-10-22
16 min
Mál Málanna
Mál málanna - þriðjudagurinn 21. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Fugumferðarstjórar Kólnandi veður Borðar lúsmý moskítóflugur? Mál Steinþórs Gunnarssonar Kaffihús og gervigreind
2025-10-21
20 min
Mál Málanna
Mál málanna - mánudagur 20. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Bubbi Morthens um íslensku Helvítis moskítóflugan Anrés prins Fugumferðarstjórar Helgi Sigurður Haraldsson um íþróttafélög
2025-10-20
16 min
Mál Málanna
Mál málanna - föstudagur 17. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Ragnheiður Þórisdóttir deildarstjóri heimaþjónustu hjá Austurmiðstöð um fjárhagslegt ofbeldi gegn öldruðum Brynja María Ólafsdóttir sérfræðingur í regluvörslu hjá Landsbankanum Ágústa Ágústsdóttir varaþingmaður Miðflokksins um „skemmd epli í flokknum“ Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn um skipulag bensínstöðvarlóða í borginni Donald Trump um vopnabúr Bandaríkjamanna Alma Möller Heilbrigðisráðherra Afhverju hafa Danir það svona gott? Skoðanapistill Björns Teitssonar
2025-10-17
23 min
Mál Málanna
Mál málanna - fimmtudagur 16. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Á að rýmka íslensku fánalögin Guðmundur Ingi Þórarinsson um mál Mohamads Kourani Lilja Sigrún Jónsdóttir um Sundabraut Svandís Svavarsdóttir um málefni Ljóssins Þorvaldur Davíð Kristjánsson um pistil sinn, Berum virðingu fyrir börnunum okkar
2025-10-16
19 min
Mál Málanna
Mál Málanna - miðvikudagur 15. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Skuldar Íslandsbanki þér pening? Þjóðfundur um menntamál Erótískt ChatGPT Mummi í Götusmiðjunni Gunnar Salvarsson um Laufey Lín
2025-10-15
26 min
Mál Málanna
Mál Málanna - þriðjudagur 14. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir Mál málanna: Magga Stína og kommentakerfið Friðurinn á Gasa Vinnustöðvun flugumferðarstjóra Arnar Gunnlaugsson eftir jafnteflissigurinn gegn Frökkum Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka um mögulega kreppu Pistill frá Pussy Riot
2025-10-14
20 min
Mál Málanna
Mál Málanna - mánudagur 13. október 2025
Auðun Georg Ólafsson fer yfir heitustu mál dagsins: Snorri Másson nýkjörinn varaformaður Miðflokksins. Er Sundabrú loksins á leiðinni? Samúel Karl Ólason fréttamaður á Vísi fer yfir friðarhorfur fyrir botni Miðjarðarhafs Ingrid Kuhlman um alþjóðlegan dag mistaka
2025-10-13
25 min
Mál Málanna
Hvað er Mál Málanna?
Hvað er eiginlega málið? Hvað brennur heitast á þjóðinni í dag? Um hvað er verið að tala í vinnunni, í bílnum, við matarborðið, í heita pottinum og í fjölskylduboðum. Mál málanna er fyrir önnum kafið fólk á öllum aldri sem vill skilja hvað er að gerast og fá samhengi í atburði líðandi stundar. Hnitmiðað, ferskt, fróðlegt og skemmtilegt. Ef þú vilt vita hvað raunverulega skiptir máli - hlustaðu þá á Mál Málanna sem kemur út alla virka daga á helstu hlaðvarpsveitum.
2025-10-10
01 min
Mál Málanna
Amber Viðvörunarkerfið - Saga Amber Hagerman
Gleðilegan mánudag! Nýr þáttur og hann er átakanlegur. Við segjum frá máli Amber Hagerman sem var rænt fyrir 25 árum, og hvernig foreldrar hennar breyttu kerfinu til þess að bjarga öðrum börnum. Kristel er líka komin með nýja intro línu, hvað finnst ykkur? Minnum á Instagram @malmalanna og sendið okkur línu ef það er eitthvað!
2021-01-18
23 min
Mál Málanna
R v R - Ákærður fyrir nauðgun á eiginkonunni
LOKSINS erum við mættar til Bretlands, þar segjum við ykkur frá R sem reyndi að áfrýja nauðgunardómi sínum því að eiginmenn geta ekki nauðgað konum sínnum??? Við vörum auðvitað við umræðu þáttarins. Instagrammið okkar @malmalanna ef það er eitthvað!
2021-01-11
20 min
Mál Málanna
Little Sisters of the Poor vs. Pennsylvania - Sjúkratryggingar og getnaðarvarnir
Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og vandamenn og takk fyrir það gamla! Í fyrsta þætti ársins förum við yfir mál frá árinu 2020, þar sem nunnurnar í hópnum Little Sisters of the Poor vilja ekki að getnaðarvarnir séu hluti af sjúkratryggingum á þeirra vinnustað. Við förum yfir Obamacare og líka Burwell v. Hobby Lobby frá árinu 2012. Minnum á okkur á Instagram, við elskum að heyra í ykkur @malmalanna
2021-01-05
33 min
Mál Málanna
Buck v. Bell - Löglegar leyni ófrjósemisaðgerðir
Í þætti vikunnar förum við yfir gamalt mál frá árinu 1927 þegar Hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað að læknar Carrie Buck mættu framkvæma ófrjósemisaðgerð á henni, en hún var talin óhæf til að fjölga sér. Eftir það voru svo gerðar 60.000-70.000 fleiri ófrjósemisaðgerðir á fólki sem vildi það ekki. Survival of the fittest? Minnum á Instagram! @malmalanna
2020-11-09
34 min
Mál Málanna
Castle Rock v. Gonzales - Nálgunarbann + Heimilisofbeldi
Mánudagur og gleðilegan nóvember! Þáttur vikunnar er erfiður og við vörum við efninu! Jessica Gonzales fékk nálgunarbann á fyrrverandi eiginmann sinn vegna heimilisofbeldis sem hún þurfti að þola, en málið fór á allt aðra vegu en hún hefði getað ímyndað sér. Við ræðum einnig um Francine Hughes og Thomia Hunter. Njótið vel og við minnum á Instagrammið okkar, @malmalanna
2020-11-02
32 min
Mál Málanna
Adoptive Couple v. Baby Girl - Saga Veronicu
Mánudagur! Nú ætlum við að gefa þætti frekar út á mánudögum, en það hentar okkur betur. Þáttur vikunnar er um Baby Veronicu og hvernig hæstiréttur Bandaríkjanna ákvað í hennar máli hver skyldi vera með forsjá yfir henni. Spennó! Minnum á okkur á Instagram @malmalanna og segið vinum ykkar frá okkur!
2020-10-26
34 min
Mál Málanna
Richards v. Wisconsin - Ekkert bank (No Knock Warrant)
Þáttur vikunnar fjallar um leitarheimild sem lögreglan fær frá dómurum og þurfa ekki að banka eða tilkynna komu sína þegar farið er inn á heimili. Breonna's Law tekið fyrir og mál Baby Bou Bou! @malmalanna á Insta!!
2020-10-14
32 min
Mál Málanna
Mapp v. Ohio - Leitarheimild
Jæja, eftir djúpar samræður í síðustu viku erum við systur komnar aftur í góðan gír og ræðum leitarheimild, persónufriðhelgi og öryggi almennings! Ekki gleyma fylgja okkur á Instagram @malmalanna!
2020-10-07
28 min