podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Paelingdagsins
Shows
Pæling dagsins
#102 8. janúar 2026 - Veikindaréttur, Virk og símabann
Þórarinn ræðir um tvær fréttir fréttastofu SÝN þar sem fjallað er um veikindahlutfall opinberra starfsmanna annars vegar og hins vegar símabann í skólum. Þessar tvær fréttir eru settar í samhengi við vandamál er varðar vinnustaðamenningu þar sem opinberir starfsmenn fara í kulnun þrátt fyrir það að fæstir sem sækja um úrræði vegna slíks eru alls ekkert í kulnun. Fjallað er um áhrif auglýsingarherferðar Virk, misræmi í tölulegum greiningum, bugun, kulnun sem vopn og hvernig þetta tengist samfélagsmiðlum og óhóflegri notkun símtækja. Heimildir: • Skýrsla Samtaka atvinnul...
2026-01-14
1h 09
Pæling dagsins
#100 18. desember - Afleiðingar þess að vera umburðarlyndur gagnvart óumburðarlyndi.
Þórarinn ræðir varnaðarorð Christopher Hitchens um menningarbreytingar og umburðarlyndi gagnvart óumburðarlyndi.
2026-01-06
1h 05
Pæling dagsins
#99 11. desember - Meðvirkni, Eurovision og þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna
Þórarinn ræðir ákvörðun RÚV um að sniðganga Eurovision, þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna og meðvirkni vegna menningarbreytinga í Evrópu.
2026-01-06
1h 03
Pæling dagsins
#98 4. desember - Skópar dauðans, Kier Starmer og niðurbrot velferðarkerfisins í Evrópu
Þórarinn ræðir ýmsa hluti í upptöku sem var tekin upp 4. desember.
2026-01-06
52 min
Pæling dagsins
#97 - Pæling í beinni 27. nóvember 2025
Frumraun Þórarins að vera í beinni á www.pardus.is/einpaeling. Smá hnökrar en kom almennt vel út. Ræði efnahagsmál og búrkuna. Verð næsta fimmtudag klukkan 12!
2025-12-02
49 min
Pæling dagsins
#96 Gríðarlega stór (og slæmur) húsnæðispakki
Þórarinn ræðir húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar í samhengi við ýmsa þætti er varðar byggingariðnaðinn, leigumarkaðinn, fasteignakaup og áhrif á efnahagslífið í heild. - Eru útsvarsgreiðendur í Ölfusi að fara að greiða fyrir innviði í Úlfarsárdal? - Afhverju er ekki haft samráð við byggingaraðila? - Afhverju er alltaf verið að auka á eftirspurnarhliðina? - Afhverju mun leiguverð hækka? - Afhverju mun húsnæðisverð hækka? - Hvað gerist þegar að hlutdeildarlán verða fyllilega fjármögnuð? - Hvaða áhrif hafa skattahækkanir á húsnæðismarkaði...
2025-11-04
53 min
Pæling dagsins
#95 Andstaða við séreignastefnu er andstaða við að ungt fólk eignist húsnæði
Þórarinn ræðir erfiða stöðu sem komin er upp á húsnæðismarkaði í samhengi við niðurstöðu hæstaréttar í vaxtamálinu. Farið er yfir mismunandi lánakjör sem nú hefur verið breytt til muna og valda því að færri munu geta komist inn á húsnæðismarkað að óbreyttu. Þetta mun koma til með að hafa áhrif á hagkerfið í heild sinni, snjóbolti sem erfitt verður að eiga við þegar hann er kominn af stað. - Er húsnæði mannréttindi? - Afhverju er barist gegn séreignastefnu? - Er búið að taka ungt fólk úr leik í húsnæðisstefn...
2025-11-02
40 min
Pæling dagsins
#94 Innflutt orðræða, traust og lágmenning
Þórarinn tengir saman marga menningartengda þætti og metur áhrif lágmenningar á umræðu um innflutta orðræðu, faraldursaðgerðir, traust á stofnunum og stjórnmálin. Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið Drifa.is
2025-10-28
49 min
Pæling dagsins
#93 Hundaflautur
Þórarinn ræðir um Hundaflautur og skrif Kolbeins H. Stefánssonar.
2025-10-25
45 min
Pæling dagsins
#90 Hægrisveifla kvenna
Þórarinn ræðir hægrisveiflu kvenna í samhengi við útlendingamál, vonbrigði femínisma, menningarleikjafræði, OnlyFans og margt fleira. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið Drifa.is Palssonfasteignasala.is
2025-10-15
50 min
Pæling dagsins
#89 Fjárlög, kulnun og rétttrúnaður
Þórarinn ræðir þróun fjárlaga undanfarinn áratug og setur það í samhengi við lífskjör, húsnæðismál, kulnun og rétttrúnaðinn. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið Drifa.is Palssonfastei
2025-10-09
48 min
Pæling dagsins
#88 Listamannalaun
Þórarinn ræðir listamannalaun og umræður í Bítinu og á Rás 2.
2025-10-05
32 min
Pæling dagsins
#87 Kulnun, viðhorf og lífskjör
Þórarinn ræðir kulnun á Íslandi í samhengi við þróun í Bretlandi er varðar lífskjör. Það virðist orðið nokkuð fyrirsjáanlegt að velferðarkerfi í Bretlandi muni ekki geta haldið uppi lífskjörum næstu kynslóða í samanburði við þær fyrri og því ljóst að grípa þurfi til aðgerða. Þessi þróun er sett í samhengi við kulnun á Íslandi og almennt viðhorf gagnvart vinnumarkaðnum. Þetta viðhorf er líkleg ástæða þess að húsnæðismarkaðurinn er kominn á slæman stað en væntingar ungs fólks til þess hvað telst til eðlilegra lífskjara eru töluvert rýmri he...
2025-09-21
33 min
Pæling dagsins
#86 Umburðarlyndið og morðið á Charlie Kirk
Þórarinn ræðir umræður í kjölfar morðsins á Charlie Kirk. - Þarf bara að minnast á umburðarlyndi til að vera umburðarlyndur? - Á fólk skilið að vera myrt sé það á röngum skoðunum? - Er heimurinn að breytast á meiri hraða en áður? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þætti hlaðvarpsins án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270
2025-09-17
20 min
Pæling dagsins
#85 Snorri er eins og hann en hann verður að vera eitthvað annað
Þórarinn ræðir mál Snorra Mássonar og fjölmiðlafár eftir viðtal í hlaðvarpinu Ein Pæling.
2025-09-04
31 min
Pæling dagsins
#84 Heimur á hvolfi - Prinsip, Palestína og akademían
Þórarinn ræðir leikjafræði þeirra sem styðja Palestínu, akademískt frelsi, mótmæli, Ingólf Gíslason, Finn Dellsén, Kolbein H. Stefánsson, Silju Báru Ómarsdóttur rektor og margt fleira.
2025-09-04
42 min
Pæling dagsins
#83 Árás á akademískt frelsi varpar ljósi á innrætingu og þrot menntavísindasviðs
Þórarinn ræðir árás Ingólfs Gíslasonar á akademskt frelsi á Íslandi. Þann 6. ágúst 2025 stóð hann að mótmælum gegn því að ísraelskur fræðimaður fengi að halda erindi hér á landi um gervigreind. Þáttastjórnandi fór því á stúfana og komst að því að hugðarefni Ingólfs kunni að vera rót þess hvernig komið er fyrir grunn- og framhaldsskólabörnum en PISA kannanir sýna að þeim gengur verr og verr að takast á við áskoranir sem náminu fylgja. - Mun HÍ standa í lappirnar gagnvart því að viðhalda akademísku frelsi? - Hver er ástæðan fyri...
2025-08-11
54 min
Pæling dagsins
#82 Afhverju tala ég um útlendingamál?
Þórarinn ræðir um ríkisstjórnina, útlendingamál, deilur Sólveigar Önnu og Höllu Gunnarsdóttur, leigubílamálin, umræðuna, pólitíska leikjafræði og fleira. Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Alvörubón Fiskhúsið
2025-08-10
39 min
Pæling dagsins
Pæling #81 Niall Ferguson, gervigreind og háskólanám
Þórarinn ræðir akademíuna í samhengi við gervigreind og fyrirlestur Niall Ferguson, einn stjórnanda nýs háskóla sem heitir University of Austin og hefur verið starfandi í rúmt ár. Fjallað er um hvaða áhrif gervigreind kann að hafa á nám framtíðarinnar og hvernig það kann að skerða getu nemenda til þess að takast á við verkefni framtíðarinnar. Fyrirlestur Niall Ferguson: https://www.youtube.com/watch?v=dcdA6YqFblw&t=3918s
2025-07-26
52 min
Pæling dagsins
#80 Vestræn menning gerir okkur kleift að viðhalda delluhugmyndum
Þórarinn ræðir um húsnæðismarkaðinn, ákvörðun Mette Frederiksen að krefja konur um herskyldu, hælisleitendur, félagslega innviði, Vestræna menningu og margt fleira. - Afhverju hækkar fasteignaverð? - Eiga Vesturlönd að taka á móti þeim sem hata gildin þeirra? - Afhverju eru sumar deildir íslenskrar akademíu ómarktækar? - Er óskynsamlegt að selja sig á Only Fans? Þessum spurningum er svarað hér. Til að fá þessa þætti án auglýsinga og undan öðrum má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja...
2025-07-22
55 min
Pæling dagsins
#79 Veiðigjöld og leikjafræði ríkisstjórnarinnar
Þórarinn ræðir afhverju ríkisstjórnin leggur fram svo óraunhæft veiðigjaldafrumvarp.
2025-07-01
30 min
Pæling dagsins
#78 Að horfast í augu við vandann - 5. júní 2025
Þórarinn ræðir hugmyndir George Orwell um að horfast í augu við það sem er augljóst. Orðatiltæki hans "the power of facing" kom út frá gagnrýni hans á Sovétríkin sem kröfðust þess að fólk lýsti veruleikann á annan veg en það taldi rétt. Þetta hafi verið eitt af mikilvægari vopnum við að ná alræði á huga almennings. Þórarinn setur þetta í samhengi við rétttrúnaðinn og hvernig honum hefur tekist að ná tangarhaldi á öllum umræðum og valda samfélaginu skaða til frambúðar. Útlendingamál eru rædd sérstaklega og veruleiki Norðurlan...
2025-06-08
46 min
Pæling dagsins
#77 Framtíð, velsæld og árekstrarstefna
Þórarinn ræðir Hönnu Arendt og bók hennar The Origins of Totalitarianism. Sérstök áhersla er lögð á heimspekileg atriði sem snúa að því hvaða aðstæður skapast þegar stjórnvöld reka stefnu stefnuleysis, þar sem ekki er brugðist við rót vandans, heldur aðeins við afleiddum afleiðingum. Vandamál eru þá sífellt plástruð með skammtímalausnum. Hannah Arendt kallar þetta árekstrarstefnu, viðbragðsstefnu þar sem óafvitandi stjórnvöld skapa aðstæður sem gera öfgaöflum kleift að vaxa og ná fótfestu. Einnig er fjallað um tilgang og tilgangs...
2025-06-01
38 min
Pæling dagsins
#76 Á sandi byggði heimskur maður hús
Til að styðja við þetta framtak má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270 Samstarfsaðilar: Poulsen Happy Hydrate Bæjarins Beztu Pylsur Ljárdalur.is Alvörubón
2025-05-09
48 min
Pæling dagsins
#75 Akademísk fórnarlambsvæðing
Þórarinn ræðir um stjórnmálin á Íslandi, fórnarlambsvæðingu og akademíuna. - Viðheldur akademían fórnarlambsvæðingu? - Ætti að kenna kynjafræði á öllum skólastigum? - Græðir fólk á því að vorkenna sér? Þessum spurningum er svarað hér.
2025-05-04
32 min
Pæling dagsins
#75 Skammsýni barna- og menntamálaráðherra kostar minnihlutahópa framtíðina
Þórarinn ræðir áform barna- og menntamálaráðherra um að breyta fyrirkomulagi umsókna í framhaldsskóla. Þetta eru áform sem dæmd hafa verið ólögleg í Bandaríkjunum. Þetta er bæði ósanngjarnt þeim sem missa af tækifærum vegna áformanna sem og þeirra hópa sem njóta forréttinda til skamms tíma. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á : www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270
2025-04-16
40 min
Pæling dagsins
#74 - Útför woke-sins í boði Sólveigar Önnu
Þórarinn fjallar um atburði vikunnar í samhengi við endalok wokesins og þrumuræðu Sólveigar Önnu í Synir Egils á Samstöðinni. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á : www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270
2025-04-13
34 min
Pæling dagsins
Pæling #73 Fjölmenning í Evrópu og óskráðar reglur
Þórarinn ræðir um breytt landslag í flóttamannamálum og fund sem fjallaði um þau efni þar sem Snorri Másson, Vilhjálmur Árnason og Arndís Anna Gunnarsdóttur tókust á um þessi mál. - Hvað gerir Ísland að Íslandi? - Eru Sharia lög áhyggjuefni í Evrópu? - Afhverju gengur svona illa að aðlaga? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á: www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn.
2025-04-05
31 min
Pæling dagsins
Pæling #72 Opinber fjármál og Milton Friedman
Þórarinn ræðir um opinber fjármál hins opinbera og stöðuleikareglu fjármálaráðherra sem hann kynnti í dag. Hugleiðingarnar snúa að Milton Friedman, verðbólgu, kulnun og fleiri atriðum. Www.pardus.is/einpaeling
2025-04-01
21 min
Pæling dagsins
#70 Örorka, Samfylkingin framtíðarinnar og ungir Sósíalistar
Þórarinn ræðir um áhugaverða þróun í breskum stjórnmálum er varðar nýja stefnu stjórnvalda þar í landi í velferðarmálum. Sú þróun er borin saman við þróun á Íslandi og sett í samhengi við lýðþróun og fjölgunartíðni. - Hver eru tengsl örorku, kulnunar og fjölgunartíðni? - Er velferðarkerfi framtíðarinnar úr sögunni? - Geta ungir sósíalistar stjórnað Íslandi og leyst deiluna á Gaza? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling eða Le...
2025-03-19
28 min
Pæling dagsins
#69 Breiðholtið og inngildingarstefna Reykjavíkurborgar
Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling eða Leggja málstaðnum lið með því að greiða inn á: Rkn. 0370-26-440408 Kt. 4404230270
2025-03-15
43 min
Pæling dagsins
#68 Heiða Björg Hilmisdóttir er besti stjórnmálamaður Íslands
Þeim sem fylgjast með stjórnmálum á Íslandi er nú ljóst að Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkurbúa, er besti stjórnmálamaður á landinu. Í þessum þætti er fjallað um feril Heiðu Bjargar í breiðum strokum frá árinu 2018 og það sett í samhengi við atburði síðasta mánuðinn eða allt frá því að hún tók við embættinu. Fjallað er um stöðu hennar innan Samfylkingarinnar, neyðarsjóð Ragnars Þórs Ingólfssonar, skatta, Braggamálið og margt fleira. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling eða
2025-03-12
26 min
Pæling dagsins
#67 Ofneysla ADHD lyfja og hliðverðir umræðunnar
Þórarinn ræðir aftur um stórkostlega einkennilegt viðmót fólks um ofneyslu ADHD lyfja.
2025-02-26
30 min
Pæling dagsins
#66 ADHD er tískufyrirbæri
Þórarinn fjallar um lífskjör á Íslandi í samhengi við verkfall kennara, ADHD greiningar, kulnun og fleira. - Afhverju er ADHD tískufyrirbæri? - Afhverju styð ég kjarabaráttu kennara? - Hvernig rýrir kulnun lífskjör framtíðarkynslóða? Þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling
2025-02-25
28 min
Pæling dagsins
#65 Verður Flokkur fólksins bakdyr stjórnarandstöðunnar?
Þórarinn ræðir stefnuræðu forsætisráðherra, Flokk fólksins og krísu borgarstjórnarmeirihlutans.
2025-02-11
35 min
Pæling dagsins
#64 Trump, Ísland og afhverju enginn vill fara í ESB
Þórarinn ræðir hin ýmsu mál. Í fyrstu er rætt um þær afleiðingar sem forsetisseta Trump kann að hafa á íslenskt samfélag og það sett í samhengi við þær menningarbreytingar sem eiga sér stað í dag. Þá er rætt um stöðu Evrópu og fjallað um það afhverju bæði Viðreisn og Samfylkingin vilji ekki fara í ESB. Að lokum er rætt um rétttrúnaðinn, heiðurstengda glæpi og margt fleira. - Afhverju vill Viðreisn ekki fara í ESB? - Hvað þýðir tveggjakynja stefna Trump? - Mun Ísland, ólíkt Evrópu, standa í lappirnar gagnvart he...
2025-01-24
53 min
Pæling dagsins
#63 ESB, Hvammsvirkjun og járnbúr Weber
Þórarinn ræðir um þá afleitu hugmynd að ný ríkisstjórn telji fýsilegt að ræða um aðild Íslands að ESB. Í því samhengi er rætt um úrskurð héraðsdóms sem komst að þeirri niðurstöðu að fella ætti leyfi virkjunarinnar úr gildi sökum þess að hún stangast á við löggjöf Evrópusambandsins. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling
2025-01-19
36 min
Pæling dagsins
#62 Hver er Pierre Poilievre?
Þórarinn ræðir stjórnmálamanninn Pierre Poilievre en það þykir nokkuð ljóst að hann mun koma til með að taka við forsætisráðherraembætti Kanada eftir næstu kosningar þar í landi. Til að styrkja þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling
2025-01-11
45 min
Pæling dagsins
#61 Hvert fór plan Valkyrjustjórnarinnar?
Þórarinn ræðir um stöðu stjórnmálanna og hvaða áhrif Inga Sæland kunni að hafa á ríkisstjórnina. Þá er fjallað um Sjálfstæðisflokkinn, kulnun opinberra starfsmanna, þróun í Evrópu og fleira. - Er skynsamlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fresta landsfundi? - Verður Inga Sæland álitin aukaleikari líkt og Dagur B.? - Þurfa Valkyrjurnar að segja stéttarfélögunum stríð á hendur?
2025-01-03
41 min
Pæling dagsins
#60 RÚV, kulnunarfrí og hugarfar
Þórarinn ræðir fjölmörg mál, þar á meðal einkarekna leikskóla, stjórnmálin og skipulagsmál hjá Reykjavíkurborg, en sérstök áhersla er lögð á gagnrýni Þórarins á RÚV og hugarfar er varðar kulnun sem, þrátt fyrir litla athygli, hafa gríðarleg áhrif á vinnumarkaðinn.
2024-12-17
39 min
Pæling dagsins
#59 Valkyrjustjórnin, fágætismálmar og listamannalaun
Í þessum þætti fjallar Þórarinn um þær áskoranir sem valkyrjustjórn Kristrúnar, Þorgerðar og Ingu stendur frammi fyrir. Hann skoðar málin í samhengi við nýlegar vendingar í fágætismálmum, útlendingamálum og fólksfækkun, bæði á Íslandi og erlendis. Að lokum er sjónum beint að listamannalaunum og þeim álitaefnum sem hafa komið upp í tengslum við úthlutun þeirra á þessu ári.
2024-12-04
1h 00
Pæling dagsins
#58 Woke-ið er dautt og þjóðin drap það - Alþingiskosningar 2024
Þórarinn ræðir nýliðnar kosningar og hvaða áhrif það mun koma til með að hafa á hið pólitíska landslag. - Var EHF gat Samfylkingarinnar pólitískt útspil? - Er þjóðin loks búin að gefast upp á hinu róttæka vinstri? - Hvað verður um Bjarna?
2024-12-03
49 min
Pæling dagsins
#58 Hugleiðingar eftir sigur Donald Trump
Þórarinn ræðir um reynslu sína af því að fylgjast með kosningum í Pennsylvaníu.
2024-11-07
36 min
Pæling dagsins
#57 Hundaflautukosningar
Þórarinn ræðir kynferðisafbrot og breytt landslag í stjórnmálaumræðu.
2024-10-21
39 min
Pæling dagsins
#56 Kosningar og hugmyndafræði BSRB
Þórarinn ræðir um stöðu stéttarlýðsfélaga, vendingar í upphafi snarprar kosningabaráttu og margt fleira. Til að styrkja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling
2024-10-20
48 min
Pæling dagsins
#55 Góður tími til að vera ógeð
Þórarinn ræðir um stefnuræði forsætisráðherra, þriðju vaktina og skilaboð Karlmennskunar.
2024-09-12
39 min
Pæling dagsins
#54 Drengjum verður ekki bjargað af þeim sem tala illa um þá
Þórarinn ræðir um stöðu drengja, aukinn vopnaburð og fræðasvið sem að telja sig geta bjargað drengjum með því að tala illa um þá.
2024-09-05
53 min
Pæling dagsins
#53 Aðgengi upplýsinga og dagskrárvald stjórnvalda
Þórarinn ræðir um aðgengi að upplýsingum, samfélagsmiðla, íslensk stjórnmál og loftslagsmál.
2024-09-01
1h 10
Pæling dagsins
#52 Er seðlabankastjóri skúrkurinn?
Þórarinn ræðir um áfengisneyslu Alþingismanna, orlofsgreiðslur fyrrum borgarstjóra, ríkisútgjöld, seðlabankastjóra og hugtakið lifandi reiknisdæmi. - Er seðlabankastjóri skúrkurinn? - Eiga alþingismenn rétt á því að neyta áfengis í vinnunni? - Gilda sérreglur um orlof borgarstjóra? - Afhverju eru ríkisútgjöld alltaf tvöfölduð? Þessum spurningum er svarað hér.
2024-08-22
53 min
Pæling dagsins
#51 Tjáningarfrelsi PrettyBoiTjokko, vararíkissaksóknara og breskra borgara
Eru aðgerðir breskra stjórnvalda Orwellískar? Gekk vararíkissaksóknari of langt í sinni orðræðu? Átti að sparka Pretty boi tjokko? Er til fyndinn nauðgunarbrandari? Öllum þessum spurningum er svarað hér. Til að styrkja þetta framlag: www.pardus.is/einpaeling Konstantin Kisin í hlaðvarpinu Ein Pæling: https://www.youtube.com/watch?v=QNRIkClRdMM
2024-08-15
1h 00
Pæling dagsins
#50 Miðstýring, óeirðir í Bretlandi, transboxarar og kolefnisjafnað húsnæði
Þórarinn ræðir um óeirðirnar sem að eiga sér stað á Bretlandseyjum, hnefaleikakeppanda á ólympíuleikunum sem sagður var trans, kolefnisjafnað húsnæði og sýn hinna útvöldu á miðstýrðum ríkisrekstri.
2024-08-05
1h 04
Pæling dagsins
#49 Fjármagnsblinda kynfræðings og kosningar í Bandaríkjunum
Þórarinn ræðir um skakkar hugmyndir kynfræðings um fjármagn innan íslenskrar stjórnsýslu og kosningar í Bandaríkjunum. Til að styðja við þetta framtak má fara inn á www.pardus.is/einpaeling
2024-07-27
48 min
Pæling dagsins
#48 Áhrif stórsigurs breska Verkamannaflokksins á Sjálfstæðisflokkinn
Þórarinn ræðir um úrslit kosninganna um setu á breska þinginu og hvaða áhrif þau kunnu að hafa á stjórnmálin hér á landi. - Hvað þýðir sigur Verkamannaflokksins fyrir Sjálfstæðisflokkinn? - Mun Samfylkingin ná sama árangri? - Afhverju fer fólk úr Samfylkingunni þegar það gengur vel? - Afhverju brugðust markaðir jákvætt við því að vinstriflokkur náði stjórn? Þessum spurningum er svarað hér.
2024-07-06
45 min
Pæling dagsins
#47 Framtíðin er hægrisinnuð
Þórarinn ræðir um nýa skilgreiningu hægrisins. - Hvað er öfgahægrið? - Eru grínistar mælikvarði á rétttrúnaðinn? - Er samfylkingin öfgahægriflokkur? - Er Bjarni ben ánægður með þjóðarmorð? Þessum spurningum er svarað hér. Styrkja má þetta framtak hér: www.pardus.is/einpaeling Hlaðvarp við Konstantin Kisin: https://www.youtube.com/watch?v=QNRIk... Konstantin Kisin um öfgahægrið: https://www.youtube.com/watch?v=QIGx3...
2024-06-28
43 min
Pæling dagsins
#46 Íslensk "therapy" menning
Þórarinn ræðir sálfræðimeðferðir á samfélagsmiðlum og iðnaðinn í kringum þær. Afhverju eykst vanlíðan samhliða aukinni notkun geðlyfja og umræðu? Hvaða áhrif hafa síauknar áherslur á því að opna sig um erfiðleika og geðkvilla á samfélagsmiðlum? Hér er þessum spurningum svarað.
2024-06-20
47 min
Pæling dagsins
#45 Vandamál, Samfylkingin, Píratar og Milton Friedman
Þórarinn fjallar um leyfisveitingar, stjórnmálin og afleiddar afleiðingar þess hve svifasein stjórnsýslan á Íslandi er. Einnig er fjallað um breyttar áherslur í málflutningi Kristrúnu Frostadóttur og Björns Leví Gunnarssonar sem að virðist vera að færast í átt að röksemdarfærslum Milton Friedman.
2024-06-11
35 min
Pæling dagsins
#44 1. júní 2024 - Er aukning vandamála lögmál? 1. hluti
Þórarinn ræðir afhverju umræða um afhverju umræður um vandamál séu þannig að lögmál virðist vera að þau muni koma til með að aukast. - Er stóuspeki og hugleiðingar Ágústar Árelíusar dottin úr tísku? - Er Halla Gunnarsdóttir að fara að eltast við kjörna fulltrúa? - Hverjir græða á vandamálunum? - Gerir kvennaathvarfið lítið úr heiðursglæpum? Þessum spurningum er svarað hér. Til þess að styrkja þetta framtak má fara á www.pardus.is/einpaeling
2024-06-01
40 min
Pæling dagsins
#43 23. maí 2024 - Vald og tungumál
Þórarinn ræðir um áherslu stjórn- og áhrifavalda til þess að breyta tungumálinu til þess að þóknast pólitískum hugðarefnum.
2024-05-24
40 min
Pæling dagsins
#42 16. maí 2024 - Vondar hugmyndir þurfa að verða undir
Þórarinn fjallar um vondar hugmyndir í samhengi við góðar hugmyndir. Afhverju kjósa samfélög að fylgja vondum hugmyndum? Hvaða áhrif hefur skoðanakúgun á samfélagsgerð og framþróun? Hver er staða háskólasamfélaga í hinum Vestræna heimi gagnvart upplýsingagjöf og áhrif? Þessum spurningum er svarað hér.
2024-05-16
52 min
Pæling dagsins
#41 9. maí 2024 - Hinn akademíski sértrúarsöfnuður
Þórarinn ræðir hugmyndir Niall Ferguson, Jonathan Haidt, Mark Lilla og Andrew Doyle um hvernig sértrúarsöfnuðum hefur tekist að gera akademískar stofnanir og virta háskóla að aðhlátursefni á undanförnum árum.
2024-05-09
31 min
Pæling dagsins
#40 3. maí 2024 - Tillaga gömlu Samfylkingarinnar neitað af nýju Samfylkingunni
Þórarinn ræðir um eftirfarandi hluti: - Hvað gerist þegar inngilding mistekst? - Afhverju var Women's March bara haldið einu sinni? - Hvers vegna misnotar öfgafólk réttindabaráttur til þess að koma sjálfu sér á framfæri? - Afhverju neitaði nýja Samfylkingin tillögu gömlu Samfylkingarinnar í útlendingamálum?
2024-05-03
34 min
Pæling dagsins
#39 18. apríl 2024 - "Framtíðartekjuöflun" nýrrar fjármálaáætlunar
Þórarinn fjallar um fyrri hluta nýrrar fjármálaáætlunar nýs fjármálaráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssonar.
2024-04-18
29 min
Pæling dagsins
#38 11. apríl 2024 - Ráðherrakapall og rottufaraldur í Reykjavík
Þórarinn ræðir um ýmis mál sem snúa að samtímanum. Meðal annars: - Bjarni Benediktsson er kominn í bana stuð. - Framsókn býður þjóðinni upp á besta og versta ráðherrann - Er Klapp app Strætó versta app sögunnar? - Rottufaraldur á meðan Samband íslenskra sveitarfélaga mokar fjármagni í Höllu Gunnarsdóttur. - Hvað er VG án Katrínar? - Hvað liggur að baki aukinni sjálfvígstíðni kvenna? Njótið!
2024-04-11
39 min
Pæling dagsins
#37 4. apríl 2024 - Orðin okkar og hatursorðræða í Skotlandi
Þórarinn fer um víðan völl að þessu sinni. Fjallað er stuttlega um forsetakosningar hér á landi og í Bandaríkjunum. Þá er fjallað um áhrif þess á Bandarísk stjórnmál að dagur sýnileika transfólks hafi verið sama dag og Páskadagur. Að lokum er rætt um orðin okkar og nýja löggjöf í Skotlandi sem tók nýlega gildi þar sem tjáningarfrelsi fólks er takmarkað undir þeim formmerkjum að takast skuli á við hatursorðræðu. Christopher Hitchens - Why Orwell Matters: https://www.youtube.com/watch?v=rY5Ste5xRAA ...
2024-04-03
41 min
Pæling dagsins
#36 29. mars 2024 - Verðbólga, transbörn og Halla Gunnarsdóttir
Þórarinn ræðir um verðbólguna og snúna stöðu sem að Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er kominn í vegna erfiðrar stöðu Grindvíkinga og litlu framboði á húsnæði. Þá er fjallað um álitamál um transmál þar sem hugleiðingar Þórarins um umræðuna eru bornar á borð og stutt hljóðbrot úr þætti Bill Maher er meðal annars spilað. Að lokum er fjallað um Höllu Gunnarsdóttur en hún mun taka að sér verkefni að fylgjast með hegðun kjörinna fulltrúa gagnvart öðrum kjörnum fulltrúum. Fyrir ómakið fær hún litlar 644.000 krónur á mánu
2024-03-29
33 min
Pæling dagsins
#35 26. mars 2024 - Ólafur Ragnar, kjarasamningar, ríkisútgjöld og Gísli Marteinn
Þórarinn ræðir um þátt Silfursins þar sem tekið var viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson, kjarasamninga, ríkisútgjöld, kvöldþing stjórnmálamanna, kaup Landsbankanns á TM og fleira.
2024-03-26
33 min
Pæling dagsins
#34 12. mars - Landamæraeftirlit, meðvirkni Eurovision aðdáenda, aðföng og ADHD lyf
Þórarinn ræðir um landamæraeftirlit og auknar áherslur á útlendingamál í stjórnmálunum á Íslandi. Farið er yfir þau mál sem voru rædd í þætti Silfrisins á mánudagskvöldið og farið yfir hugmyndir stjórnmálamanna um það hvað þurfi að gera í verðbólgunni og skorti á aðföngum og mannafla í skólakerfinu. Að lokum er rætt um ADHD lyf sem virðist vera orðin okkar eina lausn til þess að takast á við vanlíðan og vangetu ungs fólks í skóla.
2024-03-12
25 min
Pæling dagsins
#33 - 7. mars - Pólitískur óstöðugleiki er stjórnmálamönnum að kenna
Þórarinn ræðir um kjarasamninga, útlendingamál, pólitískan óstöðugleika, Karl Marx, kulnun innan háskólasamfélagsins, Austin University, heilbrigðiskerfið og húsaleigulög.
2024-03-07
25 min
Pæling dagsins
#32 - 29. Febrúar - Samfylkingin, hælisleitendur, heimilislæknar og kjaraviðræður
Þórarinn ræðir um stefnubreytingu Samfylkingarinnar þegar að Kristrún Frostadóttir kvað upp nýjan tón í málefnum útlendinga og hælisleitenda. Einnig er fjallað um varhugaverða þróun í fjölda heimilislækna og kjaraviðræður.
2024-02-29
26 min
Pæling dagsins
#31 Menningarmunur, umburðarlyndi og umburðarleysi
Þórarinn ræðir um þróun Evrópu í útlendingamálum undanfarin ár. Fjallað er um ábyrgð Vestrænna ríkja til þess að taka á móti fólki frá mismunandi menningarheimum, færsla Bjarna um tjaldbúðirnar á Austurvelli, hvað fjölgun flóttamanna frá Gasa þýði fyrir Gyðinga á Íslandi, þróunina á Norðurlöndunum og aukið fylgi flokka í Evrópu sem að hafa á sinni stefnuskrá að úthýsa múslimum, tjáningarfrelsi, Ketman, hatursorðræðu og fleira.
2024-02-05
1h 13
Pæling dagsins
#30 Þriðja vaktin - Bókadómur
Þórarinn fer yfir jákvæðar og neikvæðar hliðar bókarinnar Þriðja vaktin eftir Huldu Tölgyes og Þorstein V. Einarsson.
2023-12-23
36 min
Pæling dagsins
#29 Hverjum má kenna um niðurstöður PISA?
Þórarinn ræðir nýjar niðurstöður PISA sem sýna að staða íslenskra barna og samfélags sé slæm er varðar menntun.
2023-12-07
33 min
Pæling dagsins
#28 Disney, fórnarlömb og loftslagsmál
Þórarinn ræðir hugmyndir Theodor W. Adorno um menningu og setur þær í samhengi við nútímann.
2023-12-05
29 min
Pæling dagsins
#27 Staða Grindvíkinga - Húsnæði og efnahagur
Þórarinn ræðir áhrif jarðshræringa á húsnæði Grindvíkinga.
2023-11-18
16 min
Pæling dagsins
#26 Forréttindapýramídar Reykjavíkurborgar
Þórarinn ræðir lýðræðisvirkni ungmenna og forréttindapýramída.
2023-11-05
18 min
Pæling dagsins
#25 Opinberir starfsmenn og kulnun - Er ríkið fyrir mig eða er ríkið fyrir sig?
Þórarinn ræðir um starf hins opinbera gagnvart borgurunum, kulnun opinberra starfsmanna og upplýsingalög.
2023-10-27
14 min
Pæling dagsins
#24 Kvennafrídagurinn er della
Þórarinn ræðir um kvennafrídaginn.
2023-10-23
18 min
Pæling dagsins
#23 Afsögn Bjarna Ben
Þórarinn ræðir afsögn ráðherra og mögulegar afleiðingar þess á ríkisstjórnarsambandið.
2023-10-14
26 min
Pæling dagsins
#22 Hatursorðræða er ekki til
Þórarinn les pistil sinn frá því árið 2021 og hugleiðingar um hatursorðræðu.
2023-10-02
22 min
Pæling dagsins
#21 Framsókn, borgarlínan og bændur
Þórarinn fjallar um Framsóknarflokkinn, borgarlínuna og bændur. Afhverju getur strætó ekki bætt greiðslukerfið? Hvaða aðgangshindranir valda eftirlitsstofnanir? Hvað mun Einar Þorsteinsson gera?
2023-09-29
17 min
Pæling dagsins
#20 RÚV er ekki Með á nótunum
Þórarinn ræðir menningarhlutverk RÚV og þann misskilning sem að margir starfsmenn virðast hafa um eigin stöðu.
2023-09-17
17 min
Pæling dagsins
#19 BDSM og bann Frosta Logasonar af YouTube
Þórarinn fjallar um BDSM-fræðslu í skólum Reykjavíkurborgar og bann hlaðvarps Frosta Logasonar af YouTube.
2023-09-10
18 min
Pæling dagsins
#18 Verður Kristrún Frostadóttir umbjóðandi eða fulltrúi?
Þórarinn ræðir Kristrúnu Frostadóttur sem breytu í íslenskum stjórnmálum.
2023-09-06
33 min
Pæling dagsins
#17 Hvalveiðar og sendiherrar frá Hollywood
Þórarinn ræðir íhlutun Hollywoodstjarna vegna hvalveiða.
2023-08-31
08 min
Pæling dagsins
#16 Karlmennskan, kynjafræði og trúarbrögð
Þórarinn ræðir samfélagsmiðlafyrirbærið Karlmennskan í samhengi við kynjafræði og trúarbrögð.
2023-08-26
24 min
Pæling dagsins
#15 Svandís sprengir VG eða ríkisstjórnina 1. sept.
Þórarinn ræðir enn og aftur stöðu ríkisstjórnarinnar, bæði hvalveiðibannið og vendingar í útlendingamálum.
2023-08-19
20 min
Pæling dagsins
#14 Stjórnvöld leggja gildru fyrir tekjulága með hlutdeildarlánum
Þórarinn ræðir um hlutdeildarlán og þau álitamál sem að snúa að þeim í núverandi ástandi.
2023-08-08
23 min
Pæling dagsins
#13 Eru Sorpa og Úrvinnslusjóður rusl stofnanir?
Þórarinn ræðir um áform Sorpu um að fjölga sorphirðutunnum og auka vitundarvakningu almennings. En þessar stofnanir hafa ekki siglt lygnan sjó undanfarin ár.
2023-08-04
18 min
Pæling dagsins
#12 Miðflokkurinn og Samfylkingin í kjörstöðu
Þórarinn ræðir stöðu Miðflokksins og Samfylkingarinnar í samhengi við núverandi stemningu innan ríkisstjórnarinnar.
2023-08-02
28 min
Pæling dagsins
#11 Hafa sjálfstæðismenn gefist upp á eigin stefnu?
Þórarinn ræðir pistil Brynjars Níelssonar og viðtal Gísla Freys Valdórssonar við Bjarna Benediktsson í Þjóðmálum.
2023-07-27
23 min
Pæling dagsins
#10 Sjálfsritskoðun
Þórarinn ræðir sjálfsritskoðun og hræðslu við að tjá sínar skoðanir.
2023-07-25
21 min
Pæling dagsins
#9 Íslensk tunga og menning - Útlendingaandúð Heiðars Guðjónssonar
Í þessum þætti er fjallað um hugleiðingar Heiðars Guðjónssonar sem að hann hefur rætt í hlaðvarpsþáttum nýverið. Rætt er um stöðu íslenskrar tungu, menningu og hvort að áhyggjur sem að Heiðar hefur af þeim efnum sé, líkt og Eiríkur Rögnvaldsson segir, byggð á útlendingaandúð.
2023-07-20
17 min
Pæling dagsins
#8 Þriðja vaktin snýst um vald og peninga
Þórarinn ræðir hugleiðingar um þriðju vaktina.
2023-07-09
22 min
Pæling dagsins
#7 Kristrún Frostadóttir heldur ríkisstjórninni saman
Þórarinn ræðir stöðu Samfylkingarinnar og ríkisstjórnarinnar.
2023-07-05
19 min
Pæling dagsins
#6 Hæstiréttur Bandaríkjanna bannar jákvæða mismunun
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur bannað háskólum að beita jákvæðri mismunun við val á samþykktum umsóknum nemenda.
2023-07-02
23 min
Pæling dagsins
#5 Viljum við bera ábyrgð á sjálfum okkur?
Rætt er um kulnin, félagsleg úrræði, húsnæðismál, stjórnmálin og skaðaminnkandi úrræði.
2023-06-28
18 min
Pæling dagsins
#4 Stjórnmál, tjáningarfrelsi og transmál
Þórarinn ræðir titring ríkisstjórnarinnar, tjáningarfrelsi og transmál.
2023-06-22
21 min
Pæling dagsins
#3 Ríkisstjórnin mun springa fyrir helgi
Þórarinn ræðir um vendingar í ríkisstjórnarsambandinu.
2023-06-20
12 min
Pæling dagsins
#2 Stjórnmálamenning og launahækkanir æðstu ráðamanna
Þórarinn ræðir stjórnmálamenningu og launahækkanir æðstu ráðamnna.
2023-06-20
19 min
Pæling dagsins
#1 Pæling Dagsins - Kynning
Kynning á nýjum þáttum.
2023-06-20
22 min