Look for any podcast host, guest or anyone
Showing episodes and shows of

Skuggavaldid

Shows

SkuggavaldiðSkuggavaldið#17 - Efnaslóðar; að flugvélar dreifi eiturefnum – fyrri þátturEru hvítu rákirnar sem fylgja þotum á himni í raun eiturefni, vísvitandi úðað yfir fólkið til að hafa áhrif á hegðun þess? Í þessum fyrri af tveimur þáttum Skuggavaldsins um svonefnda efnaslóða — eða chemtrails — kafa Hulda og Eiríkur ofan í uppruna samsæriskenningarinnar og skoða hvernig raunveruleg vísindaverkefni á borð við HAARP og tilraunir til veðurstýringar hafa lagt frjóan jarðveg fyrir vantraust og tortryggni sem halda kenningunni á lífi. Nýjasti þátturinn af Skuggavaldinu er kominn í loftið — bókstaflega — og aðgengilegur á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Áttu dularfullan leyndardóm sem þú vilt að við kryfjum? Sendu okkur línu á skuggava...2025-06-0938 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#16 - Andlát Marilyn MonroeMyrti mafían Marilyn Monroe? Eða stóðu Kennedy-bræður kannski að andláti hennar? Hulda og Eiríkur kafa ofan í flókið net samsæriskenninga um dularfullan dauða frægustu kvikmyndastjörnu heims. Mafían, CIA, Kennedy-bræður, ástir, losti, fíkn og svik fléttast saman í víðfeman sagnavef. Ábendingar og athugasemdir sendist í skuggavaldid@gmail.com 2025-05-2653 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#15 - Illuminati goðsögnin – seinni þátturVar franska byltingin í raun sprottin af þýskri leynireglu? Eiga Rockefellerar, Rothschildar og rapparinn Jay-Z það sameiginlegt að vilja koma á fót nýrri heimsskipan? Og hvernig varð tákn sem eitt sinn stóð fyrir visku og skynsemi að tákni alræðislegs skuggavalds í popptónlist og pólitík? Í síðari þætti af tveimur um goðsögnina um Illuminati rýna Eiríkur og Hulda í þrálátar samsæriskenningar tengdar bræðrareglunni úr Bæjaralandi – frá hógværum og hugmyndafræðilegum uppruna hennar árið 1776 til grunsemda um hnattrænt valdakerfi sem á að stjórna öllu frá heimsstyrjöldum til sviðsetningar í tónlistarmyndböndu2025-05-1246 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#14 - Illuminati leynireglan – fyrri þátturStýrir Illuminati bræðrareglan frá Bæjaralandi heimsviðburðum – allt frá frönsku byltingunni til Kardashian-fjölskyldunnar? Í þessum fyrri af tveimur þáttum um Illuminati kafa Eiríkur og Hulda í sögulegan uppruna leynifélagsins sem síðar varð að alþjóðlegri goðsögn um ósýnilegt vald. Þau rekja hvernig smáhópur hugsuða í Bæjaralandi árið 1776 breyttist í myrka ímynd alheimsstjórnar og greina gagnrýnið hvernig tákn, tónlistarmyndbönd og valdakenningar hafa verið samtvinnuð æsilegum sögum um leynd og yfirráð. Af hverju lifir goðsögnin um Illuminati áfram – og hvað segir það um samtímann?  2025-04-2841 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#13 - Kennedy bölvunin - þriðji þátturLétu valdaöfl í Repúblíkanaflokknum myrða Robert F. Kennedy Sr til að koma í veg fyrir að Kennedy-fjölskyldan snéri aftur á forsetastól? Í lokaþætti þríleiks Skuggavaldsins um Kennedy-bölvunina skoða Hulda og Eiríkur morðið á Robert F. Kennedy og flétta saman heillandi fjölskyldusögu, samsæriskenningar og bandaríska ofbeldissögu – allt fram til dagsins í dag þar sem sonur hans, RFK Jr., einn áhrifamesti talsmaður samsæriskenninga í heimi, situr sem heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna. Þátturinn tengir harmleik, stjórnmál og sálfræði í átakanlega og stundum óvænta frásögn. 2025-04-1445 minSamfélagiðSamfélagiðFélagsleg einangrun, Kennedy-skjölin og köld böðFélagsleg einangrun er lýðheilsuvandi til jafns við reykingar, ofneyslu áfengis og fleiri stórfelldar ógnir við almenna heilsu, að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Og félagsleg einangrun er frekar algeng, talið er að eitt af hverjum tíu ungmennum upplifi félagslega einangrun og um fjórðungur eldra fólks. En hverjar eru orsakirnar? Hvað er til ráða? Við ræðum við Líneyju Úlfarsdóttur, sálfræðing og sérfræðing í félagslegri einangrun um þetta lýðheilsuvandamál og hvernig hægt sé að rjúfa félagslega einangrun. Og í seinni hluta þáttarins ætlum við að ræða leyniskjöl, morð og samsæ...2025-04-0259 minSamfélagiðSamfélagiðFélagsleg einangrun, Kennedy-skjölin og köld böðFélagsleg einangrun er lýðheilsuvandi til jafns við reykingar, ofneyslu áfengis og fleiri stórfelldar ógnir við almenna heilsu, að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Og félagsleg einangrun er frekar algeng, talið er að eitt af hverjum tíu ungmennum upplifi félagslega einangrun og um fjórðungur eldra fólks. En hverjar eru orsakirnar? Hvað er til ráða? Við ræðum við Líneyju Úlfarsdóttur, sálfræðing og sérfræðing í félagslegri einangrun um þetta lýðheilsuvandamál og hvernig hægt sé að rjúfa félagslega einangrun. Og í seinni hluta þáttarins ætlum við að ræða leyniskjöl, morð og samsæ...2025-04-0255 minSamfélagiðSamfélagiðFélagsleg einangrun, Kennedy-skjölin og köld böðFélagsleg einangrun er lýðheilsuvandi til jafns við reykingar, ofneyslu áfengis og fleiri stórfelldar ógnir við almenna heilsu, að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Og félagsleg einangrun er frekar algeng, talið er að eitt af hverjum tíu ungmennum upplifi félagslega einangrun og um fjórðungur eldra fólks. En hverjar eru orsakirnar? Hvað er til ráða? Við ræðum við Líneyju Úlfarsdóttur, sálfræðing og sérfræðing í félagslegri einangrun um þetta lýðheilsuvandamál og hvernig hægt sé að rjúfa félagslega einangrun. Og í seinni hluta þáttarins ætlum við að ræða leyniskjöl, morð og samsæ...2025-04-0259 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#12 - Kennedy bölvunin - annar þátturLeyndu bandarísk stjórnvöld upplýsingum um raunverulegan morðingja John F. Kennedy? Í öðrum þætti þríleiks um Kennedy-bölvunina kafa Eiríkur og Hulda ofan í sígildar samsæriskenningar um að valdastofnanir Bandaríkjanna – þar á meðal leyniþjónustan – hafi annað hvort komið að morðinu á John F. Kennedy eða vitað meira en þær létu uppi. Fjallað er um eftirmála morðsins, skoðað hvaða mann Lee Harvey Oswald hafði að geyma og helstu samsæriskenningar vegnar og metnar með gagnrýnum augum. 2025-03-3150 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#11 - Kennedy bölvunin - fyrsti þátturMyrti mafían John F. Kennedy? Eða CIA ? Stóð Castro á Kúbu kannski á bak við morðið? Hverjir höfðu mest að græða á því að þagga niður í forsetanum sem ætlaði að umbylta bandarísku valdi? Í þessum fyrsta af þremur þáttum um Kennedy-fjölskylduna er rýnt í morðið á JFK og farið ofan í söguna sem gerði þau að „konungsfjölskyldu“ Bandaríkjanna – veldi sem virtist dæmt til glæsileika en líka óhjákvæmilegra hörmunga. 2025-03-1744 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#10 - Trump samsæriskenningar 2.0Snúinn aftur á forsetastól í BNA hefur Trump lyft samsæriskenningum upp í hæstu hæðir valdsins. Í þættinum fjalla Eiríkur og Hulda um hvernig Trump hefur breytt samsærisórum í opinbera stjórnarstefnu – með ráðherrum sem trúa á kosningasvindl, bóluefnasvindl og hina svokölluðu „Great Replacement“-kenningu, sem segir að innflytjendur séu markvisst notaðir til að veikja „hina raunverulegu Bandaríkjamenn“. Þátturinn fjallar einnig um hvernig samsæriskenningar spruttu upp eins og illgresi í kjölfar banatilræðisins gegn Trump og hvernig hann hefur hert tök sín á valdinu með því að náða öfgahópa og refsa pólitískum óvinum. Að lokum...2025-03-0336 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#9 - Trump samsæriskenningar 1.0Gróf djúpríkið í Bandaríkjunum undan árangri Donalds Trumps á fyrri forsetatíð hans? Eitt helsta sérkenni Trumps sem stjórnmálamanns er hvernig hann hefur gert samsæriskenningar að lykilvopni í baráttu sinni – ekki bara til að grafa undan andstæðingum sínum, heldur einnig til að styrkja eigin stöðu. Í þessum þætti kryfja Eiríkur og Hulda samsærisstjórnmál Trumps og sýna hvernig samsæriskenningar urðu ekki aðeins hluti af orðræðu hans, heldur sjálfur grunnurinn að forsetatíð hans. Var „djúpríkið“ raunverulegt ógn við forsetann – eða var það Trump sjálfur sem skapaði óvini úr engu? 2025-02-1749 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#8 - Dauði Kurt CobainStóð Courtney Love, eiginkona Kurt Cobain, forsöngvara hinnar íkonísku grunge hljómsveitar, Nirvana, að baki dauða hans árið 1994 vegna öfundar og erfðamála? Eða komu yfirvöld honum kannski fyrir kattarnef til að koma í veg fyrir slæm áhrif hans á æsku landsins? Í þættinum fjalla Eiríkur og Hulda um samsæriskenningarnar tengdar andláti Kurt Cobain en þær eru eins spegilmyndir í myrkri, þar sem harmræn persónusaga Cobain blandast ógnvekjandi frásögnum af vafasömum atvikum og óræðum vísbendingum 2024-12-0944 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#7 - Ný heimsskipan part 2Stýrir leynileg valdaelíta alþjóðstofnunum á borð við ESB og SÞ á bak við tjöldin? Stóð hún kannski að baki bæði fyrri heimsstyrjöld og uppgangi nasismans til að skapa ringulreið og koma á alræði á heimsvísu? Í seinni þætti af tveimur um nýja heimsskipan ræða Hulda og Eiríkur þessa margbrotnu samsæriskenningu. 2024-11-2543 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#6 - Ný heimsskipan part 1Stýrir leynileg valdaelíta heiminum? Mun hún hneppa veröldina í ánauð? Í þættinum leiða Hulda og Eiríkur hlustendur í gegnum sögu og einkenni hinnar frægu samsæriskenningar um Nýja heimsskipan (e. New World Order). Samkvæmt kenningunni hefur leynileg valdaelíta, oft nefnd „heimselítan,“ það að markmiði að koma á alræðisstjórn og hneppa heimsbyggðina undir alræði fárra útvalinna. 2024-11-1147 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#5 - Qanon samsæriskenningin part 2Stal djúpríkið í Bandaríkjunum forsetakjörinu úr réttkjörnum höndum Donalds Trumps árið 2020? Lágu djöfladýrkandi barnaníðingar í elítu Demókrataflokksins þar undir steini? Í síðari þætti um QAnon rekja þau Eiríkur og Hulda atburðina þann 6. janúar 2021 þegar stuðningsfólk Donalds Trumps, mörg hver keyrð áfram af trú sinni á QAnon samsæriskenninguna, ruddust inní þinghúsið í vanburðugri valdaránstilraun. Árásin á þinghúsið er skýrt dæmi um það hvernig samræmiskenningar geta leitt til upplausnar og átaka í samfélögum samtímans. 2024-10-2852 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#4 - Qanon samsæriskenningin part 1Stjórna djöfladýrkandi barnaníðingar Bandaríkjunum undir niðri? Er Donald Trump eina vörnin gegn illvirkjunum? QAnon-samsæriskenningin sem heldur slíku fram hófst sem pískur í myrkustu kimum Internetsins en þróaðist á ótrúlega skömmum tíma í hreyfingu sem átti þátt í einum afdrifaríkasta atburði í sögu Bandaríkjanna – árásinni á þinghúsið þann 6. janúar 2021. Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið kryfja prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann forsöguna að þessari ótrúlegu hreyfingu og skoða hvernig hún náði að breiðast út frá undirheimum netmiðlanna til raunverulegra atburða. 2024-10-1445 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#3 - Dauði Díönu part 2Bar Díana prinsessa barn Dodi Al-Fayed undir belti þegar hún dó í bílslysinu í París? Skipulagði breska krúnan dauða Díönu til að koma í veg fyrir að fá múslima inn í konungsfjölskylduna? Í seinni þætti um dauða Díönu ræða Eiríkur og Hulda um örlagaríka atburði næturinnar þegar Díana dó í bílslysi. Þau ræða opinberar rannsóknir á slysinu og velta upp því sem enn þykir óljóst og hefur verið vant á myllu þeirra sem gjarnan gruna konungsfjölskylduna um græsku. 2024-09-3034 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#2 - Dauði Díönu part 1Stóð breska konungsfjölskyldan að baki andláti Díönu prinsessu? Eða kannski vopnaframleiðendur? Allt frá hörmulega bílslysinu í París hafa langsóttar samsæriskenningar lifað og fengið vængi, sem þau Eiríkur og Hulda ræða um í þættinum. Þau fjalla um baksöguna, endurgoldna ástina og ræða um prinsessuna sem fólkið elskaði en sem var sjálf svo ósköp óhamingjusöm. 2024-09-1640 minSkuggavaldiðSkuggavaldið#1 - Norrænar samsæriskenningarStóð aðskilnaðarstjórnin í Suður-Afríku að baki morðinu á Olof Palme? Var farþegaferjunni MS Estoina grandað vegna vopnaflutninga frá Rússlandi? Fórnuðu Satanistar fyrr á öldum norrænum börnum til þess að greiða eldgamla skuld við Ottomannveldið? Þótt Norðurlöndin virðist á yfirborðinu kannski ekki vera gróðrastía samsæriskenninga kennir þar þó ýmissa grasa, svo sem greina má af framanverðum spurningum. Í þættinum fjalla þau Hulda og Eiríkur um Norrænar samsæriskenningar og ræða jafnframt almennt um eðli og inntak samsæriskenninga. Þá er rýnt í það hvers vegna Íslendingar virðast trúaðari á pólitískar sa2024-09-0248 minSkuggavaldiðSkuggavaldiðSkuggavaldið - TrailerÍ Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í kjölfar Brexit, stjórnartíðar Donalds Trump og COVID-faraldursins. Samsæriskenningar eru þó ekki nýjar af nálinni, heldur hafa þær fylgt manninum frá öndverðu og nærast á þörf til að greina hulið skipulag í óreiðu.  Framleitt af Tal. 2024-08-1603 min