podcast
details
.com
Print
Share
Look for any podcast host, guest or anyone
Search
Showing episodes and shows of
Viltufinnamilljon
Shows
Viltu finna milljón?
5.Þáttur Gerður í Blush: "Aldrei ákveða fyrirfram að fólk sé ekki tilbúið að borga fyrir eitthvað!"
Við fengum til okkar hana Gerði Huld í mjög svo innblástursríkt spjall um tekjur, rekstur og hugarfar. Hún hefur lifað tímana tvenna þegar að kemur að rekstri en hún stofnaði sitt aðeins 21 árs og hefur ekki litið um öxl síðan. Ef þú vilt fá vikuskammt af innblæstri á rúmum klukkutíma, þá er þetta þáttur fyrir þig! Þátturinn er í boði: Aukakrónur Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna Eignaumsjón
2026-02-19
1h 13
Viltu finna milljón?
4. Þáttur - Fasteignamarkaður ásamt Páli Pálssyni og Björku Pálsdóttur
Í þætti dagsins tökum við fyrir fasteigna- og lánamarkaðinn eins og hann leggur sig með tveimur sérfræðingum. Annar þeirra er hlustendum góðkunnur en Páll Pállson eigandi Pálsson fasteignasölu mætir til okkar annað árið í röð en ásamt honum fengum við til okkar hana Björk Pálsdóttur íbúðarlánaráðgjafa. Áhugavert spjall við fólk sem þekkir leikinn þegar að kemur að fasteignum! Þátturinn er í boði: Aukakrónur Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna Eignaumsjón
2026-02-12
1h 26
Viltu finna milljón?
3.þáttur - Georg Lúðvíksson: "Fjármálahegðun og erfðir eru nátengd fyrirbæri"
Við fengum til okkar einn helsta sérfræðing landsins í persónulegum fjármálum, hann Georg Lúðvíksson, en í lok síðasta árs kom út bókin Sálfræði peninganna í þýðingu hans og Kristrúnar Tinnu Gunnarsdóttur. Georg hefur komið víða við og stofnaði meðal annars Meniga, en er nú að hefja nýja og spennandi vegferð Spesía, sem kynnt verður til leiks á næstu misserum. Fróðlegur og upplýsandi þáttur að vanda þennan fimmtudaginn og að sjálfsögðu hvetjum við alla sem hafa áhuga á heilbrigðum peningavenjum að leggja við hlustir! Þátturinn e...
2026-02-05
1h 06
Viltu finna milljón?
2.Þáttur - Lína Birgitta ræðir kaupfíkn og rekstur
Gestur okkar í dag er Lína Birgitta Sigurðardóttir sem stóð ung frami fyrir möguleikanum á að lýsa sig gjaldþrota. Hún glímdi við kaupfíkn frá ungum aldri, en hefur í dag tekist að byggja upp magnaðan feril sem áhrifavaldur, hlaðvarpari og frumkvöðull en í dag rekur hún fyrirtækið Define the line sem hefur náð talsverðri útbreiðslu og er á spennandi tímamótum. Lína er sönnun þess að þó að allt sé í rúst í fjármálunum þá er hægt að snúa því við! Skylduhlustun fyrir alla sem hafa áhuga á góðum árangurssögum! Þátturinn e...
2026-01-29
1h 25
Viltu finna milljón?
1.Þáttur - Nína Björg sálfræðingur: "Við viljum alltaf það sama og nágranninn"
Þá hefjum við seríu 2 af Viltu finna milljón hlaðvarpinu! Í dag kom til okkar hún Nína Björg sem er menntaður sálfræðingur og hefur lagt sérstaka áherslu á þá sálfræðilegu þætti sem liggja á bakvið peninga. Áhugavert spjall, þar sem við förum um víðan völl á þessum stórmerkilega anga sálfræðarinnar! Einnig skyggnumst við á bakvið tjöldin við gerð þáttanna og gefum bestu ráðin eins og áður. Eitthvað fyrir alla í dag! Þátturinn er í boði: Aukakrónur Bónus Aurbjörg Félag lykilmanna MyIgloo
2026-01-22
1h 12
Viltu finna milljón?
7.þáttur - Spjall við keppendur og uppgjör (Höskuldarviðvörun)
Þá er komið að lokaþættinum sem verður helgaður keppendum okkar. Því miður voru Kristjana og Daníel vant við látin en Jóhann & Askur og Ólafur & Guðrún mættu eldhress. Nú þegar keppni er lokið spyrjum við þau um reynslu þeirra úr þáttunum og lífið eftir keppnina. Takk kærlega fyrir áhorfið og hlustunina í þessari þáttaröð og við sjáumst í þeirri þriðju! Umsókn fyrir næstu seríu fer fram hér: https://stod2.is/vfm - Þetta gæti breytt lífi ykkar!
2025-05-08
1h 23
Viltu finna milljón?
6.þáttur - Halldór Kristinsson forstöðumaður hlutabréfa hjá Landsbréfum
Við fengum til okkar hann Halldór Kristinsson sjóðsstjóra og forstöðumann hlutabréfa hjá Landsbréfum og fórum yfir víðan völl í fjárfestingum.
2025-05-01
1h 22
Viltu finna milljón?
5.þáttur - Björn Berg: Forðastu að stofna framtíðarsjóð í nafni barnsins
Það eru fáir eins fróðir um persónuleg fjármál og sjálfur Björn Berg sem mætti til okkar og úr varð tæpur klukkutími af umræðum um hin ýmsu málefni. Við ræddum allt frá framtíðarreikningum barna til lífeyrismála og því er þessi þáttur fyrir fólk á öllum aldri. Sannkölluð virðissprengja í þætti dagsins! Þátturinn er í boði: Aukakrónur Bónus Aurbjörg Pálsson fasteignasala Hopp
2025-04-14
1h 31
Viltu finna milljón?
4.þáttur - Katrín Björk: Eyddi aðeins 6.000 kr. í mat á viku og fólk varð brjálað
Við fengum til okkar hana Katrínu Björk sem er minimalisti og sannkallaður sérsfræðingur þegar að kemur að matarinnkaupum. Hún heldur úti Youtube rás með 126.000 fylgjendum þar sem hún miðlar visku sinni í sparnaði en auk þess þá heldur hún úti "Meira með minna" á instagram og facebook. Við fórum yfir hvernig hægt er að besta matarinnkaup inn á heimilið, markmiðasetningu og margt fleira. Stórskemmtilegur þáttur og alveg hrikalega gagnlegur! Þátturinn er í boði: Aukakrónur Bónus Aurbjörg Pálsson fasteignasala Hopp
2025-04-10
1h 19
Viltu finna milljón?
3.þáttur - Íris Líf: Þarf 200 milljónir til að öðlast fjárhagslegt frelsi
Þessa vikuna fengum við til okkar hana Írisi Líf sem stefnir að því að verða fjárhagslega sjálfstæð fyrir þrítugt með FIRE aðferðafræðinni. Við spurðum hana spjörunum úr og úr varð magnað viðtal við unga konu á uppleið sem lætur fátt stoppa sig. Þátturinn er í boði: Aukakrónur Bónus Aurbjörg Pálsson fasteignasala Inkasso
2025-04-03
1h 23
Viltu finna milljón?
2.Þáttur - Páll Pálsson fasteignasali: "Þóknun fasteignasala er umsemjanleg"
Við fengum til okkar Pál Pálsson fasteignasala og eiganda Pálsson fasteignasölu og fórum yfir góð og gagnleg ráð þegar kemur að kaupum og sölu á fasteignum. Stórskemmtilegt viðtal sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara! Þátturinn er í boði: Aukakrónur Bónus Aurbjörg Pálsson fasteignasala Inkasso
2025-03-27
1h 19
Viltu finna milljón?
1.Þáttur - Ná Venný og Hörður að greiða upp einbýlishúsið á 6 árum?
Í þessum fyrsta þætti af Viltu finna milljón hlaðvarpinu förum við yfir keppendur annarar seríu og skyggnumst bakvið tjöldin. Við fengum til okkar þau Venný og Hörð sem báru sigur úr bítum í fyrstu seríu þáttanna en þau eru á áhugaverðri vegferð og hafa ekkert gefið eftir síðan þau luku keppni. Eitthvað fyrir alla í þessum fyrsta þætti! Þátturinn er í boði: Aukakrónur Bónus Aurbjörg Pálsson fasteignasala Inkasso
2025-03-20
1h 02